námsvísir haust 2014

24

Upload: simenntun-vesturlands

Post on 02-Apr-2016

230 views

Category:

Documents


7 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Námsvísir haust 2014
Page 2: Námsvísir haust 2014
Page 3: Námsvísir haust 2014
Page 4: Námsvísir haust 2014

Dale Carnegie– Örugg framkoma - vinnustofaRaddblær, svipbrigði og líkamstjáning geta verið allt að 90%af skilaboðum sem fólk meðtekur. Með því að rýna í hvernigþú beitir þér í tjáningu getur þú haft töluverð áhrif á hvernigfólk upplifir þig.Á þessu námskeiði færðu tækifæri til að skoða hvað þúendurspeglar þegar þú tjáir þig. Ertu fagleg/ur, áhrifamikil/l,áhugaverð/ur og með útgeislun? Þú skoðar leiðir til að aukaáðurnefnd atriði sem eru innan þíns áhrifasviðs og gera þigeftirminnilegri og áhrifameiri.Ávinningurinn er að þú getur tjáð þig á lifandi og skemmtileganhátt full/ur af öryggi og útgeislun.Húsnæði Símenntunar á AkranesiÞri. 9. sep. kl. 19:30 til 21:00Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiFim. 11. sep. kl. 19:30 til 21:00Leiðbeinandi: Unnur Magnúsdóttir, eigandi Dale Carnegie áÍslandi

Page 5: Námsvísir haust 2014

JurtalitunarnámskeiðÁ námskeiðinu verður farið í stutta gönguum nágrenni Hespuhússins til að fræðastum þær jurtir sem hægt er að nota til litunarúr nánasta umhverfi. Að göngu lokinni verðurfarið inn í Hespuhúsið, jurtirnar settar í pottog farið yfir litunarferlið frá upphafitil enda. Spjallað verður um íslenskalitunarhefð og ýmis efni kynnt semnotuð eru við jurtalitun.Innifalið í námskeiðsgjaldi erprufuspjald með nokkrum litatónumásamt bæklingi um jurtalitun.Hespuhúsið við AndakílsárvirkjunLau. 13. sep. kl. 13:00 til 17:00Leiðbeinandi: Guðrún Bjarnadóttir, náttúrufræðingur og eigandiHespuhússins í AndakílVerð: 8.900 kr.

Fyrirlestur og sýni-kennsla um jurtalitunFjallað verður um íslenskajurtalitunarhefð og jurtir semnotaðar eru til litunar í dag og áöldum áður. Leiðbeinandi verðurmeð litunarpotta með sér og ýmis efni til að breyta litunum ogsýnir verklag við jurtalitun.Þátttakendur fá með sér prufuspjald með nokkrum litatónumásamt bæklingi um jurtalitun.Fjölbrautaskóli Snæfellinga í GrundarfirðiFim. 9 okt. kl. 20:00 til 22:00Leiðbeinandi: Guðrún Bjarnadóttir náttúrufræðingur og eigandiHespuhússins í AndakílVerð: 6.900 kr.

Harðangur og klaustur– útsaumsnámskeið– fyrir byrjendurKennd verða undirstöðuatriði þessararsaumtegundar. Auk þess geraþátttakendur ýmis verkefni, svo semnálabók, skærapúða og hangandijólaskraut.Allt efni er innifalið í námskeiðsgjaldi.Grunnskóli Snæfellsbæjar í ÓlafsvíkFös. 19. sep. kl. 18:00 til 22:00 og lau. 20. sep. kl. 10:00 til16:00(Skráningar þurfa að berast fyrir 12. september)Auðarskóli í BúðardalFös. 3. okt. kl. 18:00 til 22:00 og lau. 4. okt. kl. 10:00 til 16.00(Skráningar þurfa að berast fyrir 26. september)Leiðbeinandi: Katrín Jóhannesdóttir textílkennariVerð: 25.000 kr.

