veidislod june 2011

80
tímarit um sportveiði og tengt efni júní 2011 VEIÐISLÓÐ

Upload: voetn-og-veidi

Post on 22-Feb-2016

237 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Jæja kæru lesendur, þá er komið 2. tölublað Veiðislóðar. Við höfum ekki heyrt mikið annað en góð orð um fyrsta tölublaðið þannig að við lýsum eftir gagnrýni. Hún má vera óvægin svo fremi sem hún er rökstudd og sanngjörn.

TRANSCRIPT

Page 1: VEIDISLOD JUNE 2011

tímarit um sportveiði og tengt efni

júní 2011

VEIÐISLÓÐ

Page 2: VEIDISLOD JUNE 2011

Það er ekki tilviljun að Sage flugustangirnar eru þær vinsælustu í úrvalsflokki flugustanga. Að margra mati eru flugustangirnar frá Sage þær bestu á markaðnum. Því mótmælum við ekki. Allar Sage flugustangir eru hannaðar og þróaðar af flugveiðimönnum og framleiddar í Seattle í Bandaríkjunum. Að kasta fyrir fisk og veiða með Sage er einstök upplifun. Allir fluguveiðimenn verða að eiga að minnsta kosti eina Sage stöng.

Allar Sage stangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda!

VINSÆLASTA FLUGUSTÖNGIN. ÞAÐ ER EKKI TILVILJUN

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

Z-AXIS ROD SERIES - Verð 99.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.

99 ROD SERIES - Verð 99.990,-Mið-hröð stöng. Djúp hleðsla. Sérhönnuð til að bera þungar flugur og túpur.

VXP ROD SERIES - Verð 74.990,-Mið-hröð stöng. Kraftmikil og fínleg stöng fyrir allar aðstæður.

FLIGHT ROD SERIES - Verð 59.990,-Mið-hröð stöng. Góð alhliða flugustöng.

VANTAGE ROD SERIES - Verð 39.990,-Mið-hröð stöng. Góð byrjendastöng á góðu verði.

Page 3: VEIDISLOD JUNE 2011

frá ritstjórn

www.veidikortid.is

35 vatnasvæði aðeins kr. 6000

Ertu búinn að fá þér Veiðikortið?

00000

Jæja kæru lesendur, þá er komið 2. tölublað Veiðislóðar. Við höfum ekki heyrt mikið annað en góð orð um fyrsta tölublaðið þannig að við lýsum eftir gagnrýni. Hún má vera óvægin svo fremi sem hún er rökstudd og sanngjörn.

Það er metnaður okkar að gera gott og fjölbreytt blað. Eitt af því sem við ætlum að

gera er að vera með ljósmyndagallerí. Líkt og eftir Pálma Einarsson í fyrsta blaði og Óskar

Pál Sveinsson í þessu blaði. Í þessum efnum gerum við miklar kröfur og gæti það orðið

okkur fjötur um fót, þannig að við hvetjum hér með lesendur til að benda okkur á snjalla

veiðiljósmyndara, nú eða að þeir gefi sig sjálfir fram.

Þetta er ótrúlega spennandi tilraun, markmiðið er eitt blað á mánuði yfir vertíðina fram

í október. Um miðbik þeirrar hrinu mun fara að bera á skotveiði í bland við annað efni.

Við erum með netfang, [email protected] og þangað skuluð þið endilega senda

ábendingar og hugmyndir. hugmyndir um efni og efnistök með opnum hug.

Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot

Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.

Page 5: VEIDISLOD JUNE 2011

6 Stiklað á stóru Samantekt frá opnunm laxveiðiáa í júnímánuði.

10 Veiðistaðurinn Minnivallalækur er magnaður og marg slunginn.

16 Fluguboxið: Mjöll Daníelsdóttir er hrifin af Night Hawk.

20 Fluguboxið Kolskeggurinn, kafar nú dýpra í árnar.

22 Fluguboxið Loðmundur er veiðileg sjóbleikjufluga, gömul og ný í senn.

24 Fluguboxið Danskir urriðakarlar sem voru hér á landi í vor festu spinnera framan á Nobblerana sína með mögnuðum árangri.

26 Eitt og annað Á meðan laxveiði er á uppleið á Íslandi hrakar henni í Noregi.

28 Vöðlur Lárus Gunnsteinsson segir okkur eitt og annað fróðlegt um Gore Tex.

30 Viðtal Bjarki Már Jóhannsson gerir sér lítið fyrir og veiðir stór urriðann á Þingvöllum á þurrflugur.

40 Fjölskylduveiði Heiðarvatn upp af Mýrdal.

44 Fjölskylduveiði Við ræðum við Ingimund Bergsson hjá Veiðikortinu um alla hina mörgu kosti þess.

48 Ljósmyndir Óskar Páll Sveinsson á galleríið að þessu sinni.

62 Sjóstangaveiði Við ræðum hér við Elínu Snorradóttur formann Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur um adrenalínið og margt fleira sem tengist þessu sporti.

66 Einu sinni var Snorri Jónsson sat blautur og mosavaxinn við hliðina á ilmandi blómarós.

70 Villibráðareldhúsið Við vorum síðast með magnaða uppskrift úr reyktum laxfiski og höldum okkur á svipuðum nótum.

72 Lífríkið Straumöndin er mögulega og líklega fallegasti fuglinn í fuglaríkinu og förunautur veiðimanna við árnar á vorin og sumrin.

74 Veiðisaga Morgunn einn í Efra Rauðabergi í Kjarrá, metveiðisumarið 2005, var gömul og lúin Black Sheep túpa í aðalhlutverki.

76 Græjur Hér er eitt og annað fróðlegt, taumar, taumefni og sökktaumar í fróðleikshorni Óla í Veiðihorninu, Patagónía og magnaðir nýir vöðluskór í Veiðiflugum og sleipiefni, lúðuspónn og handsmíðaðir silungaháfar í Vesturröst.

Forsíðumyndina tók Frosti Heimisson þegar Laxá í Kjós var opnuð.

Nánari upplýsingar um útgáfuna er að finna á „bakinu“ á ritinu.

efnið

Page 6: VEIDISLOD JUNE 2011

6 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

stiklað á stóru

Horft yfir sviðið, þegar Norðurá er opnuð er mikil eftirvænting og spenna í loftinu, fjölmiðlamenn, þar á meðal við – útgefendur Veiðislóðar, hópast á staðinn ásamt stjórn SVFR.

Page 7: VEIDISLOD JUNE 2011

7

Júní er mánuður opnana laxveiðiáa hér á landi. Eins og apríl er mánuður sjóbirtingsáa, maí mánuður silungsvatna, þá snýst júní um laxinn. Og þó urrðinn potar í laxinn norðan úr Þingeyjarsýslum og úr Þingvallahreppi, en fyrst og fremst snýst þetta um laxinn.

Page 8: VEIDISLOD JUNE 2011

flokkurstiklað á stóru

Norðurá og Blanda opna fyrstar ásamt Straumunum sem eru ekki vanir að stela senunni. Síðan rekur hver áin aðra, en allt gerist þetta þó seinna en fyrrum, því fyrir nokkrum árum tók stórlaxi að fækka mjög og þar með voru júnígöngur í árnar orðnar svo litlar að það tók því ekki að opna snemma lengur. Einhver tilfærsla í gamla mátann hefur komið fram síðustu 1-2 árin og byrjunin þetta árið gaf það sama til kynna, fiskur snemma á ferð, þrátt fyrir kaldasta vor í mörg ár, mikið vatn í ám og kalt vatn.

Norðurá byrjaði vel, Blanda enn betur

þó laxarnir hafi verið færri þá var

veitt þar á á fjórar stangir á móti níu

í Norðurá. Síðan rak hver áin aðra og

alls staðar var fiskur undir. Kannski var

opnun Laxár í Aðaldal mögnuðust, en

þar er byrjað með tveimur stöngum

neðan við Æðarfossa þann 20.6. Alls

komu 10 laxar á land, þar á meðal tveir

sem voru metnir 20 og 21 pund og sá

þriðji sem var metinn 17 pund. Hinir

10 til 15 pund. Enda var Orri Vigfússon

formaður Laxárfélagsins gersamlega í

skýjunum. En, líkt og í fyrsta tölublaði,

þá leyfum við myndunum að tala sínu

máli, af þeim eigum við nóg, bæði

myndir sem við tókum sjálfir og aðrar

sem velunnarar okkar hafa tekið og

leyft okkur að birta. Gerið svo vel, byrjun

laxveiðiársins 2011......

1 Agnes Veronika með fallegan lax úr Vesturá ásamt tíkinni Negru. Ljósmynd: Rafn Valur

2 Ásmundur Helgason veiddi fyrsta laxinn í Norðurá 2011.

3 Jón Helgi Björnsson með 20 pundara við opnun Laxár í Aðaldal. Mynd Jón Helgi Vigfússon.

4 Veiðikona með glæsilegan feng úr opnun Vatnsdalsár. Mynd Pétur Pétursson

5 Það voru líka opnaðar urriða­veiðislóðir. Hér er Birnir Bergsson með glæsi legan urriða úr Geira­staðaskurði í Laxá í Mývatns sveit.

8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Laxá í Kjós opnaði einnig með glæsibrag og hér eru formannshjónin Ólafur Þór og Þórdís með fyrsta laxinn úr ánni 2011. Mynd Heimir Óskarsson.

Reykvíkingur ársins Gunnlaugur Sigurðsson ánægður með fyrsta laxinn úr Elliðaánum. Mynd Heimir Óskarsson.

Page 9: VEIDISLOD JUNE 2011

1

2

4

3

5

Page 10: VEIDISLOD JUNE 2011

10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Minnivallalækur

Hér eru það gæðin umfram magniðMinnivallalækur er orðinn vel þekktur sem ein besta urriðaveiðiá landsins. Hróður hans hefur borist víða um heim og erlendir veiðimenn heimsækja hann í hópum ár hvert. Sækjast þá eftir því að veiða urriðann á þurrflugu sem hefur ekki heillað marga innlennda veiðimenn. Jafnvel andstreymisveiði hefur vafist fyrir innlenndum veiðimönnum í ánni þó að aðferðin virki vel og miklu fleiri Íslendingar séu snjallir í þeirri aðferð heldur en þurrfluguveiðinni.

veiðistaðurinn

Page 11: VEIDISLOD JUNE 2011

11

Minnivallalækur telst því vera mjög

„tæknileg“ veiðislóð og alls ekki allra.

Fyrir þá sem eru mjög „basik“ í flugu­

veiðinni ættu vormánuðirnir apríl

og mai þó að henta, því þá má hæglega

beita straumflugu með góðum árangri.

Sama má segja um september, sem er

vannýttur mánuður í ánni, þá fyllast

urriðarnir streitu vegna yfirvofandi

hrygningar. Þá fara straumflugur

að virka aftur. En hvernig sem á það

er horft, þá er Minnivallalækur ekki

magnveiðistaður heldur eru það gæði

þeirra fiska sem að veiðast og sjást sem

öllu máli skiptir. Sem sagt, fiskurinn

í ánni er að jafnaði afar vænn. Oft er

meðalþyngdin eftir sumarið um 3 pund,

þrátt fyrir að nokkuð veiðist af 1­2 punda

fiski um hásumarið. Það segir mikið um

meðalþyngdina að vori.

Þó að Minnivallalækur sé ekki allra, þá

ætti hann alveg svo sem að geta verið

það. Það er öllum veiðimönnum hollt

að þurfa að hafa vel fyrir hlutunum og

gleðjast kannski yfir litlu á stundum.

Það getur sá er þetta skrifar vottað,

að það eitt og sér að horfa ofan í hyl

Hér sést frábær staðsetning veiðihússins, frammi á bakka Húsabreiðu sem er einn besti veiðistaður árinnar. Ljósmynd Roy Arris

Page 12: VEIDISLOD JUNE 2011

1

2 3

4

12 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Page 13: VEIDISLOD JUNE 2011

13

Minnivallalækur

og kikna í hnjánum yfir stærðinni á

urriðanum sem þar liggur, er ótrúleg

upplifun. Eða að sitja á bekknum við

Húsabreiðu þegar vindur deyr og

það snögghlýnar. Skyndilega byrja

uppitökur um alla breiðu. Og það eru

ansi stór sum bökin og nefin sem þá

sést brjóta á.

Sumir íbúa Minnivallalækjar eru af yfir­

stærð. Til vitnis um það eru þrír jaxlar

sem hanga á veggnum í veiðihúsinu, sá

stærsti þeirra var veginn slétt 20 pund

og slíkir fiskar finnast í ánni enn. Sá er

þetta ritar barðist við einn á bilinu 15­17

pund í nærri 40 mínútur á Húsabreiðu, á

haustkvöldi, fyrir fáum árum. Sú viður­

eign endaði í strengjunum ofan við

Stöðvarhyl, þá losnaði flugan úr dýrinu,

stór Black Ghost Sunburst. Nokkrir frá 10

pundum og stærri veiðast í ánni á hverri

vertíð og margir enn fremur á bilinu frá

4­5 pundum og upp í téð tíu pund. Þetta

eru engir smá silungar, og teknir með

léttum græjum þá er engin laxveiði að

toppa þetta.

