12. tbl. 2016

4
Miðvikudaginn 23. mars 2016 www.eystrahorn.is Eystrahorn 12. tbl. 34. árgangur www.eystrahorn.is Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is Efnilegt ungt íþróttafólk Ástin, drekinn og dauðinn í Hafnarkirkju Á 83. ársþingi USÚ, sem haldið var á Hótel Höfn 17. mars 2016 var íþróttamanni USÚ árið 2015 veitt viðurkenning. Þar að auki fengu þrjú ungmenni sem þótt hafa staðið sig vel á árinu viðurkenningu. Íþróttamaður USÚ árið 2015 er Ingibjörg Valgeirsdóttir. Ingibjörg er fædd árið 1998. Hún var markmaður meistaraflokks Sindra í knattspyrnu á síðasta ári og spilaði alla 12 leiki þeirra í deild og 1 í bikarkeppninni. Hún var valin í U17 landslið Íslands og spilaði 5 landsleiki. Þegar því verkefni lauk fór hún beint í U19 landsliðið og spilaði með þeim 3 leiki í haust. Ingibjörg er mikil keppnismanneskja sem gæti náð langt í hvaða íþróttagrein sem er. Hún talin eitt mesta markmannsefni í dag. Ingibjörg skipti yfir í úrvalsdeildarlið KR núna um áramótin og verður áhugavert að fylgjast með henni í framtíðinni. Hvatningarverðlaun Hvatningarverðlaun hlutu Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Birkir Freyr Elvarsson og Gísli Þórarinn Hallsson Bjarney er ung og bráðefnileg hestakona sem átti frábært keppnisár í fyrra og var tilnefnd sem gæðingaknapi ársins. Hún var t.d. í 1. sæti í A flokki á félagsmóti Hestamannafélagsins Hornfirðings en toppnum náði hún þegar hún vann A úrslit í A flokki á fjórðungsmóti Austurland sl. sumar. Bjarney er í námi í hestafræðum við Háskólann á Hólum. Birkir er ungur og efnilegur blakmaður af Mýrunum. Hann var valinn í æfingahóp hjá U17 landsliðinu í blaki nú í haust og æfði með þeim í Reykjavík. Hann var svo valinn í lokahópinn hjá U17 landsliðinu sem fór til Englands og spilaði þar sína fyrstu landsleiki og stóð sig vel. Gísli var síðastliðið sumar valinn í U-16 landsliðið sem keppti í 2. deild Evrópumótsins í körfubolta. Hann spilaði 9 leiki og skoraði í þeim 46 stig og stóð hann sig með prýði. Gísli gerði samning við úrvaldsdeildarlið Hattar á Egilsstöðum og spilar með þeim núna. Gísli spilaði einnig 6 leiki í marki Mána í sumar og þótti standa sig vel. Á síðustu þremur árum hefur Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur kvatt eiginmann sinn, tengdamóður, föður og litla dótturdóttur. Bók hennar, Ástin, drekinn og dauðinn, sem kom út í fyrra, hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn en um leið jarðbundinn hátt. Þar lýsir hún vegferð sinni og Hennar heittelskaða með sjúkdómi sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Hún veitir þar í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En bókin er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. Miðvikudagskvöldið 30. mars kl. 20:00 mun Vilborg flytja erindi í Hafnarkirkju um hvernig dauðinn breytir tilveru þeirra sem eftir lifa og hvernig þetta ferðalag hefur kennt henni að það eru einmitt þrautirnar í lífinu sem gera það að ævintýri. Erindið er hluti af dagskrá í tilefni 40 ára vígsluafmælis Bjarnneskirkju og 50 ára vígsluafmælis Hafnarkirkju. Allir velkomnir á erindi Vilborgar miðvikudaginn 31. mars í Hafnarkirkju. Ingibjörg Valgeirsdóttir Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 27-Jul-2016

241 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: 12. tbl. 2016

Miðvikudaginn 23. mars 2016 www.eystrahorn.is

Eystrahorn12. tbl. 34. árgangur www.eystrahorn.is

Samfélagsvefurinn www.hornafjordur.is

Efnilegt ungt íþróttafólk

Ástin, drekinn og dauðinn í Hafnarkirkju

Á 83. ársþingi USÚ, sem haldið var á Hótel Höfn 17. mars 2016 var íþróttamanni USÚ árið 2015 veitt viðurkenning. Þar að auki fengu þrjú ungmenni sem þótt hafa staðið sig vel á árinu viðurkenningu.