Page 6: Námsvísir haust 2014

Byrjendanámskeið í víravirkiKenndar verða grunnaðferðir í íslensku víravirki sem byggjastá aldagömlum hefðum við þjóðbúningagerð. Víravirkið hefurverið að koma sterkt inn í skartgripagerð síðustu árin.Á námskeiðinu verður hægt að velja um að smíða blómahálsmeneða kross.Allt efni sem þarf í hlutinn er innifalið í námskeiðsgjaldi og ekkiþarf að koma með neitt nema handfylli af þolinmæði ogjákvæðni.Húsnæði Símenntunar á AkranesiLau. 18. okt. kl. 10:00 til 15:00 og sun. 19. okt. kl. 10:00 til15:00Leiðbeinandi: Júlía Þrastardóttir gullsmiðurVerð: 25.500 kr.

Myndprjón,,Roositud“ er eistneskt myndprjón oger skemmtilega öðruvísi í framkvæmd.Á námskeiðinu verður prjónuðhandstúka.Þátttakendur þurfa að koma með:

• Minnst 80 cm hringprjón nr. 3,5• Kambgarn í 3 litum• Skæri• Frágangsnál• 1 prjónamerki

Grunnþekkingar á prjóni er krafist; að fitja upp, prjóna slétt ogbrugðið og að fella af.Fjölbrautaskóli Snæfellinga í GrundarfirðiLau. 27. sep. kl. 10:00 til 13:00Auðarskóli í BúðardalLau. 27. sep. kl. 16:00 til 19:00Leiðbeinandi er Christine "Tína" Einarsson frá PrjónasmiðjuTínu á SelfossiVerð: 7.200 kr.

Stykkishólmsbær

Page 7: Námsvísir haust 2014

NÁMSVÍSIR HAUSTÖNN 2014 • 7

Page 8: Námsvísir haust 2014

Tvöfalt prjón– fallegt beggja vegnaKennd er prjónaaðferð þar semprjónlesið hefur enga röngu enaðferðin býður samt upp á aðprjónað sé flókið myndprjón.Aðferðin er frábrugðin tvíbandaprjóni eða myndprjóni og hentarvel, til dæmis í trefla, húfubönd og fleira. Þátttakendur þurfaað hafa með sér stuttan (40-60cm) hringprjón í stærð 4,5-5,rautt og hvítt garn sem hentar prjónastærðinni, skæri ogfrágangsnál. EKKI er hentugt að koma með mohair, angóru,lopa, léttlopa eða „loðið“ garn af neinu tagi. Þátttakendurþurfa að kunna að fitja upp, prjóna slétt og brugðið og fellaaf.Húsnæði Símenntunar á AkranesiMið. 24. sep. kl. 19:00 til 22:00Leiðbeinandi: Christine "Tína" Einarsson frá Prjónasmiðju Tínuá SelfossiVerð: 7.200 kr.

Ullarætan– heklnámskeið– fyrir lengra komnaÁ þessu námskeiði verður kennt aðhekla tvær týpur af ullarætu, bæðistutta og langa. Farið verður yfirhvernig á að hekla utan um ullarætuna, hvernig á að heklasaman ullarætuferninga og einnig mismunandi aðferðir við aðhekla kant á ullarætuna.Þátttakendur þurfa að koma með heklunál nr. 3,5 og garn semhæfir heklunálinni.Innifalið í námskeiðsgjaldi er:- Uppskriftir að langri og stuttri ullarætu.- Leiðbeiningar með tveimur mismunandi aðferðum við að heklasaman ullarætuferninga.Húsnæði Símenntunar á AkranesiÞri. 14. okt. kl. 19:00 til 21:30Leiðbeinandi: Elín Kristín GuðrúnardóttirVerð: 7.500 kr.