Aðalveiðistaðurinn er kannski jafnframt

sá leiðinlegasti og það þykir sumum

kannski ákveðinn galli. Um er að

ræða Stöðvarhylinn og bæði er frekar

leiðin legt að vera með ljót mannvirki

á öndverðum bakka og svo vita allir

hvers vegna fiskurinn sækir svo mjög

í þennan ákveðna veiðistað. Mun það

stafa af fóðurafgöngum í frárennsli

stöðvarinnar. En staðurinn er magnaður

og margslunginn. Ef maður rýnir ofan í

ána, en ekki á húskost eldisstöðvarinnar,

þá sér maður afar veiðilega strengi

og breiður. Þetta er og afar mislyndur

veiðistaður, stundum er eins og hann

sé steindauður, en það er hann auðvitað

aldrei. Þess á milli er allt kvikt af fiski.

Svo geta komið þar þessar þekktu

tökuhryðjur þegar menn hitta fyrir rétta

flugu og hver fiskurinn af öðrum tekur.

Dæmi um hvers konar ævintýri geta

leynst í þessu netta vatnsfalli fannst

við skoðun á ekki svo ýkja gamalli

veiðibók. Þar hafði veiðimaður einn

landað þremur urriðum í Stöðvarhyl og

tippað á vigt þeirra í veiðibókinni. Þar

voru sum sé skráðir tveir 9 punda og

einn 12 punda. Þeir sem lenda í þeim

vænu geta lent í stóru vandamáli með

gaddavírinn sem liggur yfir breiðuna

rétt ofan brúarinnar sem þarna er. Einn

sem atti þar kappi við risafisk fékk svo

fádæma magnaða tilviljun að fiskurinn

tók upp á því að fleyta kerlingar þegar

hann kom að vírnum. Stökk sem sagt

yfir vírinn og var landað neðan við

hann. Sá sem þetta skrifar barðist þarna

í fyrra við 8 punda fisk sem þurfti að

beita fáránlegu afli á síðasta metranum

til að halda honum ofan við vírinn.

Þetta eykur spennuna við að veiða í

Stöðvarhyl, en samt væri fínt ef þessi

helv... vír væri fjarlægður!

Frá eldisstöðinni sér í fallegan hávaxinn

skógarlund þegar horft er niður með á.

Þar er viði vaxinn hólmi sem heitir að

sjálfsögðu Viðarhólmi. Ofan við hann er

samnefndur veiðistaður í krappri beygju.

Er það annálaður stórfiskastaður. Síðan

er dálítið rölt niður að Djúphyl og er

hann efstur í röð mjög fallegra veiðistaða

sem allir halda fiski og þarf að fara

varlega að. Má þar nefna Arnarhólsflúð,

Arnarhólsbreiðu og fleiri.

Síðan er bíllinn tekinn og ekið í

suður, yfir brúna yfir Minnivallalæk

og rakleiðis upp með á eftir austur­

bakkanum. Þar eru Hólmakvíslar.

Nokkuð vítt svæði og veiðilegast

efst þar sem þrír fallegir hyljir reka

1Áin er viðkvæm þó hún sé talsvert vatnsfall.Mynd: Roy Arris.

2Stórir urriðar er það sem allt snýst um....Mynd: Strengir.

3Einmitt, stórir urriðar. Mynd: Strengir.

4Veiðihúsið Lækjarmót er einstaklega vistlegtMynd: Strengir

veiðistaðurinn

Page 14: VEIDISLOD JUNE 2011

14 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

veiðistaðurinn

hver annan í krappri beygju fyrir

hraunhól einn reisulegann. Hér er alltaf

fiskur og sömu sögu er að segja um

Dráttarhólshyl sem er niður frá brú að

sumarhúsi sem þarna er nokkru ofar.

Dráttarhólshylur er langur og þar er

veiðivon góð, langt niður alla breiðu.

Minna er farið niður fyrir brúna á

þjóðveginum. Þar eru hins vegar

fallegir veiðistaðir. Nokkru neðan við

brú þrengist áin hins vegar talsvert og

rennur hröð um tíma. Þar er talsvert

af sumarhúsum alveg fram á bakkana.

Þar sem Minnivallalækur mætir Þjórsá

heitir Ósbotn og þangað fara fáir. Þar

fæst þó oft fiskur.

Minnivallalækur samanstendur af

tveimur stútungs lindarlækjum sem

sameinast við gaflinn á veiðihúsinu

Lækjarmóti. Eftir það er þetta talsvert

vatnsfall. Þetta er þriggja stanga á þar

sem aðeins má veiða á flugu og er öllum

afla sleppt. Auðvelt væri að eyðileggja

svona veiðistað með drápi, enginn vafi

á því að veiða­sleppa fyrir komulagið

á fullt erindi hér. Aflinn er fyrst og

fremst urriði. Hann er oft talinn vera af

tveimur stofnum, dökk týpa sem er talin

staðbundin og síðan bjartari týpa sem er

talin eiga rætur að rekja til Þjórsár. Geta

menn séð fiska af báðum tegundum

uppi á vegg veiðihússins. Sá bjarti svipar

jafnvel til sjóbirtings, ef ekki væru þarna

rauðir dílar á stangli. En talandi um

sjóbirting, þá er fiskgengt í Minnivallalæk

úr sjó, svo er fyrir að þakka laxastiga í

Búðafossi í Þjórsá. Lax hefur alltaf sést af

og til í Minnivallalæk, en oftast ekki fyrr

en komið er fram á haust. Eitt sumarið

var stærsti fisk urinn úr ánni hoplax

sem veiddist á stóra Bomber þurrflugu

í Stöðvarhyl í aprílmánuði. Var hann

veginn um 15 pund.

En menn fara ekki í Minnivallalæk

vegna laxavonar. Til þess eru þeir

fiskar of fáir. Það sama á við um bleikju.

Hún hefur sést í ánni, en bara örsjaldan

og bara einn og einn fiskur. Eflaust

eru þær aðkomnar úr Þjórsá líkt og

bjarti urriðinn.

Veiðiþjónustan Strengir hefur haft

Minnivallalæk á leigu um árabil og

heldur þar úti afskaplega notalegu

og vel staðsettu veiðihúsi. Þar geta

átta sofið í fjórum tveggja manna

herbergjum.

Minnivallalækur

Page 16: VEIDISLOD JUNE 2011
Page 17: VEIDISLOD JUNE 2011

fluguboxið

Margbrotin og sérstök flugaNight Hawk er fluga sem margir hafa eflaust heyrt um,

en fáir þekkja. Og enn færri nota. Þetta er laxafluga, svo

það sé strax tekið fram og afar falleg. Hún á sér þrátt fyrir

allt nokkra áhangendur hér á landi, en eins og oft vill

verða þegar skoðaðar eru flugur og myndir af þeim, þá

eru útfærslurnar fleiri en ein og fleiri en tvær.

Einn af sérlegum aðdáendum Night

Hawk er Mjöll Daníelsdóttir bústýra

í nokkrum veiðihúsa SVFR, en hún

landaði m.a. í fyrra sínum lang stærsta

laxi á þessa flugu sem hún segir að sé

sérstak afbrigði eftir Pétur gamla í Nesi.

Menn geta velt því fyrir sér á myndinni

sem hér fylgir af Mjöll með fluguna,

í öðru tilvikinu þá sem laxinn tók og

nagaði ofan í svörð og síðan aðra sem

enn á eftir að sanna sig í laxi og lítur því

enn sem komið er býsna vel út.

Rifjum til gamans upp frásögn Mjallar

af stórlaxinum í fyrra: „Ég var við veiðar

í Laxá í Aðaldal, á Nessvæðinu, þann

2­5 September. Það er alltaf mikill

spenningur þegar þangað er komið,

tilhugsunin að maður setji í þann

stóra er alltaf mikil. Ég var vel undir

17

búin, setti undir 25 punda taum og

byrjaði með Randy Candy no. 10. Við

vorum í fullt af lífi reistum nokkra, en

enginn tók. Um áttaleytið vorum við

á Vitaðsgjafa og ég setti undir Night

Hawk no. 10. Eftir nokkur köst gerðist

það, hann tók ,mjög flott taka, en Guð

minn góður allt fór á fullt, öll línan út,

hann rauk niður eftir öllu og upp aftur.

Hann var alveg trylltur, stökk nokkrum

sinnum þannig að við sáum að þetta

var stórlax. Viðureignin stóð yfir í 45

mínútur eftir mikil hlaup og slýlosun,

en það hafði safnast mikill bunki á

línuna, þannig að við enduðum á bát

til að komast nær laxinum. Fórum svo

til baka, upp á bakka, og náðum að

landa honum niður í Presthyl. Þetta var

fallegur hængur, 24 punda rísi, 103­104

cm. Árni Pétur í Nesi var að gæda mig

Page 18: VEIDISLOD JUNE 2011

og án hans hefði laxinn aldrei komið

á land. Ég setti svo í annan í Oddahyl

daginn eftir, fallega 17 punda hrygnu,

og tvo aðra minni. Þannig að þessi

veiðitúr verður í minningunni lengi,

lengi, lengi.”

Einmitt það. Mjöll segist hafa stúderað

gæði ýmissa flugna sem hún notar

mikið og segir að hefði hún verið að

opna Norðurá þá hefði hún sett Night

Hawk undir, sérstaklega þegar annað

var að bregast fram eftir morgni. „Ég á

mér tvær flugur sem virka best fyrir mig

þegar ég kasta þeim þegar annað hefur

brugðist. Þannig sannar maður fyrir sér

hvaða yfirburði þær hafa. En skilyrðin

ráða því hvenær ég nota þér. Skilyrðin

á opnunarmorgninum í Norðurá buðu

algerlega upp á Night Hawk. Hin flugan

sem ég nota svona er Haugurinn.“

Annar þekktur veiðimaður sem telur

Night Hawk með eftirlætisflugum

sínum er Orri Vigfússon, laxverndar­

frömuður og formaður Laxárfélagsins

og Strengs. Dálæti hans á Night Hawk

stemmir til fjölda ára við veiðar í Laxá

í Aðaldal þannig að kannski hentar

flugan einmitt þeirri á einstaklega

vel. Lengi vel var Night Hawk einmitt

vinsæl fluga í Laxá. Í bókinni Salmon

Flies sem byggð er á ljósmyndum

Lárusar Karls Ingasonar segir Orri

þetta um Night Hawk: „Stundum

þarf fólk að taka erfiðar ákvarðanir í

lífinu. Framtíð laxastofna heimsins

má þó ekki vera neinum valkostum

undirorpin. Valkosturinn er aðeins

einn, við verðum að vinna sleitulaust að

því að tryggja vöxt þeirra og viðgang.

Þegar kemur að því að velja réttu

fluguna eru valkostirnir hins vegar

óteljandi. Night Hawk er eftirlætið mitt

vegna þess að það er stíll yfir henni og

fluguboxið Night Hawk

hún er til alls vís, hvort heldur veidd

neðan vatnsborðs eða með gáruhnút

í yfirborðinu. Flugan sú raunverulega

veiðir hvort sem að vatn er mikið eða

lítið, hvort sem það er kalt eða heitt.

Ég nota Night Hawk í íslenskum ám,

skoskum, norskum og rússneskum.

Hún er alls staðar gjöful

Í bókinni Veiðiflugur Íslands eftir

Jón Inga Ágústsson segir að flugan

sé kanadísk og hnýtt fyrst af Stanford

White árið 1890 á bökkum hinnar

frægu Restigouche. Bókin, sem kom út

1989, segir að flugan „sé talsvert notuð

hérlendis“. Það stemmir, en notkum

á henni hefur farið minnkandi með

tilkomu Frances, Snælda, Sunrey o.s.frv.

Breytileiki Night Hawk kemur skýrt

fram í þessum myndum

sem við fundum með

einföldum hætti á netinu.

Við „Googluðum“ Night

Hawk og fengum þetta....

18 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Hér má sjá ýmsar útgáfur af Night Hawk.

Page 19: VEIDISLOD JUNE 2011

Infinity

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

NÝJA NORSKA STÓRFISKASTÖNGIN FRÁ HENRIK MORTENSEN

Page 20: VEIDISLOD JUNE 2011

flokkur

Kolskeggurinn kominn með keiluhaus

fluguboxið

Þótt Kolskeggurinn hafi komið með flugeldasýningu inn í fluguflóruna

sumarið 2009, þá er flugan hundgömul. Og þrátt fyrir aldur hennar

og fyrri störf, kom hún ekki fram með keilu fyrr en núna í sumarbyrjun.

Er óhætt að segja að áhangendur þessarar mögnuðu flugu bíði spenntir

eftir að kasta henni fyrir fisk, þ.e.a.s. þeir sem hafa ekki þegar gert það.

Það eru margir sem halda að Kolskeggur

sé eftir Kristján heitinn Gíslason, sem

hnýtti og hannaði margar þekktar og

gjöfular flugur. Það er reyndar rangt, því

flugan er eftir son hans Stefán. Það eru

líka margir sem halda að Kolskeggur

sé ekkert annað en einn ein Sun Ray

eftirherman. Það er líka rangt, nær væri

að segja að Sunray Shadow væri enn

ein Kolskeggstýpan, því Kolskeggurinn

var fyrst hnýttur langt á undan fyrstu

Sunray flugunni.

Hvort að einhver var að finna upp

hjólið vitum við þó ekki, því hönnun og

samsetning Kolskeggs er svo hlægilega

einföld. En oft er einfaldleikinn bestur.

Silfur og svart. Punktur. Í það minnsta

var slík fluga ekki komin fram hér á

landi, en það eru löngu vængirnir sem

vekja hin sterku viðbrögð árbúanna.

