eystrahorn 42. tbl. 2010

8
Fimmtudagur 18. nóvember 2010 www.eystrahorn.is Eystrahorn 42. tbl. 28. árgangur www.eystrahorn.is „Já, ég reyni alltaf að koma við á Hornafirði þegar ég er að túra með hljómsveitum. Ég er stoltur af ættartengslum mínum á Hornafirði en afi minn og amma voru Eymundur og Lukka í Vallanesi. Okkur hefur alltaf verið vel tekið á Hornafirði og það er einstaklega skemmtilegt að spila fyrir fólkið þar“ sagði Ómar Guðjónsson sem verður með tónleika ásamt hljómsveit á Hótel Höfn laugardaginn 20. nóvember. „Að þessu sinni er ég að kynna nýjan hljómdisk Von í Óvon sem innheldur tíu lög eftir mig. Með mér eru toppkarlar, Helgi Svavar Helgason og Matthías MD Hemstock á trommur og Ingi Björn Ingason á bassa. Þeir eru svolítið ólíkir en ég er mjög ánægður með hvernig þeir koma út. Tónlistin er mitt á milli jazz, popps og rokks og þetta er þriðja sólóplata mín.“ Spurður frekar um ferilinn sagði Ómar; „Ég er búinn að vera starfandi tónlistarmaður síðustu 12 ár og leikið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum og hljómsveitum landsins. Ég er m.a. fastur meðlimur í Jagúar, ADHD, Latinsveit Tómasar R. Einarssonar og big bandi Samma. Ég fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu plötu ársins í jazzflokki síðustu tvö ár - 2009 fyrir "fram af" með tríóinu mínu og núna 2010 fyrir ADHD með samnefndri hljómsveit. Fyrsti sólóhljómdiskurinn minn heitir Varma Land og kom út 2003. Hann fékk tvær tilnefningar til íslensku tónlistar verðlaunanna. Einnig hef ég samið verk fyrir sjónvarp og útvarp t.d lagið fyrir sjónvarpsþáttinn Landinn. Við Óskar bróðir minn sömdum alla músíkina fyrir leikverkið Sölku Völku sem var tilnefnd sem besta frumsamda músíkin á Grímunni, leiklistar verðlaunahátíðinni. Von í Óvon Grunnskóli Hornafjarðar hefur náð einstökum árangri í hinni árlegu First Lego League keppni. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem lið skólans sigrar þessa keppni og fer erlendis til að keppa fyrir hönd Íslands. Öll þessi þrjú lið eru ennþá í skólanum auk þess sem fjórða liðið var í 2. sæti í fyrra. Árangurinn er ekki síst athyglisverður vegna þess að skólinn sendir alltaf nýtt lið sjöundubekkinga sem eru jafnvel að keppa við 16 ára nemendur. Hér er greinilega ekki um neina tilviljun að ræða og í þessu sambandi má bæta við frábærum árangri nemenda Eiríks Hanssonar í nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Keppnin í ár var haldin í Keili í Keflavík sl. laugardag. Lið Hornfirðinganna skipuðu tíu nemendur úr 7. bekk og kölluðu sig Frumurnar. Eiríkur Hansson kennari hefur séð um undirbúning og þjálfun krakkanna og á hann mestan heiður þessum glæsilega árangri. Keppnin er fjölþætt og reynir á krakkana á marga vegu. Meðal annars þá hönnuðu þau, smíðuðu og forrituðu róbót sem leysti flóknar þrautir á borði. Þema keppninnar í ár var BODY FORWARD (líkaminn lifi). Keppendur áttu að fjalla um eitthvað sem gæti hjálpað líkamanum þegar sjúkdóma eða slys ber höndum. Frumurnar fjölluðu um brunasár og meðferð þeirra. Þau kynntu nýja uppfinningu sína sem heitir KÆLIBINDIÐ, en það er ný útfærsla af kælipoka til að kæla brunasár. Frumurnar munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumóti í Hollandi í vor. Krakkarnir á myndinni eru úr liðunum þessi fjögur ár. Í samtali við blaðamann kváðu þau einum rómi að það hafi verið frábært að taka þátt í keppnunum bæði skemmtilegt og lærdómsríkt. Þau hrósuðu Eiríki mikið og vildu koma á framfæri sérstöku þakklæti til hans svo og annara sem gerðu þeim kleift að vera þátttakendur í keppnunum. Glæsilegur árangur Frumurnar ásamt Eiríki kennara. Ég hlakka til, eins og alltaf, að koma „heim“ og spila fyrir Hornfirðinga og vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum sem verða á Hótel Höfn á laugardaginn kemur kl. 21:00.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 23-Feb-2016