Page 9: Námsvísir haust 2014

Fatasaumur fyrir byrjendurKennd verða undirstöðuatriði í fatasaumi. Þátttakendur læramáltöku og einfaldar breytingar á sniðum, allt eftir verkefnavalihvers og eins. Boðið verður upp á aðstoð við almennar viðgerðirog breytingar á fatnaði, óski þátttakendur eftir því. Verkefnavaler í höndum þátttakendanna sjálfra. Tímarammi námskeiðs áað nægja t.d. til að sauma kjól miðað við að einnig sé unniðheima. Þátttakendur þurfa að koma með saumavél, tvinna,sníðaskæri, pappírsskæri, sníðapappír og sníðablöð í fyrsta tíma.Leiðbeinandi sendir þátttakendum nánari upplýsingar í tölvupóstifyrir fyrsta tímann. Hámark 7 þátttakendur.Námskeiðið er 5 skipti.Grunnskólinn í StykkishólmiFim. 25. sep. til 23. okt. kl. 19:00 til 21:30(Skráningar þurfa að berast fyrir 17. september)Leiðbeinandi: Kristbjörg Hermannsdóttir textílkennariVerð: 25.900 kr.

NálarorkeringÁ námskeiðinu er farið í grunninná nálarorkeringu. Byrjað er á því aðkenna að gera hnútinn sem allt erbyggt á. Því næst læra nemendurað mynda hringa, keðjur oglauflykkjur sem notaðar eru til aðtengja saman og sem skraut. Fariðverður yfir nokkrar útfærslur af því að setja upp mynstur og aðlokum er gert verkefni. Koma þarf með LJÓST heklugarn nr. 10og orkeringarnálina. Einnig er hægt að kaupa nálina ánámskeiðinu og kostar hún 1400 krónur.Húsnæði Símenntunar á AkranesiFim. 23. okt. kl. 18:00 til 21:00Grunnskólinn í StykkishólmiLau. 25. okt. kl. 12:00 til 15:00Leiðbeinandi: Þorgerður KjartansdóttirVerð: 9.000 kr.

Námskeið í vatnslitunVatnslitamálun fyrir byrjendur og lengra komna. Verkefni verðaaðlöguð að hverjum og einum. Unnið verður eftir fyrirmyndumog ýmsar tækniæfingar gerðar.Pappír er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Námskeiðið er 5 skipti.Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiÞri. 30. sep. til 28. okt. kl. 18:00 til 20:00Leiðbeinandi: Þórey Jónsdóttir myndlistakennariVerð: 17.900 kr.

Page 10: Námsvísir haust 2014

AkrýlmálunKennd verða undirstöðuatriði akrýlmálunar. Kennt að grunnaog vinna abstrakt með ýmis konar tækni.Þátttakendur mæta sjálfir með liti og pensla. Námskeiðið er 5skipti.Brekkubæjarskóli á AkranesiÞri. 30. sep. til 28. okt. kl. 18:00 til 20:00Leiðbeinandi: Elínborg Halldórsdóttir myndlistarkonaVerð: 17.900 kr.

Saumað með TWILLÞátttakendur sauma flík að eigin vali og þurfa að hafa myndaðsér skoðun á því hvað þeir ætla að sauma.Í vikunni áður en námskeið hefst verður leiðbeinandi í sambandivið þátttakendur til að ræða um snið og efni, en hægt verðurað fá efni á góðu verði fyrir námskeiðið í versluninni Twill.Á námskeiðinu læra þátttakendur að taka mál og færa innmáltöflu, að taka upp snið úr blöðum og aðlaga þau.Þátttakendur komi með eigin saumavélar og áhöld.Húsnæði Símenntunar á AkranesiLau. 25. okt. og sun. 26. okt. kl. 10:00 til 17:00(Skráningar þurfa að berast fyrir 17. október.)Leiðbeinandi: Anna Kristín Magnúsdóttir, kjólameistariVerð: 21.900 kr.

