skátablaðið - komdu í skátana!
DESCRIPTION
Fylgirit Fréttatímans 29. ágúst 2014.TRANSCRIPT
Skátastarf er skemmtilegt ævintýri fyrir alla
SKÁTABLAÐIÐ
Meðal efnis:
Vinátta, gleði og sjálfsöryggi Stigvaxandi áskorun og ævintýriGeggjað gaman að ákveða sjálfurLeiðtogar í eigin lífi
Vinátta, gleði og sjálfsöryggi Skátar eru könnuðir
Beina þýðingin á Scout varð ofan á þegar
hreyfingin var að festa rætur á Íslandi, en við
hefðum allt eins getað heitið könnuðir.
Hugmyndin er sú sama, að skátar séu ávallt
viðbúnir að nema nýjar lendur og kanna ný
svið í hópi jafnaldra. Þátttaka í skátastarfi er
leiðangur okkar í átt að verða sjálfstæðir, virkir
og ábyrgir einstaklingar.
Vönduð dagskrá
Íslenska skátahreyfingin hefur á liðnum árum
farið í gegnum gefandi sjálfskönnun og er að
byggja upp starfsgrunn sinn, styrkja skáta-
flokkana sem vettvang fyrir sameiginlega
ákvörðunartöku jafnaldra, auk þess sem
leiðtogaþjálfunin hefur verið efld og full-
orðnum einstaklingum boðið að taka virkari
þátt í skátastarfi. Skátarnir eru alþjóðleg
hreyfing og við njótum góðs af erlendum
fyrirmyndum sem við höfum aðlagað íslenskum
aðstæðum. Vandaðar dagskrárbækur og
handbækur fyrir skátaforingjana hafa verið
gefnar út og unnið er að innleiðingu á nýjum
áherslum í starfi skátafélaganna um allt land.
Breytingarnar hafa þegar skilað sér í betra
skátastarfi.
Hvað gera skátarnir?
Virkni og þátttaka eru galdurinn í skátastarfi.
Það eru skátarnir sjálfir sem ákveða hvað þeir
vilja fást við, hvort þeir fari í útilegur og
ferðalög, syngi eða spili tónlist, klífi fjöll, leiki
leikrit eða sigli á kajökum, tálgi, dansi eða
byggi snjóhús. Aðalatriðið er að þeir skipu-
leggja sitt eigið starf sem byggir á gildum
skátanna.
Skátarnir læra að sýna sjálfum sér, öðrum og
umhverfinu virðingu. Þeir fá þjálfun í að taka
tillit til skoðana og tilfinninga annarra, auk þess
að vera skapandi og sjálfstæðir í hugsun, orði
og verki. Þeir eru hvattir til að gera sitt besta og
hræðast ekki að gera mistök, sem og að lifa
heilbrigðu lífi og vera traustir félagar og vinir.
Losna við feimnina
Þegar skátarnir sjálfir eru spurðir um hvað þeir
geri í skátunum eru svörin fjölbreytt en flestir
nefna vináttu, „gera alls konar skemmtilegt
saman“, spennandi útilegur og skátamót hér
heima og erlendis. Fyrir utan þann mikla
ávinning að eignast góða vini nefna sumir að
þeir hafi náð að losa sig við feimnina, hvort
sem það var á stórri kvöldvöku eða í umræðu í
skátaflokknum.
Skátar eru könnuðir
2 | Skátablaðið 2014
Við stöndum með skátunum
Ritstjórn: Gunnlaugur Bragi Björnsson, Hermann Sigurðsson (ábm.),
Ingibjörg Hannesdóttir, Jón Halldór Jónasson og Nanna Guðmundsdóttir.
Ljósmyndir: Sigurður Ól. Sigurðsson og úr myndasafni Bandalags ís-
lenskra skáta Hönnun: Kaktus / Birgir Ómarsson
Útgefandi: Bandalag íslenskra skáta
Hraunbæ 123, 110 Reykjavík sími 550 9800
Netfang: [email protected]
Vefur: skatarnir.is
Skátablaðið - Komdu í skátana!
