eystrahorn 16. tbl. 2016

6
Miðvikudagurinn 20. apríl 2016 Eystrahorn Gleðilegt sumar 16. tbl. 34. árgangur Mikil ánægja með ómtækið Ómar heldur áfram að safna gullverðlaunum Viltu leika í kvikmynd – vantar 17 statista Mikil ánægja er meðal starfsfólks heilsugæslunnar með nýja ómtækið sem stofnuninni var fært að gjöf eftir almenna fjársöfnun meðal íbúa, fyrirtækja og félagasamtaka á Hornafirði. Hollvinasamtök heilbrigðistofnana á Hornafirði lagði sitt af mörkum við söfnunina og á myndinni eru Elín Freyja læknir að sýna og útskýra notagildi tækisins fyrir fulltrúum í hollvinasamtökunum og sagði m.a.: Nú hefur nýja ómtækið verið tekið í notkun og nánast hægt að fullyrða að nú þegar hefur það verið notað oftar en gamla tækið. Við höfum verið með sérfræðinga á staðnum sem hafa nýtt sér tækið óspart, eins og hún Berglind hjartalæknir og Ragnhildur kvensjúkdómalæknir. Þar fyrir utan höfum við hin verið að grípa í það, og með hverri ómskoðun eykst reynslan og sjálfstraustið. Tækið hefur verið að nýtast í ýmis verkefni, eins og t.d. að greina gallsteina, athuga hvort úthreinsun hafi átt sér stað eftir fósturlát, athuga hvort ólétta sé staðsett í legi, reikna út meðgöngutíma út frá lengd fósturs, skoða konur rétt fyrir fæðingu og athuga hvort barnið snúi rétt, skoða hvort það séu merki um blæðingu í kviðarholi eftir slys, athuga hvort lungu séu samfallin og svo mætti lengi telja. Með aukinni reynslu á tækið, vonast ég til að notkun þess aukist enn frekar og hægt verði að spara enn fleiri ferðir til Reykjavíkur. Þetta verkefni er á vegum spænsks kvikmyndafyrirtækis sem fæst við heimildarmyndir. Þessi, hluta leikna heimildarmynd er um Baskavígin sem áttu sér stað 1615 á Vestfjörðum (oftast kallað Spánverjavígin hérlendis). Sagt er frá spænsku sjómönnunum sem stunduðu veiðar hér við land en voru síðan drepnir af Íslendingum með leyfi Ara sýslumanns í Ögri. Jón Guðmundsson lærði skráði þessa sögu og er frásögn hans fylgt í myndinni. Spænska teymið eru samtals 18 manns þar af 6 leikarar sem koma með alla búninga og proppsið með sér. Seylan sem er fyrirtækið hans Hjálmtýs er svo samstarfsaðilinn. Þið getið skoðað það á netinu: www. seylan.is Það koma nokkrir Íslendingar frá Reykjavík, þar af 3 leikarar, sem leika Ara í Ögri, Jón prest Grímsson og Jón Guðmundsson lærða. Svo vantar okkur samtals 17 statista. Ekki verra sumir séu með skegg. Þeir eiga að leika veðurbitna Íslendinga og Baska sem mætast við „ströndina“ og tortryggni á að vera í andrúmsloftinu. Sjómennirnir reyna að talast við (en talið mun ekki heyrast í mynd því það er talað yfir það). Svo það er ekki nauðsynlegt að það séu leikarar í hlutverkunum. Samkvæmt tökuplani Spánverjanna þá áætla þeir tökur verði þriðjudaginn 3. maí kl. 17:00 - 20:40 þá vantar okkur 17 manns til að leika Baska og kl. 20:40-22:00 vantar 11 Baska og hinir 6 gætu farið heim. Miðvikudaginn 4. maí kl. 10:30-18:10 vantar 3 Baska og 10 bændur (geta verið aðrir leikarar en þarf ekki) og kl. 18:25-18:40 vantar 3 Baska (það verða sennilega að vera sömu Baskarnir og fyrri daginn). Við sjáum um ferðakostnað, uppihald á staðnum og kr.10.000 fyrir fyrri daginn pr. statista og eitthvað meira fyrir þann seinni. Vonandi getum við greitt statistunum sem fyrst en þó kannski ekki fyrr en í ágúst-sept. n.k. Þeir sem taka þetta að sér verða settir á kreditlista myndarinnar. Ef félagsskapur tekur þetta að sér verður hann jafnframt settur á þakkarlistann. Áætlað er að sýna myndina víða um landið og verður öllum sem að myndinni standa boðið á þá sýningu sem verður næst ykkur. Markmiðið er að klára myndina í sumar svo hægt verði að senda hana á alþjóðlega kvikmyndahátíð í San Sebastian á Spáni, sem er ein af stærstu kvikmyndahátíðum í Evrópu. Og gaman að geta þess að Hilmar Örn Hilmarsson mun sjá um tónlistina í myndinni. Sumar-Humartónleikar laugardaginn 30. apríl. Ómar Fransson trillukarl og margverðlaunaður framleiðandi á gæðamatvælum úr fiski var á dögunum veitt gullverðlaun bæði fyrir grafinn og reyktan silung af Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna. Á myndinni er hann með viðurkenningarskjölin.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 28-Jul-2016

