eystrahorn 32. tbl. 2011

8
Fimmtudagur 15. september 2011 www.eystrahorn.is Eystrahorn 32. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is Sveitakeppni golfklúbba á Austurlandi var haldin hér á Hornafirði 10.- 11. september með þátttöku allra golfklúbba á Austurlandi. Keppt var í tveimur riðlum. Í A-riðli sigraði sveit Golfklúbbs Hornafjarðar en Golfklúbbur Neskaupsstaðar í B-riðli. Þessar sveitir léku svo til úrslita þar sem leikar stóðu jafnir eftir 18 holur. Jafnt var líka eftir tvær holur í bráðabana þar sem Guðmundur Borgar og Héðinn Sigurðsson léku fyrir heimamenn. Þá var gripið til þess að slá eitt högg af 100 metrum og sigurvegari yrði sá sem væri nær holu og tr yggði Héðinn Sigurðsson þá heimamönnum sigurinn. Glæsilegt afrek eftir hörkuleik við mjög sterka sveit Norðfirðinga. Gestur Halldórsson liðsstjóri Hornfirðinga sagði að leikmenn klúbbanna hefðu dásamað bæði umgjörð og aðstöðu hér á frábærum Silfurnesvellinum. Varð sumum á orði að það ætti að spila hér á Silfurnesvelli annað hvert ár því þetta væri örugglega besti golfvöllurinn á Austurlandi. Gestur vildi þakka öllum kylfingum þátttöku í mótinu og sagðist vonast til að sjá sem flesta að ári. Í síðustu viku fóru nemendur úr NÁT103 í dagsferð út á Skeiðarársand. Tilgangurinn með ferðinni var að rannsaka merkta reiti og athuga breytingar og mæla vöxt plantna. Þetta er í þriðja skipti sem nemendur í þessum áfanga fara í ferð til að rannsaka gróðurframvindu á þessu svæði. Á sandinum í nánd við gömlu réttina fylgist FAS með fimm 25 fermetra afmörkuðum reitum. Í hverjum reit eru taldar trjáplöntur, þær flokkaðar eftir tegundum, hæð þeirra mæld svo og lengsti árssproti. Nemendur þurfa líka að áætla hlutfall gróðurþekju í hverjum reit og greina þær háplöntur sem þar eru. Ferðin gekk ljómandi vel. Í nyrstu reitunum var þó áberandi mikil aska sem gæti haft áhrif á niðurstöður. Í þessari viku vinna nemendur úr mælingum þessa árs og bera saman við upplýsingar fyrri ára. Þó er hægt að segja að lengsti mældi árssproti var 47 cm og hæsta plantan er 161 sentimetri. Hækkun á plöntum frá fyrra ári er ekki mikil en þeim fjölgaði mikið, einkum víðiplöntum. Myndun rekla hefur einnig aukist og áberandi aukning er á ummerkjum eftir skordýr. Á leiðinni heim kom hópurinn við í Skaftafelli og borðaði nesti og einnig var stoppað við Kvíármýrarkamb til að skoða hop jökulsins og tína ber. Eyjólfur Guðmundsson og Hjördís Skírnisdóttir Fylgst með gróðri á Skeiðarársandi Hornfirðingar sigruðu Sigursveit Hornfirðinga. Fremri röð f.v. Óli Kristján Benediktsson, Gestur Halldórsson og Guðmundur Borgar. Aftari röð f.v. Guðmundur Kr.Guðmundsson, Gísli Páll Björnsson, Héðinn Sigurðsson, Sævar Gunnarsson. Á myndina vantar Magnús Jónasson.

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 07-Mar-2016

236 views

Category:

Documents

6 download

DESCRIPTION

Eystrahorn 32. tbl. 2011

TRANSCRIPT

Page 1: Eystrahorn 32. tbl. 2011

Fimmtudagur 15. september 2011 www.eystrahorn.is

Eystrahorn32. tbl. 29. árgangur www.eystrahorn.is

Sveitakeppni golfklúbba á Austurlandi var haldin hér á Hornafirði 10.- 11. september með þátttöku allra golfklúbba á Austurlandi. Keppt var í tveimur riðlum. Í A-riðli sigraði sveit Golfklúbbs Hornafjarðar en Golfklúbbur Neskaupsstaðar í B-riðli. Þessar sveitir léku svo til úrslita þar sem leikar stóðu jafnir eftir 18 holur. Jafnt var líka eftir tvær holur í bráðabana þar sem Guðmundur Borgar og Héðinn Sigurðsson léku fyrir heimamenn. Þá var gripið til þess að slá eitt högg af 100 metrum og sigurvegari yrði sá sem væri nær holu og tryggði Héðinn Sigurðsson þá heimamönnum sigurinn. Glæsilegt afrek eftir hörkuleik við mjög sterka sveit Norðfirðinga. Gestur Halldórsson liðsstjóri Hornfirðinga sagði að leikmenn klúbbanna hefðu dásamað bæði umgjörð og aðstöðu hér á frábærum Silfurnesvellinum. Varð sumum á orði að það ætti að spila hér á Silfurnesvelli annað hvert ár því þetta væri örugglega besti golfvöllurinn á Austurlandi. Gestur vildi þakka öllum kylfingum þátttöku í mótinu og sagðist vonast til að sjá sem flesta að ári.

Í síðustu viku fóru nemendur úr NÁT103 í dagsferð út á Skeiðarársand. Tilgangurinn með ferðinni var að rannsaka merkta reiti og athuga breytingar og mæla vöxt plantna. Þetta er í þriðja skipti sem nemendur í þessum áfanga fara í ferð til að rannsaka gróðurframvindu á þessu svæði. Á sandinum í nánd við gömlu réttina fylgist FAS með fimm 25 fermetra afmörkuðum reitum. Í hverjum reit eru taldar trjáplöntur, þær flokkaðar eftir tegundum, hæð þeirra mæld svo og lengsti árssproti. Nemendur þurfa líka að áætla hlutfall gróðurþekju í hverjum reit og greina þær háplöntur sem þar eru. Ferðin gekk ljómandi vel. Í nyrstu reitunum var þó áberandi mikil aska sem gæti haft áhrif á niðurstöður. Í þessari viku vinna nemendur úr mælingum þessa árs og bera saman við upplýsingar fyrri ára. Þó er hægt að segja að lengsti mældi árssproti var 47 cm og hæsta plantan er 161 sentimetri. Hækkun á plöntum frá fyrra ári er ekki mikil en þeim fjölgaði mikið, einkum víðiplöntum. Myndun rekla hefur einnig aukist og áberandi aukning er á ummerkjum eftir skordýr. Á leiðinni heim kom hópurinn við í Skaftafelli og borðaði nesti og einnig var stoppað við Kvíármýrarkamb til að skoða hop jökulsins og tína ber.

Eyjólfur Guðmundsson og Hjördís Skírnisdóttir

Fylgst með gróðri á Skeiðarársandi

Hornfirðingar sigruðu

Sigursveit Hornfirðinga. Fremri röð f.v. Óli Kristján Benediktsson, Gestur Halldórsson og Guðmundur Borgar. Aftari röð f.v. Guðmundur Kr.Guðmundsson, Gísli Páll Björnsson, Héðinn Sigurðsson, Sævar Gunnarsson. Á myndina vantar Magnús Jónasson.

Page 2: Eystrahorn 32. tbl. 2011

2 EystrahornFimmtudagur 15. september 2011

Vildaráskriftina má greiða í Landsbankanum

HornfjarðarMANNI Rnr. 0172 - 26 - 000811 Kt. 240249-2949

Eystrahorn

Vesturbraut 25 • Sími: 862-0249

Útgefandi: ........... HornafjarðarMANNI

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: . Albert EymundssonNetfang: ............. [email protected]ófarkalestur .... Guðlaug HestnesLjósmyndir: ........ Maríus SævarssonUmbrot: ............. Heiðar SigurðssonAðstoð: ................ Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ............. Leturprent

ISSN 1670-4126

kirkjubrautVel staðsett einbýlishús ásamt bílskúr og sólstofu, 4 svefnherbergi, alls 199,1 m². Auðveld kaup.

MiÐtÚNVel staðsett 69,4 m², 3ja herb. íbúð í parhúsi, mikið endurnýjuð að innan, góð fyrsta eign.

hlíÐartÚNVandað og vel byggt 245,9 m² einbýlishús með auka íbúð og tvöföldum bílskúr. Endurnýjuð, bað, gólfefni, lagnir o.fl. Staðsetningin en frábært innst í botngötu.