Saumanámskeið frá TWILLÁ námskeiðinu verða búnir til tveir hlutir; taska og leggings.Taskan er fóðruð með rennilásavasa og smellum.Snið tekið upp af leggings og kennt hvernig hægt er að saumaþær úr einu eða fleiri efnum. Efnið er ekki innifalið ínámskeiðsgjaldinu en boðið verður uppá nokkra tilbúna pakkameð mismunandi efnum í bæði töskuna og leggings á mjöggóðum kjörum. En einnig má koma með efni með sér.Fjölbrautaskóli Snæfellinga í GrundarfirðiLau. 13. sep. og sun. 14. sep. kl. 10:00 til 17:00Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiLau. 11. okt. og sun. 12 okt. 10:00 til 17:00Leiðbeinandi: Anna Kristín Magnúsdóttir, kjólameistariVerð: 21.900 kr.

Page 11: Námsvísir haust 2014

,,Konfekt og kökur“úr hollu hráefniLærðu að búa til gómsætt konfekt ogkökur til dæmis fyrir jólin úr næringarríkumhráefnum.Á námskeiðinu gera þátttakendurnokkrar gerðir af sælgæti og kökumsem eru bæði hollar, góðar ognæringarríkar. Allir fá að spreyta sigog það verður nóg að smakka.Námsgögn og uppskriftir innifalið.Grunnskólinn í GrundarfirðiLau. 11. okt. kl. 13:00 til 16:30Grundaskóli á AkranesiFim. 13 nóv. kl. 18:00 til 21:30Leiðbeinandi: Oddrún Helga Símonardóttir (heilsumamma)Verð: 8.900 kr.

Tapas gerðLærðu listina á bakvið góða tapasgerð.Á námskeiðinu gera þátttakendur tapasrétti frá grunni. Áherslaner lögð á að allir fái að prófa handtökin og læra af eigin reynsluhvernig maturinn er gerður til að geta auðveldlega snarað framnokkrum spænskum réttum næst þegar gesti ber að garði!Í lok námskeiðsins gæða þátttakendur sér á réttunum.Námsgögn og uppskriftir innifalið.Grunnskóli Snæfellsbæjar í ÓlafsvíkMið. 15. okt. kl. 17:00 til 21:00Grundaskóli á AkranesiMið. 5 nóv. kl. 17:00 til 21:00Leiðbeinandi: Matthías Þórarinsson matreiðslumeistariVerð: 14.900 kr.

Heimili og hönnunFarið er í grunnatriði eins og uppröðunhúsgagna, hvernig hengja á myndir,litaskema, o.s.frv. Einnig verður farið íhvernig gera megi upp gömul húsgögnmeð tilliti til efnis og forms hlutarins. Íkjölfars námskeiðsins verður stofnuð facebook grúbba þar semþátttakendur geta sett inn myndir, fengið ráðgjöf og deilthugmyndum.Markmið: Að þátttakendur nái tökum á grunnhugmyndum íhönnun innan heimilisins.Allir fá munnlega endurgjöf frá kennara.Húsnæði Símenntunar á AkranesiMán. 27. okt. kl. 18:00 til 21:00Leiðbeinandi: Emilia Borgþórsdóttir iðnhönnuðurVerð: 11.500 kr.

Page 12: Námsvísir haust 2014

Hreinsun – orka – vellíðanEinföld og áhrifamikil hreinsun þar sem farið verður yfir toxískefni í fæðu og umhverfi og áhrif þeirra á heilsu okkar. Fariðverður yfir hvernig afeitrunarferli líkamans virkar og hvaðaeinkenni það eru sem kalla á hreinsun. Þátttakendur fá hugmyndirað máltíðum og uppskriftir til að styðjast við yfir daginn.Námsgögn og uppskriftir innfalið í verði.Fjölbrautaskóli Snæfellinga í GrundarfirðiÞri. 16. sep. kl. 19:00 til 20:30Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiFim. 25. sep. kl. 19:00 til 20:30Leiðbeinandi: Ásdís Ragna Einarsdóttir grasalæknirVerð: 5.900 kr.