244 views

Category:

Documents


6 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 16. tbl. 2016

Miðvikudagurinn 20. apríl 2016

EystrahornGleðilegt sumar16. tbl. 34. árgangur

Mikil ánægja með ómtækið Ómar heldur áfram að safna gullverðlaunum

Viltu leika í kvikmynd – vantar 17 statista

Mikil ánægja er meðal starfsfólks heilsugæslunnar með nýja ómtækið sem stofnuninni var fært að gjöf eftir almenna fjársöfnun meðal íbúa, fyrirtækja og félagasamtaka á Hornafirði. Hollvinasamtök heilbrigðistofnana á Hornafirði lagði sitt af mörkum við söfnunina og á myndinni eru Elín Freyja læknir að sýna og útskýra notagildi tækisins fyrir fulltrúum í hollvinasamtökunum og sagði m.a.:Nú hefur nýja ómtækið verið tekið í notkun og nánast hægt að fullyrða að nú þegar hefur það verið notað oftar en gamla tækið.Við höfum verið með sérfræðinga á staðnum sem hafa nýtt sér tækið óspart, eins og hún Berglind hjartalæknir og Ragnhildur kvensjúkdómalæknir. Þar fyrir utan höfum við hin verið að grípa í það, og með hverri ómskoðun eykst reynslan og sjálfstraustið. Tækið hefur verið að nýtast í ýmis verkefni, eins og t.d. að greina gallsteina, athuga hvort úthreinsun hafi átt sér stað eftir fósturlát, athuga hvort ólétta sé staðsett í legi, reikna út meðgöngutíma út frá

lengd fósturs, skoða konur rétt fyrir fæðingu og athuga hvort barnið snúi rétt, skoða hvort það séu merki um blæðingu í kviðarholi eftir slys, athuga hvort lungu séu samfallin og svo mætti lengi telja.

Með aukinni reynslu á tækið, vonast ég til að notkun þess aukist enn frekar og hægt verði að spara enn fleiri ferðir til Reykjavíkur.

Þetta verkefni er á vegum spænsks kvikmyndafyrirtækis sem fæst við heimildarmyndir. Þessi, að hluta leikna heimildarmynd er um Baskavígin sem áttu sér stað 1615 á Vestfjörðum (oftast kallað Spánverjavígin hérlendis). Sagt er frá spænsku sjómönnunum sem stunduðu veiðar hér við land en voru síðan drepnir af Íslendingum með leyfi Ara sýslumanns í Ögri. Jón Guðmundsson lærði skráði þessa sögu og er frásögn hans fylgt í myndinni.Spænska teymið eru samtals 18 manns þar af 6 leikarar sem koma með alla búninga og proppsið með sér. Seylan sem er fyrirtækið hans Hjálmtýs er svo samstarfsaðilinn. Þið getið skoðað það á netinu: www.seylan.is Það koma nokkrir Íslendingar frá Reykjavík, þar af 3 leikarar, sem leika Ara í Ögri, Jón prest Grímsson og Jón Guðmundsson lærða. Svo vantar