247 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

Eystrahorn

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 42. tbl. 2010

Fimmtudagur 18. nóvember 2010 www.eystrahorn.is

Eystrahorn42. tbl. 28. árgangur www.eystrahorn.is

„Já, ég reyni alltaf að koma við á Hornafirði þegar ég er að túra með hljómsveitum. Ég er stoltur af ættartengslum mínum á Hornafirði en afi minn og amma voru Eymundur og Lukka í Vallanesi. Okkur hefur alltaf verið vel tekið á Hornafirði og það er einstaklega skemmtilegt að spila fyrir fólkið þar“ sagði Ómar Guðjónsson sem verður með tónleika ásamt hljómsveit á Hótel Höfn laugardaginn 20. nóvember. „Að þessu sinni er ég að kynna nýjan hljómdisk Von í Óvon sem innheldur tíu lög eftir mig. Með mér eru toppkarlar, Helgi Svavar Helgason og Matthías MD Hemstock á trommur og Ingi Björn Ingason á bassa. Þeir eru svolítið ólíkir en ég er mjög ánægður með hvernig þeir koma út. Tónlistin er mitt á milli jazz, popps og rokks og þetta er þriðja sólóplata mín.“ Spurður frekar um ferilinn sagði

Ómar; „Ég er búinn að vera starfandi tónlistarmaður síðustu 12 ár og leikið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum og hljómsveitum landsins. Ég er m.a. fastur meðlimur í Jagúar, ADHD, Latinsveit Tómasar R. Einarssonar og big bandi Samma. Ég fékk íslensku tónlistarverðlaunin fyrir bestu plötu ársins í jazzflokki síðustu tvö ár - 2009 fyrir "fram af" með tríóinu mínu og núna 2010 fyrir ADHD með samnefndri hljómsveit. Fyrsti sólóhljómdiskurinn minn heitir Varma Land og kom út 2003. Hann fékk tvær tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Einnig hef ég samið verk fyrir sjónvarp og útvarp t.d lagið fyrir sjónvarpsþáttinn Landinn. Við Óskar bróðir minn sömdum alla músíkina fyrir leikverkið Sölku Völku sem var tilnefnd sem besta frumsamda músíkin á Grímunni, leiklistarverðlaunahátíðinni.

Von í Óvon

Grunnskóli Hornafjarðar hefur náð einstökum árangri í hinni árlegu First Lego League keppni. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem lið skólans sigrar þessa keppni og fer erlendis til að keppa fyrir hönd Íslands. Öll þessi þrjú lið eru ennþá í skólanum auk þess sem fjórða liðið var í 2. sæti í fyrra. Árangurinn er ekki síst athyglisverður vegna þess að skólinn sendir alltaf nýtt lið sjöundubekkinga sem eru jafnvel að keppa við 16 ára nemendur. Hér er greinilega ekki um neina

tilviljun að ræða og í þessu sambandi má bæta við frábærum árangri nemenda Eiríks Hanssonar í nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Keppnin í ár var haldin í Keili í Keflavík sl. laugardag. Lið Hornfirðinganna skipuðu tíu nemendur úr 7. bekk og kölluðu sig Frumurnar. Eiríkur Hansson kennari hefur séð um undirbúning og þjálfun krakkanna og á hann mestan heiður að þessum glæsilega árangri. Keppnin er fjölþætt og reynir á krakkana á marga vegu.

Meðal annars þá hönnuðu þau, smíðuðu og forrituðu róbót sem leysti flóknar þrautir á borði. Þema keppninnar í ár var BODY FORWARD (líkaminn lifi). Keppendur áttu að fjalla um eitthvað sem gæti hjálpað líkamanum þegar sjúkdóma eða slys ber að höndum. Frumurnar fjölluðu um brunasár og meðferð þeirra. Þau kynntu nýja uppfinningu sína sem heitir KÆLIBINDIÐ, en það er ný útfærsla af kælipoka til að kæla brunasár. Frumurnar

munu keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumóti í Hollandi í vor. Krakkarnir á myndinni eru úr liðunum þessi fjögur ár. Í samtali við blaðamann kváðu þau einum rómi að það hafi verið frábært að taka þátt í keppnunum bæði skemmtilegt og lærdómsríkt. Þau hrósuðu Eiríki mikið og vildu koma á framfæri sérstöku þakklæti til hans svo og annara sem gerðu þeim kleift að vera þátttakendur í keppnunum.

Glæsilegur árangurFrumurnar ásamt Eiríki kennara.

Ég hlakka til, eins og alltaf, að koma „heim“ og spila fyrir Hornfirðinga og vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum sem verða á Hótel Höfn á laugardaginn kemur kl. 21:00.