- Fylgir Fréttatímanum 29. ágúst 2014
Komdu í skátana! Skráning á skatarnir.is
Stigvaxandi áskorun og ævintýri
Drekaskátar 7-9 ára
Ævintýri, leikir og verkefni gegna mikilvægu
hlutverki í skátastarfinu og skátarnir tileinka sér
hjálpsemi og glaðværð, sjálfstæði og tillitssemi,
ábyrgð og að bera virðingu fyrir náttúrunni.
Drekaskátar hittast að jafnaði vikulega, fara í
leiki og læra nýja hluti innan- og utandyra.
Auk þess fara þeir í dagsferðir og styttri
leiðangra í þéttbýlinu og nágrenni þess. Á
vorin hefur skapast hefð að halda landsmót
drekaskáta á Úlfljótsvatni.
Fálkaskátar 10-12 ára
Fálkaskátar starfa í 5-7 manna flokkum
jafnaldra sem hittast vikulega. Þeir velja sér
spennandi verkefni að fást við og njóta
leiðsagnar fullorðinna foringja.
Nokkrir flokkar mynda skátasveit sem vinnur
saman að margskonar spennandi verkefnum
og fer saman í ferðir og útilegur, jafnt sumar
sem vetur. Verkefnin og ferðirnar eru leið
skáta til að auka þekkingu og færni og búa
skátana undir lífið. Við viljum sjá virka, ábyrga
og sjálfstæða einstaklinga sem bera virðingu
fyrir sjálfum sér, landi sínu og náttúru.
Dróttskátar 13-15 ára
Í dróttskátastarfi eru vinaböndin treyst enn
frekar og þá hittast 5-7 skátar einu sinni til
tvisvar í viku. Hópurinn vinnur verkefni að eigin
vali, eitthvað sem skátunum finnst spennandi
- flóknara er það ekki! Þátttaka í ákvörðunum
og undirbúningi er meiri en hjá þeim yngri. Í
félagsskap jafnaldra fara þeir saman í ferðir og
útilegur. Vetraráskorun, Hrollur, víkinganám-
skeið og ýmsar helgarferðir og námskeið
standa dróttskátum til boða.
Rekkaskátar 16-18 ára
Rekki merkir „maður” í Hávamálum. Það þykir
mjög táknrænt fyrir þennan aldur því þegar
einstaklingur verður 18 ára er hann orðinn
lögráða og ber ábyrgð á eigin gjörðum. Margir
rekkarskátar vinna að Forsetamerkinu í sínu
starfi. Þeir stunda útilíf jafnt á láglendi sem
hálendi allan ársins hring og nýta sér fjöl-
breyttar leiðir og farartæki. Alþjóðastarfið
kemur hér inn í auknum mæli og Rekkaskátum
bjóðast margvísleg tækifæri á þeim vettvangi.
Róverskátar 19-22 ára
Starfsvettvangur róverskáta er heimurinn allur!
Ferð þeirra ræðst nú alfarið af þeirra eigin
áhuga, hvort sem það er foringjastarf, starf
með björgunarsveit, sjálfboðaliðastarf í Afríku
eða annað. Leiðtogaþjálfun skátahreyfingar-
innar skilar sér í frumkvæði, sjálfstæði og
vináttu í raun.
23+
Fullorðnir skátar taka margir hverjir að sér að
leiða starf sinna skátafélaga, eru sveitarfor-
ingjar, þátttakendur í björgunarsveitum eða
sinna ýmsum ábyrgðarstörfum innan skáta-
hreyfingarinnar. Mjög margir mæta þegar
mikið stendur til og eru öflugir bakhjarlar á
stórmótum eða viðburðum sinna skátafélaga.
Þá hefur það færst í vöxt að foreldrar skáta
byrji í skátastarfi án þess að hafa verið skátar á
unga aldri. Skátahreyfingunni er mikill fengur í
virkum foreldrum og þar hefur oft sannast hið
fornkveðna að glöggt er gests augað.
