námsvísir iðunnar - vor 2013

62
VOR 2013 SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

Upload: idan-fraedslusetur

Post on 12-Mar-2016

252 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

Eins og áður bjóðum við upp á fjölmargar útfærslur í símenntun fyrir einstaklinga og fyrirtæki í iðnaði.

TRANSCRIPT

Page 1: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

VOR 2013

SÍMENNTUN Í IÐNAÐI

Page 2: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

NÁMSKEIÐ Í JANÚAR 2013 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Verktaki eða launþegir?

Vín og matur

CNC- stýrðar iðnvélar

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka

Pinnasuða fyrir stál

Gæðakerfi í byggingariðnaði

Morgunfyrirlestur NUDE magazine

Ábyrgð byggingastjóra

Sölubúst með Birni Sigurjóns

Léttvín og matur

Undirbúningsnámsk. fyrir sveinspróf bifvélavirkja

Hjólastilling

Vínfræði 1

BYGG - kerfið

Litun, klipping og greiðslur

Kjötmat

Brunaþéttingar

ISO 9000 gæðastjórunarstaðlar

NÁMSKEIÐ Í FEBRÚAR 2013 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

Autodesk INVENTOR 2014

Bilanagreining - Akureyri

Mannauðsstjórnun

Varmadælur

Þjónusta og sala í bakaríum

Tölvuleikjagerð með Unity 3Dsdfsdfsd

Vín 1

CABAS nýliðaþjálfun / grunnnámskeið

Tölvur ekkert mál

Grunnatriðið í verkefnastjórnun

Frágangur rakavarnarlaga

Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Húsgögn úr skógarefni

Marmaramálun

Trérennsmíði

Veðurfar og byggingarframkvæmdir

Öflugt sjálfstraust

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka

Málarasýningin

Photoshop með Ben Willmore

Gólfhitakerfi

INVENTOR „super model“

Morgunfyrirlestur Ben Willmore

Varmadælur

Veggfóðrun

Ábyrgð byggingastjóra

App forritafrumskógurinn

Common Rail

Digital Publishing Suite

Þakpappi

Brunaþéttingar

iOS iPad og Kindle

ÍST 30

Markvissari tölvupóstsamskipti

AutoCAD & AutoCAD LT

BIM fyrir byggingamenn

Gæðakerfi í byggingariðnaði

Raki og mygla í húsum

Vatnsúðakerfi - sprinkler

Flash to web

Súrefnisskynjari afgasgreining

Að reikna rétt verð

Loftlagnir

Vistvæn byggingarefni

CABAS framhaldsnámskeið

Eiturefni - málningaruppleysir

Innri úttektir skv ISO 19011

Rekstur smáfyrirtækja

NÁMSKEIÐ Í MARS 2013 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Arinhleiðsla

Autodesk Revit Architecture 2014

Hljóðvist í húsum

Page 3: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

NÁMSKEIÐ Í MARS 2013 frh. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

Raki og mygla í húsum

Varmadælur

Trébátasmíði

Smurbrauð

Illustrator CS6

Töflureiknirinn Excel

Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Stjórnun verkfunda

SketchUp

Vinnugleði- mín vinna mitt viðhorf

Plast

Bordeaux vín

Iðntölvustýringar

Kalda eldhúsið

Löggilding mannvirkjahönnuða

Nýjungar í bakstri

Excel fjármál og rekstur

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka

Stafræn ljósmyndun byggingahluta

Uppsetning múrkerfa

Þök. raki í innilofti rakaástand og mygla

Parket. viðgerðir og viðhald

Varmadælur

Viðhald og viðgerðir gamalla húsa

Ábyrgð byggingastjóra

Stjórnstöðvar hitakerfa

Bilanagreining

Brunaþéttingar

Gæðakerfi í byggingariðnaði

Morgunfyrirlestur Business to Web

NÁMSKEIÐ Í APRÍL 2013 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Ritvinnsla Word

SRS viðbótarbúnaður

Plastsuður

Raunkostnaður útseldrar þjónustu

Sólpallar og skjólgirðingar

AutoCAD electrical grunnur

Móttaka nema í vinnustaðanámi

Vin II

Stafræn ljósmyndun byggingahluta

Brauðgerð og súrar

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka

Raki og mygla í húsum

Hljóðvist í húsum

Upphengdar flísar

Varmadælur

Ábyrgð byggingastjóra

Að mæla burðavirki

Þök. raki í innilofti rakaástand og mygla

Mælingar og mælitæki

AutoCAD electrical framhald

Internetið

NÁMSKEIÐ Í MAÍ 2013 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

Loftfrískunarkerfi

Torf og grjóthleðslur

Rafmagnsfræði

Rafeindabúnaður

Vinnuvélar - spjót og körfukranar

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka

Gæðakerfi í byggingariðnaði

Vinnuvélar - byggingakranar

Vinnuvélar - frumnámskeið

ÓTÍMASETT - AUGLÝST SÍÐARBífreiðasmiði auglýst sérstaklega.

Bílamálun auglýst sérstaklega.

Að semja sveinspróf eftir samkomulagi

Árangursrík stjórnun eftir samkomulagi

Innra eftirlit í kjötvinnslum eftir samkomulagi

Útgefandi: IÐAN fræðslusetur 2013. Ábyrgðarmaður: Hildur Elín Vignir.

Hönnun og umbrot: Auglýsingastofan Dagsverk ehf.

Ljósmyndir: Haraldur Guðjónsson.

Prentun: Prentsmiðjan Oddi.

Page 4: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

Iðnaðurinn árið 2015 óskar eftir vel menntuðu fólki til starfa.

Á næstu árum verða vaxtarsprotar íslensks atvinnulífsí áliðnaði, byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni, matvælaiðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaðiog upplýsingatækni.

Nám í verkmenntaskólum, háskólum og öðrum menntastofnunum er skynsamleg leið til að búasig undir �ölbreytt tækifæri.

Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!Samtök iðnaðarins – www.si.is

Byggingariðnaður

Áliðnaður

Líftækni

Prentiðnaður

Matvælaiðnaður

Listiðnaður

Véltækni

Málmtækni

Upplýsingatækni

2015 tækifæri

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 0

9-0

06

6

bhs.isbifrost.is

fa.isfb.is

fg.is�v.is

fnv.isfrae.isfsh.isfss.isfsu.is

fva.ishi.ishr.is

idan.isidnskolinn.is

klak.ismisa.is

mk.issimey.istskoli.isunak.is

va.isvma.is

Page 5: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

3

Margt spennandi á nýju ári.Gleðilegt ár! Eins og áður bjóðum við upp á fjölmargar útfærslur í símenntun fyrir einstaklinga og fyrirtæki í iðnaði. Fyrirtækjaþjónusta IÐUNNAR sérhæfir sig í að greina og skapa heildstæða menntastefnu fyrir starfsmenn fyrirtækja, en með því teljum við að hámarks nýting náist út úr þeirri fjárfestingu sem varið er í menntunina.

Nýlega var gerður samningur við Rafiðnaðarskólann sem gerir félagsmönnum okkar kleift að sækja námskeið í Rafiðnaðarskólanum á félagsverði.

Á vorönn mun áhersla verða á að auka þjónustu við félagsmenn okkar á landsbyggðinni. IÐAN verður á Akureyri dagana 28. janúar til 2. febrúar með skipulega dagskrá og námskeið á öllum sviðum. Einnig er unnið markvisst að því að auka leiðir í fjarnámi sem ættu að verða sýnilegar á árinu.

Það er von okkar hjá IÐUNNI að sem flestir finni sér námskeið við hæfi. Sé þörf á námskeiðum sem ekki eru í boði í þessum námsvísi hvet ég ykkur til að hafa samband við okkur. Það er oftast hægt í samvinnu við rétta fagmenn að verða við slíkum óskum. Þannig vinnum við saman að sameiginlegum hagsmunum í símenntun iðnaðarmanna á Íslandi.

Við bjóðum ykkur velkomin til okkar að Skúlatúni 2 og Gylfaflöt 19 í Reykjavík.

Bestu kveðjur,

Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNNAR fræðsluseturs

STARFSFÓLK IÐUNNAR

INNGANGUR

Page 6: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

4

Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR 7Námssamningar og sveinspróf 8

Móttaka nema í vinnustaðanám 8Að semja próf 8Árangursrík stjórnun 8

Fræðsluvika í iðnaði á Akureyri 9Vínfræði I 9Kjötmat 9Þjónusta og sala í bakaríum 9Bilanagreining Akureyri 9Cabas framhaldsnámskeið 9Móttaka nema í vinnustaðanám 10Litun, klipping og greiðslur 10Brunaþéttingar 10Varmadælur 10InDesign fyrir iPad og Kindle 10Veflausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki 10Tölvuleikjagerð með Unity 3D 11Myndskreyting og hönnun 11Autodesk forritin kynning. 28. janúar. 09.00 - 16.00. 11AutoCAD Electrical 2014 Essentials® (IEC Standard) Grunnur 11Autodesk Revit Architecture 2014 grunnnámskeið „Essentials“ 11Óskaðlegar prófanir NDT 11Málmsuða. Hvað er nýjast? 11Raunfærnimat á Akureyri 11Kynning á iðn- og verknámi fyrir efstu bekki grunnskólanna 11

BIFVÉLAVIRKJUN, BÍLAMÁLUN OG BIFREIÐASMÍÐI 12Loftfrískunarkerfi 13Að mæla burðarvirki 13CABAS grunnur 13CABAS framhaldsnámskeið 13Hjólastilling 14Súrefnisskynjari afgasgreining 14Plast 15Common Rail 15SRS viðbótarbúnaður 15Rafeindabúnaður 15Bilanagreining 16Bilanagreining Akureyri 16Suðuþjálfun í fyrirtækjum 17TIG-suða og kynning á plasmasuðu 17Viðgerðatækni nútímans 17Bifreiðasalar með metnað 17Bílamálun 18Bifreiðasmíði 18

PRENTTÆKNI, BÓKBAND, HÖNNUN OG GRAFÍSK MIÐLUN 19Photoshop CS6 með Ben Willmore 20Sölutækni fyrir lengra komna 20Notendaforrita frumskógurinn 20Adobe Digital Publishing Suite 21App fyrir iPad 21Unity 3D - tölvuleikjagerð 21Flash yfir á aðra miðla 21Man Roland viðhald og umhirða 22Illustrator CS6 22NUDE MAGAZINE - Hvað voru þau að pæla? 22Framtíðin að hætti Ben Willmore 22Business to print web solutions 22

HÚSASMIÐIR, MÁLARAR, MÚRARAR, PÍPULAGNINGAMENN DÚKLAGNINGAMENN OG HÚSGAGNASMIÐIR 23

Ábyrgð byggingarstjóra 24Brunaþéttingar 24Raki og mygla í húsum 24Skyndihjálp 24

Þakpappi 25Hljóðvist í húsum 25Stafræn ljósmyndun byggingahluta 25ÍST – 30 26Vistvæn byggingarefni 26Veðurfar og byggingaframkvæmdir 26Torf- og grjóthleðslur 26Gæðakerfi í byggingaiðnaði 27Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka 27Mælingar og mælitæki 27Raunkostnaður útseldrar þjónustu 28Innri úttektir skv. ISO 19011 28ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir 28BYGG kerfið 29Byggingareglugerðin og frágangur lóða 29BIM fyrir byggingamenn 29Stjórnun verkfunda 29Öryggi og vinnuvernd 30Vinnuvélanámskeið - frumnámskeið 30Vinnuvélanámskeið – körfukranar og spjót 30Vinnuvélanámskeið – byggingakranar 30Réttindi á byggingakrana 30Sprengiefni 30Málningaruppleysir 30SketchUp 31Frágangur rakavarnarlaga 31Autodesk fyrir byggingamenn 31Sólpallar og skjólgirðingar 31Húsverndarstofa 32Húsgagnaviðgerðir – bæsun og lökkun 32Þök, rakaástand og mygla 32Húsgagnagerð úr skógarefni 32Trérennismíði 33Viðhald og viðgerðir gamalla timburhúsa 33Trébátasmíði 33Nýlögn og viðhald parkets 33Þrýstiloftskerfi 34Gólfhitakerfi 34Varmadælur 34Vatnsúðakerfi - Sprinkler 34Stjórnstöðvar hitakerfa 35Plastsuða 35Marmaramálun 35Farfi og fegurð – saga húsamálunar 35Uppsetning múrkerfa 36Arinhleðsla 36Upphengdar flísar 36Veggfóðrun 36

HÁRSNYRTISVEINAR, MEISTARAR OG NEMAR 37Litun, klipping og greiðslur 38Að reikna rétt verð 38Léttvín og matur 38Verktaki eða launþegi? Að reikna laun í eigin atvinnurekstri 38Vinnugleði – mín vinna, mitt viðhorf 39Mannauðsstjórnun 39Rekstur smáfyrirtækja 39

MATREIÐSLUMENN, FRAMREIÐSLUMENN, KJÖTIÐNAÐARMENN, BAKARAR OG STARFSFÓLK Í FERÐAÞJÓNUSTU 40

Þjónusta og sala í bakaríum 41Innra eftirlit í kjötvinnslum 41Þjónusta og samskipti á veitingahúsum 41Bordeaux vín 41Vín 42Brauðgerð og súrar 43

EFNISYFIRLIT

Page 7: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

5

STARFSFÓLK IÐUNNAR

Edda Jóhannesdóttir Náms- og starfsráðgjafi

Erna G. Árnadóttir Náms- og starfsráðgjafi

Fjóla Hauksdóttir Verkefnastjóri

Birgir Hólm Verkefnastjóri

Björg Kofoed-Hansen Fræðslufulltrúi

Björn M. Sigurjónsson Sviðsstjóri prenttæknisviðs

Ragnar B Ingvarsson Sviðsstjóri bílgreinasviðs

Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir Náms- og starfsráðgjafi

Sigurður Fjalar Jónsson verkefnastjóri

Kristján Kristjánsson, Sviðsstjóri málm- og véltæknisviðs

Ólafur Ástgeirsson, Sviðsstjóri bygginga- og mannvirkjasviðs

Ólafur Jónsson, Sviðsstjóri matvæla- og veitingasviðs

Gústaf Adolf Hjaltason Verkefnastjóri

Helen Williamsdóttir Gray Forstöðum. Starfsmenntadeildar

Helga Björg Hallgrímsdóttir Fræðslufulltrúi

Hildur Elín Vignir Framkvæmdastjóri

Iðunn Kjartansdóttir Náms- og starfsráðgjafi

Inga Birna Antonsdóttir Fræðslufulltrúi

Skúlatúni 2 - 105 ReykjavíkSími 590 6400 - Fax 590 [email protected] - www.idan.is

Þorgerður Jóhannsdóttir Matráður

Þórey Thorlacius Bókhald

Steinunn Guðjónsdóttir Fjármálafulltrúi

Valdís Axfjörð Móttaka

Smurbrauð 43Vín og matur 43Vínfræði I 43Kalda eldhúsið 44Kjötmat 44Nýjungar í bakstri 44

MÁLMTÆKNI, VÉLSTJÓRN OG BLIKKSMÍÐI 45Vökvatækni - virkni vökvakerfa 46Vökvatækni – framhald af virkni vökvakerfa 46Vökvatækni – rekstur, viðhald og bilanagreining 46Vökvatækni fartækja 46Málmsuða – Grunnur 47Pinnasuða 47TIG-suða og kynning á plasmasuðu 47MIG / MAG-suða 47Logsuða 48Ál og álsuða 48Suðuþjálfun í fyrirtækjum 48CNC-stýrðar iðnvélar 48Rennismíði og fræsing 49Rafmagnsfræði 49Iðntölvustýringar 49Kælitækni – áfylling á kælikerfi 49Kælitækni 50Er verkstæðið allt í óreiðu og viltu lagfæra það (til frambúðar)? 50Stillingar loftræsikerfa 50OPIN SMIÐJA Suðusmiðja - Pinnasuða 51OPIN SMIÐJA Suðusmiðja - TIG-suða 51OPIN SMIÐJA Kerrusmíði (málmsmíði) 52

Uppbygging loftræsikerfa 52Óskaðlegar prófanir NDT. Hljóðbylgja „level I“ 52Inventor 2014 „súper módel“ (Skeleton Construction) 53Autodesk Revit Architecture 2013 grunnnámskeið „Essentials“ 53AutoCAD 2014® Þrívídd 53AutoCAD Electrical 2014 Essentials® (IEC Standard) Grunnur 53AutoCAD Electrical 2014 Essentials® (IEC Standard) Framhald 54Autodesk Inventor 2014 Essentials ® Grunnnámskeið 54AutoCAD 2014 & AutoCAD LT 2014® Grunnnámskeið 54

NÁMSKEIÐ FYRIR ALLA 55Öflugt sjálfstraust 55Verktaki eða launþegi? Að reikna laun í eigin atvinnurekstri 55Rekstur smáfyrirtækja 55Grunnatriði í verkefnastjórnun 56Vinnugleði – mín vinna, mitt viðhorf 56Markvissari tölvupóstsamskipti 56Mannauðsstjórnun 56

TÖLVUNÁMSKEIÐ, EXCEL, WORD OG INTERNETIÐ 57Tölvur ekkert mál - grunnnámskeið 57Ritvinnsla í Word 57Töflureiknirinn Excel 57Internetið 57SketchUp 58Excel – fjármál og rekstur 58

EFNISYFIRLIT

Page 8: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

6

GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR

Hvar eru námskeiðin haldin?Helstu kennslu- og námskeiðsstaðir eru: IÐAN fræðslusetur Skúlatúni 2, Reykjavík, Bílgreinahúsið Gylfaflöt 19, Reykjavík, Lagnakerfamiðstöð Keldnaholti, Reykjavík, Endurmenntun Háskóla Íslands, Tækniskólinn, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Borgarholtsskóli, Menntaskólinn í Kópavogi, Listaháskóli Íslands, Reykjanesbær, Selfoss, Akranes, Ísafjörður, Akureyri, Egilsstaðir og Húsavík.

Fyrirtækjaþjónusta IÐUNNARFyrirtækjaþjónusta IÐUNNAR hefur það markmið að vera í nánari tengslum við félagsmenn, heyra óskir þeirra hvað varðar sí- og endurmenntun og minna á þau tækifæri sem felast í aðild að IÐUNNI. Í henni felst að fulltrúar frá IÐUNNI heimsækja fyrirtæki í ýmsum iðngreinum, kynna námsframboð, bjóða upp á sérsniðin námskeið eftir þörfum og fjalla um raunfærnimat. Einnig er boðið upp á aðstoð við skipulagningu á fræðslu og þjálfun innan fyrirtækis sem og náms- og starfsráðgjöf á vinnustað.

Áhugasamir hafi samband í s: 590 6400.

Skráning og þátttakaSkráning á öll námskeið fer fram á vef IÐUNNAR www.idan.is, í tölvupósti til [email protected] eða í síma 590-6400. Á heimasíðu er einnig yfirlit yfir öll námskeið sem eru í boði á hverri önn.

NámskeiðsgjöldVerð á námskeiðum eru alltaf tvö. Fullt verð greiða þeir sem ekki eru aðilar að IÐUNNI eða ekki er greitt af í endurmenntunarsjóði IÐUNNAR. (Gjaldið er greitt af vinnuveitanda). Lægra verðið er fyrir þá sem greitt er af í endurmenntunarsjóði. IÐAN veitir upplýsingar um stöðu hvers og eins ef óskað er.

FerðastyrkirFerðastyrkur er eingöngu veittur vegna námskeiða hjá IÐUNNI. Greitt verður lægsta flugfargjald vegna ferðalags frá heimabyggð til námskeiðsstaðar. Ökutækjastyrkur er 6.000 kr. til þeirra sem búa í 40 km. fjarlægð eða fjær frá námskeiðsstað. Ökutækjastyrkur er 10.000 kr. þeim til handa sem búa 120 km. eða lengra frá námskeiðsstað. Ökutækjastyrkur er 15.000 kr. til þeirra sem búa í 250 km. fjarlægð eða fjær frá námskeiðsstað. Athugið að þetta á einungis við um þá aðila sem greitt er af endurmenntunargjald.

Námssamningar og sveinsprófIÐAN fræðslusetur hefur umsýslu með námssamningum og sveinsprófum í umboði menntamálaráðuneytisins. Þær iðngreinar sem við sjáum um eru: Byggingaiðngreinar, málmiðngreinar, snyrtigreinar, matvæla- og veitingagreinar, bílgreinar, hönnunar- og handverksgreinar og fjölmiðla- og upplýsingatækni, ásamt fleiri iðngreinum.

IÐAN veitir einnig allar upplýsingar sem varða ferli námssaminga og sveinsprófa.

Hafir þú spurningar varðandi námssamninginn þinn, rétt þinn á samningstíma eða sveinspróf, vinsamlega hafðu þá samband við skrifstofu okkar í sími 590-6400 eða á netfangið [email protected].

Náms- og starfsráðgjöfNáms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR bjóða upp á margvíslega ráðgjöf tengda bæði námi og starfi. Boðið er m.a. upp á einstaklingsviðtöl, áhugasviðsgreiningu, ferilskrágerð, sérúrræði í sveinsprófi og raunfærnimat. Bókaðu viðtal með tölvupósti á netfangið [email protected] eða með því að hringja í 590-6400.

Félagsmenn án atvinnuFélagsmönnum okkar sem eiga rétt á atvinnuleysisbótum er bent á að athuga rétt sinn hjá Vinnumálastofnum áður en þeir koma á námskeið. Vinnumálastofnun styrkir þátttakendur til setu á námskeiðum IÐUNNAR.

Eldri félagsmenn og öryrkjarFélagsmenn sem komnir eru á eftirlaunaaldur og þeir sem eru öryrkjar geta sótt námskeið í sinni heimabyggð án þess að greiða námskeiðsgjald en eru beðnir að taka það sérstaklega fram við skráningu.

Ef skráður þátttakandi mætir ekki og boðar ekki forföll með sólarhrings fyrirvara, áskilur IÐAN sér rétt til að krefja hann um helming af námskeiðsgjaldi. Ef þátttakandi þarf frá að hverfa vegna ófyrirsjáanlegra orsaka greiðir hann fyrir námskeiðið en getur lokið því næst þegar það er haldið sé laust sæti.

Forföll þátttakenda á námskeiðum IÐUNNAR

Hefur þú áhuga á að ljúka iðnnámi í grein sem þú hefur starfað við?

Ert þú 25 ára eða eldri og með 5 ára staðfestan vinnutíma í iðngreininni?

IÐAN fræðslusetur býður upp á raunfærnimat sem metur þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast á vinnumarkaðnum á móti námi í viðkomandi iðngrein.

Sendu fyrirspurn á [email protected].

Page 9: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

7

Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR bjóða upp á margvíslega ráðgjöf tengda bæði námi og starfi. Boðið er m.a. upp á einstaklingsviðtöl, áhugasviðsgreiningu, ferilskrárgerð, sérúrræði í sveinsprófi og raunfærnimat.

Bókaðu viðtal á netfangið [email protected] eða með því að hringja í 590 6400.

Náms- og starfsráðgjöf IÐUNNAR

Hefur þú velt fyrir þér námi og störfum? IÐAN býður upp á margvíslega ráðgjöf fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki.

Hjá IÐUNNI fræðslusetri starfa náms- og starfsráðgjafar sem eru tilbúnir að veita þér ráðgjöf og upplýsingar um nám, störf og raunfærnimat. Raunfærnimat er í boði í 19 greinum.