okkur samtals 17 statista.Ekki verra að sumir séu með skegg. Þeir eiga að leika veðurbitna Íslendinga og Baska sem mætast við „ströndina“ og tortryggni á að vera í andrúmsloftinu. Sjómennirnir reyna að talast við (en talið mun ekki heyrast í mynd því það er talað yfir það). Svo það er ekki nauðsynlegt að það séu leikarar í hlutverkunum. Samkvæmt tökuplani Spánverjanna þá áætla þeir að tökur verði þriðjudaginn 3. maí kl. 17:00 - 20:40 þá vantar okkur 17 manns til að leika Baska og kl. 20:40-22:00 vantar 11 Baska og hinir 6 gætu farið heim.Miðvikudaginn 4. maí kl. 10:30-18:10 vantar 3 Baska og 10 bændur (geta verið aðrir leikarar en þarf ekki) og kl. 18:25-18:40 vantar 3 Baska (það verða sennilega að vera sömu Baskarnir og fyrri daginn).Við sjáum um ferðakostnað, uppihald á staðnum og kr.10.000 fyrir fyrri daginn pr. statista og eitthvað meira

fyrir þann seinni.Vonandi getum við greitt statistunum sem fyrst en þó kannski ekki fyrr en í ágúst-sept. n.k.Þeir sem taka þetta að sér verða settir á kreditlista myndarinnar. Ef félagsskapur tekur þetta að sér verður hann jafnframt settur á þakkarlistann.Áætlað er að sýna myndina víða um landið og verður öllum sem að myndinni standa boðið á þá sýningu

sem verður næst ykkur.Markmiðið er að klára myndina í sumar svo hægt verði að senda hana á alþjóðlega kvikmyndahátíð í San Sebastian á Spáni, sem er ein af stærstu kvikmyndahátíðum í Evrópu. Og gaman að geta þess að Hilmar Örn Hilmarsson mun sjá um tónlistina í myndinni.

Sumar-Humartónleikar laugardaginn 30. apríl.

Ómar Fransson trillukarl og margverðlaunaður framleiðandi á gæðamatvælum úr fiski var á dögunum veitt gullverðlaun bæði fyrir grafinn og reyktan silung af Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna. Á myndinni er hann með viðurkenningarskjölin.

Ritheimildir á borð við Spænsku vísur nefna að þessi hópur 14 skipbrotsmanna hafi farið um með ránum. Þeir komu við hjá prestinum á Stað í Súgandafirði og „gripu þar margt“, þaðan geystust þeir áfram til Þingeyrar með sinni „hnuplan og griplum“. Á Þingeyri fóru þeir í danska verslunarhúsið og stálu þaðan salti og skreið en fáu öðru. Þeir bjuggu síðan um sig í sjóbúðinni Skaganausti á Fjallaskaga við mynni Dýrafjarðar norðanmegin. Dýrfirðingar þekktu eflaust ekki til þessara manna en óttuðust e.t.v. að hér væru sjóræningjar á ferð enda var mikið um þá í Norðurhöfum á þessum árum, til dæmis höfðu enskir sjóræningjar farið fram með ofbeldi og ránum í Vestmannaeyjum árið 1614. Heimamenn brugðust því skjótt við og söfnuðu liði.

Þann 5. október 1615 fóru 30 manns að næturlagi og drápu alla Baskana nema ungling sem komst undan til þeirra skipbrotsmanna sem siglt höfðu skútunni til Önundafjarðar.

Í Sannri frásögu segir að 5 menn hafi vakað yfir bátunum en hinir 9 verið sofandi inni í naustinu. Heimamenn umkringdu húsið og einum þeirra tókst að laumast að vaktmönnunum og taka frá þeim vopn. Þegar hann reyndi í annað sinn urðu Baskar hans varir og særðu hann. Heimamenn komu til aðstoðar og voru „bátavakta-rar saxaðir og sundraðir“. Síðan var farið gegn þeim sem í húsinu voru, þakið rofið og mennirnir drepnir. Að því loknu var herfang tekið, mennirnir afklæddir og líkunum sökkt í sjóinn.