Við viljum sjá virka, ábyrga og sjálfstæða einstaklinga
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing og er skátastarfið aldursskipt til að mæta mismunandi þörfum. Útfærslur, siðir og venjur eru að einhverju breytilegar milli skátafélaga, en markmiðin eru þau sömu.
Skátablaðið 2014 | 3
4 | Skátablaðið 2014
ADVEL lögmenn
Suðurlandsbraut 18, Reykjavík
Aðalverkstæðið
Malarhöfða 2, Reykjavík
Arev verðbréfafyrirtæki
Bankastræti 5, Reykjavík
Ásbjörn Ólafsson
Köllunarklettsvegi 6, Reykjavík
Ernst & Young
Borgartúni 30, Reykjavík
GB Tjónaviðgerðir
Draghálsi 6-8, Reykjavík
Happdrætti Háskóla Íslands
Tjarnargötu 4, Reykjavík
JP Lögmenn Höfðatorgi
Katrínartúni 2, Reykjavík
Kolibri
Laugavegi 26, Reykjavík
lindesign.is
Laugavegi 176, Reykjavík
Lögmenn Bankastræti
Bárugötu 4, Reykjavík
Málarameistarafélagið
Borgartúni 35, Reykjavík
Scanmar á Íslandi
Grandagarði 1a, Reykjavík
Sjónlag
Álfheimum 74, Reykjavík
Vélaverkstæðið Kistufell
Tangarhöfða 13, Reykjavík
Þín verslun
Ögurverk
Skipholti 29b, Reykjavík
Seltjarnarnesbær, Austurströnd 2
Átak bílaleiga
Smiðjuvegi 1, Kópavogur
Init
Smáratorgi 3, Kópavogur
MótX
Drangakór 4, Kópavogur
Garðabær, Garðatorgi 7
Góa-Linda sælgætisgerð
Garðahrauni 2, Garðabær
Byggingafélagið Sandfell
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfjörður
Hagstál
Brekkutröð 1, Hafnarfjörður
Hvalur
Reykjavíkurvegi 48, Hafnarfjörður
Ican-Beykireykt þorsklifur
Fornubúðum 5, Hafnarfjörður
Verkalýðsfélagið Hlíf
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfjörður
Nettó-Samkaup
Krossmóa 4, Reykjanesbær
Reykjanesbær, Tjarnargötu 12
Mosfellsbær, Þverholti 2
Verslunin Einar Ólafsson
Skagabraut 9-11, Akranes
Ensku húsin við Langá, Borgarnes
Bílasmiðja S.G.B.
Seljalandsvegi 86, Ísafjörður
Steinull
Skarðseyri 5, Sauðárkrókur
Akureyrarkirkja
Eyrarlandsvegi, Akureyri
Jafnréttisstofa
Borgum við Norðurslóð, Akureyri
Kælismiðjan Frost
Fjölnisgötu 4b, Akureyri
Samherji
Glerárgötu 30, Akureyri
Skrifstofuþjónusta Austurlands
Fagradalsbraut 11, Egilsstaðir
AFL - Starfsgreinafélag
Búðareyri 1, Reyðarfjörður
Sveitarfélagið Árborg
Austurvegi 2, Selfoss
Hótel Örk
Breiðumörk 1c, Hveragerði
Stracta Hotels
Gaddstaðaflötum 4, Hella
Aðra styrktaraðila er hægt að finna á vefnum skatamal.is/styrktaradilar
Við stöndum með skátunum
Skátablaðið 2014 | 5
Skátastarfið er sannkallað ævintýri, leikir og
spennandi verkefni í hópi jafnaldra. Þessi
sannindi verða sjaldnar skýrari en í starfi
drekaskáta, eins og skátastarf 7 – 9 ára barna
heitir. Í gegnum ævintýri, leiki og margvísleg
verkefni læra skátarnir hjálpsemi og glaðværð,
sjálfstæði og tillitssemi, ábyrgð og að bera
virðingu fyrir náttúrunni.
