skilaboð v/námsvísa: ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...námsvísir 2012-2013 10....

29
Öldutúnsskóli Námsvísir 2012-2013 10. bekkur

Upload: others

Post on 26-Mar-2021

1 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Öldutúnsskóli

Námsvísir 2012-2013

10. bekkur

Page 2: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

2

Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig Þorvaldsdóttir 10. L: Sigríður Ingadóttir Námsver: Leifur Reynisson

Aðalnámskrá grunnskóla Öll markmið náms og kennslu í öllum námsgreinum byggja á markmiðum Aðalnámskrár. Vísað er til þrepamarkmiða í Aðalnámskrá grunnskóla 1999 með áorðnum breytingum sem gilda frá 1. janúar 2007. Til frekari glöggvunar má skoða námskrána á vef Menntamálaráðuneytisins: www.mrn.stjr.is

Viðmiðunarstundaskrá Fjöldi vikulegra kennslustunda eftir námsgreinum skólaárið 2012-2013. Samtals 37 stundir.

Íslenska 6 st.

Stærðfræði 6 st. Danska 4st. Enska 4 st.

Skólaíþróttir 2 st. Skólasund 1 st.

Lífsleikni 2 st.

Náttúrufræði og umhverfismennt 3 st.

Þjóðfélagsfræði 2 st.

Kristinfræði, siðfræði og trúarbragðafræði 1 st.

Valgreinar 6 st.

Íslenska Kennarar: Halldóra Pálmarsdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir Almenn markmið Auknar kröfur um skilning nemenda á grunnhugtökum í málfræði og bókmenntum. Nemendur fá yfirlit yfir bókmenntasögu til þess að þeir geri sér grein fyrir samhengi bókmennta, uppbyggingu málsins og eigin málnotkun. Lögð er áhersla á að nýta hvers konar texta í náminu. Nemendur fá viðfangsefni við hæfi með markvissri þjálfun í framsögn og rituðu máli. Til nemenda eru gerðar skýrar kröfur um frágang verkefna. Lestur, talað mál, framsögn, hlustun og áhorf Markmið Að nemendur

þjálfi hraðlestur, leitarlestur, yfirlitslestur, nákvæmnislestur og raddlestur

geti lesið 400-600 atkvæði á mínútu í hljóði og 300-350 atkvæði upphátt á mínútu

geti lesið sér til gagns og ánægju

geti lesið margvísleg fyrirmæli og farið eftir þeim

Page 3: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

3

geti lesið texta með gagnrýnu hugarfari og áttað sig á markmiði með texta

geti greint aðalatriði og aukaatriði í texta

þekkja margvíslegar textategundir og helstu einkenni þeirra

geti unnið úr tölulegum og myndrænum upplýsingum

geti talað skýrt og með áheyrilegum framburði og viðeigandi talhraða

þjálfist í að taka þátt í umræðum í stórum og litlum hópum

geti endursagt skipulega það sem þeir hafa lesið eða heyrt

geti tjáð eigin skoðanir og haldið athygli áheyrenda

þjálfist í að hlusta á fyrirmæli og fara eftir þeim

kynnist menningarlegu efni í hljóð-og myndformi

Bókmenntir Markmið Að nemendur

lesi og hlýði á fjölbreytta bókmenntatexta, forna og nýja

lesi og ræði um mismunandi lausamálstexta, s.s. skáldsögur, smásögur, þjóðsögur, goðsögur, ævintýri og valda texta úr Íslendingasögum eða –þáttum, ljóð og dægurtexta

lesi bókmenntaverk að eigin vali sér til ánægju og afþreyingar

geri sér grein fyrir grunnhugtökum í umfjöllun um bókmenntir

geti túlkað bókmenntatexta með gagnrýnu hugarfari

taki þátt í leikrænni tjáningu bókmenntatexta

geti flutt ljóð, túlkað og greint

Ritun og málfræði Markmið Að nemendur

nái færni í stafsetningu og þekki flestar reglur

geti nýtt sér orðabækur og handbækur

þjálfist í ritun fjölbreyttra texta

fái uppbyggilega gagnrýni og læri að nýta sér hana

leggi sig fram um að skrifa skýrt og greinilega og vandi allan frágang

geti nýtt sér málfræðileg hugtök og átti sig á flokkun í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og í hverju flokkunin felst

þekki beygingarleg og merkingarleg einkenni allra orðflokka og geri sér grein fyrir hlutverki þeirra í texta

skilji hugtökin setning, málsgrein og efnisgrein og geti nýtt sér þau

geti fundið stofn orða og nýtt sér þá þekkingu við stafsetningu

þekki helstu mállýskueinkenni

þekki og geti útskýrt mun orðtaka og málshátta

fái tækifæri til að leika sér með tungumálið á fjölbreyttan hátt Kennsluaðferðir Lesið, spurt og spjallað, félagakennsla, fyrirlestrar og vinnubókarkennsla, samræðuaðferðir og spurnaraðferðir, hlustunarefni, ritun, yfirferð námsefnis, efnis- og heimildakönnun, sjálfstæð vinnubrögð, tjáning o.fl.

Page 4: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

4

Helstu viðfangsefni Í bókmenntum eru lesnar skáldsögur bæði að vali kennara og nemenda, smásögur, örsögur, leikrit, ljóð og annar texti. Verkefni tengd lesefninu eru unnin heima og í tímum. Þau eru í formi spurninga, stuttra ritgerða, útdrátta og umræðna. Í málfræði er unnið með grundvallaratriði og lögð áhersla á að nemendur nái færni í beygingarfræði orðflokka og læri grundvallaratriði í setningafræði. Í stafsetningu er lögð áhersla á þjálfun grundvallaratriða. Í ritun er lögð áhersla á að nemendur geti byggt upp sjálfstæða frásögn, sagt frá persónulegri reynslu og sagt hlutlægt frá atburðum. Nemendur eru þjálfaðir í töluðu máli með upplestri á sögum og efni sem þeir semja sjálfir. Nemendur taka þátt í smásagnasamkeppni á vegum Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar.

Námsgögn

Finnur III, Mályrkja III, Málfinnur, Skriffinnur og Hugfinnur. Gísla saga Súrssonar, skáldsögur og annað bókmenntaefni. Verkefni frá kennara.

Námsmat Námsmat í lok haustannar: Bókmenntaverkefni 25% Haustannarpróf 30% Lestrardagbók 10% Málfræðiverkefni 10% Ritunarverkefni 25%

Námsmat að vori: Bókmenntaverkefni 30% Lestrardagbók 10% Ritunarverkefni 30% Vorpróf 30%

Einkunnir verða gefnar í heilum og hálfum tölum frá 1-10 í lok hvorrar annar. Skrifleg umsögn mun fylgja í lok vorannar. Að vori er birt árseinkunn. Hún er samsett úr hausteinkunn og voreinkunn þar sem hvor um sig gildir 50%.

Fjöldi kennslustunda á viku Að jafnaði sex kennslustundir. Heimanám Nemendur eiga að fylgja kennsluáætlun og gætu þurft að vinna heima til að halda áætlun. Lestur og bókmenntaverkefni verða sett fyrir sem heimavinna. Upplýsingar um yfirferð námsefnisins, dagsetningu prófa og skiladag verkefna verða birtar á www.mentor.is.

Page 5: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

5

Stærðfræði Kennarar: Hrafnhildur Sigurðardóttir og Rannveig Þorvaldsdóttir Með kennslu í stærðfræði í skólum er stefnt að því að nemendur

öðlist næga kunnáttu til að takast á við stærðfræðileg verkefni sem upp koma í daglegu lífi og geti notað stærðfræði við margs konar störf í þjóðfélaginu

öðlist nægilega kunnáttu til að þeir geti stundað framhaldsnám í ýmsum greinum

kynnist stærðfræði sem hluta af menningararfi og almennri menntun Markmið Að nemandi Stærðfræði og tungumál

lesi og skrifi háar og lágar tölur sem koma fyrir í texta, töflum og myndritum, ræðar tölur, mælitölur af ýmsu tagi og prósentur.