Íþróttamaður USÚ árið 2015 er Ingibjörg Valgeirsdóttir.

Ingibjörg er fædd árið 1998. Hún var markmaður meistaraflokks Sindra í knattspyrnu á síðasta ári og spilaði alla 12

leiki þeirra í deild og 1 í bikarkeppninni. Hún var valin í U17 landslið Íslands og spilaði 5 landsleiki. Þegar því verkefni lauk fór hún beint í U19 landsliðið og spilaði með þeim 3 leiki í haust. Ingibjörg er mikil keppnismanneskja sem gæti náð langt í hvaða íþróttagrein sem er. Hún talin eitt mesta markmannsefni í dag. Ingibjörg skipti yfir í úrvalsdeildarlið KR núna um áramótin og verður áhugavert að fylgjast með henni í framtíðinni.

HvatningarverðlaunHvatningarverðlaun hlutu Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir, Birkir Freyr Elvarsson og Gísli Þórarinn Hallsson

Bjarney er ung og bráðefnileg hestakona sem átti frábært keppnisár í fyrra og var tilnefnd sem gæðingaknapi ársins. Hún var t.d. í 1. sæti í A flokki á félagsmóti Hestamannafélagsins Hornfirðings en toppnum náði hún þegar hún vann A úrslit í A flokki á fjórðungsmóti Austurland sl. sumar. Bjarney er í námi í hestafræðum við Háskólann á Hólum. Birkir er ungur og efnilegur blakmaður af Mýrunum. Hann var valinn í æfingahóp hjá U17 landsliðinu í blaki nú í haust og æfði með þeim í Reykjavík. Hann var svo valinn í lokahópinn hjá U17 landsliðinu sem fór til Englands og spilaði þar sína fyrstu landsleiki og stóð sig vel.

Gísli var síðastliðið sumar valinn í U-16 landsliðið sem keppti í 2. deild Evrópumótsins í körfubolta. Hann spilaði 9 leiki og skoraði í þeim 46 stig og stóð hann sig með prýði. Gísli gerði samning við úrvaldsdeildarlið Hattar á Egilsstöðum og spilar með þeim núna. Gísli spilaði einnig 6 leiki í marki Mána í sumar og þótti standa sig vel.

Á síðustu þremur árum hefur Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur kvatt eiginmann sinn, tengdamóður, föður og litla dótturdóttur. Bók hennar, Ástin, drekinn og dauðinn, sem kom út í fyrra, hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn en um leið jarðbundinn hátt. Þar lýsir hún vegferð sinni og Hennar heittelskaða með sjúkdómi sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Hún veitir þar í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En bókin er ekki síður óður til kærleikans,

hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. Miðvikudagskvöldið 30. mars kl. 20:00 mun Vilborg flytja erindi í Hafnarkirkju um hvernig dauðinn breytir tilveru þeirra sem eftir lifa og hvernig þetta ferðalag hefur kennt henni að það eru einmitt þrautirnar í lífinu sem gera það að ævintýri. Erindið er hluti af dagskrá í tilefni 40 ára vígsluafmælis Bjarnneskirkju og 50 ára vígsluafmælis Hafnarkirkju.

Allir velkomnir á erindi Vilborgar miðvikudaginn 31. mars í Hafnarkirkju.

Ingibjörg Valgeirsdóttir

Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur.

Page 2: 12. tbl. 2016

2 EystrahornMiðvikudaginn 23. mars 2016

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornafjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811

Kt. 240249-2949

EystrahornEystrahornVesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður:. Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesUmbrot: ............. Tjörvi ÓskarssonPrentun: ............. Litlaprent

ISSN 1670-4126

Hafnarkirkja

50 ára

SUMARFERÐ 2016 SUMARFERÐ FélAgS EldRi HoRnFiRÐingA 2016

Fyrirhugað er að fara í sumarferð í Borgarfjörðinn og um Snæfellsnes dagana 11. júní til og með 14. júní.

Nánari upplýsingar um ferðina, verð og skráningu veita Gróa í gsm. 867-8796, Ásta í gsm. 846-6199 og Björn formaður í gsm. 894-7210.

Ferðanefndin.