IÐNNEMAR - SVEINAR – NÝSVEINAR - MEISTARAR

Náms- og starfsráðgjöfHlutverk náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs er að veita iðnmenntuðum einstaklingum og iðnnemum margvíslegan stuðning og þjónustu meðan á námi stendur og í starfi.

Markmið ráðgjafarinnar er að stuðla að auknum árangri og vellíðan í námi og starfi.

Náms- og starfsráðgjöfin sinnir:

• Raunfærnimati.

• Fyrirtækjaþjónustu.

• Aðstoð við gerð ferilskrár.

• Áhugasviðsgreiningu.

• Námstækni.

• Ráðgjöf um vinnubrögð í námi.

• Ráðgjöf um prófkvíða, streitu og sjálfstyrkingu.

• Ráðgjöf um náms- og starfsval.

• Sérúrræði í sveinsprófi.

• Kynningum á iðn- og starfsnámi.

Farið er með öll erindi sem trúnaðarmál.

Raunfærnimat IÐAN fræðslusetur og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins eru í samstarfi um framkvæmd raunfærnimats í iðngreinum. Raunfærnimat er leið til að meta þá færni og þekkingu sem einstaklingur hefur öðlast á vinnumarkaði. Matið getur mögulega stytt námið og verið hvatning til að ljúka námi. Skilyrði fyrir þátttöku í raunfærnimati er 25 ára aldur og 5 ára staðfest starfsreynsla. Þessi leið hefur skilað góðum árangri þar sem margir þátttakendur raunfærnimatsins hafa haldið áfram námi og lokið sveinsprófi eftir að matinu lauk.

Frekari upplýsingar um raunfærnimat og næstu verkefni er hægt að nálgast á www.idan.is/raunfaernimat

Sérúrræði í sveinsprófi og prófkvíðiIÐAN fræðslusetur leitast við að veita jöfn tækifæri til náms og úrræðin miða að því að jafna aðstöðu og tækifæri fólks til náms, þar sem tekið er sanngjarnt tillit til sérþarfa fólks við nám og prófun. Einstaklingur sem óskar eftir sérúrræði í sveinsprófi skal hafa samband við náms- og starfsráðgjöfina. Vegna allra sérúrræða skal nemandi skila inn greiningu eða vottorði frá þar til bærum aðila til náms- og starfsráðgjafa. Einnig býðst sveinsprófstökum að leita til náms- og starfsráðgjafa vegna undirbúnings sveinsprófa og prófkvíða.

Farið er með öll erindi sem trúnaðarmál.

ÁhugasviðskannanirIÐAN – fræðslusetur býður upp á tvær áhugasviðskannanir, STRONG og Í leit að starfi en þær eru notaðar til að hjálpa fólki við náms- og starfsval.

Áhugasviðskannanir geta hjálpað fólki við að kortleggja áhuga sinn og starfsumhverfi. Grunnhugmynd STRONG er sú að einstaklingur er ánægðari og duglegri í starfi ef það fellur að áhuga hans og að honum líður betur að starfa með fólki sem hefur álíka áhugasvið.

Um er að ræða spurningalista sem einstaklingur fyllir út eftir áhuga sínum og niðurstöður byggja á áhuga hans en ekki hæfni eða þekkingu.

Áhugasviðskönnun STRONG er ætluð einstaklingum 20 ára og eldri en Í leit að starfi fyrir yngra fólk.

Ávinningur:

• Þú finnur störf og starfsumhverfi sem líklegast er að þú verðir ánægð(ur) með.

• Þú finnur námsleiðir sem henta þínu áhugasviði.

• Þú finnur hverjar tómstundir þínar geta verið.

• Þú færð almennt yfirlit yfir áhugasvið þitt.

• Þú færð greiningu á stjórnunar- og samskiptastíl þínum og hversu vel þér fellur að taka áhættu.

Áhugasviðskönnunin STRONG kostar kr. 9.500.

Í leit að starfi kostar kr. 2.500, en er aðilum innan IÐUNNAR að kostnaðarlausu.

Page 10: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

8

IÐAN fræðslusetur hefur umsjón með gerð námssamninga og framvkæmd sveinsprófa fyrir hönd Mennta- og menningamálaráðuneytisins í Bygginga- og mannvirkjagreinum, Matvæla- og veitinga-greinum, Upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, Snyrtigreinum, Hönnunar- og handverksgreinum og Bíliðngreinum.

Námssamningar og sveinspróf

ALLIR SEM TAKA Á MÓTI NEMUM Í VINNUSTAÐANÁM

Móttaka nema í vinnustaðanámVelheppnuð móttaka nema er fjárfesting til framtíðar

Markmið með námskeiðinu er að meistarar og tilsjónarmenn fái verkfæri til að taka á móti nýnemum og fylgja þeim eftir þar til þeir hafa lokið þjálfun. Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að búa til áætlun yfir þjálfun nemans frá fyrsta degi til loka þjálfunar. Setja markmið með þjálfuninni og fylgja markmiðum og áætlun eftir. Fjallað verður um nærveru í þjálfuninni eins og hvernig á að spyrja nema spurninga um efnið sem farið hefur yfir, fá nema til að taka ábyrgð á þjálfun sinni og að þeir skilji efnið. Hérna þjálfar þú leikni þína við móttöku nýnema með því að beita aðferðum markþjálfunar.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennarar: ACC stjórnendamarkþjálfi. Gestafyrirlesari úr iðnaði.

Staðsetning 1: IÐAN fræðslusetur, Skúlatúni 2.

Tími: Mánudagarnir 8., 15. og 22. apríl eða eftir nánara samkomulagi.

Staðsetning 2: Skipagötu 14, Akureyri.

Tími: Fimmtudagur 31. janúar kl. 11.00 – 17.00.

Almennt verð: 39.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.900 kr.

SVEINSPRÓFSNEFNDIR

Að semja prófHér færðu að spreyta þig á prófagerð undir handleiðslu

Á námskeiðinu er stefnt að því að hagnýta þekkingu við gerð prófspurninga og þar með efla hæfni við prófagerð. Að semja próf snýst m.a. um gerð mismunandi prófatriða, sem hvert hefur sinn tilgang í ljósi markmiða og námsþátta (sbr. learning outcomes). Áhersla er lögð á að efla leikni og færni í aðferðum og verklagi við gerð spurninga með æfingum.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennarar: Meyvant Þórólfsson, lektor.

Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Skúlatúni 2, eða eftir nánara samkomulagi.

Tími: Nánar auglýst síðar eða eftir samkomulagi.

Lengd: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 10.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: IÐAN fræðslusetur greiðir námskeiðsgjöld fyrir sveinsprófsnefndir.

SVEINSPRÓFSNEFNDIR

Árangursrík stjórnun-þegar tryggja skal gæði verkefna sveinsprófsnefnda

Markmið með námskeiðinu er að veita leiðsögn við að stjórna árangursríkum fundum og þar með verkefnum.

Verkfæri markþjálfunar notuð til að fá hugmyndir og skoðanir allra fram í samræðum. Hér verða lykilatriðin tekin fyrir og stjórnandinn fær verkfæri til að undirbúa sig fyrir fund og stýra verkefnum fundanna. Vinna eftir fundi og á milli funda er ekki síður mikilvæg og fjallað verður meðal annars um eftirfylgni og ábyrgðarsvið fundarmanna.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat. Virk þátttaka á námskeiðinu.

Kennarar: ACC stjórnendamarkþjálfi.

Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Skúlatúni 2, eða eftir nánara samkomulagi.

Tími: Nánar auglýst síðar eða eftir samkomulagi.

Lengd: 3 kennslustundir.

Fullt verð: 14.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: IÐAN fræðslusetur greiðir námskeiðsgjöld fyrir sveinsprófsnefndir.

Page 11: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

9

Vínfræði IMarkmið námskeiðsins er að efla þekkingu fagfólks á vínum, um víngerð, þrúgur, lönd og héruð og para saman vín og mat. Þjálfuð er hæfni í sjálfstæðum og faglegum vinnubrögðum við fram-reiðslu á vínum. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Vínskólann.

Kennari: Dominique Plédel Jónsson.

Staðsetning: Icelandair hótel Akureyri.

Tími: Mánudagur 28. og þriðjudagur 29. janúar frá kl. 15.00 – 18.00.

Fullt verð: 29.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.500 kr.

KjötmatMarkmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda á flokkun skrokka eftir holdfyllingu og fitu. Fjallað er um kjötmat og forsendur verðlagninga og viðskipta með kjöt. Sýnikennsla og skoðun á kjötskrokkum í sláturhúsi B. Jensen.

Kennari: Stefán Vilhjálmsson, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun.

Staðsetning: Sláturhús B. Jensen á Akureyri.

Tími: Miðvikudagur 30. janúar frá kl. 15.00 – 21.00.

Fullt verð: 18.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.900 kr.

Þjónusta og sala í bakaríumMarkmið námskeiðsins er að gefa þátttakendum tækifæri til að auka þekkingu og leikni sína á uppstillingu á vörum í bakaríum og söluaðferðum sem hafa gefið góða raun.

Kennari: Hallgrímur Sæmundsson.

Staðsetning: VMA.

Tími: Laugardagur 2. febrúar frá kl 10.00 – 14.00.

Fullt verð: 12.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6000 kr.

BilanagreiningÞátttakendur þjálfa leikni sína í skipulagi og framkvæmd bilana-greininga á árangursríkan hátt, með greiningatækjum. Þar kemur Halldór I. Hauksson sterkur inn og ætlar að leiða ykkur um frumskóga aflestratækjanna. Oft er bara hægt að nota AVO mælinn til að leysa hinar flóknustu bilanir.

Kennarar: Kristján M. Gunnarsson og Halldór I. Hauksson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið Akureyri.

Tími: Föstudagur 1. og laugardagur 2. febrúar frá kl. 9.00 – 17.00.

Fullt verð: 48.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 19.500 kr.

Cabas framhaldsnámskeiðÁ CABAS framhaldsnámskeiði er markmiðið að fara sérstaklega yfir túlkanir kerfisins til að gera nákvæmt CABAS tjónamat og tína upp „týndu einingarnar“. Námskeiðið er ætlað fagmenntuðum einstaklingum innan bílgreinarinnar er lokið hafa grunnnámskeiði CABAS, í lok námskeiðsins gera þátttakendur sitt eigið stöðumat.

Kennari: Jóhann Þór Halldórsson.

Staðsetning: Bílgreinahús VMA.

Tími: Miðvikudagur 30. janúar frá kl. 8.30 - 16.00.

Fullt verð: 45.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 19.500 kr.

IÐAN Á AKUREYRI 28. JAN. - 2. FEB.

Fulltúar frá IÐUNNI koma í heimsókn og kynna fjölbreytt framboð af námskeiðum sem standa til boða á vorönn 2013 og möguleika á sérsniðnum námskeiðum sem henta þörfum hvers fyrirtækis. Eins er boðið upp á aðstoð við skipulagningu á fræðslu í fyrirtækjum og fjallað um raunfærnimat. Pantaðu heimsókn í þitt fyrirtæki - það kostar ekki neitt!

Nánari upplýsingar á heimasíðu fræðsluvikunnar: www.idan.is/akureyri

Fræðsluvika í iðnaði

Page 12: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

10

IÐAN Á AKUREYRI 28. JAN. - 2. FEB.

Litun, klipping og greiðslurHér sýna fagmennirnir Nonni Quest og Lena Magnúsdóttir það heitasta í hártískunni fyrir vor og sumar 2013. Nonna þarf vart að kynna. Hann rekur eigið fyrirtæki og hefur góða reynslu í kennslu hérlendis sem og erlendis. Lena mun sýna nýja tækni í greiðslum sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Skemmtileg, spennandi og fræðandi kvöldstund.

Kennarar: Nonni Quest frá Krista Quest og Lena Magnúsdóttir frá Eplinu.

Staðsetning: Hársnyrtideild VMA.

Tími: Þriðjudagur 29. janúar frá kl. 18.00 – 20.00.

Fullt verð: 9.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.900 kr.

BrunaþéttingarÞetta námskeið er fyrir alla sem koma að byggingafram-kvæmdum. Markmið þess er að þátttakendur kunni skil á reglum um brunaþéttingar og efnum notuð eru til þeirra. Í lok námskeiðs er tekið stutt próf og þátttakendur fá viðurkenningu frá Mannvirkjastofnun sem er samstarfsaðili um námskeiðið.

Kennari: Guðmundur Gunnarsson, yfirverkfræðingur hjá Mannvirkjastofnun.

Staðsetning: SÍMEY, Þórsstíg 4.

Tími: Fimmtudagur 31. janúar frá kl. 13.00 – 18.00.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

Varmadælur Varmadælur geta sparað verulegan kostnað við kyndingu húsa á köldum svæðum. Á þessu námskeiði er í boði að afla sér þekkingar á varmadælum og notkun þeirra í byggingum. Farið í uppbyggingu og gerðir varmadæla, tengingar, stillingar og lokafrágang. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Orkusetur og Verklagnir ehf.

Kennarar: Sigurður Friðleifsson frá Orkusetri. Þór Gunnarsson tæknifræðingur frá Ferli. Gunnlaugur Jóhannsson pípulagningameistari. Pétur Kristjánsson pípulagningameistari.

Staðsetning: VMA.

Tími: Föstudagur 1. febrúar kl. 13.00 – 18.00.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

Móttaka nema í vinnustaðanámMarkmið með námskeiðinu er að meistarar og tilsjónarmenn fái verkfæri til að taka á móti nýnemum og fylgja þeim eftir þar til þeir hafa lokið þjálfun. Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að búa til áætlun yfir þjálfun nemans frá fyrsta degi til loka þjálfunar. Setja markmið með þjálfuninni og fylgja markmiðum og áætlun eftir. Hérna þjálfar þú leikni þína við móttöku nýnema með því að beita aðferðum markþjálfunar.

Kennarar: ACC stjórnendamarkþjálfi og gestafyrirlesari úr iðnaði.

Staðsetning : Skipagata 14.

Tími: Fimmtudagur 31. janúar kl. 11.00 – 17.00.

Fullt verð: 39.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.900 kr.

InDesign fyrir iPad og KindleMeð InDesign er hægt að brjóta um einfaldar rafbækur. Þú þarft bara að kunna á InDesign og hafa grunnskilning á umbroti fyrir rafbækur. Á þessu tveggja daga námskeiði verður farið í gegnum það sem InDesign getur gert fyrir rafbækur og þú nærð þér í góðan grunn fyrir framtíðina.

Kennari: Sigurður Ármannsson.

Staðsetning: Símey.

Tími: Miðvikudagur 30. og fimmtudagur 31. janúar kl. 16.00-22.00.

Fullt verð: 35.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.750 kr.

Tölvuleikjagerð með Unity 3DHér verður kynning á forritinu Unity 3D sem hefur opnað nýjan heim í gerð tölvuleikja. Unity 3D hefur einfalt og skýrt viðmót, innbyggð tól og auðvelt forritunarmál til að fá virknina sem óskað er eftir. Markmiðið er að þú lærir á umhverfi forritsins og skiljir virkni þess.

Kennari: Berglind Káradóttir.

Staðsetning: Símey.

Tími: Föstudagur 1. febrúar frá kl. 9.00-16.00.

Fullt verð: 29.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.250 kr.

Raunfærnimat á AkureyriKynningarfundur vegna raunfærnimats verður hjá Símey miðvikudaginn 30. janúar, kl.17:00. Raunfærnimat er fyrir einstaklinga sem eru 25 ára og eldri og hafa unnið í sínu fagi í 5 ár eða lengur. Raunfærnimat hjálpar einstaklingum að ljúka námi sínu. Allir eru velkomnir á kynningarfundinn.

Page 13: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

11

IÐAN Á AKUREYRI 28. JAN. - 2. FEB.

Myndskreytingar og hönnunHér færðu orkuskot í hugmyndavinnu, hugarflæði og innblástur til að vinna úr hugmyndum. Skoðuð verða ný sjónarhorn á hönnun og myndskreytingar og þátttakendur fá tækifæri til að ná tengslum við myndheiminn með því að læra um sjónrænu dagbókina, taka hressilegar rispur á blýantinum, fara í gegnum tákn, íróníu, húmor og myndhverfingar og æfa sig í að koma merkingu texta á framfæri með myndum.

Kennari: Kristín Ragna Gunnarsdóttir.

Staðsetning: Símey.

Tími: Mánudagur 28. janúar og þriðjudagur 29. janúar frá kl. 13.00-22.00.

Fullt verð: 35.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.750 kr.

Veflausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtækiFræðslufundur þar sem fjallað verður um þá fjölbreyttu kosti sem bjóðast fyrirtækjum sem hafa hug á því að setja upp eða endurnýja eigin vef. Leitast verður við að svara algengum spurningum eins og t.d. hvað kostar að setja upp og viðhalda vef? Hvaða vefumsjónarkerfi eru í boði? Er opinn hugbúnaður góður kostur?

Kennari: Sigurður Fjalar Jónsson.

Staðsetning: Skipagata 14.

Tími: Mánudagur 28. janúar kl. 13.00 - 15.00.

Þessi fundur er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Autodesk forritin kynning Kynnt verða helstu forrit frá Autodesk og þeir notkunarmögu-leikar sem þau búa yfir.

Fyrirlesari: Finnur Fróðason, framkv.st. CAD ehf.

Staðsetning: Símey.

Tími: Mánudagur 28. janúar kl. 9.00 – 16.00.

Þessi kynning er þátttakendum að kostnaðarlausu.

AutoCAD Electrical 2014 Essentials®(IEC Standard) GrunnurFyrir nýja notendur sem þurfa undirstöðuþjálfun í AutoCAD Electrical. Allar æfingar og hjálpargögn byggja á IEC.

Kennari: Sigurgeir Þorleifsson, rafmagnstæknifr.

Staðsetning: Símey.

Tími: Þriðjudagur 29. og miðvikudagur 30. janúar kl. 08.30 - 17.30.

Fullt verð: 90.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 40.000 kr.

Autodesk Revit Architecture 2014 grunnnámskeið „Essentials“Á þessu námskeiði er farið í gegnum grunninn í Revit Architecture 2014. Kennt verður það sem þú þarft að vita til að komast af stað, hvernig best er að nota viðmótið, búa til grunnmyndir, bæta við innihaldi í módellið, hvernig á að málsetja og margt fleira. Kynnt verða „tips og tricks“ sem kennarinn með reynslu sinni hefur lært og komist að.

Kennari: Áslaug Elísa Guðmundsdóttir byggingafræðingur.

Staðsetning: Símey.

Tími: Fimmtudagur 31. janúar og föstudagur 1. febrúar, kl. 08.30 - 17.30.

Fullt verð: 80.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 40.000 kr.

Óskaðlegar prófanir NDTFarið verður yfir sjónskoðanir, hljóðbylgjuprófanir, vökvadreypni og segulagnaprófanir, helstu kosti galla og takmarkanir hverrar aðferðar fyrir sig. Þátttakendur prófa sjálfir hinar mismunandi aðferðir.

Kennarar: Kristján Kristjánsson iðnaðartæknifræðingur og Gústaf Adólf Hjaltason véltæknifræðingur.

Staðsetning: VMA.

Tími: Miðvikudagur 30. janúar frá kl. 08.30 - 17.30.

Fullt verð: 80.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 20.000 kr.

Málmsuða. Hvað er nýjast?Farið verður yfir helstu nýungar í málmsuðu og staðla. Fyrirtæki sem þess óska verða heimsótt og farið yfir málin með þeim.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur og IWE.

Staðsetning: VMA.

Tími: Þriðjudagur 29. janúar, kl. 13.00 – 16.00.

Þetta námskeið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Kynning á iðn- og verknámi fyrir efstu bekki grunnskólannaKynning verður á iðn- og verknámi fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og foreldra þeirra föstudaginn 1. febrúar í VMA kl. 13.00 – 15.00. Á staðnum verða fulltrúar frá IÐUNNI fræðslusetri og fyrirtækjum í iðnaði. Nemendur og foreldrar fá hér frábært tækifæri til að kynna sér á einum stað fjölbreytt iðn- og verknám.

Page 14: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

12

BÍLGREINASVIÐ

BIFVÉLAVIRKJUN BÍLAMÁLUN OG BIFREIÐASMÍÐI

Page 15: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

13

BÍLGREINASVIÐ

CABAS grunnurNámskeið sem veitir fagaðilum bílgreina rétt til að nota CABAS.

Námskeiðið er aðeins ætlað aðilum með fagmenntun í bílgreinum en markmiðið er að þeir sem hafa náð sér í grunnþekkingu á CABAS tjónamatskerfinu, eins og hér er boðið uppá, séu tilbúnir í að nýta sér miðlæga CABAS tjónamatskerfið til að gera nákvæmt tjónamat á ökutæki ásamt því að setja inn upplýsingar samkvæmt leiðbeiningum og túlkunum í CABAS. Á námskeiðinu er fjallað um grunngildi CABAS og forsögu ásamt uppbyggingu og notkunarmöguleikum CABAS tjónamats-kerfisins í dag. Eru þátttakendur þjálfaðir í að öðlast góðan skilning og færni á vönduðu tjónamati ásamt notkun kerfisins.

Námsmat: 100% mætingarskylda og próf.

Kennari: Jóhann Þór Halldórsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19,

112 Reykjavík.

Tími: Þriðjudaginn 5., miðvikudaginn 6. og fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 8.30 – 17.00.

Síðasti dagurinn ákveðinn á námskeiðinu.

Lengd: 38 kennslustundir.

Fullt verð: 115.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 69.500 kr.

CABAS framhaldsnámskeiðVandað tjónamat byggist á góðum og faglegum grunni.

Á CABAS framhaldsnámskeiði er markmiðið að fara sérstaklega yfir túlkanir kerfisins til að gera nákvæmt CABAS tjónamat og tína upp „týndu einingarnar“. Námskeiðið er ætlað fagmenntuðum einstaklingum innan bílgreinarinnar er lokið hafa grunnnámskeiði CABAS. Í lok námskeiðsins gera þátttakendur sitt eigið stöðumat.

Námsmat: 100% mætingarskylda og stöðumat.

Kennari: Jóhann Þór Halldórsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: 27. febrúar, kl. 8.30 - 16.00.

Lengd: 9 kennslustundir.

Fullt verð: 45.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 15.500 kr. og próf á vinnustað 15.000 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

LoftfrískunarkerfiHvernig virkar þetta og hvaða reglugerð gildir um kælimiðlana og réttindi?

Markmiðið með þessu afar hagnýta námskeiði, sem veitir réttindi til að starfa við kælikerfi farartækja, er að svara þessum spurningum. Fjallað er um allt það nýjasta á sviði kælibúnaðar. Þú færð að nota viðeigandi greiningartæki til lekaprófunar ásamt því að bilanagreina kælikerfi. Einnig þjálfarðu leikni þína í að vinna við kælikerfi, mæla þrýsting kerfis og loks hreinsa búnaðinn. Með þessu öðlastu hæfni í að vinna við kælikerfi og þekkja reglur um öryggisbúnað.

Námsmat: 100% mætingarskylda og próf.

Kennarar: Kennarar bílgreinasviðs.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík. / Vinnustaðir.