Það voru og eru sagðar sögur af því að

laxar hafi ærst og elt Sunray í svo miklu

æðiskasti að þeir hafi nánast flogið upp

í fjöru og strandað sig. Árni Baldursson

sagði okkur slíka sögu af löxum í

Skipahyl í Austurá og Ólafur Vigfússon

sagði okkur frá álíka skaptæpum laxi

í Bug í Austurá. Sömu sögurnar eru

nú sagðar af Kolskegg. Einnig telja

margir að líkt og Sunray, eigi menn

ekki að byrja með Kolskegg heldur enda

með hann, því hylurinn geti verið svo

lengi að jafna sig eftir geðshræringu

heimsóknarinnar!

Stefán rekur veiðiverslun uppi á Höfða

undir nafninu www.krafla.is og þar

eru allar flugur fjölskyldunnar sem

telur auk Kristjáns heitins og Stefáns,

Gylfa sem einnig er látinn og var eldri

bróðir Stefáns. Eftir Gylfa liggja einnig

margar gjöfular flugur, sérstaklega þó

silungaflugur á borð við Beyki, Krókinn,

Mýslu og fleiri.

Stefán segir: „Kolskeggur var spútnik

fluga sumarsins 2009 hjá okkur.

Við settum hann á markað síðsumars

árið áður sem flottúpu í tveimur

stærðum en hún var einnig fáanleg

sem þung kopartúpa og hefðbundin

20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Page 21: VEIDISLOD JUNE 2011

Látum þess “nýju” fljóta með, Elsu eftir Kristján Gíslason. Heitir í höfuðið á eiginkonu hans Elsu Sólrúnu Stefánsdóttur sem lést árið 1995. Elsa hefur reynst skæð bæði í laxi og birtingi.

Kolskeggur kafar nú djúpt. Myndir: Heimir Óskarsson

þríkrækja. 2009 fóru veiðimenn fyrst

fyrir alvöru að nota Kolskegg sem

flottúpu og þá fór hún fyrst verulega að

láta að sér kveða. Fjölmargir veiðimenn

hafa haft samband við okkur í gegnum

tíðina og lýst hreint ótrúlegum tökum

á Kolskegginn eins og fram kemur á

www.krafla.is.”

Kolskeggur varð til árið 1970 og flugan

því ríflega fertug. Stefán hannaði hana

12 ára gamall og gaf föður sínum sem

var á leið í veiðitúr á Iðu. ,,Ég hafði ekki

langan tíma til að setja fluguna saman

því faðir minn var kominn í veiðigallann

og var að leggja af stað austur. Flugan

er því einföld en strax kom í ljós hve

öflug hún var. Faðir minn mokveiddi

á Kolskegginn og mér er enn í fersku

minni fullt skottið á bíl hans af stórlaxi

þegar hann kom heim frá Iðunni.

Sjálfur hef ég alltaf veitt á Kolskegginn

annað slagið og vitað hve öflug fluga

hún er. Sem flottúpa er hún greinilega

afar öflugt agn. Hafa fjölmargir okkar

viðskiptavina lýst yfir mikilli ánægju

með að fram sé komin íslensk fluga sem

sé mun betri en breska flugan Sunray

Shadow. Við erum einnig með Iðu og

Skrögg sem flottúpu og þær hafa báðar

reynst mjög vel, einnig síðan með

keilu. Flottúpur okkar er hægt að nota

sem venjulegar flottúpur og einnig

sem gárutúpu. Og nú erum við komnir

með keiluhaus á Kolskegginn og fleiri

af okkar helstu túpum. Bíðum við nú

spenntir eftir viðtökunum” segir Stefán.

21

Page 22: VEIDISLOD JUNE 2011

22 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Loðmundurfluguboxið

Ný/gömul frá Gylfa: LoðmundurÞeir hjá Krafla.is sendu á markað nú

í vor athyglisverða (og veiðilega) flugu

sem mun eflaust slá í gegn. Þetta er

ný/gömul fluga eftir hinn mikla meistara

Gylfa heitinn Kristjánsson sem var

m.a. höfundur Króksins, Mýslu, Beyglu

og Beykis. Eins og þær allar, þá er

nýja/gamla flugan silungapúpa og af

útlitinu að dæma munu sjóbleikjar

vart geta staðist hana.

Flugan heitir Loðmundur. Að sögn

Stefáns Kristjánssonar hjá krafla.is þá

eru tildrög nafnsins að vinur Gylfa,

hvers nafn Stefán man ekki lengur,

bauð Gylfa í veiði með sér í Fjarðará í

Loðmundarfirði. Fjarðará er afar góð

sjóbleikjuá með laxavon og Gylfa þótti

við hæfi að hann hnýtti nýja flugu í

tilefni þess að vera á leiðinni í nýja á.

„Þetta var um líkt leyti og hann var að

smíða hinar fjórar í fyrsta skipti, á þeim

árum. Þetta er sjóbleikjuá og flugan

hnýtt í samræmi við það. Gylfi veiddi

gríðarlega vel á fluguna og skýrði hana

Loðmund í höfuðið á firðinum. Þessi

fluga fór þó ekki hátt, Gylfi hafði hana

hjá sér og aðeins hans nánustu fengu

að þefa af henni. Yfirleitt gerði hún góða

hluti,“ segir Stefán.

Og núna, nokkrum árum eftir lát Gylfa,

um aldur fram, hefur fjölskyldan ákveðið

að flugan skuli afhjúpuð. „Eins og allar

nýjar flugur sem við setjum á markað,

þá fór hún ekki óreynd, því í ofanálag

það sem Gylfi reyndi með henni á

sínum tíma, reyndu ég og fleiri hana

í Djúpadalsá og víðar í fyrra sumar og

gafst hún gríðarlega vel. Ég á því ekki

von á öðru en að hún gleðji margan

veiðimanninn á komandi sumri og í

náinni framtíð,“ sagði Stefán.

Page 23: VEIDISLOD JUNE 2011

23

Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal

BESTA URRIÐAVEIÐISVÆÐI Í HEIMI! Veiðileyfin færðu á SVFR.IS

Page 24: VEIDISLOD JUNE 2011

24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

fluguboxið

Flugur eða fluguspinnerar?Hér getur að líta myndir sem við fengum að skoða

og birta frá hópi danskra veiðimanna sem var við

urriða veiðar í Laxá í Aðaldal, Mýrarkvísl og Litluá fyrr í

mánuðinum. Þeir veiddu vel á heildina litið og voru með

marga stæði lega og glæsilega urriða, auk fyrsta laxins

sem veiddist 2011 í Mýrarkvísl. En því birtum við þessar

myndir að okkur varð starsýnt á flugurnar sem hanga

þarna í kjaftvikunum....

...eins og sjá má þá eru þetta í aðal­

atriðum ósköp venjulegir Nobblerar.

En það er snúningsskífan sem fangar

augað. Þetta er því í raun nokkurs konar

fluguspinner og nánast enginn vafi

að tilvist skífunnar getur í mörgum

tilfellum skilið á milli töku og ekki töku.

Hér er alls ekki verið að finna upp

hjólið. Þetta er eldgömul hugmynd

og má t.d. í bæklingum frá hinu virta

Hardy Bro‘s frá því snemma á síðustu

öld sjá auglýstar til sölu svokallaðar

„Norsk Lures“, sem eru tröllvaxnar

flugur með tvær tvíkrækjur á löngum

legg og snúningsskífu við hausinn.

Á síðustu öld voru „lúrur“ þekktar hér

á landi, en þó þær væru stórkarlalegar

græjur þá komust þær ekki í hálfkvist

við hinar norsku sem geta ekki hafa

verið skemmtilegar að kasta, jafnvel

með hinum stóru og þungu split cane

stöngum fyrri tíma.

Enginn veiðir lengur á þessar lúrur, allt

of margar nýjar og hentugri útfærslur

hafa litið dagsins ljós. En gaman er að

sjá þessa gömlu hugmynd vakta upp og

klædda í nútímalegan búning.

En það fylgdi sögunni að Danirnir

hefðu veitt einstaklega vel með þessum

fluguspinnerum í Nobblerslíki. Þeir

hefðu sökkt þeim vel og veitt þá hægt.

Og stóru urriðarnir stóðustu það ekki.

www.votnogveidi.is

Page 25: VEIDISLOD JUNE 2011

25

Page 26: VEIDISLOD JUNE 2011

26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

eitt og annað

Það sem gerist ef að útsæðið er étiðÞað er kunnara en frá þurfi að segja, að laxveiðin á Íslandi hefur verið í rífandi uppsveiflu síðustu árin. Gott ástand til lands og sjávar, aukin slepping gönguseiða til hafbeitar úr mörgum ám, auknar sleppingar á laxi sem leiðir af sér endurveiði drjúgs hluta laxa og verndartilburðir NASF og fleiri, eru allt atriði sem telja í þessari þróun.

NASF, Norður Atlantshafs Laxa sjóð urinn

sem Orri Vigfússon veitir forstöðu hefur

beitt sér víða og í mörgu. Sjóðurinn

útbjó t.d. grafið sem hér fylgir sem

sýnir þróun laxveiði á Íslandi síðustu

árin til samanburðar við gang mála hjá

frændum okkar Norðmönnum, en þar

viðgengst enn margt af því sem þykir

standa vaxandi laxgengd fyrir þrifum.

Það er sjókvíaeldi inni í djúpum fjörðum

nærri ósum laxveiðiáa, með tilheyrandi

áhrifum eins og lúsafaraldri og stofna­

blöndun. Þar eru netaveiðar víða leyfðar

í sjó og sjúkdómar hafa einnig herjað á

norskar laxveiðiár. Norðmenn hafa verið

seinir að grípa til aðgerða og hafa jafnvel

viðrað á þingi að banna að laxi sé sleppt,

sem þykir þó í versta falli koma í veg

fyrir að náttúran fái ekki að njóta vafans.

Súlurnar á töflunni eru vægt til orða

tekið sláandi og þegar við óskuðum

eftir því við Orra að við mættum

birta töfluna, sagði hann að það væri

sjálfsagt, hér væri lýsandi dæmi um

hvað myndi gerast ef útsæðið væri étið.

Page 27: VEIDISLOD JUNE 2011

27

Veiðislóð

Matseðilldagsins

NJ@

RANGA.DKÞað sem gerist ef

að útsæðið er étið

Page 28: VEIDISLOD JUNE 2011

vöðlur

Gott að vita um Gore-tex

Gore-tex er þunn himna sem virkar nánast eins og mannshúðin. Þ.e.a.s. Utanaðkomandi vatn síast ekki inn en gufa og sviti síast út.

Hvernig virkar Gote-tex?Gore­tex himnan er samsett úr

milljörðum að hárfinum holum pípum

og er yfir 1 milljarður pípa á cm2.

Hvert pípa er 20.000 sinnum minni en

vatnsdropi en 7000 sinnum minni en

svita mólikúlið. Þess vegna á gufa eða

sviti auðvelt með að þröngva sér út um

efnið en vatn kemst ekki inn. Ekki einu

sinni við mikinn þrýsting. Gore­tex

heldur vatni í 77 metra hárri vatnssúlu

án þess að leka.

Hvað gerir það svona sérstakt?Um leið og Gore­tex er vatns­ og

vindhelt, hleypir það út gufu. Heita

loftið sem líkaminn gefur frá sér gufar

hægt og sígandi út. Gore­tex virkar jafn

vel í miklum kulda eins og í miklum

hita. Gore­tex þolir 240 stiga frost og

270 stiga hita. Það skemmist ekki við

sólarljós og það eldist ekki. Enda ekki

skrýtið að það efni er notað í flestan

jöklafatnað.

Af hverju blæs ekki í gegn um Gore-tex þegar það hleypir út gufu?Stærð fíbrana (röranna) og lega þ.e.a.s.

efnið er fléttað óreglulega en liggur ekki

samsíða, það gerir það að verkum að það

er vindþétt, sem betur fer því að loftið

sem er á milli húðar og

Gore­tex efnisins heldur á manni

eðlilegu hitastigi.

28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Flestir veiðimenn nota vöðlur úr Gore­texi. Lárus Gunnsteinsson skósmíðameistari er einn fremsti sérfræðingur landsins í vöðlum og meðbúnaði þeirra, hvort heldur er úr Gore­texi eða öðrum efnum. Hér tínir hann til ýmsa fróðleiksmola um Gore­tex og vöðlur úr því góða efni. Þetta eru punktar sem allir veiðimenn hafa not af að vita. Stíllinn er hentugur, Lárus tínir til helstu spurningar sem hann hefur þurft að svara og fókusar að auki á nokkra megin punkta.

Page 29: VEIDISLOD JUNE 2011

Gore-tex

Ef ytra efnið er blautt lekur þá Gore-tex efnið?Nei, en ef ytra efnið er blautt þá fær

maður tilfinningu að maður sé blautur

og rakur. Einnig verður maður blautur

af svita ef að stöðugur þrýstingur er

utan frá t.d. eftir bakpokaólar og ef lengi

er staðið úti í vatni sem gerir vöðlur

þéttar á manni og svitinn kemst ekki út.

En þegar þú kemur upp úr hylnum þá

þornar þú mjög fljótt þar sem uppgufun

verður strax.

Svitnar maður minna í Gore-tex fatnaði og vöðlum?Nei, líkaminn svitnar alveg eins í

Gore­tex og venjulegum flíkum en

Gore­tex hleypir út um sig svita og

gufu svo minni hætta er á að maður

svitni og kólni.

Rétt klæddur undir skiptir miklu máli.

