06 tbl 2015

24
vf.is vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA FIMMTUDAGURINN 12. FEBRÚAR 2015 6. TÖLUBLAÐ 36. ÁRGANGUR Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ www.lyfja.is Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16 Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum 16% afsláttur 12% afsláttur Við stefnum að vellíðan. KL. 19:15 Allir í Ljónagryfjuna í kvöld Karlar Nautasteik 1.990 kr. Hafnargötu 90, Keflavík, sími 4227722 Alls eru fimmtíu einstaklingar á Suðurnesjum á biðlista eftir hjúkrunarrýmum samkvæmt upplýsingum frá Þjónustuhópi aldraðra á Suðurnesjum. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs tók málið upp á fundi sínum á dögunum og skorar á stjórn Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum [DS] að hefja nú þegar vinnu í að fylgja eftir samþykkt aðalfundar DS frá því í lok apríl í fyrra til lausnar á vandanum. Í Garði stendur húsnæði Garðvangs autt. Þar voru áður um 40 hjúkrunarrými. Hluti hússins er barn síns tíma og mun ekki nýtast óbreytt, en í húsnæðinu mætti reka 15-20 rýma hjúkrunarheimili. Í samþykkt aðalfundar DS sagði: „Aðalfundur DS samþykkir að stjórn DS vinni að því í samstarfi við aðildarsveitarfélög DS að heimildir fáist fyrir fjölgun hjúkrunarrýma á Suðurnesjum. Jafnframt að leitað verði eftir því við heilbrigðisráðherra að fjármagn fáist sem allra fyrst til nauðsynlegra endurbóta á Garðvangi þannig að þar verði rekið 15-20 rúma hjúkrunarheimili.“ Bæjarstjórnin í Garði var samhljóða og skor- aði á síðasta fundi sínum á stjórn Dvalar- heimila aldraðra á Suðurnesjum að hefja nú þegar vinnu við að fylgja eftir framan- greindri samþykkt aðaldundarins, enda liggur fyrir að samkvæmt nýjustu fundar- gerð Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum er mikil og knýjandi þörf fyrir mun fleiri hjúkrunarrými en nú eru heimildir fyrir. Bólfimir í bæjar- apparatinu X X Ásgeir Eiríksson, bæjar- stjóri í Vogum, vakti seint á síðasta ári athygli á þróun íbúafjölda í Sveitarfélaginu Vogum og þeirri athyglis- verðu staðreynd að einungis 6 börn væru á fyrsta ári samkvæmt gögnum Hag- stofu Íslands. Var því slegið fram í lok fréttar sem hann ritaði í vikulegt fréttabréf sitt að e.t.v. ættu Voga- menn að taka sér aðra til fyrirmyndar og efna til ástarviku. „Það er skemmst frá því að segja að þrír frambjóð- endur til síðustu kosninga (og núverandi nefndar- menn) eiga von á fjórum börnum. Menn eru heldur betur að standa sig,“ segir Ásgeir í pistli sem hann ritar í fréttabréf sitt. X Knýjandi þörf fyrir hjúkrunarrými á Suðurnesjum þrátt fyrir að nýtt hjúkrunarheimili hafi opnað á Nesvöllum 2014: Fimmtíu aldraðir bíða eftir hjúkrunarheimili - á meðan Garðvangur stendur auður. Lagt til við heilbrigðisráðherra að reka þar 15-20 rúma hjúkrunarheimili Hvalir og norðurljós á Suðurnesjum X X Hvalaskoðunarbátar hafa verið tíðir gestir í Keflavíkurhöfn að undanförnu en þeir sækja nú á hvalamiðin út frá bítlabænum. Með mikilli ásókn langferðabíla með norðurljósa áhorfendur út á Garðskaga og víðar má segja að vetrarferða- mennskan sé í hávegum höfð á Suðurnesjum og tengist ekki bara mikilli ásókn í Bláa Lónið. VF-mynd/Einar Guðberg. Rafmagnið í rusli X X Járnplata úr ruslahaug gerði Suðurnes óstarfhæf í um tvær klukkustundir síðasta föstudag. Platan fauk á háspennulínu við Fitjar, svokallaða Suðurnesjalínu 1. Samkvæmt heim- ildum Víkurfrétta hafði platan hangið á vírnum í nokkurn tíma áður en raf- magnið fór af Suður- nesjum. Suðurnesjalína 1 er á ábyrgð Lands- nets. Hefur fyrirtækið áréttað þá skoðun sína að nauðsynlegt sé að auka raforkuöryggi á Suðurnesjum með lagningu Suðurnesjalínu 2. Fram- kvæmdin hefur hins vegar verið stopp í langan tíma vegna deilna. Keflavíkurflugvelli var lokað um stundarsakir vegna rafmagnsleysis.

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 07-Apr-2016

240 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

06. tbl. 36. árg. 2015.

TRANSCRIPT

Page 1: 06 tbl 2015

vf.isvf.is

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.isauðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

FIMMTUDAGURINN 12. FEBRÚAR 2015 • 6. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ

www.lyfja.is

Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565 Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16

Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.

af lyfjum utan greiðsluþátttöku

af lausasölulyfjum og öðrum vörum

16% afsláttur

12% afsláttur

Við stefnum að vellíðan.

KL. 19:15

Allir í Ljónagryfjuna í kvöld

Njarðvík-ÍR

Karlar

Nautasteik 1.990 kr.

Hafnargötu 90, Keflavík, sími 4227722

Alls eru fimmtíu einstaklingar á Suðurnesjum á biðlista eftir hjúkrunarrýmum samkvæmt upplýsingum frá Þjónustuhópi aldraðra á Suðurnesjum. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs tók málið upp á fundi sínum á dögunum og skorar á stjórn Dvalarheimila aldraðra á Suðurnesjum [DS] að hefja nú þegar vinnu í að fylgja eftir samþykkt aðalfundar DS frá því í lok apríl í fyrra til lausnar á vandanum. Í Garði stendur húsnæði Garðvangs autt. Þar voru áður um 40 hjúkrunarrými. Hluti hússins er barn síns tíma og mun ekki nýtast óbreytt, en í húsnæðinu mætti reka 15-20 rýma hjúkrunarheimili.Í samþykkt aðalfundar DS sagði: „Aðalfundur DS samþykkir að stjórn DS vinni að því í samstarfi við aðildarsveitarfélög DS að

heimildir fáist fyrir fjölgun hjúkrunarrýma á Suðurnesjum. Jafnframt að leitað verði eftir því við heilbrigðisráðherra að fjármagn fáist sem allra fyrst til nauðsynlegra endurbóta á Garðvangi þannig að þar verði rekið 15-20 rúma hjúkrunarheimili.“Bæjarstjórnin í Garði var samhljóða og skor-aði á síðasta fundi sínum á stjórn Dvalar-heimila aldraðra á Suðurnesjum að hefja nú þegar vinnu við að fylgja eftir framan-greindri samþykkt aðaldundarins, enda liggur fyrir að samkvæmt nýjustu fundar-

gerð Þjónustuhóps aldraðra á Suðurnesjum er mikil og knýjandi þörf fyrir mun fleiri hjúkrunarrými en nú eru heimildir fyrir.

Bólfimir í bæjar-apparatinu

XXÁsgeir Eiríksson, bæjar-stjóri í Vogum, vakti seint á síðasta ári athygli á þróun íbúafjölda í Sveitarfélaginu Vogum og þeirri athyglis-verðu staðreynd að einungis 6 börn væru á fyrsta ári samkvæmt gögnum Hag-stofu Íslands. Var því slegið fram í lok fréttar sem hann ritaði í vikulegt fréttabréf sitt að e.t.v. ættu Voga-menn að taka sér aðra til fyrirmyndar og efna til ástarviku.„Það er skemmst frá því að segja að þrír frambjóð-endur til síðustu kosninga (og núverandi nefndar-menn) eiga von á fjórum börnum. Menn eru heldur betur að standa sig,“ segir Ásgeir í pistli sem hann ritar í fréttabréf sitt.

X■ Knýjandi þörf fyrir hjúkrunarrými á Suðurnesjum þrátt fyrir að nýtt hjúkrunarheimili hafi opnað á Nesvöllum 2014:

Fimmtíu aldraðir bíða eftir hjúkrunarheimili- á meðan Garðvangur stendur auður. Lagt til við heilbrigðisráðherra að reka þar 15-20 rúma hjúkrunarheimili

Hvalir og norðurljós á SuðurnesjumXXHvalaskoðunarbátar hafa verið tíðir gestir í

Keflavíkurhöfn að undanförnu en þeir sækja nú á hvalamiðin út frá bítlabænum. Með mikilli ásókn langferðabíla með norðurljósa áhorfendur út á Garðskaga og víðar má segja að vetrarferða-mennskan sé í hávegum höfð á Suðurnesjum og tengist ekki bara mikilli ásókn í Bláa Lónið. VF-mynd/Einar Guðberg.

Rafmagnið í rusliXX Járnplata úr ruslahaug gerði

Suðurnes óstarfhæf í um tvær klukkustundir síðasta föstudag. Platan fauk á háspennulínu við Fitjar, svokallaða Suðurnesjalínu

1. Samkvæmt heim-ildum Víkurfrétta hafði platan hangið á vírnum í nokkurn tíma áður en raf-magnið fór af Suður-nesjum.

Suðurnesjalína 1 er á ábyrgð Lands-nets. Hefur fyrirtækið áréttað þá skoðun sína að nauðsynlegt sé að auka raforkuöryggi á Suðurnesjum með lagningu Suðurnesjalínu 2. Fram-kvæmdin hefur hins vegar verið stopp í langan tíma vegna deilna.Keflavíkurflugvelli var lokað um stundarsakir vegna rafmagnsleysis.

Page 2: 06 tbl 2015

2 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Deiliskipulags-breytingum fyrir Helguvík frestaðXXBre y ting u á d ei l i sk ipu-

lagi fyrir Helguvík hefur verið frestað. Þetta er niðurstaða síð-asta fundar umhverfis- og skipu-lagsráðs Reykjanesbæjar. Aðilar frá Verkfræðistofu Suðurnesja, Mannvit og Verkfræðistofunni Vatnaskil mættu á fundinn og kynntu breytingar á deiliskipu-laginu fyrir ráðinu.„Mikilvægt er að álit Skipulags-stofnunar og athugun óháðs aðila á samlegðarumhverfisá-hrifum álvers og tveggja kísil-vera í Helguvík liggi fyrir áður en breytingar á deiliskipulaginu í Helguvík verði sett í auglýsingar- og kynningarferli svo bæjarbúum gefist tækifæri til þess að kynna sér niðurstöðurnar og koma at-hugasemdum á framfæri áður en umsagnarfrestur deiliskipulagstil-lögunnar rennur út,“ segir í af-greiðslu umhverfis- og skipulags-ráðs Reykjanesbæjar.

Creditinfo hefur gefið út lista yfir framúrskar-andi fyrirtæki, líkt og það hefur gert undan-

farin ár, en þeim hefur fjölgað um 115 frá því í fyrra og eru nú 577 talsins. Af þessum fjölda eru 25 framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum. Framúr-skarandi fyrirtækjum fjölgar ört á Suðurnesjum og voru þau 56% fleiri nú en fyrir ári síðan.Fyrirtækin eru: Í Reykjanesbæ: HS Veitur hf., Samkaup hf., IceMar ehf., Kaffitár ehf., Háteigur fiskverkun ehf., Fríhöfnin ehf., Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Þróunarfélag Kefla-víkurflugvallar ehf., A. Óskarsson verktaki ehf., Bústoð ehf., Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., Ísfoss ehf., og Út-gerðarfélag Guðleifs ehf.

Í Grindavík: Bláa lónið hf., Þorbjörn hf., Örninn GK-203 ehf., Veiðafæraþjónustan ehf., Sílfell ehf. Jens Valgeir ehf., Optimal á Íslandi, H.H. Smíði ehf. og BESA ehf.Í Sandgerði: Fiskverkun Ásbergs ehf., Skinnfiskur ehf. og K & G fiskverskun.Í Vogum: Nesbúegg ehf. Þetta er í fimmta sinn sem Creditinfo gefur út listann. Þau fyrirtæki sem teljast framúrskarandi uppfylla ákveðin skilyrði í rekstri, hafa skilað rekstrarhagnaði þrjú ár í röð, eignir eru metnar á að minnsta kosti 80 milljónir króna og eiginhlutfall er 20% eða hærra.

-fréttir pósturX [email protected]

Framúrskarandi 25 fyrir-tæki á Suðurnesjum

– á nýjum lista Creditinfo. 56% fleiri nú en fyrir ári síðan.

Óskum eftir safnverði í hlutastarf við safnahús bæjarins og þá aðallega Víkingaheima. Um er að ræða helgarvinnu og viðkomandi má ekki vera yngri en 20 ára.

Helstu verkefni: • Móttaka gesta íslenskra og erlendra.• Yfirseta og kynning á sýningunum.

Menntunar og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða annað sambærilegt nám.• Góð íslensku- og enskukunnátta.• Vilji og geta til að afla sér kunnáttu tengdum sýningum í húsinu. • Jákvætt viðmót, samviskusemi og þjónustulund er nauðsynleg.

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar og verður viðkomandi að geta hafið störf í byrjun mars. Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar: www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf

Nánari upplýsingar veitir menningarfulltrúi, Valgerður Guðmundsdóttir, [email protected].

Í sumar mun hópur 17 ára nemenda eiga kost á vinnu í allt að sex vikur. Nemendur 8. bekkjar eiga ekki kost á vinnu að þessu sinni. Nemendur vinna ekki á föstudögum líkt og síðustu sumur.

Frekari upplýsingar og opnun umsókna verður auglýst síðar.

Eruð þið að æfa flott öskudagsatriði?Mætið í Fjörheima frá kl. 12 – 15 á öskudag og flytjið það á sviði.Dómnefnd veitir verðlaun fyrir bestu atriðin og myndir teknar af öllum.

Allir velkomnir.

Bestu vinir í bænum í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Gargandi snilld kynna fjölskyldu-leikrit byggt á ýmsum ævintýrum.

Kynningarfundur mánudaginn 16. febrúar kl. 17.00 í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í Krossmóa.

Leikstjórar: Guðný Kristjánsdóttir og Halla Karen Guð-jónsdóttir sem veita nánari upplýsingar í s. 869-1006 og 690-3952.

Verkið verður sýnt á listahátíðinni List án landamæra 25. og 26. apríl.

Allir velkomnir.

HELGARSTARF Í VÍKINGAHEIMUM

BREYTT FYRIRKOMU-LAG VINNUSKÓLA 2015

ÖSKUDAGUR „GOT TALENT“

BLUNDAR Í ÞÉR LEIKARI?

NÝR RAV4 - ÆVINTÝRIÐ BÍÐUR

ÍSLE

NSK

A/SI

A.IS

/TO

Y 70

787

10/1

4

Flugmiði til Evrópu fylgir með*

500.000 Vildarpunkta afm

ælisvinningur

verður dreginn úr hópi þeirra sem fá

nýja Toyotu afhenta í febrúar**

5 ÁRA ÁBYRGÐ

*  Gildir ekki með öðrum tilboðum** Gildir ekki með öðrum tilboðum. Viðkomandi þarf að vera meðlimur í Icelandair Saga Club. Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur. Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum.

Toyota ReykjanesbæNjarðarbraut 19ReykjanesbæSími: 420-6600

Uppgötvaðu ævintýrin í lífi þínu á ný með RAV4. Hann er fullkominn fyrir skemmtun með vinum og fjölskyldu og kemur þér þangað sem þú vilt fara með nóg rými fyrir farþega og farangur. RAV4 er hljóðlátur, öruggur og með framúrskarandi aksturseiginleika.

Nýjum RAV4 fylgir flugmiði til Evrópu með Icelandair og þeir sem fá nýjan RAV4 afhentan í febrúar eiga möguleika á 500 þúsund Vildarpunkta afmælisvinningi í tilefni af 50 árum Toyota á Íslandi.