Tími: Fimmtudaginn 2. og föstudaginn 3. maí, kl. 08.00 – 16.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 68.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: Námskeið 28.500 kr. og próf á vinnustað 15.000 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

Að mæla burðarvirkiNámskeiðið þar sem þú ert metinn á réttingarbekk

Á þessu hagnýta námskeiði verður farið yfir undirstöður mælingar á burðarvirki ökutækisins, rúðuskipti, samskipti og suðuaðferðir á nýjum efnum. Markmiðið er að öðlast leikni í að meta ástand tjónabíls út frá niðurstöðum mælinga og gera mat í CABAS, auk hæfni í að meta ástand bíla sem hafa orðið fyrir tjóni út frá niðurstöðum mælinga. Einnig verður unnið í samræmi við leiðbeiningar og fyrirmæli framleiðanda. Síðast en ekki síst afla nemendur sér haldgóðrar þekkingar á að fylla út burðarvirkis-vottorð sem staðfestir ástand burðarvirkis. Að námskeiði loknu fara nemendur á listann hjá Umferðastofu.

Námsmat: 100% mætingarskylda og próf.

Kennarar: Jón M. Torfason og kennarar bílgreinasviðs.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Miðvikudagur 17. apríl, kl. 8.00 - 16.00, fimmtud. 18. apríl, kl. 13.00 - 18.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 68.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 28.500 kr.

Page 16: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

14

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

HjólastillingBein leið, vagninn rennur beint áfram!

Ingibergur fer yfir öll hjólhornin á bílnum og áhrif þeirra á aksturseiginleika. Markmiðið með námskeiðinu er að þú aflir þér traustrar þekkingar með verklegum æfingum í að framkvæma mat á hjólabúnaði. Einnig öðlastu leikni í að stilla upp fyrir hjólastillingu og verður um leið hæfari til að stilla hjól í samræmi við leiðbeiningar og fyrirmæli framleiðanda. Þátttaka þín á þessu námskeiði verður tilkynnt Umferðastofu sem setur þig á lista yfir þá sem mega gefa út hjólstöðuvottorð.

Námsmat: 100% mætingarskylda og próf.

Kennari: Ingibergur Elíasson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Fimmtud. 28. febrúar og föstudagur 1. mars, kl. 8.00 - 16.00. föstudaginn

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 48.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 24.500 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR

Súrefnisskynjari afgasgreiningSúrefni (O2) hver þarf það ekki?

Á námskeiðinu er markmiðinu aðallega beint að virkni, bilana-greiningu og umgengni við súrefnisskynjara. Markmiðið er að fara yfir mismunandi kerfi og skýra út virkni þeirra. Athyglinni verður einnig beint að íhlutum kerfanna og sem varðar vinnu við afgasgreiningu og bilanagreiningu þeirra.

Nemendur þjálfa hæfni í að vinna afgasgreiningu og lesa út úr gildum við bilanagreiningu. Einnig læra þeir að mæla skynjara og virkni þeirra við ýmis skilyrði

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Kristján M. Gunnarsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Mánudagur 25. og þriðjudagur 26. febrúar, kl. 16.00 - 20.00.

Lengd: 11 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

BÍLGREINASVIÐ

Page 17: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

15

BIFVÉLAVIRKJAR – BIFREIÐASMIÐIR

PlastÞað sem þú þarft að vita um plast, plast er ekki bara plast!

„Þetta er námskeiðið þar sem ég lærði mjög gagnlega hluti um efnauppbyggingu plastsins,“ segir áhugasamur bifreiðasmiður sem sótti námskeiðið í fyrra. Enda er það markmið námskeiðsins!

„Helgi Guðmundsson fjallaði um möguleika á mótun plastsins við smíði hluta í yfirbyggingu og lagði mikla áherslu á verklegar æfingar. Ég náði ágætis leikni í að greina plast samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda og velja viðgerðarefni eftir eðli efnisins. Eftir námskeiðið var ég orðinn vel hæfur í að bræða saman mismunandi gerðir plastefna með heitu lofti og með rafhitun. Þetta námskeið hefur nýst mér vel, ekki nokkur spurning.“

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Helgi Guðmundsson.

Staðsetning: Borgarholtsskóla, 112 Reykjavík.

Tími: 8. mars, kl. 8.30 – 17.00. 9. mars, kl. 8.30 – 17.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 58.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 24.500 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR – BIFREIÐASMIÐIR

Common RailHáþrýstna díselvélin, eyðsla, kraftur, snúningur

Háþrýstingur, lágþrýstingur, bör, og önnur hugtök. Bilanagreining - já er þetta ekki námskeiðið sem þú hefur beðið eftir? Common Rail vélin er verða allsráðandi og kynslóð eftir kynslóð hefur hún orðið fullkomnari, háþrýstnari og við þurfum að vita meira um hana. Markmiðið er að geta bilanagreint, öðlast færni í að nálgast upplýsingar og klára málið.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennarar: Kristján M. Gunnarsson og Halldór I. Hauksson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Mánudaginn 18., þriðjudaginn 19., miðvikudaginn 20. og fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 16.00 – 20.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 58.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 24.500 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR – BIFREIÐASMIÐIR

SRS viðbótarbúnaðurÖryggið hefur forgang

Á námskeiðinu er markmiðinu aðallega beint að virkni, umgengni, öryggisreglum og bilanagreiningu öryggisbúnaðar SRS. Markmiðið er að fara yfir mismunandi kerfi og skýra út virkni þeirra. Athyglinni verður einnig beint að íhlutum kerfanna og öryggisreglum sem varðar vinnu við SRS kerfin og bilanagreiningu þeirra.

Nemendur þjálfa hæfni í að vinna við og taka út öryggisbúnað bíls. Einnig læra þeir að setja búnaðinn í bíl og umgangast hann á öruggan hátt auk þess að framkvæma bilanagreiningu á búnaðinum.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Kristján M. Gunnarsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19,

112 Reykjavík.

Tími: Miðvikudaginn 3. og fimmtudaginn 4. apríl, kl. 16.00 - 20.00.

Lengd: 11 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR

RafeindabúnaðurRökrásir, netkerfi og mælingar

Umfjöllunarefni þessa námskeiðs er rökrásaruppbygging netkerfis og uppbygging rafeindabúnaðar. Nemendur afla sér traustrar þekkingar á virkni rafeindabúnaðar og tilgangi netkerfis í bílnum auk þess sem fjallað er um samskipti mismunandi kerfa. Markmiðið er að nemendur auki ennfremur leikni sína í notkun viðeigandi mælitækja og búnaðar við bilanagreiningu. Áhersla er lögð á verklegar æfingar og mat á niðurstöðum mælingar.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Kristján M. Gunnarsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið að Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Mánudaginn 13. og þriðjudaginn 14. maí,

kl. 16.00 - 20.00.

Lengd: 11 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

BÍLGREINASVIÐ

Page 18: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

16

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

Bilanagreining Á þessu námskeiði afla nemendur sér haldgóðrar þekkingar á mikilvægi skipulags við bilanagreiningu og aðferðum þar að lútandi. Markmiðið er að fara yfir uppbyggingu skipulags við bilanagreiningar og er lögð áhersla á verkefnavinnu. Þátttakendur þjálfa ennfremur leikni sína í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga á árangursríkan hátt, með greiningatækjum og afgasmæli. Þar kemur Halldór I. Hauksson sterkur inn og ætlar að leiða ykkur um frumskóga aflestratækjanna. Hvernig á að tengja græjurnar, lesa af þeim og nota upplýsingar sem þær gefa frá sér til að lagafæra ökutækið? Hvað eru bilunarkóðar og hver er merking þerra? Oft er bara hægt að nota AVO mælinn til að leysa hinar flóknustu bilanir.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennarar: Kristján M Gunnarsson og Halldór I. Hauksson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið Gylfaflöt 19.

Tími: Mánudaginn 18., þriðjudaginn 19., miðvikudaginn 20. og fimmtudaginn 21. mars, kl 16.00 – 20.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 48.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 19.500 kr.

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

Bilanagreining AkureyriÁ þessu námskeiði afla nemendur sér haldgóðrar þekkingar á mikilvægi skipulags við bilanagreiningu og aðferðum þar að lútandi. Markmiðið er að fara yfir uppbyggingu skipulags við bilanagreiningar og er lögð áhersla á verkefnavinnu. Þátttakendur þjálfa ennfremur leikni sína í skipulagi og framkvæmd bilana-greininga á árangursríkan hátt, með greiningatækjum og afgasmæli. Þar kemur Halldór I. Hauksson sterkur inn og ætlar að leiða ykkur um frumskóga aflestratækjanna. Hvernig á að tengja græjurnar, lesa af þeim og nota upplýsingar sem þær gefa frá sér til að lagafæra ökutækið? Hvað eru bilunarkóðar og hver er merking þerra? Oft er bara hægt að nota AVO mælinn til að leysa hinar flóknustu bilanir.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennarar: Kristján M. Gunnarsson og Halldór I. Hauksson.

Staðsetning: Bílgreinahúsið Akureyri.

Tími: Föstudaginn 1. og laugardaginn 2. febrúar, kl. 09.00 – 17.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: 48.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 19.500 kr.

BÍLGREINASVIÐ

Page 19: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

17

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

Suðuþjálfun í fyrirtækjumSérfræðingur IÐUNNAR í málmsuðu mætir í fyrirtæki, metur þekkingu og leikni þátttakenda í þeim suðuaðferðum sem notaðar eru. Kennsla og þjálfun byggist á þessu mati. Ef um hæfnispróf er að ræða leggur sérfræðingur IÐUNNAR prófið fyrir og kemur prófstykkjum til vottaðs matsaðila.

Markmið fer eftir kröfu og þörfum viðkomandi fyrirtækis

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason.

Staðsetning: Þjálfunin fer fram í viðkomandi

fyrirtæki og/eða að Gylfaflöt 19,

Reykjavík.

Tími: Samkvæmt samkomulagi, kl. 16.00 – 20.00.

Lengd: 22 kennslustundir.

Fullt verð: Eftir umfangi.

Verð til aðila IÐUNNAR: 1/3 af fullu verði, eftir umfangi.

BIFVÉLAVIRKJAR - BIFREIÐASMIÐIR

TIG-suða og kynning á plasmasuðuFyrir stál, ryðfrítt stál og ál

Á námskeiðinu færð þú þekkingu á bóklegum og verklegum grunni í TIG-suðu, ferð yfir grunnatriði rafmagnsfræðinnar varðandi suðu og meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu, kynnist plasmasuðu og verður fær um að stilla suðuvélar, velja rétt gas, meta og mæla gasflæði, velja skaut, hulsu og slípað skaut, sjóða einfaldar TIG- og plasmasuðu og beita öryggisákvæðum á vinnustað.

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Gústaf Adolf Hjaltason.

Staðsetning: Bílgreinahúsinu Gylfaflöt 19.

Tími: Þegar næg þátttaka næst.

Lengd: 8 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

BÍLAMÁLARAR - BIFREIÐASMIÐIR

Viðgerðatækni nútímans Það nýjasta frá Frakklandi fyrir málningu og réttingu

Baldur Ólafsson er deildarstjóri hjá stórum bílaframleiðanda í Frakklandi og tekur fyrir það nýjasta í málningu og réttingu. Farið verður yfir rafmagnsbílana, umgengni og hættur, suður og samsetningar, hvað járn er og á hvað leið það er, hvernig við komum til með að meðhöndla það. Eins með álið, en nú eru komnir fram á sjónarsviðið bílar með koltrefjagrindur,

Námsmat: 100% mætingarskylda og símat.

Kennari: Baldur Ólafsson.

Staðsetning: Bílgreinahúsinu Gylfaflöt 19.

Tími: Námskeið haldið í maí. Tilkynnt síðar.

Lengd: 11 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

Bifreiðasalar með metnað- og frúin hlær í betri bíl

Bifreiðasalar eru fagmenn sem þurfa að hafa yfirgripsmikla þekkingu á ólíkum sviðum mannlífsins, allt frá mannlegum samskiptum upp í harðan viðskipta- og lagagrunn. Námskeiðið sem hér er í boði tekur á öllum þeim þáttum sem skipta bifreiðasala máli og meira til. Á þrem vikum verður farið yfir lög og reglugerðir sem gilda um bílasala, kaupa- og samningarétt, veðrétt lausafjármuna, þinglýsingar, viðskiptabréfareglur, vátryggingar ökutækja, opinber gjöld af ökutækjum og reglur um virðisaukaskattsbifreiðar. Þá er farið yfir reglur um skráningu ökutækja, skoðun o.fl., mat á ástandi og verðmæti ökutækja, almenna ráðgjöf sem og fjármálalega ráðgjöf við kaupendur ásamt sölu- og samningatækni. Samningur milli Prófnefndar bifreiðasala og IÐUNNAR kveður á um að IÐAN annist námskeiðahald og próf fyrir bifreiðasala samkvæmt lögum og reglum sem um þau gilda. Sjá dagskrá á www.idan.is

Námsmat: 90% mætingarskylda og próf.

Kennari: Kennarar bílgreinasviðs.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Í október 2013, kl. 8.00-12.00.

Lengd: 44 kennslustundir.

Fullt verð: Fer eftir fjölda umsækjenda .

Verð til aðila IÐUNNAR: Fer eftir fjölda umsækjenda .

BÍLGREINASVIÐ

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

Page 20: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

18

BÍLAMÁLARAR

BílamálunÞar sem hver dropi skipti máli

TSS-bílamálun er námskeið þar sem þátttakendur öðlast góða þekkingu á gildum OEM reglna varðandi bílamálun, leiðbeint um hvernig má nálgast þessar upplýsingar í dag, mikilvægi þess að gera rétt við tjónuð ökutæki svo þau haldi framleiðsluábyrgð, notkun margra-laga efna ásamt færni í málun og blettun með þeim og rispufríum /harðgerðum efnum.

Námskeiðið er ætlað fag og fræðsluaðilum sem vilja auka færni sína og þekkingu innan bílgreina.

Þetta er framhald á námskeiði frá því í haust en nýir geta bæst við hvenær sem er.

Námsmat: 100% Mætingarskylda og símat.

Kennari: Kennari er frá Silkeborg Tekniske Skole.

Staðsetning: Námskeið verða haldin á Akureyri og Reykjavík. Auglýst sérstaklega.

Tími: kl. 8.00 -16.00.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

BIFREIÐASMIÐIR

BifreiðasmíðiGæði viðgerða á öllum stigum

TSS-yfirbyggingar er námskeið þar sem þátttakendur öðlast góða þekkingu á að vinna tjónaviðgerðir samkvæmt tæknileiðbein-ingum framleiðenda ökutækja svo þau haldi framleiðsluábyrgð, leiðbeint er hvernig má nálgast þessar upplýsingar, gerðar viðgerðir á yfirbyggingum úr áli og stáli ýmsar málmsuður og suðuaðferðir við umskipti ásoðinna varahluta, límingar og hnoðun á ýmsum efnum ökutækja í dag.

Námskeiðið er ætlað fag og fræðsluaðilum sem vilja auka færni sína og þekkingu innan bílgreina.

Þetta er framhald á námskeiði frá því í haust en nýir geta bæst við hvenær sem er.

Námsmat: 100% Mætingarskylda og símat.

Kennari: Kennari er frá Silkeborg Tekniske Skole.

Staðsetning: Námskeið verða haldin á Akureyri og Reykjavík. Auglýst sérstaklega.

Tími: kl. 8.00 -16.00.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.600 kr.

BÍLGREINASVIÐ

Page 21: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

19

PRENTTÆKNI BÓKBAND

HÖNNUN OG GRAFÍSK MIÐLUN

Page 22: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

20

PRENTTÆKNISVIÐ

PRENTSMIÐIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR - LJÓSMYNDARAR - GRAFÍSKIR HÖNNUÐIR

Photoshop CS6 með Ben WillmoreAllt sem þú vissir ekki að hægt væri í Photoshop

Á eins dags námskeiði kennir Ben Willmore helstu nýjungar í Photoshop CS6. Með þessu nærðu betri tökum á myndvinnslu en þú hélst að væri hægt í Photoshop. Ben kennir með sínum frábæru aðferðum þar sem þú færð skýrar leiðbeiningar og ferð dýpra í photoshop en nokkru sinni áður. Hann fjallar um HDR myndir, lagfæringar mynda með endurbættu Camera Raw, leiðréttingar á Panorama með Adaptiv Wide Angle filter, ýmsar faldar og torfundnar leiðir til að bæta verkflæðið, hvernig viðmót CS6 er lagað að þínum persónulegu þörfum. Þá hvernig hægt er að beita aðferðum flókins vals og maska, og þrívíddartólin sem þú þekkir e.t.v á nýjan hátt.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ben Willmore.

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur IÐAN fræðslusetur.

Tími: Fimmtudagur 14. febrúar, kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

SÖLUMENN - RÁÐGJAFAR - MIÐLARAR

Sölutækni fyrir lengra komnaLærðu að snúa nei í já

Á þessu námskeiði verður farið dýpra í sölusamtalið en þú hefur farið áður. Byggt er á hefðbundnum skilgreiningum söluhringsins en sérstök áhersla lögð á þarfagreiningu og að taka á neikvæðum viðbrögðum viðskiptavinar. Sérstaklega er fjallað um hlustun, að vinna úr neikvæðum viðbrögðum viðmælandans, að snúa neikvæðni í jákvætt samtal, að vinna að sameiginlegri útkomu beggja viðmælenda og að finna lausnir. Á námskeiðinu vinna þátttakendur verkefni, æfa sig hver á öðrum og fá létt heima-verkefni milli námskeiðsdaga. Námskeiðið nýtist öllum sem starfa við sölu og ráðgjöf eða vinna með samtöl við viðskiptavinum.

Ath. að námskeiðið nýtist best þeim sem hafa grunn í sölutækni. Fyrir þá sem vantar slíkan grunn er boðið upp á byrjenda-námskeið eftir samkomulagi.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Björn M. Sigurjónsson.

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur IÐAN fræðslusetur.

Tími: 23. - 24. janúar, kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 56.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 14.125 kr.

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

Notendaforrita frumskógurinnErtu ringlaður í frumskógi App-notendaforrita og stafrænni útgáfu?

Ertu ringlaður? Finnst þér markaðurinn fyrir notendaforrit í stafrænni útgáfu vera flókinn og óljós?

Á þessu eins dags námskeiði er gefið yfirlit yfir markaðinn fyrir stafræna möguleika í útgáfu efnis. Fjallað er um Adobe Edge, ePub, Flash og html.5, og aðra möguleika fyrir spjaldtölvur, android síma og alla skjámiðla.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leon Baird.

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur IÐAN fræðslusetur.

Tími: Mánudagur 18. febrúar, kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

Page 23: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

21

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

Adobe Digital Publishing SuiteÞetta kemur þér áfram í rafbóka- og stafrænni útgáfu

Adobe Digital Publishing Suite (DPS) is a mögnuð lausn fyrir hönnuði, hefðbundna útgáfu, auglýsingastofur og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum sem vilja búa til og dreifa efni á spjaldtölvur, iPad og Android síma. Á þessu námskeiði lærirðu að setja inn video, myndasyrpur, panorama og gagnvirkni í efnið sem þú býrð til og hannar. Hér aflar þú þér færni í hönnun fyrir næstu kynslóð spjaldtölva, síma og skjámiðla.

Forkröfur eru að kunna sæmilega á InDesign - það er allt og sumt.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leon Baird.

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur IÐAN fræðslusetur.

Tími: 19. - 20. febrúar kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 54.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.500 kr.

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

App fyrir iPadAppaðu þig upp fyrir framtíðina.

Á þessu tveggja daga samanþjappaða námskeiði geturðu náð þér í nægilega færni til að gera app fyrir iPad. Þú lærir að nota Xcode, Interface Builder og Instruments. Námskeiðið er fyrir þá sem ekki hafa áður þróað app og gefur þér góðan grunn.

Það er ekki nauðsynlegt að hafa reynslu af þróun app fyrir Mac OS X stýrikerfið en lágmarks skilningur á notendaforritum er nauðsynlegur.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leon Baird.

Staðsetning: Fyrirlestrarsalur IÐAN fræðslusetur og tölvustofa.

Tími: 21. - 22. febrúar, kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 54.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.500 kr.

PRENTTÆKNISVIÐ

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

Unity 3D - tölvuleikjagerðÞú getur gert þinn eigin tölvuleik - svo auðvelt!

Hér er kennt á forritið Unity 3D sem hefur opnað nýjan heim í gerð tölvuleikja. Aldrei hefur verið jafn auðvelt að búa til sinn eigin heim með þrívíddarmöguleikum. Unity 3D hefur einfalt og skýrt viðmót, innbyggð tól og auðvelt forritunarmál til að fá virknina sem óskað er eftir. Markmiðið er að þú lærir á umhverfi forritsins ásamt forritun á JavaScript og getir náð nægilegri færni til að gera einfaldan leik í forritinu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Berglind Káradóttir.

Staðsetning: Tölvusalur Margmiðlunarskólans.

Tími: Mánudagar og miðvikudagar 4. - 13. febrúar, kl. 18. - 22.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 54.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.500 kr.

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

Flash yfir á aðra miðlaGagnvirkar Flash skrár yfir á aðra miðla

Nú þegar Adobe hefur tilkynnt að það sé hætt að uppfæra Flash og veröldin hefur tekið upp HTML5 sem helsta verkfæri vefmiðlunar, er tímabært að læra hvernig Flash skrár geta flust yfir á aðra miðla. Hér færðu skjóta afgreiðslu á því hvernig þetta er hægt.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Berglind Káradóttir.

Staðsetning: Tölvusalur Margmiðlunarskólans.

Tími: Mánudagur 25. og miðvikudagur 27. febrúar, kl. 18. - 22.00.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

Page 24: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

22

PRENTARAR - PRENTSMIÐJUSTJÓRAR - VERKSTJÓRAR

Man Roland viðhald og umhirðaLærðu að sinna Man Roland vélum

Hér kemur sérfræðingur Man Roland og sýnir réttu handtökin við valsaskipti, farfagjöf, stillingar og létt viðhald Man Roland prentvéla. Námskeiðið er ætlað þeim sem stjórna vélum í prentsal, prenturum og prentsmiðjustjórum.

Námskeiðið fer fram að mestu í prentsal en stutt yfirlit eru gefin í fyrirlestrasal.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Nánar tilkynnt síðar.

Staðsetning: Iðan fræðslusetur og prentsalir.

Tími: Nánar tilkynnt síðar.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 18.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.500 kr.

ALLIR ÁHUGASAMIR - GRAFÍSKIR MIÐLARAR HÖNNUÐIR OG ÚTGEFENDUR

Illustrator CS6UPPFÆRSLA YFIR Í NÆSTU KYNSLÓÐ

Á þessu námskeiði sem er ætlað þeim sem hafa litla þekkingu á Illustrator, jafnt þeim sem hafa góða þekkingu á þessu snilldar-forriti, verður sjónum beint að þeim nýjungum sem eru í uppfærslunni í CS6.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Sigurður Ármannsson.

Staðsetning: Tölvustofa Upplýsingatækniskólans.

Tími: Þriðjudagur og fimmtudagar 5. - 14. mars, kl. 18.00 - 22.00.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 54.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 13.500 kr.

MORGUNFUNDUR: FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR, KL. 8.30 -10.00

NUDE MAGAZINE - Hvað voru þau að pæla?Jóhanna Björg Christensen margmiðlunarhönnuður svarar spurningunni hvað hún var að pæla. Fyrst gaf hún út tímarit á vefnum í miðri stafrænu byltingunni 2010, þegar allir hlupu sem hraðast frá prentinu. Nú hyggst hún gefa tímaritið út á prenti. Getur þetta gengið?