Dýrafjarðarslag

AMERIKANUAK

CBS · REI

40 URTEMUGA

www.baskavinir.is / www.1615.info

Texti: Sigrún A

ntonsdóttir. Teikningar: G

uillermo Z

ubiaga. Hönnun: Ú

lfur Kolka. K

ort: Aðalsteinn Svanur Sigfússon. U

msjón: Ó

lafur J. Engilbertsson, M

ár Jónsson. Ráðgjöf: M

agnús Rafnsson, T

apio Koivukari. Prentun: Sýningakerfi.

Page 2: Eystrahorn 16. tbl. 2016

2 EystrahornMiðvikudagurinn 20. apríl 2016

EystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Tjörvi ÓskarssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Hafnarkirkja

50 ára

HafnarkirkjaSunnudaginn 24. apríl, fyrsti sunnudagur í sumri.

Messa kl. 11:00

Prestarnir

Sigurblót á Höfn

Sigurblót Ásatrúarmanna verður við Sílavík á sumardaginn fyrsta og hefst kl. 17.

Fögnum því saman að sumarið er að sigra veturinn. Eggjaleit og sumargjafir fyrir alla krakka. Grilluðu eplin og goðapylsurnar verða á sínum stað.

Öll hjartanlega velkomin, Svínfellingagoði.

Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, Guðjóns Sigurðar Arasonar bónda, Hólmi Mýrum Hornafirði.

Ari Sigurður Guðjónsson Auðbjörg ÞorsteinsdóttirIngunn Hróðný Guðjónsdóttir Hilmar HróarssonMagnús Guðjónsson Guðrún GuðmundsdóttirSigursveinn Guðjónsson og afabörn

Bertha Ingibjörg Gunnarsdóttir fæddist þann 9. September 1934 í Garði, sem í dag er Hafnarbraut 16, á Höfn í Hornafirði. Hún andaðist að Hjúkrunarheimilinu á Hornafirði þann 31. mars sl.Foreldrar hennar voru Jónína Ástríður Jónsdóttir, fædd 28. ágúst 1912 í Suðurhúsum í Borgarhöfn í Suðursveit, dáin 29.október 2001 og Gunnar Snjólfsson, fæddur 2. Nóvember 1899 í Þórisdal í Lóni, dáinn 30. ágúst 1983.Systkini Berthu eru: Ásta Bryndís, fædd 1935, maki Helgi M. Símonarson; Svava Guðrún, fædd 1936, maki Einar Baldvin Ragnarsson, látinn; Gísli Örn, fæddur 1940, sambýliskona Halldóra Stefánsdóttir; Bragi, fæddur 1942, látinn 1961; Steinlaug fædd 1943, maki Kristján E. Ragnarsson, látinn; Gunnhildur, fædd 1943, látin 2006; Jón Gunnar, fæddur 1948, maki Tomcsányi Zsuzsanna.Bertha giftist á jóladag 1959 eftirlifandi eiginmanni sínum Karli Sigurðssyni frá Haga á Höfn í Hornafirði, fæddur 13. júlí 1934. Þau eignuðust fjögur börn:Gunnar, fæddur 1953, kona hans er Sigrún Dúfa Helgadóttir og eru þau búsett í Mosfellsbæ. Agnes, fædd 1955, hennar maður er Sigmundur Annasson, búsett í Noregi. Bragi, fæddur 1964, kona hans er Valdís Kjartansdóttir búsett á Höfn í Hornafirði. Ólafur Karl, fæddur 1968, kona hans er Aðalheiður Þyrí Haraldsdóttir, búsett í Svíþjóð. Barnabörnin eru 12 talsins og barnabarnabörnin 11.