Verð frá: 5.370.000 kr.(RAV4 GX Plus, 2.0 l dísil, 6 gíra, 4WD)

Fáðu nánari upplýsingar á www.toyota.is

Útsvarshækkun Reykjanes-bær nú um áramótin sem

nam 3,7% (úr 14,52% í 15,05%) mun ekki koma til innheimtu hjá íbúum fyrr en í ágúst árið 2016 við álagninu opinberra gjalda. Hækkun á fasteignaskatti er þó komin í gagnið því hún er fram-kvæmd strax af bæjarfélaginu.Reykjanesbær fær þó hækkunina á útsvarinu strax í kass ann þv í ríkið sem er inn-heimtuaðili skilar ö l l u g j a l d i n u strax. Ríkið inn-heimtir meðaltals útsvarsálagningu hjá öllum sveitar-félögum sem er 14,44% en flest sveitarfélög inn-heimta hærra gjald og aðeins örfá lægra. Mismunurinn er gerður upp við álagningu opinberra gjalda í ágúst ár hvert. Þá þurfa þeir íbúar sem búa í sveitarfélagi með hærra gjald að greiða mismuninn og þeir íbúar sem búa við lægra gjald fá greitt til baka.Dæmi um hækkun á útsvari til einstaklings sem er með 350 þús.

kr. í mánaðarlaun nemur rúmum 22 þús. króna á ári eða 1855 kr. á mánuði. Hjón með um 700 þús. kr. greiða því um 45 þús. kr.ASÍ sendi út fréttatilkynningu í vik-unni um álagningu fasteignaskatts hjá sveitarfélögum. Hækkunin er mest hjá Reykjanesbæ eða 67%. Fer úr 0,03 í 0,05%. Aðeins eitt sveitar-félag af um tuttugu stærstu á land-

inu er með hærri fasteignaskatt en það er Ísafjörður með 0,63%. Þá er Fjarðabyggð með 0,48% og Vestmannaeyjar 0,42%. Ef miðað er við eign upp á 25 millj. kr. þá nemur hækkunin á ári hjá íbúa í

Reykjanes um 50 þús. kr.

Guðbrandur Einarsson oddviti Beinnar leiðar sagði í viðtali við Bylgjuna að skattahækkanir væru ekki neitt fagnaðarefni. Ekki væri óalgengt að hækkun útsvars og fasteignaskatts næmi um 100 þús. kr. á heimili.

Útsvarshækkunin greidd í ágúst 2016

K & G ehf. fiskverkun í Sandgerði er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi

fyrirtæki á Suðurnesjum. Tíu af 25 fyrirtækjunum eru í sjávarútvegi.

VF-mynd: pket

Page 3: 06 tbl 2015

NÝR RAV4 - ÆVINTÝRIÐ BÍÐUR

ÍSLE

NSK

A/SI

A.IS

/TO

Y 70

787

10/1

4

Flugmiði til Evrópu fylgir með*

500.000 Vildarpunkta afm

ælisvinningur

verður dreginn úr hópi þeirra sem fá

nýja Toyotu afhenta í febrúar**

5 ÁRA ÁBYRGÐ

*  Gildir ekki með öðrum tilboðum** Gildir ekki með öðrum tilboðum. Viðkomandi þarf að vera meðlimur í Icelandair Saga Club. Bíllinn í þessari auglýsingu endurspeglar ekki endilega það verð og þann búnað sem tilgreindur er. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur. Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum.

Toyota ReykjanesbæNjarðarbraut 19ReykjanesbæSími: 420-6600

Uppgötvaðu ævintýrin í lífi þínu á ný með RAV4. Hann er fullkominn fyrir skemmtun með vinum og fjölskyldu og kemur þér þangað sem þú vilt fara með nóg rými fyrir farþega og farangur. RAV4 er hljóðlátur, öruggur og með framúrskarandi aksturseiginleika.

Nýjum RAV4 fylgir flugmiði til Evrópu með Icelandair og þeir sem fá nýjan RAV4 afhentan í febrúar eiga möguleika á 500 þúsund Vildarpunkta afmælisvinningi í tilefni af 50 árum Toyota á Íslandi.

Verð frá: 5.370.000 kr.(RAV4 GX Plus, 2.0 l dísil, 6 gíra, 4WD)

Fáðu nánari upplýsingar á www.toyota.is

Page 4: 06 tbl 2015

4 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Orlofshús VSFKPáskar 2015

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út um páskana:

2 hús í Svignaskarði3 hús í Húsafelli

2 hús í Ölfusborgum2 hús í Hraunborgum

1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h á Akureyri

Útleigutímabil er frá miðvikudeginum 1. apríl til miðvikudagsins 8. apríl 2015.

Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu vsfk.is umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 27. febrúar 2015.

Úthlutað verður samkvæmt punktaker�.

Orlofsstjórn VSFK

-fréttir pósturu [email protected]

Keilir tekur í notkun fullkominn flughermiFlugakademía Keilis hefur

tekið í notkun fullkominn flughermi að gerðinni Redbird MCX. Um er að ræða hreyfan-legan hátækni flughermi sem býður uppá fjölbreytta notkunar-möguleika í þjálfun flugnem-enda skólans. Bætist hann við ört stækkandi þjálfunarbúnað fyrir nemendur í einka- og atvinnu-flugmannsnámi en hátt í hundrað einstaklingar stunda nú flugnám hjá Keili. Auk þess hefur skólinn um að ráða sjö kennsluvélar að gerðinni Diamond, þar af eina tveggja hreyfla DA-42 sem er full-komnasta kennsluflugvél á Ís-landi.Fulltrúar Evrópsku Flugöryggis-stofnunarinnar (EASA) komu til landsins á dögunum og tóku út flugherminn, en það þýðir að Flug-akademía Keilis er nú samþykktur rekstraraðili flugherma almennt og að Redbird MCX flughermirinn er hæfur til þjálfunar í samræmi við tilskyldar kröfur og reglugerðir stofnunarinnar.Flughermir Keilis mun nýtast til æfinga allt frá grunnstigum þjálf-unar, svo sem hliðarlendingum, að fjölhreyfla og fjöláhafna flugvélum.

Í flugherminum umlykur tækja-búnaður og skjámynd flugmanninn þannig að hann hefur öll stjórtæki flugvélar ásamt 180° sjóndeildar-hring út fyrir flugvélina. Hreyfigeta tækisins gerir upplifunina raun-verulegri og þægilegri fyrir bæði kennara og nemanda. Hægt er að skipta út stjórn- og mælitækjum og þannig líkt eftir eins- og tveggja hreyfla flugflota Flugakademíu

Keilis frá Diamond flugvélafram-leiðandanum. Þaning er hægt að líkja eftir allt frá sígildum „klukku-mælum“ yfir í háþróaða rafræna samþætta mæla (electronic flight instrument systems).Nánari upplýsingar um Flugaka-demíu Keilis og flugvélakost skól-ans má nálgast á: www.flugaka-demia.is

Frá undirritun samnings við EASA. Á myndinni eru Rúnar Árnason (for-stöðumaður Flugakademíu Keilis), Hjálmar Árnason (framkvæmdastjóri

Keilis), Friðrik Ólafsson (yfirkennari bóklegra greina), Capt. Iain McClelland og Kim Jones (fulltrúar EASA), Snorri Páll Snorrason (skólastjóri) og Björn

Þverdal Kristjánsson (gæðastjóri).

Úr flughermi Flugakademíu Keilis.

Frá Bristol og beint á sjúkrahús– Fékk rútuhlera í höfuðið

XuÞað óhapp varð í gærdag að farþegi sem var að koma frá Bristol til landsins fékk hlera á farangurs-geymslu rútu í höfuðið. Verið var að ganga frá far-angri farþegans þegar vindhviða reið yfir og skellti hleranum á höfuð hans. Hann hlaut talsverða áverka sem blæddi úr og var fluttur með sjúkrabifreið undir læknishendur.

Eldur blossaði upp í bifreiðXuEldur blossaði upp í kyrrstæðri bifreið í umdæmi

lögreglunnar á Suðurnesjum á sunnudagskvöld. Eig-andinn hafði verið að smala hrossum og notaði við það ljóskastara á bifreiðinni. Hann skildi hana eftir í gangi meðan á smalamennskunni stóð en þegar hann var að ganga aftur að henni blossaði eldurinn upp og hún varð alelda á svipstundu. Málið er í rannsókn.

Þá var tilkynnt um mikinn reyk í stigahúsi í umdæminu. Þegar lögregla kom á vett-vang reyndist ástæðan vera sú að sígarettu-glóð hafði fa l l ið í pappírshrúgu á gólfi og kviknað í henni. Húsráðandi var búinn að slökkva í hrúgunni þegar slökkviliðið kom á vettvang, en reyk-ræsta þurfti íbúðina.

Með kannabispoka í brókXuÖkumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði

um helgina, vegna gruns um fíkniefnaakstur, reyndist hafa neytt amfetamíns, kannabisefna og metamfe-tamíns, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Þá voru ökuréttindi hans útrunnin. Tveir ökumenn til viðbótar urðu uppvísir að ölvunarakstri og reyndist annar þeirra hafa neytt fíkniefna að auki.Áður hafði lögregla handtekið ökumann bifreiðar og tvo farþega vegna gruns um fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna. Ökumaðurinn viðurkenndi neyslu og annar farþeganna var með kannabispoka í brók. Hann fram-vísaði pokanum á vettvangi og um það bil 20 grömmum til viðbótar á lögreglustöð.Loks var einn ökumaður til viðbótar stöðvaður vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sá grunur reyndist á rökum reistur. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi að hafa fíkni-efni í fórum sínum og framvísaði þeim hann þeim.

ATV INNA

Vatnsnesvegi 12 // 230 Reykjanesbæ // 420 7011

Þjónar óskast til starfa á Kef restaurant.Reynsla æskileg. Unnið á vöktum: 2-2-3.

Vantar einnig þjóna á aukalista. Umsóknir sendist á [email protected]

ATVINNA

Helstu verkefni og ábyrgð:- Umsjón með símsvörun á skrifstofu- Sjá um erlenda reikningagerð- Tímaskráningar starfsmanna- Tollskýrslugerð- Almenn þjónusta við viðskiptavini og starfsmenn

Menntun og reynsla:Almenn góð menntun sem nýtist í starfi og rík reynsla af skrifstofu og þjónustu-störfum.

Hæfniskröfur:- Hæfni í mannlegum samskiptum- Skipulagshæfni- Samviskusemi- Sveigjanleiki- Geta unnið undir álagi- Sjálfstæði í vinnubrögðum- Almenn góð tölvukunnátta (unnið á DK og Navision)- Íslensku og enskukunnátta

Skrifstofuþjónusta Icelandic Ný-Fiskur óskar eftir að ráða starfsmann í 50% starf við skrifstofuþjónustu. Almennur vinnutími frá kl 12:30-16:30 alla virka daga en viðkomandi þarf að geta leyst af í 100% stöðu eftir þörfum.

Icelandic Ný-Fiskur er sjávarútvegsfyrirtæki í eigu Icelandic Group sem sérhæfir sig í framleiðslu hágæða ferskra sjávarafurða til útflutnings. Hjá Icelandic Ný-Fiski vinna um 100 manns.

Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected] fyrir 20. febrúar nk.

Page 5: 06 tbl 2015

HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · sími 420 3040 · www.audi.is

Verð frá kr. 7.990.000,- 2.0 TDI quattro, sjálfskiptur

Snjór. Frost. Ís.Skiptir engu!

Audi Q5. Fullkominn fyrir íslenskar

aðstæður.

Page 6: 06 tbl 2015

6 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Það eru stór tímamót hjá Keflavíkurkirkju sem fagnar aldarafmæli á þessu ári. Við gerum þessum tímamótum góð skil í blaði, á vef og í sjónvarpsþætti Víkurfrétta og munum gera áfram. Á þessum tímamótum er gaman að velta fyrir sér þáttum í stórmerkri sögu kirkjunnar en frá henni var greint ítarlega í síðusta blaði okkar.Keflavík tilheyrði Útskálasókn til forna en tíu ára gömul kirkja í Keflavík fauk í ofsaviðri árið 1902. Eftir stóðu miklar skuldir sem ný Keflavíkursókn þurfti að taka á. Ótrúlegt en satt þá kom til sögunnar Ólafur Á. Ólafsson, verslunarstjóri Duus verslunarinnar í Keflavík. Hann bauðst til að greiða helming skuldanna eftir byggingu fyrstu kirkjunnar ef bæjarbúar greiddu hinn. Hann gerði svo gott betur þegar hann bauðst til að greiða helming af byggingarkostnaði nýrrar kirkju ef heimamenn myndu safna hinum helmingnum áður en hún yrði byggð. Þetta varð allt að veruleika. Kirkja var byggð fyrir söfnunar- og gjafafé. Rögnvaldur Ólafsson sem þá hafði nýlokið við að teikna Hafnarfjarðarkirkju vara fenginn til að teikna nýja Kefla-víkurkirkju.Í samantekt Ragnheiðar Ástu Magnúsdóttur formanns Keflavíkur-sóknar sem hún skrifaði fyrir Víkurfréttir í síðustu viku segir: Það má alveg velta fyrir sér rausnarskap Ólafs Á. Ólafssonar og líka hvað lá að baki þeirri staðreynd að einn maður hafði burði til að gefa hálfa kirkju og rúmlega það en kirkjan kostaði 17.000 krónur uppkomin. Ólafur og systir hans, ekkjufrú Kristjana Duus, borguðu 10.000 kr. Árin sem Ólafur var verslunarstjóri í Duusverslun bjó hann í Kaup-mannahöfn á vetrum, en kom með vorskipum til Keflavíkur og átti þar sitt sumarheimili ásamt eiginkonu sinni, Ástu Jacobsen. Ásta sýndi umhyggju fyrir börnunum í þorpinu og hélt þeim veislu sumar hvert.Hvernig sem á það er litið verður aldrei hægt að komast hjá því að dást að þeim stórhug sem að baki byggingar Keflavíkurkirkju var. Kirkjan rúmaði meira en helming sóknarbarna í sæti þegar hún var byggð og ef við ættum að byggja sambærilegt guðshús í dag þyrfti það að rúma 3500 manns í sæti. Til þess dygði einungis Hallgrímskirkja og varla þó.Margir aðilar, einstaklingar og félög hafa komið að málefnum kirkj-unnar í þessi hundrað ár. Kvenfélagið Freyja var t.d. stofnað til að prýða kirkjuna áður en hún var vígð og hún fékk svo Ásgrím Jónsson til að mála altaristöflu kirkjunnar af Fjallræðunni og umgjörð um hana. Þetta voru stórverk fyrir hundrað árum í litlu bæjarfélagi. Þegar við skoðum svo stöðuna núna á stórafmælinu þá eru afrekin líka stór í seinni tíð. Eftir bankahrun stóð Keflavíkurkirkja að því að stofna Velferðarsjóð á Suðurnesjum; sjóð sem skyldi styðja við Suðurnesjamenn sem voru í sárum eftir efnahagshrun og brotthvarf þess stóra vinnustaðar sem Varnarliðið var. Í dag hafa safnast frá upp-hafi um 60 milljónir kr. í sjóðinn sem hefur verið deilt út til þeirra sem mest hafa á þurft að halda samkvæmt reglum sem sjóðurinn bjó til. Stjórn Velferðasjóðs vildi t.d. að öll börn fengju heita máltíð í hádeginu og ungmenni gætu stundað íþróttir og nám með greiðslu þátttökugjalda. Þetta er einstakt og sannarlega vitnisburður um það samfélag sem getur áorkað slíku. Fyrirtæki, félög, einstaklingar og börn hafa lagt sitt af mörkum í sjóðinn. Um 20 millj. söfnuðust strax á fyrstu mánuðunum eftir stofnun hans. „Okkur hefur tekist að kalla eftir þessum margfeldisáhrifum þar sem allir leggjast á eitt,“ segir Skúli Ólafsson sóknarprestur í viðtali við VF um Velferðarsjóðinn en hugmyndir um hann urðu til á stefnumótunarfundi fyrir Keflavíkur-kirkju árið 2008. Á fundi sem haldinn var degi áður en hrunið brast á.Kirkjan hefur alla tíð skipað stóran sess í lífi fólks og mun gera það áfram. Hún hefur sýnt það í gegnum tíðina að hjá henni liggur mikill styrkur þrátt fyrir að leiðin hafi ekki alltaf verið bein og breið í hennar starfi. Í kirkjunni skírum við, fermum, giftum og jörðum. Þannig getum við sagt að í kirkjunni búi systurnar gleði og sorg. Systur okkar allra.

Til hamingju Keflavíkurkirkja með stórafmælið!