Það er til dæmis ekki gott að vera í

bómullarfatnaði innundir vegna þess að

fíberþræðirnir í ullinni draga í sig raka

og gerir mann blautann og kaldann.

Best er að vera í undirfatnaði úr gerfiefni

td fíber eða flees.

Ysta lagið (efnið að utaverðu)Efnið sem Gore­tex er púnklímt innaná

( GT VÖÐLUR). Skiptir miklu máli hvað

endingu varðar á Gore­tex. Það þarf

að vera sterkt og má helst ekki teygjast

mikið og enn betra ef það er á einhvern

hátt vatnsfráhrindandi.

Gore­tex má þvo við 30 til 40 gráður og

til að auka vatnsfráhrindieiginleika ytra

efnisins má setja Gore­tex í þurrkara í

smá stund. Einnig má líka strauja flíkina

eða vöðlurnar. Ef veitt er í saltvatni er

nauðsynlegt að skola vöðlurnar því

að saltkristallarnir binda raka og opna

Gore­tex, en þá fer að leka. Þetta á að

gera við allann fatnað sem blotnar í salti

sem og skótau.

Sumir segja að Gore­tex virki ekki neitt,

það sé bara plat. Gore­tex er viðkvæmt

fyrir óhreinindum og ættu menn að

þrífa flíkina og skóna reglulega, einnig

að bera feiti eða vatnsfráhrindandi efni

eftir því hvert efnið í ytra byrðinu er.

Gore­tex má þvo eins oft og maður vill,

það eru engin efni í Gore­tex sem eyðast

eða gufa upp.

29

Lárus að vasast í Gore Tex vöðlum. Mynd Heimir Óskarsson.

Page 30: VEIDISLOD JUNE 2011

30 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

viðtal

Page 31: VEIDISLOD JUNE 2011

31

Bjarki Már veiðir stór-urriðann á þurrflugu!Það hafa margir gaman að Þingvallavatni, en þeir sem

þekkja það vel segja svo frá, og það ýkjulaust, að það þarf

tíma til að kynnast því. Ekki stafar það eingöngu af stærð

vatnsins, heldur og hinum ýmsu fiskitegundum sem

það byggja, en þar búa alls fjórar skilgreindar bleikju-

tegundir auk ísaldarurriðans sem vatnið

er kannski hvað þekktast fyrir.

Page 32: VEIDISLOD JUNE 2011

Galdrafluga, “skordýr í rugli”. Myndirnar af flugunum tók Heimir Óskarson

Page 33: VEIDISLOD JUNE 2011

33

Bjarki Már Jóhannsson

Það er nú svo að aðeins tvær umræddra

bleikjutegunda skipta stangaveiðimenn

máli, og svo auðvitað urriðinn. En þetta

er samt sem áður fjölbreytt flóra sem

kallar á mörg horn til að líta í. Nú í vor

hafa margir haft það fyrir satt að aldrei

hafi annað eins verið af urriða í vatninu

hin seinni ár. Ræktun urriða hefur verið

í gangi í mörg undanfarin ár, en það

eru samt takmörk fyrir því hvað vatnið

getur framfleytt mörgum urriðum, því

enn er lokað niður í Efra Sog. Það er

því fyrst og fremst Öxará sem heldur

stofninum uppi og í minna mæli

Ölfusvatnsá.

En margur heldur að til að veiða

urriðann þurfi helst að stelast með

bönnuðum beitum á borð við makríl,

sára eða beikoni. Nú eða kasta stórum

spónum, sem þó er leyfilegt. Að stóri

urriðinn taki ekki flugu, nema kannski

einn og einn á stangli og þá helst stórar

straumflugur. En þetta er rangt. Við

hittum veiðimann, ungan að árum, sem

gerir sér lítið fyrir og veiðir stórurriðann

á smáflugur. Og jafnt púpur sem

þurrflugur. Hann er búinn að fá 10, 12,

14 og ca 20 punda urriða á þessi kríli nú

í vor og margir hafa rétt upp önglana

hjá honum og sloppið. Hann er jafnvel

með „þrista“ við veiðarnar og segir að

það eina sem þurfi sé: Nægur tími, því

menn geti verið lengi að þreyta slík tröll

á jafn léttar græjur og raun ber vitni.

Hann var svo „óheppinn“, að þegar

hann landaði 12 punda urriðanum

þá langaði hann í fiskinn upp á vegg.

Hann drap því höfðingjann. Stuttu

seinna hafði hann svo landað tveimur

stærri. En „skaðinn“ var skeður og þeim

stærri var gefið líf.

Við erum að tala um Bjarka Má

Jóhannsson sem er starfsmaður hjá

Rapala á Íslandi og nýútskrifaður BSc

líffræðingur frá Háskóla Íslands. Við

hittum Bjarka og báðum hann um að

fara í saumana á þessum ólíkindum að

okkur fannst.

viðtal

Bjarki ásamt veiðifélaga djúpt úti á Rangárflúðum.

Page 34: VEIDISLOD JUNE 2011

viðtal

Þurrflugurnar

„Ef við byrjum á að tala um þurrflugu­

veiðina, þá tekur urriðinn þær alveg eins

og hvað annað. Stundum ekkert nema

þurrflugur. Ótrúlegt hvað stór urriði

getur verið sólginn í smáa þurrflugu, en

svona er þetta nú samt. Ég nota í þetta

Parachute flugur, hvaða Parachuteflugu

sem er í raun og veru. En ástæðan fyrir

því að ég nota nær eingöngu Parachute

flugur er sú, að það er algengur galli við

aðrar þurrflugur að þær lenda vitlaust

í vatninu. Lenda á hliðinni eða bakinu

þegar maður vill að þær lendi með

öngulinn niður. Vel hnýtt Parachute

lendir hins vegar alltaf rétt. Og til þess

að tryggja það enn betur, þá tek ég allar

svoleiðis flugur, spenni aftur haklið og

vængi milli fingranna og klippi burt

auka hakl við kvið flugunnar sem gæti

skemmt lendingu og flot flugunnar.

Fyrir þá sem eru að byrja í þessu ættu

menn að nota flugur með foam búk eða

dádýrshárum því þau eru hol að innan

og hafa því aukinn flotmátt á við önnur

hár. Þá er sniðugt að maka smávegis af

sökkefni við tauminn fremst við flugu­

augað, því þá flýtur hún með sjálf stæð­

ari hætti. Einnig þarf að gæta þess að

aldrei sé slaki, línan sé alltaf strengd að

flugunni og menn mega ekki gleyma

sér. Það þarf að hafa augun á flugunni.“

Bjarki Már Jóhannsson

Söluvefur sem aldrei sefurBestu verðin - Sértilboð í hverri viku

- fjöldi veiðsvæða um land allt

Page 35: VEIDISLOD JUNE 2011

Þessi er nafnlaus, en mikið notuð og baneitruð.

Parachute afbrigði af Black Gnat. Elk Hair Caddis

Page 36: VEIDISLOD JUNE 2011

Klakpúpa.

Langskeggur Arnar Hjálmarssonar.

“Malarútgáfa” af Peacock.Vorflugulirfa, velt uppúr möl.

Page 37: VEIDISLOD JUNE 2011

37

Púpurnar

Bjarki segir okkur síðan frá púpuvís­

indum sínum, sem eru í sjálfu sér engin

vísindi, einungis viti borinn og athugull

veiðiskapur. Um púpuveiðarnar sagði

hann þetta: „Það er mikilvægast af öllu

að fylgjast vel með hvað er að gerast

í lífríkinu. Á púpuveiðunum byrjum

við í byrjun mai, en þá byrja vor­ og

maiflugur að klekjast og leita upp í

yfirborðið. Við félagarnir notum frekar

stærri en minni flugur, oft númer 8. Við

notum oftast nær flotlínu og taumurinn

er að lágmarki 12 fet og taperaður niður

í svona 8 pund. En ef það er mjög bjart,

glært og sólríkt, þá gæti þurft að hafa

niður í 5 pund fremst. Þetta á bæði

við um þurrflugu­ og púpuveiðina.

Við notum flotlínur og öfuga öngla,

þ.e.a.s. öngla sem snúa önglinum

upp. Flugurnar eru hnýttar þannig að

þyngapunkturinn er öfugur. Það gerum

við með því að hafa þyngingarefni ofan

á bakinu. Með þessu móti sleppum við

miklu betur við festur þegar við veiðum

við botninn sem er nauðsynlegt. Flugan

er látin sökkva niður undir botn og

síðan, þegar hún er dregin af stað, þá er

það sama hreyfing og þegar umræddar

nymfur taka sundið frá botninum.

Peacock er gríðarlega öflug í þessum

efnum, sömuleiðis Phesant tail. Pea­

cockinn hnýti ég oft þannig að ég byrja

hefðbundið, stíflakka síðan búkinn og

velti síðan flugunni upp úr fínni möl

áður en lakkið þornar. Þá er ég kominn

með bæði þyngingu í fluguna og svo

þetta náttúrulega útlit nymfunnar sem

einmitt hleður utan um sig botnefni.

Þetta datt mér einhverju sinni í hug í

kennslustund í Háskólanum. Seinna,

þegar ég las mig betur til, þá kom í ljós

að ég var ekki að finna upp hjólið, aðrir

höfðu gert svipað á undan mér. En það

breytti engu um að þetta svínvirkaði.

Sú púpa sem við notum þó hvað mest er

Langskeggurinn sem Örn Hjálmarsson

í Útilífi hannaði. Við veiðum oft saman

og hann, ég og fleiri, notum þessa flugu

grimmt. Hún er gríðar lega einföld, með

svart eða glært latex í bakinu, fínlega ull

í búknum og hanafanir í skeggi. Loks er

annað trikk sem við notum oft og það er

taka svona köngulóarflugu, Daddy Long

Legs eða Galdrafluguna og baða hana

upp úr þurrfluguspreyi. Síðan köstum

við henni og drögum inn í yfirborðinu.

Flugan skilar sér eins og skordýr í ein­

hverju rugli sem er að reyna að forða

sér. Þetta gefur oft flottar tökur.“

Bjarki Már Jóhannssonviðtal

Bjarki með hann á í Þingvallavatni.

Page 38: VEIDISLOD JUNE 2011

38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Bjarki Már Jóhannssonviðtal

Magnað vor

Þegar við ræddum við Bjarka undir

lok síðasta mánaðar var hann prívat

og persónulega búinn að landa milli

20 og 30 urriðum á bilinu frá 4 og upp

í um það bil 20 pund. Bleikjan var þá

líka byrjuð að taka við sér og hann var

búinn að landa mörgum slíkum, m.a.

mjög stórum kusum. Hann veiddi þessa

fiska alla á þurrflugur og smáar púpur.

Félagar hans hafa einnig veitt vel og oft

prýðilega þó að veiðimenn með annað

agn hafi ekki verið að fá tökur. Hann

segir einnig að meira sé af 2­3 punda

fiski í vor heldur en síðustu ár og hefur

hann veitt talsvert af slíkum fiski. Hann

segir og, að púpuaðferðin virki jafn vel

í bleikjuna, en þurrfluguna taki hún

sjaldan. Þó komi það fyrir.

Að lokum sagði Bjarki Már þetta: „Það er

mjög mikilvægt að menn séu duglegir.

Fiskurinn fer gjarnan um í hópum og

stoppar þá gjarnan á vissum blettum.

Tekur sig svo upp og fer annað. Ég

veit um nokkra svoleiðis staði, en

ætla ekkert að ljóstra því upp. Málið er

nefnilega, að þegar menn hafa fundið

urriðann þá fer það ekki á milli mála.

Hann er að sýna sig, skvetta og stökkva

um allt. Um að gera að hafa yfirferð.

Og þessu er ekki lokið þó að júní líði,

því að það eru vissir staðir í vatninu þar

sem veiða má urriðann með þessum

aðferðum allt sumarið. Bleikjan er

einnig um allt vatn í nymfunum. Þá

hefur mér reynst ljósaskiptin kvölds og

morgna best, fiskur kemur þá meira

upp á grunn og er ekki eins var um sig

á meðan hann er að éta.“

Það var og. Þær vikur sem liðnar

eru síðan að við spjölluðum við

Bjarka hefur hann gert víðreist um

veiðilendurnar. Marg farið aftur í

Þingvallavatn þar sem enn fleiri

urriðar og bleikjur hafa náðst að landi.

Síðast þegar við heyrðum í honum

var hann staddur í Veiðivötnum

og búinn að veiða sig fullsaddann

þar í bili. „Urriðarnir voru margir

vel stórir, 5­7 punda. Með mér var

Ástralskur líffræðingur sem bara

gapti á þennan 7 punda þegar hann

svamlaði til og frá á meðan ég var

að þreyta hann. Hann sagðist varla

hafa vitað að urriði gæti orðið svona

stór. Það fékk mig til að hugsa að

sennilega gerum við Íslendingar

okkur litla grein fyrir því hvers lags

auðlind við höfum í silungsveiðinni.

Ég hef ítrekað farið með erlenda gesti

í urriða í Þingvallavatni til að mynda

og menn trúa því vart sem fyrir augu

ber. Við verðum að gera okkur grein

fyrir því að stór, stór hópur erlendra

silungsveiðimanna líta á 2 punda

urriða sem meiriháttar fisk. Íslenskir

veiðimenn líta varla við svoleiðis og

kalla það titti. Annars fannst mér hvað

skemmtilegast í Veiðivatnaferðinni að

taka á mig talsvert labb við Breiðavatn

til að leita uppi útfallið og finna þar

miklu stærri bleikjur en margur telur

að sé að finna í Veiðivötnum. Ég setti

í hverja af annarri, veiddi hægt með

þungum púpum og þetta voru 3­5

punda fiskar, ein eða tvær jafn vel enn

stærri,“ sagði Bjarki Már að lokum.