Bertha ólst upp að Hafnarbraut 18 og lauk grunnskólaprófi á Höfn en hélt síðan til náms við Héraðsskólann að Laugarvatni og lauk þar prófi með góðum vitnisburði. Bertha og Karl hófu sambúð 18 ára gömul að Haga á Höfn. Lengst af bjuggu þau að Kirkjubraut 8 en síðast að Sandbakka 11. Síðustu 6 æviár sín dvaldist Bertha á Hjúkrunarheimilinu á Hornafirði vegna heilsubrests.Bertha sinnti húsmóðurstörfum meðan heilsa hennar leyfði. Hún var miklum tónlistargáfum gædd og lék mikið á píanó en greip einnig í harmonikku. Margir af eldri kynslóðum Hornfirðinga minnast þess er hún lék fyrir dansi, en hún lék á fjölda dansleikja í gegnum árin ásamt eiginmanni sínum og við ýmis önnur tækifæri, m.a. vígslu Hótels Hafnar.Útför Berthu fór fram frá Hafnarkirkju þann 8. apríl sl. Fjölskyldan vill koma á framfæri innilegum þökkum fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Berthu og einnig fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins sérstakar þakkir fyrir hlýju og góða umönnun síðustu árin.

Andlát

FÉLAGSSTARF FÉLAGS ELDRI HORNFIRÐINGA

SAMVERUSTUND Þorvarður Árnason forstöðumaður

Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Nýheimum talar um norðurljós og sýnir myndir.

Söngur og norðurljós í samverustundinni.

AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI HORNFIRÐINGA verður haldinn í Ekrunni sunnudaginn

24. apríl og hefst með góðum kaffisopa og kökum.

Síðan eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagar eru hvattir til að mæta vel og er skorað

á fólk 60 ára + að gerast félagar.

Stjórnin

Aðalfundur Framsóknarfélags

Austur-SkaftafellssýsluFundurinn verður haldinn mánudaginn 2. maí kl. 20:00 í húsi Slysavarnafélagsins við Álaugarveg.

1. Venjuleg aðalfundarstörf.2. Önnur mál.

Stjórnin.

Page 3: Eystrahorn 16. tbl. 2016

3Eystrahorn Miðvikudagurinn 20. apríl 2016

Ársfundur Náttúrustofu Suðausturlands ses. verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2016 kl. 15 í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Á undan venjubundnum fundarstörfum verða haldin tvö erindi á vegum Náttúrustofu Suðausturlands.

• Áningarstaðir og örugg vegútskot á Suðausturlandi: Snævarr Guðmundsson

• Grunnrannsóknir á lífríki Míganda í Skarðsfirði: Herdís Ólína Hjörvarsdóttir

Kaffi á könnunni og allir velkomnir Stjórnin

Nýr Ekrumeistari krýndur! Andlát

Fyrir viku var spilaður Hornafjarðarmanni í Ekrunni og var keppt um Ekruskálina. Eftir harða heppni og bráðabana sem að sögn Alberts Eymundssonar föðurs Hornafjarðamannans hefur ekki gerst áður. Það var það síðan Valdís Harðardóttir sem stóð uppi sem sigurvegari og afhenti fyrrum meistari Gísli Ö. Gunnarsson Valdísi skálina góðu. Til hamingju Valdís !