MORGUNFUNDUR: FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR, KL. 8.30-10.00

Framtíðin að hætti Ben WillmorePhotoshop-gúrúinn Ben Willmore mætir nú í þriðja sinn á vegum prenttæknsviðs. Á þessum stutta morgunfundi segir hann frá helstu verkefnum, framtíðinni í myndvinnslu og sýnir hvernig hægt er að skapa ótrúlegar myndir á örskotsstundu.

MORGUNFUNDUR: FÖSTUDAGUR 22. MARS, KL. 8.30-10.00

Business to print web solutionsÁ dögunum fóru nokkrir kappar úr Odda á fund International Printers Network í París. Meðal þess sem þeir fræddust um voru business to print lausnir sem þeir fjalla um á stuttum fundi.

PRENTTÆKNISVIÐ

Minnum á námskeiðin á Akureyri !

Þann 28. janúar - 2. febrúar 2013 stendur IÐAN fræðslusetur fyrir fræðsluviku á

Akureyri. Sjá nánar á bls. 9 - 11.

Page 25: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

23

HÚSASMIÐIR, MÁLARAR MÚRARAR, PÍPULAGNINGAMENN DÚKLAGNINGAMENN OG HÚSGAGNASMIÐIR

Page 26: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

24

BYGGINGAMENN

Raki og mygla í húsumMikilvægasta skrefið er að læra að þekkja og fyrirbyggja rakavandamál í húsnæði

Á þessu námskeiði verður fjallað um raka í húsnæði og myglu-sveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum. Markmið þess að að kenna þátttakendum að þekkja myglu og kynna þeim ráðstafanir gegn henni. Farið verður yfir helstu galla á byggingafræðilegum lausnum og helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Farið verður lauslega í loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingahluta fjallað um byggingaraka og greiningu rakaskemmda. Fjallað verður um lífsskilyrði myglu-sveppa, hvar þeir þrífast, hvernig má finna þá og uppræta.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, BSc í líffræði og meistaranemi í lýðheilsuvísindum. Kristinn Alexandersson. Byggingatæknifræðingur, VSÓ Ráðgjöf.

Tími/staðsetning: Föstudagur 1. mars, kl. 13.00 – 19.00. Skúlatún 2, Reykjavík.

Föstudaginn 22. mars kl. 13.00 - 18.00. Egilsstaðir.

Fimmtud. 11. apríl, kl. 10.00 – 16.00. Suðurgötu 12, Ísafirði.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGAMENN

SkyndihjálpHvað gerir þú ef slys ber að höndum?

Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla starfsmenn á byggingavinnustöðum. Markmið þess er að kenna þátt-takendum viðbrögð við slysum. Fjallað er um undirstöðuatriði skyndihjálpar og endurlífgunar og þátttakendur fá þjálfun í að veita aðstoð í bráðatilfellum. Farið er yfir hvernig beita má á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp. Að loknu námskeiði fá þátttakendur skírteini frá Rauða krossinum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Frá Rauða krossinum

Staðsetning: Skúlatún 2 og í fyrirtækjum.

Tími: Ódagsett.

Lengd: 5 kennslustundir.

Fullt verð: 12.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 2.500 kr.

BYGGINGAMENN

Ábyrgð byggingarstjóraGerir þú þér grein fyrir ábyrgðinni?

Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla þá sem ætla sér að starfa sem byggingarstjórar og stýra byggingaframkvæmdum í samræmi við samþykktir, lög og reglur. Markmið þess er að upplýsa þá um ábyrgð sína og skyldur sem byggingarstjórar. Fjallað er um byggingarleyfi og önnur samskipti sem byggingarstjóri þarf að eiga við byggingaryfirvöld. Farið yfir hlutverk byggingarstjóra við verkframkvæmdir og meðhöndlun uppdrátta, lög, reglugerðir, tryggingar og tryggingaslit. Kynnt gildi og framkvæmd úttekta, s.s. áfanga-, fokheldis, stöðu- og lokaúttektir.

Á námskeiðinu er kynnt og afhent Byggingarstjóramappa, en hún er vísir að gæðakerfi fyrir byggingarstjóra. Í nýjum mannvirkjalögum er gert ráð fyrir því að byggingarstjórar hafi gæðakerfi vegna starfa sinna. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Magnús Sædal byggingafulltrúi og

Gunnar Pétursson lögfræðingur.

Tími/staðsetning: Laugardagur 19. janúar, kl. 9.00 – 17.00. Skúlatún 2, Reykjavík.

Laugardagur 16. febrúar, kl. 9.00 – 17.00. Egilsstaðir.

Laugardagur 16. mars, kl. 9.00 – 17.00 Höfn í Hornafirði.

Laugardagur 13. apríl, kl. 9.00 – 17.00 Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð: 45.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr.

BYGGINGAMENN

BrunaþéttingarIðnmeistarinn er ábyrgur fyrir brunaþéttingum í sínu fagi

Þetta námskeið er fyrir alla sem koma að byggingaframkvæmdum. Markmið þess er að þátttakendur kunni skil á reglum um bruna-þéttingar og efnum notuð eru til þeirra. Að loknu námskeiði fá þátttakendur viðurkenningu frá Mannvirkjastofnun sem er samstarfsaðili um námskeiðið.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Guðmundur Gunnarsson, yfirverkfræðingur hjá Mannvirkjastofnun.

Tími/staðsetning Fimmtudagur 31. janúar, kl. 14.00 – 18.00 Skipagata 14, Akureyri.

Fimmtudagur 21. mars, kl. 13.00 – 17.00 Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 5 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

Page 27: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

25

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

BYGGINGAMENN

Stafræn ljósmyndun byggingahlutaHvernig á að taka myndir, vinna þær og geyma

Námskeið fyrir fagmenn í byggingaiðnaði sem þurfa að taka myndir vegna vinnunnar og eru í flestum tilfellum með litlar einfaldar myndavélar. Markmið þess er að kenna þátttakendum grundvallaratriði ljósmyndunar með stafrænni myndavél, hvaða stillingar eru í boði á myndavélinni, s.s. ljósop, hraði, ISO, WB og hvernig á að nýta þær í mismunandi aðstæðum. Komið er inn á atriði eins og hvað eru jpeg, pixlar og dpi. Farið verður yfir flutning mynda úr myndavél yfir í tölvu, eftirvinnslu þeirra og skipu-lagningu myndasafna í Picasa myndvinnsluforriti sem allir geta nálgast frítt á Netinu. Gefin góð ráð varðandi myndatökur og myndbyggingu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Silja Rut Thorlacius, ljósmyndari.

Tími/Staðsetning: Fimmtud. 14. mars, kl. 13.00 – 19.00 Skipagata 14, Akureyri.

Þriðjudagur 9. apríl, kl. 16.00 – 19.00 og fimmtud. 11. apríl, kl. 16.00 – 19.00 Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 8 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGAMENN

Þakpappi Asfaltpappi á þök

Þetta er námskeið fyrir þá sem vilja bæta hæfni sína og þekkingu. Markmið þess er að kenna þátttakendum að leggja asfaltpappa á þök og aðra fleti. Á námskeiðinu er fjallað um mismunandi gerðir asfaltpappa og fylgihluta og notkunarsvið þeirra. Farið er yfir verkfæri og áhöld sem notuð eru við lagningu pappans og aðferðir við að leggja hann á þök. Þátttakendur á námskeiðinu fá sýnikennslu og munu sjálfir leggja pappa. Námskeiðið er haldið í samvinnu við BYKO og Höfuð – verk.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Kristján Ragnarsson, Byggingatæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19.

Tími: Þriðjud. 19. febrúar, kl. 16.00 – 20.00 og fimmtud. 21. febrúar, kl. 16.00 – 20.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGAMENN

Hljóðvist í húsumFrágangur húshluta

Þetta er námskeið fyrir fagmenn í byggingaiðnaði sem starfa við frágang veggja, lofta gólfa og annarra byggingarhluta Markmið þess er að kenna þátttakendum réttan frágang og grund-vallaratriði varðandi hljóðvist. Fjallað er um hljóðeinangrun, hljóðhöggeinangrun, hljóðísog, ómtíma og önnur atriði sem snerta hljóðvist. Farið er yfir frágang og notkun byggingarefna sem henta hverju tilfelli fyrir sig.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Steindór Guðmundsson, Hljóðverkfræðingur hjá Verkís.

Tími/staðsetning: Föstudagur 1. mars, kl. 13.00 – 18.00. Austurvegi 56, Selfossi.

Föstudagur 12. apríl, kl. 13.00 – 18.00. Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 8 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

Page 28: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

26

BYGGINGAMENN

ÍST – 30Nýi staðallinn frá 2012, breyttur og bættur

Þetta námskeið er fyir alla sem starfa við framkvæmdir. ÍST – 30, almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir er staðall sem notaður hefur verið um áraraðir sem grundvöllur samningagerðar í mannvirkjagerð. Staðallinn var endurskoðaður og kom út 2012 í töluvert breyttri mynd frá því sem verið hefur bæði hvað varðar uppsetningu og innihald. Markmiðið með námskeiðinu er að fara í gegnum breytingar sem gerðar hafa verið og áhrif þeirra á samskipti verktaka og verkkaupa. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Staðlaráð Íslands.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Arngrímur Blöndahl, verkefnastjóri hjá Staðlaráði Íslands.

Staðsetning: Austurvegur 56, Selfossi.

Tími: Fimmtud. 21. febrúar, kl. 16.00 – 20.00.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 18.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGAMENN

Vistvæn byggingarefniSjálfbærar byggingaraðferðir

Þetta er námskeið fyrir fagmenn sem vilja kynna sér vistvænar byggingaraðferðir og efni. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur geti nálgast vistvæn viðhorf af þekkingu og séu í stakk búnir til að fást við þau viðfangsefni er upp kunna að koma varðandi vistvæn byggingarefni og val á þeim. Á námskeiðinu er lögð áhersla umhverfismeðvitund og þá þætti sem gera það að verkum að efni teljast vistvæn.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Aðalsteinn Snorrason arkitekt og Björn Guðbrandsson arkitekt.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Þriðjud. 26. febrúar, kl. 16.00 – 18.00, fimmtud. 28. febrúar, kl. 16.00 – 18.00 og þriðjud. 5. mars, kl. 16.00 – 18.00.

Lengd: 9 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGAMENN

Veðurfar og byggingaframkvæmdirMannvirkjagerð í íslenskri veðráttu

Á þessu námskeiði verður fjallað um skipulag þéttbýlis og hönnun mannvirkja í íslenskri veðráttu. Markmið þess að að þátttakendur öðlist skilning á samhengi veðurfars, skipulags og framkvæmda. Raktir verða helstu þættir í veðurfari Íslands með áherslu á sérstöðu þess. Farið verður yfir samspil veðurs, landslags og mannvirkja og hvað þarf einkum að hafa í huga þegar byggt er og skipulagt í samræmi við veðuraðstæður. Megináherslan verður lögð á vindafar og nýtingu sólgeislunar hér á landi og hvernig má bæta lífsskilyrði fólks og vaxtarskilyrði gróðurs með því að samþætta byggð, skjól og varma sólar. Loks verður fjallað um slagvirði og skafhríð og varnir gegn þeim svo og áhrif veðurs á viðhaldsþörf bygginga o.fl.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Magnús Jónsson veðurfræðingur og Sigurður Harðarson arkitekt.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Þriðjud. 12. febrúar, kl. 16.00 – 20.00 og fimmtudagur 14. febrúar, kl. 16.00 – 20.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGAMENN

Torf- og grjóthleðslurByggingaraðferð forfeðranna

Námskeiðið er ætlað öllum þeim er vilja læra hvernig hægt er að byggja úr torfi og grjóti. Hvort sem um ræðir veggi, kartöflukofa eða önnur smærri mannvirki. Þátttakendur fá innsýn inn í íslenska byggingararfleið og kynnast verklagi við byggingu úr hefð-bundnu íslensku efni. Fjallað verður um íslenska torfbæinn, uppbyggingu hans, efnisval og framkvæmd. Einnig verður fjallað um hleðslu frístandandi veggja og stoðveggja úr torfi og grjóti. Lögð er áhersla á verklega kennslu. Hlaðinn verður veggur o.fl. á námskeiðinu.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Guðjón Kristinsson, torf- og grjóthleiðslumeistari.

Staðsetning: Lbhí að Reykjum í Ölfusi.

Tími: Föstudagur 3. maí, kl. 9.00 – 17.00 og laugardagur 4. maí, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 28.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

Page 29: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

27

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

BYGGINGAMENN

Gæðakerfi einyrkja og undirverktaka Fyrir rekstur í smáum stíl

Þetta námskeið er ætlað iðnmeisturum sem starfa sem undirverktakar og/eða einyrkjar í bygginga- og mannvirkjagerð. Markmið þess er að kynna grundvallaratriði gæðakerfa. Farið er yfir kröfur til iðnmeistara um gæðastjórnun og gæðakerfi í mannvirkjalögum og byggingareglugerð og hvernig hægt er að bregðast við þeim. Sérstaklega er farið í saumana á kröfum um staðfestingu á hæfni iðnmeistara, samning á milli byggingarstjóra og iðnmeistara, innra eftirlit iðnmeistara og skráarvistun. Þátttakendur læra að útbúa sjálfir gæðakerfi sem uppfyllir þessar kröfur. Þátttakendur koma með dæmi um verklýsingu úr eigin verki. Æskilegt er að þátttakendur mæti með eigin tölvur en einnig er boðið upp á afnot af tölvum á staðnum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ferdinand Hansen verkefnastjóri gæðastjórnunar hjá SI.

Tími/staðsetning: Þriðjud. 15. janúar, kl. 14.00 – 19.00, Símey, Þórsstígur 4, Akureyri.

Fimmtud. 14. febrúar, kl. 14.00 – 19.00, Tryggvagata 25, Selfossi.

Fimmtud. 14. mars, kl. 14.00 – 19.00, Skúlatún 2, Reykjavík.

Fimmtud. 11. apríl kl. 14.00 – 19.00, Egilsstaðir.

Fimmtud. 16. maí, kl. 14.00 – 19.00, Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 7 kennslustundir.

Fullt verð: 18.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGAMENN

Mælingar og mælitækiRétt skal vera rétt

Hér er á ferðinni mjög gott námskeið til endurmenntunar og upprifjunar á mæliaðferðum, t.d. lengdarmælingum, hornamælingum, hæðar-mælingum og gervihnattamælingum.

Farið yfir helstu mælitæki, t.d. hæðarkíki, hornspegil, alstöðvar og lasertæki. Þátttakendur fá þjálfun í notkun mælitækja úti á vettvangi.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Runólfur Skaptason, tæknifræðingur.

Staðsetning: Siglufjörður.

Tími: Föstudagur 19. apríl, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 20. apríl, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

BYGGINGAMENN

Gæðakerfi í byggingaiðnaðiGæðin byggja á þekkingu

Þetta námskeið er nauðsynlegt fyrir alla sem ætla sér að starfa í byggingaiðnaði í framtíðinni. Markmið þess að kenna þátttakendum notkun gæðakerfa. Í nýlegum mannvirkjalögum og byggingareglugerð eru gerðar miklar kröfur til iðnaðarmanna, stjórnenda, byggingarstjóra og iðnmeistara. Er þess krafist að allir sem einhverja ábyrgð bera við mannvirkjagerð hafi gæðastjórnunarkerfi sem unnið er eftir. Á námskeiðinu er farið í gegnum gæðakerfi verktaka við framkvæmdir og hvernig unnið er eftir því. Æskilegt er að þátttakendur mæti með eigin tölvur en einnig er boðið upp á afnot af tölvum á staðnum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ferdinand Hansen verkefnastjóri gæðastjórnunar hjá SI.

Tími/staðsetning Föstudagur 18. janúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 19. janúar, kl. 9.00 – 16.00, Skúlatún 2, Reykjavík.

Föstud 22. febrúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 23. febrúar, kl. 9.00 – 16.00, Sauðárkrókur.

Föstudagur 22. mars, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 23. mars, kl. 9.00 – 16.00, Símey, Þórsstíg 4, Akureyri.

Föstudagur 26. apríl, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 27. apríl, kl. 9.00 – 16.00, Skúlatún 2, Reykjavík.

Föstudagur 24. maí, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 25. maí, kl. 9.00 – 16.00, Skúlatún 2, Reykjavík.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

Page 30: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

28

BYGGINGAMENN

Raunkostnaður útseldrar þjónustuAð reikna „rétt” verð

Þetta er námskeið fyrir þá sem selja út vinnu, efni og tæki. Hér er m.a. kennt á forritið TAXTA sem gerir þátttakendum kleift að átta sig á einfaldan hátt á því hver raunkostnaður er að baki útseldri vöru og þjónustu. Taxti er líkan sem byggir á raunverulegum tölum um kostnað úr eigin rekstri. Út frá þeim reiknar TAXTI kostnað og nauðsynlegan hagnað af vöru og þjónustu. Þátttakendur munu að loknu námskeiði geta reiknað út verð á útseldri vinnu starfsmanna, verð á útseldri vélavinnu og vöruverð. Á námskeiðinu munu þeir flytja upplýsingar úr ársreikningum í TAXTA, fá tækifæri til að öðlast góða kostnaðarvitund, skilja forsendur verðmyndunar og hvernig hagnaður verður til. Þátttakendur þurfa að koma með síðasta ársreikning úr eigin rekstri og eru hvattir til að koma með eigin fartölvur en tölvur eru einnig í boði á kennslustað.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ferdinand Hansen verkefnastjóri gæðastjórnunar hjá SI og Eyjólfur Bjarnason gæðastjóri ÍAV.

Tími/staðsetning: Fimmtud. 10 janúar, kl. 15.00 – 20.00 Austurvegur 56, Selfossi.

Fimmtud. 7. febrúar, kl. 15.00 – 20.00 Skúlatún 2, Reykjavík.

Fimmtudagur 7. mars, kl. 14.00 – 19.00 Símey, Þórsstíg 4, Akureyri.

Fimmtudagur 4. apríl, kl. 15.00 – 20.00 Skúlatún 2, Reykjavík.

Fimmtudagur 2. maí, kl. 14.00 – 19.00 Egilsstaðir.

Lengd: 7 kennslustundir.

Fullt verð: 18.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGAMENN

Innri úttektir skv. ISO 19011 Gæðaúttektir

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur skilji til hlítar tilgang og ferli innri úttekta á gæðakerfi samkvæmt ISO 19011, geti gert grein fyrir mikilvægustu atriðum slíkra úttekta og séu að loknu námskeiðinu færir um að framkvæma innri úttekt í samvinnu við reyndan úttektarmann. Á námskeiðinu er byrjað á stuttri kynn-ingu á kröfunum í ISO 9001. Síðan farið yfir grundvallaratriði og skipulag gæðaúttekta samkvæmt ISO 19011. Þátttakendur vinna hópverkefni um gæðaúttektir. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Staðlaráð Íslands.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Sveinn V. Ólafsson verkfræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtud. 28. febrúar, kl. 12.15 – 17.00

Lengd: 7 kennslustundir.

Fullt verð: 25.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

BYGGINGAMENN

ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnirLykilatriði, uppbygging og notkun

Námskeið er fyrir þá sem vilja læra á ISO 9000 gæða-stjórnunarstaðlana, kynna sér megináherslur og uppbyggingu þeirra og læra hvernig má beita þeim. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Farið verður yfir lykilatriði og uppbyggingu ISO 9000 staðl-araðarinnar og kröfur í ISO 9001. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Staðlaráð Íslands

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Sveinn V. Ólafsson verkfræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtud. 28. febrúar, kl. 8.30 – 15.00.

Lengd: 9 kennslustundir.

Fullt verð: 29.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

Page 31: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

29

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

BYGGINGAMENN

BYGG kerfiðÖflugt upplýsingakerfi í bygginga- og mannvirkjagerð

BYGG-kerfið er öflugt upplýsingakerfi fyrir þá sem standa í byggingaframkvæmdum. Það er ætlað fyrir framkvæmdaraðila, hönnuði, byggingarstjóra, iðnmeistara og verktaka, til að vinna með og útfæra þá þætti sem þeir þurfa við bygginga-framkvæmdir. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist heildarkerfi sem leiðir notandann frá hugmynd til fullbúinnar byggingar skref fyrir skref. Kerfið er hannað og sett upp af Hannarr sem hefur um langt árabil gefið út Byggingarlykilinn, verðskrá sem fjöldi aðila hefur notað við gerð áætlana og tilboða. Innifalin í námskeiðsgjaldi eru tímabundin afnot af BYGG-kerfinu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Sigurður Ingólfsson

verkfræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Þriðjud. 29. janúar, kl. 15.00 – 19.00 og fimmtud. 31. janúar, kl. 15.00 – 19.00.

Lengd: 9 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGAMENN

Byggingareglugerðin og frágangur lóðaÁhrif nýrrar byggingareglugerðar á störf skrúðgarðyrkjumanna

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem starfa við frágang lóða og lands við mannvirki. Markmið þess er að upplýsa þátttakendur um áhrif nýrrar byggingareglugerðar á störf þeirra. Farið verður yfir þau ákvæði reglugerðarinnar sem snúa að frágangi lóða og mannvirkjum tengdum þeim.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Lbhí og Mannvirkjastofnun.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ágústa Erlingsdóttir

Skrúðgarðyrkumeistari.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtud. 14. febrúar, kl. 16.00 – 19.00.

Lengd: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 12.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

BYGGINGAMENN

BIM fyrir byggingamennFramtíðin í byggingaiðnaði

Þetta námskeið er ætlað þeim iðnaðarmönnum sem ætla sér að starfa við byggingaframkvæmdir í framtíðinni. Markmið þess er að kynna þátttakendum BIM (Building Information Modeling) og hvernig fagmenn vinna með það á byggingavinnustað. BIM er ný aðferðafræði við hönnun mannvirkja þar sem hönnuðir setja upp rafrænt, þrívítt líkan af mannvirkjum, byggingahlutar eru tengdir saman og uppýsingar um efni, áferð, magn og fl. eru síðan tengdar við þá. Farið er yfir grunnhugmyndafræði að baki kerfinu og framsetningu hönnunargagna gagnvart þeim sem eiga að vinna verkið. Þátttakendum verður kennt að nota skoðunarforrit sem hægt er að hlaða niður ókeypis af Netinu og hvernig vinnugögn eru notuð og prentuð úr þeim.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Áslaug Elísa Guðmundsdóttir, byggingafræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Föstud. 22. febrúar, kl. 13.00 – 16.00 og laugard. 23. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 16 kennslustundir.

Fullt verð: 25.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

BYGGINGAMENN

Stjórnun verkfundaÁrangur með aðferðum markþjálfunar

Á námskeiðinu er kennt hvernig hægt er að stjórna árangur-sríkum verkfundum. Markmið þess er að kenna þátttakendum ýmis hagnýt atriði sem einkenna árangursríka fundi, skýr tilgangur þeirra, hlutverk hvers og eins fundarmanns og eftirfylgni með niðurstöðum fundarins eftir fund. Kennd verða atriði úr aðferðafræði markþjálfunar sem gera fundi árangursríka, m.a. nærvera, hlustun, virðing, traust og ábyrgð. Einnig er farið yfir þau mikilvægu atriði að allir fundarmenn fá tækifæri til þess að koma sínu á framfæri og það er sameiginlegur skilningur allra fundarmanna á útkomu fundarins. Hvert verkefni og ábyrgð hvers og eins er, annaðhvort fyrir næsta fund eða verkefni til að leysa eftir fund. Notast verður við fyrirlestur m.a. um aðferðafræði markþjálfunar, hópmarkþjálfunar og farið í verklegar æfingar á námskeiðinu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: ACC vottaður stjórnendamarkþjálfi.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Miðvikud. 6. mars, kl. 16.00 – 19.00 og miðvikud. 13. mars, kl. 16.00 – 19.00.