Hafnarbraut 15 • 780 Höfn • Sími 580 7915 • Fax 580 7911Kaupvangur 2 • 700 Egilsstaðir • Sími 580 7905 • Fax 580 7901Vallholtsvegi 3 • 640 Húsavík • Sími 580 7925 • Fax 580 7821www.inni.is

Hilmar Gunnlaugsson, hrl. og lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Hjördís Hilmarsdóttir, lögg. leigumiðlari, Egilsstöðum

Sigurður Magnússon, lögg. fasteignasali, Egilsstöðum

Pétur Eggertsson, lögg. fasteignasali, Húsavík

Sigríður Kristinsdóttir, hdl, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Snorri Snorrason, lögg. fasteignasali og lögg. leigumiðlari

Hilmar Gunnlaugsson,hrl. og lögg.fasteignasalis. 580 7902

Hjördís Hilmarsdóttir,lögg.

leigumiðlaris. 580 7908

Sigurður Magnússon,lögg.

fasteignasalis. 580 7907

SigríðurKristinsdóttir,

lögmaður

Snorri Snorrason,lögg.

fasteignasalis. 580 7916

FÉLAG FASTEIGNASALA

Nú á dögunum hóf Sandra Björg

Stefánsdóttir störf sem félagsfulltrúi FAS en nemendafélag skólans gekkst undir talsverðar breytingar á síðustu önn. Ákvað síðast starfandi nemendaráð að leggja starf sitt niður og breyta umgjörðinni á starfsemi félagsins, má því segja að Sandra sé að koma inní nýtt skip á nýrri stefnu.

Starfið leggst vel í Söndru. Boltinn fer hægt en örugglega af stað en Sandra hóf störf um sl. mánaðamót. Nú þegar hefur tekið til starfa nýr leikhópur FAS og segir Sandra að það sé fullt af fleiri pælingum í startholunum.

Starf Söndru fellst í að vinna til hliðar Sigfinni Björnssyni, forseta nemendafélagsins og Símoni Rafni Björnssyni,

varaforseta félagsins, vinna þau að koma fólki með lík áhugamál saman eins og gerðist með leikhópinn, en Sandra segir að hann hafi byrjað með innskoti þriggja nemenda sem höfðu leitað til hennar og hún hafi svo komið þeim saman.

Áherslur þremenninganna verða á frjálsa deildarstarfsemi sem eiga að tóna við áhugamál hvers og eins, allir eiga að geta tekið þátt. Sandra nefnir að þetta eigi ekki bara tengjast frítíma nemenda, heldur einnig áhugamálum þeirra.

Þegar þessi frétt er birt hefur þegar verið haldinn fundur til að virkja og kynna tækifæri þeirra sem vilja starfa eða stofna deild innan nemendafélagsins.

Starfið leggs vel í Sigfinn og Símon sem segja að samvinnan verði leikur einn og vona þeir að allt muni ganga vel, því allt veldur þetta á þátttöku og áhuga nemenda FAS.

Eystrahorn þakkar Söndru, Sigfinni og Símon Rafni, sem innan veggja skólans eru kölluð „eSSin þrjú“.

Ottó Marvin Gunnarsson

Félagslíf í FAS

Deiliskipulag – Hafnarvík HeppaBoðað er til kynningarfundar um nýtt deiliskipulag fyrir Hafnarvík Heppu á Höfn ásamt málstofu um nýtingu húsa á svæðinu.

Fundurinn verður haldinn í Pakkhúsinu á Höfn fimmtudaginn 22. september n.k. kl 20:00 og reiknað er með að kynningin ásamt umræðum standi til kl. 21:00.

Kaffi og meðlæti verður til sölu á fundinum.

Framkvæmda- og fjármálasvið ásamt atvinnu- og menningarmálanefnd standa að kynningunni sem er hluti af deiliskipulagsferlinu og stefnumótun fyrir nýtingu húsa innan svæðisins.

Hægt er að nálgast kynningargögn um skipulagið á neðangreindri vefslóð.

http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/skipulag/ikynningu/

Íbúð til leiguTil leigu er 97 fm íbúð miðsvæðis á Höfn. Laus strax. Upplýsingar í síma 471 2675 eða 896 2675.