Helgihald í Bjarnanesprestakalli um páska

HafnarkirkjaKyrrðarstund á föstu miðvikudaginn 23. mars kl. 18:15

Messa á skírdagskvöld kl. 20:00

Guðsþjónusta á föstudaginn langa kl. 14:00

Messa á aðfangadag páska 26. mars kl. 11:00 - ferming

Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 9:00

KálfafellsstaðarkirkjaHátíðarmessa á annan páskadag kl. 14:00 - ferming

BjarnaneskirkjaHátíðarmessa á páskadag kl. 13:00 – ferming

HofskirkjaMessa á skírdag kl. 14:00

StafafellskirkjaHátíðarmessa á annan páskadag kl. 11:00 – ferming

BrunnhólskirkjaHátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 15:00

Kaþólska kirkjan

Páskadagsmessa 27. mars kl. 12:00Fögnum saman upprisunni.Gleðilega páska, Pétur

Bifreiðaskoðun á Höfn 4., 5. og 6. apríl.

Tímapantanir í síma 570 9090 fyrir kl. 16:00 1. apríl.

Næsta skoðun er 23., 24. og 25. maí.

Þegar vel er skoðað

Aðalfundur Aðalfundur Ferðafélags Austur – Skaftfellinga verður haldinn íGömlubúð fimmtudaginn 31. mars kl. 20:00 - Venjuleg aðalfundarstörf - Önnur mál. - Símavandamál. - Brúargerð. - Nýr vefur félagsins gonguferdir.is - Bygging hreinlætishúss í Kollumúla. - Stutt kynning í myndum og máli.

Stjórnin

Rakarastofan verður lokuð 31. mars og 1. apríl. Einnig þann 7. apríl og 8. apríl

Rakarastofa Baldvins

Page 3: 12. tbl. 2016

3Eystrahorn Miðvikudaginn 23. mars 2016

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Austur-Skaftfellinga verður haldinn þriðjudaginn 29. mars kl. 19:00

Dagskrá:

» Venjuleg aðalfundarstörf

» Önnur mál

Súpa í boði.

Stjórnin

Vinnuskóli 2016

Skráning í Vinnuskóla Hornafjarðar er hafin, börn og ungmenni sem eru í 8., 9. og 10. bekk geta sótt um vinnu, jafnframt geta börn og ungmenni sem ekki eru í Grunnskóla Hornafjarðar og eiga lögheimili í öðru sveitarfélagi eða erlendis sótt um vinnu í Vinnuskólanum.

Vinnuskólinn hefst 6. júní og lýkur 31. júlí. Umsækjendur fá upplýsingar um vinnutilhögun í byrjun júní.

Umsóknartíminn er 18. mars – 15. apríl

Sótt er um vinnuskóla í gegn um íbúagátt sveitarfélagsins http://ibuagatt.hornafjordur.is

Upplýsingar gefur Svava Mjöll Jónasar. í síma 847 8883 eða á netfangið [email protected]

Póker 15.000 kr. Freezout veisla3 sæti laus!Facebook.com/pkhofn

Frekari upplýsingar í síma 848-3565 (Ottó)

Ertu með frábærahugmynd?

nýsköpunmenning

atvinnauppbygging

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki

á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:

• Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi

• Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi

• Að styðja við atvinnuskapandi- og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og

leiðbeiningar við gerð umsókna.

Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið

[email protected]

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum ve�nn sudurland.is

Austurvegi 56 - 800 Selfoss - 480-8200 - [email protected]ök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) eru landshlutasamtök sveitarfélaga á Suðurlandi, samstarfs- og þjónustuvettvangur um hagsmunamál sveitarfélaga, íbúa og atvinnulífs á Suðurlandi.

tækifæri

Páskadansleikur í Mánagarði25. mars kl. 23:59 - 4:00

Hljómsveitinn Made in sveitin leikur fyrir dansiMiðaverð 3000 kr.

Rútuferðir frá Olís og N1. 18 ára aldurstakmark

Knattspyrnudeild Sindra

Page 4: 12. tbl. 2016

EystrahornSundlaug Hafnar

Opnunartímar yfir páskahátíðinaFimmtudagur 24. mars ...... kl. 10:00 - 17:00

Föstudagur 25. mars .......... LOKAÐ

Laugardagur 26. mars ....... kl. 10:00 - 17:00

Sunnudagur 27. mars ........ LOKAÐ

Mánudagur 28. mars ......... kl. 10:00 - 17:00

Heyrðu umskiptinFáðu heyrnartæki til reynslu

Tímapantanir 534 9600Heyrn · Hlíðasmári 11

201 Kópavogur · heyrn.is

HEYRNARÞJÓNUSTA

Verðum á heilsugæslunnií Grundar�rðiföstudaginn 13. júní

Verið velkomin

Verðum á heilsugæslunni í Höfn föstudaginn 8. apríl.