Lengd: 8 kennslustundir.

Fullt verð: 18.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

Page 32: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

30

Öryggi og vinnuverndVinnuvélanámskeið - frumnámskeið Réttindi á helstu gerðir vinnuvéla

Þetta námskeið veitir bókleg réttindi á lyftara með 10 tonna lyftigetu og minni, dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnu-véla (4t og undir), körfukrana, steypudælur, valtara, útlagningarvélar fyrir bundið slitlag og hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tm lyftigetu. Hér er í boði þekking á helstu flokkum vinnuvéla ásamt stjórnun og meðferð þeirra. Einnig á vinnuvernd, eðlisfræði, vökva-fræði, vélfræði, um rafgeyma og öryggi við skurðgröft. Að lokinni verklegri þjálfun fá þátttakendur full réttindi til að stýra vinnuvélum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leiðbeinendur Vinnueftirlitsins.

Staðsetning: Stórhöfði 27, Reykjavík.

Tími: 28. 29. og 31. maí, kl. 8.30 – 16.00.

Lengd: 30 kennslustundir.

Fullt verð: 35.400 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.000 kr.

Vinnuvélanámskeið – körfukranar og spjótÞað þarf réttindi til að stjórna krönum og spjótum

Þetta námskeið veitir réttindi á körfukrana og spjót , sem notuð eru í byggingaiðnaði. Hér er í boði þekking á helstu gerðum þessara tækja ásamt stjórnun og meðferð þeirra. Einnig er farið yfir vinnuvernd og öryggi á vinnustöðum. Að lokinni verklegri þjálfun og verklegu prófi fá þátttakendur full réttindi til að stýra tækjunum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leiðbeinendur Vinnueftirlitsins.

Staðsetning: Stórhöfði 27, Reykjavík.

Tími: 14. 15. 17. maí, kl. 8.30 – 16.00.

Lengd: 30 kennslustundir.

Fullt verð: 19.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

Vinnuvélanámskeið – byggingakranarRéttindi á byggingakrana

Þetta námskeið veitir réttindi á byggingarkrana. Hér er í boði þekking á helstu gerðum þessara tækja ásamt stjórnun og meðferð þeirra. Einnig er farið yfir vinnuvernd og öryggi á vinnustöðum. Að lokinni verklegri þjálfun og verklegu prófi fá þátttakendur full réttindi til að stýra tækjunum.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leiðbeinendur Vinnueftirlitsins.

Staðsetning: Stórhöfði 27, Reykjavík.

Tími: 28. 29. og 31. maí, kl. 8.30 – 16.00.

Lengd: 30 kennslustundir.

Fullt verð: 32.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.500 kr.

SprengiefniÖryggi við meðferð sprengiefna

Þetta námskeið er ætlað þeim sem öðlast vilja réttindi til að fara með sprengiefni og annast sprengivinnu samkvæmt reglugerð nr. 684/1999 um sprengiefni. Markmið þess er að kenna þátttakendum meðferð sprengiefna og öryggi við sprengivinnu. Námskeiðið er bóklegt og lýkur með skriflegu prófi. Til að fá leyfi lögreglustjóra til að fara með sprengiefni og annast sprengivinnu þarf viðkomandi einnig að standast verklegt próf í meðferð sprengiefna.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leiðbeinendur Vinnueftirlitsins.

Staðsetning: Stórhöfði 27, Reykjavík.

Lengd: 60 kennslustundir.

Fullt verð: 95.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 19.000 kr.

Málningaruppleysir Öryggi við meðferð og vinnu við eiturefni

Þetta námskeið er fyrir málara sem þurfa að meðhöndla málningaruppleysi við vinnu sína. Markmið þess er að kenna þátttakendum meðferð hans og merkingu á efnum. Farið er almennt yfir hættur sem stafa af eiturefnum, hvernig geymslur á slíkum efnum þurfa að vera o.fl. Persónuhlífar svo sem öndunargrímur og fleira sem þarf að hafa í huga við notkun málningaruppleysi. Námskeiðið veitir réttindi til þess að meðhöndla málningaruppleysi.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Leiðbeinendur Vinnueftirlitsins.

Staðsetning: Stórhöfði 27, Reykjavík.

Tími: 27. febrúar, kl. 13.00 – 16.00.

Lengd: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 12.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

NÁMSKEIÐ Í SAMVINNU VIÐ VINNUEFTIRLITIÐ

Page 33: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

31

BYGGINGAMENN

Autodesk fyrir byggingamennMikið úrval námskeiða.

IÐAN fræðslusetur er viðurkenndur kennsluaðili (ATC Authorized Training Center) fyrir Autodesk forrit og hefur um margra ára skeið boðið upp á námskeið í þeim m.a.

• Autodesk Revit

• AutoCad og AutoCad LT

• Autodesk Inventor

• AutoCad Electrical

Sjá nánar í kaflanum Tölvustudd hönnun á bls. 53-54.

HÚSASMIÐIR

Sólpallar og skjólgirðingarHönnun útfærsla og smíði

Þetta námskeið fjallar um hönnun og smíði trépalla og skjólgirðinga. Góð hönnun tryggir notagildi og skjól á pallinum, á meðan vönduð smíði lengir líftíma palls og eykur fegurð umhverfis. Skoðaðar eru ýmsar útfærslur og hvernig hægt er að mynda gott samræmi milli húss, palls og skjólgirðinga. Sérstaklega er fjallað um veðurfar en skjól er forsenda þess að góðir útivistardagar á pallinum verði sem flestir. Farið er yfir gerð grindarteikninga, útfærslu og smíði. Einnig er farið yfir helstu timburtegundir, festingar, undirstöður og frágang.

Námskeiðið er í fyrirlestraformi stutt fjölda ljósmynda og teikninga. Kennari er höfundur bókarinnar „Draumagarður“ sem er hluti námskeiðsgagnai.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Laugardagur 6. apríl, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

BYGGINGAMENN

SketchUpTeikniforrit fyrir alla – ókeypis á Netinu.

Þetta námskeið er ætlað öllum sem vilja rissa upp teikningar og setja upp í þrívídd. Teikniforritið Google SketchUp er ótrúlega einfalt í notkun og allir geta nálgast það ókeypis á Netinu. Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum undir-stöðuatriði í notkun forritsins, helstu skipanir og aðgerðir.

Á námskeiðinu eru unnin 3 einföld verkefni sem gefa góða mynd af notkun forritsins.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtudagur 7. mars, kl. 16.00 – 19.00 og fimmtud. 14. mars, kl. 16.00 – 19.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

HÚSASMIÐIR

Frágangur rakavarnarlagaGegn fúa- og mygluskemmdum

Þetta námskeið er fyrir þá sem vinna við frágang byggingarhluta sem mynda ytra byrði húsa s.s. þaka og útveggja. Markmið þess er að fræða þátttakendur um hlutverk og frágang rakavarnarlaga og mikilvægi þess að rétt sé frá þeim gengið.

Fjallað er um raka í byggingum og byggingarefnum, eignleika og gerðir rakavarnarlaga, límbönd, þéttiefni og frágang þeirra. Farið er í gegnum deililausnir í mismunandi gerðum bygginga og byggingahluta. Ritið Frágangur rakavarnarlaga frá NMÍ er hluti námskeiðsgagna.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Jón Sigurjónsson yfirverkfræðingur. hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtudagur 7. febrúar, kl. 15.00 – 19.00

Lengd: 5 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

Page 34: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

32

BYGGINGAMENN

HúsverndarstofaRáðgjöf um húsvernd

IÐAN fræðslusetur stendur að rekstri Húsverndarstofu í samvinnu við Húsafriðunarnefnd og Minjasafn Reykjavíkur. Tilgangur hennar er að standa fyrir fræðslu og og ráðgjöf um viðhald og viðgerðir á eldri húsum. Þar er sögusýning um byggingatækni.

Í Húsverndarstofu er veitt ráðgjöf alla miðvikudaga frá kl. 16.00 – 18.00 og í síma 411 6333. Sérfræðingar frá Minjasafni Reykjavíkur og Húsafriðunarnefnd eru þar til viðtals og veita ráðgjöf sem er notendum að kostnaðarlausu.

HÚSGAGNASMIÐIR

Húsgagnaviðgerðir – bæsun og lökkunÁttu gamalt húsgagn sem þig langar að gera upp?

Á þessu námskeiði lærir þú að gera við gömul húsgögn þannig að þau verði nánast sem ný. Farið er í helstu atriði vegna viðgerða á gömlum húsgögnum og viðgerðarefna og áhalda. Þátttakendur fá þekkingu á litun og bæsun húsgagna. Á hvern hátt er hægt að ná sömu litunar- og bæsiáferð á gömlum húsgögnum og fjallað um afsýringu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Magnús Ólafsson , húsgagnasmíðameistari og kennari við Tækniskólann.

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri.

Tími: Föstudagur 22. febrúar kl. 13.00 - 19.00 og laugard. 23. febrúar kl. 9.00 - 16.00.Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

HÚSASMIÐIR

Þök, rakaástand og myglaLoftun er málið.

Þetta er námskeið fyrir alla sem vinna við nýsmíði og endurnýjun á þökum. Markmið þess er að kenna þátttakendum hvernig ganga á frá þökum þannig að þau fúni ekki eða skemmist af völdum myglusvepps. Farið er í helstu orsakir skemmda af völdum raka og hvernig best er að ganga frá loftun. Fjallað er um loftunarleiðir og frágang klæðninga og rakavarnar.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Björn Marteinsson, verkfræðingur / arkitekt hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Námskeið 1

Staðsetning: Austurvegur 56, Selfossi.

Tími: Fimmtud. 14. mars, kl. 15.00 – 19.00.

Námskeið 2

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtud. 18. apríl, kl. 15.00 – 19.00.

Lengd: 5 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

HÚSASMIÐIR / HÚSGAGNASMIÐIR

Húsgagnagerð úr skógarefniSkógarnytjar

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja læra hvernig hægt er að smíða úr því efni sem er að falla til við grisjun. Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta grisjunarefni í húsgagnagerð og aðrar hagnýtar nytjar, kynnast eiginleikum einstakra viðartegunda og nýtingu þeirra, setja saman kolla og bekki úr greinaefni og bolviði/ skógarfjölum. Einnig kynnast þeir fersku og þurru efni og samsetningu þess og læra að afberkja, ydda, setja sama og fullvinna húsgögnin, yfirborðsmeðferð og fúavörn. Öll verkfæri og efni er til staðar en þátttakendur mæta í vinnufatnaði á námskeiðið. Allir fara heim með einn koll og bekk. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi, Skógræktar ríkisins og Ólafur G.E. Sæmundsson skógtæknir.

Staðsetning: Skógræktarfélag Árnesinga, á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.

Tími: Föstud. 8. febrúar, kl. 16.00 – 19.00 og laugardagur 9. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 14 kennslustundir.

Fullt verð: 22.500 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

Page 35: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

33

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

HÚSASMIÐIR / HÚSGAGNASMIÐIR

TrérennismíðiVið rennibekkinn

Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja læra að nota rennibekk við trésmíðar. Markmið þess er að kenna þátttakendum meðferð efnis og véla í vinnu við trérennismíði. Farið er í undirstöðuatriði varðandi notkun rennibekkja og verklegar æfingar. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Félag trérennismiða.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Guðmundur Magnússon, húsasmíðameistari og Magnús Kristmundsson húsasmíðameistari og kennari við FB.

Staðsetning: Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Verknámshús við Hraunberg.

Tími: Föstud. 8. febrúar, kl. 13.00 – 20.00 og laugardagur 9. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

HÚSASMIÐIR

Viðhald og viðgerðir gamalla timburhúsaMeð verklagi fortíðar er byggt til framtíðar

Þetta námskeið er fyrir alla sem ætla sér að vinna við viðhald og viðgerðir á gömlum timburhúsum. Fjallað er um undirstöður og burðarvirki og farið yfir frágang bæði utan- og innanhúss. Skoðuð eru gömul timburhús sem hafa verið endurbyggð. Þátttakendum er kennt að meta varðveislugildi húsa og breytingar sem gerðar hafa verið á þeim frá því þau voru byggð og hvernig staðið skuli að viðhaldi og viðgerðum á þeim. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Húsafriðunarnefnd og Minjasafn Reykjavíkur.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Magnús Skúlason arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt og Einar S. Hjartarson, húsasmíðameistari.

Staðsetning: Árbæjarsafn, Reykjavík.

Tími: Föstud. 15. mars, kl. 13.00 – 17.00 og laugardagur 16. mars, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 15 kennslustundir.

Fullt verð: 24.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

HÚSASMIÐIR / HÚSGAGNASMIÐIR

TrébátasmíðiLifandi handverk – í samvinnu við Bátasafn Breiðafjarðar.

Þetta er grunnnámskeið um smíði trébáta. Fjallað er um gerðir trébáta og aðferðir sem notaðar eru við smíði og frágang á þeim. Farið er í gegnum grundvallaratriði í smíði og munu þátttakendur leggja kjöl og byrðing auk annarra verklegra þátta. Námsefni er m.a. Leiðarvísir að bátasmíði, tveir mynddiskar þar sem fylgst er með smíði báts frá kili að sjósetningu.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Hafliði Aðalsteinsson, skipasmíðameistari og Eggert Björnsson bátasmiður.

Staðsetning: Reykjavík .

Námskeið 1 Föstudagur 1. mars, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 2. mars, kl. 9.00 – 16.00.

Námskeið 2 Föstudagur 8. mars, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 9. mars, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

HÚSASMIÐIR / HÚSGAGNASMIÐIR

Nýlögn og viðhald parketsGóðir starfshættir gera starfið auðveldara

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja auka við þekkingu sína í vinnu á nýju sem gömlu parketi. Fjallað er um alla þætti undirbúnings parketlagnar s.s. frágang undirgólfs (rakavörn, grunning undirgólfs, flotun og viðgerðir á sprungum) og límingu parkets og þá parketslípun. Þáttakendum er jafnframt kennt að viðarfylla parket, olíubera, lita (bæsa) og lakka parket. Einnig er kennt hvernig er best að standa að viðgerðum á parketi eftir að það hefur verið lagt (viðgerð á holhljóði sem og skemmd í yfirborði parkets).

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Antti Viitala frá Bona Nordic Team og Gunnar Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri Gólfefnavals.

Staðsetning: Skúlatúni 2 Reykjavík.

Tími: 15. mars kl. 13.00 - 19.00 og laugardagur 16. mars kl. 9.00 - 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

Page 36: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

34

PÍPULAGNINGAMENN

ÞrýstiloftskerfiÞéttar plastlagnir

Þetta er námskeið fyrir fagmenn sem vilja leggja loftlagnir á réttan hátt. Markmið þess er að kenna þátttakendum grunnatriði varðandi tækni og útfærslur á loftlögnum. Farið er yfir helstu þætti hönnunar og undirbúnings og fjallað um efni og tæki. Einnig er farið í gegnum stillingar og frágang.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Sigurður Viggó Halldórsson, pípulagningameistari og Bjarni Halldórsson, rafvirkjameistari.

Staðsetning: Skúlatún 2.

Tími: Þriðjud. 26. febrúar, kl. 16.00 – 20.00 og fimmtud. 28. feb., kl. 16.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

PÍPULAGNINGAMENN

GólfhitakerfiHitinn úr gólfunum

Þetta er námskeið fyrir fagmenn sem vilja leggja gólfhitakerfi á réttan hátt. Markmið þess er að kenna þátttakendum grunnatriði varðandi tækni og útfærslur á gólfhitakerfum. Farið er yfir helstu þætti hönnunar og undirbúnings og fjallað um efni og tæki. Einnig er farið í gegnum stillingar og frágang gólfhitakerfa.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Tengi hf.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ragnar Ragnarsson.

Staðsetning: Lagnakerfamiðstöð við Árleyni.

Tími: Föstud. 15. febrúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 16. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

PÍPULAGNINGAMENN OG AÐRIR LAGNAMENN

VarmadælurLausnir fyrir köld svæði

Varmadælur geta sparað verulegan kostnað við kyndingu húsa á köldum svæðum. Á þessu námskeiði er í boði að afla sér þekkingar á varmadælum og notkun þeirra í byggingum. Farið er í uppbyggingu og gerðir varmadæla, tengingar, stillingar og lokafrágang.

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Orkusetur og Verklagnir ehf.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Sigurður Friðleifsson frá Orkusetri, Þór Gunnarsson, tæknifr. frá Ferli, Gunnlaugur Jóhannsson, pípulagningameistari. Pétur Kristjánsson pípulagningameistari.

Tími / Staðsetning: Skipagata 14, Akureyri. Föstudagur 1. febrúar, kl. 13.00 – 18.00.

Höfn í Hornafirði. Föstud. 15. febrúar, kl. 13.00 – 18.00.

Lagnakerfamiðstöðin. Föstudagur 1. mars kl. 13.00 - 18.00.

Borgarnes. Föstudagur 22. mars, kl. 13.00 – 18.00.

Vopnafjörður. Föstudagur 12. apríl kl. 13.00 - 18.00.

Lengd: 8 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

PÍPULAGNINGAMENN

Vatnsúðakerfi - Sprinkler Réttindanámskeið

Námskeiðið er ætlað pípulagningamönnum með full sveins- og meistararéttindi og er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun sem gefur út leyfi til þeirra sem ljúka prófi með fullnægjandi árangri. Farið er yfir hönnun vatnsúðakerfa, staðla, lög og reglugerðir sem eru í gildi. Einnig er farið yfir lagnaefni sem notað er í vatnsúðakerfi. Öllum er frjáls þátttaka á námskeiðnu en einungis pípulagningameistarar öðlast réttindi til að hafa eftirlit með kerfunum. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Mannvirkjastofnun.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Guðmundur Gunnarsson, verkfr. hjá Mannvirkjastofnun. Ástvaldur Eiríksson hjá Eldvarnaþjónustunni og Egill Ásgrímsson pípulagningameistari.

Staðsetning: Lagnakerfamiðstöð við Árleyni.

Tími: Föstud. 22. febrúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 23. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

Page 37: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

35

PÍPULAGNINGAMENN

Stjórnstöðvar hitakerfaLærðu að stilla hitann

Þátttakendur afla sér þekkingar á mismunandi gerðum rafstýr-inga. Farið er í faglegan grunn reglunartækni, hönnun og val á búnaði. Fjallað er um stillingu rafstýrikerfa, tengingu hita- og þrýstinema og mótorloka.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Jóhannes Skarphéðinsson.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Laugardagur 16. mars, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.000 kr.

PÍPULAGNINGAMENN OG AÐRIR LAGNAMENN

PlastsuðaRéttar suðuaðferðir

Markmið þessa námskeiðs er að kenna þátttakendum aðferðir við plastsuðu. Fjallað er um plastlagnir almennt, farið er í efnisfræði lagnaefnis, undirbúning lagnavinnu og helstu þætti niðurlagn-ingar. Ítarlega er fjallað um samsetningaraðferðir lagna, viðgerðir og yfirborðsmeðhöndlun.

Áhersla er lögð á spegilsuðu, múffusuðu og extruderingsuðu (þráðsuðu) og skýrslugerð varðandi suðu. Námskeiðið er bæði verklegt og bóklegt.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Gunnar Magnússon, plastsuðusérfr. Sigurður Geirsson tæknifræðingur og leiðbenendur frá Sýni.

Staðsetning: Lagnakerfamiðstöð við Árleyni.

Tími: Fimmtudagur 4. apríl, kl. 8.00 – 18.00 og föstudagur 5. apríl, kl. 8.00 – 18.00.

Lengd: 28 kennslustundir.

Fullt verð: 35.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.000 kr.

MÁLARAR

MarmaramálunGamlar vinnuaðferðir í nútímanum

Þetta er námskeið um vinnuaðferðir sem voru mikið notaðar á fyrri hluta síðustu aldar en hurfu næstum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái góða þekkingu á aðferðum við marmaramálun. Fjallað er um barokkramma og ítalskan carrara. Farið er yfir litarefni, verkfæri og áhöld. Námskeiðið er að miklu leyti verklegt.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Helgi Grétar Kristinsson, kennari við Tækniskólann.

Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti.

Tími: Föstudagur 8. febrúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugard. 9. febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

MÁLARAR OG ÁHUGAMENN UM IÐNSÖGU

Farfi og fegurð – saga húsamálunarÍ takt við tímann

Sumarið 2012 var opnuð á Árbæjarsafni sýningin Farfi og fegurð - Um sögu húsamálunar á Íslandi. Á sýningunni er hægt að fræðast um kalk og tjöru, línolíumálningu og límfara, hvar þessi efni voru notuð og hvenær. Þar er einnig hægt að sjá marmoreringu og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt.

Markmið þessa námskeiðs er að kynna þátttakendum efni sýningarinnar og sögu húsamálunar á Íslandi.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Helgi Grétar Kristinsson, kennari við Tækniskólann.

Staðsetning: Árbæjarsafn.

Tími: Fimmtud. 14. febrúar, kl. 16.00 – 18.00.

Lengd: 3 kennslustundir.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

Page 38: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

36

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

BYGGINGA- OG MANNVIRKJASVIÐ

MÚRARAR

Uppsetning múrkerfaRétt vinnubrögð

Þetta námskeið er fyrir fagmenn sem vilja setja upp múrkerfi á réttan hátt. Hér afla þátttakendur sér þekkingar og skilnings á meðhöndlun og uppsetningu múrkerfa utanhúss. Fjallað er um efni og tæki og meðhöndlun þeirra. Farið er yfir verklag og vinnubrögð og fjallað um afleiðingar rangrar meðhöndlunar. Námskeiðið er haldið í samvinnu við BM Vallá.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Sérfræðingar frá BM Vallá.

Staðsetning: BM Vallá, Breiðhöfða 3.

Tími: Fimmtud. 14. mars, kl. 15.00 – 18.00.

Lengd: 4 kennslustundir.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu

MÚRARAR

ArinhleðslaOpin eldstæði

Hér er um að ræða námskeið um sérstakan þátt í starfi múrara. Markmið þess er að kenna þáttakendum rétt vinnubrögð við hleðslu eldstæða. Fjallað er um hvernig opin eldstæði eru byggð upp og helstu þáttum við hönnun þeirra. Einnig vinnuaðferðum og efnum sem notuð eru við hleðslu þeirra. Þátttakendur fá einnig verklega þjálfun í að byggja upp arinn.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ingi Gunnar Þórðarson, múrari. Rafn Gunnarsson, múrari.

Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti.

Tími: Föstudagur 1. mars, kl. 13.00 – 19.00. og laugard. 2. mars, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

MÚRARAR

Upphengdar flísarVaranlegur frágangur utanhúss

Á námskeiðinu er kennd upplíming flísa og steinklæðninga utanhúss. Um er að ræða bóklega en þó fyrst og fremst verklega kennslu sem fer fram á verkstað. Farið er yfir uppdeilingu flísa og burðarkerfa ásamt frágangi festinga og einangrunar. Fjallað er um lím og festingar sem notaðar eru til að festa flísarnar á burðargrindina. Einnig er farið yfir helstu gerðir og eiginleika flísa, keramik og steinklæðinga sem notaðar eru utanhúss.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ingi Gunnar Þórðarson, múrari og Rafn Gunnarsson, múrari.

Staðsetning: Öndverðanes Grímsnesi.

