kvarnir

13
Kvarnir Ritstjóri: Katrín Sóley Bjarnadóttir Meðhöfundar: Brynja Hrafnkelsdóttir Viktor Burkni Pálsson

Upload: corbin

Post on 04-Jan-2016

62 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

Kvarnir. Ritstjóri: Katrín Sóley Bjarnadóttir Meðhöfundar: Brynja Hrafnkelsdóttir Viktor Burkni Pálsson. Staðsetning. Kvarnir er að finna í haus allra beinfiska (ekki í háfum og skötum). Kvarnir eru staðsettar beggja vegna í hauskúpu fisksins í neðri hluta heilans. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Kvarnir

Kvarnir

Ritstjóri:

Katrín Sóley Bjarnadóttir

Meðhöfundar:

Brynja Hrafnkelsdóttir

Viktor Burkni Pálsson

Page 2: Kvarnir

Staðsetning

• Kvarnir er að finna í haus allra beinfiska (ekki í háfum og skötum).

• Kvarnir eru staðsettar beggja vegna í hauskúpu fisksins í neðri hluta heilans.

• Þær ekki fastar við heilan, heldur fljóta þær um í mjúkum og gegnsæum innri göngum heilans.

Page 3: Kvarnir

Staðsetning

• Það eru 3 kvarnarpör (þ.e. 3 sitthvoru megin) í öllum beinfiskum sem gegna hlutverki jafnvægis og heyrnar.

• Efsta og minnsta kvörnin er Lapillus sem er jafnvægiskvörnin og finnst hún í hólfi sem kallast skjóða (Utriculus).

• Dægurhringir eru oftast taldir í jafnvægiskvörninni.

Page 4: Kvarnir

Staðsetning

• Sagitta eða stóra heyrnarkvörnin er stærsta kvörnin og er hún í svokölluðum posa (Sacculus).

• Sagitta er mest notuð við aldursákvörðun þegar árhringir eru taldir á kvörnunum.

• Neðsta kvörnin er Astericus eða minni heyrnarkvörnin og finnst hún í litla posa (Lagena).

• Astericus sér um heyrnarskynjun ásamt Sagittu.

Page 5: Kvarnir

Stærð kvarna

Page 6: Kvarnir

Bygging

• Kvarnir eru steinar en ekki bein og eru að mestu úr hörðum kalkefnasamböndum, sem gerir þær endingabetri en bein.

• Vöxtur kvarnar er einstefnu, þ.e. með tímanum bætist meira kalkefni á ysta hluta kvarnarinnar.

• Þessi einstefnuvöxtur útskýrir hvernig kvarnir geta myndað og varðveitt upplýsingar í þessari viðkvæmu formgerð sem dægur- og árhringi.

Page 7: Kvarnir

Dægurhringir

• Dægurhringir er vaxtarlag sem myndast á hverjum sólarhring.

• Hægt að lesa út úr þeim nákvæmar aldurs og vaxtarupplýsingar í lirfum og seiðum.

• Dægurhringir eru til staðar í öllum fiskum, alstaðar og eru þeir oft skýrari en árhringirnir.

• Dægurhringir eru oftast taldir í jafnvægiskvörninni (lapillus).

Page 8: Kvarnir

Dægurhringir

• Vöxturinn er afleiðing innri dægursveiflna eða svokallaðri innri lífsklukku og er hún stillt á 24 klukkustunda hringrás ljóss og myrkurs.

• Breiðir ljóshringir myndast á daginn en dökkir mjóir hringir myndast á nóttunni.

• Rannsóknir gefa ekki bara upplýsingar um aldur og vöxt heldur margt fleira, hægt að reikna út nákvæman klakdag með því að telja fjölda laga dægurhringa.

Page 9: Kvarnir

Árhringir

• Árhringir eru vaxtarlag sem myndast á hverju ári hjá fiskum þar sem árstíðasveiflur eru til staðar.

• Stóra heyrnarkvörnin (sagitta) er mest notuð til þess að lesa árhringi.

• Hvert ár skiptist í breiðan hvítan hring og mjóan glæran hring.

Ljósmynd: Gróa Þóra Pétursdóttir

Page 10: Kvarnir

Árhringir

• Hvítu hringirnir myndist yfir sumartímann og glæru hringirnir myndist yfir vetrartímann.

• Úr hringjunum er hægt að bera saman vöxt fisksins yfir árin.

• Stundum hægt að sjá svokallaða gotbauga úr kvörnunum en þeir myndast þegar fiskurinn verður kynþroska og fer að hrygna.

Page 11: Kvarnir

Kvarnir til tegundagreiningar

• Útlit kvarna er mismunandi milli tegunda.

• Stærð kvarna er mismunandi eftir aldri fisksins.

• Kvarnir innan sama stofns t.d. þorski eru ekki mjög breytilegar, munurinn er vegna umhverfisaðstæðna en ekki erfða.

                       Ýsa Síld

Ufsi

                                             

Búri

Page 12: Kvarnir

Kvarnir til tegundargreiningar

• Mismunandi er hvernig kvarnir eru með- höndlaðar fyrir aldurslesningu:

• Karfa kvarnir brendar yfir loga• Grálúðu kvarnir bakaðar í ofni (stundum

ýsu og þorskvarnir), sem þó eru oftast bara brotnar og lesið í brotið.

• Flatfiska, steinbíts og keilukvarnir eru setar í glýserín og lesnar heilar.

Page 13: Kvarnir

Kvarnir til tegundagreiningar

• Tilgátur um þróun kvarna!

• Fiskar sem hafa þróað góða heyrn t.d. þorskar og sumir djúpsjávarfiskar (non-ostariophysean) virðast hafa stórar kvarnir.

• Einnig virðist sem hraðsyndir fiskar hafa minnkað umfang kvarnanna, en hægsyndir og botnlægir fiskar hafi stærri kvarnir.