Guðjón Sigurður Arason, Hólmi Mýrum, Hornafirði, fæddist á Borg á Mýrum, Hornafirði 11. maí 1921. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu á Höfn 28. mars 2016. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Gísladóttir, f. 1891 í Þórisdal í Lóni, d. 1992, og Ari Sigurðsson, f. 1891 á Borg á Mýrum, d. 1957. Systkini Guðjóns eru: 1) Vigfús (sammæðra), f. 1911, d. 1975 (faðir hans Vigfús Sigurðsson, 1880-1911), 2) Sigurður, f. 1916, d. 1943, 3) Gísli Ólafur, f. 1917, 4) Fjóla, f. 1919, d. 2013, 5) Lilja, f. 1922, 6) Ástvaldur Hólm f. 1924, d. 2009, 7) Steinunn, f. 1926, d. 2015, 8) Ragnar Guðmundur, f. 1928, 9) Jón, f. 1929, 10) Hólmfríður, f. 1933.Kona Guðjóns var Margrét Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Kyljuholti á Mýrum f. 12.apríl 1930 d. 31. júlí 2011. Foreldrar hennar voru Ingunn Bjarnadóttir tónskáld f. 1905 d. 1972 og Sigurður Kristmar Eiríksson verkamaður f. 1893 d. 1970.Börn Margrétar og Guðjóns eru: 1) Ari Sigurður, f. 1948, maki Auðbjörg Þorsteinsdóttir, þeirra dætur: Heiður, f. 1971, Friðný, f. 1974, og Ingibjörg, f. 1977. 2) Ingunn Hróðný, f. 1951, maki Hilmar Hróarsson, hennar dætur frá fyrra hjónabandi: Þórveig Benediktsdóttir, f. 1969, og Margrét Benediktsdóttir, f. 1971. 3) Magnús Guðjónsson, maki Guðrún Guðmundsdóttir, þeirra börn: Guðjón Örn, f. 1984, Birna Jódís, f. 1987, og Arndís Ósk, f. 2000. 4) Sigursveinn Guðjónsson, f. 1967, sonur hans: Þorlákur Bjarki, f. 1991. Aðrir afkomendur eru orðnir 20 talsins.Guðjón fæddist á Borg og ólst þar upp. Skólagangan var ekki löng og hann fór ungur að vinna. Árið 1946 fluttu Guðjón og Margrét, til Hveragerðis, en fluttu eftir stuttan tíma austur að Borg á Mýrum þar sem þau bjuggu í sambýli við foreldra hans. Vorið 1952 fluttu þau að Hólmi á Mýrum og byggðu upp jörðina, sem staðið hafði í eyði í nokkur ár. Þau bjuggu í Hólmi upp frá því. Í Hólmi var blandaður búskapur auk garðræktar. Með búskapnum sótti hann vinnu þegar færi gafst. Meðal annars var hann lengi póstur og sá um skólaakstur barna um árabil. Guðjón var bóndi og maður sinnar sveitar. Síðustu æviárin dvaldi hann á Hjúkrunarheimilinu á Höfn. Útför Guðjóns fór fram frá Hafnarkirkju þriðjudaginn 5. apríl. Jarðsett var í Brunnhólskirkjugarði.

Til sölu HúsbíllFord Transit 1995, lítið keyrður

með öllum búnaði.Upplýsingar í síma 892-8890

Aðalfundur Krabbameinsfélags Suðausturlands verður haldinn í Ekru fimmtudagskvöldið 28.apríl nk. kl. 20:00Venjuleg aðalfundarstörf.

Þórhildur Kristjánsdóttir stuðningsfulltrúi hjá Krafti kynnir starfsemi félagsins og hlutverk stuðningsfulltrúa.

Kaffi á könnunni og allir áhugasamir hvattir til að mæta.Stjórn Krabbameinsfélags Suðausturlands.

Page 4: Eystrahorn 16. tbl. 2016

4 EystrahornMiðvikudagurinn 20. apríl 2016

Markaðsstofa Suðurlands efnir til funda um markaðssetningu í ferðaþjónustu á Höfn og á Kirkjubæjarklaustri.

26.4. Hótel Höfn frá kl. 14:30-16:3027.4. Kirkjubæjarstofa frá kl. 13:00-15:00

Dagskrá:• Markaðssetning og samstarf - Dagný H. Jóhannsdóttir,

framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands• Áherslur 2016 í markaðssetningu Íslands á erlendum

mörkuðum ásamt kynningu á nýrri herferð Íslandsstofu „Iceland Academy“ - Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu

• Markaðsgreining áfangastaðarins Suðurlands – fyrstu niðurstöður greiningarinnar – Haraldur Daði Ragnarsson, Manhattan Marketing

Fundurinn er öllum opinn og hlökkum við til að sjá sem flesta.