Sjómanna minnst við messuÍ dag eru liðin nákvæmlega 50 ár frá því að vélbáturinn Helgi SF 50 fórst á heimleið úr sölutúr til Englands. Með Helga fórust sjö sjómenn en tveir komust af eftir að hafa hrakist í björgunarbáti í 22 klukkustundir í slæmu veðri, kaldir og matarlausir. Ítarlega frásögn af slysinu má lesa í Sögu Hafnar bls. 236 – 240. Sömuleiðis er í ár 40 ár frá því að Sigurfari SF 58 fórst í Hornafjarðarós 17. apríl 1971. Í Sigurfaraslysinu fórust átta sjómenn en tveimur var bjargað eftir hetjulega baráttu í brimrótinu. Í Sögu Hafnar má lesa um slysið á bls. 240 – 242.Við messu á sjómannadaginn í ár var sjómannanna sem fórust með Sigurfaranum minnst og í messu á sunnudaginn kemur verður sjómannanna sem fórust með Helga sérstaklega minnst.

Íbúð til leigu84 fm. íbúð til leigu. Er laus strax.Upplýsingar í síma 478-2110

Nemendur í fjölmiðlafræði í FAS

Sandra Björg Stefánsdóttir

Forsíða Morgunblaðsins 17. september 1961.

Page 3: Eystrahorn 32. tbl. 2011

Frá kl. 10 – 16Í tilefni af 65 ára afmæli sínu býður Skinney-Þinganes öllum Hornfirðingum að heimsækja nokkrar starfsstöðvar fyrirtækisins og kynnast starfseminni sem þar fer fram. Einnig býðst gestum að koma og skoða nýja sýningu sem útbúin var til að minnast afmælisins.

Opið hús laugardaginn 17. september 2011

DAGSKRÁ:

Veiðarfæragerðin, Óslandi Opnun afmælissýningar um sögu og starf-semi Skinneyjar-Þinganess. Léttar veitingar og lifandi tónlist. Opið frá kl. 11:00 – 16:00.

Fiskimjölsverksmiðjan, ÓslandiSkoðunarferðir undir leiðsögn verkstjóra. Opið frá kl. 10:00 – 14:00.

Frystihúsið, KrosseySkoðunarferðir undir leiðsögn verkstjóra. Opið frá kl. 10:00 – 14:00

Vinsamlegast athugið að börn 14 ára og yngri fá ekki að koma með í skoðunarferðirnar nema í fylgd með foreldrum.

Page 4: Eystrahorn 32. tbl. 2011

Helsta verðmæti Skinneyjar-Þinganess er mannauður þess. Hjá fyrirtækinu starfa um 220 manns og er bakgrunnur þeirra, þjóðerni, menntun og aldur mjög fjölbreytilegur. Mikil þekking á ólíkum sviðum er til staðar innan fyrirtækisins. Lögð er áhersla á að tryggja góðan aðbúnað starfsfólks og eru öryggismál í fyrirrúmi.

Starfsfólkið

Skinney-Þinganes er eitt af öflugustu sjávarútvegsfyrirtækjum Íslands. Fyrirtækið rekur saltfiskverkun árið um kring auk þess að frysta í stórum stíl humar, loðnu, makríl og síld. Við þessa starfsemi vinna 110–130 manns í landi. Fyrirtækið gerir út sjö fiskiskip með 90 manna áhöfn alls.

Hús Skinneyjar-Þinganess setja mikinn svip á höfnina og nærliggjandi svæði. Starfsemin fer fram í tólf byggingum sem samtals eru um 25.700 m² að flatarmáli. Frystihúsið í Krossey er þeirra stærst eða 9.000 m² að stærð. Þar næst koma veiðarfæragerðin í Óslandi (um 3.500 m²) og Skinneyjarhúsið (um 3.300 m²) þar sem saltfiskkælir fyrirtækisins er til húsa.

Húsin

Stærstu fiskveiðiskip Skinneyjar-Þinganess eru nóta- og togskipin Jóna Eðvalds SF-200 (1.741 brúttó tonn) og Ásgrímur Halldórsson SF-250 (1.528 brúttó tonn) sem bæði voru smíðuð í Noregi. Nýjustu skip flotans eru Skinney SF-20 og Þórir SF-77 sem voru smíðuð í Tævan árið 2009. Skinney-Þinganes á alls níu skip en tvö þeirra hafa verið án verkefna um nokkra hríð.