Page 39: VEIDISLOD JUNE 2011

Lax-, silungs- og skotveiði

Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,

Tungulækur, Minnivallalækur

og Fögruhlíðará

www.strengir.is

Page 40: VEIDISLOD JUNE 2011

40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

fjölskylduveiði

Það er á allra færi að veiða í Heiðarvatni.Myndir: Heimir Óskarsson og Frosti Heimisson

Page 41: VEIDISLOD JUNE 2011

41

Eitt allra besta silungsveiðivatn fjölskyldunnarEitt allra besta silungsveiðivatn landsins er án nokkurs

vafa Heiðarvatn í Mýrdal. Forðum var það eitt vinsælasta

veiðisvæði SVFK, en eftir að hinn svissneski Rudy

Lamprecht keypti þar upp jarðir þá er þetta að mestu í

hans eigu og lengi vel var engum leyft að veiða í vatninu.

Á því hefur þó orðið breyting seinni árin, umsjónar-

maður Rudy á Íslandi, Ásgeir Ásmundsson, sem rekur

www.skoga.is selur í það veiðileyfi og er ekki vafi að

fá veiðivötn hér á landi henta betur til fjölskylduveiða.

Page 42: VEIDISLOD JUNE 2011

42 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

fjölskylduveiði

Það má segja að allur fiskur fáist í

Heiðar vatni nema steinsuga og flundra.

Þar er staðbundinn urriði og bleikja og

sjóbirtingur og lax eiga þangað greiða

leið um Kerlingardalsá og Vatnsá. Ekki

hefur dregið úr laxavoninni eftir að

Rudy hóf stórfelldar seiðasleppingar í

Vatnsá. Hann gerði hana að þeirri á sem

flesta hefur gefið laxana á dagstöngina

síðustu tvö sumrin. Gríðarlega aflatölur

þar á stuttri vertíð á aðeins tvær stangir.

Laxinn þvælist talsvert upp í vatn og

silungsveiðifólk setur oft í laxa. Þá er

sá háttur sjóbirtings á svæðinu að fara

mjög hratt yfir þegar hann er farinn úr

hinni skoluðu Kerlingardalsá inn í hina

krystaltæru Vatnsá. Sjóbirtingnum líður

ekki par vel í nettum tærum sprænum

og flýtir sér því upp í vatn. Dæmi um

þetta er, að eitt sinn er ritstjóri var að

veiðum í Vatnsá á septemberdegi,

fyrir daga Rudy, kom hann að 20-30

fiska sjóbirtingstorfu í veiðistaðnum

Svörtuloftum. Allt voru þetta ca 2-3

punda fiskar og þar sem sól var og

kyrrt veður, var erfitt að athafna sig án

þess að styggja hylinn. Tókst að setja í

einn fisk áður en að hjörðin var farin

að hringsóla. Var þá hætt að kasta um

stund og komst þá kyrrð á torfuna.

Afráðið var samt sem áður að halda

annað og koma heldur undir kvöldið

þegar byrjað væri að rökkva. Var það

gert, en hver einasti fiskur var á bak

og burt úr hylnum þegar komið var

aftur aðeins tveimur tímum síðar.

Birtingurinn gengur hins vegar aftur

niður í ána til hrygningar þegar sá tími

kemur. Þá er gjarnan búið að rigna vel

og dagur mjög að styttast. Það líkar

birtingnum meira.

Til er mjög stór sjóbirtingur í

Heiðarvatni og enn fremur gríðarlega

stór staðbundinn urriði. Þar veiðast

flest sumur fiskar frá 10-12 pundum og

upp í einhver 20 plús pund. Oftast fá

menn slíka fiska með spæni af bátum,

en þó fiskast slíkir fiskar stundum

líka frá bökkum. Tilvist þessara

risavöxnu staðbundu og sjógengnu

urriða, auk laxanna, hvetur til að gætt

sé að nógu sterk lína sé á hjólum

allra fjölskyldumeðlima. Ekki gleyma

barnastöngunum í þeim efnum, því

fúin eða of grönn lína á litla möguleika

að halda gegn slíkum fiskum.Náttúrufegurð er mikil við vatnið.

Page 43: VEIDISLOD JUNE 2011

43

Heiðarvatn

Allur þorri fiska í Heiðarvatni er hins

vegar staðbundinn urriði og bleikja og

er stærðin býsna blönduð. Þar veiðist

allt frá smælki og upp í 2­3 punda

silunga og stöku sinnum veiðast enn

stærri staðbundnir fiskar. Fluguveiði

gefur að jöfnu best og krakkarnir með

flugu og flotkúlur fá oft ekki síðri veiði.

Spinnerar virka líka vel.

Fyrrum var SVFK með tvo vel búin

veiði hús við Heiðarvatn, en það er

liðin tíð. Þeir sem veiða í vatninu nú

til dags geta fengið veiðihús Vatnsár

fyrir laxveiðitímann, en að öðrum kosti

eru það tjöld eða tjaldvagnar. Fyrir

utan að það er ekki lengra til Víkur frá

höfuðborgarsvæðinu en svo að vel er

hægt að aka austur að morgni og koma

heim að kvöldi. Fínn dagur þar á ferð,

fjölskyldan í veiði saman í fögrum

fjallasal.

Dálítið nánar um Heiðarvatn. Það er í

72 metra hæð yfir sjó og er flatarmál

þess tæpir tveir ferkílómetrar.

Meðaldýpi er um 13 metrar sem þýðir

að það er býsna djúpt á köflum. Við

slíkar kringumstæður þrífst stórurriði

einkum mjög vel, dýpi til að lúra oní

á daginn og svo grynnra vatn með

miklu af smærri silungi til að éta í

ljósaskiptunum. Lækurinn Þorleifsá

rennur í vatnið og eitthvað af fleiri

sprænum sem eru ekki mikið að sjá

yfir sumartímann en geta bólgnað á

haustin. Þarna koma oft vatnsskot, því

Mýrdalurinn og umhverfi hans er mikið

rigningarbæli.

Heiðarvatn er með þeim gæðum að

nær allt veiðitímabilið er gjöfult og eru

hinar ýmsu tegundir sterkar á vissum

tímum. Veiði byrjar t.d. snemma vors,

eða í mai ef ís er ekki fyrir mönnum

og þá og fram í júní er oft hreyfing

á sjóbirtingi sem ætlar til sjávar eftir

vetrardvöl. Þegar hlýnar og kemur fram

í sumarbyrjun tekur bleikjan við sér og

þegar kemur fram á og yfir mitt sumar

bætast sjóbirtingar og laxar í aflann.

Allan tímann er staðbundinn urriði

einnig sterkur. Þetta er þannig séð allra

tíma vatnið og ekki spillir gleði dagsins

að umhverfið er stórkostlegt. Það er

alltaf hægt að mæla með Heiðarvatni.

Mikið er um mjög stóra fiska innan um smærri fiskinn í Heiðarvatni. Hér er 67 cm sjóbirtingur.

Page 44: VEIDISLOD JUNE 2011

Ingimundur Bergsson með fallegar bleikjur.

Page 45: VEIDISLOD JUNE 2011

45

fjölskylduveiði Veiðikortið

Erum alltaf að skoða nýja og spennandi möguleikaVeiðikortið er einn stærsti hvalreki sem sullast hefur upp í fjöru stangaveiðimanna sem vilja geta skotist eitthvert skemmtilegt með stuttum fyrirvara, fyrir lítinn pening, eða farið með alla fjölskylduna eða stoppað til að veiða á ferð um landið. Enda eru vinsældirnar miklar og hafa farið vaxandi. Vertíð Veiðikortsins er nú að komast í hámark þannig að við heyrðum í Ingimundi Bergssyni hjá Veiðikortinu og spurðum hann um eitt og annað.

Page 46: VEIDISLOD JUNE 2011

46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

fjölskylduveiði

Hvernig hefur vöxtur Veiðikortsins þróast og hefur þú fundið fyrir auknum áhuga eftir breytingarnar sem urðu í hagkerfinu eftir bankahrun?„Veiðikortið hefur í raun vaxið jafnt og þétt frá því það kom fyrst út árið 2005. Það er augljóst að það var þörf fyrir það á markaðnum, enda vantaði einfalda og þægilega lausn fyrir þá sem stunda vatnaveiði. Einfaldleikinn hefur fengið að halda sér frá stofnun og hefur kortið nánast ekkert hækkað þrátt fyrir mikla aukningu á vatnasvæðum sem í boði eru milli ára. Bankahrunið hefur sennilega haft jákvæð áhrif á vöxt Veiðikortsins enda verðið mjög hagstætt og færri sem ferðast erlendis í sumarfríum. Það er klárt mál að veiðimönnum hefur einnig fjölgað eftir tilkomu Veiðikortsins þannig að það má segja að hagkerfið í veiðigeiranum hefur stækkað með fleiri veiðimönnum sem kaupa þá væntanlega græjur í veiðivöruverslununum og önnur veiðileyfi hjá veiðileyfasölum.“

Eru enn vaxtarmöguleikar...þ.e.a.s. muntu enn fjölga vötnum?„Við erum að alltaf að skoða nýja og spennandi möguleika fyrir notendur Veiðikortsins, og lykillinn að því að uppfylla þarfir notenda er m.a. með því að reyna að bjóða upp á ný svæði. Við styðjumst mikið við upplýsingar frá notendum kortsins varðandi hvaða vötn menn vilja sjá bætast við sem og hvaða vötn eru ekki að standa undir væntingum. Þess vegna er mjög mikilvægt að notendum séu duglegir við að senda okkur reynslusögur, bæði jákvæðar og neikvæðar um vatnasvæði kortsins. „

Veistu hverjir nýta sér helst Veiðikortið?„Notendahópur Veiðikortsins er mjög stór og má segja að aldursdreifing notenda er furðu jöfn, eða allt frá unglingum með veiðidellu upp í heldri borgara sem vilja komast í rólegheitin út í náttúrunni. Stærsti hópur notenda í dag er fjölskyldufólk á aldrinum 27­50 ára. Mikil aukning hefur verið í notkun á Veiðikortinu hjá veiðimönnum sem áður stunduðu nánast eingöngu veiðar í ám, en margir hafa hreinlega heillast af vatnaveiðinni enda ekki síður skemmtilegt að glíma við fallega bleikju með léttum veiðigræjum, heldur en lax. Einnig má sjá að

veiðimenn eru farnir í meira mæli að fara saman í lengri veiðitúra sem eru skipulagðir í kringum vatnaveiði, t.d. með því að leigja sumarhús og fara þaðan í mismunandi vötn á milli daga.“

Notarðu sjálfur Veiðikortið og þá með hvaða hætti?„Ég hef mjög gaman að vatnaveiðinni og nota kortið að sjálfsögðu talsvert sjálfur. Þó hefði ég gjarnan viljað komast meira í veiði en það kemur að því þegar það róast eitthvað hjá manni. Ég reyni að fara nokkrar ferðir t.d. á Þingvelli, Úlfljótsvatn, Meðalfellsvatn og Hraunsfjörð á hverju ári, auk þess sem ég reyni að kíkja í einhver ný vötn eins og frekast er kostur.“

Ertu að nýta þér nýju samskiptaleiðirnar á netinu, eins og Facebook og þess háttar?„Með tilkomu Facebook er orðið mjög þægilegt og aðgengilegt að nálgast upplýsingar og jafnvel ráðleggingar frá öðrum veiðimönnum sem og til að deila myndum. Einnig virkar sú síða vel ef að veiðimenn eru duglegir að láta heyra í sér og láta aðra veiðimenn vita af því hvernig veiðin gengur á milli vatnasvæða. Við höfum reynt að leggja aukna áherslu á að veiðimenn skrái afla rafrænt, t.d. með því að skila inn veiðiskýrslu á tölvupósti sem hægt er að nálgast á heimasíðu Veiðikortsins, www.veidikortid.is auk þess sem við höfum verið í góðu samstarfi við Veiðibók, www.veidibok.is en þar geta menn t.d. skráð afla eftir hverja veiðiferð hvort sem menn hafa aðgang þar eða ekki á mjög einfaldan og hraðvirkan hátt. Samt viljum við hvetja veiðimenn til að stofna aðgang á Veiðibók, enda endurgjaldslaus þjónusta sem heldur á einfaldan hátt utan um allar veiðiferðir viðkomandi. Einnig hvetjum við veiðimenn til að senda okkur myndir og jafnvel veiðisögur (á netfangið [email protected]) til að miðla til annarra veiðimanna í gegnum vefinn okkar og Facebook, enda fátt betra en að skoða nógu margar myndir af svæðum sem menn hafa ekki komið á ef að menn eru t.d. að fara á eitthvað vatnasvæði í fyrsta sinn.“

Gore-tex gerir gæfumuninn.

Gore-tex öndunarfilman

ber höfuð og herðar yfir

aðrar öndunarfilmur bæði

hvað varðar vatnsheldni og

útöndun.

Simms notar Gore-tex Per-

formance-Shell og Gore-tex

Pro-Shell í vöðlur og jakka.

Engar málamiðlanir. Simms

er málið

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!

ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIG HJÁ VEIÐIMANNINUM.

VEIÐIBÚÐ ALLRA LANDSMANNA Á NETINU.