æfist í að skrifa skilgreiningar á hlutum og hugtökum Lausnir verkefna og þrauta

glími við verkefni og þrautir þar sem lausnarleiðir eru ekki augljósar fyrir fram; þrautirnar geti verið með eða án talna, gestaþrautir jafnt og þrautir sem mæta fólki í daglegu lífi

glími við þrautir sem leystar eru með því að búa til jöfnur temji sér að vinna að lausnum þrauta í samstarfi við aðra nemendur

með því að varpa fram hugmyndum og hjálpa öðrum að þróa eigin hugmyndir

Röksamhengi og röksemdafærslur öðlist svo góðan skilning á hugtökum og aðferðum í stærðfræði að

honum sé tamt að nota þau við röksemdafærslur bæði í mæltu og rituðu máli

öðlist góðan skilning á hugtökunum mengi, stak, hlutmengi, sammengi og sniðmengi

Tengsl við daglegt líf og önnur svið setji stærðfræðileg hugtök í samhengi við hversdagslega hluti til að

öðlast betri skilning á þeim setji upp töflu og jöfnu um línulegt samband og teikni samsvarandi graf beiti stærðfræði í verkefnum sem snerta samskipti einstaklingsins við

samfélagið Tölur

dragi ferningsrætur lágra ferningstalna með því að leysa þær upp í frumþætti

einfaldi brotabrot breyti lotubundnum tugabrotum í almenn brot þekki mengi náttúrlegra talna, heilla talna, ræðra talna og rauntalna,

tákn þeirra, N, Z, Q og R, og skilji samsvörun milli punkta á línu og rauntalna

vinni með stærsta samdeili og minnsta samfeldi, bæði með frumþáttun talna og þáttun á óþekktum stærðum

Reikniaðgerðir, reiknikunnátta og mat öðlist góða tilfinningu fyrir tölum og stærðum og áhrifum reikniaðgerða

á þær þannig að hann geti lagt mat á útkomu

Page 6: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

6

reikni algengan reikning með tölum á staðalformi vinni með tölurnar 0 og 1 sem hlutleysur í samlagningu og margföldun kunni skil á samlagningarandhverfum og margföldunarandhverfum,

notfæri sér að deiling með tölu jafngildir margföldun með margföldunarandhverfu hennar

nái leikni í að reikna samsett dæmi af ýmsu tagi þar sem reikniaðgerðum er blandað saman við veldi og sviga

nái góðum tökum á öllum aðgerðum á reiknivél sem nota þarf í verkefnum námsefnis í grunnskóla, þ.m.t. ferningsrót, veldi, π og minnistakka

venjist því að velja milli þess að reikna í huganum, á blaði eða með reiknivél eftir því hversu nákvæmrar niðurstöðu er krafist og viti að reikningur á blaði getur gefið nákvæmari niðurstöðu en reiknivél

Hlutföll og prósentur fáist við hlutföll við samanburð á stærðum og geti notað þau í

útreikningum nái góðum tökum á prósentureikningi sem algengur er í þjóðfélaginu

Mynstur og algebra nái fullkomnu valdi á lausn fyrsta stigs jöfnu með einni óþekktri stærð tileinki sér aðferðir til að leysa saman tvær fyrsta stigs jöfnur með

tveimur óþekktum stærðum leysi einföld orðadæmi með því að setja upp slíkar jöfnur leysi einfaldar annars stigs jöfnur með þáttun margfaldi upp úr svigum og þátti fyrsta og annars stigs margliður einfaldi margvíslegar táknasamstæður og geri skýran greinarmun á

jöfnu og stæðu Rúmfræði

tileinki sér hugtökin strýta, kúla og keila, geti lýst þeim í mæltu máli og með teikningum og reiknað rúmmál þeirra

sýni góðan skilning á metrakerfinu hvað varðar mælingu flatar- og rúmmynda

sýni góðan skilning á hugtakinu rúmmál, kunni reglur um helstu rúmmálsreikninga og geti beitt þeim

þekki samsvörun milli rúmmáls og mælieininga fyrir vökva og geti breytt þar á milli

sýni skilning á hugtakinu yfirborðsmál og geti beitt reglum um útreikninga á yfirborðsmáli einfaldra rúmmynda

lesi jöfnu beinnar línu, setji hana fram í hnitakerfi og kunni að lesa úr jöfnunni hallatölu og skurðpunkt við y-ás

geti athugað hvort línur skerast og reiknað skurðpunkta þeirra geti ákvarðað línu samsíða tiltekinni línu gegnum gefinn punkt og línu

hornrétt á tiltekna línu gegnum gefinn punkt kynnist ferli annars stigs falls, þ.e. fleygboga kynnist sönnun á reglu Pýþagórasar, útskýri hana og beiti henni á

rétthyrnda þríhyrninga Tölfræði og líkindafræði

sýni þekkingu og skilning á hugtökunum tíðni, hlutfallstíðni, tíðnidreifing, meðaltal, vegið meðaltal, úrtak, tíðasta gildi og miðgildi

ræði um hugtakið úrtak, hvað er handahófsúrtak og hvers kyns skekkjur gætu komið fram ef ekki væri um að ræða handahófsúrtak

Page 7: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

7

álykti og tjái sig um tölfræðilegar upplýsingar, meti ályktanir sem dregnar eru af gögnum og kynnist því sem þarf að varast þegar slíkar ályktanir eru dregnar

sýni þekkingu á mun á fræðilegum líkum, líkum sem leiddar eru af tilraunum og huglægu mati á líkum án tilrauna

Leiðir, kennsluaðferðir Fyrirlestrar, sýnikennsla, utanbókarnám, námsleikir/spil, rökstuðningur, umræður, hópverkefni, sjálfstæð vinnubrögð, rökþrautir og þrautalausnir Helstu viðfangsefni Rúmfræði og algebra, tölur og talnafræði, líkur, reikningur og algebra, pýþagóras, líkön, algebra og jöfnur, dulmálsfræði, tölfræði, rökhugsun, rauntölur, horn, prósentur, algebra og fjármál. Námsgögn Átta – tíu (5 og 6),spil, þrautir, vasareiknir, reglustika, hringfari og gráðubogi. Námsmat Í lok haustannar fá nemendur eina einkunn. Vægi þátta er eftirfarandi: Jólapróf 30%, kaflapróf 20%, heimaverkefni 30% og tímaverkefni 20%. Í lok vorannar fá nemendur eina árseinkunn, sem samanstendur af einkunn haustannar 50% og einkunn vorannar 50%. Vægi þátta í einkunn vorannar er eftirfarandi: Vorpróf 30%, kaflapróf 20%, heimaverkefni 30% og tímaverkefni 20%. Lokaeinkunn er gefin í heilum og hálfum tölum, frá 1 - 10. Að auki fá nemendur umsögn að vori.

Haustönn Lokaeinkunn 50%

Heimaverkefni 30%

Jólapróf 30%

Kaflapróf 20%

Tímaverkefni 20%

Vorönn Lokaeinkunn 50%

Heimaverkefni 30%

Vorpróf 30%

Kaflapróf 20%

Tímaverkefni 20%

Árseinkunn Haustönn 50% - Vorönn 50%

Page 8: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

8

Fjöldi kennslustunda á viku Að jafnaði sex kennslustundir. Heimanám Nemendur eiga að læra heima í stærðfræði eftir þörfum á hverjum degi. Nemendur klára þá áætlun sem sett er fyrir í tímanum. Heimaverkefni sem eingöngu eru unnin heima verða lögð fyrir mánaðarlega. Einnig eiga nemendur að læra heima fyrir kaflapróf sem eru eftir annan hvern kafla.