Bátarnir

Skinney-Þinganes á í margvíslegu samstarfi víðs vegar um heim enda er langstærsti hlutinn af framleiðslu fyrirtækisins seldur úr landi. Gróflega má áætla að aðeins um 0,3% af afurðum þess fari beint til neyslu innanlands. Frá því að gámur leggur af stað frá Höfn líður allt frá einni viku og upp í tvo mánuði þar til hann er kominn á áfangastað. Ræðst það aðallega af vegalengdum og þeim höftum og skilyrðum sem útflutningur er háður.

Samstarfslöndin

Skip Skinneyjar-Þinganess koma með fjölbreytt sjávarfang að landi. Aflinn er að mestu unninn í vinnslum fyrirtækisins á Hornafirði, í margvíslegar afurðir. Afla sem kemur til vinnslu má í grunninn skipta í þrennt: Uppsjávarfisk (síld, loðna og makríll), bolfisk (t.d. þorskur og ýsa) og humar. Uppsjávarfiskur er einkum frystur og seldur þannig úr landi, ýmist flakaður eða heill. Einnig er hluti aflans unninn í mjöl og lýsi hér á Hornafirði. Bolfiskur er seldur frosinn, saltaður og ferskur. Verðmætasta afurð fyrirtækisins er humarinn sem er frystur og fer verð hans eftir gæðum, stærð og útliti.

Afurðirnar

Fiskvinnsla Skinneyjar-Þinganess er starfrækt allt árið og fer öll vinnslan fram í landi. Reynt er að stýra veiðum og vinnslu fyrirtækisins þannig að starfsemin verði sem jöfnust á milli mánaða. Vinnslulínurnar eru sjö talsins, flestar sérsmiðaðar. Ólíkar vinnslulínur gera fyrirtækinu kleift að hafa tiltölulega jafna starfsemi allt árið, auk þess sem fjölbreytt vinnsla dregur úr rekstraráhættu. Mest eru afköstin í uppsjávarlínu en frystigetan í uppsjávarlínunni er um 400 tonn á sólarhring.

Vinnslan

Skinney-Þinganes er umsvifamesta fyrirtækið á Hornafirði og stærsti atvinnuveitandi í sveitarfélaginu. Gjaldeyristekjur þess árið 2010 námu rétt um 7 milljörðum króna. Um 70% af tekjum fyrirtækisins fara í að greiða beinan kostnað við veiðar og vinnslu en þau 30% sem eftir standa eru nýtt til að greiða afborganir af lánum, vexti og skatta, svo og til nýfjárfestinga. Árið 2010 greiddi fyrirtækið samtals um 374 milljónir króna til Sveitarfélagsins Hornafjarðar (útsvar, aflagjöld, fasteignagjöld o.fl.). Skinney-Þinganes er einnig stór neytandi í heimabyggð og námu greiðslur þess til annarra fyrirtækja á Hornafirði vegna aðkeyptrar vöru eða þjónustu samtals um 380 milljónum króna á árinu 2010.

Hagræn staða

Saga sjávarútvegs og byggðarlags er samofin og góð tengsl við samfélagið á svæðinu eru fyrirtækinu því afar mikilvæg. Skinney-Þinganes leggur áherslu á eflingu byggðarlagsins og ver á hverju ári hluta af hagnaði sínum til góðgerðar- og líknarmála og í stuðning við ýmsa samfélagslega starfsemi, svo sem íþrótta- og tómstundastarf. Árið 2010 varði Skinney-Þinganes alls um 7,4 milljónum króna í samfélagsstyrki af þessum toga.

Samfélagsstuðningur

Page 5: Eystrahorn 32. tbl. 2011

Page 6: Eystrahorn 32. tbl. 2011

Skinney-Þinganes var stofnað árið 1999 með samruna þriggja fyrirtækja: Borgeyjar hf., Skinneyjar hf. og Þinganess ehf. Borgey var elst þessara fyrirtækja, stofnað af Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga ásamt hópi einstaklinga árið 1946, en Skinney og Þinganes voru fjölskyldufyrirtæki með að baki um 30 ára sögu. Skinney var stofnuð árið 1968 en Þinganes árið 1972.