Page 2: Eystrahorn 42. tbl. 2010

2 EystrahornFimmtudagur 18. nóvember 2010

EystrahornSími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949Útgefandi: ................................HornafjarðarMANNIRitstjóri og ábyrgðarmaður: ......................Albert EymundssonNetfang: [email protected]ófarkalestur: ........................Guðlaug HestnesLjósmyndir: .............................Maríus SævarssonUmbrot: ..................................Heiðar SigurðssonAðstoð: .....................................Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ..................................LeturprentISSN 1670-4126

KjörsKrávegna stjórnlagaþingskosninganna 27. nóvember 2010 liggur frammi

frá 17. nóvember til kjördags hjá eftirtöldum aðilum:

Öræfi...........Pálína Þorsteinsdóttir, Svínafellisuðursveit ..Steinþór Torfason, HalaMýrar .........Ari Hannesson, KlettatúniNes ..............Þorleifur Hjaltason, HólumHöfn ............Bæjarskrifstofur (Heildarkjörskrá)Lón ..............Sigurður Ólafsson, Stafafelli

YfirkjörstjórnJón Stefán Friðriksson

Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir Anna Halldórsdóttir

KjörFUNDUrKjörfundir vegna

stjórnlagaþingskosninganna27. nóvember 2010 verða sem hér segir:

Kjördeild I ...... Öræfi...........Hofgarður ........... Frá kl. 12:00Kjördeild II ..... Suðursveit...Hrollaugsstaðir ... Frá kl. 12:00Kjördeild III ... Mýrar ..........Holt .................... Frá kl. 12:00Kjördeild IV ... Nes .............Mánagarður ........ Frá kl. 12:00 - 22:00Kjördeild V .... Höfn ...........Sindrabær ........... Frá kl. 09:00 - 22:00Kjördeild VI ... Lón .............Fundarhús .......... Frá kl. 12:00

Kjósendur geta átt von á að verða krafðir um skilríki á kjörstað.

YfirkjörstjórnJón Stefán Friðriksson

Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir Anna Halldórsdóttir

Það kemur stundum fyrir að Eystrahorn skili sér ekki til allra sem útgefandi ætlast til að fái það. Síðasta fimmtudag var póstbílinn veðurtepptur í Öræfum og póstur ekki borinn út þann dag. Þess vegna fékk útgefandi krakka í Fimleikadeild Sindra til að hlaupa með blaðið í hús seinni partinn á fimmtudag. Þegar

svo háttar er alltaf hætta á að einhver hús verði útundan þar sem krakkarnir þekkja alltaf vel til. Útgefandi er þakklátur íþróttafólkinu fyrir aðstoðina nú og áður þegar veðrið hefur verið að tefja fyrir. Útgefandi hvetur fólk til að láta vita þegar það saknar blaðsins og við bætum úr því en minni líka á að hægt er að lesa það á eystrahorn.is.

Skilaði blaðið sér ekki?

Þann 4. desember verður árlegur jólamarkaður í Nýheimum og Miðbæ. Markaðurinn hefur verið mjög vinsæll síðustu ár þannig að nú fer hver að verða síðastur að panta sér bás fyrir vörurnar sínar. Handverk, hönnun og list af öllu tagi, ásamt matvöru úr Ríki Vatnajökuls hafa verið áberandi á markaðnum en einnig er hægt að kaupa sér góðgæti á staðnum sem félagasamtök á svæðinu

hafa séð um að laða fram. Boðið verður upp á tónlistar- og söngatriði frá kórum bæjarins, ásamt fleiri tónlistarmönnum, og lúðrasveit Hornafjarðar spilar jólalög til að koma okkur í jólaskapið. Jólamarkaðurinn er kjörið tækifæri til að finna rétta jólapakkann, hvort sem það er sælkeramatur úr sveitarfélaginu eða fallegt handverk frá heimamönnum.

Jólamarkaður í Nýheimum

Page 3: Eystrahorn 42. tbl. 2010

3Eystrahorn Fimmtudagur 18. nóvember 2010

Kennsla í FASKennara vantar í efnafræði

og stærðfræði á vorönn 2011.

Nánari upplýsingar á starfatorg.is

Skólameistari

Fimmtudaginn 18. nóvember verður Pétur Gunnarsson með eins kvölds námskeið um skrif sín um Þórberg Þórðarson. Pétur skrifaði bækurnar ÞÞ í fátæktarlandi (2007) og ÞÞ í forheimskunarlandi (2009) sem báðar hafa hlotið mjög góðar viðtökur. Í bókunum tveimur dregur Pétur upp mjög skemmtilega og athyglisverða mynd af Þórbergi og íslensku samfélagi á tuttugustu öld. Námskeiðið er haldið í Nýheimum og hefst kl. 20. Þátttökugjald er 3.500 kr. (kaffi innifalið) og hægt er að skrá sig hjá Nínu á Þekkingarneti Austurlands: [email protected], sími: 470 3840. Þess má geta að Pétur mun kynna nýtt greinasafn sitt Péturspostillu í hádeginu á föstudaginn 19. nóvember í matsal Nýheima.