Danska Kennari: Alma Guðrún Frímannsdóttir Almenn markmið Danska er annað erlenda málið sem nemendur læra í grunnskóla. Með námi í dönsku er stuðlað að því að viðhalda og efla samskipta- og menningartengsl norrænna þjóða. Lögð er áhersla á að nemendur geti notfært sér kunnáttu sína til að afla sér þekkingar, eiga samskipti og geta miðlað upplýsingum um sig og umhverfi sitt. Mikilvægt er að nemendur verði meðvitaðir um hvernig þeir geti sjálfir styrkt og bætt kunnáttu sína. Enn fremur að nemendur sýni sjálfstæði og beri ábyrgð á eigin námi og geri sér grein fyrir mismunandi námsstílum. Markmið Að nemandi Hlustun

geti skilið fyrirhafnarlítið venjuleg fyrirmæli og leiðbeiningar í daglegu lífi

geti skilið aðalatriði í töluðu máli þegar fjallað er um málefni úr daglegu lífi hans og viðfangsefnum tengt námsefninu

geti fylgt atburðarás í frásögnum (3-5 mínútur) sem tengjast þeim orðaforða sem unnið er með

skilji samtöl tveggja manna, tilkynningar og frásögnum úr þeim orðaforða sem unnið er með

Lestur

geti beitt yfirlitslestri, þ.e. skilið megininntak texta með því að lesa hann hratt yfir

geti beitt leitarlestri þar sem hann leitar eftir ákveðnum upplýsingum

geti áttað sig á megininntaki texta, sem tengjast orðaforðanum sem unnið er með, út frá lykilorðum eða fyrirsögnum

geti skilið megininntak lengri texta, t.d. blaðagreina, smásagna eða skáldsagna, og haldið þræði án þess að skilja hvert einasta orð

geti nýtt sér tölvupóst og aflað sér upplýsinga á netinu Ritun

geti skrifað nokkrar einfaldar textagerðir, t.d. persónuleg sendibréf, tölvupóst, skilaboð (180-200 orð).

geti tjáð skoðanir sínar og hugsanir á skiljanlegu rituðu máli

hafi lært að skrifa texta með góðu samhengi

geti notað tölvur til ritvinnslu Talað mál

tekið þátt í óformlegu spjalli um áhugamál sín og daglegt líf

Page 9: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

9

geti leiðrétt sig og afsakað sig

geti haldið ræðu í 2-3 mínútur um undirbúið efni út frá lykilorðum

geti hafið og endað samtal

geti notað grunnorðaforða úr efnisflokkum sem unnið hefur verið með, á eigin forsendum í nýju samhengi

geti notað málið sem samskiptamiðil í kennslustundum Leiðir, kennsluaðferðir Unnið er með alla færniþætti tungumálsins (hlustun, lestur, ritun og talað mál) þemanám, hlustun, hringekjur og kannanir. Metið er fyrir hvern og einn hvaða verkefni eru unnin á hverjum tíma. Helstu viðfangsefni Danmörk, matur, fólk, tónlist, fjölskylda og vinir, jólin og lesbækur. Málfræði og sagnapróf Námsgögn Dejlige Danmark, les- og vinnubók, hlustunarefni, Ekko – les- og vinnubók, hlustunarefni, DVD – myndir og verkefni frá kennara (þemaverkefni og hringekjur) Heimanám Nemendur eiga að fylgja áætlun og gætu þurft að vinna heima til að halda henni. Einnig þarf að undirbúa – Taletid – og sagnapróf. Heimanám er skráð í Mentor.is Námsmat Námsmat á haustönn: Glósukönnun 10% Verkefnavinna - Dejlige Danmark – 20% Hringekjuverkefni 15% Musik-tema skrifleg og munnleg verkefni 15% Taletid 5% Lesbók 10% Annarpróf 25% Námsmat á vorönn: Myndir og verkefni 5% Ekko les- og vinnubók 15% Sagnapróf 15% Lesbók 10% Hringekja 15% Hlustun 5% Taletid 10% Þemaverkefni 15% Verkefnavinna og ástundun 10% Lokaeinkunn í dönsku í 10. bekk byggist á lokaprófi 30% og símati 70% Nemendur fá eina einkunn í lok hvorrar annar.

Page 10: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

10

Auk þess fá nemendur umsögn um eftirfarandi þætti: virkni, ástundun og hegðun. Einkunn er gefin frá 1-10 í heilum og hálfum tölum. Að vori er birt árseinkunn. Hún er samsett úr hausteinkunn og voreinkunn þar sem hvor um sig gildir 50%.

Fjöldi kennslustunda á viku Fjórar kennslustundir.

Enska Kennarar: Flóki Árnason og Sigþór Örn Rúnarsson Markmið og helstu viðfangsefni Að nemandi Hlustun

geti skilið fyrirhafnarlítið þegar talað er um málefni sem hann þekkir

geti fylgt meginþræði í umræðum um efni sem hann þekkir þegar nokkrir tala

geti skilið meginþráð í fréttaefni

geti skilið þegar talað mál og myndefni fer saman Lestur

geti lesið og skilið aðgengileg bókmenntaverk

geti skilið megininntak í völdu blaðaefni og tímaritsefni

geti nýtt sér orðabækur Ritun

geti beitt almennum og sértækum orðaforða í ritun

geti skrifað samfellda, viðeigandi og skipulega texta, þ.e. ritgerðir, skýrslur, gagnrýni, röksemdafærslur, fyllt út eyðublöð um gistingu og ferðalög

geti skrifað lykilsetningar („topic sentences“)

geti beitt reglum um orðaröð

geti beitt helstu málnotkunarreglum um ritmál Talað mál

geti notað ensku til samskipta í kennslustofunni, m.a. komist að sameiginlegri niðurstöðu, látið í ljós aðdáun/vanþóknun, látið í ljós skoðanir (verið sammála/ósammála)

geti bjargað sér við óvæntar aðstæður

geti beitt eftirtöldum málfræðiatriðum: tíðum sagna nafnorðum lýsingarorðum greini atviksorðum forsetningum fornöfnum skilyrðissetningum þolmynd

Page 11: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

11

Leiðir, kennsluaðferðir Bein kennsla, hlustunarefni, hópverkefni, margmiðlun, ritun, tónlist, umræður, verklegar æfingar og viðfangsefni tengd daglegu lífi. Námsgögn Spotlight 10, les-og vinnubók. Léttlestrarbækur, blaðagreinar, málfræðihefti, óreglulegar sagnir – æfingablöð. Aukaefni frá kennara. Námsmat - símat Nemendur fá eina einkunn í lok haustannar. Hún skiptist í sagnapróf (25%), ritunarverkefni (25%), málfræðipróf (25%) og munnlegt próf (25%). Einkunn á vorönn skiptist í sagnapróf (25% ritunarverkefni (25%), málfræðipróf (25%) og munnlegt próf (25%). Einkunn er gefin frá 1-10 í heilum og hálfum tölum. Að auki fá nemendur umsögn í lok hvorrar annar. Að vori er birt árseinkunn. Hún er samsett úr hausteinkunn og voreinkunn þar sem hvor um sig gildir 50%.

Fjöldi kennslustunda á viku 4 kennslustundir.

Skólaíþróttir Kennarar: Oddný Anna Kjartansdóttir og Þóra Gísladóttir Markmið

Að stuðla að alhliða þroska nemenda, bæði andlega, líkamlega og félagslega, með því að leggja fyrir þá verkefni sem krefjast líkamlegrar áreynslu og félagsþroska.

Stefnt skal að því að bæta líkamshreysti og líkamsreisn barna og unglinga, meðal annars með markvissri þjálfun þrekþátta, þols, krafts,hraða, liðleika og æfingum sem bæta líkamsstöðu og líkamsreisn.

Stefnt skal að því að efla nemandann sem félagsveru, kenna honum að taka tillit til annarra og beita sveigjanleika í samskiptum. Einnig skal stefnt að því að auka skilning og hæfni nemenda til þess að fara eftir reglum og fyrirmælum og auka innsæi nemenda í tilfinningar sínar og tilfinningar annarra.

Stefnt skal að því að auka þekkingu og skilning nemenda á starfsemi líkamans og áhrifum skipulagðrar þjálfunar á líkama og heilsu. Þá skal einnig aðstoða nemendur við að finna sér leiðir til líkams- og heilsuræktar.

Nemendur auki vitund sína varðandi eigin heilsu og heilbrigða lífshætti.

Lögð verður áhersla á kynningu hinna ýmsu íþróttagreina svo nemandinn eigi auðveldara með að velja sér íþrótt sem hæfir honum til tómstunda í framtíðinni.

Nemandinn þjálfist í því að bera ábyrgð á eigin heilsu, með því að tileinka sér markvissa ástundun íþrótta eða líkams- og heilsuræktar.

Stefnt skal að því að halda áfram að örva þroska nemenda og efla afkastagetu þeirra.

Page 12: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

12

Stefnt skal að því að nemendur þjálfist í að starfa saman í sátt og samlyndi og meta rétt annarra á við sinn eiginn.

Að nemendur verði virkir þátttakendur í íþróttatímum.