Ritunarnámskeið- Hvað liggur þér á hjarta?Notaðar eru skapandi og skemmtilegar aðferðir til hrista hópinnsaman og finna rithöfundinn í hverjum og einum. Skrifaðir erustuttir textar með mismunandi aðferðum. Hópurinn ræðir hverntexta og þátttakendur velta fyrir sér á hvaða hátt þeir vilja notaFacebook til að koma upplýsingum, skoðunum og hugleiðingumá framfæri.Átthagastofa Snæfellsbæjar í ÓlafsvíkÞri. 21. okt. kl. 18:00 til 22:00Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir fullorðinsfræðari, rithöfundurog áhugamaður um notagildi Facebook.Verð: 7.900 kr.

Er meðvirkni góðmennska?Farið verður í kjarnaatriði meðvirkni, rætt um mörk og markaleysi,meðalhófið, brenglað sjálfsmat, týnda sjálfsmynd, vanhæfnivið að mæta eigin þörfum og löngunum og hvernig meðvirkmanneskja getur ómeðvitað rænt sjálfa sig og aðra þroskaog/eða gleði.Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur læri að þekkjasjálfan sig betur og virða eigin rödd, langanir og þarfir. Aukinmeðvitund og sjálfstraust. Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum,æfingum og samtölum.Langtímamarkmið: Að lifa lífinu lifandi.Bók og penni innifalið í námskeiðsgjaldi.Húsnæði Símenntunar í Borgarnesi (4 skipti)Fim. 23. okt. til 13. nóv. kl. 19:30 til 21:30Átthagastofa Snæfellsbæjar í Ólafsvík (1 skipti)Lau. 4. okt. kl. 9:00 til 17:00Leiðbeinandi: Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur ogframkvæmdastjóri Lausnarinnar Vesturlandiwww.johannamagnusdottir.comVerð: 15.900 kr.

Page 13: Námsvísir haust 2014

Excel fyrir byrjendurFarið verður í helstu grunnatriði við notkun töflureiknisins Excelvið ýmis konar útreikninga og úrvinnslu talna ásamt útlitsmótunskjala.Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera orðnir færirtöflureiknisnotendur og þekkja helstu eiginleika Excel. Námskeiðiðer 4 skipti.Fjölbrautaskóli Snæfellinga í GrundarfirðiMán. og fim. 15. til 25. sep. kl. 20:00 til 22:00Leiðbeinandi: Freydís Bjarnadóttir, framhaldsskólakennariVerð: 15.000 kr.

Excel - framhaldNámskeiðið er ætlað þeim sem hafa farið á grunnnámskeið eðakunna aðeins á forritið.Byggt verður á grunnatriðum í Excel og áhersla lögð á vinnumeð myndrit og formúlur. Námskeiðið er 4 skipti.Fjölbrautaskóla Snæfellinga í GrundarfirðiMán. og fim. 15. til 25. sep. kl. 20:00 til 22:00Leiðbeinandi: Freydís Bjarnadóttir, framhaldsskólakennariVerð: 15.000 kr.

Notendanámskeið í Office 365Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir eru nú að nýta sér kosti Office365 skýjaþjónustu Microsoft. Á þessu námskeiði er farið yfirhvernig best er að nýta sér þær lausnir og þjónustu sem í boðier í Office 365 umhverfinu. Farið er yfir eftirfarandi þætti:

• Notkun á skrifstofuhugbúnaði (Office 2013) í Office 365umhverfinu hvað varðar aðgengi að gögnum í Onedriveog Sharepoint.

• Uppsetningu á Office 2013 pakkanum á önnur tæki envinnutölvu og tengjast þannig vinnuumhverfi notandans.

• Hvernig á að nýta Lync til samskipta í textaspjalli,tali og mynd og til fjarfunda.

Athugið að þetta er ekki námskeið í Office 2013 skrifstofu-hugbúnaði heldur eingöngu hvernig unnið er í Office 365umhverfinu. Námskeiðið er gagnvirkt með kennslu og stuttumæfingum. Tvö skipti með viku millibili.Húsnæði Símenntunar á AkranesiMið. 17. og 24. sep. kl. 18:00 til 21:00Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiMið. 1. og 8. okt. kl. 18:00 til 21:00Leiðbeinandi: Eyjólfur Rúnar Stefánsson, kerfisfræðingurVerð: 15.000 kr.