Hús systra okkar allra

-ritstjórnarbréfPáll Ketilsson skrifar

vf.isvf.isÚtgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

SÍMI 421 0000

-viðtal pósturu [email protected]

Ásdís Ármannsdóttir tók við embætti Sýslumannsins

á Suðurnesjum á síðasta ári og flutti til Reykjanesbæjar um ára-mótin. Hún festi kaup á húsi Sr. Skúla S. Ólafssonar og Sigríðar Bjarkar, fyrrum lögreglustjóra. Henni líkar vel í starfinu, sem hún segir mikið til ganga út á að aðstoða fólk í erfiðum aðstæðum. Hún segir það afar gefandi. „Það er ekki góður leigumark-aður hérna og okkur leist best á hús Skúla og Sigríðar Bjarkar. Ég flutti inn rétt eftir áramótin en fjölskyldan er enn á Siglufirði, þar sem ég var settur sýslumaður á Akureyri í eitt ár og keyrði á milli. Sonur minn að klára 10. bekk og dóttirin í 9. bekk. Við vildum ekki skipta um skóla svona á miðju ári,“ segir Ásdís, sem þekkti Suðurnesin nánast ekkert áður en hún flutti hingað. Hún kemur upphaflega frá Stöðvarfirði og starfaði sem sýslu-maður á Siglufirði í um átta ár og þekkti svo sem ekkert þar til heldur þegar hún var nýkomin þangað. „Mér finnst ágætt líka að vera nær höfuðborgarsvæðinu hérna, maður þekkir alltaf einhvern þar. Það er líka stutt í flug ef mann langar til útlanda.“

Of neikvæð umræða um svæðiðÁsdísi finnst víða of neikvæð um-ræða vera um Suðurnesin. „Ef maður þekkti ekkert til gæti maður hafa haldið að hér væri ekkert nema atvinnuleysi, nauðungar-sölur, heimilisofbeldi og neysla. Það er þetta sem maður hefur mest heyrt af. Það eru reyndar helst aðrir

sem segja við mig: Hva ertu að fara þangað að vinna? En komandi frá Siglufirði þá eru þetta svo mikil umskipti því umfjöllunin þar er svo jákvæð víða í fjölmiðlum, enda mikil uppbygging. Það er nú alls staðar gott fólk, sem betur fer,“ segir Ásdís og bæti við að hún sé ekki mikið farin að kynnast fólkinu hér ennþá, aðallega samstarfsfólk-inu. „Það hefur tekið mér mjög vel. Svo dreif ég mig í leikfimi hérna í Lífsstíl. Það er nálægt og hentugir tímar. En helgarnar eru erfiðastar þegar maður er ekki með fjölskyld-una.“

Er ekki valdsmannstýpanSýslumannsembættunum á lands-vísu var fækkað úr 24 í 9 í fyrra. Þeim var breytt þannig að sýslu-menn voru leystir undan verk-efnum lögreglustjóra. „Hér á Suðurnesjum var löngu búið að aðskilja þau embætti og því í raun engar nýjar breytingar. Þetta embætti var ekki undir í þessum breytingum en þegar Þórólfur fór á höfuðborgarsvæðið þá losnaði þessi staða. Ég þurfti bara að setjast í stólinn og byrja að vinna,“ segir Ásdís og brosir. Spurð um áherslu-breytingar segir hún slíkar ekki vera á teikniborðinu og fyrstu verk hafi verið að hlusta á starfsfólkið; heyra þeirra upplifun. Ég vil sjá hvernig hlutirnir eru áður en ég reyni að breyta einhverju. Ég er ekki á því að breyta breytinganna vegna. Mér sýnist þetta allt virka vel.“ Þá finnst henni mikilvægt að hlúa vel að starfsfólkinu. „Ánægt starfsfólk veitir betri þjónustu. Að mínu mati þarf týpa sýslumanns

að vera hjálpsöm, almennileg og mannleg. Svo eru aðrir valdmanns-legri, en ég vil ekki vera þannig. Það gustar bara meira af sumum en öðrum, það er bara þannig. Ég er bara ein af starfsfólkinu.“

Líður best í þjónustuhluverkinuÁsdís hefur meira og minna starfað í sýslumannsgeiranum frá því að hún útskrifaðist sem lögfræðingur. Um tíma starfaði hún þó sem lög-maður þar sem rukkað var fyrir hvert símtal. „Það átti ekki við mig því ég er vön að vera í þjónustu-hlutverki og sinna þeim sem koma til mín. Ég er ánægð í þessu og það er mest gefandi að geta aðstoðað og fólk fari ánægðara frá mér en þegar það kom óöruggt inn inn, t.d. þegar verið er að skipta dánar-búum. Einnig er alltaf gaman að gifta. Erfðast er þó að eiga við þegar einstaklingar eiga erfitt eins og við nauðungarsölur, skilnaði og dauðs-föll ungs fólks og ganga þarf frá pappírum. Maður sér fólk í ýmsum erfiðum stöðum að sinna pappírs-vinnu. Það er gott að geta hjálpað og við gerum okkar besta hér.“Ásdís segir heilmikinn mun að sjá sólina hér allt árið því hún skein ekki á Siglufjörð fyrr en 28. janúar. „Það er ekki margt sem skyggir á hér. Hér er minni snjór en lognið hreyfist meira. Þetta hefur allt sína kosti og galla. Ég hef heyrt að hér séu mjög góðir skólar. Það þarf að leggja meiri áherslu á það góða - enda lítur úr fyrir að mesta niður-sveiflan sé að baki og bjart fram-undan,“ segir Ásdís að endingu.

■■ Nýi sýslumaðurinn á Suðurnesjum skildi fjölskylduna tíma-bundið eftir á Siglufirði:

Keypti hús prestsins og lögreglustjórans

Að mínu mati þarf týpa sýslu-manns að vera hjálp-söm, al-mennileg og mannleg

Page 7: 06 tbl 2015

mar

khön

nun e

hf

mar

khön

nun e

hf

Tilboðin gilda 12.-15 febrúarTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Valentínusarhelgartilboðin

Bæklingur fullur af fráBærum tilBoðumBeint frá hjartanu

við minnum á

Kræsingar & kostakjör

konudagsostakaka

1.298kr/stk

mósartkúlur box - 300g

498kr/boxið

598

kjúklinga-bringur

nettó

1.798kr/kg

1.998

Verðsprengja

Eldaðu

handa

elskunni

daim200g

389kr/pk414

10%afsláttur

engiferöl250 ml

229kr/stk

269

10%afsláttur

jarðarber250 g

299kr/askjan

598 50%afsláttur

Page 8: 06 tbl 2015

8 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

20%afsláttur*Af öllum pakkningum

* Gildir í febrúar

Ly�aauglýsing

Námskeiðið Tilgangsríkt líf hefst 13. febrúar og stendur í 6 vikur.

Kennsla fer fram á föstudagskvöldum frá kl.19:00-21:00.

Við hefjum kvöldið á því að fá okkur léttar veitingar saman.

Aðgangur er ókeypis.

Hvítasunnukirkjan í Keflavík.

Nánari upplýsingar í síma 823 1303

Hótel Keflavík er annað besta hótel landsins. Notendur

TripAdvisor sem komu til Ís-lands árið 2014 völdu tvö lands-byggðarhótel sem bestu hótel landsins. Hótel Keflavík er þar í öðru sæti á eftir Rangá yfir bestu hótel landsins með 24 tíma vakt og allri þjónustu, eins og veitinga-stað o.s.frv.Unnið hefur verið að miklum endurbótum á Hótel Keflavík á síð-ustu tveimur árum. Eftir fyrri hluta framkvæmda í fyrra komst hótelið inn á topp 10 listann hjá TripAdvi-sor og svo nú í 2 sæti.Eigendur á Hótel Keflavík ákváðu fyrir tveimur árum að leggja frekar áherslu á miklar endurbætur og gera hótelið meira spennandi kost í hinum nýja íslenska hótelfrum-skógi.„Það hefur tekist hreint frábærlega á þessum stutta tíma og hefur nýt-ing og eftirspurn eftir góðri gist-ingu aukist gríðarlega í takt við góð ummæli eins og þessi TripAdvisor viðurkenning sýnir en við erum þó enn á fullu í framkvæmdum og hvergi hætt,“ segir Steinþór Jóns-son, hótelstjóri.Vinnu við ytri umgjörð hótelsins s.s. granítflísar og LED lýsing er að mestu leyti lokið. Í dag er hótelið með 77 nýendurgerð herbergi með góðum aðbúnaði eins og best þekk-ist á fjögurra stjörnu hótelum. Við lok framkvæmda verða þar á meðal fjórar Junior svítur og allt að fimm

svítur af stærðinni 35 fermetrar, 80 fermetrar og 250 fermetrar og verður svítu hæðin sér deild innan hótelsins.„Vinnuheitið hjá okkur í þessum framkvæmdum er 5 stjörnu hæð á góðu 4 stjörnu hóteli. Efsta hæðin verður með sér móttökuborði og þjónustu sem aðeins 5 stjörnu hótel bjóða upp á og þekkist ekki enn hér á landi. Þetta er m.a. hægt að gera hjá okkur þar sem lyfta hót-elsins mun ganga beint niður í veitingastaðinn, KEF restaurant, sem er fyrsta flokks staður rekinn af meistarkokknum Jenný Rún-arsdóttur og einnig beint niður í Lífsstíl sem er ein stærsta líkams-ræktarstöð á hóteli í Evrópu,“ segir Steinþór jafnframt.„Við hér á Hótel Keflavík erum mjög stolt af bænum okkar og um-hverfi og teljum því að svona stór fjárfesting muni skila sér mjög vel þegar til lengri tíma er litið bæði

fyrir okkur og fyrir Keflavík sem áfangastað. Þá er að okkar mat að þessi nýja og stærsta svíta Norður-landa eigi hér best heima og mun vonandi verða öðrum á svæðinu hvati til að gera enn betur. 30 ára uppbygging og framkvæmdar-gleði fjölskyldunar hefur oft tekið á en við erum gríðarlega þakklát fyrir hvar við erum stödd í dag. Staðsetning Hótel Keflavík með alþjóðaflugvöllinn, höfuðborgina Reykjavík, Reykjanesið og Bláa Lónið gerir okkar staðsetningu þá bestu hér á landi. Það eiga margir eftir að uppgötva hvað þetta svæði býður upp á og þegar við horfum tilbaka til ársins 1986 þegar Hótel Keflavík var stofnað, og þegar ferðaþjónusta var ekki til á þessu svæði, má með sanni segja að eitt flottasta ferðaþjónustusvæði lands-ins hafi orðið til á aðeins 30 árum,“ segir Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík.

■■ Hótel Keflavík valið annað besta hótel landsins á TripAdvisor:

Fimm stjörnu svítuhæð með 250 fermetra lúxussvítu

– stolt af bænum okkar og umhverfi, segir Steinþór Jónsson hótelstjóri

-viðtal pósturu [email protected]

Steinþór Jónsson hótelstjóri á Hótel Keflavík.

Codland hlaut á dögunum 4,35 mi l l jónir norsk r a

króna, jafnvirði um 75 milljóna íslenskra króna, í rannsóknar-styrk frá Nordic Innovation. Rannsóknarverkefnið, sem er til 3 ára, hefur það að markmiði að þróa ensím sem ætluð verða sérstaklega til að vinna kollagen peptíð úr kaldsjávarfiskum.Undanfarin misseri hefur Codl-and unnið að tilraunaframleiðslu kollagens úr þorskroði í samstarfi við gelatínframleiðendur á Spáni, en kollagen er lífvirkt efni sem sí-fellt verður vinsælla í heilsu- og snyrtivörugeiranum. Tilraun-framleiðslan og rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið sýna að aðlaga þarf framleiðsluferlið betur að hráefninu og leita leiða til að auka sjálfbærni framleiðslunnar. Í samvinnu við Matís, Barentzyme í Noregi, DTU-Biosustain og Há-

skólann í Árósum hefst Codland nú handa við slíkt rannsóknar- og þróunarferli en við lok þess er gert ráð fyrir að að reisa kollagenverk-smiðju á Íslandi sem unnið getur kollagen peptíð úr roði kaldsjávar-fiska á sjálfbærari, hagkvæmari og tæknilega fullkomnari hátt en þekkst hefur hingað til.Ljóst er að styrkveitingin er mikil lyftistöng fyrir Codland en mark-mið fyrirtækisins er þróa verð-mætar afurðir úr aukahráefni sem fellur til við fiskvinnslu, einkum á þorski. Þá er einnig ljóst að þriggja ára samstarf við jafn öflugar stofn-anir og fyrirtæki á borð við Bar-entzyme, DTU-Biosustain og Há-skólann í Árósum opnar Codlandi mikla möguleika til framtíðar. Codland er eitt þeirra fyrirtækja sem orðið hafa til á vettvangi Ís-lenska sjávarklasans.

Codland fær 75 m.kr. í rannsóknarstyrk

Fyrir nokkru tókust samningar um kaup Hóps ehf. á verslun Omnis ehf. í Reykjanesbæ og

tóku nýir eigendur við rekstrinum þann 1. febrúar undir nafninu Omnis Reykjanes. Hóp ehf. er að stærstum hluta í eigu Björns Inga Pálssonar, sem stýrt hefur rekstri verslunarinnar undanfarin ár og mun gera svo áfram. Verslunin var nýverið flutt í nýtt húsnæði að Hafnargötu 40. Öll helstu vörumerki í tölvum og tækni eru í boði í versluninni auk þjónustuumboðs fyrir Símann.Björn Ingi segir spennandi tíma framundan í rekstri verslunarinnar. „Ég hef trú á samfélaginu á Reykja-nesi og er sannfærður um að bjartir tímar sé framundan,“ segir Björn og sú trú hafi orðið til þess að hann ákvað að festa kaup á verslun-inni þegar Omnis kaus að breyta áherslum í rekstri og draga sig út úr rekstri verslana.Starfsmenn verslunarinnar eru fjórir og hafa flestir starfað hér

um árabil og þekkja því vel þarfir sinna viðskipta-vina. „Góð þjónusta hefur verið okkar aðalsmerki í gegnum tíðina og sú þjónusta mun aukast ef eitthvað er þegar verslunin er nú komin í eign heimamanna. Við munum áfram starfa mjög náið með okkar birgjum og þannig tryggjum við best samkeppnis-hæft verð,“ segir Björn að lokum.

Nýr eigandi tekur við verslun Omnis í Reykjanesbæ

Björn Ingi Pálsson ásamt starfsfólki sínu í Omnis en myndin var tekin í jólavertíðinni í desember sl.

Page 9: 06 tbl 2015

STJÖRNUVIKA

999 12 TOMMU BÁTUR AÐ EIGIN VALI & MIÐSTÆRÐ AF GOSI Á AÐEINS

TILBOÐ GILDIR TIL 18. FEBRÚAR

Ferskleiki er okkar bragð.™

Gild

ir ek

ki m

eð ö

ðrum

tilb

oðum

201

5 D

octo

r’s A

ssoc

iate

s In

c. S

UBW

AY®

er s

kráð

vör

umer

ki a

f Doc

tor’s

Ass

ocia

tes

Inc.

Page 10: 06 tbl 2015

10 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Mikilvægt að tryggja aðgengi að hágæða neysluvatni

XXSveitarfélagið Vogar hefur undanfarið átt í viðræðum við HS Veitur þess efnis að tekið verði í notkun nýtt vatnsból, sunnan Reykjanes-brautar. Sú staðsetning er álitin betri trygging fyrir gæðum vatnsins, ekki síst ef einhverskonar mengunarslys yrði á Reykjanesbraut.Í Vogum er starfrækt vatnsveita sem er í eigu sveitarfélagsins. Vatnsveitan kaupir kalt vatn í heildsölu af HS Veitum hf., en vatnið kemur úr vatns-bóli í eigu fyrirtækisins og er staðsett í Vogavík. Skemmst er að minnast mengunar sem varð vart í vatnsbólinu s.l. haust, en þá mældist lítils háttar mengun í kjölfar mikilla rigninga sem urðu í byrjun september.Fyrirhuguð uppbygging Stofnfisks hf. í Vogavík ýtir einnig undir að vatns-ból sveitarfélagsins verði fundinn nýr og öruggari staður, segir í fréttabréfi Ásgeirs Eiríkssonar, bæjarstjóra í Vogum, sem hann sendi frá sér í dag. Á síðasta fundi bæjarráðs var ákveðið að fallast á endurskoðun vatnsverðs til veitunnar. Samningur Vatnsveitunnar og HS Veitna er frá árinu 2001. Vatnsverð samkvæmt samningnum hefur einungis hækkað sem nemur vísitöluhækkun síðan þá. Mikilvægt er að trygga íbúum sveitarfélagsins aðgengi að neysluvatni í hæsta gæðaflokki og er endurskoðun samningsins liður í því.

Verði að taka fyrir mál landeigendaXXHæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem

vísaði frá máli landeigenda á Vatnsleysuströnd á hendur Orkustofnun og Landsneti. Landeigendurnir krefjast þess að ákvörðun Orkustofn-unar um að heimila Landsneti að leggja háspennulínu á landi þeirra verði felld úr gildi. Vefur RÚV greinir frá.Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá dómi, sem snýst um Suðurnes-jalínu 2, á þeim grundvelli að landeigendurna skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Á það féllst hæstiréttur ekki og taldi þvert á móti að land-eigendurnir hefðu beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Héraðs-dómi var því gert að taka málið til efnislegrar meðferðar, segir í frétt RÚV.