Leiðir, kennsluaðferðir Sýnikennsla – verklegar æfingar – hreyfing – hópverkefni – sjálfstæð vinnubrögð og fleira. Námsþættir Smáleikir, fimleikar, frjálsíþróttir, badminton, borðtennis, stöðvaþjálfun, þrekþjálfun, ratleikir og knattleikir, s.s. fótbolti, blak, bandý, körfuknattleikur og handknattleikur. Íþróttatímarnir byggjast að hluta til á ýmsum leikjum (smáleikjum) og stöðvaþjálfun. Í þeim fá nemendur útrás fyrir hreyfiþörf sína og með þessu móti er hægt að setja upp verkefni sem henta hverjum og einum. Einnig verður rík áhersla á þrekþjálfun til að auka þol, kraft og liðleika nemenda. Farið verður í “flóknari” æfingar fimleika og frjálsíþrótta. Knattleikir skipa einnig stóran sess og aðallega í leikrænu formi. Borðtennis og badminton verða hlutar stöðvaþjálfunar. Hlaup verða stór hluti útikennslu til að auka þol og þrek nemenda. Reynt verður að örva jákvætt viðhorf nemenda til íþróttaiðkana, hvar og hvenær sem er ásamt því að skapa gott andrúmsloft í tímum. Kennsluaðstæður og námsgögn

Kennt er í íþróttahúsinu við Strandgötu.

Útikennsla er í ágúst, september og maí.

Öll tæki og áhöld sem íþróttahúsin hafa upp á að bjóða.

Nemendur eiga að mæta með sérstök föt í íþróttatíma og æskilegt er að koma með innanhússíþróttaskó.

Námsmat Lagt er mat á virkni í tímum, viðhorf, hegðun, fara eftir fyrirmælum, framfarir og sjálfsmat nemenda (70%), ásamt getu þeirra í ákveðnum íþróttaþáttum (30%). Námsmat nemenda er stutt með umsögnum og prófum í liðleika, þoli (píptest), kviðæfingum, armbeygjum, sippi, uppstökki/langstökki og 30 m spretti. Fyrirgjöf er samkvæmt eftirfarandi mælikvarða: 1 – 10 og er gefið í heilum og hálfum tölum ásamt umsögn við annarskipti í janúar og síðan að vori. Athugið! Lokaeinkunn á prófskírteinum tekur mið af haustönn 50% og vorönn 50%. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir.

Skólasund Kennarar: Dagbjört Hrönn Leifsdóttir og Ómar Freyr Rafnsson Markmið – 10. sundstig

Bringusund í 20 mín. (viðstöðulaust): Lámarksvegalengd 600 m

Page 13: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

13

50 m bringusund, stílsund

Björgun af botni laugar og 25 m björgunarsund

12 m kafsund, stílsund

Tímataka. Nemendur velja tvær sundaðferðir af fjórum: - 100 m bringusund - 50 m skriðsund - 50 m baksund - 25 m flugsund

Þrjú leysitök: Grip í fatnað framan frá – grip um háls aftan frá –grip um brjóst aftan frá

Helstu viðfangsefni Sundæfingar, þolsund, bringusund, skriðsund, flugsund, marvaði, köfun og björgun. Leiðir, kennsluaðferðir Bein kennsla - Hreyfing – Námsleikir – Sýnikennsla – Verklegar æfingar. Námsmat Umsögn þar sem fram kemur virkni, hegðun og framfarir nemenda verður send í rafrænu formi til foreldra í nóvember. Lokapróf í 10. stigi er í maí fyrir nemendur á vorönn. Einkunn er frá 1-10 í heilum tölum. Fjöldi kennslustunda á viku Ein kennslustund.

Lífsleikni Kennarar: Rannveig Þorvaldsdóttir, Sigríður Ingadóttir og Sigþór Örn Rúnarsson Markmið Sjálfsþekking, samskipti, sköpun og lífsstíll Nemandi

geti sett sér raunhæf markmið til að stefna að í lífinu

meti á sjálfstæðan hátt eigin lífsgildi og lífsstíl

öðlist skilning á atvinnulífinu í samhengi við námsleiðir og starfsval

nýti ráðgjöf um náms- og starfsleiðir

geti greint og rökrætt áhrifamátt auglýsinga og gert sér grein fyrir óbeinum áróðri fjölmiðla

Samfélag, umhverfi, náttúra og menning Nemandi

geti útskýrt mun einkarekstrar og opinbers rekstrar

kunni skil á einföldum launaseðlum og skilji reikningsyfirlit

geti reiknað kostnað vegna afborgana

Helstu viðfangsefni Öldutúnsskóli vinnur að því að innleiða áætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Unnið er markvisst að því að allir nemendur skólans geri sér grein

Page 14: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

14

fyrir hvað einelti er og hvaða afleiðingar það getur haft. Hver nemandi er ábyrgur fyrir hegðun sinni og framkomu og ef þörf er á fær hann leiðbeiningar um að bæta sig. Bekkjarfundir eru haldnir með nemendum þegar málefni er varða allan hópinn er til umræðu, s.s. einelti, líðan í skóla, bekkjarreglur, skólareglur o.fl. Hver bekkur kemur til með að semja sínar eigin bekkjarreglur, tilgangur þeirra er að skapa meiri samkennd í hópnum og að tryggja að allir hafi sömu sýn og markmið til að stefna að. Öldutúnsskóli er SMT-skóli. Með SMT skólafærni þjálfum við félagsfærni og veitum æskilegri hegðun aukna athygli með markvissu hrósi og umbunum. Við höfum skýr fyrirmæli að leiðarljósi og leggjum rækt við góð samskipti. Þannig skapast enn betra námsumhverfi fyrir bæði nemendur og kennara. Reglur skólans eru skýrar og sýnilegar þannig að bæði nemendur og kennarar vita mjög vel til hvers er ætlast. Skólareglurnar eru kenndar í upphafi hvorrar annar og rifjaðar upp eftir þörfum. Allur bekkurinn nýtur góðs af þegar nemandi fær stjörnu sem sérstaka umbun og þegar vissum fjölda er náð gera kennarar og nemendur sér dagamun með ýmsu móti. Nemendur og starfsfólk Öldutúnsskóla vinna að því að framfylgja umhverfissáttmála skólans. Skólinn hefur nú fengið Grænfánann til marks um að hafa unnið gott starf á sviði umhverfismála. Í því felst flokkun pappírs, ferna og ávaxtaúrgangs, orkusparnaður og aukin útivera. Leiðir, kennsluaðferðir Fræðslumyndir, fyrirlestrar, hópaverkefni, hugmyndavinna, samræðuaðferðir, samvinnunám, tjáning, umræður og viðfangsefni tengd daglegu lífi. Fræðsla og verkefni frá námsráðgjafa. Forvarnarfræðsla mismunandi frá ári til árs. Mismunandi hvaða aðilar sem sjá um fræðsluna. Námsgögn SMT skólareglur, eineltishringurinn Náðu tökum á náminu! Námstækni Leið þín um lífið Margt er um að velja Auraráð, valin verkefni. Verkefni frá kennurum. Námsmat Námsmat byggir á: Verkefnamöppu 50% og hópverkefni 50%. Einkunn er gefin í einkunnarorðum ásamt umsögn að vori. Fjöldi kennslustunda á viku Ein kennslustund.

Page 15: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

15

Náttúrufræði og umhverfismennt Kennari: Nanna Traustadóttir Markmið Náttúruvísindi Að nemendur

vinni með grunnhugtök í erfðafræði

kannist við erfðatækni og þekki helstu aðferðir þar sem erfðatækni er beitt

skilji að beiting erfðatækni vekur upp siðferðislegar spurningar

þekki hvernig náttúruval leiðir til þróunar lífs

vinni með grunnhugtök vistfræði og þekki sérstöðu Íslands

skilji að maðurinn geti haft umtalsverð umhverfisáhrif

öðlist þekkingu til þess að geta tekið ábyrga afstöðu í kynferðismálum

kynnist félagslegum, tilfinningalegum og líffræðilegum hliðum kynþroskans

þekki helstu hugtök varmafræðinnar, rannsóknir og einingar sem notaðar eru

þekki helstu hugtök rafmagnsfræðinnar, rannsóknir og einingar sem notaðar eru

þekki nokkur helstu hugtök í kjarneðlisfræði, rannsóknir og einingar sem notaðar eru

Vinnubrögð Að nemendur

geti lesið og skrifað um náttúruleg fyrirbrigði

geti tjáð sig skilmerkilega og tekið þátt í umræðum um vísindi og efni tengd þeim

skilji vísindaleg hugtök um mælingar og aðferðir

kynnist fjölbreyttu tungutaki, sjónarhornum og vísindamönnum sem fjalla um náttúruleg fyrirbrigði

kynnist „Hinni vísindalegu aðferð” og læri að nota hana

geri sér grein fyrir að skýr röksemdafærsla og kerfisbundin framsetning er mikilvæg vinnuaðferð

Helstu viðfangsefni Varmaorka, rafmagn, kjarnorka, kynfræðsla, erfðafræði, mannerfðafræði, þróun manna, vistfræði. Leiðir, kennsluaðferðir Fyrirlestrar, innlögn, samræðuaðferð, verklegar æfingar, fræðslumyndir, sýnikennsla, tilraunir, hópverkefni og heimildavinna. Tilfallandi heimavinna miðast við virka daga.