VEIDIMADURINN.IS

Page 47: VEIDISLOD JUNE 2011

Gore-tex gerir gæfumuninn.

Gore-tex öndunarfilman

ber höfuð og herðar yfir

aðrar öndunarfilmur bæði

hvað varðar vatnsheldni og

útöndun.

Simms notar Gore-tex Per-

formance-Shell og Gore-tex

Pro-Shell í vöðlur og jakka.

Engar málamiðlanir. Simms

er málið

SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410

ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!

ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIG HJÁ VEIÐIMANNINUM.

VEIÐIBÚÐ ALLRA LANDSMANNA Á NETINU.

VEIDIMADURINN.IS

Page 48: VEIDISLOD JUNE 2011

Óskar Páll Sveinsson með lax í opnun Kjarrár 2011.

48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Page 49: VEIDISLOD JUNE 2011

Ljósmyndagalleríið í þessu tölublaði er eign Óskars Páls Sveinssonar sem er einn af okkar snjöllustu fluguveiðimönnum og margreyndur leiðsögumaður auk þes að hafa náð lengra en flestir á tónlistarsviði, bæði við útsetningar og lagasmíðar. Hvert mannsbarn þekkir t.d. Eurovisionsmellinn Is it true sem náði sæti númer tvö í þeirri keppni hér um árið. En eitt af mörgu sem Óskar Páll leggur fyrir sig og gerir listavel er stangaveiðitengd ljósmyndun. Hann brást hinn besti við þegar við óskuðum þess að mega birta myndir eftir hann og um galleríið sitt segir hann:

„Ég er lengi búinn að vera með áhuga á ljósmyndun en það er ekki fyrr en á síðustu árum að ég hef lært hjá nokkrum ágætum fagmönnum réttu handtökin við myndatöku og myndvinnslu. Ég á þó ennþá langt í land, en æfingin skapar meistarann og það er gríðarlega skemmtilegt að sameina þetta með veiðinni og leiðsögumennskunni.

Eins og sjá má á þessum myndum hér þá hef ég bæði gaman af „náttúrulegum“ myndum og að vinna myndir með hinum ýmsu forritum. Einn af mörgum kostum veiðinnar er sá að oftar en ekki er maður umkringdur stórkostlegri náttúru sem gaman er að reyna að fanga á mynd. Þessar myndir eru flestar teknar á canon 550D og forritin sem ég nota mest eru Lightroom, Photoshop og Photomatix.

49

Á langt í land en æfingin skapar meistarann

ljósmyndir

Page 50: VEIDISLOD JUNE 2011

Hofsá í Vopnafirði.

Page 51: VEIDISLOD JUNE 2011

51

Page 52: VEIDISLOD JUNE 2011

52 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Þingvellir.

Page 53: VEIDISLOD JUNE 2011

53

Kirkjuhólmakvísl á miðnætti.

Page 54: VEIDISLOD JUNE 2011

Vesturá í Miðfirði.

Page 55: VEIDISLOD JUNE 2011

55

Page 56: VEIDISLOD JUNE 2011

56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Lax með flugu og stöng.

Page 57: VEIDISLOD JUNE 2011

57

Lax að hausti.

Page 58: VEIDISLOD JUNE 2011

58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Kastað fyrir silfurbokka á Kúbu.

Page 59: VEIDISLOD JUNE 2011

59

Anthony Luke veiðir North Tyne í Bretlandi.

Page 60: VEIDISLOD JUNE 2011

60 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Veiðibíll við Rio Grande í Argentínu.

Page 62: VEIDISLOD JUNE 2011

62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

sjóstangveiði

Þetta er mikið adrenalínsportSjóstangaveiði á vaxandi vinsældum að fagna og sportið er jafn framt orðið að útflutningsvöru í ferðaþjónustu. En það er eitt að fara með sjóstangaveiðibát eitt eða tvö skipti þar sem allur búnaður er til taks, og annað að stunda sjóstöng sem sport. Í sumum tilvikum meira að segja sem keppnissport. En það er all nokkur hópur sem gerir það. Til er Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur og formaður þess, eða kannski öllu heldur forkona þess, er Elín Snorradóttir, starfsmaður hjá Skýrr.

Page 63: VEIDISLOD JUNE 2011

Elín Snorradóttir

63

Okkur þótti við hæfi að heyra aðeins í Elínu og spyrja hana út í sjóstanga­veiðiskapinn og hvar mörkin liggi á milli kepnnismennskunnar og róleg­heitanna. En fyrst spurðum við hana um félagið, stærð þess og tilgang.

„Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur er

eitt átta félaga á Íslandi sem snúast í

kring um keppnishlutann. Reyndar

átti félagið 50 ára afmæli 10. maí síðast

liðinn. Sjávarútvegsráðuneytið úthlutar

okkur þremur veiðidögum til að keppa

á, einn þeirra fer í innanfélagsmót og

hinir tveir fara í opin mót sem telja til

Íslandsmóts. Þetta mótshald er mikið

um sig og kostnaðarsamt. Við erum

að leigja báta og fleira umstang í kring

um þetta kostar sitt. Skráðir félagar í

þessum félögum eru líklega eitthvað

um 560 talsins, en mjög virkir eru

kannski 60 til 70 manns og það er hóp­

urinn sem tekur þátt í mótunum. Okkar

félag telur núna ríflega hundrað

manns og hefur farið fjölgandi.

Bæði hafa fyrrum félagar drifið sig

aftur í gang og svo er líka nýtt fólk.“

Page 64: VEIDISLOD JUNE 2011

1

2 3

54

64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Page 65: VEIDISLOD JUNE 2011

65

Elín Snorradóttir

Hvernig á nýtt fólk að koma sér í svona félög?„Bara að hafa samband. Þetta er léttur

og skemmtilegur félagsskapur og þó að

við höfum flest þekkst lengi þá er engu

að síður vel tekið á móti nýju fólki. Það

þarf enginn að hafa áhyggjur af því

að vera óvelkominn eða útundan. Það

er einmitt eitt af því skemmtilegasta

við þetta sport, þ.e.a.s. þessi frábæri

félagsskapur.“

Nú ert þú formaður og þú ert líka kona. Samt hefur einhvern veginn farið það orð af sjóstangaveiði að það sé meira karlasport. Hvað segir þú um það?„Jájá, ég get alveg fallist á það.

Sjóstanga veiði hefur haft svoleiðis

yfirbragð, en það eru líka konur

í þessu og það eru kvennaflokkar í

öllum keppnis greinunum. Konum

hefur líka fjölgað og karlarnir taka því

bara mjög vel. Þeir taka mér líka mjög

vel í formannsstólnum og gegna mér

alveg út í eitt!“

En hvert er fúttið í þessu, ekki er það takan og viðureignin eins og í lax­ og silungsveiði, með þessar ferlegu stangir?„Þetta er bæði mikið adrenalínsport og

svo fær fólk útrás fyrir keppnisskapið.

Adrenalínhliðin felst fyrst og fremst í

að þú veist aldrei hvað þú setur í, það

getur verið allt frá litlu trönusíli og

upp í 100 kg lúðu. Dæmi um þetta er

síðasta opna mótið okkar. Þá vorum

við í Vestmannaeyjum og sá sem vann

bikar fyrir flestar tegundir var með tíu

tegundir, mátti þar nefna m.a. þorsk,

ýsu, löngu, keilu, kola, steinbít og til

að toppa allt, marhnút! Samt var hann

ekki með tegundir eins og lúðu, makríl,

síld og fleira þannig að af því má sjá

að fjölbreytnin er gríðarleg. Talandi

um makríl, þá veiddist ekki nema einn

makríll á þessu móti og það var norsk

kona sem hann veiddi. Það var talsvert

hlegið að því í ljósi deilna landanna um

makrílkvóta.“

En er þetta ekki svakaleg vinna og harrsperrur í marga daga á eftir?„Nei, ekki endilega. Stundum er

miklu erfiðara að standa í lappirnar

í bátnum ef veðrið er ekki heppilegt,

heldur en að draga marga og stóra

fiska. Veiðibúnaðurinn er líka þannig

hannaður að hann dreifir álaginu á

líkamann. Flestir sem eru í þessu sporti

eru auk þess í góðu líkamlegu formi.“

Þetta snýst þá allt um keppni og kapp eða hvað?„Neinei, það eru líka margir í þessu sem

afslappandi sportveiði. Eiga sína báta

eða hafa aðgang að þeim og fara út á

sjó til að veiða í soðið og slaka á. Það

er allt annað andrúmsloft heldur en á

keppnisdögum, en gott andrúmsloft

líka. En það er keppnihlutinn sem

heldur félögunum saman. Það er síðan

keppt í svo mörgum flokkum að margir

eiga þess kost að vinna eitthvað.“

Hvað hefur þú annars verið lengi í sjóstangaveiði og hvernig varst þú kynnt fyrir henni?„Ég byrjaði fyrir tíu árum og það bar

þannig til að mér var boðið að koma

og keppa sem gestur á innanfélagsmóti.

Mér þótti spennandi að fá að kynnast

þessu og sló til. Það var ekki annað en

að ég vann síðan kvennaflokkinn og þá

var ekki aftur snúið.“

1 Skötuselir geta líka slæðst með!

2 Smáþorskur vekur gleði.

3 Aflinn er stundum ófrýnilegur. Hér er stór steinbítur á ferð.

4 Gleði og stemning um borð.

5 Það vantar ekki mikið upp á að þorskurinn sé jafn stór veiðikonunni!

Ljósmyndir: Ragnar Valsson

Page 66: VEIDISLOD JUNE 2011

einu sinni var

Sat mosagróinn og blautur við hliðina á ilmandi blómarós

Snorri var stórmerkilegur veiðimaður.

Hann var einn af stofnendum Húsa­

víkurdeildar Laxárfélagsins, bróðir

Benedikts Jónssonar sem var nánast

goðsögn í lifanda lífi sem Laxármaður,

og ótrúlega seigur veiðimaður þegar

tekið er tillit til þess að hann veiktist af

lömunarveiki á unga aldri og gekk eftir

það við staf, hokinn í baki og smá vaxinn.

Ekki beint uppskrift að Laxá í Aðaldal

myndi einhver kannski segja, en það

sagði það enginn Snorra Jónssyni.

Eitt viðtalanna í umræddri veiðimanna­

bók var einmitt við Snorra. Það var

tekið á köldum og björtum mai­degi

1983. Ekki ætlum við að skrá allt viðtalið

hér, en birta þó skemmtileg brot úr því.

Gefum Snorra orðið:

„Ég er einn af þeim lukkunar pam fílum

sem sem veitt hefur stærri lax í Laxá en

30 pund. Það var 13.júní 1962 í Kistukvísl.

– Laxinn tók maðk og það voru

heilmiklar sviptingar við að ná honum,

en þó tók það aðeins um 25 mínútur.

Maður verður að taka á löxum á þessum

slóðum, annars geta þeir náð um of

yfirhöndinni og þeir stóru eru vísir til

að fljúga upp fossanna með allt aftan

í sér, ef svo ber undir. Þegar ég veiddi

stórlaxinn var háfjara og lágt í Laxá

niður eftir öllum sandi. Laxinn þaut

niður Kistukvísl og ég mátti vaða á eftir

honum niður eftir öllum eyrum, því að

aldrei lagðist hann eða fór sér rólega.

Loks dró ég hann til mín og rotaði hann

í vatninu með stafnum mínum. Þar

með var björninn unninn og ég dró

hann á land. Þetta var 30,4 punda lax,

nýrunninn og glæsilegur.“

Seinna í viðtalinu segir Snorri frá því

þegar honum varð á í messunni í

viðskiptum við stórlax á þeim fræga

stórlaxaveiðistað Núpafossbrún:

66 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Árið 1983 kom út bókin Varstu að fá‘ann? Þar tók ritstjóri Veiðislóðar tali all margar veiðikempur og skráði langa röð af veiðisögum sem voru margvíslegar og allar skemmtilegar á sinn hátt. Það er til marks um að tíminn stendur aldrei kyrr, að að minnsta kosti átta viðmælenda ritstjóra eru nú látnir. Einn þeirra var Snorri Jónsson frá Húsavík.

Page 67: VEIDISLOD JUNE 2011

– Á Fossbrún gerðist eitt ævintýrið, eitt

af þeim sem maður gleymir aldrei. Það

var ekki sofið yfir sig þann morguninn,

enda ekki veður til að sofa, logn og

sólskin um miðjan júlí. Við vorum

komnir að ánni um sex­leytið. Við,

­ jú, það vorum við gömlu skarfarnir

Birgir Steingrímsson, Bendikt bróðir

og ég. Við áttum veiði í Núpa­ og

Knútsstaðalöndum þennan dag.

Ég rölti í hægðum mínum yfir

neðri höfðann, stansaði svo uppi á

háhöfðanum og settist niður. Á fáums

töðum er fallegra útsýni yfir Aðaldal

en þar. En ég hafði ekki eirð í mér til að

sitja lengi, eitthvað kitlandi eirðarleysi

rak mig áfram. Hann tekur oft vel á

Fossbrún snemma morguns, þegar

sólin er beint í bakið á manni, enda er

strengurinn þá mjög bjartur og litfagur.

Ég þurfti ekki lengi að bíða eftir því að

eitthvað gerðist þennan morgun. Eftir

fáein köst hafði ég fest í stórum og

fallegum fiski. Hann var rólegur, stóð

djúpt undir strengnum og stimpaðist við.

Eftir nokkurt þóf fór hann þó að ókyrrast,

létti á sér, tók hratt viðbragð, hljóp undir

og fram fyrir aðalstrenginn og stökk.