S: 560-2044 | www.south.is/markadsstofan | [email protected]

Starf í boði í Hala SuðursveitStarfsmann vantar tímabundið til að sinna bókunum

við gistiþjónustuna á Hala í Suðursveit.Starfstími frá 15. maí til 1. febrúar 2017.

Góð tölvukunnátta, vandvirkni og nákvæm vinnubrögð nauðsynleg.

Frekari upplýsingar gefur Þorbjörg í

síma 478-1073 ; [email protected]

Starfastefnumót

TækifæriFramtíð

Menntun

Hæfni

Kæru fyrirtæki Hornafjarðar við bjóðum ykkur á stefnumót Næstkomandi haust er tækifæri til að skella sér á stefnumót við starfsmenn framtíðarinnar, alla íbúa og önnur fyrirtæki. Stefnumótið er viðburður sem felur í sér einstakt tækifæri til kynningar á starfsgreinum og starfsemi fyrirtækja.

Þeir aðilar, fulltrúar starfsgreina, einstök fyrirtæki eða fyrirtækjahópar sem hafa áhuga á að kynna sér málið frekar eða taka beinan þátt í þessum metnaðarfulla viðburði, vinsamlega hafið samband við Hugrúnu Hörpu Reynisdóttir, verkefnastjóra hjá Þekkingarsetri Nýheima [email protected] eða í síma 470-8089.

Kynningarfundur um Starfastefnumótið verður haldinn þriðjudaginn 3. maí klukkan 20:00 í Nýheimum.

SpámiðillKristján Hlíðar spámiðill

og heilari verður með einkatíma

á Höfn 22.-24. apríl nk.

Tímapantanir í síma 699-7419

Efnalaug Dóru Óskum eftir sumarstarfsfólki. Upplýsingar veitir Dóra á staðnum.

Verslun Dóru

Óskum eftir starfskrafti í framtíðarstarf. Frekari upplýsingar er að fá hjá

Dóru eða Þórhildi á staðnum.

Aðalfundur 3. Framboðsins verður haldinn í húsi AFLs að Víkurbraut 4 mánudaginn 25. apríl kl. 20:30.Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál

Stjórnin.

Page 5: Eystrahorn 16. tbl. 2016

5Eystrahorn Miðvikudagurinn 20. apríl 2016

Ferðafélag Austur- Skaftfellinga Fjölskylduferð 21. apríl, sumardagurinn fyrsti.

Fögnum sumri með göngu og jóga/hugleiðslu, Ásgerður jógakennari leiðbeinir.Gengið niður með Þorgeirstaðará og niður að Papafirði að Þorgeirstaðarklifum þar sem er gamalt útræði og fiskverkun var fram yfir 1920. Kannski finnum við einn smá hellir. Ferðatími í heild ca. 4 klst. Lagt af stað kl. 9:00 frá Tjaldstæði Hafnar, SKG.Verð 1000 kr. pr. mann, 1500 kr. fyrir hjón frítt fyrir 16 ára og yngri.Öll börn 16 ára og yngri fá sumargjöf. Munið nesti og klæðnað eftir veðri. Hundar ekki æskilegir. Hlökkum til að sjá ykkur. Hægt er að fylgjast með á fésbókarsíðu félagsins. Frekari upplýsingar veitir Ragna Pétursdóttir sími 662-5074