Merki um heyrnarskerðingu

Hvernig finnurðu hvort þú eigir við heyrnarskerðingu að etja?Svör þín við eftirfarandi spurningum geta gefið vísbendingu:

1. Áttu erfitt með að heyra sömu hljóð og aðrir heyra svo sem fuglasöng? 2. Hváirðu oft? 3. Hækkarðu oft það mikið í sjónvarpi eða útvarpi að öðrum finnist það óþægilegt? 4. Finnst þér aðrir muldra? 5. Hefurðu són í eyrunum? 6. Biðurðu aðra stundum að segja þér hvað sagt var á fundum sem þú varst á? 7. Áttu erfitt með að skilja þegar þú talar í síma? 8. Ef kliður er áttu þá erfitt með að ná því sem er sagt? 9. Hefurðu verið að staðaldri í miklum hávaða og þá sérstaklega í vinnunni? 10. Heyrirðu varla þegar dyrabjallan eða síminn hringja? 11. Finnst þér auðveldara að skilja raddir karla en kvenna?

Hafirðu svarað játandi einhverjum af þessum spurningum þá getur ástæða þess verið heyrnarskerðing. Til að fá úr því skorið mælum við með því að þú farir í greiningu hjá heyrnarfræðingi en heyrnarskerðing er einn algengasti kvilli sem hrjáir fullorðið fólk.

Að heyra vel á ný Með heyrnartækjum má bæta úr algengustu gerð heyrnarskerðingar. Heyrnarskerðing erjafn mismunandi eins og við erum mörg. Sem betur fer þá má forrita heyrnartækin þannigað virkni þeirra er sniðin að heyrn þess sem notar þau. Auk þess hafa þau fjölbreyttaeiginleika, þau bæta t.d. talskilning þar sem kliður er með því að sía frá síbyljuhljóðmeð stefnuvirkni. Tækin eru sjálfvirk þannig að notandinn þarf ekkert að gera annað enað kveikja á þeim og setja þau upp. Flest heyrnartæki eru mjög fíngerð þannig að það ber mun meira á heyrnarskerðingu hjá þeim sem er án heyrnartækja en hjá þeim sem notar þau.

Er ástæða til að skerpa heyrnina? Eftir hverju ertu að bíða? Fólk líður fyrir heyrnarskerðingu að meðaltali í um 7 ár áður en það leitar aðstoðar. Er það ekki óþarfi? Heyrnarmæling tekur aðeins um hálftíma og smágerð heyrnartæki getalagað heyrnina með því að magna aðeins þá tíðni sem þarf til leiðrétta skerðinguna. Þá getur heyrnin orðið eðlileg á ný og maður farið að lifa betra lífi í nánara sambandi viðfólk.

ReSound gerir gæfumuninn

ATH: Heyrnartæki eru niðurgreidd af SÍ og einnig af sumum stéttarfélögum

Bréfberi óskast á Höfn í Hornafirði

Pósturinn óskar eftir að ráða bréfbera í sumarstarf. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund sem á auðvelt með samskipti.

Um er að ræða 75% stöðu frá 1. júní - 16. júní og frá 13. júlí - 12. ágúst. Vinnutími frá 08:00 og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. júní 2016.

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Lucia Þórarinsdóttir í síma 478 1101 eða á pósthúsinu.

Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2016. Umsóknum skal skilað á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is

Bréfberi óskast á Höfn í Hornafirði

Pósturinn óskar eftir að ráða bréfbera í sumarstarf. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund sem á auðvelt með samskipti.

Um er að ræða 75% stöðu frá 1. júní - 16. júní og frá 13. júlí - 12. ágúst. Vinnutími frá 08:00 og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. júní 2016.

Nánari upplýsingar gefur Sigríður Lucia Þórarinsdóttir í síma 478 1101 eða á pósthúsinu.

Umsóknarfrestur er til 11. apríl 2016. Umsóknum skal skilað á umsóknarvef Póstsins: umsokn.postur.is

Getraunanúmer Sindra er 780