Námsgögn Maður & náttúra, mannslíkaminn og Orka. Auka námsgögn eru sunflower kennsluforrit, veraldarvefurinn, myndbönd, glærur, verkefnablöð, ljósrit, reiknivélar og áhöld í náttúrufræðistofu.

Page 16: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

16

Námsmat Nemendur fá einkunn í lok hvorrar annar. Einkunn byggist á Fyrir áramót

Heimildaritgerð (15%)

Tímaverkefni (15%)

Hópverkefni (10%)

Skilaverkefni (10%)

Lokaprófseinkunn (50%). Skriflegt próf í lok hvorrar annar. Eftir áramót

Líkami mannsins lokapróf (15%)

Tímaverkefni (15%)

Hópverkefni (10%)

Skilaverkefni (10%)

Lokaprófseinkunn (50%). Skriflegt próf í lok hvorrar annar. Lokaeinkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum, frá 1 - 10. Að auki fá nemendur umsögn. Að vori er birt árseinkunn. Hún er samsett úr hausteinkunn og voreinkunn þar sem hvor um sig gildir 50%. Fjöldi kennslustunda á viku Þrjár kennslustundir.

Þjóðfélagsfræði/Trúarbragðafræði Kennari: Sigríður Ingadóttir og Sigþór Örn Rúnarsson. Markmið Að nemendur

hugleiði hverjir þeir eru í augum sjálfs sín og annarra

hugleiði eigin sjálfsmynd

velti fyrir sér hvað mestu máli skiptir í lífinu

kanni hvað þeim leyfist og leyfist ekki samkvæmt lögum og reglugerðum og ræði réttmæti þeirra

kynnist og hugleiði stjórnkerfi samfélagsins

kynnist stöðu Íslendinga í alþjóðasamfélaginu

hugleiði hvaða kosti og galla það hefur í för með sér að búa á Íslandi

fjalli um valin málefni sem rætt er um í fjölmiðlum

læri að bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra

þjálfist í að tjá og rökræða skoðanir sínar

þekki inntaksþætti og útbreiðslu helstu trúarbragða heims og ólíkra lífsviðhorfa og geti borið þau saman

kynnist helgiritum annarra trúarbragða

öðlist færni í að fást við siðferðileg álitamál í ljósi mismunandi gildismats, trúarbragða og lífsviðhorfa, temji sér sjálfsvirðingu og

Page 17: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

17

virðingu fyrir öðrum og læri að standa við eigin sannfæringu og að virða sannfæringu annarra

tileinki sér ábyrg samskipti í jafnaldrahópnum með því að fást við viðfangsefni sem tengjast samskiptum kynjanna, vináttu, heiðarleika, trúnaðar og orðheldni.

Leiðir og kennsluaðferðir Bein kennsla, myndmiðlar, verkefnavinna, umræður, samvinnuverkefni, hópverkefni, tjáning, hugmyndavinna og viðfangsefni tengd daglegu lífi. Helstu viðfangsefni Helstu viðfangsefni eru sjálfsmyndin, réttindi og skyldur, samfélög, stjórnskipan, lýðræði og vald, hvað það þýðir að vera Íslendingur, Ísland og alþjóðasamfélagið. Umfjöllun um helstu trúarbrögð heims, svo sem islam, búddisma, hindúisma Námsgögn Þjóðfélagsfræði eftir Garðar Gíslason. Myndbönd, verkefni og annað ítarefni frá kennara. Maðurinn og trúin, myndbönd og ítarefni frá kennara. Námsmat Haustönn: 40% kaflapróf, 15% verkefni, 25% hópverkefni og 20% hugleiðingar. Vorönn: 40% kaflapróf, 20% verkefni, 40% hópverkefni. Gefin er einkunn í heilum og hálfum tölum frá 1-10. Skrifleg umsögn mun jafnframt fylgja í lok vorannar. Að vori er birt árseinkunn. Hún er samsett úr hausteinkunn og voreinkunn þar sem hvor um sig gildir 50%. Fjöldi kennslustunda á viku Þrjár kennslustundir.

Heimildavinna (upplýsingalæsi) Markmið Nemandi

geti leitað að gögnum eftir flokkunarkerfi skólasafnsins (Dewey) kunni á leitarkerfi safnsins kunni að leita í helstu handbókum, alfræðiorðabókum, fræðibókum og

margmiðlunardiskum kunni að nota efnisyfirlit og skrár, s.s atriðisorðaskrá og nafnaskrá í

fræðibókum þekki helstu leitarmöguleika á Netinu geti leitað að tímaritsgreinum og dagblaðsgreinum og þekki til rafrænna

gagnasafna kunni að afla heimilda; það felur í sér að nemandi geti

skilgreint hvaða upplýsinga er þörf í tengslum við ákveðin viðfangsefni

flokkað og metið heimildir á gagnrýninn hátt með tilliti til áreiðanleika þeirra

Page 18: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

18

metið, túlkað og hagnýtt upplýsingar til að svara ákveðnum spurningum eða leysa ákveðin vandamál

metið eigin niðurstöður geti sett upplýsingar fram í samræmi við inntak og markmið

viðfangsefnisins og miðlað þeim til annarra gert heimildaskrá samkvæmt Chicago-staðlinum vitnað í heimildir, þekki muninn á beinni og óbeinni tilvitnun og

geri ávallt tilvísun til heimilda samkvæmt Chicago-staðlinum geti sett saman eigin texta með viðeigandi efnisskipan viti hvernig heimildaritgerð er byggð upp, þ.e.

forsíða efnisyfirlit inngangur meginmál lokaorð heimildaskrá

skilji þýðingu höfundarréttar og þekki inntak laga um höfundarrétt og persónuupplýsingar

geri sér grein fyrir siðferðislegri og lagalegri ábyrgð sem fylgir því að vinna með upplýsingar og hafi tileinkað sér tilhlýðilegar venjur og reglur þar um

Leiðir, kennsluaðferðir Heimildavinna, efniskönnun, sjálfstæð vinnubrögð, gagnrýnin hugsun, rökstuðningur og vinna með ólíka miðla. Samstarf við skólasafnið um kennslu

í notkun fræðibóka á flokkunarkerfi Dewey í upplýsingaleit

Helstu viðfangsefni Nemendur vinna heimildaritgerðir, læra að búa til heimildaskrá og vísa til heimilda samkvæmt Chicago-staðlinum. Nemendur læra muninn á framsetningu beinna og óbeinna tilvitnana. Nemendur læra réttan frágang heimildaritgerða, þ.e. útlit forsíðu og uppbyggingu ritgerðar og skili verkefninu eins og til er ætlast. Nemendur upplýstir um höfundarétt, kennd rétt meðferð upplýsinga og öguð vinnubrögð í því sambandi. Markviss notkun fræðibóka og annarra upplýsingamiðla í heimildavinnu. Nemendur kunni að móta rannsóknarspurningar og leita svara við þeim. Nemendur noti Dewey flokkunarkerfið, efnisyfirlit, atriðaorðaskrá og aðrar skrár við leit að upplýsingum. Efla þekkingu og færni nemenda í að afla, flokka og vinna úr upplýsingum á gagnrýninn og skapandi hátt.

Námsgögn Safnkostur skólasafnsins, s.s. tölvur, fræðibækur, myndbönd, námsvefir o.fl. Verkefni tengd flokkunarkerfi safnsins og notkun fræðibóka.