Vogabúar fá vefgáttXXSveitarfélagið Vogar leitast stöðugt við að bæta þjónustuna, m.a. á

vettvangi stjórnsýslunnar. Á árinu 2015 gerum við ráð fyrir að taka í notkun rafræna íbúagátt. Þetta kemur fram í vikulegu fréttabréfi bæjar-stjórans í Vogum.Aðgengi að gáttinni verður á heimasíðu sveitarfélagsins. Með tilkomu vef-gáttarinnar verður unnt að sinna ýmsum erindum án tillits til þjónustutíma bæjarskrifstofu. Umsóknareyðublöð verða aðgengileg í gáttinni, og unnt að fylla þau út og senda inn með rafrænum hætti.Upplýsingar um álagningu fasteignagjalda verður aðgengileg, sem og við-skiptayfirlit vegna greiðslu gjalda til sveitarfélagsins. Íbúar munu hafa tök á að sjá stöðu á sínum málum við sveitarfélagið á hverjum tíma í vefgáttinni.

Útrétta, sendast og sækja fundi á nýjum þjónustubíl

– Sveitarfélagið Vogar kaupir fjölnotabíl

XXSveitarfélagið Vogar festi á dögunum kaup á nýjum þjónustubíl fyrir sveitarfélagið. Í vikulegu fréttabréfi bæjarstjóra til starfsmanna sveitar-félagsins segir að um er að ræða lítinn fjölnotabíl. Bæði er unnt að nota hann sem sendibíl og einnig til að sækja fundi, sinna útréttingum o.fl.Komið hefur verið upp sameiginlegu bókunarkerfi fyrir bílinn, þannig að þeir sem þurfa að sinna erindum fyrir sveitarfélagið geta bókað bílinn og notað hann í stað þess að leggja til eigin bíl og fá greitt kílómetragjald. Bíllinn er af gerðinni Volkswagen Caddy og er með sparneytinni díselvél.

Heilsustyrkir endurskoðaðir í VogumXXUm nokkurra ára skeið hefur Sveitarfélagið Vogar greitt starfsfólki

bæjarfélagsins styrki til heilsueflingar, gegn framvísun kvittunar fyrir árskorti í líkamsrækt, sund eða vegna kaupa á útivistarfatnaði eða öðru sambærilegu.Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum segir að greiðslum þessum hefur verið ætlað það hlutverk að hvetja starfsfólk til að ástunda heilbrigðan lífsstíl og stunda reglubundna hreyfingu. Á síðasta fundi bæjarráðs var fjallað um heilsustyrkina og ákveðið að taka reglurnar til endurskoðunar. Markmiðið með endurskoðuninni er ekki síst að uppfæra reglurnar og með því móti skoða vandlega hvernig styrkirnir megi sem best virka sem hvatning til bættrar heilsu.

-fréttir pósturX [email protected]

Spjaldtölva gefin til HæfingarstöðvarinnarXXVerkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og ná-

grennirs styrkir Lionsklúbb Njarðvíkur á hverju ári með því að kaupa af þeim happdrættismiða í jóla-happdrætti þeirra.Félagið hafði heppina með sér og vann Lenovo spjald-tölvu í happdrættinu nú fyrir jólin. Ákveðið var að gefa Hæfingarstöðinni á Suðurnesjum spjaldtölvuna ásamt því að gefa kaffistofu hæfingarstöðvarinnar kr.20.000,-vöruúttekt í Nettó. Gjöfin nýtist þeim á hæfingarstöð-inni vel þar sem meðal annars er hægt að nýta hana til þjálfunar.

Gaf grunnskólum Reykjanesbæjar lokaverkefni sittAð a l h e i ð u r H a n n a

Björnsdóttir færði nýlega öllum sex grunn-skólum Reykjanesbæjar eintak af spilinu „Frá toppi til táar“. Aðalheiður fékk styrk úr Skólaþróunarsjóði Manngildissjóðs árið 2013 til að ljúka við gerð spilsins, en það var lokaverkefni hennar til B.Ed.-prófs. Spilið er byggt á kennslu-fræðilegum áherslum og gildum námsefnis í líffræði á miðstigi og áherslum í

Aðalnámskrá grunnskóla/Greinasvið 2013. Spilinu er ætlað að vekja áhuga og auka þekkingu á námsefninu, ásamt því að stuðla að fjöl-breyttum kennsluaðferðum í náttúrufræði.Aðalheiður, sem hefur starfað við grunnskóla í Reykjanesbæ, hefur nú selt útgáfuréttinn til Náms-gagnastofnunar. Gylfi Jón Gylfason, f ræðslustjóri Reykjanesbæjar, tók við gjöf-inni höfðinglegu.

Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30Við verjum góðum tíma í Keflavíkurkirkju í þessum þætti en aldarafmæli kirkjunnarverður fagnað um komandi helgi. Séra Skúli S. Ólafsson er í viðtali, einnig Arnór Vilbergssonorganisti og nokkrir kórsöngvarar. Í síðari hluta þáttarins förum við svo í parayoga.

Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta?

Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á [email protected]

Aldarafmæli Keflavíkurkirkjuog slakandi parayoga

Öskudagur er orðinn sá dagur ársins sem börnin

bíða með mikilli eftirvæntingu. Þá er sköpunarkraftinum gefinn laus taumur og börnin mæta í skólann í nýjum hlutverkum sem þau sjálf hafa valið sér sem ofur-hetjur, prinsessur, uppvakningar eða hvaðeina annað sem þeim finnst heillandi. Skólastarfið er að sjálfsögðu í takt við þá sem þangað mæta og öskudagsfjör í algleymingi.Að skóladegi loknum hópast börnin niður í bæ og ganga á milli fyrirtækja, syngja lög sem þau hafa æft og fá að launum smáræðis glaðning. Mörg barnanna leggja mikið upp úr atriðinu sínu og hafa lagt sig fram um að æfa það vel og gera það skemmtilegt. Aðrir veðja á Gamla Nóa og láta það duga, því uppskeran er jú líklegast sú sama.Í ár verða breytingar á þeirri dag-skrá sem Reykjanesbær hefur staðið fyrir. Í stað dagskrár sem verið hefur í Reykjaneshöllinni verður nú boðið upp á viðburð í Fjörheimum (88 Húsinu). Þar gefst þeim börnum sem vilja, kostur á

að mæta á tímabilinu frá kl. 12-15 og flytja á sviði öskudagsatriðið sitt undir yfirskriftinni Öskudagur „Got Talent.“ Sérstök dómnefnd veitir verðlaun fyrir bestu/skemmtilegustu atriðin og myndir af öllum atriðum verða birtar á facebook síðu Reykja-nesbæjar og e.t.v. víðar. Börnum á öllum aldri er velkomið að taka

þátt og þeir foreldrar sem tök hafa á eru einnig hvattir til að líta við.Með þessum viðburði eru börnin hvött til að leggja sig fram um að búa til flott og skemmtileg atriði sem þau geta stolt sýnt hvert öðru og haft gaman að og þannig hnýtt endahnútinn á viðburðaríkan dag. Skráning verður á staðnum.

ÖSKUDAGUR „GOT TALENT“ Í REYKJANESBÆ

ATVINNAVantar bifvélavirkja eða vanan verkstæðismann til starfa.

Nauðsynlegt að umsækjendur séu bæði talandi á Íslensku og skrifandi.Umsóknum svarað á staðnum.

Njarðarbraut 1 - 260 Reykjanesbæ - Sími: 421 8085 - Farsími: 857 9979

Page 11: 06 tbl 2015

kæra sóknarbarnkeflavíkurkirkja fagnar 100 ára afmæli

þann 14. febrúar næstkomandi. af því tilefni efnir söfnuðurinn til hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 15. febrúar kl. 14:00.

að athöfn lokinni býður sóknarnefnd til kaffisamsætis í kirkjulundi, safnaðarheimili keflavíkurkirkju.

Hátíðarsunnudagaskóli kl. 11.00

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00

sunnudaginn 15. febrúar

■■ Verslunarstjóri Duus verslunarinnar greiddi gamlar skuldir og lagði til helming fjár til nýrrar Keflavíkurkirkju:

Frá fornu fari tilheyrði Kefla-vík Útskálasókn, en þar hefur

verið kirkja a.m.k. frá miðri 14. öld. Ákvörðun um að reisa kirkju í Keflavík var tekin 1892 og er því ljóst að það var mikið áfall þegar nýbyggð kirkjan fauk í ofsaveðri 14.-15. nóvember 1902.

Eftir stóðu miklar skuldir og þó reynt væri að selja við úr kirkjunni dugði það lítið upp í skuldirnar. Í framhaldi af þessum atburðum var ákveðið að Keflavík skyldi verða sérstök sókn og var það frá 1906. Þá kom til sögunnar Ólafur Á. Ólafsson, verslunarstjóri Duus verslunarinnar. Hann bauðst til að greiða helminginn af skuld Kefla-víkursóknar við Útskálasókn gegn því að Keflvíkingar greiddu hinn helminginn á móti. Einnig lofaði hann að greiða helming af kostn-aði við byggingu nýrrar kirkju um leið og Keflvíkingar væru búnir að safna fyrir hinum helmingnum án þess að skuldsetja sig. Um leið og þetta var skjalfest komst skriður á málið. Rögnvaldur Ólafsson, sem þá var titlaður byggingarmeistari í Reykjavík, var fenginn til að teikna kirkjuna, en hann hafði þá nýlokið við að teikna Hafnarfjarðarkirkju.

Það má alveg velta fyrir sér rausnar-skap Ólafs Á. Ólafssonar og líka hvað lá að baki þeirri staðreynd að einn maður hafði burði til að

gefa hálfa kirkju og rúmlega það en kirkjan kostaði 17.000 krónur uppkomin. Ólafur og systir hans, ekkjufrú Kristjana Duus, borguðu 10.000 kr. Árin sem Ólafur var verslunarstjóri í Duusverslun bjó hann í Kaupmannahöfn á vetrum, en kom með vorskipum til Kefla-víkur og átti þar sitt sumarheimili ásamt eiginkonu sinni, Ástu Ja-cobsen. Ásta sýndi umhyggju fyrir börnunum í þorpinu og hélt þeim veislu sumar hvert. Kirkjan er einstaklega vel heppnuð og falleg bygging, hún er stílhrein og einföld að gerð en yfir henni er fágun og tign. Hún hefur á sínum 100 árum farið í gegnum margvís-legar endurbætur og nú síðast 2012 var kirkjuskipinu komið í uppruna-legt horf, að svo miklu leyti sem við var komið og hentaði nútímanum. Þeim endurbótum er enn ekki að fullu lokið. Eftir er að setja upp nýja glugga og svo er eftir að stækka kórloftið að ótöldu orgelinu, en það þarfnast umtalsverðra endurbóta. Er verið að safna í sjóð svo unnt verði að takast á við það verkefni áður en langt um líður. Áformað er að gluggarnir verði komnir upp á afmælisárinu. Hitt er aftur á móti óvíst hvort hægt verði að stækka kórloftið og endurbæta orgelið á næstu árum en stefnt er að því. (Hluti veglegrar samantektar Ragnheiðar Ástu Magnúsdóttur

Stórhuga menn í Keflavík fyrir rúmri öld síðan

formanns sóknarnefndar Kefla-víkurkirkju sem birtist í Víkur-fréttum 5. febrúar sl.)

KEFLAVÍKURKIRKJA 100 ÁRAÞann 14. febrúar nk. verður Keflavíkurkirkja 100 ára. Afmælisins verður minnst með myndarlegum hætti sunnudaginn 15. febrúar, en þá verður hátíðarmessa kl. 14 og um

morguninn verður barnaguðsþjónusta kl. 11. Veitingar verða bornar fram að loknum báðum athöfnunum. Þessara merku tímamóta hefur minnst á margvíslegan hátt á af-mælisárinu og hófst reyndar fyrir nokkru síðan. Víkurfréttir gera tímamótunum vegleg skil í þessu tölublaði, á vf.is og í vikulegum þætti Sjónvarps Víkurfrétta í þessari viku

og meira á afmælisárinu.

Page 12: 06 tbl 2015

Almættið hefur brosað yfir kirkjuturninum í Keflavík segir Skúli Ólafsson sóknarprestur Keflavíkurkirkju sem fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir

100 ára afmæli Keflavíkurkirkju og það er dálítið sérstakt að á sama tíma er sóknarpresturinn á leiðinni eitthvað annað.Já, það er mjög skrýtið. Það er svo fyndið og merkilegt að þegar ég kom hingað 2006 var ég svolítið upptekinn af því að söfnuðurinn færi að setja sér markmið og vinna eftir ákveðnum línum. Og einhvern veginn festist þetta í kollinum á mér að innan áratugar yrði kirkjan 10 ára. Það voru níu ár í þetta sem okkar fannst ægilega langur tími. Við enduðum á því að kalla stefnu-mótunina okkar Keflavíkurkirkja 2015. Við vorum að fara í gegnum gögn og fermingarbörn sem fermd-ust vorið 2007 voru búin að gera flott veggspjöld sem hafa yfirskrift-ina Keflavíkurkirkja 2015. Sem var eiginlega eins og sviðsmynd fyrir vísindaskáldsögu á þeim tíma. Þessi tími er runninn upp, 100 ára af-mæli, og það vill svo merkilega til að það verður líka kveðjumessan mín.

Það var smá fjör, ef hægt er að orða það svo, við ráðninguna þína á sínum tíma.Já, það var dálítið skrýtið. Ég var á Ísafirði þegar það byrjaði, maður horfði á þetta úr fjarlægð. Ég hugs-aði með mér: Jæja, þetta fólk þekkir mig ekki. Svo spurði einhver á móti: Hvernig væru lætin ef þau þekktu þig? En þetta var bara ein af þessum stóru áskorunum og ég hugsa að óánægjan hafi tengst eldri málum eins og verulegum deilum vegna byggingar safnaðarheimilisins. Kannski eimdi eitthvað af því. En svo þegar ég kom á staðinn, kynnt-ist fólkinu og fór að starfa með því þá mættu mér auðvitað útréttir armar. Fólk var mjög fljótt að taka mig í sátt. Síðan segi ég nú gjarnan að almættið hafi verið brosandi yfir kirkjuturninum í Keflavíkur-kirkju. Við erum búin að fá hverja

Það gustaði við komu nýja sóknarprests Keflvíkurkirkju árið 2006 enda hefur yfirleitt ekki verið nein lognmolla í starfi kirkjunnar í bítlabænum. Séra Skúli Ólafsson átti rætur að rekja til Keflavíkur en sú eldskírn sem hann fékk

við komuna herti unga prestinn sem var að koma frá Ísafirði. Hann tókst á við verkefnið af alvöru og fljótlega eftir komu hans fóru nýir hlutir að gerast í Keflavíkurkirkju. Nú er Skúli á leið á nýjar slóðir eftir níu ára starf og mun ásamt Sigríði Guðjónsdóttur lögreglustjóra og eiginkonu sinni takast á við nýjar áskoranir. Páll Ketilsson tók hús á sóknar-prestinum sem heldur kveðjumessu sína á 100 ára afmæli Keflavíkurkirkju.

himnasendinguna á fætur annarri í hendurnar af fólki, bæði launuðum starfsmönnum kirkjunnar og sjálf-boðaliðum og þessum leiðtogum sem eru með okkur í þessu starfi og gera kirkjuna að því sem hún er. Þannig að þegar ég horfi til baka þessi níu ár, þá er mikil birta yfir þessum tíma og mikil uppbygging sem hér hefur farið fram . Virkilega gaman að hafa tekið þátt í henni.

VarnarbaráttaHvernig var að koma frá Vest-fjörðum og til Keflavíkur? Þú varst í ennþá minna samfélagi þar.Ég var í litlu samfélagi þar, mjög ólíku. Ísafjörður er fjórðungsmið-stöð Vestfjarða og þar er atkvæðis-vægi mjög hátt. Maður fór varla í fermingarveislur eða einhver mannamót án þess að þar væru a.m.k. tveir þingmenn og helst einn ráðherra. Þeir eru með mikið af stórum karakterum. Mér brá í brún þegar ég kom inn á þetta gríðarstóra svæði, sem var auð-vitað hinum megin á línunni, og það var dálítið eins og að fólk væri sofandi yfir því að hafa talsmenn

fyrir svæðið í landsmálapólitíkinni. Það hefur nú heldur betur ræst úr þeim málum nýlega. En það voru ákveðin atriði sem voru ólík en svo önnur sem maður stóð sig að bera saman. Suðurnesin og Vest-firðirnir. Landfræðilega gæti þetta ekki verið ólíkara. Margir Vestfirð-ingar sem fá þá leiðsögn að keyra upp á Miðnesheiði og beygja svo til hægri til Keflavíkur enda úti á Garðskaga því þeir fundu aldrei neina heiði. En mér hefur fundist gaman að bera þessi svæði saman og ég segi gjarnan að Grindvíkingar séu Bolvíkingar Suðurnesja. Þar er svo margt sem líkist þessum sam-félögum, mikill bragur yfir þeim. En það sem einkennir bæði Vest-firði og Suðurnesin sem og önnur svæði utan höfuðborgarsvæðisins er auðvitað heilmikil varnarbarátta. Maður hefur nú aldeilis fengið að kynnast henni hér á þessu svæði.