Kerrupróf – BE réttindiTil að aka með stærri vagna/kerrur þarf að afla sér BE réttinda,en til þess þurfa viðkomandi að vera orðinn 18 ára og verakominn með fullnaðarökuskírteini.Námið skiptist í 4 bóklega tíma og 4 verklega. Prófin eru tekinhjá Frumherja í Reykjavík eða á Akranesi. Greiða þarf sérstaktprófgjald sem er 10.300 kr. Húsnæði Símenntunar í BorgarnesiHaldið í október þegar næg þátttaka hefur næst.Leiðbeinandi: Þórður Bogason ökukennariVerð: 57.000 kr.

Page 14: Námsvísir haust 2014

Námskeið í verkefnastjórnunog leiðtogahæfniÁ námskeiðinu er farið í grunnatriði verkefnastjórnunar ogpersónulega færni þátttakenda, skilvirkt verklag ogforgangsröðun verkefna. Verkefni eru skoðuð í víðu samhengi,allt frá skipulagningu og áætlunargerð til eftirlits með öllumþáttum á verktíma frá byrjun til enda. Þetta námskeið nýtistöllum sem vilja tileinka sér betra verklag, auka afköst sín ogskilvirkni í þeim verkefnum sem þeir vinna í og stjórna, samaaf hvaða stærðargráðu þau eru. Á námskeiðinu eru kenndaraðferðir við undirbúning verkefna, áætlanagerð og eftirfylgni.Þátttakendur fá góða sýn á eðli verkefna, æfingu og kynninguá að nota algeng verkfæri við verkefnastjórnun, kennslu ogþjálfun í góðum samskiptum í hópastarfi og kynnt helstuhjálpartæki verkefnastjórans á sviði hugbúnaðar. Námskeiðiðer undirbúningur fyrir alþjóðlega vottun verkefnastjóra samkvæmthæfinsviðmiðum IPMA (International Project ManagementAssociation)Húsnæði Símenntunar á AkranesiFim. 2. okt. og fös 3. okt. kl. 09:00 til 16:00Leiðbeinandi: Svavar H. Viðarsson M.Sc. í verkefnastjórnunVerð: 39.900 kr.

Símenntunarmiðstöð Vesturlandsbýður upp á Menntastoðirí dreifnámi á haustönn 2014Menntastoðir er grunnnám á framhaldsskólastigi. Kennd erueftirtalin fög; stærðfræði, íslenska, enska, danska, námstækni,bókfærsla og tölvu- og upplýsingatækni. KennsluhættirMenntastoða miðast við þarfir fullorðinna nemenda og leitaster við að veita nemendum góða þjónustu.Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt aðframhaldsskólar geti metið námið til eininga. Námið er metiðsem fullnægjandi undirbúningur undir frumgreinadeildir Keilis,Bifrastar og Háskólans í Reykjavík.Námið er 2 annir og hefst með staðlotu í Borgarnesi helgina19.- 20. september.Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 12. september.Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum.Einnig geta atvinnuleitendur sótt um námsstyrk hjáVinnumálastofnun vegna Menntastoða.Nánari upplýsingar má nálgast inni á www.simenntun.is eðahafa samband við Helgu Lind Hjartardóttur verkefnisstjóraMenntastoða hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi í síma437-2390 eða netfangið [email protected]ð: 81.000 kr.