Allra laglegasti fiskur, 18­20 pund.

Nú snéri hann við og hljóp hratt

undan straumnum , alveg niður á

Fossbrún. Og þá gerði ég það stóra

glappaskot, sem varð til þess, að ég

gat aldrei unnið þennan leik. Ég hljóp

af stað fram á klöppina og gaf þannig

fossinum tækifæri til að grípa í slakann

á línunni og sá grái hafði snúið á mig.

Á blábrúninni hafði hann snúið við,

stungið sér upp með klöppinni og stökk

nú góðan spöl ofan við brúnina.

67

Snorri Jónsson frá Húsavík.

Page 68: VEIDISLOD JUNE 2011

68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

einu sinni var

En línan mín var ofurseld afli og

ógnarþunga fossins, hún lá klemmd

undir klettabrúninni, föst, og engin

leið að hnika neinu til. Laxinn hélt

áfram að streitast á móti, nú var hann

kominn upp á móts við efra nefið.

Meter eftir meter hnikaðist út af hjólinu

og það svarraði í þegar línan urgaðist

á klettinum. Ég lagði frá mér stöngina.

Lagðist á magann og reyndi að teygja

hendina niður með línunni í þeirri

veiku von að mér tækist að losa, en hér

megnaði ekki einn mennskur hnefi

á móti jötunafli fossins; hann þreif í

hendina mína og mildi að hann kippti

mér ekki til sín af hálli klöppinni. Ég

reis seinlega upp, tók stöngina og

reyndi að sporna við að laxinn drægi

mjög hratt út af hjólinu. Hann stansaði

annað slagið, eins og hann væri að

hvíla sig, tók svo kipp og enn missti ég

nokkuð út af hjólinu.

Það var liðinn meira en hálftími síðan

hann tók. Ég var orðinn rennandi

blautur ofan frá bringu og niður að

hnjám, löðrandi í mosa og leir af því

að veltast á maganum á hálli og blautir

klöppinni. Svitinn lak í dropatali af

höku og nefi, ég titraði ofurlítið í

hnjáliðunum og það var ekki frítt við

að mér væri óglatt!

Ég hrökk við, það brá skugga við hlið

mér á klöppinni. Birgir var kominn

til mín, hann hafði ekki orðið var í

Höfðahyl, og rölt niður eftir til mín.

Ég hafði ekki heyrt hann koma fyrir

þrumuraust fossins. Birgir var fljótur að

hugsa og ekki seinni að framkvæma:

„Ég hleyp upp fyrir höfða, sæki ár í

prammann og við losum línunna

með henni.“ Og ég sá undir yljarnar á

honum, þegar hann tók sprettinn suður

yfir höfða.

Nú var bara að þrauka þangað til Birgir

kæmi aftur. Bara að laxinn vildi snúa

við , hlaupa niður og fram af. Þá var

von um að allt kæmi laust. En hann var

ekki á þeim buxunum. Eftir ótrúlega

stuttan tíma stóð Birgir aftur við hlið

mér, hann mundaði árina og brá henni

niður með línunni, en hvizz!! Það var

gripið sterklega á móti, mildi að fossinn

slöngvaði honum ekki eins og steini úr

slöngubyssu beint í faðm sér.

Skömmu seinna var leiknum lokið,

yfirlínan öll farin út, og þegar grönn

undirlínan fór að sargast á klöppinni,

þoldi hún ekki átakið og skarst. Laxinn

var farin og línan var farin, og nú hafði

ég tíma til að setjast niður, þurrka af mér

svitann og kveikja mér í sígarettu.

Ég komst til Húsavíkur með Austur lands­

rútunni, sat þar mosagróinn og blautur

við hliðina á ilmandi blómarós. Keypti

tuttugu manna rútu með mig einan

fram eftir aftur, því engan annan farkost

var að fá. Um kvöldið var ég búinn að fá

þrjá laxa, alla á Fossbrún að austan. Ég

var sáttur við laxinn sem vildi ekki snúa

við, og fór þess vegna með línuna mína.

Sáttur við sjálfan mig fyrir klaufaskapinn,

og sáttur við fossinn, sem með jötunafli

sínu hafði kennt mér að slaka aldrei á, og

fara aldrei af stað á eftir laxi á Fossbrún,

fyrr en ég væri viss um, að hann væri

kominn fram af brúninni.“

Við látum þetta gott heita úr viðtalinu

við Snorra Jónsson frá árinu 1983, en ef

til vill kíkjum við aftur í það síðar, enda

er það fullt af skemmtilegum sögum og

gullkornum.

Page 69: VEIDISLOD JUNE 2011

FermingarBrúðkaupAfmæli

Árshátíðir FundirMóttökur

veisluþjónusta

Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]

Lystaukandi veislur

Page 70: VEIDISLOD JUNE 2011

Jón Eyfjörð Friðrikssonvillibráðareldhúsið

Forréttur sem gæti skyggt á aðalréttinn

Mývatnsreyktur urriði með mangó og engifersósu

Við vorum með reyktan fisk í síðasta tölublaði og höldum okkur við það hér. Og notum Mývatnsreyktan urriða í tilefni af því að margir fengu þar fallega fiska í byrjun sumars. Að sjálfsögðu má nota aðra urriða, sjóbirting, bleikju eða lax. Aðalatriðð er að fiskurinn sé reyktur og helst með taði!

• Flakafreyktumurriða

• Fersktmangó

Engifersósa:

• 100gr.ferskurengifer

• 1dóssýrðurrjómi

•Maldonsalt

• Pipar

1. Rífið niður ferskan engifer og hrærið saman við eina dós af sýrðum rjóma. Bætið út í salti og pipar eftir smekk. Látið standa í a.m.k. tvær klukkustundir.

2. Beinhreinsið flak af silungi og skerið niður í þunnar sneiðar.

3. Afhýðið mangóið og saxið.

4. Ristið brauð skerið skorpuna frá og raðið á diska ásamt áðurtöldu og rétturinn er klár.

Þetta er hugsað sem forréttur, en óhætt er að vara við því að snæða of mikið af þessu, því þá gæti aðalrétturinn farið fyrir lítið.

70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

hráefni

aðferð

My

nd

irn

ar t

ók

Hei

mir

Ósk

arss

on

Page 71: VEIDISLOD JUNE 2011

71

Page 72: VEIDISLOD JUNE 2011

lífríkið

Hirðfíflið í fuglaríkinuStangaveiðimenn hafa um sig hirð skemmtilegra og litríkra fugla sem glæða tilveruna meiri gleði og skemmtun. Sumir eru ekkert nema auganyndið, en aðrir getað hjálpað til við að meta veiðihorfur eins og kunnugt er. Fáir gleðja augað meira heldur en straumöndin.

Straumöndin er mest á lindám landsins

og ekki síst þar sem þær taka sig upp

og falla úr móðurvötnum sínum. Þær

geta sést á dragám, en lindár eru málið.

Þær eru flestar þar sem þéttast er mýið.

Hvergi er meira af straumönd heldur en

á Laxá í Suður Þingeyjarsýslu og fjölgar

þeim á ánni eftir því sem ofar dregur. En

straumönin finnst þó um land allt. Til

útlistingar á útliti straumandar þá vísast

hér með í glæsilega mynd Einars Fals

Ingólfssonar, en mynd þessa tók hann

fyrir okkur á Kráká nú í vor.

Straumöndin er um margt merkileg

í íslenskri náttúru. Fyrir utan að vera

kannski litskrúðugasti fugl fuglaríkisins

þá er hér um Ameríska tegund að

ræða sem verpir hvergi í Evrópu nema

á Íslandi. Hún finnst síðan austast í

Síberíu, á Grænlandi og loks víða í

norðurhéruðum Bandaríkjanna og

Kanada. Hún heitir á ensku Harlequin,

sem er nafnið á hirðfíflum miðalda.

Vísar þar til fáránlega litskrúðugra

búninga fíflanna. Straumönd heitir hún

á íslensku til að skírskota til þess hversu

straumsækin hún er. En hún er afar elsk

að mikilum straumi og ólgum. Kannski

vegna þess að þar undir eru mýlirfurnar

þéttastar. Hún er svo elsk á ánni sinni

að hún flýgur aldrei hátt yfir og þræðir

árfarveginn í hvívetna. Komi hún að brú,

þá flýgur hún frekar undir hana heldur

en að lyfta sér yfir hana.

Straumöndin er staðfugl á Íslandi

og heldur til við klettóttar strendur á

veturna. Stundar þar sundlistir sínar

í lemjandi brimi við hamra og sker.

Gamalt nafn á henni er brimdúfa,

með greinilegri skírskotun til

vetrarstöðvanna.

Straumöndin er svo falleg, að hún hefur

verið sett í flokk með mandarínöndum

og fyrrum var mikið reynt að koma

straumöndum til í andagörðum í

Evrópu. Hingað til lands komu menn

gagngert til að safna eggjum hennar.

Var mikið flutt út af eggjum, þau voru

klakin í þar til gerðum útungunarhólfum

og ungarnir skriðu úr eggjunum. En

hvernig sem reynt var, tókst aldrei að

gera straumöndina að sýningargrip í

andagarði. Þær drápust jafn óðum.

Að sjálfsögðu er til gömul þjóðsaga

um hvernig straumöndin fékk sinn

ótrúlega skrautlega fjaðraham. Ekki

72 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Page 73: VEIDISLOD JUNE 2011

Straumönd

kemur heldur á óvart að það skuli hafa

verið Björn J.Blöndal sem skráði þá

sögu í einni af fjölmörgum bókum

sínum, en bækur hans er lesnar af

fjölda stangaveiðimanna enn þann

dag í dag. Algjörar perlur. Klassík í

veiðibókmenntum Íslendinga.

Sagan er þannig, að í árdaga var

straumönin alls ekkert skrautleg.

Hvorki steggurinn eða kollan. Þau

voru eiginlegha bara brún bæði tvö.

73

En eðli þeirra var þá þegar að takast á

straumhörðustu árnar. Eins og Björn

skráir, þá þurfti höfundur lífsins að

senda sendiboða sinn til þarfra erinda.

Sendiboðinn var lítill dvergur og þegar

hann kom að straumharðri á varð

honum ljóst að yfir ána kæmist hann

ekki án aðstoðar. Hann sá álengdar

hvar straumandarkolla svaf á eggjum

sínum. Hann gekk að henni og vakti

hana með því að nema fingrum á kinn

hennar. Hann bar síðan upp erindið,

hann þyrfti lífsnauðsynlega að komast

yfir elfuna. Kollan kallaði til bónda sinn

sem var nærstaddur á verðinum og bauð

straumandarsteggurinn dvergnum að

klifra upp á bak sér og halda sér fast.

Steggurinn spyrnti síðan út á ána, en

þegar þeir voru komnir yfir strangasta

strenginn, skaust undir þá gedda ein

bæði stór og hræðileg. Geddur þeirra

tíma þóttu og spýta eitri með biti sínu.

Geddan náði að bíta stegginn, en yfir

komst hann þó og skilaði dvergnum

áleiðis á för sinni. En steggurinn var

illa brenndur á hamnum. Áður en þeir

skyldu að skiptum sagði dvergurinn:

„Illa ert þú leikinn félagi og ekki skil ég

svona við þig.“ Lagði dvergurinn síðan

hendur yfir stegginn og útkoman var

hinn stórkostlegi fjaðrahamur sem við

þekkjum öll í dag. Kollan hins vegar er æ

síðan með hvíta bletti á kinn eftir fingur

dvergsins.

Page 74: VEIDISLOD JUNE 2011

74 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • júní 2011

Black Sheep túpa í aðalhlutverki

veiðisaga

Það var ansi skemmtileg uppákoman sem við félagarnir Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari og undirritaður upplifðum í Kjarrá að áliðnum ágúst metveiðisumarið 2005. Áin var vatnsmikil eftir miklar rigningar og dálítið lituð allan tímann. Þá var og mjög kalt í veðri þannig að árvatnið var aðeins um 2­3 gráður er menn hófu veiðar á morgnanna, en drattaðist í 6­8 gráður er leið á daginn. En á nóttunni fraus vatn í drullupollum á slóðinni með ánni og daginn sem við Einar áttum að aka inn fyrir Gilsbakkasel og ganga upp í Rauðabergin, var gnauðandi norðangarri og gekk á með éljum!

Við tókum einn 7 punda hæng í Neðra

Rauðabergi á göngunni upp eftir

og misstum annan í löndum í Mið

Rauðabergi. Einar fór fyrstu yfirferð

í Efsta Rauðabergi og negldi strax

fallegan 6 punda hæng á Sunray og

síðan setti ég í og landaði ca 8­9 punda

hrygnu á Black Sheep túpu, tveggja

tommu þyngdu flykki sem átti síðan

eftir að koma meira við sögu. Eftir

hrygnuna góðu fór Einar eina ferð yfir

hylinn en ekkert gerðist og fór ég þá

aftur með Black Sheep­inn, en um það

bil um miðjan hylinn sat allt fast, túpan

hafði krækst í stein eða hnaus í botni

og varð ekki rótað. Eftir ýmsar fettur,

brettur, rykki og tog, vafði ég línunni

um handlegginn og sleit fluguna af

mér. Ég sá eftir henni þessari, búin

að gefa mér marga laxa á mörgum

árum. Hálfgerð happafluga og kvöldið

áður hafði hún brotið fyrir mig ísinn

á Gilsbakkaeyrum, eftir brokkgenga

byrjun þar sem allir aðrir virtust vera að

skófla upp laxi á nánast hvað sem sett

var í ána.