Hvað var þér efst í huga með nýrri stefnumótun Keflavíkurkirkju? Vildirðu skýrari sýn? Hvað sástu fyrir þér?

Fyrst og fremst að horfa fram á veg-inn, við vorum búin að vera dálítið mikið í baksýnisspeglinum. Við spurðum okkur hvar við getum gert betur og hvar mætti slaka á kröf-unum. Og sóknarnefndin komst að því að lögð yrði áhersla á þrjú atriði: velferðarmál, kærleiksþjón-ustu og menningarmál. Þau hafa verið alveg framúrskarandi góð hjá Keflavíkurkirkju. Annar tilgangur með þessu fólst í því að kynna Keflavíkursókn með jávæðum hætti. Ég fór um allan bæ með hug-myndir sóknarnefndar og kynnti þær og fékk allskonar hugmyndir á móti. Fórum til bæjaryfirvalda og í skólana. Ýmsar hugmyndir komu fram eins og að sýna enska boltann í beinni. Gaman að því. Svo var þriðji tilgangurinn með stefnunni hópefli og fá skemmtilega dínamík í samfélagið. Hún hefur farið vax-andi síðan.

Stofnun VelferðarsjóðsinsÞað hefur verið tekið eftir því hversu vel hefur tekist til og starfið er öflugt. Þegar þú horfir til baka í gegnum þessa stefnumótun og það sem hefur gerst í samfélaginu, finnst þér allt hafa áunnist sem þú vildir?Miklu meira en ég gat ímyndað mér. Ég sá ekki fyrir mér að við ættum eftir að fara á þetta mikla flug og það er vegna þess að við höfum fengið hingað þetta fólk sem getur haft áhrif. Það hefur lagt sitt af mörkum til þess að Velferðar-sjóðurinn á Suðurnesjum sem við stofnuðum, hefur safnað 60 millj-ónum frá árslokum 2008. Okkur hefur tekist að kalla eftir þessum margfeldisáhrifum þar sem allir leggjast á eitt.

Hér verður bankahrun og sam-félagið á Suðurnesjum fer illa út úr því. Þið standið í framhaldinu að

stofnun velferðarsjóðs. Segðu okkur aðeins meira frá því.Það voru leiðtogarnir okkar, heim-ilisfólkið, sem kom með þessa hug-mynd. Menn höfðu verið að nefna þetta en einn hópur kom með hugmyndina í Skálholti. Ég stökk ekkert upp til handa og fóta þegar ég heyrði hugmyndina. Ég spurði

Séra Skúli í kirkjunni sem hann hefur starfað í síðustu níu ár.

Hljómar úr bítlabænum í jóla-fíling í Keflavíkurkirkju fyrir

nokkrum árum.

Sr. Skúli í skátamessu .

Óskum Keflavíkurkirkju til hamingjum með aldarafmælið

Reykjanesbær

Page 13: 06 tbl 2015

fyrst, hvað við værum að koma okkur út í. Erum við með bolmagn til þess að halda utan um slíkt? Það þurfti tíma til að sannfæra mig. Við náðum svo að kalla fram þessa já-kvæðu krafta í samfélaginu. Það er ekki bara Keflavíkursókn sem má vera stolt af því að hafa áorkað þessu. Það er samfélagið á Suður-

nesjum sem má rifna úr stolti yfir að hafa á þessum tíma sýnt sínum minnstu systkinum slíkan stuðning þegar á móti blés. Krakkar komu með litlu-jóla peningana sína í þetta, fyrirtæki, félög og samtök. Þetta er góð einkunn fyrir samfélag sem lendir í kreppu. Fólk breytt-ist úr þolendum í gerendur - úr fórnarlömbum í sanna leiðtoga.

Hefur sjóðurinn haft góð áhrif á samfélagið? Hvernig finnst þér samfélagið vera í dag miðað við fljótlega eftir hrun?Mér finnst rofa hressilega til hér á svæðinu, þrátt fyrir misgóðar fréttir af fjárhagstöðu sveitarfélagsins. Við hjónin settum húsið okkar á sölu sl. sumar og fólk sagði ekkert vera að gerast á fasteignamarkaðnum. Svo er ég búinn að hitta fjölda fólks sem selt hefur húsin sín á auga-bragði. Fólk streymir hér að. Ég get vottað það, hafandi alið upp tvö af okkar þremur börnum hér, hversu framúrskarandi þjónusta er hér fyrir barnafólk. Guttinn okkar í leikskólanum er að læra að lesa og draga til stafs. Fólk hlýtur að horfa til slíks og íþróttastarfsins og ungl-

ingastarfsins sem er mjög öflugt hérna, að kirkjustarfinu ógleymdu!

Skemmtilegheit í kirkjunniÞið hafið líka verið þekkt fyrir það að vera með öflug skemmtilegheit í kirkjunni. Ýmsar uppákomur?Heldur betur, maður sogast inn í það sem virðulegur prestur sem kom frá Ísafirði. Áður en ég vissi var ég búinn að klæða mig upp sem ref og syngja með félögum mínum í söngleik á sviði á Ljósanótt. Þegar ég gekk niður af sviðinu var ég að semja afsökunarbréf í huganum til sóknarinnar fyrir flippið. En ég hef sjaldan fengið eins góð viðbrögð við því sem ég hef tekið að mér. Með athæfinu söfnuðum við peningum til góðra verka í samfélaginu. Við erum að vinna með frábæru fólki hérna. Sr. Erla Guðmundsdóttir kom inn um svipað leyti og ég. Við höfum verið samstíga í öllum þeim breytingum sem hafa orðið. Hún á alveg gríðarmikinn þátt í því sem hér hefur gerst og ég hefði ekki getað hugsað mér þetta starf hér án hennar. Tónlistarmál kirkjunnar hafa heldur betur rokkað undir for-ystu Arnórs Vilbergssonar og auð-

vitað sígildari tónlistarstefnur einn-ig. Þórunn Þórisdóttir heldur með skeleggum hætti utan um rekstur kirkjunnar. Leikmannahreyfing í kringum kirkjuna er alveg einstök, með formanninn Ragnheiður Ástu Magnúsdóttur í broddi fylkingar.

Finnst þér almenningur vita vel af öllu þessu starfi sem fram fer hér?Já, mér finnst það. Fólk horfir á okkur víða að hvernig við höfum byggt upp okkar starf. Við getum vel tekið fram vissa þætti og svið og sagt að við séum í fremsta flokki þar. Fólk sem mætir í barnamessu sér að hér er þétt setinn bekkurinn og alúð og gleði ríkir. Eins og ég er ánægður með að þetta er í góðum höndum þá á ég að sjálfsögðu eftir að sakna þess hversu gott þetta er hér.

Kærleikann að leiðarljósiFyrir um 15 árum var byggt hérna safnaðarheimili og það var ekki átakalaust og án deilna. Lang-flestir eru sammála um að það hafi heppnast ákaflega vel. Undir þinni stjórn var farið í að breyta kirkju-skipinu, gluggum og öðru. Ekki voru allir á eitt sáttir þar heldur.Safnaðarheimilið vakti miklar deilur en er vitaskuld glæsileg bygging. Við fáum fólk hingað frá öðrum landshlutum og öðrum löndum í tengslum við starfið hér og gjarnan hælir fólk þessari hönnun og arkitektúr. Það var mjög erfitt að taka þá ákvörðun að fara í endurbætur á kirkjunni. Ákveðið var að fara þessa leið og við vissum að einhverjir yrðu ekk-ert mjög ánægðir með hana. Það sem við höfum fengið er kirkja sem líkist miklu meira því sem Rögn-valdur Ólafsson vildi að hún yrði. Hún er hönnuð með þennan stíl í huga, svokallaða nýklassíska stíl; látlaus, einföld og björt. Kirkjan er með miklu betri hljómburði og það er betra loft í henni. Og birtan en miklu betri. Okkur er það ekki gleðiefni að valda fólki leiðindum.

Þetta voru innréttingar sem fólk safnaði fyrir, gluggar sem voru settir upp eru afrakstur gjafafjár. Við skoðum ýmsar leiðir með gömlu steindu gluggana. Er hægt að setja þá upp annars staðar? Sú hugmyndavinna er í fullum gangi en er langt í frá að vera einfalt verk. Gluggarnir eru viðkvæmir. Allar gjafir eru háðar breytingum. Þegar fólk gefur eitthvað til kirkjunnar í fallegum tilgangi og hug þarf að gera ráð fyrir því að hluturinn standi þar uppi í einhvern ákveðinn tíma. En öllu er afmarkaður tími eins og þar stendur.

Nú er þið hjónin flutt til Reykja-víkur. Konan þín búin að vera lögreglustjóri og þú sóknarprestur Keflavíkur. Einhvern tímann hefði það verið talin sérstök blanda til að vera með á heimili. Einhvern tím-ann voru prestarnir valdamestir í hverjum bæ.Ég get fullyrt að það hefur gengið vel og sambúðin góð á heimilinu og konan mín hefur staðið í ströngu að ganga í miklar breytingar hér. Hún horfði upp á mikinn vöxt í sínum verkefnum. En nú er hún komin á annan póst og í aðrar áskoranir. Maður finnur mjög vel þegar maður er að ganga í gegnum breytingar að samfélagið sem við höfum notið þess að dvelja í er alveg einstakt og skilur okkur eftir með mikið og gott veganesti.

Að lokum: hvernig viltu sjá 100 ára Keflavíkurkirkju fara inn í næstu ár - inn í framtíðina?Með þeim anda sem okkur hefur tekist að starfa áfram í. Eins postul-inn segir við lesum í brúðkaupum - menn geta búið yfir ýmsum náðargáfum, spádómsgáfum og predikun og öllu mögulegu. Ef menn hafa ekki kærleikann, þá eru þeir hljómandi málmur og hvell-andi bjalla. Að hafa kærleikann að leiðarljósi í starfi eins og hér er al-gjört undirstöðuatriði.

Óskum Keflavíkurkirkju til hamingjum með aldarafmæliðR EYKJANESBÆR

Prestar og kirkjufólk með fiskmarkað í Nettó á upp-hafsárum Velferðarsjóðsins á Suðurnesjum.

Page 14: 06 tbl 2015

Það þótti mikill fengur að ná aftur í heimabæinn organist-

anum Arnóri Vilbergssyni. Hann hafði gert flotta hluti á Akureyri og Keflvíkingar gáfu honum nokkur ár þar en sögðu svo: Komdu heim Arnór! Hann gerði það og þessi hressi, jákvæði og nú mikið skeggj-aði sonur hjónanna í hinum vel þekkta pulsuvagni í Keflavík, er hinn tónelskandi kappi kirkjunnar. Til að byrja á léttu nótunum sem blaðamenn telja sig stundum kunna er Arnór spurður gamallar og sí-gildrar spurningar: Er starf organ-ista í Keflavík fullt starf?

Þetta er býsna viðamikið en ég hef oft fengið þessa spurningu. Hér er ég mættur 8-9 á morgnana og er farinn um þrjú, hálf fjögur og geri ekkert allan þann tíma. (Hlær.) Nei djók. Ég sit hérna á skrifstofunni, svara í símann, tek og útfæri viðtöl og hitt og þetta sem þarf að gera. Við skipu-leggjum messuhaldið, kóræfingar og eitt og annað sem þarf að gera hérna. Í þessu húsi er ég með þrjá kóra starfandi. Kirkjukórinn telur um 50 manns, Vox Felix er ungliða-kór, svona samstarfsverkefni allra kirkna á Suðurnesjum - en allar sjö sóknirnar standa að honum. Ég skrifa allt út fyrir alla þessa kóra. Hann er í dægurlagatengdu efni. Við

erum að reyna að finna lög sem henta kirkjuspileríi. Það er erfitt að fá þetta unga fólk til að syngja sálma. Ég þarf að útsetja það fyrir þau. Svo er það Eldey, kór eldri borgara. Fjöldinn þar er kominn yfir sextíu. Það er í mörg horn að líta þegar kemur að þessu starfi. Allt þetta utanumhald er töluvert og allt sem við þurfum að gera hér innanhúss. Við erum ekkert mörg að vinna hérna og stundum er ég kominn í að skipta um perur og þurrka af borðinu mínu á skrif-stofunni.

En varðandi þessa sönghópa og hversu vel gengur að fá fólk til að taka þátt í þessu. Er Bítlabærinn að standa undir nafni? Fólk er bara mjög iðið við að vilja koma. Það er oft talað um að það sé erfitt að fá stráka til þess að koma á æfingu. Á síðust Vox Felix æfingu komu sjö strákar, rétt yfir tvítugt. Þannig að það er mikið sönglíf hérna.

Og starf organistans? Messur, útfarir og kórstarf?Jú, jú, ég spila við kistulagningar, útfarir og innan þessa ramma sem organisti þarf að sinna eru æfingar, 2-3 tímar á hverjum degi. Það er bara að sitja við hljófærið og spila. Svo skrifar maður nótur í tvo og hálfan tíma og skipuleggur annað hinn

tímann. Spila á sunnudögum og svo taka útfarirnar stóran hluta úr degi. Kóræfingar eru alltaf á kvöldin. Þetta dreifist voða mikið og maður þarf að eiga mjög þolinmóðan maka. Takk Guðný mín!

Er ekki fjör framundan á hundrað ára afmæli?Það eru hátíðarmessur fyrir krakka og fullorðna og aðalverkið sem við flytjum er Sanktus eftir Karl Jenkis. Það sem á hug minn allan eru há-tíðartónleikar vegna afmælisins sem við erum að stefna að 29. mars í Hljómahöllinni. Þá ætla að sameinast karlakór, kvennakór og kirkjukór og við ætlum okkur að búa til strengja-sveit sem spilar þar undir með dyggri aðstoð frá Tónlistarskólanum. Við ætlum að flytja Keflavíkurkantötru eftir Eirík Árna Sigtryggsson sem kenndi lengi í tónlistarskólanum. Þá ætlum við að flytja sálm sem Sigurður Sævarsson, okkar Keflvíkinga, sem hann skrifaði fyrir kirkjuna í tilefni 95 ára afmælisins. Sóknarpresturinn okkar, Skúli, á texta við það. Kórarnir flytja svo líka verk sjálfir. Meiningin er svo á Ljósanótt að vera með tvenna flotta tónleika.

Getur hver sem er komið í kór og annað? Þarf maður að kunna að

syngja? Segðu okkur leyndarmálið á bak við góðan kórfélaga. Við erum öll misjöfn. Sumir eru rosalega sterkir raddlega, aðrir í fé-lagsmálum. Vissulega þarftu að halda lagi en flestöllum er hægt að hjálpa og ég trúi því að allir geti sungið. Það er allskonar fólk í kórnum okkar. Þar er fólk sem er búið með 8. stig í söng og fólk sem er að byrja að syngja með kór. Kraftar þessa fólks liggja oft meira í skipulagsvinnu og félagsvinnu á meðan 8. stigs fólkið er kannski að kenna. Það er hlutverk fyrir alla í kirkjukór.

Þetta fólk allt, sem er í sjálfboða-vinnu, er það alveg til í að mæta við útfarir og messur og allt það sem þarf? Við notum sem betur fer Internetið til þess að búa til hópa og það er alltaf frjáls mæting í messu. Það eru alltaf um 20 manns sem syngja þar. Ég hef yfirsýn yfir það og sé hverjir melda sig. Við útfarir erum við með radd-formenn sem sjá um að boða í sína rödd. Ég óska kannski eftir 3 ten-órum, 3 bössum o.s.frv. og þau kalla út það sem ég þarf. Þetta er mikið skipulag sem hefur tekist að setja á margar hendur. Þetta er ekki allt á minni könnu. Þetta er batterí og allt þarf að funkera svo að þetta gangi. Og það gengur allt mjög vel.

AFMÆLISDAGSKRÁIN 100 ÁRA15. feb. afmælismessaSunnudaginn 15. febrúar kl. 14:00 er afmælismessa í Keflavíkurkirkju. Biskup Íslands þjónar fyrir altari, ásamt dr. Gunnari Kristjánssyni. Myndarlegt afmæliskaffi að messu lokinni.

29. mars. HátíðartónleikarHátíðartónleikar Kórs Keflavíkurkirkju fara fram í Hljómahöll þann 29. mars. Arnór Vilbergsson organisti stýrir dag-skránni með þátttöku kóra á Suður-nesjum.

1. maí Vorsöngleikur KeflavíkurkirkjuÍ maí verður frumsýndur söngleikurinn Örkin hans Nóa í tilefni afmælis Kefla-víkurkirkju. Verkið er unnið í samvinnu með leikfélaginu og Myllubakkaskóla.