Þórbergur í endurnýjun lífdaga

w w w . i n n i . i s

Hafnarbraut Fallegt og vel við haldið 137,3 m² einbýlishús ásamt 44,9 m² bílskúr, samtals 182,2 m²3 -4 svefnherbergi, garðhús, verönd með skjólveggjum og heitum potti.

Austurbraut

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum, Sími 580 7908

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum, Sími 580 7907

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík, Sími 580 7925

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari, Höfn, Sími 580 7915

Stórt steinsteypt 2ja hæða 178,5 m² einbýlishús með 67,5 m² innbyggðum bílskúr, samtals 246 m² . 4 -5 herb. 2 rúmgóðar stofur, flott útsýni og góð staðsetning.

Stórt og reisulegt 2ja hæða einbýlishús m/innbyggðum bílskúr og einstaklingsíbúð, 2 svefnherb á eh. samtals 270,9 m². Nýtt eldhús, gólfefni og hurðar.

DalbrautNýtt á skrá Nýtt á skrá

Pantanir í síma 858 1755

V I N A L E G R I U M A L LT L A N D

ALLT KLÁRTFYRIR ÞÍNA HEIMSÓKN

Verið velkomin á jólahlaðborðið á Vatnajökli þann 3. og 4. desember.

Tónlistaratriði í boði bæði kvöldin.

Hlaðborð 6.900 kr.Hlaðborð og gisting 9.900 kr. (miðast við 2 í herbergi).

Jólahlaðborð í vinalegu umhverfi

Vatnajökli

jólannameð Fo�hótelNjóttu

Húsgagnaval

Úrval af rúmum og dýnum

Tilboð - Tilboð

Ný sending af smart úrum og skartgripum

Opið 13 - 18 virka daga

13 - 15 laugardaga

Sindralegghlífarnar fást í íþróttahúsinu

Flott jólagjöf

Til í fjórum barnastærðum

TILBOÐ 2.500 kr

Page 4: Eystrahorn 42. tbl. 2010

4 EystrahornFimmtudagur 18. nóvember 2010

Þann 13. nóvember 2010 úthlutaði Sparisjóðurinn á Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík í þriðja skipti úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Athöfnin fór fram á Hótel Framtíð á Djúpavogi. Áætlað er að úthlutun þessi fari fram árlega, í byrjun vetrar, en þess má geta að þetta er tuttugasta og þriðja árið sem úthlutað er úr sjóðnum. Þessir aðilar hljóta viðurkenningar og styrki árið 2010: Sveinbjörg Zophoníasdóttir, frjálsíþróttakona á Höfn, Slysavarnardeildin Bára á Djúpavogi, Kvenfélagið Hlíf á Breiðdalsvík.

Sveinbjörg Zophoníasdóttir

frjálsíþróttakonaÁrið 2010 hefur verið viðburðaríkt í sögu íþróttamála á Hornafirði. Íþróttaiðkendur hafa verið á ferð og flugi um landið og fullyrða má að aðstaða fyrir þá sé með miklum ágætum á svæðinu og fjölbreytnin í fyrirrúmi. Áhersla hefur verið lögð á að allir geti tekið þátt og fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta er frábært, enda er flestum ljóst að íþróttir eru mikilvægar.Sveinbjörg Zophoníasdóttir, frjálsíþróttakona, hefur náð frábærum árangri á sínu sviði. Hún hefur keppt á mörgum mótum svo sem á Meistaramóti Íslands og á Norðurlanda-

meistaramóti unglinga á Akureyri. Auk þess hefur hún tekið þátt í fjölda keppna á erlendri grundu m.a. í Danmörku, Ísrael og nú síðast í Kanada með góðum árangri. Sveinbjörg hefur gífurlegan metnað og leggur sig alla fram eins og góðum íþróttamanni sæmir. Viðurkenningu þessari fylgja góðar óskir um áframhaldandi velgengni og bjarta framtíð.