Drekaskátar hittast að jafnaði vikulega á
skátafundum hvort heldur innan eða utandyra.
Einnig fara drekaskátar í dagsferðir og styttri
leiðangra í þéttbýlinu og nágrenni þess.
Í ferðunum kynnast þeir umhverfi sínu og
stækka sjóndeildarhringinn. Á hverju vori er
haldið Drekamót á Úlfljótsvatni og er það mikið
ævintýri fyrir þátttakendur sem margir eru að
fara í sína fyrstu skátaútilegu. Mjög vel er
haldið utan um skátana þannig að enginn fái
heimþrá að vera heila nótt að heiman.
Verkefnin sem drekaskátar taka sér fyrir hendur
yfir veturinn geta verið af margvíslegum toga.
Drekaskátar í Mosverjum ákváðu að nota hluta
síðasta vetrar í að skapa Drekaveröld og skoðuðu
samfélagið og lýðræði með augum dreka.
Dagbjört Brynjarsdóttir sveitarforingi í Mos-
verjum segir að byrjað hafi verið með umræðu
um hvað þurfi til í samfélagi til þess að það virki
og þegnar landsins séu sáttir. Fundið var nafn á
landið, tekin afstaða til hvort vera ætti lýðræði
eða einræði, hvers konar þjóðhöfðingja þau
vildu hafa og margt fleira.
Einnig þurfti að
búa til fána og
ákveða þjóðarrétti.
Landakort var gert
og einnig borgar-
skipulag með
götukorti og öllum
þeim stofnunum
sem samfélagið
þarf á að halda svo
sem skóla,
flugvelli, konungs-
eða forsetahöll,
spítala, lögreglu-
stöð og öllu því
sem drekaskátarnir
vildu finna í sinni
höfuðborg.
„Það skemmtilegasta við þetta verkefni
var að sjálfsögðu að fá sýn drekaskátanna
á samfélagið,“ segir Dagbjört og þar sem
það heppnaðist einstaklega vel var haldin
þjóðhátíð með foreldrum.
Í samfélagi drekannaSkátarnir læra hjálpsemi og glaðværð auk annarra hluta
6 | Skátablaðið 2014
Líf og fjör á Landsmóti í sumar
Skátablaðið 2014 | 7
Geggjað gaman að ákveða sjálfur
Skátarnir læra af reynslunni
Hrafnhildur Sigurðardóttir sveitarforingi segir að skátarnir taki þátt í skipulagningu
og ákvarðanatökum. „Þau skipuleggja sjálf ákveðna fundi og takast á við verkefni
sem þau velja sér. Svo má auðvitað gera mistök, því það er alltaf gott að læra af
reynslunni“. Hrafnhildur segir fullorðna fólkið í því hlutverki að grípa frekar inn í ef
eitthvað gengur illa, en stjórni ekki með harðri hendi. Þannig fái skátarnir tækifæri
til að prófa nýja hluti sjálf og læra af reynslunni.
„Það er geggjað gaman að fá að ákveða sjálfur þó það sé stundum smá erfitt,“
segja stelpurnar og bæta við að þær vinni vel saman í skátaflokknum. „Það eru
fleiri sammála þegar maður er í litlum hópi, eins og flokknum – og við erum öll
svona frekar líkir persónleikar – svona svolítið klikkuð,“ segir ein í flokknum og allar
hinar hlæja og samsinna henni.
Hrafnhildur segir engan vilja missa af fundum því skátunum finnist gaman að hafa
bein áhrif á starfið eftir eigin áhugasviði. Það hvetji þau líka til að mæta vel ef verið
er að vinna að einhverju sem þau sjálf hafa verið með í að skipuleggja.