Bæði Skinney og Þinganes gerðu út vertíðarbáta. Borgey gerði lengi vel út einn vertíðarbát en frá 1975 voru þeir tveir, Hvanney SF- 51 og Lyngey SF-61. Um miðjan níunda áratuginn var starfsemin aukin með kaupum á skuttogara, Þórhalli Daníelssyni SF-71. Síðar voru keyptir tveir vertíðarbátar til viðbótar og eftir sameiningu við útgerðarfélagið Samstöðu hf. árið 1992 bættist

annar skuttogari í flotann, Stokksnes SF-89. Árið 1992 tók Borgey yfir allan sjávarútvegsrekstur Kaupfélags Austur-Skaftfellinga og var þar með komið í hóp stærri sjávarútvegsfyrirtækja landsins. En róðurinn var þungur og í árslok var reksturinn kominn í þrot. Borgey varð að sjá á eftir báðum togurum sínum ásamt miklum bolfiskkvóta. Í kjölfarið fylgdi umfangsmikil fjárhagsleg endurskipulagning sem skilaði ágætum árangri fyrst í stað en á árunum 1997-1998 fjaraði hratt undan rekstrinum. Í framhaldinu hófust viðræður um frekari sameiningu við önnur sjávarútvegsfyrirtæki. Í janúar 1999 samþykkti meirihluti eigenda Borgeyjar tilboð Skinneyjar og Þinganess um kaup á rúmlega helmingi hlutafjárins og í kjölfarið voru fyrirtækin þrjú sameinuð.

Saga fyrirtækisins í 65 ár

Forsaga og tilurð

Frá upphafi hefur Skinney-Þinganes lagt áherslu á að endurnýja skipaflota sinn og auka kvóta fyrirtækisins til að styrkja rekstrargrundvöll þess. Þetta hefur meðal annars verið gert með samvinnu við önnur sjávarútvegsfyrirtæki, kaupum á minni útgerðarfélögum og nýsmíði skipa. Jafnframt hafa verið gerðar margvíslegar úrbætur á búnaði fiskvinnslunnar. Árið 2002 keypti dótturfyrirtæki Skinneyjar-

Þinganess, Skeggey ehf., fiskimjölsverksmiðjuna á Höfn en frá árinu 2007 hefur verksmiðjan verið í eigu Skinneyjar-Þinganess. Árið 2010 tók fyrirtækið yfir starfsemi netaverkstæðis Ísfells á Hornafirði. Önnur fyrirtæki sem eru að hluti til í eigu fyrirtækisins eru þrjú: Iceland Pelagic, Ajtel Iceland og Nóna. Að öllu samanlögðu telst Skinney-Þinganes vera eitt af tólf stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins.

Með byr í seglin á nýrri öld

Page 7: Eystrahorn 32. tbl. 2011

7Eystrahorn Fimmtudagur 15. september 2011

Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 0000Fax 555 3332 • [email protected] • www.glerborg.is

SÍMI: 565 0000

PVC-uGLUGGARHURÐAROG GLERÁ Íslandi er síbreytileg veðrátta alþekkt.Þess vegna ættu Íslendingar að veljavandaðar byggingavörur sem standast erfið veðurskilyrði og krefjast lágmarks viðhalds.

Komdu við á söluskrifstofu okkar að Dalshrauni 13í Hafnarfirði og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu.Við bjóðum upp á greiðsluskilmála við allra hæfi.

Öll framleiðsla fyrir Glerborg er CE vottuð

Hafnarkirkja Sunnudaginn 18. september

Sunnudagaskóli og messa kl. 11:00

Full búð af barnafötum

frá Disney og Me too

Verið velkomin

Opið virka daga frá kl. 13-18

Í síðustu viku fór fram í Hörpu í Reykjavík stærsta Evrópuráðstefna kvenna í nýsköpun. Í tengslum við ráðstefnuna fengu 50 konur frá fjölmörgum löndum alþjóðlega viðurkenningu fyrir nýsköpunar verkefni þar af um 20 frá Íslandi. Meðal þeirra var Ágústa Margrét Arnardóttir (dóttir Ödda og Unnar) sem fékk viðurkenningu fyrir nýsköpun á sviði nýtingar á náttúrulegum hráefnum sem annars færu til spillis. Ágústa sem býr og starfar á Djúpavogi sagði þetta mikinn heiður fyrir sig og opna ýmsar dyr m.a. tengslanet við konur og karla út um allan heim. Ágústa Margrét hefur verið dugleg að kynna verk sín og ekki alltaf farið troðnar slóðir í þeim efnum. Þeir sem vilja kynna sér framleiðslu Ágústu Margrétar geta farið inná www.arfleifd.is eða http://www.facebook.com/arfleifd.