Slysavarnardeildin Bára á Djúpavogi

Slysavarnardeildin Bára á Djúpavogi hélt upp á 70 ára afmæli á árinu og hefur því um langt árabil tekið þátt í að tryggja öryggi Austfirðinga til sjávar og sveita. Á þessum 70 árum hefur björgunarsveitin, eins og aðrar björgunarsveitir þessa lands, byggt upp mikla þekkingu og reynslu og unnið farsælt og óeigingjarnt starf. Til þess að svo megi verða áfram þarf m.a. öflugan tækjakost.Á þessu ári var keyptur nýr björgunarbátur, sem staðsettur er á Djúpavogi. Hann var vígður á sjómannadaginn og hlaut nafnið Dröfn. Báturinn er mikilvægur hlekkur í öryggismálum sjófarenda við Austfirði. Með nýjum vel útbúnum björgunarbát

og góðri áhöfn er Björgunar-sveitin Bára vel í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem upp kunna að koma í framtíðinni. Heill fylgi Dröfn og áhöfn hennar um ókomna tíð.

Kvenfélagið Hlíf á Breiðdalsvík

Kvenfélagið Hlíf fyllir fimmta tuginn á næsta ári og hefur á þessum tæpu 50 árum lagt mikið af mörkum til samfélagsins á Breiðdalsvík og í nágrenni. Félagið kom upp, á sínum tíma, barnaleikvelli í þorpinu, þær hafa staðið fyrir ýmsum uppákomum svo sem bingóum, námskeiðahaldi og félagið hefur verið með útimarkað til margra ára í þorpinu. Í fyrrasumar stóð félagið fyrir sýningu í Gamla kaupfélaginu á heimasaumuðum fatnaði frá miðri síðustu öld með minningarbrotum og sögum sem tengdust hverri flík. Í apríl s.l. færði félagið heilsugæslunni á Breiðdalsvík hjartalínurita að gjöf og má segja að Heilsugæslan hafi verið þeirra gæluverkefni í gegnum árin. Af þessari upptalningu er ljóst hversu mikilvægur hlekkur Kvenfélagið Hlíf er fyrir samfélagið. Óskum við félaginu allra heilla á komandi árum.

Sparisjóðurinn úthlutar úr styrktar- og menningarsjóði

Fyrir nokkrum vikum síðan hófust klúbbsfélagar í Lions-klúbbi Hornafjarðar handa við að undirbúa stofnun kvennadeildar Lions hér á Höfn. Ræddu þeir við konur á öllum aldri hér í bænum sem leiddi til þess að haldinn var fundur í Nýheimum þann 13. október síðastliðinn þar sem þessi hugmynd var kynnt. Viðstödd var Kristín Þorfinnsdóttir umdæmisstjóri Lions. Upphaflega stóð til að fundurinn yrði óformlegur og hreyfingin einungis kynnt fyrir tilvonandi félagsmönnum. En þegar leið á fundinn varð ljóst að fundarmenn voru tilbúnir til að ganga til kosninga. Því var löglega kosin fjögurra manna stjórn en hana skipa, Anna Lilja Ottósdóttir, Anna María Kristjánsdóttir, Sandra Björg Stefánsdóttir og Þórunn Anna Karlsdóttir. Stjórnin hefur nú skipt með sér verkum; Þórunn Anna verður ritari klúbbsins

og hefur þannig umsjón með fundarskráningu, skýrslum og skráningu á mætingu klúbbfélaga. Anna Lilja verður gjaldkeri og heldur þar með utan um rekstur og fjármál klúbbsins. Anna María verður varaformaður klúbbsins ásamt því að vera félagafulltrúi. Hún mun því hafa umsjón með nefndum klúbbsins ásamt því að bera ábyrgð á vellíðan félaga og ánægju.

Formaður Lionsklúbbsins Kolgrímu er Sandra Björg og mun hún því meðal annars stýra fundum klúbbsins. Stjórnin sér um að skipa varastjórn og hefur fengið til liðs við sig ásamt Önnu Maríu þær Kristínu Óladóttur og Jóhönnu Sigurbjörnsdóttur. Lions er stærsta þjónustuhreyfing heims og var stofnuð í Bandaríkjunum árið 1917 en alls starfa um 1,3 milljónir félagar í Lions í 205 löndum. Hér á Íslandi eru félagarnir rúmlega 2.400 talsins. Í Lions er megin áhersla lögð á vináttu félagsmanna og raunin er að í Lions hafa margir eignast sína bestu vini. Félagarnir eru tryggur vinahópur sem stendur ávallt saman og styður hvern annan. Í félagsstarfinu fer einnig fram markviss fræðsla sem gagnast ekki einungis í starfi Lions hreyfingarinnar heldur líka í atvinnu- og daglegu lífi félagsmanna.Lionsfélagar láta einnig gott af

sér leiða á sviði mannúðar- og menningarmála ásamt því að styðja við sitt byggðarlag. Þá leggja þeir ávallt þeim lið er minna mega sín. Stofnfundur Lionsklúbbsins Kolgrímu var haldinn sunnudaginn 7. nóvember 2010 og voru gestir fundarins um 30 talsins. Ásamt Lionskonum voru þar gestir frá Lionsklúbbi Hornafjarðar og Kristín Þorfinnsdóttir umdæmisstjóri Lions ásamt öðrum gestum. Farið var yfir gildi Lionshreyfingarinnar og hún kynnt fyrir nýjum félagsmönnum ásamt því að fundargestir gæddu sér á ljúffengum vöfflum og heitu kakói. Var þetta mikill hátíðisdagur í hugum kvennanna sem horfa með tilhlökkun á framtíðina og félagsstarfið í Lionsklúbbnum Kolgrímu.