Page 15: Námsvísir haust 2014

Ris og hnig í hamingjuSnorra SturlusonarEins og undanfarna vetur býður Snorrastofa í Reykholti,Landnámssetur í Borgarnesi og Símenntunarmiðstöðin áVesturlandi til námskeiðs um fornsöguleg málefni.Á komandi vetri verður sjónum beint að sjálfum Snorra Sturlusyni,sagnaritara og stjórnmálamanni, sem nafnkunnastur er allraÍslendinga fyrr og síðar. Námskeiðskvöldin eru 6 talsins og fyrstakvöldið verður á sögulofti LandnámssetursDagskrá:

1. Uppruni Snorra og æska6. okt. 2014

2. Valdaútþensla í Borgarfirði – héraðsríkið3. nóv. 2014

3. Ástin og sálarlíf Snorra12. jan. 2015

4. Hirðmaðurinn Snorri og Skúli jarl, hertogi og kóngur2. feb. 2015

5. Sagnamaðurinn Snorri – Edda og Heimskringla2. mar. 2015

6. Fall Snorra - samsærið – morðið6. apr. 2015

Snorrastofa í Reykholti og Landnámssetur í Borgarnesitil skiptis.Mán. kl. 20:00 til 22:00Leiðbeinandi: Óskar Guðmundsson rithöfundur í VéumVerð: 19.900 kr. (stakt skipti 3.400 kr.)

Snæfellsbær

Page 16: Námsvísir haust 2014

SmáskipanámSmáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rlréttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinið nú viðlengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðastskv. því við skip, 12 metrar og styttri að skráningarlengd.Einnig er skilyrði að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv.reglugerð nr. 393/2008. Námið er kennt hjá Símenntunar-miðstöðinni á Vesturlandi og kennt með faglegri ábyrgðSkipstjórnarskóla Tækniskólans.Námið verður kennt á Akranesi á vorönn 2015.Hvetjum áhugasama til að hafa samband við Hörð Baldvinsson,[email protected] eða í síma 437-2390

Dalabygg›

Page 17: Námsvísir haust 2014

Geðsjúkdómar og sálræn vanlíðanMarkmið námskeiðsins er að þátttakendur verði betur í stakkbúnir til að sinna einstaklingum með geðraskanir í starfi sínu.Námskeiðinu er skipt í tvo hluta. Í fyrri hlutanum verður fjallaðum helstu orsakir, áhættuþætti og einkenni geðsjúkdóma ásamtþví að fjallað verður um viðbrögð og meðferð. Einnig verðateknar fyrir helstu persónuleikaraskanir, skoðaðar orsakir ogmeðferð. Farið verður yfir hvenær mikilvægt er að skoða andlegtástand og farið yfir helstu þætti geðheilbrigðismats.

Í síðari hlutanum verður fjallað um geðræn vandamál aldraðra,þunglyndi og kvíða sem eru algengustu vandamál aldraðra.Farið verður yfir hvernig þau birtast, hvernig þau eru ólík þvísem gerist meðal yngra fólks og hvernig þau tengjast almennrihrörnun ellinnar. Farið verður í hvernig hægt er að mæta þessumvandamálum og nota í venjulegri hjúkrun og umönnun. Mester fjallað um notkun lífssögu og minninga, en fleiri aðferðirverða kynntar til sögunnar.Húsnæði Símenntunar á AkranesiMið. og fim. 29. og 30. okt. kl. 17:00 til 21:00Leiðbeinendur: Sylvía Ingibergsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrunog Sigrún Huld Þorgrímsdóttir sérfræðingur í geðhjúkrun aldraðraVerð: 19.900 kr.

Page 18: Námsvísir haust 2014

SöngurLangar þig að læra að syngja?Kenndar verða aðferðir við aðbeita röddinni rétt og hlusta,sungið saman.Tónlistarskólinn á Akranesi,Dalbraut 1Mán. 8. sep. til 6. okt. Kl. 11:00 til 11:45 (5 skipti)Tónlistarskóli Borgarfjarðar, BorgarnesiÞri. 9. sep. til 7. okt. kl. 11:00 til 11:45 (5 skipti)Leiðbeinandi: Zsuzsanna Budai tónlistarkennariVerð: 2.500 kr.