Námsmat Vegna þess hversu upplýsingalæsi er samþætt öðrum námsgreinum er mælst til þess að námsmatið verði í höndum viðkomandi bekkjar- eða námsgreinakennara.

Page 19: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

19

Valgreinar

Aðstoð við heimanám og námstækni (val) Kennarar: Sigrún Valdimarsdóttir (íslenska) og Rannveig Þorvaldsdóttir (stærðfræði) Markmið

Nemendur fái aðstoð við heimanám eftir því sem þeir þurfa hverju sinni.

Nemendur tileinki sér vandvirkni við frágang og skil heimaverkefna.

Nemendur fái leiðsögn í námstækni, læri að gera sér grein fyrir eigin námsstíl og nýti sér þá innsýn til að auðvelda sér námið.

Námsmat Virkni, þrautseigja, áhugi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Nemendur fá umsögn við annaskipti. Fjöldi kennslustunda á viku Ein kennslustund á viku.

Enska 103 (val) Kennari: Flóki Árnason Markmið Nemandi

hafi aukið vald á ritmáli með fjölbreyttari orðaforða

kunni að beita mismunandi lestrarlagi, þ.e. yfirlitslestri, leitarlestri og nákvæmnislestri

geti skilið talað enskt mál eins og það er notað við raunverulegar aðstæður

geti skýrt munnlega frá því sem hann hefur heyrt, séð eða lesið og leiðrétt sig og

umorðað

geti unnið sjálfstætt að þekkingaröflun, nýtt sér heimildir og fagbækur

Málfræði og orðaforði Undanfari: 7 á grunnskólaprófi. Undirstöðuatriði enskrar málfræði rifjuð upp. Áhersla lögð á vandlegan lestur texta til að efla orðaforða. Markvissar hlustunaræfingar. Hraðlesið efni valið við hæfi nemenda. Enskt talmál æft, skriflegi þátturinn þjálfaður. Nemendum leiðbeint við notkun orðabóka. Leiðir, kennsluaðferðir Bein kennsla, hlustunarefni, hópverkefni, ritun, tónlist, umræður, verklegar æfingar og viðfangsefni tengd daglegu lífi. Námsgögn Fast Track to FCE Coursebook e. Alan Stanton and Mary Stephens.

Page 20: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

20

Longman. Kaflar 1-6. The Killer´s Cousin höf: Nancy Werlin. The road (skáldsaga) höf: Cormac McCarthy. Ein hraðlestrarbók valin í samráði við kennara. Námsmat - símat Nemendur fá eina einkunn á vorönn Einkunnin samanstendur af eftirfarandi þáttum : The Killer’s Cousin 15%. Book report 15%. Revision tests 20 %. Final exam on NewFirst Certificate and short stories 50%. Fjöldi kennslustunda á viku Þrjár kennslustundir á viku

Gaflaraleikhúsið (val) Leiksýning. Ígildi tveggja kennslustunda á viku. Sett verður upp leiksýning sem áætlað er að sýna á grunnskólahátíð. Æfingar hefjast í nóvember og standa fram í febrúar. Æfingar verða óreglulegar og þéttari eftir því sem nær dregur sýningu.

Heimilisfræði (val) Kennari: Helga Guðlaug Einarsdóttir Markmið Að nemendur

fái þjálfun í að matreiða fjölbreytt hráefni með áherslu á hollustu

fái þjálfun í bakstri

fái þjálfun í að tengja næringarfræði og matreiðslu í verki

kynnist ráðlögðum dagskömmtum (RDS) og næringarefnatöflum

geri sér grein fyrir áhrifum auglýsinga á neyslu

læri að skipuleggja innkaup með tilliti til hagsýni (verð, gæði og umhverfissjónarmið)

læri að skipuleggja og útbúa litlar veislur og hátíðir

læri að þrífa eldhús Leiðir, kennsluaðferðir Samvinna, einstaklingsverkefni, sýnikennsla, verklegar æfingar og vinnubókarkennsla. Helstu viðfangsefni Verklegar æfingar, matreiðsla, bakstur og frágangur. Verkefni og umræður m.a. um matvæli, næringarefni og neytendafræði. Nemendur fá 5 heimavinnuverkefni sem felast í því að safna saman fróðleik m.a. um næringu og hollustu/óhollustu matvæla og skrá upplýsingar og myndskreyta. Útkoman er vinnubók sem metin er í lok lotu. Nemendur safna saman uppskriftum og búa til sína eigin uppskriftarbók. Nemendur eru hvattir til þess að koma með uppskriftir að heiman og fá leyfi hjá kennara til þess að prófa þær í tíma.

Page 21: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

21

Námsgögn Fjölritaðar uppskriftir útgefnar af Námsgagnastofnun. Uppskriftabækur, stílabók, skriffæri, límstifti. Næringarefnatöflur, tölva, fjölmiðlar s.s. dagblöð og tímarit. Matur og menning. Námsmat Námsmat fer fram í kennslustundum. Lagt er mat á vinnubrögð, frágang, sjálfstæði og samvinnu. Metin er viðleitni og færni nemenda til þess að fara eftir leiðbeiningum og uppskriftum. Þekking nemenda á mælieiningum, hráefnum, aðferðum, næringarfræði, hreinlæti og meðferð heimilistækja . Vinna í tímum gildir 80%, heimavinna (vinnubók) gildir 10% og uppskriftabók gildir 10%. Einkunn er gefin í heilum og hálfum tölum frá 1-10. Einnig er gefin skrifleg umsögn þar sem þekking, umgengni, samvinna og sjálfstæði í vinnubrögðum er lögð til grundvallar. Einkunn er birt í verkefnabók í Mentor og í skólalok að vori. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir á viku hálfan vetur.

Hönnun og smíði (val) Kennari: Júlíus Már Þorkelsson Markmið

Að nemandinn öðlist færni, þekkingu og skilning á eðli hönnunar og smíði.

Að nemandi geti sýnt frumkvæði og kunnáttu í að nota viðeigandi verkfæri og véla.

Að nemandinn geti valið viðeigandi efni sem hæfa verkefnum.

Að nemendur þjálfist í að móta hugmyndir í efni með þeirri verktækni og verkþekkingu sem greinin býr yfir.

Að nemendur temji sér öguð vinnubrögð og vandvirkni.

Að nemendur geti hagnýtt sér það verklag sem kennt hefur verið á fyrri árum og dýpkað þekkingu sína.

Að nemendur geti notað fríhendisteikningu og grunnteikningu við hönnun hlutar.

Helstu viðfangsefni Viðfangsefni nemenda verða margvísleg. Aðallega verður unnið í tré, plast, járn og aðra málma. Einnig verður nemendum kennt að málsetja teikningar og lesa út úr þeim. Það verða nokkur skylduverkefni, einnig er lögð áhersla á að nemendur finni sér verkefni og útfæri hönnun þeirra í samvinnu við kennara. Í gegnum raunhæf verkefni er nemendum kenndar aðferðir til að finna lausnir á vandamálinu með ögrun á eigin hugsun. Nemendur fá aukna fræðslu um formfræði og læra hvernig nota má þá þekkingu til að ná fram markmiðum sínum varðandi útlit og notagildi í hönnun hluta eða rýmis. Nemendum eru kynnt tölvuforrit og þeim kennt að nota þau til þess að koma hugmyndum sínum niður á frambærilegan hátt. Nemandinn kynnist því hvernig mismunandi efnisval og frágangur breytir ásýnd og

Page 22: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

22

eiginleikum afurðar og hvernig hægt er að nota liti til þess að koma ákveðnum boðum til skila í hönnun. Leiðir, kennsluaðferðir Lögð er áhersla á sjálfstæða vinnu og sköpunarhæfileika nemenda, einnig verður sýnikennsla í grunnteikningu og nemendum kynnt tölvuforrit . Kennslan miðast við að nemendur læri að tileinka sér rétt vinnubrögð og rétta notkun verkfæra. Námsmat (20%) Bókleg verkefni sem byggist á:

frágangi

skilum á réttum tíma

vinnusemi (15%) Símat kennara sem framkvæmt er reglulega og byggist á:

námsvenjum og vinnubrögðum

ástundun og hegðun

umgengni og öryggi

(65%) Lokaafurðir nemenda metnar af kennara og byggist á:

hugmyndaauðgi og hönnun

verkfærni og vandvirkni Lokaeinkunn samanstendur af ástundun, virkni, þátttöku, vinnubrögðum og verkefnaskilum ásamt skriflegri, uppbyggilegri og jákvætt gagnrýnni umsögn er gefin í smiðjulok og birt í verkefnabók á Mentor.is og á vitnisburði nemenda við skólalok. Gefið er eftir einkunnaskalanum 1 til 10 í heilum og hálfum tölum. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir á viku.