Fyrir hönd Lionsklúbbsins Kolgrímu

Sandra Björg Stefánsdóttir

Lionsklúbburinn Kolgríma

Sandra formaður flytur fyrstu tölu.

Page 5: Eystrahorn 42. tbl. 2010

5Eystrahorn Fimmtudagur 18. nóvember 2010

Danskt jólahlaðborð

Íslandsvinurinn og matgæðingurinn

Vivi Petersen verður með sitt árlega danska hlaðborð 11. desember n.k. frá kl 19:30 - 01:00

Verð kr. 4.900,-

Lifandi tónlist

Borðapantanir í síma 478-1240

Undanfarna tvo áratugi hefur verið starfræktur bænahópur á Höfn í Hornafirði. Hann hefur lengst af verið óháður öðru kirkjustarfi en látið starfsemi sína eingöngu verða til uppbyggingar og hvatningar þeim sem tilheyrðu hópnum. En undanfarin ár hafa tengsl við hvítasunnukirkjuna eflst vegna þeirra áherslna í trúnni á Krist sem við finnum sameiginlegar. Bænahópurinn átti sitt 20 ára afmæli þann 6. febrúar sl. og finnst okkur því eðlilegt að slíta barnsskónum og leggja út á nýjar brautir. Það verður gert með safnaðarstofnun næstkomandi sunnudag, 21. nóvember kl. 13:00. Af því tilefni verður Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir vígð sem safnaðarhirðir í Hvítasunnukirkjunni á Hornafirði. Stjórnandi hátíðarinnar verður Halldór Sævar Birgisson en um vígsluna sér Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir á Akureyri. Hann mun einnig flytja hátíðaræðu af því tilefni. Dagskrá verður fjölbreytt með söng og sögum bæði frá börnum og safnaðarmeðlimum. Á föstudag og laugardag verður ráðstefna fyrir unglinga- og barnaleiðtoga Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi. Búist er við um 25 manns vegna hennar og endar ráðstefnan með afmælis- og vígsluhátíðinni á sunnudag. Þannig að það verður margt um manninn á Höfn um helgina. Vígsluhátíðin er öllum opin og viljum við hvetja sem flesta til að koma og njóta hátíðarinnar með okkur og þiggja kaffi og góðgæti á eftir. Þú gerðir söfnuðinum sæmd með nærveru þinni.

Hátíð og afmæli hjá

hvítasunnufólki

ÚTBOÐ ráÐHÚs HOrNAFjArÐAr

AÐALBYGGING GLUGGAr OG KLÆÐNINGAr

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurbætur á Ráðhúsi Hornafjarðar.

Helstu magntölur eru:• Glerflatarmál-65m2• Opnanlegfög-27stk• Álklæðning-60m2

Verkinuskalaðfullulokiðeigisíðaren25.febrúar2011

Útboðsgögnmánálgastávefsveitarfélagsinsáslóðinnihttp://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbodfráogmeðfimmtudeginum18.nóvember.KjósibjóðenduraðsækjaútprentuðútboðsgögnþáverðaþauseldhjáSveitarfélaginuHornafirðiHafnarbraut27áHöfnfráogmeðfimmtudeginum18.nóvember. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað kl. 14:00 mánudaginn 29. nóvember 2010 og verða þau opnuðþarkl.14:05þannsamadag.

Framkvæmda- og fjármálasvið Hornafjarðar

Page 6: Eystrahorn 42. tbl. 2010

6 EystrahornFimmtudagur 18. nóvember 2010

ÍBÚAFUNDUr

ÍbúafundurverðuráHótelHöfnfimmtudaginn18.nóvemberkl.20:00.Þarverðurfariðyfirstöðunaíheilbrigðismálum og fjármálum sveitarfélagsins.

ÍumræðunniáHornafirðierlögðáherslaáaðverjaeftirfarandi grunnþjónustu í heilbrigðismálum:

Almenna heilsugæslu•

Hjúkrunarþjónustu fyrir langveika og aldraða•

Bráðaþjónustu fyrir veika og slasaða•

Fæðingar og sængurlegu samkvæmt skilgreiningu um •D-fæðingarstað

Eftirlit með sjúklingum sem lent hafa í slysi eða •bráðaveikindumogbíðaflutningsáhærraeðalægraþjónustustig.