„Við hlæjum mjög - mjög mikið og erum rosalega miklir vinir“, segja hressar stelpur í skátafélaginu Vífli í Garðabæ. Þær eru saman í flokki í fálkaskátunum en það eru skátar á aldrinum 10 – 12 ára. Nokkrir flokkar mynda eina skátasveit sem fullorðinn sveitarforingi er ábyrgur fyrir.
Margir möguleikar eru fyrir þessa litlu vinahópa sem skátaflokkarnir eru til að hafa gaman saman á skátafundum. „Það halda allir að í skátunum sé bara verið að binda hnúta, en það er sko ekki þannig. Við gerum allskonar“ segja stelpurnar.
Við erumrosalega
miklirvinir
Finndu þitt skátafélag á vefnum okkar: skatarnir.is
Skemmtilegt ævintýri fyrir alla
Bogfimin á Úlfljótsvatni hittir í mark
„Bogfimi hefur verið fastur liður í skátastarfi víða um heim enda íþróttagrein sem er bæði krefj-andi og spennandi að stunda,“ segir Guðmundur Finnbogason hjá Útilífsmiðstöð skáta á Úlf-ljótsvatni, en þar hefur þetta skemmtilega sport fest sig í sessi í dagskránni.
8 | Skátablaðið 2014
Síðasta vetur var haldið fjölsótt námskeið
fyrir drótt- og rekkaskáta á aldrinum 13 – 18
ára. „Það er mikilvægt fyrir þennan aldur að
hittast og vera saman með hóflega stífri dag-
skrá,“ segir Guðmundur. Víkingar var þema
námskeiðsins og bogfimin á dagskrá í fyrsta
sinn. Hún hitti svo sannarlega í mark. Stefnan
var strax tekin að endurtaka leikinn nú í vetur,
enda spennandi að taka þátt í drótt- og
rekkaskátastarfi með góðum vinum. Alltaf
bætast einhverjir nýir í hóp skáta á þessum
aldri þó þeir hafi ekki verið í skátastarfi áður.
Guðmundur Finnbogason sagði að krakk-
arnir hafi spurt mikið um bogfimina, hvar
þau geti fengið boga og hvar þau geti æft
sig. Hann segir að þessi áhugi hafi endanlega
sannfært hann um að það sé rétt skref að
stofna Íþróttafélag Úlfljótsvatns til að bjóða
möguleika og aðstöðu fyrir þetta sport og
annað jaðarsport.
Bogfimier bæði
skemmtileg og krefjandi
Við stöndum með skátunum
Pantone PMS 485
VIÐ MÝVATN
Leiðtogar í eigin lífi
Skátablaðið 2014 | 9
Þátttökumet í leiðtogaþjálfun skáta var slegið síðasta vetur og allt útlit fyrir að komandi vetur verði ekki síðri, en fyrstu námskeiðin hefjast nú í september. Góða aðsókn má rekja til þess að dagskráin var gerð aðgengilegri og sóttu margir eldri skátar og foreldrar vönduð dags-námskeið um helgar.
Ólafur Proppé, fyrrum rektor Kennara-
háskólans, er skólastjóri Gilwell-skólans.
Hann segir mikilvægt að sjálfboðaliðar njóti
viðeigandi þjálfunar ásamt faglegum- og
félagslegum stuðningi í starfi. „Þannig vaxa
þeir og þroskast sem leiðtogar í eigin lífi í
starfi fyrir skátahreyfinguna,“ segir hann.
Gilwell-skólinn á sér alþjóðlegan uppruna
eins og nafnið bendir til. Íslenski Gilwell-
skólinn er þó rekinn sjálfstætt og með dag-
skrá sem löguð er íslenskum aðstæðum.
Skólanum var í sumar sett ný skipulagsskrá
og ríkir mikill metnaður hjá
stjórnendum hans að bjóða vandaða
leiðtogaþjálfun og endurmenntun. Stefnt
er að skipulegu gæðamati á starfi Gilwell-
skólans og er markið sett á EQM vottun, en
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins er vottunar-
aðili hennar á Íslandi.