Íþróttir (val) Kennari: Þóra Gísladóttir Markmið

Stefnt skal að því að auka þekkingu og skilning nemenda á starfsemi líkamans og áhrifum skipulagðrar þjálfunar á líkama og heilsu. Þá skal einnig aðstoða nemendur við að finna sér leiðir til líkams- og heilsuræktar.

Nemendur auki vitund sína varðandi eigin heilsu og heilbrigða lífshætti.

Stefnt skal að því að bæta líkamshreysti og líkamsreisn nemenda meðal annars með markvissri þjálfun þrekþátta, þols, krafts og hraða og æfingum sem bæta líkamsstöðu og líkamsreisn.

Stefnt skal að því að efla nemandann sem félagsveru, kenna honum að taka tillit til annarra og beita sveigjanleika í samskiptum. Einnig skal stefnt að því að auka skilning og hæfni nemenda til þess að fara eftir

Page 23: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

23

reglum og fyrirmælum og auka innsæi nemenda í tilfinningar sínar og tilfinningar annarra.

Nemandinn þjálfist í því að bera ábyrgð á eigin heilsu, með því að tileinka sér markvissa ástundun íþrótta eða líkams- og heilsuræktar.

Stefnt skal að því að nemendur þjálfist í að starfa saman í sátt og samlyndi og meta rétt annarra á við sinn eiginn.

Nemendur kynnist nánasta umhverfi sínu og fái þjálfun í að ganga á fjöll.

(Sjá Aðalnámskrá Grunnskóla, íþróttir, líkams- og heilsurækt)

Helstu viðfangsefni

Undirbúningur fyrir Skólahreysti 2013

Þrek

Teygjur

Kynning á íþróttagreinum – vettvansferðir

Fjallganga

Nemendur eiga að mæta með sérstök föt í íþróttatíma og æskilegt er að koma með innanhússíþróttaskó.

Íþróttatímarnir verða mjög fjölbreyttir. Áhersla verður lögð á þrekþjálfun til að auka þol og kraft nemenda. Einnig mun vera lögð áhersla á teygjur og sýnt fram á mikilvægi liðleika við ástundun allra íþróttagreina. Farið verður í vettvangsferðir ásamt fjallgöngu. Reynt verður að örva jákvætt viðhorf nemenda til íþróttaiðkana, hvar og hvenær sem er, ásamt því að skapa gott andrúmsloft í tímum.

Námsmat Lagt er mat á virkni í tímum, viðhorf, hegðun, ástundun, fara eftir fyrirmælum og framfarir nemenda (100%). Fyrirgjöf er samkvæmt eftirfarandi mælikvarða: 1 – 10 og er gefið í heilum og hálfum tölum ásamt umsögn að vori. Kennsluaðstæður Íþróttahúsið í Kaplakrika

Fjöldi kennslustunda á viku Ein kennslustund.

Mannkynssaga (val) Kennari: Gunnar Bjartmarsson Markmið Að nemendur kynnist fornum menningarheimum og áhrifum þeirra á seinni tíma kynslóðir. Leiðir, kennsluaðferðir Fyrirlestrar, glæru- og myndbandasýningar, umræður og verkefnavinna. Viðfangsefni Rómaveldi, arfur fornaldar, veldi Araba, Islam, kirkja og trúboð,

Page 24: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

24

lénsskipulag, riddarar, krossferðir, Mongólar, Endurreisnarhreyfingin, landafundir, Aztekar, Mayar, Inkar, siðaskipti. Námsgögn Samferða um söguna. Glærur, myndbönd Námsmat Próf í lok anna, einkunn er gefin frá 1-10. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir.

Myndmennt (val) Kennari: Kolbrún Kjartansdóttir Markmið Námið skal þroska sköpunargáfu, efla sjálfsvitund og auka þekkingu á myndlist. Nemendur kynnist efnum og áhöldum, hugmyndum og tækni sem er undirstaða myndsköpunar. Nemandi

vinni verkefni sem fela í sér hugmyndavinnu

takist á við þróunarvinnu og tilraunir, s.s. skissugerð, mismunandi útgáfur og lausnir

geti útfært myndverk frá skissu til fullunnins verks

geti gengið frá myndverki til sýningar

geri sér grein fyrir verðmæti efna og áhalda sem unnið er með Leiðir, kennsluaðferðir Fyrirlestrar, sýnikennsla, verklegar æfingar, bein kennsla, fræðslumyndir og safnaferðir. Helstu viðfangsefni Unnin eru ýmis teikni- og málunarverkefni með áherslu á ítarlega skissuvinnu, formfræði, myndbyggingu, litafræði, hugmyndavinnu og frágang verka. Mótun og þrykk. Námsgögn Námsefni kennara, handbækur, listaverkabækur, vefurinn, glærur. Námsmat Lagt er mat á verkefnaskil, færni, skilning og sköpun. Vægi hvers þáttar er 25%. Gefið er fyrir með heilum og hálfum tölum frá 1-10. Stutt umsögn fylgir þar sem metið er: Vinnubrögð, virkni, framkoma og framfarir. Einkunn er gefin í annarlok. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir á viku hálfan veturinn.

Page 25: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

25

Spænska (val) Kennari: Sigríður Ingadóttir Markmið Að nemendur

byggi upp orðaforða um athafnir daglegs lífs og tileinki sér þann orðaforða sem er í námsefninu

skilji almenn orð og einfaldar setningar

skilji það lesefni sem farið er í í tímum og geti unnið verkefni tengd því

læri nafnorð og greini, lýsingarorð og atviksorð, persónufornöfn, töluorð, eignarfornöfn, forsetningarliði, nútíð og framtíð sagna, spurningar og neitun

læri framburðarreglur og æfi framburð

Leiðir, kennsluaðferðir Sjálfstæð vinnubrögð, ritun, námsleikir/spil, endurtekningaræfingar, yfirferð námsefnis, vinnubókarblöð, myndmiðlar og hlustunarefni. Helstu viðfangsefni Byggður upp orðaforði úr nánasta umhverfi og um athafnir daglegs lífs.Ýmsar tómstundir og afþreying ungs fólks eins og t.d. spænsk tónlist, kvikmyndir og leikir. Markviss málfræðikennsla. Námsgögn Mundos Nuevos 1, kennslubók og æfingahefti, málfræðihefti, tónlist og kvikmyndir. Spænsk tónlist , námsleikir og margmiðlunarefni. Námsmat Skilaverkefni 25% og orðaforðapróf 25 % af lokaeinkunn. Í lok hvorrar annar er 50% lokapróf. Tilhögun námsmatsins er það sama fyrir bæði vor- og haustönn. Lokaprófið á vorönn er sambærilegt lokaprófi í spænsku 103 á framhaldsskólastigi. Einkunn er gefin í heilum og hálfum tölum frá 1-10. Einnig fá nemendur umsagnir um ástundun í lok hvorrar annar. Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir.

Heimanám

Heimanám felur í sér lestur í textabók fagsins. Nemendur glósa upp úr textanum. Unnar eru æfingar upp úr verkefnabók og málfræðihefti, bæði munnlegar og skriflegar. Heimavinna er í hverri viku, í lesbók, málfræðihefti og/eða verkefnabók.

Stærðfræði 103, framhaldsskólaáfangi (val) Kennt í Flensborgarskólanum Valáfangi í stærðfræði fyrir grunnskólanema. Námsefni, vinnutilhögun og kröfur eru þær sömu og gerðar eru til nemenda í áfanganum STÆ 103 á fyrstu önn í framhaldsskóla. Þessi valgrein gerir miklar kröfur til nemenda og

Page 26: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

26

því þurfa þeir sem velja hana að hafa mjög góðan grunn úr því námsefni sem þeir hafa þegar lokið í grunnskólanum og hafa vilja og metnað til að leggja á sig mikla vinnu. Markmið

Þjálfa rökræna hugsun og skilmerka framsetningu.