Endurhæfingueftiraðgerðir,veikindiogslys,semstyttir•legutíma á hátæknisjúkrahúsi

Hvíldarinnlagnir og skammtímavistun til greiningar og •endurhæfingar

Líknandi meðferð•

Lyfjagjöf sem annars kallaði á •dagsheimsókn til Reykjavíkur.

Sveitarfélagið Hornafjörður

Tillaga að breyttu deiliskipulagi í miðbæ Hafnar í Hornafirði

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar auglýsir hér með tillöguaðbreyttudeiliskipulagiímiðbæHafnaríHornafirði,samkv.25.gr.laganr.73/1997m.s.br.Skipulagsreiturinnmarkast af Hafnarbraut, Víkurbraut, Tjarnarbrú og línu milli TjarnarbrúarogVíkurbrautarviðnorðurhliðHeppuskóla.MeðþessaribreytinguerfelltúrgildideiliskipulagáhlutaafreitAámiðbæjarsvæðiHafnaríHornafirðisemsamþykktvarafskipulagsstjóraríkisins05.10.1988.Meðbreytingunnier núverandi ástand staðfest að hluta og veittar heimildir til aukins byggingarmagns innan reitsins.

DeiliskipulagstillaganerísamræmiviðaðalskipulagSveitarfélagsins Hornafjarðar, 1998-2018.

DeiliskipulagstillaganverðurtilsýnisábæjarskrifstofuSveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 Höfn og hjá Skipulagsstofnun,frá19.nóvember2010til17.desember2010.Þeimsemeigahagsmunaaðgætaergefinnkosturáað gera athugasemdir við tillöguna til og með föstudagsins 14.janúar2011.Skilaskalskriflegumathugasemdumtilumhverfis-ogskipulagsnefndarHornafjarðarábæjarskrifstofu Hornafjarðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.

Almennkynningáskipulaginuverðurhaldinmánudaginn22.nóvemberkl12:00–13:00íRáðhúsi Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 Höfn.

Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar.

Úlpur, skíðajakkar og skíðabuxur á fullorðna og úlpur á börn frá

ZO-ONLátum okkur ekki verða kalt í vetur

Opið mánudaga - föstudaga kl. 10 - 18, laugardaga kl. 11 - 15

Mikið úrval afurða úr Ríki Vatnajökuls

í Pakkhúsinu á laugardaginn Nýreyktir hamborgarhryggir og rúllur frá Miðskeri•Ferskur og saltaður fiskur frá Skinney-Þinganesi•Reyktur Makríll og makrílmyrja frá Unnsteini og Ómari •Lífrænt grænmeti frá Hólabrekkuafurðum•Ferskt nautakjöt frá Seljavöllum•Reyktar og frosnar andabringur, einnig heilar endur frá •HlíðarbergiJöklaís frá Árbæ og •kaffiveitingar til styrktar félagasamtökum

Verið velkomin á Heimamarkaðinn í

Pakkhúsinu

Opið frá 13:00-16:00

Matvælaklasinn í Ríki Vatnajökuls WOW

Page 7: Eystrahorn 42. tbl. 2010

7Eystrahorn Fimmtudagur 18. nóvember 2010

Ekki var pláss fyrir tipphornið í síðasta blaði þannig en þar áður sigraði Blóm og Bróderí Jaspis

9 -6 og skorar Blómið á Martölvuna þannig að Kaupfélagsleikurinn heldur áfram eins og Óli Jóns orðaði

það! B&B Martölvan1. Birmingham -Chelsea 2 2 2. Blackpool-Wolves 1x 1x2 3. Bolton -Newcastle 1x2 1x 4. Man. Utd. -Wigan 1 1 5. W.B.A.-Stoke 1x x 6. Barnsley –Portsmoth 1x2 x 7. Bristol City -Leicester 2 1x 8. Cardiff -Nott. Forest 1 1 9. Doncaster-Swansea 1 2 2 10. Hull -Ipswich 2 x2 11. Middlesbro-Millwall 1 1x2 12. Norwich -Leeds 1x2 2 13. Watford -Reading 1 1x2

Tipphornið

Einungis 4 fyrirtæki tippuðu núna síðast og staðan breyttist lítið.