14. júni Keflavíkurkirkja 1915Sunnudaginn 14. júní kl. 19:15 verður gamaldags guðsþjónusta í Keflavíkur-kirkju undir yfirskriftinni: Keflvíkur-kirkja 1915.Saga kirkjunnar verður rifjuð upp og gamlir (en kunnir) sálmar verða sungnir.

3. sept. Ljósanótt í aldargamalli KeflavíkurkirkjuDagana 3.-5. september, meðan ljósa-nótt stendur yfir, mun Keflavíkurkirkja minnast aldarafmælis.Sögusýning verður haldin í Duus-húsum þar sem brugðið verður mynd af ýmsum tímabilum í sögu kirkjunnar. Gengið verður í Keflavíkurkirkju þar sem listafólk tekur á móti gestum.Miðnæturmessa aðfaranótt sunnu-dagsins.

28. nóv. Söngleikurinn Ljós um nóttÁ aðventu verður settur upp söngleikurinn Ljós um nótt eftir þá Arnór Vil-bergsson og sr. Skúla S. Ólafsson.

Það er hlutverk fyrir alla í kirkjukór■■ Organistinn Arnór Vilbergsson stýrir söngmálum í Keflavíkur-

kirkju. Hann fer mikinn og stjórnar m.a. þremur kórum:

Haustið 2006 sat ég í sóknar-nefnd Keflavíkurkirkju. Þá

áttum við starfsfólk og sóknar-nefnd saman uppbyggilega stund í Skálholti þar sem hafin var vinna að nýrri stefnumótun fyrir safn-aðarstarfið. Að baki voru tímar sundurlyndis og deilna en fram-tíðin lofaði engu að síður góðu og ýmis fyrirheit voru um betri stöðu safnaðarins.Fljótlega kom í ljós að forgangs-röðunin var ekki eins og við vildum hafa hana. Starfsfólk, sóknarnefnd og aðrir leikmenn lögðust á eitt til að breyta hugsunar- og vinnu-hætti innan Keflavíkursóknar. Við einbeittum okkur að því að breyta menningunni í söfnuðinum og þar með einbeita okkur að ákveðnum verkefnum. Við vildum hafa færri bolta á lofti en grípa þá alla. Farið var af stað og spurningar lagðar fyrir ýmsa hópa í samfélaginu. Við fengum sjálfboðaliða með okkur í lið í stefnumótunarvinnuna. Mynd-aðir voru smáhópar til að vinna með hvernig við gætum breytt og bætt barna- og æskulýðsstarf, kærleiks-þjónustu og sjálboðaliðastarf.Nýjar aðstæður í kjölfar brottflutn-ings hersins og efnahagshruns köll-uðu á nýjan hugsunarhátt. Þá kom

sér vel að Keflavíkurkirkja var búin að mynda nýja stefnu sem gaf okkur betri tækifæri til að leggja krafta okkar í ákveðin verkefni.

Velferðarsjóður á SuðurnesjumÍ byrjun október 2008 fóru sóknar-nefnd, starfsfólk og sjálfboðaliðar Keflavíkurkirkju í helgarferð í Skál-holt þar sem við fórum yfir stefnu-málin. Hugmynd kom upp um að stofna sjóð sem myndi styðja við Suðurnesjamenn. Daginn eftir að heim var komið hrundi efnahagur landsins og Geir H. Haarde forsætis-ráðherra bað Guð að blessa Ísland.Keflavíkurkirkja varð leiðandi í því að mynda þennan sjóð. Hugmyndir voru bornar upp við alla þá sem komu að starfi við náungann, s.s. bæjarfélög svæðisins, Rauði kross-inn, sjúkrahúsið, félagasamtök og líknarfélög.Hjálparstarf kirkjunnar var með okkur í þessari vinnu og hjálpaði okkur að mynda reglur fyrir sjóð-inn og skilgreina umsóknarferlið. Öll nýsköpun og fjáröflun snerist um Velferðarsjóðinn. Haldnir voru markaðir, tónleikar og ýmsir við-burðir. Við hvöttum fólk til að styðja við sjóðinn og svo sannarlega brást samfélagið við á þessum erfiða tíma

því frá okt.-des. 2008 söfnuðust 20 milljónir í sjóðinn. Allt framlög frá samfélaginu. Í dag hafa safnast um 60 milljónir í sjóðinn sem er einstakt og vitnisburður um það hversu gott samfélag okkar er.

Allir fái heita máltíðVið þurftum að greina þörfina. Við vildum að öll börn fengju heita mál-tíð í hádeginu. Því hefur sjóðurinn greitt skólamat fyrir um 60 börn og ungmenni á degi hverjum yfir vetrarmánuðina. Við vildum að öll börn fengju jöfn tækifæri til að stunda íþróttir og tónlistarnám. Því greiðum við slík gjöld. Ein leið til að sporna við fátækt er menntun. Því var lögð áhersla á að greiða fram-haldskólagjöld, efniskostnað og námsgögn fyrir börn og ungmenni.Allir skjólstæðingar þurfa að koma með göng sem sýna allar tekjur og öll mánaðarleg útgjöld. Ef fólk er við þau viðmiðunarmörk sem sett eru, með tilliti til fjölskyldustærðar, þá fær það aðstoð. Aldrei eru bein-harðir peningar settir yfir borðið.Í desember 2010 sáum við að ald-ursdreifing af skjólstæðingum var á þann hátt að 65% var undir þrítugu. Við gerðum okkur grein fyrir því að við urðum að gera eitthvað annað og

meira en það sem við höfðum verið að gera. Við vildum styðja við fólk og hjálpa því að styrkjast og vaxa. Hjálpa því að vera sterkari að taka á móti hverdagsleikanum.Við vorum með ýmis námskeið þar sem fólk lærði að fara betur með verðmæti og efla sig á ýmsan hátt. Við prófuðum okkur áfram, sumt virkaði og annað ekki. Fólkið í Keflavíkurkirkju voru frumkvöðlar og kirkjan var leiðar-ljós í samfélaginu. Í kirkjunni okkar byrjaði starf sem ekki var til staðar á þessum tíma. Síðan hafa aðrir hópar tekið við og bjóða þjónustu við at-vinnuleitendur og öryrkja í upp-bygginu. Við finnum nú að sú þörf sem við sinntum þá er ekki sú sama og í dag.

Hvernig getum við hálpað?Með því að rýna til gagns, spyrja okkur hvað við erum að gera vel og hvað erum við að gera illa, hvað erum við að gera sem er mikilvægt og hvað erum við að gera sem er ekki mikilvægt. Með því að þora að reyna ýmislegt og með því að þora að gera mistök þá komumst við að því hvað það er sem virkar og hvað virkar ekki. Með því að styrkja ung-menni til mennta getum við rofið vítahring fátæktar.Ef ekki væri fyrir einstaklinga, líknarfélög, starfsmannafélög og fyrirtæki sem legðu sjóðnum lið þá væri þessi sjóður ekki til og fyrir það viljum við þakka.

Í Matteusarguðspalli segir Jesús:Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.Á þessum orðum krists byggist líknarstarf kristinnar kirkju.

Þórunn ÞórisdóttirRekstrarstjóri Keflavíkurkirkju

VILDUM HAFA FÆRRI BOLTA Á LOFTI EN GRÍPA ÞÁ ALLAkæra sóknarbarnkeflavíkurkirkja fagnar 100 ára afmæli

þann 14. febrúar næstkomandi. af því tilefni efnir söfnuðurinn til hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 15. febrúar kl. 14:00.

að athöfn lokinni býður sóknarnefnd til kaffisamsætis í kirkjulundi, safnaðarheimili keflavíkurkirkju.

Hátíðarsunnudagaskóli kl. 11.00

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00

sunnudaginn 15. febrúar

Arnór með kirkju-kórinn á æfingu.

T.v.: Það eru ófáar uppákomur og söngskemmtanir sem hafa verið haldnar í Keflavíkurkirkju á undanförnum árum. Það þótti mörgum mögnuð upplifun að sjá óperuna Toscu eftir Giacomo Puccini flutta undir berum himni í ljósa-skiptunum í Keflavík 12. ágúst 2011. Óperan var frumflutt í Keflavíkurkirkju. Fyrsti þáttur óperunnar var í sjálfri kirkjunni, annar hluti var fluttur í safn-aðarheimilinu Kirkjulundi og þriðji og síðasti hlutinn undir berum himni í

garði milli kirkjunnar og Kirkjulundar. Húsfyllir var á sýningunni og var söng-fólkinu fagnað mikið og lengi í lok sýningar. Kirkjulundi og þriðji og síðasti

hlutinn undir berum himni í garði milli kirkjunnar og Kirkjulundar.

Fjör í barnamessu.

Tekið á móti veglegum styrk frá Samkaupum í Velferðarsjóðinn

fyrir jólin 2014.

Page 15: 06 tbl 2015

mar

khön

nun e

hf

mar

khön

nun e

hf

netto.isTilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

Kræsingar & kostakjör

saltminna saltkjötgoði - blandað

1.492áður 1.798 kr/kg

saltkjöt síðubitarkjötsel

199áður 398 kr/kg

-50%

valið saltkjötkjötsel

1.559áður 2.598 kr/kg

-40%

saltkjöt blandaðkjötsel

870áður 1.450 kr/kg

-40%

Saltkjöt frá 199kr/kg

frábærverð

saltkjöt ódýrtkjötsel

479áður 828 kr/kg

-40%

Saltkjöt & baunir túkall!

Page 16: 06 tbl 2015

BMW 3 320i s/d e90. Árgerð 2006, ekinn 141 Þ.KM, bensín, 6 gírar.

Verð 1.590.000.-

FORD Carado a366. Árgerð 2008, ekinn 96 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 5.700.000.-

LEXUS Is200. Árgerð 2000, ekinn 256 Þ.KM, bensín, 6 gírar.

Verð 690.000.-

HYUNDAI Santa fe crdi. Árgerð 2007, ekinn 156 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 2.550.000.-

RENAULT Trafic. Árgerð 2007, ekinn 181 Þ.KM, dísel, 5 gírar.

Verð 1.580.000.-

FORD Lmc liberty 694 g. Árgerð 2009, ekinn 105 Þ.KM, dísel, 5 gírar.

Verð 5.500.000.-

MITSUBISHI Galant wagon. Árgerð 1998, ekinn 189 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 390.000.-

BMW Z3. Árgerð 1999, ekinn 143 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 1.850.000.-

AUDI A4 sedan 130 hö.. Árgerð 2004, ekinn 199 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 890.000.-

TOYOTA Yaris. Árgerð 2007, ekinn 98 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.380.000.-

TOYOTA Yaris terra. Árgerð 1999, ekinn 330 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 290.000.-

HYUNDAI H-1 9 manna. Árgerð 2001, ekinn 224 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 680.000.-

FORD Mustang coupe 40 th anniversary. Árgerð 2005, ekinn 71 Þ.MÍLUR, bensín, 5 gírar.

Verð 1.880.000.-

BMW 750. Árgerð 1998, ekinn 280 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 990.000.-

PEUGEOT 406 brake. Árgerð 1999, ekinn 266 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 250.000.-

FORD Carado t344. Árgerð 2010, ekinn 81 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 6.300.000.-

CITROEN C3 sx. Árgerð 2007, ekinn 124 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 790.000.-

PEUGEOT 308 panorama. Árgerð 2011, ekinn 26 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 3.180.000.

Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbær - GE bílar ehf - Sími 420 0400 - [email protected] - www.gebilar.is

UMBOÐSAÐILI

LÆGRI SÖLULAUN

Opnunartími :Alla virka daga frá 8:00 til 18:00.Opið á laugardögum frá 10:00 - 14:00.

Hringdu420 0400

Page 17: 06 tbl 2015

Allt á einum staðBílasala - Bílaverkstæði

Varahlutasala

BMW X5 xdrive30d 3.0d e70 30d. Árgerð 2013, ekinn 36 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 11.600.000.-

TOYOTA Auris sol hybrid. Árgerð 2013, ekinn 17 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 4.180.000.-

NISSAN Qashqai se. Árgerð 2012, ekinn 92 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 3.490.000.-

RENAULT Megane sport tourer diesel. Árgerð 2011, ekinn 77 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 2.290.000.-

HYUNDAI Tucson 4x4. Árgerð 2010, ekinn 110 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 1.690.000.-

PEUGEOT 206 +. Árgerð 2012, ekinn 73 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 1.480.000.-

LAND ROVER Range rover sport hse. Árgerð 2007, ekinn 125 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 6.980.000.-

NISSAN X-trail diesel. Árgerð 2011, ekinn 89 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 4.180.000.-

NISSAN Patrol gr common rail se. Árgerð 2009, ekinn 121 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 3.480.000.-

RENAULT Megane sport tourer. Árgerð 2011, ekinn 83 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 2.550.000.-

NISSAN Murano 3.5. Árgerð 2007, ekinn 93 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 2.290.000.-

HYUNDAI I20 classic. Árgerð 2013, ekinn 62 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 1.690.000.-

MAZDA 6   xtracomfort. Árgerð 2006, ekinn 130 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.380.000.-

LAND ROVER Discovery 3 se. Árgerð 2007, ekinn 153 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 5.280.000.-

NISSAN Qashqai se. Árgerð 2013, ekinn 32 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 4.180.000.-

SUZUKI Grand vitara. Árgerð 2011, ekinn 56 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 3.390.000.-

SUBARU Legacy. Árgerð 2009, ekinn 131 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 2.490.000.-

TOYOTA Verso. Árgerð 2010, ekinn 89 Þ.KM, bensín, 6 gírar.

Verð 2.190.000.-

HYUNDAI I20 classic. Árgerð 2012, ekinn 49 Þ.KM, bensín, 5 gírar.

Verð 1.690.000.-

SUBARU Forester x. Árgerð 2006, ekinn 157 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.240.000.-

HONDA Accord. Árgerð 2013, ekinn 34 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 4.480.000.-

TOYOTA Avensis wagon sol 2009 ng. Árgerð 2013, ekinn 45 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 3.980.000.-

HYUNDAI Ix35 gls metan. Árgerð 2011, ekinn 89 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 3.380.000.-

HYUNDAI I30 classic ii. Árgerð 2012, ekinn 46 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 2.480.000.-

KIA Sorento. Árgerð 2005, ekinn 142 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 1.950.000.-

HYUNDAI I30 comfort wagon. Árgerð 2008, ekinn 125 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.590.000.-

NISSAN Qashqai se. Árgerð 2013, ekinn 35 Þ.KM, dísel, 6 gírar.

Verð 4.190.000.-

HYUNDAI I40. Árgerð 2012, ekinn 79 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 3.790.000.-

RENAULT Megane sport tourer. Árgerð 2011, ekinn 67 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 2.580.000.-

BMW 3 318i s/d e90. Árgerð 2007, ekinn 73 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 2.370.000.-

SUZUKI Grand vitara. Árgerð 2007, ekinn 124 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.880.000.-

HYUNDAI I10 gl. Árgerð 2012, ekinn 47 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.

Verð 1.490.000.-

HYUNDAI Santa fe crdi. Árgerð 2008, ekinn 183 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur.

Verð 2.580.000.-

Page 18: 06 tbl 2015

18 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

Ný lí k amsr æktar aðstaða hefur verið tekin formlega

í notkun í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Líkamsræktin er í nýrri viðbyggingu við Íþróttamiðstöð-ina. Byggingaverktaki var Bragi Guðmundsson byggingaverktaki í Garði. Byggingakostnaður er áætlaður um 130 milljónir og þá voru keypt ný líkamsræktartæki í húsið fyrir 36 milljónir króna en nýja líkamsræktin er mjög vel tækjum búin. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segist í sam-tali við Víkurfréttir vonast til að sem flestir íbúar í Garði nýti sér aðstöðuna.

Pétur Bragason og hans samstarfs-fólk hjá Verkmætti í Garði hönn-uðu bygginguna. Verkið var boðið út fyrri hluta árs 2013, eftir út-boð og samninga við verktaka var gerður verksamningur við Braga Guðmundsson verktaka í Garði. Verksamningurinn var undirrit-aður þann 4. október 2013, þegar myndarleg fyrirtækjasýning stóð yfir í Íþróttamiðstöðinni, en þá voru liðin 20 ár frá því Íþróttamið-stöðin var tekin í notkun. Fram-kvæmdir við viðbygginguna hóf-ust í apríl 2014. Fest voru kaup á TechnoGym líkamsræktartækjum af nýjustu og fullkomnustu gerð, söluaðilinn er Ergoline.