Ágústa fær alþjólega viðurkenningu

Aflabrögð 1. - 11. septemberNeðangreindar upplýsingarnar eru um veiðafæri, fjölda landana,heildarafla í tonnum og uppistöðu fisktegunda í aflanum.Sigurður Ólafsson SF 44 .... humarv ..... 3 .... 40,8 humar 2,1 (halar)Skinney SF 20 ..................... humarv ..... 2 .... 29,3 humar 5,8Þórir SF 77 .......................... humarv ..... 2 .... 57,6 humar 16,7Steinunn SF 10 .................... botnv ......... 2 .. 107,9 ufsi 47,2Guðmundur Sig SU 650 ..... lína. ............ 2 ...... 2,8 ýsa 1,6Ragnar SF 550 ..................... lína ............. 2 ...... 6,7 ýsa 5,7Dögg SU 118 ....................... lína ............. 4 .... 12,4 þorskur/keila/langaÁsgrímur Halldórsson ....... flotv ........... 2 ..... 924 síld 784Jóna Eðvalds SF 200........... flotv ........... 3 .. 1.531 síld 987Þinganesi SF 25 .................. flotv ........... 1 .... 17,4 13,4 makríll

Heimild: www.fiskistofa.is

Í messunni verður þess minnst að þann 15. september voru liðin 50 ár frá því að Helgi SF 50 sökk á Færeyjabanka.

Sóknarprestur

Þakkir fyrir góðar móttökurOkkur hjónunum langar að koma á framfæri sérstökum þökkum fyrir einstaklega góðar móttökur í heimsókn okkar til Íslands og Hornafjarðar þar sem rætur Toms eru. Heimsóknin hafði mikil áhrif á okkur og verður ógleymanleg. Hafið einlæga þökk, frændfólkið sem við hittum og bar okkur á höndum sér svo og aðrir Hornfirðingar sem kynntu okkur svæðið og aðstæður í þessu fallega héraði.

Tom og Clara Eymundson frá Kanada

Minningarkort Hafnarkirkju er hægt að nálgast hjá:Hafdísi í Sport-X í Miðbæ í síma 478-1968Ástríði Sveinbjörnsdóttur í síma 847-8918Guðrúnu Þorsteinsdóttur í síma 864-4246

Ágústa Margrét er í annari röð fyrir miðju.

Page 8: Eystrahorn 32. tbl. 2011

KRÆSINGAR & KOSTAKJÖR

mar

khon

nun.

is

Skráðu þig á póstlistann á www.netto.isMjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær - Borgarnes

Tilboðin gilda 15.-18. sept. eða meðan birgðir endast

VÍNBERGRÆN

Kræsingar & kostakjör

50%afsláttur

42%afsláttur

1.699kr/kg

áður 1.985 kr/kg

1.495kr/kg

Líttu á verðið!

1.199kr/kg

áður 2.049 kr/kg

275kr/kg

áður 549 kr/kg

GOURMET LAMBAHRYGGURFERSKUR

SVÍNALUNDIRFERSKAR

GRÍSAKÓTELETTURFERSKAR

NAUTAHAKKFERSKT

998kr/kg

áður 1.498 kr/kg

1.399kr/kg

áður 1.698 kr/kg

GOURMET LAMBALÆRI FERSKT

25%afsláttur

33%afsláttur

1.799kr/kg

áður 2.398 kr/kg

NAUTAGÚLLASFERSKT

NAUTAINNRALÆRIFERSKT

1.998kr/kg

Frábært verð!

Birt

með

fyrir

vara

um pr

entv

illur o

g myn

davíx

l.

TANNKREM3 TEGUNDIR

149kr/pk.

FRÁBÆRT VERÐ!

PESTÓRAUTT/GRÆNT

199kr/stk.

áður 259 kr/stk.

NÝ-

SLÁTRAÐ

NÝ-

SLÁTRAÐ