Ég gaf Einari merki um að röðin væri

komin að honum og settist möglandi

í skjól við stóran stein og fór að grafa í

vasana eftir fluguboxi til að setja nýtt

undir. Ég var búinn að velja mér snjáða

gamla tommulanga svarta Frances,

þegar ég sá út undan mér að Einar var

fastur í botni, mjög á líkum slóðum og

ég sleit nokkrum mínútum áður. Það

hvarflaði að mér að ég kæmist aftur

að fyrr en ég hugði og haskaði mér að

hnýta nýju fluguna á tauminn. Því var

um það bil lokið, þegar ég áttaði mig

Page 75: VEIDISLOD JUNE 2011

75

á því, að Einar stóð skyndilega beint

fyrir framan mig, alvarlegur á svipinn

og sagði: „Ertu búinn að velja nýja?

Viltu ekki bara halda áfram með þessa

gömlu?“ Og þarna dinglaði hann fyrir

framan mig taumstubbnum sem ég

missti og Black Sheep túpunni góðu

sem ég var nýbúinn að slíta frá mér.

Einar hafði sum sé festi í botni og þegar

hann náði að rykkja sitt hafurstask

laust, kom túpan mín uppúr ánni, krækt

í krókana á túpu Einars. Einhver flækja

á taumstubbnum hafði komið í veg fyrir

að túpan rynni fram af línunni í öfuga

átt frá krókunum.

En ég var búinn að skipta um flugu og

þar vit sat. Einar fór aftur í hylinn og

setti í annan lax von bráðar og ég einn

til stuttu seinna á gömlu snjáðu Frances

túpuna. Ég þurfti síðan ekki að skipta

aftur um flugu, þess gerðist engin

þörf, við vorum fimm vaktir í ánni og

lönduðum tuttugu löxum á stöngina.

Laxamagnið var með ólíkindum og

maður gat bara velt fyrir sér hvað við

hefðum landað mörgum ef að skilyrði

hefðu verið betri, en þau voru blátt

áfram hörmuleg. En það breytti því

ekki að þetta var mikið ævintýri og

forréttindi að hafa fengið að taka þátt

í metsumrinu mikla í Þverá/Kjarrá

2005, þegar áin gaf yfir 4000 laxa. Black

Sheep túpan góða er síðan búin að gefa

mér fleiri fiska, bæði laxa og sjóbirtinga.

Einar Falur að þreyta lax í Efra Rauðabergi rétt áður en Black Sheep túpan steig á sviðið. Mynd gg.

Page 76: VEIDISLOD JUNE 2011

græjur

Taumar og taumaefniAllir veiðimenn eiga sér uppáhalds taumaefni. Taumaefni sem þeir hafa trú á, byggt á góðri reynslu. Taumaefni má skipta í 2 flokka. Annars vegar nælon taumaefni sem verið hefur á markaði í áratugi og hins vegar flúrokarbon efni sem kom á markað fyrir tiltölulega fáum árum.

Helsti galli við nælon taumaefni er hve það eldist illa. Taumaefni getur ekki talist stór hluti af búnaði veiðimanna og því er skynsamlegt að kaupa nýtt taumaefni á vorin en setja allt eldra efni í ruslið. Sem dæmi má nefna kostar spólan af Maxima taumefni aðeins 595 krónur eða lítið meira en ein laxafluga. Það er ágætis ráð að toga hressilega í nælonið áður en haldið er til veiða því fátt er verra en að tapa fiski vegna lélegs taumaefnis.

Við mælum með Maxima tauma­efninu en það má með góðri samvisku fullyrða að ekkert nælon taumaefni hefur notið viðlíka trausts meðal veiðimanna í áratugi. Maxima Chameleon (brúna efnið) er stíft, þolir mikið hnjask og er sterkt í hnútum. Maxima Chameleon er taumaefnið sem nauðsynlegt er að nota þegar veitt er með þungum túpum og / eða þar sem er stórgrýtt, klappir, hraun og gljúfur vegna þess

hve slitsterkt það er og þolir mikið hnjask. Maxima Ultragreen (græna efnið) er frábært efni þegar veitt er við viðkvæmari aðstæður. Maxima Ultragreen er uppáhalds taumaefni flestra leiðsögumanna við laxveiðar.

Flúrokarbon taumaefni kom á markað fyrir fáeinum árum eins og fyrr segir. Flúrokarbon efni eldist mun betur en nælonið en er talsvert dýrara efni. Helstu kostir Flúrokarbonefnis er hve sterkt það er miðað við sverleika auk þess sem flúrokarbon er nánast ósýnilegt í vatni og því kjörið þar sem aðstæð­ur eru viðkvæmar svo sem í tæru litlu vatni, í björtu veðri og svo framvegis. Flúrokarbon er einnig tilvalið að nota þegar veitt er með þurrflugu þar sem eðlisþyngd efnisins er meiri en eðlisþyngd nælons. Flúrokarbon sekkur því örlítið en liggur ekki ofan á vatnsfilmunni líkt og nælon gerir.

Við mælum með Seaguar í laxveiðar. Seaguar er það taumaefni sem flestir nota þar sem von er á þeim stóra svo sem í Rússlandi, Noregi, Aðaldal, Vatndalsá og víðar. Grand Max er flúrokarbonefnið sem við mælum með í silungsveiðina.

Gott er að eiga nokkra sverleika af taumaefni og hnýta niður, þ.e. vera með 2 til 3 fet af mesta sverleika við flugulínuna og hnýta grennra taumaefni við og hnýta þannig tauminn niður í minnsta sverleikann. Með þessu leggst taumurinn betur en það skiftir miklu máli sér í lagi

þegar veitt er með minni flugum.

Flúrokarbon og nælon eru ólík í upp­byggingu og styrk. Því er ekki gott að hnýta saman nælon og flúrokarbon þar sem flúrokarbonið sker nælon­efnið í sundur. Um lengd tauma má segja að góð þumalputta regla er að hafa tauminn í stangarlengd þegar veitt er með flotlínu en stytta jafnvel niður í 2 til 3 fet þegar veitt er með hraðsökkvandi línum. Veiðimenn, munið að taka með allt nælon og flúrokarbon heim en skilja það ekki eftir á veiðislóð.

Fróðleikshorn Veiðihornsins

Ólafur Vigfússon

76 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

Page 77: VEIDISLOD JUNE 2011

græjur

Korkers Crome – hægt að skipta um skósólana!

Veiðiflugur með

„Korkers Crome setur nýjan stand­ard þegar kemur að tæknilegum vöðlu skóm“, segir Hilmar Hansson í Veiðiflugum, en verslun hans er nú komin með umboð fyrir þessa þekktu vöðluskó.

Beðinn um að lýsa þessum um­töluðu vöðluskóm, sagði Hilmar eftirfarandi: Veiðiflugur hafa fengið umboðið fyrir Korkers vöðluskóna. Vara þessi sé þekkt fyrir gæði meðal veiðimanna um allan heim. Skórnir eru hertir með vír en ekki reimum og það er ótrúlega fljótlegt og þægilegt að fara í og úr þeim.

Botnarnir á skónum eru mesta bylt­ingin og það er hægt að skipta um botna eftir því hvernig aðstæðum menn eru að veiða í. Hægt er að fá filtbotn án nagla og filtbotn með nöglum. Skórnir koma með tveim botnum, gúmmíbotni og negldum gúmmíbotni. Eins og menn vita þá eru það botnarnir sem slitna mest og það er því hreint magnað að hægt sé að kaupa aukabotna þegar þeir sem fylgdu með skónum eru búnir. Skórnir kosta 33.900 kr.

Verslunin Veiðiflugur hefur tekið að sér umboð hinnar þekktu útivistar­línu Patagonia. Patagonia er hvað þekktust fyrir útivistar­ og veiðifatn­að, en kemur einnig víðar við.

Að sögn Hilmars Hanssonar hjá Veiðiflugum, er Pataonia með 30 vöruflokka í veiðifötunum 2011. „Við vinnum bara með bestu efnin og með bestu hönnuðunum til að gera bestu veiðifötin. Við fáum hjálp frá veiðimönnum um allan heim til að vera viss um að fatalínan okkar fyrir 2011 sé sú besta sem völ er á,“ sagði Hilmar, og bætti við: „Ef þú notar Patagonia, þá getur þú einbeitt þér að veiðinni og þarft ekki að hafa áhyggjur af veiðiföt­unum eða veðrinu“.

Patagonia sendi nýlega frá sér einstaklega skemmtilegt vefrit með nýjustu vörulínum sínum. Sjón er söggu ríkari, smelltu á forsíðuna til að skoða ritið.

77

Page 78: VEIDISLOD JUNE 2011

Gott í lúðuna

Hraðvirkt sleipiefni!

Silungaháfarnir komnir í Vesturröst

Hér er eitthvað fyrir sjóstanga-veiðimennina, en marga þeirra dreymir um að setja í og glíma við stórlúðu. Glímur við þær geta verið all svakalegar, enda engin smásmíði sumar þeirra. Þetta fyrirbæri fæst í Vesturröst og um það segja menn þar á bæ eftirfarandi: Hér er smá Wildeye Giant gig. Þetta apparat frá Strom er mjög gott veiðitæki í sjó sem hefur reynst mjög vel á Íslandi í stærri botnfisk eins og t.d.lúðu. Hægt er að draga það með botni, það er síðan dregið upp um 10 metra og svo sleppt og dregið með botni aftur. Sporðurinn sveiflast til og frá og æsir bráðina.Giant gig kemur í 264 gr, 18 cm og 385 gr 23 cm. Það fæst í nokkrum litum, hægt er að skipta um hala og fá auka hala.

Menn þekkja það ákfalega vel að flugulínur geta orðið stamar og stafar það oft af hreinum og klárum skít. Það þarf að hirða flugulínur eins og annan veiðibúnað, en mönnum vex það e.t.v. í augum að eyða miklum tíma í það á veiðistað að rekja niður línu og strjúka hana með rökum klút. Hér er komin lausn sem boðið er upp á í Vesturröst. Hér er gott efni til að gera flugulínur sleipari, en þessu má spreyja beint á línuna þegar hún er á hjólinu og allt klárt á svipstund. Einstaklega gott í þeim tilvikum þegar menn eru í veiði og vilja ekki nota dýrmætan veiðitíma til að renna línu í gegnum klút.

Vesturröst er nú farið að flytja aftur inn all sérstaka silungaháfa sem að eru af mörgum taldir þeir bestu sem finnast. Mjög vandaðir háfar sem hafa fengist af og til á Íslandi í 35 ár. Þeir eru framleiddir af feðgum langt inn í skógum Norður Ameríku. þeir eru úr léttu efni, með góðu kork haldfangi með langri og mjúkri teygju. Netið er sérlega gott að því leiti að það flækist ekki inní, þannig að gott er að setja þá beint í lykkju á bakið t.d. á veiðijakkanum eða veiðivestinu.

78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011

græjur

Page 79: VEIDISLOD JUNE 2011

Eitt og annað um sökkendaÞað má fullyrða að mikil bylting hafi orðið með tilkomu „poly­tauma“ eða sökkenda fyrir fáeinum árum. Þegar plasthúðaðir sökk­endar komu á markaðinn má segja að hrun hafi orðið í sölu á auka­spólum í fluguhjól en sprenging í sölu á flotlínum á kostnað sökklína enda gagnast sökkendar í mörgum tilfellum þar sem áður voru not­aðar sökklínur.

Merkingar á sökkendum eru margvíslegar. Á meðan sumir framleiðendur merkja sökkeda sína „Intermediate“, „Sinking“, „Fast Sinking“ o.s.frv. merkja aðrir sökkenda sína með tölustöfum.

Bandaríski línuframleiðandinn RIO merkir sína sökkenda með tölustöf­unum 1,5 – 2,6 – 3,9 – 5,6 o.s.frv. Þessar tölur segja til um hve hratt sökkendinn sekkur eða 1,5 tomma á sekúndu, 2,6 tommur á sekúndu og svo framvegis.

Sökkendar eru fáanlegir mis­langir. Lengstu sökkendar eru fyrir tvíhendur en þeir styttri ætlaðir einhendum. Sökkenda er auðvelt að tengja við flugulínu þar sem á þeim er lykkja sem tengist við taumalykkju flugulínunnar.

Sökkendar eru byggðir upp líkt og flugulínur, þ.e. innst er kjarni sem klæddur er með kápu úr plasti. Í plastkápuna er blandað tungste­nögnum í mismiklu magni. Mest í hraðsökkvandi enda en minnst í sökkenda sem sökkva hægar. Ólíkt flugulínum er kjarninn í sökkendum gjarnan úr næloni. Líkt og kemur fram í öðru fróðleikskorni Veiði­hornsins eldist nælongirni illa. Því er skynsamlegt að taka vel á sökk­endum áður en þeir eru tengdir við flugulínur. Það er ágætt á vorin að kíkja yfir sökkendana og henda þeim gömlu ef þeir eru farnir að veikjast því ekki er gott að tapa fiski á lélega tauma eða sökkenda.

Fróðleikshorn Veiðihornsins

Ólafur Vigfússon

græjur

www.veidikortid.is

35 vatnasvæði aðeins kr. 6000

Ertu búinn að fá þér Veiðikortið?

00000

Page 80: VEIDISLOD JUNE 2011

VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni

Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.

Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif

Netfang: [email protected]