Framkvæmdakostnaður sam-kvæmt verksamningi er áætlaður um 130 milljónir króna, kaup-virði líkamsræktartækjanna er um 36 milljónir króna Sveitarfélagið Garður fjármagnar kostnaðinn við verkefnið alfarið með eigin fé og án lántöku.Við opnun líkamsræktaraðstöð-unnar sl. föstudag voru mættir þeir aðilar sem komu að fram-kvæmdum og tóku á einhvern hátt þátt í verkefninu. Bæjarstjórnar-fólk, aðalverktaki og hönnuður byggingarinnar vígðu aðstöðuna með því að hjóla á spinning hjólum undir stjórn söluaðila líkams-ræktartækjanna.

■■ Íþróttamiðstöðin í Garði stækkar:

Ný líkamsrækt fyrir 166 milljónir króna– byggð fyrir eigið fé og án allrar lántöku

-mannlíf pósturu [email protected]

Lista- og menningarmiðstöð í Garði til skoðunar

■uBæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að senda erindi Lista- og menningarfélagsins í Garði um endurgjaldslaus afnot af Samkomuhúsinu í Garði til stefnumótunar um atvinnumál. Lista- og menningarfélagið hefur hug á að reka lista- og menningarmið-stöð í húsinu og óskaði eftir afnotum af því til þriggja ára. Þá óskaði fé-lagið einnig eftir styrk frá sveitarfélaginu að fjárhæð 1,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði.

Laddi í Stapa á morgun■uÞórhallur Sigurðsson, Laddi, er einn ástsælasti grínari, leikari, söngv-

ari, tónskáld og skemmtikraftur þjóðarinnar. Hann hefur skapað fjöldann allan af persónum, sem lifa sjálfstæðu lífi og allir kannast

við. Saxi læknir, Eiríkur Fjalar, Mói gamli, Elsa Lund, Hallgrímur Ormur, Magnús bóndi, Dengsi, Þórður húsvörður, Skúli rafvirki, Leifur óheppni, Stefán frá Útistöðum og Marteinn Mosdal fylgja Ladda hvert sem hann fer. Nú ætla þessir skrautlegu karakterar að leggja undir sig Stapa í Hljómahöll á morgun, 13. febrúar, og bjóða uppá skemmtun, sem hlotið hefur nafnið „Allt það besta“ Sýningin fleytir rjómann af tveimur vin-

sælustu sýningum Ladda, “Laddi 6-tugur” og „Laddi lengir lífið“ og má fastlega reikna með því að hláturtaugarnar verði kitlaðar allverulega á þessari tveggja klukkustunda löngu sýningu.

Dansað í Hljómahöll gegn ofbeldi■u„Milljarður rís“ er alþjóðleg bylting með Eve Ensler í fararbroddi

og þú getur verið hluti af því að milljarður manna, kvenna og koma saman og dansa í sameiningu gegn ofbeldi gegn konum. Í Reykjanesbæ verður dansað í salnum Merkinesi í Hljómahöll föstudaginn 13. febrúar. Dansað verður frá kl:12:00 til 12:45. Kostar ekkert nema gleði, segir í tilkynningu frá þeim sem halda viðburðinn.

PÁLL ÓSKAR - EINKASAFN POPPSTJÖRNU

- Einkasafn söngvarans opnað almenningi

Rokksafn Íslands í Reykjanesbæ opnar fyrstu sérsýningu sína laugardaginn

14. mars. Fyrsti listamaðurinn sem tekinn verður fyrir er stórsöngvarinn Páll Óskar

Hjálmtýsson. Sýningin ber heitið „Páll Óskar - Einkasafn poppstjörnu“. Hann fagnar einmitt 45 ára afmæli sínu þann 16. mars og er því tilvalið

að opna yfirlitssýningu yfir líf hans og störf þessa ákveðnu helgi.

Páll Óskar er mikill safnari og mun sýningin vera sterkur vitnis-burður um það. Meðal muna á sýningunni verða allir sérhann-aðir búningar og fatnaður af tónleikum hans - allt frá Rocky Horror sýningu leikfélags MH frá árinu 1991 til dagsins í

dag, handskrifaðar dag-bækur hans, teikningar frá

barnæsku, allar gull- og platínuplöturnar hans, plaköt frá tónleikum og dansleikjum, uppruna-leg texta- og nótna-

blöð af þekktustu lögum hans og þannig mætti lengi

telja. Persónulegir munir Palla verða ekki langt undan og gefst gestum meðal annars kostur á að skoða hinn fræga Nokia 6110 síma sem hann átti í ein 14 ár!Sýningin verður gagnvirk. Gestir geta skellt sér í hljóðeinangraðan söngklefa, valið sér tóntegund og sungið Pallalögin í þar til gerðu hljóðveri og fengið upptökuna með sér heim. Einnig geta

gestir prófað að hljóðblanda nokkur vel valin Palla-lög eftir upprunalegum hljóðrásum og gert eigin útgáfu af völdu lagi.Þá geta gestir komið sér huggulega fyrir og horft á tónleikaupptökur, öll tónlistarmyndböndin, gamla sjónvarpsþætti og hlustað á gamla útvarpsþætti Palla eins og “Sætt og sóðalegt” og “Dr. Love”.Sýningin verður opnuð formlega þann 14. mars kl. 15:00 og eru allir hjartanlega velkomnir. Helgina 14.-15. mars er Safnahelgi á Suðurnesjum en þá helgi verður ókeypis inn á öll söfn á Suðurnesjum og verður opnun sýningarinnar „Páll Óskar - Eink-safn poppstjörnu“ hluti af Safnahelgi. Sýningar-stjóri er Björn G. Björnsson.

PallaballPáll Óskar heldur alvöru Palla-ball þann 14. mars í Stapanum í tilefni 45 ára afmælis síns og opnunar á sýningunni „Páll Óskar - Einksafn poppstjörnu“. Öllu verður tjaldað til í glamúr og glæsileika og Páll Óskar mun stjórna stuðinu í Stapanum pásu-laust alla nóttina! Bæði mun hann þeyta skífum af sinni alkunnu snilld og taka öll sín bestu lög þegar leikar standa sem hæst ásamt dönsurum sínum, bombum, blöðrum og tilheyrandi skrauti! Miða-sala er hafin á hljomaholl.is.

Páll Óskar „Gordjöss“ með Jóni ÓlafsSunnudaginn 15. mars mun Páll Óskar bæta um betur og halda tónleika í Bergi og honum innan handar verða Jón Ólafsson og Róbert Þórhallsson. Tónleikarnir verða blanda af uppistandi og tón-leikum, en þessir tónleikar hafa gengið fyrir fullu húsi í Salnum í Kópavogi um nokkurt skeið. Miða-sala er hafin á hljomaholl.is.

Page 19: 06 tbl 2015

19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015

Ra�olt ehf. | Smiðjuvegur 8 | 200 Kópavogur | 517 7600 | www.ra�olt.is

Ra�olt óskar eftir rafvirkjum til starfaRa�olt er framsækið fyrirtæki sem starfar jafnt á útboðsmarkaði og í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er eitt stærsta sinnar tegundar á sviði rafverk-töku á Íslandi.

Helstu verkefni eru almennar raflagnir, tölvu- og ljósleiðaralagnir, töflu- og stjórnskápasmíði og loftneta þjónusta.

Ra�olt ehf. leggur áherslu á að ráða kraftmikla og metnaðarfulla einstaklinga sem hafa áhuga á að sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnu.

Fagleg vinnubrögð og framúrskarandi árangur eru leiðarljós fyrirtækisins. Öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá fyrirtækinu og er aðstaða starfsmanna öll hin glæsilegasta.

Ra�olt ehf. er á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi árið 2014. Aðeins 1,7% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau skilyrði sem sett eru.

Vegna góðrar verkefnastöðu þurfum við að bæta í hóp starfsmanna. Við leitum að öflugum einstaklingum sem treysta sér til að gera það sem þarf til þess að ná frábærum árangri í kre�andi umhverfi. Ra�olt er samhent fyrirtæki sem tileinkar sér stundvísi og samviskusemi. Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um.

ÞjónustudeildAuglýsum eftir vönum rafvirkjum til starfa við þjónustudeild fyrirtækisins. Viðkomandi þurfa að vera sjálfstæðir, þjónustuliprir og hafa áhuga á því að tileinka sér nýjungar.

Ra�olt sinnir þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Má þar helst nefna Mílu, Vodafone, Nova, Símann, Neyðarlínuna, Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð, Verne Global, Ölgerðina, N1, Eik Fasteignafélag, Húsasmiðjuna, Héðinn, Nathan & Olsen, Stolt Sea Farm, Hörpu Tónlistarhús og fleiri aðila.

Almenn rafvirkjastörfAuglýsum eftir vönum rafvirkjum, nemum og aðstoðarmönnum í �ölbreytt verkefni á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Viðkomandi þarf að vera vanur að vinna í teymi. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en alls ekki skilyrði.

Umsóknir ásamt ferilsskrá skal senda á starf@ra�olt.is

Frönsk súkkulaðikaka...Það mætti halda að það væri Valentínusardagurinn alla daga hjá mér því ég er löngu búin að telja mér trú um það að alvöru dökkt gæða súkkulaði er allra meina bót

og að það er alltaf stund fyrir gott súkkulaði. Ég skelli reglulega í franska súkkulaðiköku og það er með því betra sem ég fæ mér og algjört uppáhalds þegar mig langar að gera vel við mig og mína. Ég er dugleg að prófa nýjar uppskriftir að frönskum súkkulaðikökum og þessi er einstaklega ljúffeng og með miklu djúpu súkkulaðibragði enda þarf maður ekki mikið af henni því hún er svo saðsöm. Þessi slær á alla súkkulaðilöngun og vel það!

Alvöru frönsk súkkulaðikaka:

120 g dökkt súkkulaði 70-85%½ b íslenskt smjör eða kókósolía

¼ b hreint kakóduft¾ b hunang eða agave3 egg

• Hitið ofn í 190°C og smyrjið 22-24 cm spring-form með smjöri eða kókósolíu.• Bræðið súkkulaði og smjör saman og hrærið þar til það er orðið mjúkt.

• Blandið bræddu súkkulaði&smjör-blöndu við kakóduft, hunang og egg og hrærið þar til það er orðið að mjúku deigi.• Hellið deiginu í smurt formið og dreifið vel úr deiginu.• Bakið í 20-25 mín við 190°C hita eða þar til miðjan er bökuð.• Látið kólna í forminu í 15 mín. og losið úr forminu.• Þarnæst er bara njóta með þeyttum ekta rjóma, ferskum jarðaberjum og bros á vör og gleði í hjarta.

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir

HEILSUHORNIÐ

ÁSDÍSGRASALÆKNIRSKRIFAR

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30

Við verjum góðum tíma í Keflavíkurkirkjuí þessum þætti en aldarafmæli kirkjunnarverður fagnað um komandi helgi.Séra Skúli S. Ólafsson er í viðtali, einnigArnór Vilbergsson organisti og nokkrirkórsöngvarar. Í síðari hluta þáttarinsförum við svo í parayoga.

Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta?

Nánari upplýsingar gefur Páll Ketilsson á [email protected]

Aldarafmæli ogslakandi parayogaí þætti vikunnar!

Page 20: 06 tbl 2015

20 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

„Senn fer vorið á vængjum yfir flóann“, söng hinn s í u n g i R a g n a r B j a r n a s o n í dægurlagamessu ætluð fermingar-b ö r n u m h é r á

Akranesi er ritari mætti til leiks. Hann gat þess sjálfur að hann myndi ekki alltaf textana á lög-unum sem hann syngi, en það kæmi ekki að sök, því þá skáldaði hann bara það sem upp á vant-aði og enginn skildi hvort sem er textana sem hann syngi. Í þessum upphafsorðum er fólgin hin einlæga eftirvænting eftir því lífi sem sofnaði á haustmánuðum og við bíðum eftir að kvikni aftur. Í eftirvæntingunni felst minningin um öll hin vorin sem við höfum fengið að lifa. Sum köld, önnur hlý. Sum slæm, önnur góð. Endur-tekningin skilur eftir sig mögu-leika á samanburði. Hver áramót eru upphaf nýrrar hringrásar hér á norðurslóðum, þar sem ferlið er hið sama frá ári til árs. Við sem hér búum erum í raun forréttindar-hópur því eftirvæntingin skapar ákveðna spennu í líf okkar, þar sem aldrei er á vísan að róa. Hver dagur er óræður. Blæbrigðin eru almennt hvetjandi og vekja menn til dáða. Þeir sem yndi hafa af veiðiskap og kvöddu síðasta sumar fremur sneyptir eftir lélega afkomu eru nú fullir eftirvæntingar eftir nýjum ævintýrum. Tekin hafa verið fram áhöld til fluguhnýtinga og mynd-ræn draumsýnin líður um hug-ann um leið og ný fluga er hnýtt. „Vaknar allt af vetrarblundi“.Þeir garðanördar sem gjarnan skríða í moldinni þegar aðrir standa uppréttir hafa ekki bein-línis riðið feitum hesti frá blómgun síðustu tveggja ára hér á suð-vestur horninu. Blómstrandi runnar, þar með talið rósir, fóru sérlega illa út úr sumrinu 2013, þegar rign-

ingarkalsinn nánast gerði útaf við þá. Eftirhreyturnar sem tóku að laufgast árið eftir áttu erfitt upp-dráttar, enda ástandið slæmt þegar lagst var til hvílu þá um haustið. Blómgunin tók langan tíma og þá loks hún varð, var nánast komið haust. Á hinn bóginn féllu síðustu blómknúpparnir ekki fyrr en undir jól var, enda nóvember með ein-dæmum hlýr. Það er því spenn-andi að vita hvað gerist nú í sumar þar sem ástand runna var almennt gott er lagst var til hvílu nú á haust-mánuðumRósin, sú eðla jurt, hefur verið sam-ferða mannkyninu a.m.k. 4700 ár. Allar viltar rósir eiga sér sama for-foreldri væntnalega einhvers staðar í Asíu. Hvati til framræktunar var upphaflega vegna ilmsins, fram-leiðslu rósaolía og snyrtivara. Síðar sáu menn fegurðina í einstakling-um og tóku þá að rækta fram af-burða einstaklinga hvað form og litafegurð varðaði. Rósin prýðir gjarnan dýrustu perlur hinnar trúarlegu málaralistar miðalda, þótt ekki sé vitað til þess að hún hafi vaxið í alingarðinum Eden. Saga rósaræktar á Norðulöndum spannar rúmlega 100 ár, en að-eins tugi ára hér á Íslandi, þar sem veðurskilyrði hafa aðeins á seinni árum talin henta til slíkra ævin-týra. Með framræktun harðgerð-ari kvæma sem flutt hafa verið til landsins hefur árangur rósaræktar orðið sýnilegri. Miklum efnivið hefur verið safnað í gagnagrunn, sem tekur mið af staðháttum hvers landsvæðis. Fjölbreytileiki þeirra tegunda sem vert er að reyna eykst stöðugt, Þó má ætíð búast við aföllum þegar veðurskilyrði eru slík sem við höfum upplifað á síðustu tveimur árum. Að undaförnu hefur m.a. náðst góður árangur af ræktun kanadískra rósa hér á landi.Suðurnesjadeild Garðyrkjufélags Íslands hefur nú vaknað upp af vetrardvala og ætlar að hefja fræðsludagskrá sína á umfjöllun um hvaða rósir þrífast best við ís-lensk veðurskilyrði.Fyrsti fundur félagsins verður haldinn þann 18. febrúar kl. 20 í húsi Rauða Kross Íslands, Smiðju-völ lum 8 Reykjanesbæ (ath. breyttan fundarstað) Fyrirlesari er Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Ís-lands. Allir eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar. Að-gangseyrir er 500 kr.

Konráð Lúðvíksson, formaður

-aðsent pósturu [email protected]

■■ Konráð Lúðvíksson, formaður

Rósir við íslenskar aðstæður

Það þurfti ekki að bíða lengi

eftir hörðum við-b r ö g ð u m t a l s -manna Samtaka atvinnulífsins við k röfugerð s ex-tán aðildarfélaga Starfsgreinasam-

bands Íslands í síðasta mánuði vegna komandi kjaraviðræðna. Sama dag og kröfugerðin var birt höfnuðu vinnuveitendur viðræðum og skelltu í lás, enda færi allt á hvolf í þjóðfélaginu yrði gengið að kröfum verkalýðs-hreyfingarinnar. Miðað við af-stöðu vinnuveitenda er ljóst að verkafólk þarf að standa fast á kröfunum og þjappa sér saman um að ná fram réttlátum leiðrétt-ingum.