MatreiðslaKennt verður að útbúa hollan, gómsætanog fjölbreyttan mat. Þátttakendur hittakennara áður en námskeið hefst og velja úrfjölbreyttum mataruppskriftum og fáleiðbeiningar með innkaup. Hráefni sjá þátttakendur um sjálfir.Kennt er inni á heimili þátttakenda.Þri. og mið. kl. 16:30 til 18:00 eða 18:30 til 20:00 16. sep. til7. okt. (4 skipti)Leiðbeinandi: Katrín Leifsdóttir heimilisfræðikennariVerð: 4.000 kr.

JurtalitunFarið verður í næsta nágrenni ogjurtir tíndar. Jurtirnar verða settar ípott og ullarband litað samkvæmtgömlum hefðum.Hespuhúsið viðAndakílsárvirkjunLau. 6. Sep. kl. 13:00 til 16:00Leiðbeinandi: Guðrún BjarnadóttirnáttúrufræðingurVerð: 3.000 kr.

Eftirfarandi námskeið eru í samstarfi við Fjölmennt –símenntunar og þekkingarmiðstöð og ætluð fólki 20 áraog eldra.Helga Björk Bjarnadóttir þroskaþjálfi [email protected] umsjón með námskeiðunum.

Page 19: Námsvísir haust 2014

Söng- leiklistÁ námskeiðinu mun söng, tónlist og leik verastefnt saman.Unnið verður með raddbeitingu og túlkun.Hópurinn verður hristur saman með fjölbreyttumtraust- og leikæfingum þannig að sem mest fáistút úr námskeiðinu.Spáð og spekúlerað verður í búninga og gervi ítengslum við efniviðinn sem unnið verður með.Í lok dags verður samantekt á viðfangsefnumdagsins og borðað saman.Húsnæði Símenntunarmiðstöðvarinnar áAkranesiLau. 13. sep. kl. 10:00 til 19:00Leiðbeinandi: Ása Hlín Svavarsdóttir leiklistarkennari og leikstjóriog Zsuzsanna Budai tónlistarkennariVerð: 7.000 kr. (matur innifalinn)

Page 20: Námsvísir haust 2014

Betra lífÞema dagsins verður lagið ,,Betra líf“ með PáliÓskari.Farið verður í jákvæðar staðhæfingar, spuna,dans, minnisspil, hugleiðslu og margt fleira.Gleðin verður í fyrirrúmi og mælt með aðþátttakendur mæti í litríkum fötum til aðundirstrika gleði litanna.Ráðhúsið í StykkishólmiLau. 18. okt kl. 10:00 til 16:00Leiðbeinandi: Jóhanna Magnúsdóttir guðfræðingur, kennariog ráðgjafiVerð: 5.000 kr. (léttar veitingar innifaldar)

Verum með!Hreyfing, léttar æfingar,leikir og fræðsla.Þátttakendur mæti ííþróttafötum og klæði sigeftir veðri.Húsnæði Símenntunarmiðstöðvarinnar í BorgarnesiMið. 10. sep. til 8. okt kl. 16.30 til 18:00 (5 skipti)Leiðbeinandi: Sólrún Halla Bjarnadóttir íþróttakennariVerð: 5.000 kr.

SundnámskeiðFarið verður yfir helstu sundtökin ogfarið í skemmtilega leiki í sundlauginni.Sundlaugin í ÓlafsvíkTímasetning ákveðin síðarLeiðbeinandi: Snædís Hjartardóttiríþróttakennari

TónlistKynnt verða ýmiss hljóðfæri, hlustað verður átónlist og spilað samanTónlistarskólinn í StykkishólmiNámskeiðið hefst í nóvember alls 5 skipti,tímasetning auglýst síðarLeiðbeinandi: Hafþór Guðmundsson tónlistarkennariVerð: 5.000 kr.

Page 21: Námsvísir haust 2014
Page 22: Námsvísir haust 2014
Page 23: Námsvísir haust 2014
Page 24: Námsvísir haust 2014