Tími: Föstudagur 12. apríl, kl. 9.00 – 18.00.

og laugardagur 13. apríl, kl. 9.00 – 18.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 35.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

DÚKLAGNINGAMENN

VeggfóðrunVeggfóður hefur marga spennandi kosti

Á námskeiðinu er fjallað um veggfóðrun, undirbúning, undirlag, límgerðir, merkingar, munstrun og máltöku. Farið yfir ýmsar vegg-fóðursgerðir, t.d. vefnaðarveggfóður, veggfóður úr plastefnum og pappír, kork- og leðurveggfóður.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Guðmundur Óskarsson, veggfóðrunar- og dúklagningameistari.

Staðsetning: Tækniskólinn Skólavörðuholti.

Tími: Föstudagur 15. febrúar, kl. 13.00 – 19.00 og laugardagur 16 .febrúar, kl. 9.00 – 16.00.

Lengd: 20 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

Page 39: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

37

HÁRSNYRTISVEINAR MEISTARAR OG NEMAR

Page 40: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

38

HÁRSNYRTINÁMSKEIÐ

Litun, klipping og greiðslurNýjar línur - ný tækni

Hér sýna fagmennirnir Nonni Quest og Lena Magnúsdóttir það heitasta í hártískunni fyrir vor og sumar 2013. Nonna þarf vart að kynna. Hann rekur eigið fyrirtæki og hefur góða reynslu í kennslu hérlendis sem og erlendis. Lena mun sýna nýja tækni í greiðslum sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Skemmtileg, spennandi og fræðandi kvöldstund.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Nonni Quest frá Krista Quest og Lena Magnúsdóttir frá Eplinu.

Staðsetning: Hársnyrtideild VMA.

Tími: 29. janúar kl. 18.00 – 20.00.

Lengd: 3 kennslustundir.

Fullt verð: 9.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 3.900 kr.

Að reikna rétt verðÞetta verða allir að hafa á hreinu

Námskeið er fyrir þá sem reka hárgreiðslustofur og hafa áhuga á að skoða rekstur sinn og verðlagningu þjónustunnar. Hér er m.a. farið yfir helstu rekstrarhugtök og kennt á forritið TAXTA sem gerir þátttakendum kleift að átta sig á einfaldan hátt á því hver raunkostnaður er að baki þjónustunnar. Þátttakendur munu að loknu námskeiði geta reiknað út verð á ólíkum þjónustuþáttum. Þátttakendur fá tækifæri til að öðlast góða kostnaðarvitund, skilja forsendur verðmyndunar og hvernig hagnaður verður til.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ferdinand Hansen gæðastjóri SI og Eyjólfur Bjarnason gæðastjóri ÍAV.

Staðsetning: Skúlatún 2.

Tími: Þriðjud. 26. febrúar kl. 15.00 - 20.00.

Lengd: 7 kennslustundir.

Fullt verð: 15.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.000 kr.

Léttvín og maturFrábær leið til að hrista hópinn saman

Þetta á að vera skemmtileg kvöldstund með góðu fólki þar sem vínsérfræðingurinn Dominique kennir þátttakendum að velja vín með mat þannig að bæði vín og matur njóti sín betur. Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á léttvínum og kenna aðferðir til þess að njóta þess úrvals af vínum sem eru á boðstólnum. Á námskeiðinu eru vín smökkuð og kenndar aðferðir til þess að meta vín út frá þáttum sem höfðar til hvers og eins.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Dominique Plédel Jónsson.

Staðsetning: Í veitingahúsi. Nánari upplýsingar síðar.

Tími: 24. janúar kl. 18.30 - 21.30.

Lengd námskeiðs: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 13.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.210 kr.

Verktaki eða launþegi? Að reikna laun í eigin atvinnurekstri Hvað þarf að hafa í huga?

Markmið námskeiðsins er að fara yfir þá þætti sem skipta máli hjá einstaklingum sem eru verktakar. Að auki verður farið yfir kosti og galla þess að vera verktaki, ásamt því að fjalla um muninn á því að vera verktaki og vera með rekstur í einhvers konar félagaformi. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vinna í eigin rekstri eða vinna fyrir aðra sem verktakar. Námskeiðið hentar einnig þeim sem starfa við bókhald.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ásmundur G. Vilhjálmsson, aðjúnkt í skattarétti við HÍ.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Mánudagur 14. janúar kl. 13.00-17.00.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 15.700 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.420 kr.

Page 41: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

39

HÁRSNYRTINÁMSKEIÐ

Vinnugleði – mín vinna, mitt viðhorf ”Fróðlegt og gott, fékk mig til umhugsunar og til að velta mínum málum fyrir mér”

Þetta er námskeið fyrir alla þá sem er annt um eigin vellíðan og velgengni í lífi og starfi eða vilja bæta sig, blómstra og auka vinnugleði. Þó svo að vinnuveitanda og stjórnendum beri að stuðla að vellíðan starfsfólks á vinnustað er líðan í starfi líka á ábyrgð okkar sjálfra. Jákvæð viðhorf og jákvæð hegðun þar sem við nýtum styrkleika okkar, finnum að við gerum gagn, temjum okkur bjartsýni, höfum áhrif á aðstæður okkar og vinnum í góðu samstarfi eru þættir sem skipta miklu máli fyrir okkur sjálf, árangur í starfi og starfsandann. Markmið námskeiðsins er að auka innsýn í þætti sem við sjálf getum haft áhrif á til að upplifa vinnugleði og njóta okkar í starfi. Á námskeiðinu eru unnin létt og hagnýt verkefni um sjálfsskoðun og markmið sem tengjast efninu.

Skráningarfrestur er til 25. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Steinunn Stefánsdóttir. Steinunn er með BA í sálfræði, MSc í viðskiptasálfræði og MSc í streitufræðum.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Fimmtudagur 7. mars. kl. 8.30 – 12.30.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 19.200 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.520 kr.

Mannauðsstjórnun Lærðu að nýta þekkingu og krafta starfsmanna enn betur

Á þessu námskeiði er farið yfir ferli mannauðsstjórnunar og hvernig það tengist rekstri fyrirtækja, s.s. skipulagi, vali starfsmanna, hvatningu, umbun, umsjón með breytingum og starfsþróun. Markmið námskeiðsins er að undirbúa og auka skilning einstaklinga á þeim málaflokkum sem heyra undir mannauðsstjóra.

Skráningarfrestur er til 25. janúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Svala Guðmundsdóttir Ph.D., lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands ásamt Páli R. M. Kristjánssyni Hdl. LL.M, lögfræðing hjá Félagi atvinnurekenda.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Föstudagar og laugardagar frá 1. – 16. febrúar. Kennt er á föstudögum kl. 9.00-16.00 og á laugardögum kl. 9.00-12.00.

Lengd: 15 kennslustundir.

Fullt verð: 85.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 51.000 kr.

Rekstur smáfyrirtækja Einyrkjar og aðilar með smærri fyrirtæki

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kunna skil á uppbyggingu og mismunandi rekstrarformi smáfyrirtækja, og hentar þeim sem eru nú þegar í atvinnurekstri, einyrkjum, eða þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist þeim ólíku þáttum er snúa að almennum rekstri. Farið er í gerð viðskiptaáætlana og hvernig sótt er um atvinnurekstrarleyfi. Fjallað er um kosti og galla ólíkra fyrirtækjaforma og farið í reglur er varða tekjur og gjöld í rekstri sem og skráningu og skil á virðisaukaskatti. Þá læra þátttakendur að afmarka rekstrarkostnað gangvart einka – og eignakostnaði og fá innsýn inn í hvaða reglur gilda um reiknað endurgjald. Þá er einnig fjallað um hvað getur talist til eigna og skulda, farið í grunnreglur reikningshalds og almennt um skyldur atvinnurekanda gagnvart launþegum og verktökum. Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu.

Skráningarfrestur er til 21. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ásmundur G. Vilhjálmsson aðjúnkt í skattarétti við HÍ og Dr. Gunnar Óskarsson, aðjúnkt við Viðskiptadeild HÍ.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Kennt í tveimur lotum dagana 28. febrúar – 2. mars og 14. – 16. mars. Á fimmtudögum kl. 13.00-17.00, á föstudögum kl. 8.15 – 17.00 og á laugardögum kl. 09.00 – 12.15.

Lengd: 45 kennslustundir.

Fullt verð: 85.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 51.000 kr.

Fyrirhugað er að vera með námskeið í samvinnu við Halldór Jónsson á önninni. Ekki liggja allar upplýsingar fyrir á þessum tímapunkti en námskeiðið verður auglýst sérstaklega þegar nær dregur.

Page 42: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

40

MATREIÐSLUMENN, FRAMREIÐSLUMENN KJÖTIÐNAÐARMENN, BAKARAR OG STARFSFÓLK Í FERÐAÞJÓNUSTU

Page 43: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

41

STARFSFÓLK Í VEITINGAHÚSUM

Þjónusta og samskipti á veitingahúsum Að setja viðskiptavininn í forgang

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu starfsfólks á mikilvægi þess að veita góða þjónustu og selja veitingar og aðra þjónustu hússins. Þekking er efld á mikilvægi persónulegs hreinlætis og snyrtimennsku við þjónustustörf og skilningur aukinn á mikilvægi hópvinnu og samstöðu á vinnustað. Starfsfólk eykur leikni sína í faglegum vinnubrögðum við móttöku gesta og allri þjónustu við þá. Þjálfuð er leikni í sölu og söluferli, að taka á móti pöntunum, útskýra matseðil o.s.frv.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Hallgrímur Sæmundsson, meistari í framreiðslu.

Staðsetning: Í veitingahúsum og hótelum.

Tími: Samkomulag.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 13.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.900 kr.

FRAMREIÐSLUMENN OG MATREIÐSLUMENN

Bordeaux vín Framsækin og sígild Bordeaux vín

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu fagfólks á Bordeaux vínum, uppruna þeirra, fjölbreytileika og flokkunarkerfi vínanna. Fjallað er um jarðveg, þrúgur og vínviðinn, framleiðsluaðferðir, flokkunarkerfi, merkingar, flöskumiða, víntegundir og fjölbreyti-leika Bordeaux vína. Námskeiðið unnið í samstarfi við Vínskólann.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Dominique Plédel Jónsson.

Staðsetning: Í veitingahúsi.

Tími: Mánudagur 11. mars, kl. 14.00 – 17.00.

Lengd: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 13.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.900 kr.

AFGREIÐSLUFÓLK Í BAKARÍUM

Þjónusta og sala í bakaríum Listin að koma vörum á framfæri í bakaríum með góðum árangri

Markmið námskeiðsins er að gefa þátttakendum tækifæri til að auka þekkingu og leikni sína á uppstillingu á vörum í bakaríum og söluaðferðum sem hafa gefið góða raun. Hér er rétti vettvangurinn til að þjálfast í þjónustulipurð og góðri framkomu við viðskiptavini.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Hallgrímur Sæmundsson.

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri.

Tími: Laugardagur 2. febrúar, kl. 10.00 - 14.00.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 12.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.000 kr.

STARFSFÓLK Í KJÖTVINNSLUM

Innra eftirlit í kjötvinnslum Góðir starfshættir í kjötvinnslum

Markmið með námskeiðinu er að efla þekkingu starfsfólks á innra eftirliti og hollustuháttum í kjötvinnslum, um meðferð og öryggi matvæla og góðum framleiðsluháttum. Fjallað er um vöxt og vaxtarskilyrði örvera, matarsjúkdóma af völdum örvera, rekjanleika og mikilvægi almenns og persónulegs hreinlætis. Þjálfuð er leikni í að greina smitleiðir örvera og meta mikilvægi hollustuhátta í kjötvinnslum, öryggi matvæla og grunnatriði innra eftirlits í kjötvinnslum.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Halldór Eyþórsson, kjötiðnameistari og fl.

Staðsetning: Í kjötvinnslu.

Tími: Samkomulag.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 15.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 7.900 kr.

MATVÆLA- OG VEITINGASVIÐ

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

Page 44: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

42

FRAMREIÐSLUMENN - MATREIÐSLUMENN

VínVíngerð, vínlandafræði, vín og matur

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu fagfólks á vínum, víngerð og para saman vín og mat. Þjálfuð er hæfni í sjálfstæðum og faglegum vinnubrögðum við framreiðslu á vínum. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta og dreifist á fjórar vikur. Hverjum hluta lýkur með námsmati. Að loknum fjórum námskeiðum og námsmati fá þátttakendur skírteini sem staðfestir námslok þeirra. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Vínskólann.

Vínekran og þrúgurnar

Á námskeiðinu er áhersla lögð á að efla þekkingu á vínþrúgum og vínrækt. Fjallað er um vínviðinn og hvernig hann vex, kjörlendi og nýlendur, viðhald og undirbúning. Þekking aukin á einkunnum helstu aðalþrúgnanna. Hæfni þátttakenda í vínsmökkun aukin. Á námskeiðinu verða fjögur til fimm vín smökkuð, þar af eitt vín blindsmakkað. Eitt heimaverkefni (ritgerð, 2-3 síður). Samtals fjórar kennslustundir auk heimavinnu.

Víngerð

Á námskeiðinu er þekking aukin á sögu vínsins og aðferðum við víngerð. Fjallað er um eikartunnu, mikilvægi hennar og áhrif. Þekking aukin á göllum í víni, aukaefnum, ofnæmisvöldum, o.s.frv. Á námskeiðinu verða fjögur til fimm vín smökkuð, þar af eitt vín blindsmakkað. Hæfni þátttakenda í vínsmökkun aukin í tengslum við áherslur námskeiðsins. Eitt heimaverkefni (ritgerð, 2-3 síður). Samtals fjórar kennslustundir auk heimavinnu.

Lönd og héruð

Á námskeiðinu er áhersla lögð á að efla þekkingu á uppruna víns. Fjallað er um mismunandi aðstæður og uppruna þar sem sama þrúgan er ræktuð. Gerð grein fyrir áhrifum jarðvegs, loftslags og víngerðar. Helstu einkenni lands eða héraðs. Fjallað um markaðsvín, vínbóndavín og iðnaðarvín. Á námskeiðinu verða fjögur til fimm vín smökkuð, þar af eitt vín blindsmakkað. Hæfni þátttakenda í vínsmökkun aukin í samhengi við áherslur námskeiðsins. Eitt heimaverkefni (ritgerð um eitt land eða hérað). Samtals fjórar kennslustundir auk heimavinnu.

Vín og matur

Á námskeiðinu er þjálfuð færni við að meta grunnbrögðin, umami, sýru og tannín. Þekking aukin á samræmi á milli víns og matar. Hvað fer saman og hvað ekki? Læra að hugsa út fyrir kassann. Gerð grein fyrir því hvernig eigi að mæla með víni. Vín pöruð með réttum. Hæfni þátttakenda í vínsmökkun og para saman vín og mat aukin. Lokaverkefni: Krossaspurningar og stutt ritgerð. Eitt vín blindsmakkað. Samtals 5 kennslustundir með lokaverkefni.

Námsmat: Mat á ritgerðaverkefnum og lokapróf.

Kennari: Dominique Plédel Jónsson. Staðsetning: Í veitingahúsum.

Tími: Fyrsti hluti: Mánudagur 4. febrúar. Annar hluti: Mánudagur 11. febrúar. Þriðji hluti: Mánudagur 18. febrúar. Fjórði hluti: Mánudagur 25. febrúar. Lengd: Samtals 16 kennslustundir. kl. 14.00 – 16.00.

Fullt verð: 32.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 16.500 kr.

MATVÆLA- OG VEITINGASVIÐ

Page 45: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

43

MATVÆLA- OG VEITINGASVIÐ

FRAMREIÐSLUMENN OG MATREIÐSLUMENN

Vín og maturVín- og matseðlar, aukin upplifun á vínum

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu fagfólks á vínum og samhengi þeirra við hina ýmsu matrétti. Vín- og matseðlar verða skoðaðir og metnir. Áhersla verður lögð á uppbyggingu vínseðla eftir veitingastöðum og áherslum þeirra. Þátttakendur velja vín með ólíkum smáréttum og rökstyðja val sitt með þessum réttum. Áherslan er að auka þekkingu á fjölbreytileika vína, að prófa nýjar leiðir og þjálfa færni fagmanna til þess að auka á upplifun gestsins. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Vínskólann.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Dominique Plédel Jónsson.

Staðsetning: Í veitingahúsum.

Tími: Mánudagur 14. janúar, kl 14.00 – 17.00.

Lengd: 4 kennslustundir.

Fullt verð: 13.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.900 kr.

FRAMREIÐSLUMENN - MATREIÐSLUMENN

Vínfræði I Víngerð, að para saman vín og mat.

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu fagfólks á vínum, víngerð og para saman vín og mat. Þjálfuð er hæfni í sjálfstæðum og faglegum vinnubrögðum við framreiðslu á vínum. Að loknu námskeiði og námsmati fá þátttakendur skírteini sem staðfestir námslok þeirra. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Vínskólann.

Námsmat: Mat á ritgerðaverkefnum og lokapróf.

Kennarar: Dominique Plédel Jónsson. Staðsetning: Icelandair Hótel Akureyri.

Tími: Mánudagur 28. janúar og þriðjudagur 29. janúar.

Lengd: Samtals 10 kennslustundir, kl. 15.00 – 18.00.

Fullt verð: 29.800 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.500 kr.

BAKARAR

Brauðgerð og súrarNotkun súra við brauðgerð

Markmið námskeiðsins er að kynna notkun mismunandi brauðsúra úr rúgi og hveiti og áhrif sýrugráða á brauð. Farið verður yfir áhrif mismunandi sýrugráða á byggingu brauðsins. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Ölgerðina.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: René Kristoffersen.

Staðsetning: Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi.

Tími: Námskeiðið verður haldið í apríl. Nánari tímasetning tilkynnt síðar.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 15.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 6.500 kr.

STARFSFÓLK Í VEITINGAHÚSUM, MÖTUNEYTUM OG BAKARÍUM

SmurbrauðLærðu listina við smurbrauðsgerð!

Markmið námskeiðsins er að auka vöruþekkingu þátttakenda á áleggi, hlaupefni og skrautefnum fyrir smurbrauðsgerð. Þeir þjálfast í að velja og áætla hráefni í rétti, fá þjálfun í réttum handtökum við að smyrja brauð, snittur, canapé og pinnamat, að velja skraut og vinna að skrautgerð, vinna með eggja- og kjöthlaup, brauðtertugerð, samlokugerð og að smyrja hefðbundin smurbrauð. Þjálfuð er hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum við smurbrauðsgerð.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Marentza Poulsen, smurbrauðsjómfrú.

Staðsetning: Hótel og matvælaskólinn í Kópavogi.

Tími: Mánudagur 4., þriðjudagur 5., miðvikudagur 6., og fimmtudagur 7. mars, kl. 16.30 – 21.00.

Lengd: 16 kennslustundir (1 eining).

Fullt verð: 49.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 25.900 kr.

SKRÁÐU ÞIG Á WWW.IDAN.IS

Page 46: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

44

KJÖTIÐNAÐARMENN

Kjötmat Um gæðamat og flokkun skrokka eftir holdfyllingu og fitu

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu þátttakenda á flokkun skrokka eftir holdfyllingu og fitu. Fjallað er um kjötmat og forsendur verðlagninga og viðskipta með kjöt. Þátttakendur fá tækifæri til þess að fræðast nánar um mat og flokkun á sláturafurðum samkvæmt reglugerð um gæðamat, flokkun og merkingu sláturafurða nr. 882/2010. Á námskeiðinu er fjallað um skipulag og tilgang kjötmats en búfjárrækt hér á landi er m.a. byggð á niðurstöðum þess.

Sýnikennsla og skoðun á kjötskrokkum.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Stefán Vilhjálmsson, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun.

Staðsetning: Sláturhús B. Jensen á Akureyri.

Tími: Miðvikudagur 30. janúar, kl. 15.00 – 21.00.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 18.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.900 kr.

BAKARAR OG KÖKUGERÐARMENN

Nýjungar í bakstriBakstur á kökum, smáréttum og eftirréttum

Markmið námskeiðsins er að kynna notkun hráefna og vinnsluaðferða frá Debic í bakstri. Námskeiðið skiptist í tvennt. Í fyrri hluta námskeiðsins er fyrirlestur og kynning á efnum, uppskriftum og fjallað um ýmsa möguleika Debic vara í bakstri. Í seinni hluta námskeiðsins munu þátttakendur baka kökur, eftirrétti, smárétti o.s.frv. Námskeiðið er unnið í samstarfi við Kjarnavörur.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Bruno Van Verenbergh, Creative Pastry Chef.

Staðsetning: Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi.

Tími: Miðvikudagur 13. mars.

Lengd: 6 kennslustundir, kl. 10.00 – 16.00.

Fullt verð: 14.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 5.500 kr.

MATARTÆKNAR

Kalda eldhúsiðHönnun á köldum réttum

Markmið námskeiðsins er að þjálfa framsetningu og hönnun á köldum réttum og skapa ný tækifæri í matargerð. Þátttakendur fá tækifæri til þess að kynnast betur aðferðum við gerð kaldra rétta s.s. farsgerð, patégerð, lögun á galantine, ballontine og terrine, heit- og kaldreykingu og mareneringu. Einnig framsetningu og hönnun á köldum réttum sem tekur m.a. mið af árstíðabundnu hráefni. Þátttakendur efla þekkingu sína á mikilvægi lita og forms í framsetningu kaldra rétta.

Námsmat: Verkefnavinna og símat.

Kennari: Guðmundur Guðmundsson, matreiðslumeistari.

Staðsetning: Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi.

Tími: Mánudagur 11., þriðjudagur 12. og mánudagur 18. mars, kl.16.30 – 20.30.

Lengd: 16 kennslustundir.

Fullt verð: 32.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 15.900 kr.

MATVÆLA- OG VEITINGASVIÐ

Page 47: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

45

MÁLMTÆKNI VÉLSTJÓRN OG BLIKKSMÍÐI

Page 48: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

46

MÁLMIÐNAÐARMENN - VÉLVIRKJAR - VÉLSTJÓRAR

Vökvatækni - virkni vökvakerfaÞetta er grunnurinn að sérhæfingu í vökvatækni

Með þessu hagnýta námskeiði er markmiðið að þátttakendur geti með öryggi og leikni, reiknað samspil flatar, þrýstings og afls, mælt þrýsting, flæði og hita, ásamt því að teikna kerfisteikningar með réttum táknum. Einnig verða sett upp einföld kerfi í vökvabekk eftir hönnun í tölvuhermi og hermirinn loks notaður til að skoða virkni kerfanna.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Guðlaugur Þorleifsson, iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 110.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 50.000 kr.

MÁLMIÐNAÐARMENN - VÉLVIRKJAR - VÉLSTJÓRAR

Vökvatækni – framhald af virkni vökvakerfaEftir þetta námskeið eru menn að verða nokkuð góðir

Eftir framhaldsnámskeiðið getur þú: valið rétta loka í vökvakerfi með tilliti til notkunar, nýtt þér þekkingu til þess að auka stimpilhraða, stillt þrýstinema og gengið þannig frá stimpli að hann sigi ekki undan álagi. Að lokum teiknarðu, eða prófar „flóknar“ vökvakerfismyndir í FluidSim.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Guðlaugur Þorleifsson, iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 110.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 50.000 kr.