Auka kunnáttu nemenda í grundvallaratriðum stærðfræðinnar til að þeir séu færir um að takast á við stærðfræðinám á náttúrufræðibraut framhaldsskóla.

Helstu námsþættir Talnareikningur, jöfnur, prósentureikningur, rúmfræði, algebra, hnitarúmfræði, föll. Leiðir, kennsluaðferðir Gert er ráð fyrir að nemendur reikni sem flest dæmi úr kennslubókinni, en kennari velur sérstaklega þau dæmi sem nauðsynlegt er að allir reikni. Auk þess er nemendum gert að skila til kennara sérstökum heimaverkefnum a.m.k. þrisvar sinnum á hvorri önn. Þessi verkefni fá nemendur í hendur viku fyrir skiladag. Nemendum ber að skila öllum verkefnum á réttum tíma og gefin er einkunn fyrir öll verkefni. Einnig eru 2 hlutapróf á haustönn og 2 á vorönn. Tímasetning hlutaprófs er kynnt með a.m.k. viku fyrirvara. Hlutapróf taka að jafnaði 1 klst. Þrjú bestu hlutaprófin gilda til einkunnar. Fimm bestu heimadæmin gilda til einkunnar Áætlun um yfirferð Mikilvægt að nemendur vinni jafnt og þétt allan tímann til að dragast ekki aftur úr. Nauðsynlegt að taka glósur í kennslustundum og ekki er síður mikilvægt að líta alltaf yfir námsefni dagsins aftur samdægurs, þannig situr það betur í minni. Sérstaklega er bent á að lesa vel leiðbeiningar til nemenda í kennslubókinni. Námsgögn STÆ 103 eftir Jón Þorvarðarson (útgáfa 2007 eða síðar). Námsmat Nemendur fá stöðueinkunn í desember eftir haustmisseri. Lokapróf fer fram í maí Lokapróf gildir 60% en sérstök heimaverkefni, hlutapróf og stöðueinkunn í desember gilda 40%. Nemendur þurfa að standast lokapróf til að mat á öðrum þáttum komi inn í einkunn. Fjöldi kennslustunda á viku Þrjár kennslustundir, eða 2 klukkustundir á viku.

Page 27: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

27

Textílmennt (val) 10. bekkur Kennari: Edda Lilja Guðmundsdóttir Markmið Nemendur tileinki sér vandvirkni og rétta meðferð áhalda og véla. Nemendur verði færir um að beita hugmyndavinnu í útfærslu verkefna sinna og geti nýtt sér greinina í samræmi við langanir og þarfir. Nemendur öðlist færni í að skreyta flík á persónulegan hátt, noti fagbækur og gögn greinarinnar og verði færir um að meta eigin verkefni og rökstyðja matið. Leiðir, kennsluaðferðir Bein kennsla, sýnikennsla, verklegar æfingar, sköpun og hugmyndavinna. Helstu viðfangsefni Endurvinnsla, prjón með perlum, nálarþæfing í þrívídd, fylgihlutir og skart. Námsgögn Glærur, ítarefni frá kennara, prjónablöð og bækur, tískublöð og tölvur. Námsmat Lagt er mat á færni (25%), kunnáttu (25%), skilning (25%) og sköpun (15%). Sjálfsmat gildir 10%. Námsmatið er símat sem stutt er með gátlistum. Gefið er fyrir í lok hvers verkefnis og birt meðaltal á einkunnarblaði við annarlok í janúar eða að vori. Gefið er fyrir í heilum og hálfum tölum frá 1-10. Einnig er gefin skrifleg umsögn þar sem vinnubrögð, virkni, sjálfstæði og umgengni eru lögð til grundvallar Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir á viku hálfan veturinn.

Tómstunda– og félagsmálafræði (val) Kennarar: Sigríður Ingadóttir og Valdimar Víðisson Markmið

Að þjálfa nemendur í fundarsköpum, ræðumennsku, skipulagsvinnu og lýðræðislegum vinnubrögðum í hópastarfi.

Að stuðla að sjálfstæðum vinnubrögðum og ábyrgð.

Að byggja upp heilbrigða sjálfsmynd nemenda.

Að vera öflugur stuðningur við nemendaráð.

Að nemendur hjálpi til við undirbúning og útfærslu á félagslífi í félagsmiðstöð og skóla.

Leiðir, kennsluaðferðir Hópverkefni, sjálfstæð vinnubrögð, einstaklingsverkefni, hlutverkaleikir, sýnikennsla og námsleikir/spil. Í hverjum tíma verða umræður um tiltekið málefni. Nemendur eiga að ræða saman og komast að niðurstöðu. Stuðst verður við fjölbreytta kennsluhætti og þátttaka nemenda nauðsynleg.

Page 28: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

28

Helstu viðfangsefni Námið verður tengt félagsstarfi skólans og félagsmiðstöðinni Öldunni að hluta til. Valið er í nemendaráð og önnur ráð úr hópi þeirra sem verða í þessum áfanga. Í áfanganum felst fræðsla sem viðkemur félagsmálum, skipulagi á félagslífi nemenda, klúbbastarfi og undirbúningi og framkvæmd ýmissa verkefna og viðburða. Auk þess verður farið markvisst í ræðumennsku og framkomu. Námsgögn Vertu með 1 og 2, greinar úr tímaritum og dagblöðum, sjónvarpsþættir og klípusögur. Heimanám Heimanám byggir á hugleiðingum sem nemendur eiga að skila, lestur tímaritsgreina og áhorf á heimildarmyndir, fréttir og þætti. Nokkur samvinnunámsverkefni þar sem nemendur eiga að vinna saman. Námsmat Námsmat byggir á símati sem verður skráð reglulega inn á mentor og birt nemendum og foreldrum. Á vorin fá nemendur skriflega umsögn og einkunnarorð á vitnisburðarblað. Símatið byggir á:

Hugleiðingum (20%).

Lokaverkefni að vori (20%).

Jafningjamat og sjálfsmat (20%).

Verkefnavinna í tíma (40%). Fjöldi kennslustunda á viku Tvær kennslustundir.

Tónlist (val) Kennari: Baldvin Eyjólfsson Markmið

Að nemandi kynnist fjölbreyttum stílbrigðum tónlistar.

Að nemandi öðlist færni á sitt hljóðfæri og æfi samspil.

Að nemandi öðlist grunnskilning á meðferð magnara og upptökutækni. Leiðir, kennsluaðferðir . Kennsla í samspili, bæði eftir nótum, hljómum og eyra. Helstu viðfangsefni Hljóðfæraleikur, nemendur mynda samspilshópa og takast á við fjölbreytt verkefni. Vinna með upptökuforrit. Námsgögn Nótur, hljómablöð og ýmis hljóðfæri.

Page 29: Skilaboð v/námsvísa: Ef upp kemur 'read only' þegar reynt ...Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli 2 Umsjónarkennarar 10.J: Sigþór Örn Rúnarsson 10.K: Rannveig

Námsvísir 2012-2013 10. bekkur Öldutúnsskóli

29

Námsmat Einkunn byggð á námsframvindu og iðju í hljóðfæraleik. Fjöldi kennslustunda á viku Ein kennslustund á viku.

Útivist og umhverfi Markmið

Að nemendur skynji mikilvægi þess að vera í tengslum við náttúruna.

Að skapa nemendum tækifæri til útivistar í íslenskri náttúru.

Að efla skilning á góðri umgengni um náttúru, híbýli og nánasta umhverfi.

Að nemendur nýti upplýsingatækni til þess að auka þekkingu á umhverfi og útivistarmöguleikum.

Að nemendur geri sér grein fyrir gildi umhverfisverndar. Leiðir, kennsluaðferðir Kennsla verður að mestu í formi útivistar. Nemendur læra að búa sig til útivistar eftir veðri. Nemendum verður kennt að afla sér upplýsinga um fjallgöngur, hættur sem þeim fylgja og nauðsynlegar varúðarráðstafanir. Námsmat Gefin er umsögn í lok skólaárs þar sem ástundun, virkni og áhugi eru metin.. Tími Greinin er reiknuð sem ígildi einnar kennslustundar á viku að jafnaði yfir veturinn. Nemendur mæta í nokkur skipti og þá nokkra tíma í senn.