Gilwell-skólinn er öllum opinn og er nánari
upplýsingar að finna á skatarnir.is
Aðgengileg og kröftug
endur-menntun
Finndu þitt skátafélag á vefnum okkar: skatarnir.is
Það er auðvelt að byrja í skátunum
Innritun er hafin!
10 | Skátablaðið 2014
| Internet á Íslandi hf. | s. 578 2030 | www.isnic.is
skráðu þitt .is lénwww.isnic.is
.isVið stöndum með skátunum
Við leigjum samkomutjöld af ýmsum stærðum og gerðum sem henta við hin fjölbreyttustu tækifæri. Einnig bjóðum
við ýmsan annan búnað svo sem borð, stóla og bekki.
Þegar tilefnið er gott!
www.tjaldaleiga.is
Við getum útvegað hentugan
söfnunarkassa í fyrirtæki og
stofnanir til söfnunar á
dósum, gler- og plastflöskum.
Við sjáum auðvitað um að
tæma hann reglulega og þið
styrkið öflugt skátastarf.
Hafðu samband við okkur á
netfangið [email protected]
eða í síma 550 9800.
www.skatarnir.is
Fyrirtækjadósir?
Skátablaðið 2014 | 11
Gerum það sem okkur finnst skemmtilegt
Í hópnum voru 6 skátar á aldrinum 16-18 ára
úr skátafélögunum Árbúum og Garðbúum. Frá
því þau fengu hugmyndina fóru þau í nokkrar
æfingaferðir og völdu þá malarvegi til að líkja
sem mest eftir leiðinni sem þau myndu hjóla,
sem var yfir Arnarvatnsheiði. Þau óðu yfir
Norðlingafljót með hjól og farangur og áttu 50
km. dagleiðir.
Hjólið gaf sig en skátinn ekki
Hópurinn var vel undirbúinn, en eins og búast
mátti við þurfti að skipta um stöku dekk og
laga einhver lítilræði. Ferðin var þó ekki með
öllu óhappalaus og var eftirminnilegast er
demparinn á einu hjólinu gaf sig og skátinn
hafnaði utan vegar. Þar tók við mjúkur mosi,
þannig að betur fór en á horfðist. Þó hjólið
hafi gefið sig, gaf skátinn sig ekki og var farið í
að útvega nýtt hjól svo hann gæti haldið áfram
ferðinni með hópnum. Ekkert gefið eftir og
greinilega í góðu gildi mottóið: ,,Einn fyrir alla
og allir fyrir einn“.
Við komuna til Akureyrar tók hópurinn þátt í
sérstakri dagskrá fyrir Rekka- og Róverskáta,
en það eru skátar á aldrinum 16 – 22 ára.
Skátarnir efla sjálfstraustið
Tiltæki hópsins vakti athygli fjölmiðla og mætti
Hafdís Jóna ásamt Kjartani Braga Ágústssyni í
viðtal hjá Síðdegisútvarpinu á Rás 2. Þar kom
í ljós að þau eru frábærir talsmenn skáta og
svöruðu skemmtilega og einlæglega. Þau
sögðu aðspurð að skátastarfið hefði gefið
þeim mikið og Kjartan sagðist nú vera laus við
feimni í samskiptum við fólk.
„Skátastarfið hefur gefur mér sjálfstraust og
aukið sjálfstæði,“ sagði Hafdís.
„Okkur langaði að gera þetta. Við gerum það sem okkur finnst skemmtilegt,“ segir Hafdís Jóna Sigurjónsdóttir en hún var í hópi skáta sem hjólaði hluta af leiðinni norður á Landsmót í sumar
Skátastarfið gefur krökkum
sjálfstraust
Afrakstur söfnunar á dósum, gler- og
plastflöskum rennur beint í starfið og
gerir okkur kleift að bjóða upp á enn
öflugra skátastarf um allt land.
skatarnir.is
– við elskum dósir!
Bestu dósaþakkir til þín!
Við elskum dósir!