MÁLMIÐNAÐARMENN - VÉLVIRKJAR - VÉLSTJÓRAR

Vökvatækni – rekstur, viðhald og bilanagreiningAð þessu námskeið loknu ertu að verða sjálfbær í glussa

Eftir þetta námskeið ertu fær um að teikna samkvæmt ISO 1219-1 ásamt því að lesa og leiðrétta teikningar, velja rör og „fittings“ miðað við þrýsting og setja upp og tengja slöngur og rör á öruggan hátt. Einnig verðurðu fær um að velja réttar síur og síubúnað skv. ISO 4406 og síunarhæfni (βx), meðhöndla og geyma glussa á öruggan hátt og greina orsakir bilana og gera viðeigandi ráðstafanir. Að lokum öðlastu leikni í að innstilla vökvakerfi eftir viðgerðir og setja upp stýrð viðhaldskerfi.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Guðlaugur Þorleifsson, iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 110.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 50.000 kr.

MÁLMIÐNAÐARMENN - VÉLVIRKJAR - VÉLSTJÓRAR

Vökvatækni fartækja Sérhæft námskeið um vökvabúnað fartækja s.s. lyftara, krana, búkollur, hefla, traktorsgröfur o.fl.

Notaður verður sérhæfður búnaður frá FESTO

Markmið:

Að námskeiðinu loknu þekkir þú mikilvæg atriði s.s. hlutfallsstýringar, magnstýringar, kraftstýringar, skaraða og óskaraða loka, forstýriloka, ójafnvægi, fæðingu forstýriloka, lagnir og sérhæfða hluta, efni í vökvakerfum, miðflæðilagnir, stjörnugírinn, stýrisvélar, slöngubrotsloka, sveiflur, titring og hljóð í vökvakerfum ásamt því að læra lagfæringar á þessum hlutum. Einnig verður farið yfir rétt val á olíum

og kennt hvernig á að velja rétta loka í vökvakerfi með tilliti til notkunar. Þessa þekkingu munt þú síðan nýta þér á námskeiðinu til þess að auka stimpilhraða, stilla þrýstinema og loks teikna eða prófa „flóknar“ vökvakerfismyndir í FluidSim.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Guðlaugur Þorleifsson, iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 110.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 50.000 kr.

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

Page 49: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

47

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

STARFSMENN VIÐ MÁLMSMÍÐAR

Málmsuða – GrunnurEftir þetta námskeið þekkir þú grunnatriði rafmagnsfræðinnar varðandi ljósbogasuðu, meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu og verður fær um að stilla suðuvélar, mæla gasflæði, velja vír fyrir pinna- og MIG/MAG suðu, slípa skaut fyrir TIG suðu, sjóða einfaldar TIG, MIG/MAG og pinnasuður og loks beita öryggisákvæðum á vinnustað.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR - BIFREIÐASMIÐIR

PinnasuðaFyrir stál

Á námskeiðinu færð þú þekkingu á bóklegum og verklegum grunni í pinnasuðu en einnig verður farið í grunnatriði rafmagnsfræðinnar varðandi suðu og þú lærir að meðhöndla málma fyrir og eftir suðu. Þekkir tegundir og virkni mismunandi víra, merkingu umbúða og meðferð.

Með þessa þekkingu í farteskinu verður þú fær um að stilla suðuvélar, sjóða einfaldar pinnasuður (stúfsuður, kverksuður) og beita öryggisákvæðum á vinnustað.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: 15. - 17. janúar. Frá kl. 13.00 – 17.00.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR, - BIFREIÐASMIÐIR

TIG-suða og kynning á plasmasuðuFyrir stál, ryðfrítt stál og ál

Á þessu námskeiði færð þú þekkingu á bóklegum og verklegum grunni í TIG-suðu en einnig verður farið í grunnatriði rafmagnsfræðinnar varðandi suðu. Þú lærir að meðhöndla málma fyrir og eftir suðu og öðlast þekkingu á plasmasuðu. Þar með ertu fær um að stilla suðuvélar, velja rétt gas, meta og mæla gasflæði, velja skaut, hulsu og slípað skaut og getur soðið einfaldar TIG- og plasmasuður (stúfsuður, kverksuður), ásamt því að beita öryggisákvæðum á vinnustað

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR - BIFREIÐASMIÐIR

MIG / MAG-suða Fyrir stál og ál með massífum og duftfylltum vír

Á námskeiðinu færð þú þekkingu á bóklegum og verklegum grunni í MIG/MAG- suðu en einnig verður farið í grunnatriði rafmagnsfræðinnar varðandi suðu. Þú færð þekkingu á meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu og þjálfast í suðuhermi. Að því loknu ertu fær um að stilla suðuvélar, velja rétt gas, meta og mæla gasflæði, sjóða einfaldar MIG/MAG-suður (stúfsuður og kverksuður), ásamt því að beita öryggisákvæðum á vinnustað.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

Page 50: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

48

MÁLMIÐNAÐARMENN - SUÐUMENN

Suðuþjálfun í fyrirtækjumSérfræðingur IÐUNNAR í málmsuðu mætir í fyrirtæki, metur þekkingu og leikni þátttakenda í þeim suðuaðferðum sem notaðar eru. Kennsla og þjálfun byggist á þessu mati. Ef um hæfnispróf er að ræða leggur sérfræðingur IÐUNNAR prófið fyrir og kemur prófstykkjum til vottaðs matsaðila.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Fullt verð: Eftir umfangi.

Verð til aðila IÐUNNAR: 1/3 af fullu verði.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR

CNC-stýrðar iðnvélarÞað er skortur á CNC mönnum um allan heim í dag

Námskeiðið samsvarar áfanganum CNC 103 samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla fyrir málm- og véltæknigreinar. Farið er í virkni hvers konar tölvustýrðra iðnaðarvéla. Kennt er á rennibekk og fræsivél, en keyrsla fræsivéla er mjög svipuð keyrslu annarra véla s.s. skurðarvéla, yfirfræsa (trésmíði) og lokka.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Ragnar Þórisson, rennismíðameistari.

Staðsetning: Iðnskólinn í Hafnarfirði.

Tími: Verður haldið þegar sex hafa skráð sig.

Lengd: 60 kennslustundir.

Fullt verð: 250.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 75.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR - PÍPULAGNINGAMENN

LogsuðaÁ þessu námskeiði færð þú þekkingu á bóklegum og verklegum grunni í logsuðu og meðhöndlun málma fyrir og eftir suðu. Að því loknu ertu fær um að stilla suðutæki, velja rétt gas og spíssa, meta og mæla gasflæði, sjóða einfaldar suður í plötu og rör (stúfsuðu) ásamt því að beita öryggisákvæðum á vinnustað

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 65.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 29.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN, VÉLSTJÓRAR, BIFREIÐASMIÐIR

Ál og álsuðaEfniseiginleikar áls eru mjög frábrugðnir öðrum málmum og suða einnig. Farið er yfir efnisfræði áls og eiginleika. Fjallað um suðuaðferðir og prófanir á suðum. Fjallað um ýmsa samsetningarmöguleika álhluta. Farið er í meðhöndlun efnis, hreinsun, undirbúning suðu og suðugæði. Í verklega hlutanum er soðið með TIG- og MIG-suðuaðferðum. Á námskeiðinu kynnist þú eiginleikum áls og færð innsýn í efnisfræði, ásamt því að fá yfirsýn yfir samsetningarmöguleika áls og gæðakröfur.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 80.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 35.000 kr.

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

Page 51: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

49

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR

Rennismíði og fræsingNámskeiðið samsvarar áfanganum REN 103 samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla fyrir málm- og véltæknigreinar. Hér lærir þú að þekkja vinnsluhætti rennibekkja, bor- og fræsivéla, öryggis- og umgengnisreglur, umhirðu og meðferð úrgangs. Einnig verður farið í helstu uppspenniaðferðir í rennibekk og fræsivél, gerðir og notkunarsvið skurðarverkfæra. Að því loknu verður farið í deilingar í deilivél, hvernig beita skal mælitækjum og muntu í námskeiðslok geta leyst einföld verkefni í rennibekk og fræsivél innan 0,1 mm málvika

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Ragnar Þórisson, rennismíðameistari.

Staðsetning: Iðnskólinn í Hafnarfirði.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 36 kennslustundir.

Fullt verð: 165.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 45.000 kr.

BLIKKSMIÐIR - MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR

RafmagnsfræðiAð loknu þessu námskeiði þekkir þú grunnatriði rafmagnsfræðinnar ásamt framleiðslu- og flutningsferlum raforku, helstu öryggisatriði varðandi rafleiðara og muninn á milli jafnstraums og riðstraums, einfasa og þriggja fasa rafmagns, lekaliða og öryggja. Einnig verður farið í segulliða, spenna og afriðla, undirstöðuatriði í virkni iðntölva (PLC) og rafmagns-teikningar. Með þessa þekkingu að vopni geturðu notað fjölsviðsmæli (AVO), mælt spennu og einangrað leiðara með því að slá út í töflu og læsa öryggjum til að einangra vélar fyrir viðgerðir og áttar þig á fyrirkomulagi íhluta í rofa- og tengiskápum. Einnig muntu geta breytt snúningi þriggja fasa rafmótora, gert við framlengingarsnúrur, ljósahunda, fjöltengi og sinnt rafgeymum, lesið kraft- og stýrirásateikninga og forritað einfaldar iðntölvur (PLC).

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Björgúlfur Þorsteinsson.

Staðsetning: Iðnskólinn í Hafnarfirði.

Tími: Verður haldið þegar fjórir hafa skráð sig.

Lengd: 60 kennslustundir.

Fullt verð: 175.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 55.000 kr.

MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR

Iðntölvustýringar Að loknu þessu námskeiði þekkir þú uppbyggingu iðntölvunnar og virkni, táknmyndir, örgjörva, innganga, útganga, tengingu við loka, skynjara, teljara og rofa, grunnhugtök forritunarmáls og „ladder-forritun“. Með þessa þekkingu að vopni geturðu sett upp og tengt iðntölvu við loka, skynjara, teljara og rofa, forritað iðntölvu með ladder-forritun og látið hana stýra aðgerðum ásamt því að framkvæma villuleit í forriti og átta þig á algengum bilunum.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Guðmundur Rúnar Benediktsson, rafmagnsverkfræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2, 105 Reykjavík.

Tími: 11. – 14. mars. Frá kl 08.30 – 16.30.

Lengd: 40 kennslustundir.

Fullt verð: 200.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 70.000 kr.

VÉLSTJÓRAR - MÁLMTÆKNIMENN

Kælitækni – áfylling á kælikerfiAð loknu námskeiðinu þekkir þú hvernig kælimiðli er tappað af og bætt á kælikerfi, hvernig smurolíu er tappað af og bætt á kælipressur, innstillingu há- og lágþrýstiliða, hlutverk þurrkara og þurrkaraskipta og grunnatriði bilanaleitar. Með þessa þekkingu að vopni geturðu bætt kælimiðli á kæli- og frystikerfi, skipt um smurolíu, stillt há- og lágþrýstiliða, skipt um þurrkara og leitað bilana í kerfum.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Hlöðver Eggertsson, vélfræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar sex hafa skráð sig.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 90.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 30.000 kr.

Page 52: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

50

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

VÉLSTJÓRAR - MÁLMTÆKNIMENN

KælitækniInntak námskeiðsins er miðað við undirbúning til hæfnisvottunar í kæli- og frystitækni samkvæmt opinberum kröfum (Evrópureglugerðir nr. 834 og 303 um flúoraðar gróðurhúsalofttegundir).

Að loknu námskeiðinu þekkir þú Kyoto – bókunina og grunnatriði varmafræðinnar og áhrif kælingar og frystingar á matvæli. Einnig verður farið í uppbyggingu kæli- og frystikerfa, helstu íhluti þeirra, tákn og táknmyndir, mælabrettið og notkun þess, mengunar-hættu frá kælikerfum ásamt gildandi reglugerðum um kælimiðla, áhrif yfirhitunar og undirkælingar kælimiðils og loks handbækur kælikerfa, uppbyggingu þeirra og tilgang auk gildandi staðla um hönnun og smíði. Með þessa þekkingu að vopnu geturðu bilanaleitt kælikerfi, leitað að leka, stillt há- og lágþrýstiliða, afhrímt, skipt um þurrkara og sjónglös, stillt yfirhitun og undirkælingu, bætt á og tæmt kerfi af kælimiðli og smurolíu.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennarar: Hlöðver Eggertsson vélfræðingur og Kristján Kristjánsson, iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar sex hafa skráð sig.

Lengd: 60 kennslustundir.

Fullt verð: 215.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 70.000 kr.

VERKSTJÓRAR, VÉLSTJÓRAR OG MÁLMTÆKNIMENN

Er verkstæðið allt í óreiðu og viltu lagfæra það (til frambúðar)? Þá er ELMERI lausnin.

Sérfræðingur IÐUNNAR í notkun ELMERI verkfærisins mætir í fyrirtæki, metur ástandið. Kennsla, þjálfun og notkun ELMERI byggist á þessu mati.

Að loknu námskeiðinu þekkir þú aðferð til að meta stöðu öryggis og heilbrigðis í fyrirtækjum, mælikvarða á frammistöðu stjórnenda, starfsmanna og fyrirtækja í vinnuvernd, verkfæri sem eflir forvarnir og öryggisvitund á vinnustað og staðlaða skoðunaraðferð; alltaf skoðað eins. Þar með geturðu sett upp ELMERI kerfið í þínu fyrirtæki, afmarkað starfsstöðvar, metið ástandið, gert úrbætur, eflt forvarnir, lækkað falinn kostnað í fyrirtækinu.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Kristján Kristjánsson.

Staðsetning: Í viðkomandi fyrirtæki.

Tími: Eftir pöntun.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 180.000 kr. á námskeið.

Verð til aðila IÐUNNAR: 60.000 kr.

LOFTRÆSIMENN OG BLIKKSMIÐIR

Stillingar loftræsikerfaAð námskeiði loknu muntu verða fær um að gera þær mælingar á virkni kerfis sem eru nauðsynlegur grunnur undir stillingu þess, stilla loftræsikerfi samkvæmt forskrift og færa mælingar og stillingar inn í stilliskýrslu sem verður hluti af handbók kerfis.

Innihald námskeiðsins

• Aðferðir við loftmagnsstillingar.

• Örlítil stærðfræði.

• Hugtök yfir stilliaðgerðir.

• Grunnatriði mælinga:

• Hitamælingar.

• Rakamælingar.

• Þrýstimælingar.

• Lofthraðamælingar.

• Beinar loftmagnsmælingar.

• Símælingar.

• Mælingar á loftgæðum.

• Stilliskýrslan.

• Hraðamælingar í stokkum.

• Hraðamælingar í inn- og útblásturstækjum.

• Afstæðar mælingar.

• Mælingar með trekt.

• Mælingar útblásturstækis samkvæmt leiðbeiningum.

• Lekamæling.

• Loftmagnsstillingar.

• Formúlur og útreikningar.

• Örlítið um handbækur.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Karl Hákon Karlsson, byggingatæknifræðingur.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar sex hafa skráð sig.

Lengd: 32 kennslustundir.

Fullt verð: 180.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 60.000 kr.

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

Page 53: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

51

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

STARFSMENN Í MÁLMIÐNAÐARFYRIRTÆKJUM

OPIN SMIÐJA Suðusmiðja - TIG-suðaNemendur afla sér færni í að rafsjóða með Tig- suðu samkvæmt suðuferilslýsingum sem byggjast á kennsluefni um Tig- suðu sem byggt er á reglum EWF. Miðað er við að fagbókleg kennsla nemi að lágmarki 13 klukkustundir af 80 klukkustunda heildarnámstíma námsins. Skipting námstímans og samþætting við verklegar æfingar er skipulagt af leiðbeinanda. Allt námsefni og æfingar eru eftir bókinni Pinnasuða frá IÐUNNI fræðslusetur.

Sá sem lokið hefur lokið námi samkvæmt Námslýsingar fyrir opna smiðju – Tig- suða í tilraunakennslu. Er fær um að sjóða kverksuður og stúfsuður í plötur og rör. Hefur þekkingu sem nauðsynleg er til að vinna sjálfstætt eftir suðuferilslýsingu með Tig- suðu í flestum suðustöðum í kverk og plötu. Einnig öðlast hann nægilega færni, leikni og öryggi í vinnubrögðum til að hann sé gjaldgengur á vinnumarkaði sem Tig- suðumaður til almennra starfa. Hann veit hvar Tig- suða er einkum notuð í iðnaði, þekkir kosti hennar og takmarkanir, þekkir stöðlun og flokkun Tig- víra helstu gerðir, notkunarsvið og meðhöndlun og hefur þekkingu á grunnatriðum rafmagnsfræðinnar og hvernig rafmagn er notað við ljósbogasuðu, vinnubrögð við skoðun og prófun á suðum. Einnig hefur hann tileinkað sér meginatriði heilsuverndar og öryggismála og þekkir örugg vinnubrögð á verkstæði sem og á byggingarstað eða vinnusvæði undir berum himni.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur og IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar tíu hafa skráð sig.

Lengd: 120 kennslustundir.

Verð: 20.000 kr.

STARFSMENN Í MÁLMIÐNAÐARFYRIRTÆKJUM

OPIN SMIÐJA Suðusmiðja - PinnasuðaHér afla nemendur sér færni í að rafsjóða með pinna samkvæmt suðuferilslýsingum sem byggjast á kennsluefni um pinnasuðu sem byggt er á reglum EWF. Miðað er við að fagbókleg kennsla nemi að lágmarki 13 klukkustundir af 80 klukkustunda heildarnámstíma námsins. Skipting námstímans og samþætting við verklegar æfingar er skipulagt af leiðbeinanda. Allt námsefni og æfingar eru eftir bókinni Pinnasuða frá IÐUNNI fræðslusetur.

Sá sem lokið hefur lokið námi samkvæmt Námslýsingar fyrir opna smiðju – Pinnasuða í tilraunakennslu er fær um að sjóða allar suður í kverksuðu og plötusuðu samkvæmt verklýsingum sem eru vistaðar í verkdagbók námsmanns. Hann hefur þekkingu sem nauðsynleg er til að vinna sjálfstætt eftir suðuferilslýsingu með pinnasuðu í flestum suðustöðum í kverk og plötu. Einnig öðlast hann nægilega færni, leikni og öryggi í vinnubrögðum til að hann sé gjaldgengur á vinnumarkaði sem pinnasuðumaður til almennra starfa. Hann veit hvar pinnasuða er einkum notuð í iðnaði, þekkir kosti hennar og takmarkanir og þekkir stöðlun og flokkun pinnasuðuvíra helstu gerðir, notkun-arsvið og meðhöndlun. Einnig hefur hann þekkingu á grunn-atriðum rafmagnsfræðinnar og hvernig rafmagn er notað við ljósbogasuðu , vinnubrögð við skoðun og prófun á suðum og hefur tileinkað sér meginatriði heilsuverndar og öryggismála, þekkir örugg vinnubrögð á verkstæði sem og á byggingarstað eða vinnusvæði undir berum himni.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur og IWE.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar tíu hafa skráð sig.

Lengd: 120 kennslustundir.

Verð: 20.000 kr.

Page 54: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

52

OPIN SMIÐJA Kerrusmíði (málmsmíði)Inntak námskeiðsins er miðað við að viðkomandi einstaklingar geti smíðað kerrur og fylgt öllum reglugerðum þar um.

Að loknu námskeiðinu þekkir þú öryggi á vinnustað í málmiðnaði, mælitæki og öll helstu vélar og tæki í málmiðnaði og getur notað handverkfæri á réttan hátt. Einnig verður farið í spónlausa vinnu, spóntöku, málmskurðaraðferðir, helstu málmsuðuaðferðir, skrúfur, bolta og draghnoð og reglur um kerrur og búnað þeirra. Með þessa þekkingu að vopni muntu geta smíðað kerru.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennarar: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur, IWE Kristján Kristjánsson, vélfræðingur og iðnaðartæknifræðingur.

Staðsetning: Auglýst síðar. Sjá heimasíðu.

Tími: Verður haldið þegar tíu hafa skráð sig.

Lengd: 120 kennslustundir.

Fullt verð: 150.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 20.000 kr

BLIKKSMIÐIR - MÁLMTÆKNIMENN - VÉLSTJÓRAR - HÖNNUÐIR

Uppbygging loftræsikerfaAð loknu námskeiðinu þekkir þú alla hluta loftræsikerfa frá inntaksrist til frákastsristar, að undanskildum stjórntækjum og stjórnkerfi og tengslin milli kerfishluta og samvirkni þeirra. Þar með geturðu lesið kerfismyndir loftræsikerfa, breytt þeim og leiðrétt ásamt því að skissa upp kerfi og rökstyðja val á einstökum kerfishlutum í ljósi afkasta, hagkvæmni og rekstraröryggis.

Námsmat: Símat og 80% mæting.

Kennari: Sigurgeir Þórarinsson, véltæknifr.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar sex hafa skráð sig.

Lengd: 27 kennslustundir.

Fullt verð: 150.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 45.000 kr.

VÉLSTJÓRAR - MÁLMTÆKNIMENN

Óskaðlegar prófanir NDT. Hljóðbylgja „level I“Inntak námskeiðsins er miðað við undirbúning til hæfis vottunar samkvæmt ASTM E797:1

Námskeiðið er í samvinnu við TALON NDT LIMITED í Abberdeen Skotlandi. Að loknu námskeiðinu þekkir þú staðalinn ASTM E797:1 og þá eðlisfræði sem hljóðbylgjumælingar byggja á. Einnig muntu geta stillt hljóðbylgjumæli miðað við það efni sem mæla á og þykktarmælt málma, ásamt því að geta sagt fyrir um hvort stykkið sem mælt er standist mál, sé of tært eða hvort tvískinnungur sé í því.

Námsmat: 80% mæting. símat og þrískipt próf: Almennur hluti, sérhæfður hluti og verklegt. Til að standast þarf 80% meðaltal og ekki má vera undir 70% í hverjum hluta fyrir sig.

Kennarar: Gústaf Adólf Hjaltason, véltæknifræðingur, IWE Kristján Kristjánsson, vélfræðingur og iðnaðartæknifræðingur. Ian R. Judge LEVEL III.

Staðsetning: Gylfaflöt 19, 112 Reykjavík.

Tími: Verður haldið þegar tíu hafa skráð sig.

Lengd: 120 kennslustundir.

Fullt verð: 250.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 200.000 kr.

SKRÁÐU ÞIG Á WWW.IDAN.IS

MÁLM- OG VÉLTÆKNISVIÐ

Page 55: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

53

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN AÐRIR ÞJÁLFAÐIR NOTENDUR INVENTOR

Inventor 2014 „súper módel“ (Skeleton Construction)Súpermódel einkennast af því að passa fullkomlega saman. Það kemur hönnun þín líka til með að gera þegar þú ert búinn með námskeiðið. Á námskeiðinu lærir þú að vinna með „skynsöm módel“ (Intelligent Models) bæði hvað varðar „geómetríu og parameter“. Einblínt er á að módelið á að passa 100%. Námskeiðið er fyrir alla sem vinna með Inventor – óháð því hvað verið er að hanna – því súper módel er hægt að nota á öllum stigum. Allir sem hafa þörf fyrir að vinna með námkvæm og flókin módel hafa gagn af námskeiðinu.

Markmið: Hér kemurðu til með að vinna með módel sem hafa bæði skírskotun til málma, plasts og timburs. Einnig verður unnið með þunnplötu (Sheet Metal og Frame Generator). Þú munt læra að vinna með yfirborðsmódel, 3D sketch og Solids – allt er tengt. Frá einfaldri línu að síðasta boltagati.

Farið verður í samsetningar röra, plötuefni og grindarhönnun.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Finnur Fróðason, framkv.st., CAD ehf.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 5. og 9. apríl , 08.30 - 17.30.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 100.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 50.000 kr.