Á Hornafirði hefur náðst mikil og góð samþætting í heimahjúkrun, félagslegri heimaþjónustu og málefnum fatlaðra. Málaflokkarnir hafa verið á könnu sveitarfélagsins frá árinu 1996 og því komin löng og góð reynsla á samvinnuna. Árið 2012 var gæðastyrkur sem stofnunin fékk nýttur til aukinnar samþættingar á heimaþjónustu í samfélaginu. Í kjölfarið var stofnuð Heimaþjónustudeild þar sem öll heimaþjónusta er skipulögð hvort sem hún er félagslegs eða hjúkrunarlegs eðlis. Samþættingin hafði það að markmiði að auka samfellu í þjónustu, hækka þjónustustig og hagræða í rekstri. Heimaþjónustudeildin hefur sameiginlega starfsaðstöðu en þangað mæta þeir starfsmenn er sinna heimaþjónustu hvort sem um ræðir hjúkrun, heimilishjálp eða félagslega heimaþjónustu. Allar beiðnir um þjónustu eru afgreiddar í þjónustuteymi sem í sitja hjúkrunarstjóri heilsugæslu, félagsmálastjóri og forstöðumaður heimaþjónustudeildar. Þjónustuteymið metur og skilgreinir þjónustuþörf umsækjanda. Í samráði við þjónustuþega og starfsmenn er þjónustan skipulög þannig að starfsfólk nýtist sem best og að þjónustuþegi fái þá þjónustu sem hann þarf á að halda og sé öruggur. Einn af meginkostum sameiginlegrar starfstöðvar er að auðveldara er fyrir starfsfólk að samræma þjónustuna. Þannig minnka líkur á að margir starfsmenn séu að koma á sama tíma til þjónustuþega og svo jafnvel enginn þess á milli. Samvinnan gengur mjög vel á þennan hátt. Á síðasta ári eða vorið 2015 var tekin ákvörðun um að vinna að því að taka inn hugmyndafræðina „þjónandi leiðsögn“ (gentle teaching) í samvinnu við Akureyrarbæ. Fóru 6 starfsmenn frá Hornafirði til náms síðastliðið vor. Námið hefur síðan haldið áfram í formi fjarnáms og er áætlað að seinni lotan fari fram nú í vor og útskrifast þá þessir starfsmenn með nafnbótina mentorar. Það er því markmiðið að starfsfólk heimaþjónustudeildar starfi samkvæmt hugmyndafræðinni í framtíðinni og umræddir mentorar leiði þá vinnu. Í Þjónandi leiðsögn byggja öll samskipti á virðingu og umhyggju og að skapa traust á milli einstaklinga. Hugmyndafræðina er einnig verið að taka upp á hjúkrunar- og dvalardeildum HSU Hornafirði.

f.h. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Ester Þorvaldsdóttir

hjúkrunarstjóri heilsugæslusviðs HSU Hornafirði

Samvinna í heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu

VortónleikarKarlakórinn Jökull heldur sína árlegu vortónleika á sumardaginn fyrsta, 21. apríl kl. 17:00 í Hafnarkirkju.Sjórnandi kórsins er Jóhann Morávek og undirleikari Guðlaug Hestnes.Aðgangseyrir kr. 2.000,- Frítt fyrir börnKaffi og konfekt í hléi.

GLEÐILEGT SUMARKaffisala Slysavarnardeildarinnar Framtíðarinnar verður í húsnæði félagsins Sumardaginn fyrsta milli kl. 14:00 – 17:00.

Kaffið kostar 2000 kr. fyrir 12 ára og eldri 500 kr. fyrir 6 -12 ára

Athugið að ekki er tekið við kortum.

Slysavarnarkonur

AtvinnaStarfsmann vantar til sumarafleysinga frá 15. maí til 31. ágúst hjá Eimskip á Höfn. Meirapróf og lyftararéttindi æskileg.

Upplýsingar veitir Heimir í síma 894-4107.

Page 6: Eystrahorn 16. tbl. 2016

www.n1.is facebook.com/enneinn

Verslun N1Vesturbraut 1, Höfn, 478 1940

Opið mánudaga til föstudaga kl. 08-18

Rúllaðu inn í sumarið á nýjum dekkjum

Hluti af vorinu

Cooper Zeon 4XS SportHenta undir fjórhjóladrifna jeppann þinn.

Mjúk og hljóðlát í akstri.

Veita góða aksturseiginleika og gott grip á þurrum og blautum vegi.

Cooper Zeon CS8 Afburða veggrip og stutt hemlunarvegarlengd.

Einstaklega orkusparandi.

Hljóðlát með góða vatnslosun.

Cooper AT3 Frábær alhliða heilsársdekk sem virka vel á vegum og vegleysum.

Hljóðlát og mjúk í akstri.