Vika 1 2 3 4 5 6 7 8 SamtalsHvanney SF 8 10 9 8 10 11 10 10 76Hopp.is 8 10 8 9 9 7 10 61H. Christensen 7 7 9 8 9 10 8 58Ásgrímur Halldórsson 9 8 10 11 9 9 56Lyftaraverkstæði S-Þ 7 9 11 11 10 48Nettó 7 10 5 22INNi 10 9 19Víkin 10 7 17Jaspis 10 6 16Blóm og Bróderí 9 9Flutningadeild KASK 7 7Bakaríið 5 5

TILBOÐ

Tilboðin gilda til 20. desember 2010

Meira í leiðinni

Það fá allir safaríkan bita við sitt hæfi; hamborgara, samlokur, pítur, pylsur og margt fleira af grillinu á N1 Höfn

N1 Steikarsamlokameð frönskum og 1/2 ltr. af gosi í plasti

1.345 kr.

Samlokameð skinku, osti, káli, hamborgarasósu, frönskum, 1/2 ltr. af gosi í plasti og Prins Polo

895 kr.

N1 HÖFN

Áhugafólk um skíðaíþróttina hefur endurvakið skíðadeild innan Sindra. Forsvarsmenn deildarinnar eru Jón Sölvi, Gunnar Ingi og Sindri Ragnars.Þeir segja að áhugi sé mikill en megin markmiðið nú sé að skipuleggja skíðaferðir þangað sem hagstæðast sé að fara. Jafnframt verður haldið áfram að kanna frekar hvaða möguleikar eru á að koma upp aðstöðu upp á jökli. Búið er að fara í eina tveggja daga ferð sem heppnaðist vel og stefnan er að fara einu sinni í mánuði í Oddskarð og jafnvel tvær í desember. Fyrsta ferð verður farin fljótlega eftir að skíðasvæðið opnar. Svo verður farin mikil ferð til Akureyrar 13. - 16. janúar. Þeir sem skrá sig í deildina fá afslátt í útivistarverslunum og lækkun

í skíðalyfturnar hvort sem þeir fara í skipulagðar ferðir eða á eigin vegum. Árgjaldið er 8.000.- kr. en það er tilboð fram að jólum á kr. 5.000.- Nánari upplýsingar eru á nýju glæsilegu vefsíðu skíðadeildar Sindra og er slóðin www.skds.is. Þess má til gamans geta að nýja merkið gerði Danni Imsland fyrir okkur. Ýmislegt verður gert til fjáröflunar og í því sambandi minnum við á matarveisluna stórkostlegu á laugardaginn nk. Þar verður boðið uppá um þrjátíu rétta veisluhlaðborð og eru réttirnir hver öðrum girnilegri þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Miðaverð er aðeins 4.500.- kr. fyrir manninn og trúbadorar spila fram eftir nóttu. Síðar ætlum við að hafa söngvarakeppnina á sínum stað.

Laus staða við leikskólann Lönguhóla

Leikskólinn auglýsir eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða öðrum starfsmanni

Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags

Þarfaðgetahafiðstörf1.janúar2011

Heimasíðuskólansmáfinnaá www.leikskolinn.is/longuholar

NánariupplýsingarhjáMargrétiIngólfsdóttirleikskólastjóra í síma 4708-2490 eða netfangið [email protected]

Umsóknir skal senda á Margréti leikskólastjóra fyrir 1. desember 2010

Til söluKtm Husaberg 450 fe árgerð 2006 ekið innan við 60 tíma. Verð 1000 kr per cc. Upplýsingar sími 8484274 og 4781409

Page 8: Eystrahorn 42. tbl. 2010

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Á WWW.NETTO.IS!

MJÓDD · SALAVEGUR · HVERAFOLD · REYKJANESBÆR · GRINDAVÍK · AKUREYRI · HÖFNVerið velkomin í Nettó

398 kr/stk.

498kr/kgÁður 790 kr/kg

109kr/stk.Áður 139 kr/stk.

898kr/kgÁður 1.298 kr/kg

549kr/kg

59kr/stk.

898kr/kgÁður 1.298 kr/kg.

CHICO KLEMENTÍNURKOMNAR Í VERSLANIR

MÖNDLUKAKAOKKAR

KJÚKLINGAHAKK

HAMBORGARHRYGGUR

KINDABJÚGU

APPELSÍNU- EÐA EPLASAFICALYPSO

UNGNAUTAHAKKNETTÓ

GILDIR 18. - 21. NÓV

Xxxx xxx xxxxxx!

31%AFSLÁTTUR

37%AFSLÁTTUR

25%AFSLÁTTUR

31%afsláttur

Alltaf betri tilboð

Gildir meðan birgðir endast. Birt með fyrirvara um prentvillur.

129kr/kgEPLADAGARÝMSAR TEGUNDIR

MEXÍKÓVÖRUR FRÁ COOPÝMSAR TEGUNDIR

MARS, BOUNTY, TWIX

mar

khon

nun.

is