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN - AÐRIR ÞJÁLFAÐIR INVENTOR / AUTOCAD-NOTENDUR

Autodesk Revit Architecture 2013 grunnnámskeið „Essentials“Vertu fljót(ur) að ná tökum á grunninnum í Revit Architecture 2013

Á þessu námskeiði er farið í gegnum grunninn í Revit Architecture 2013. Kennt verður það sem þú þarft að vita til að komast af stað, hvernig best er að nota viðmótið, búa til grunnmyndir, bæta við innihaldi í módellið, hvernig á að málsetja og margt fleira. Þetta er grunnnámskeið fyrir byrjendur en í lokin á nemandinn að vera fær um að búa til minni hús og komið frá sér teikningum. Kynnt verður m.a. hvernig búið verður til íhlutasafn (Families).Kynnt verða „tips og tricks“ sem kennarinn með reynslu sinni hefur lært og komist að.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Áslaug Elísa Guðmundsdóttir byggingafræðingur

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 1. - 2. mars, kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 64.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 40.000 kr.

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN - AÐRIR ÞJÁLFAÐIR NOTENDUR AUTOCAD

AutoCAD 2014® Þrívídd Framhaldsnámskeið

Á námskeiðinu eru kynntar margvíslegar þrívíddaraðgerðir í AutoCAD 2012 með gegnheilum módelum og yfirborðs-módelum.

Markmiðið er að nemendur kunni að loknu námskeiði að koma þrívíddarmódeli á blað sem tvívíðri teikningu, jafnframt því að málsetja módel og þekkja kosti og galla gegnheilla módela og yfirborðsmódela. Í framhaldinu eiga nemendur að geta teiknað og málsett einfalda hluti, útbúið snyrtilegar og aðlaðandi teikningar í þrívídd og loks hagnýtt þekkingu sína í þrívíðri hönnun við aðstæður á vinnustað.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Finnur Fróðason, framvæmdastjóri, CAD ehf.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 8. - 9. og 15. - 16 mars, kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 48 kennslustundir.

Fullt verð: 140.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 70.000 kr.

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN - AÐRIR ÞJÁLFAÐIR NOTENDUR AUTOCAD

AutoCAD Electrical 2014 Essentials® (IEC Standard) GrunnurFyrir nýja notendur sem þurfa undirstöðuþjálfun í AutoCAD Electrical. Allar æfingar og hjálpargögn byggja á IEC.

Á þessu úrvalsgóða námskeiði læra nemendur að þekkja þau fjölmörgu tæki og tól sem AutoCAD Electrical býður upp á við gerð stýrikerfisteikninga og uppsetninga.

Yfirferð/skýringar á uppbyggingu forrits, viðmót, stillingar og uppsetning og stöðlun, verkefnastjórn, rafmagnsteikning, inn-setning tákna, aðferðir til breytingar/afritunar, skýrslur, listar og skrár og útlitsmyndir.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Sigurgeir Þorleifsson, rafmagnstæknifræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk. Tími: 8. - 9. apríl kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 90.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 40.000 kr.

TÖLVUSTUDD HÖNNUN

IÐAN ER ATC (AUTHORIZED TRAINING CENTER) FYRIR AUTODESK.

Page 56: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

54

AUTODESK - AUTOCAD OG INVENTOR

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN - AÐRIR ÞJÁLFAÐIR NOTENDUR AUTOCAD

AutoCAD Electrical 2014 Essentials® (IEC Standard) FramhaldFyrir nýja notendur sem þurfa undirstöðuþjálfun í AutoCAD Electrical. Allar æfingar og hjálpargögn byggja á IEC.

Á þessu úrvalsgóða námskeiði auka nemendur við þau fjölmörgu tæki og tól sem AutoCAD Electrical býður upp á við gerð stýrikerfisteikninga og uppsetninga.

Gerð raf-tákna og vistun í gagnagrunni, gerð útlits-tákna og vistun í gagnagrunni, skipulag og vistun v/eigin tákna, skipulag tenginúmera í gagnagrunni, notkun og gerð iðntölvu-tákna, einlínuteikningar og P I & D teikningar.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Sigurgeir Þorleifsson, rafmagnstæknifræðingur.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 29. - 30. apríl kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 90.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 40.000 kr.

HÖNNUÐIR - MÁLMIÐNAÐARMENN - TÆKNIMENNNÝIR NOTENDUR INVENTOR

Autodesk Inventor 2014 Essentials ® GrunnnámskeiðInventorinn er framúrskarandi forrit til þrívíðrar hönnunar á gegnheilum módelum og færslu tvívíðra teikninga í þrívíð módel.

Að loknu þessu hagnýta námskeiði eiga nemendur að þekkja undirstöðuatriði í þrívíðri, tölvustuddri hönnun og getað skissað í forritinu ásamt því að geta sett inn skýringar, efnis- og íhlutalista. Fleiri atriði verða tekin fyrir s.s. hvernig á að stýra hreyfingum samsettra hluta, leiðrétta misfellur, leggja faglegt mat á eigin verk og gera þau þannig úr garði að þau séu nothæf fyrir breiðan hóp samstarfsmanna. Einnig munu nemendur geta valið, mótað og staðsett íhluti í samsetningu og loks búið til teikningar með vörpun, sniði, hlutmyndum og ísómetríu.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Finnur Fróðason, framkv.stj. CAD ehf.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 1. - 2. og 8.- 9. febrúar, kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 48 kennslustundir.

Fullt verð: 140.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 70.000 kr.

HÖNNUÐIR - IÐNAÐARMENN - TÆKNIMENN - NÝIR NOTENDUR AUTOCAD

AutoCAD 2014 & AutoCAD LT 2014® GrunnnámskeiðÁ þessu námskeiði afla nemendur sér traustrar þekkingar á viðmóti forritsins, skipunum þess og tækni til að skapa, lagfæra og prenta tvívíð verkefni.

Að loknu námskeiðinu þekkja nemendur viðmót forritsins, skipanir þess og tækni til að skapa, lagfæra og prenta tvívíð verkefni. Auk þess læra þeir grunninn til að vinna með AutoCAD í þrívídd. Þar með geta þeir teiknað og málsett einfalda hluti og útbúið snyrtilegar og aðlaðandi teikningar ásamt því að hagnýta þekkingu sína í tvívíðri hönnun við aðstæður á vinnustað.

Námsmat: 80% mæting og símat.

Kennari: Finnur Fróðason, framkv.stj. CAD ehf.

Staðsetning: Skúlatún 2 eða hjá fyrirtækjum skv. ósk.

Tími: 15. - 16. og 22. - 23. febrúar, kl. 08.30 - 17.30.

Lengd: 48 kennslustundir.

Fullt verð: 140.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 70.000 kr.

IÐAN ER ATC (AUTHORIZED TRAINING CENTER) FYRIR AUTODESK.

KYNNTU ÞÉR FLEIRI NÁMSKEIÐ Á WWW.IDAN.IS

Page 57: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

55

Öflugt sjálfstraust “Efnismikið og vel framreitt. Góðar æfingar. Jóhann Ingi er frábær fyrirlesari.”

Sjálfstraust er undirstaða margra færniþátta, svo sem því hvernig okkur vegnar í samskiptum við aðra, hvernig við setjum markmið, tökum ákvarðanir og vinnum undir álagi. Hvað einkennir einstaklinga með gott sjálfstraust? Hvernig tengist sjálfstraust uppeldi? Geta vinnustaðir byggt upp umhverfi þar sem alið er á góðu sjálfstrausti starfsmanna? Hvernig getum við byggt upp eigið sjálfstraust og annarra? Í raun má segja að öflugt sjálfstraust sé ákveðin forvörn þar sem sterkir einstaklingar eiga auðveldara en aðrir með að taka ákvarðanir, setja mörk og verjast óæskilegum áhrifum frá umhverfinu. Markmið námskeiðsins er að kenna aðferðir til að efla sjálfstraust og ákveðni og skoðað hvað einkennir einstaklinga með hátt/lágt sjálfsmat. Fjallað er um áhrif hugarfars, viðhorfa og hugsunar á hegðun og líðan, sjálfsstjórn og sjálfsstyrkingu.

Skráningarfrestur er til 4. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Þriðjudagarnir 12., 19. og 26. febrúar. kl. 16.15 – 19.00.

Lengd: 13 kennslustundir.

Fullt verð: 26.600 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 15.960 kr.

Verktaki eða launþegi? Að reikna laun í eigin atvinnurekstri Hvað þarf að hafa í huga?

Markmið námskeiðsins er að fara yfir þá þætti sem skipta máli hjá einstaklingum sem eru verktakar. Að auki verður farið yfir kosti og galla þess að vera verktaki, ásamt því að fjalla um muninn á því að vera verktaki og vera með rekstur í einhvers konar félagaformi. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vinna í eigin rekstri eða vinna fyrir aðra sem verktakar. Námskeiðið hentar einnig þeim sem starfa við bókhald.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Ásmundur G. Vilhjálmsson, aðjúnkt í skattarétti við HÍ.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Mánudagur 14. janúar kl. 13.00-17.00.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 15.700 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 9.420 kr.

Rekstur smáfyrirtækja Einyrkjar og aðilar með smærri fyrirtæki

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja kunna skil á uppbyggingu og mismunandi rekstrarformi smáfyrirtækja, og hentar þeim sem eru nú þegar í atvinnurekstri, einyrkjum, eða þeim sem hafa hug á að stofna fyrirtæki. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist þeim ólíku þáttum er snúa að almennum rekstri. Farið er í gerð viðskiptaáætlana og hvernig sótt er um atvinnurekstrarleyfi. Fjallað er um kosti og galla ólíkra fyrirtækjaforma og farið í reglur er varða tekjur og gjöld í rekstri sem og skráningu og skil á virðisaukaskatti. Þá læra þátttakendur að afmarka rekstrarkostnað gangvart einka – og eignakostnaði og fá innsýn inn í hvaða reglur gilda um reiknað endurgjald. Þá er einnig fjallað um hvað getur talist til eigna og skulda, farið í grunnreglur reikningshalds og almennt um skyldur atvinnurekanda gagnvart launþegum og verktökum. Æskilegt er að þátttakendur hafi með sér fartölvu.

Skráningarfrestur er til 21. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Ásmundur G. Vilhjálmsson aðjúnkt í skattarétti við HÍ og Dr. Gunnar Óskarsson, aðjúnkt við Viðskiptadeild HÍ.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Kennt í tveimur lotum dagana 28. febrúar – 2. mars og 14. – 16. mars. Á fimmtudögum kl. 13.00-17.00, á föstudögum kl. 8.15 – 17.00 og á laugardögum kl. 09.00 – 12.15.

Lengd: 45 kennslustundir.

Fullt verð: 85.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 51.000 kr.

NÁMSKEIÐ FYRIR ALLANámskeiðin eru haldin í Endurmenntun Háskóla Íslands og eru opin öllum félagsmönnum. Vinsamlegast athugið að á sumum námskeiðum er fjöldi þátttakenda takmarkaður og því þarf að skrá sig tímanlega.

Page 58: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

56

Grunnatriði í verkefnastjórnun Komdu verkefninu í höfn

Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir við stjórnun mismunandi verkefna úr ýmsum geirum atvinnulífsins. Markmið námskeiðsins er að skapa skilning á þessari aðferðarfræði sem vinnulagi. Námskeiðið veitir þátttakendum heildarsýn á eðli verkefna og hvaða verkfærum má beita sem hægt er að nýta strax. Kennsla er með fyrirlestrum og hópvinnu. Reikna má með heimavinnu á milli kennsludaga.

Skráningarfrestur er til 29. janúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Sveinn Áki Sverrisson, véltæknifr. og MPM (Master of Project Mgmnt).

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Miðvikudagarnir 6., 13. og 20. febrúar, kl. 08.30 – 12.30.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 40.200 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 24.120 kr.

Vinnugleði – mín vinna, mitt viðhorf ”Fróðlegt og gott, fékk mig til umhugsunar og til að velta mínum málum fyrir mér”

Þetta er námskeið fyrir alla þá sem er annt um eigin vellíðan og velgengni í lífi og starfi eða vilja bæta sig, blómstra og auka vinnugleði. Þó svo að vinnuveitanda og stjórnendum beri að stuðla að vellíðan starfsfólks á vinnustað er líðan í starfi líka á ábyrgð okkar sjálfra. Jákvæð viðhorf og jákvæð hegðun þar sem við nýtum styrkleika okkar, finnum að við gerum gagn, temjum okkur bjartsýni, höfum áhrif á aðstæður okkar og vinnum í góðu samstarfi eru þættir sem skipta miklu máli fyrir okkur sjálf, árangur í starfi og starfsandann. Markmið námskeiðsins er að auka innsýn í þætti sem við sjálf getum haft áhrif á til að upplifa vinnugleði og njóta okkar í starfi. Á námskeiðinu eru unnin létt og hagnýt verkefni um sjálfsskoðun og markmið sem tengjast efninu.

Skráningarfrestur er til 25. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Steinunn Stefánsdóttir. Steinunn er með BA í sálfræði, MSc í viðskiptasálfræði og MSc í streitufræðum.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Fimmtudagur 7. mars. kl. 8.30 – 12.30.

Lengd: 6 kennslustundir.

Fullt verð: 19.200 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.520 kr.

Markvissari tölvupóstsamskipti Náðu betri tökum á póstflóðinu

Námskeiðið er ætlað öllum er nota tölvupóstinn umtalsvert við að senda og taka við upplýsingum og fyrirmælum. Það gildir einu hvaða hugbúnað þátttakendur eru með þar sem áhersla er lögð á markvissa meðhöndlun á tölvupóstinum og leiðir til að afgreiða 20-200 skilaboð á hverjum degi. Þátttakendur fá nýja sýn á notkun tölvupóstsforrita og læra hagnýtar leiðir til að skrifa betri pósta og vera fljótari að afgreiða alla pósta sem koma á hverjum degi. Markmiðið er tómt innhólf í lok dags.

Skráningarfrestur er til 13. febrúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Gunnar Jónatansson, framkvæmdastjóri hjá IBT á Íslandi.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Fimmtud. 21. febrúar kl. 9.00-12.00.

Lengd: 5 kennslustundir.

Fullt verð: 14.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 8.400 kr.

Mannauðsstjórnun Lærðu að nýta þekkingu og krafta starfsmanna enn betur

Á þessu námskeiði er farið yfir ferli mannauðsstjórnunar og hvernig það tengist rekstri fyrirtækja, s.s. skipulagi, vali starfsmanna, hvatningu, umbun, umsjón með breytingum og starfsþróun. Markmið námskeiðsins er að undirbúa og auka skilning einstaklinga á þeim málaflokkum sem heyra undir mannauðsstjóra.

Skráningarfrestur er til 25. janúar 2013.

Námsmat: 100% mæting.

Kennarar: Svala Guðmundsdóttir Ph.D., lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands ásamt Páli R. M. Kristjánssyni Hdl. LL.M, lögfræðing hjá Félagi atvinnurekenda.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Föstudagar og laugardagar frá 1. – 16. febrúar. Kennt er á föstudögum kl. 9.00-16.00 og á laugardögum kl. 9.00-12.00.

Lengd: 15 kennslustundir.

Fullt verð: 85.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 51.000 kr.

NÁMSKEIÐ FYRIR ALLA

Page 59: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

57

TÖLVUNÁMSKEIÐ EXCEL, WORD OG INTERNETIÐALLIR

Tölvur ekkert mál - grunnnámskeiðMarkmið þessa stutta en hnitmiðaða námskeiðs er að byggja upp traustan grunn fyrir áframhaldandi tölvunotkun. Þetta er kjörið tækifæri til að stíga fyrsta skrefið og læra á skipulagðan hátt hvernig Windows stýrikerfið vinnur og hvernig meðhöndla, skipuleggja og geyma skal gögn sín á réttan hátt.. Fámennur hópur gerir þér kleift að vera í góðu sambandi við kennarann sem hefur áralanga reynslu af kennslu byrjenda.

Námsmat: 100% mæting, símat og verkefnavinna.

Kennari: Sigurður Arnarsson, kerfishönnuður.

Staðsetning: IÐAN fræslusetur Gylfaflöt 19, Grafarvogi.

Tími: Þriðjudagaur 5., fimmtudagur 7. og þriðjudagur 12. febrúar.

kl. 17.00 – 21.00.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 23.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.500 kr.

ALLIR

Ritvinnsla í WordWord er svo miklu meira en bara innsláttur

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa einhvern grunn í tölvunotkun en vilja bæta við sig þekkingu, leikni og færni í ritvinnslu. Word er margþætt forrit og er markmið þessa námskeiðs að kenna á hina margvíslegu möguleika við að útfæra texta, myndir, töflur og stílsnið. Þú getur sparað þér mikinn tíma með því að kunna vel á þetta.

Námsmat: 100% mæting, símat og verkefnavinna.

Kennari: Sigurður Arnarsson, kerfishönnuður.

Staðsetning: IÐAN fræðslusetur Gylfaflöt 19, Grafarvogi.

Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar frá 2. – 11. apríl., kl. 17.00 – 21.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 15.000 kr.

ALLIR

Töflureiknirinn ExcelTöflureiknir, myndrit og gagnagrunnur

Markmið námskeiðsins er að kenna þér að nýta kosti töflureiknisins Excel við framsetningu á tölum jafnt sem texta. Með því að kunna að vinna með gögnin, raða þeim og setja upp einfaldar formúlur geturðu sparað þér mikinn tíma, unnið skipulega og sett þau fram á myndrænan hátt. Yfirsýnin verður miklu skýrari og allar breytingar á gögnum mun auðveldari. M.a. er kynnt hvernig hægt er að útbúa einfalt heimilsbókhald á örskotsstund. Excel er framúrskarandi forrit bæði fyrir heimilið og vinnuna.

Námsmat: 100% mæting, símat og verkefnavinna.

Kennari: Sigurður Arnarsson, kerfishönnuður.

Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Gylfaflöt 19, Grafarvogi.

Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar frá 5. – 14. mars, kl. 17.00 – 21.00.

Lengd: 24 kennslustundir.

Fullt verð: 30.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 15.000 kr.

ALLIR

InternetiðHeill heimur af upplýsingum

Á námskeiðinu þjálfastu í að nýta þér kosti Internetsins, s.s. öryggi og vírusvarnir, útvarp, sjónvarp og aðra margmiðlun. Þú þjálfast í að leita skipulega með leitarvélum, flokka og meta upplýsingar, lærir að versla á Netinu, og sinna bankamálum. Einnig er farið í notkun tölvupósts m.a í flokkun, síun og hvernig er hægt að stofna frían netpóst. Markmið námskeiðsins er að auðvelda þátttakendum að nýta sér möguleika Internetsins sem eru í dag, afar fjölbreytilegir.

Námsmat: 100% mæting, símat og verkefnavinna.

Kennari: Sigurður Arnarsson, kerfishönnuður.

Staðsetning: IÐAN fræðslusetur, Gylfaflöt 19, Grafarvogi.

Tími: Þriðjudagur 30. apríl, fimmtudagur 2. og þriðjud. 7. maí., kl. 17.00 – 21.00.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 23.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 11.500 kr.

Page 60: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

58

TÖLVUNÁMSKEIÐ

ÞEIR SEM HAFA GRUNNÞEKKINGU Á FORRITIÐ

Excel – fjármál og reksturEnn frekari vinnsla gagna

Námskeiðið byrjar á upprifjun á öllum helstu grunnatriðum er varðar innslátt, afritun og útlit. Flýtileiðir eru kynntar og fleira sem hjálpar fólki að vinna með Excel. Farið er yfir allar helstu aðgerðir í Excel sem nýtast við vinnslu gagna og nokkur innbyggð föll skoðuð. Markmið námskeiðsins er að þekkja betur hvaða möguleika Excel býður upp á. Farið er í upprifjun á grunnatriðum er varðar innslátt, afritun og útlit. Skoðuð eru innbyggð föll, t.d. fjármálaföll, textaföll, leitarföll (lookup) og farið er í gerð einfalds rekstrarlíkans. Kennt að beita aðgerðunum Sort (röðun gagna), Filter (síun gagna), Goal-Seek (nálgun), Scenario (notkun sviðsetninga) og Consolidate (samantekt gagna). Einnig er farið í grunnatriði í gerð myndrita, stutta kynningu á snúningstöflu (PivotTable) og gerð einfaldra macro (fjölva) kynnt. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2010 á námskeiðið.

Skráningarfrestur er til 6. mars.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Oddur Sigurðsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka.

Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7.

Tími: Fimmtudagur 14., þriðjudagur 19. og fimmtudagur 21. mars kl. 8.30-12.30.

Lengd: 18 kennslustundir.

Fullt verð: 32.900 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 16.450 kr.

BYGGINGAMENN

SketchUpTeikniforrit fyrir alla – ókeypis á Netinu.

Þetta námskeið er ætlað öllum sem vilja rissa upp teikningar og setja upp í þrívídd. Teikniforritið Google SketchUp er ótrúlega einfalt í notkun og allir geta nálgast það ókeypis á Netinu. Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum undir-stöðuatriði í notkun forritsins, helstu skipanir og aðgerðir.

Á námskeiðinu eru unnin 3 einföld verkefni sem gefa góða mynd af notkun forritsins.

Námsmat: 100% mæting.

Kennari: Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt.

Staðsetning: Skúlatún 2, Reykjavík.

Tími: Fimmtudagur 7. mars, kl. 16.00 – 19.00 og fimmtud. 14. mars, kl. 16.00 – 19.00.

Lengd: 10 kennslustundir.

Fullt verð: 20.000 kr.

Verð til aðila IÐUNNAR: 4.000 kr.

Skráning er hjá IÐUNNI á www.idan.is eða í síma 590 6400

Vefnámskeið Tölvunáms eru ítarleg, vönduð og gagnvirk námskeið sem fara alfarið fram á kennsluvefnum Tölvunám.is. Vefurinn nýtist bæði sem sjálfstæð tölvunámskeið og sem uppfletti- og hjálpartæki. Markmið kennsluvefsins er að notendur geti bjargað sér sjálfir og lært á hugbúnaðinn á eigin spýtur.

Fyrir 12.000 kr. fá félagsmenn IÐUNNAR aðgang að þessum sex námskeiðum í eitt ár. Ekki er hægt að kaupa einstaka námskeið.

- þar sem þú ræður ferðinni!Tölvunámskeið

Office 2010Word - Excel - OutlookPowerPoint - Access

SKRÁÐU ÞIG Á WWW.IDAN.IS

IÐAN bíður nú félagsmönnum sínum að kaupa nám-skeiðspakka hjá tölvunám.is sem auðveldar fólki að fara á sínum hraða í gegnum þau verkefni sem í boði eru.

Page 61: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

Kynntu þér þjónustu Sameinaða lífeyrissjóðsins á lifeyrir.is eða hringdu í síma 510 5000.

Séreignarsparnaður tryggir þér mótframlag frá vinnuveitanda þínum. Vegna mótframlagsins og hagstæðrar skattlagningar stenst enginn sparnaður samanburð við séreignarsparnað.

Taktu ákvörðun um að leggja fyrir í séreignarsparnað annars missir þú í rauninni af umsömdum kjarabótum.

ekki missa af kjarabóT

Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000 • lifeyrir.is

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

3659

7

Page 62: Námsvísir Iðunnar - vor 2013

Skúlatún 2 - 105 Reykjavík - Sími 590 6400 - Fax 590 [email protected] - www.idan.is