Kröfugerðin og afstaða vinnu-veitenda í GrindavíkLítum aðeins á kröfurnar, sem mótuðust á fundum í verkalýðs-félögunum og á vinnustöðum um land allt með hliðsjón af viðhorfs-könnunum. Á félagssvæði Verka-lýðsfélags Grindavíkur var efnt til opinna funda, þar sem félags-mönnum gafst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif. Sömu sögu er að segja um önnur verkalýðsfélög sem standa að kröfugerð Starfsgreina-sambandsins. Miðað er við krónu-töluhækkanir á laun og að lægstu taxtar verði 300 þúsund krónur á mánuði innan þriggja ára og að sérstaklega verði horft til gjalds-

eyrisskapandi atvinnugreina við launahækkanir. Launatöflur verði endurskoðaðar, desember- og or-lofsuppbætur hækki, lágmarksbó-nus í fiskvinnslu verði tryggður og að ný starfsheiti verði skilgreind í launatöflu. Þessar kröfur setja sem sagt þjóð-félagið lóðrétt á hausinn að mati talsmanna Samtaka atvinnulífs-ins. Reyndar hefur lítið heyrst frá vinnuveitendum á félagssvæði Verkalýðsfélags Grindvíkur. Ég skora þess vegna á þá að láta í sér heyra. Því verður vart trúað að vinnuveitendur í Grindavík séu sömu skoðunar og forysta Samtaka atvinnulífsins.

Afleiðingar langs vinnudagsLægstu laun í dag eru um 201 þúsund krónur á mánuði. Grund-vallaratriði hlýtur að vera að fólk lifi af dagvinnulaunum í stað þess að þurfa að stóla á yfirvinnu, auka-vinnu og akkorð til að framfleyta sér og sínum. Auk þess hefur marg-oft verið bent á að langur vinnu-dagur og mikið álag dregur úr framleiðni og eykur samfélagslegan kostnað, til dæmis í heilbrigðis-kerfinu. Meira að segja vinnuveit-endur eru sammála þessu. Engu að síður er afar takmarkað svigrúm til að hækka lægstu launin að mati Samtaka atvinnulífsins, sem kallar eftir þjóðarsátt.

Launin nærri þriðjungi lægri á ÍslandiÍslendingar miða sig gjarnan við hin Norðurlöndin. ASÍ birti nýlega

könnun á launum reglulegra dag-vinnulauna á almennum vinnu-markaði á Norðurlöndunum og þar sést svart á hvítu hversu mikið hallar á almennt verkafólk á Ís-landi. Í ljós kemur að dagvinnu-laun stjórnenda á Íslandi eru í raun 5% hærri en að meðaltali á hinum Norðurlöndunum.

Já, segi og skrifa 5% hærri.

Dagvinnulaun verkafólks eru hins vegar allt að 30% lægri hér á landi en að meðaltali á hinum Norður-löndunum.

Já, segi og skrifa 30% lægri.

Aðgerðir á ábyrgð vinnuveitendaKröfur verkafólks eru sanngjarnar og eðlilegar. Vonandi þarf ekki að grípa til aðgerða. Komi hins vegar til einhverra aðgerða í kjarabarátt-unni er ábyrgðin alfarið Samtaka atvinnulífsins.

Verkafólk krefst sanngjarnra kjara og ég er sannfærður um að þorri landsmanna er sammála.

Það er nefnilega ekki verkafólk þessa lands sem ógnar stöðugleik-anum.

Magnús Már Jakobsson,Formaður Verkalýðs-

félags Grindavíkur.

■■ Magnús Már Jakobsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur skrifar:

Kröfur verkafólks ógna ekki stöðugleikanum

ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í BÍLALEIGU

Leitum að öflugum þjónustufulltrúa í bílaleigu Dollar Thrifty í Keflavík.

Sæktu um núna á www.brimborg.is Umsóknarfrestur er til 14. febrúar 2015

DOLLAR THRIFTY Í KEFLAVÍK

Vantar þig aðstoð meðBókhaldið - Afstemmingar - LaunavinnsluÁrsreikningsgerð - Skattframtal

Gerum föst verðtilboð.Hafðu samband í síma 580-3463 eða á netfangið [email protected]á Deloitte í Reykjanesbæ starfa átta öflugir sérfræðingar.

Page 21: 06 tbl 2015

21VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015

-aðsent pósturu [email protected]

Tottenham Hotspur á marga stuðningsmenn á Íslandi –

ekki síst eftir að þeir léku gegn Keflavík í Evrópukeppni árið 1971. Nýlega fórum við nokkrir á leik á White Heart Lane. Byrj-uðum á að sækja pubbinn The Bricklayers þar sem heitustu stuðningsmenn hittast til að hita upp fyrir leik og æfa söngva. Var sjálfur með íslenskan Spurs-trefil um hálsinn.Óhætt er að segja að hann hafi vakið mikla athygli á The Bricklayers. Einn heitasti stuðningsmaðurinn kom til okkar og spurði hvaðan við kæmum. Þótti honum ótrú-legt að til væri öflugur Tottenham-

klúbbur á Íslandi. Hrópaði það yfir krána við mikinn fögnuð viðstaddra. Vildi kapp-inn, Pat Gordon, endilega skipta á treflum. Nú sækir hann alla leiki með Tottenham Iceland trefil en ég ylja mér við trefil sem hefur sótt fjöldann allan af leikjum. Vildi að honum fylgdu textarnir sem hafa komið úr hálsi fyrrum eigenda (lík-lega ekki allir prenthæfir).Pat þessi Gordon safnar leikskrám. Mikið væri nú gaman að geta sent honum leikskrána frá leik Totten-ham í Keflavík árið 1971. Á einhver hana til? Vinsamlegast hafið sam-band við [email protected].

Kærar kveðjur,Hjálmar Árnason

■■ Hjálmar Árnason skrifar:

Leikskrá óskast

Hvað gerirðu eftir skóla?Læri fyrir morgundaginn og hendi mér í ræktinaHver eru áhugamál þín?Fótbolti, líkamsrækt og námiðUppáhalds fag í skólanum?StærðfræðiEn leiðinlegasta?Ekkert eitthvað sérstaktEf þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?Einnar nætur gaman með Beyoncé væri ekki slæmtEf þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?Að geta notað 100% af heilanumHvað er draumastarfið í framtíðinni?Ég stefni á lögfræði

Hver er frægastur í símanum þínum?Albert GuðmundsHver er merki-legastur sem þú hefur hitt?Hitti einu sinni Leoncie úti í búðHvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag?

Væri ekki málið að kíkja á Area 51?Hvað er uppáhalds appið þitt?SnapchatHvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?Classy

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?Ég er allt sem manninn þinn dreymir um að vera.Hvað er skemmtilegast við Akurskóla?Þormóður champ.Hvaða lag myndi lýsa þér best?Hot Nigga - Bobby ShmurdaHvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?Person of Interest

Á hvaða braut ertu? Ég er á félagsfræðibraut.Hvaðan ertu og aldur? Frá Keflavík og 19 ára.Helsti kostur FS? Úff ekki hugmynd bara sumir kennarar fínir.Áhugamál? Fótbolti, körfubolti og tónlist.Hvað hræðistu mest? Held að það sé bara mikil hæð.Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Fannar Orri verður frægur fót-boltamaður í framtíðinni lofa ykkur því.

Hver er fyndnastur í skólanum? Það er 100% hann Þorgils Gauti.Hvað sástu síðast í bíó? Minnir að það hafi verið Amer-ican sniper.Hvað finnst þér vanta í mötu-neytið? Meiri fjölbreytni.Hver er þinn helsti galli? Hvað ég á erfitt með að vakna.Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? 1010, Snapchat og Facebook.Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Leyfa kanski aðeins fleiri skróp.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Allt í lagi bara, mætti vera meiri stemming.Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Hef ekki hugmynd!Hver er best klædd/ur í FS? Birkir Freyr leggur rosa metnað í það, þannig hann fær þetta.

Ívar Gauti Guðlaugsson er FS-ingur vikunnar. Hann er 19. ára Keflvíkingur á Félagsfræðibraut. Birkir Freyr er best klæddur í skólanum að hans mati og Ásgeir er uppáhalds kennarinn

Myndi leyfa fleiri skróp-fs-ingur vikunnar

Kennari? Á s g e i r m a ð u r

getur hlegið endalaust í tíma hjá honum.Fag í skól-anum? ÍþrottirKvikmynd?No country for old men.Hljómsveit/tónlistar-maður? Asap Rocky

Leikari? Vinirnir í Friends fá allir þann heiður. Get ekki valið á milli.Vefsíður? Fotbolti.net og Facebook

Flíkin? 66 úlpan á morgnana.Skyndibiti? Búllan.Hvaða tón-list/lag fílarðu í laumi (gulity pleas-ure)? H l u s t a stundum á Zöru Larsson hún er frábær.

Eftirlætis

-ung

Davíð M.J. er nemandi í 10. bekk í Akurskóla. Hann segist vera allt sem manninum þínum langar að

vera. Hann myndi kíkja á Area 51 ef hann yrði ósýni-kegurní einn dag og stefnir á lögfræði.

Bíó-mynd?LimitlessSjón-varpsþáttur?Ray DonovanMatur?PiparsteikDrykkur?Vatn

Leikari/Leikkona?Liev Schreiber & Bradley CooperFatabúð?TopmanVefsíða?www.erfostudagur.is

Bók?Engin sérstökTónlistarmaður/Hljómsveit?Chet Faker

Besta:

Einnar nætur gaman með Beyoncé væri ekki slæmt

TIL SÖLU

Til sölu Jeppafjaðrir og á sama stað fást kettlingar gefins

upplýsingar í síma 487 9934.

BílaviðgerðirPartasala

Kaupum bilaðaog tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979www.bilarogpartar.is

- smáauglýsingarÞJÓNUSTA

Ljósberinn skermagerð tekur að sér viðgerðir á öllum gerðum og stærðum af

skermum. Uppl. 867 9126

Langar að stofna Harðangur-sklúbb - fyrir konur á Suður-nesjum, á öllum aldri. Ef þú kannt ekki sauminn sjáum við um námskeið. Áhuga-

samar hafið samb. í 866-2361

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Einarína Jóna Sigurðardóttir,Frá Fagurhóli, Sandgerði,

lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Nesvöllum, Reykjanesbæ, laugardaginn 31. janúar 2015.  Jarðsett hefur verið í kyrrþey að ósk hinnar látnu.  Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins að

Nesvöllum.

Aðstandendur.

Page 22: 06 tbl 2015

22 fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir pósturu [email protected]

„Við fengum SMS frá félögum okkar í nóvember þegar ljóst var að Ísland fékk sæti á HM – og þar var lagt á ráðin að fara í þessa ferð. Á þeim tíma voru litlar líkur á því að þetta gæti gengið upp,“ segja þeir félagar þegar þeir eru inntir eftir aðdragandanum að því að þeir fóru til Katar.„Staðan breyttist síðan þegar hringt var frá skrifstofu HSÍ rétt fyrir jólin – þar fengum við boð um að fara, allt frítt, í boði mótshaldara. Það var ekki hægt að láta slíkt framhjá sér fara og tveir félagar okkar bætt-ust síðan í hópinn með okkur. Þetta símtal var lyginni líkast og það tók smá tíma að ná þessu.“

Einar Sigurpálsson og Ólafur Thor-dersen, miklir stuðningsmenn ís-lenska landsliðsins, voru með þeim í för en þeir hafa unnið fyrir hand-boltahreyfinguna í yfir 30 ár.

Upplifun þeirra félaga af borginni Doha var að mörgu leyti undarleg. „Landið er lítið og skýjakljúfar eru helstu einkenni borgarinnar sem er umlukin eyðimörk. Það sem kom okkur verulega á óvart var hversu hrikalega léleg umferðamenn-ingin var. Það fór vel um okkur á glæsilegu hóteli þar sem allt var innifalið nema barinn. Áfengislög-gjöfin í Katar er engu lík – engar undanþágur og bannað að vera með áfengi á almannafæri. Sér-

valin hótel voru með bari og það þurfti að skanna vegabréfið til þess að komast inn á slíka staði. Bjór-verðið var hátt, ca 1.200 – 1.600 kr á ½ líter.“

Það var nægur frítími fyrir þá fé-laga sem voru í Katar og það var margt hægt að gera. „Við nýttum okkur þá aðstöðu sem var í boði á hótelinu; líkamsræktina, pottinn og gufubaðið. Versluðum aðeins og fórum í kvikmynda- og kaffihús. Það var lítið annað við að vera. Við fórum einnig í eyðimörkina á fjór-hjól og þar héldum við að lands-mót UMFÍ væri á dagskrá. Ekkert nema tjaldborgir úti í eyðimörk-inni. Það var virkilega gaman að aka um á fjórhjólunum í sandinum. Við fórum einnig á bak á kamel-dýri og það var upplifun. Það eru einnig skýrar reglur á ströndinni, en þar má ekki vera ber að ofan, aðeins stuttbuxur og bolur í boði. Við vorum á kaldasta tíma ársins í Katar en þrátt fyrir það var hita-stigið á bilinu 20-25 gráður.“

Þeir sem eru fæddir í Katar telja um 300.000 en tæplega 2 millj-ónir búa í landinu – þar af 1,5 milljónir manns sem eru verka-fólk eða í þjónustustörfum. „Íbúar Kata vissu ekkert um Ísland. Það er margt undarlegt þarna. Engin smámynt, aðeins seðlar og hækkað upp í næsta tug til þess að þurfa

ekki að gefa til baka. Bensínlíterinn er á 36 kr og hamborgaramáltíð á 750 kr. Þjónar á almenningsa-lernum sem rétta manni pappírinn, gríðarleg stéttaskipting og kon-urnar í búrkum þar sem aðeins sést í augun á þeim. Það er nokkuð ljóst að við færum ekki aftur til Katar nema að rík ástæða væri á baki við slíka ferð. Það er lítið um að vera þarna.“ Gísli og Hafsteinn eru báðir starf-andi sem handboltadómarar í Olís deildunum hér á landi og þeir velja orðin af kostgæfni þegar þeir voru spurðir um dómgæsluna á HM – sem var umdeild, svo ekki sé meira sagt. „Umræðan um dómgæsluna var neikvæð, sérstaklega í leikjum Katar. Það besta við þetta er að við sjáum hvað íslensku dómar-arnir eru góðir,“ segir þeir í léttum tón. „Hvað varðar sögusagnir um mútur til dómara á HM þá erum við ekki í aðstöðu til þess að meta það. Það hefur margt verið gagn-rýnt og áhrifamenn úr röðum IHF hér á Íslandi í gegnum tíðina hafa gagnrýnt dómgæsluna og eftirlitið.

Gísli og Hafsteinn hafa hug á því að dæma handbolta á meðan þeir hafa gaman af því.„Við erum í þessu af því þetta er skemmtilegt og það er borin virðing fyrir því sem við erum

að gera. Við byrjuðum að dæma árið 1982, þá 16-17 ára gamlir, og vorum sjálfir að spila handbolta með Keflavík. Tímabilin eru því 33 hjá okkur og í efstu deild frá árinu 1989. Það eru líkega 1.600 leikir að baki í öllum aldursflokkum. Það fer að styttast í þessu hjá okkur.“ Gísli verður fimmtugur í haust og Haf-steinn næsta vor. „Það gæti verð fínt að henda þetta eftir 35 tíma-bilið eftir 1-2 ár.“

Þegar þeir eru spurðir um furðu-legasta atvikið á löngum dómar-ferli kemur þessi saga fram.„Það er alltaf gaman að fara í leiki og höfum við dæmt mikið úti á landi og þá sérstaklega á Akur-eyri og í Vestmannaeyjum. Áður fyrr vorum við ekkert í sérstöku

uppáhaldi á þessum stöðum. Sér-staklega þegar Gísli dæmdi í fót-boltanum líka og áhorfendur fengu ekki frið eða pásu frá Gísla allt árið. Eitt skiptið á Akureyri vorum við að dæma og aðkomuliðið var ekki ánægt með okkar verk í lokin og voru þá mikil læti. Það tók okkur þó nokkurn tíma til að klára skýrslu eftir leik og vorum því seinir úti á flugvöll. Þar var aðkomuliðið komið og farið inn í vél og tjáði öllum að allir væru komnir. Þegar við komum út á flugvöll var búið að setja vélina í gang og við skildir eftir – sunnudagskvöld á Akureyri og við gerðum bara gott úr því og fórum snemma morguninn eftir.”

Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson upplifðu heimsmeistaramótið í handknatt-leik í Katar frá hliðarlínunni sem stuðningsmenn Íslands. Þeir félagar eru virkir í starfi HSÍ sem dómarar og þeir hafa farið á fjölmörg stórmót á undanförnum árum. Víkurfréttir fékk þá félaga til þess að fara í örstuttu máli yfir ferðasöguna til Katar – þar sem margt kom þeim á óvart.

- Suðurnesjamennirnir Gísli og Hafsteinn upplifðu HM í Katar frá hliðarlínunni.

Bannað að vera ber á ofan á ströndinni

Bjarni Sigurðsson var endur-kjörinn sem formaður skot-

deildar Keflavíkur á aðalfundi félagsins fyrir skemmstu. Bjarni varð sjálfkjörinn í embættið og situr sama stjórn og í fyrra. Bjarni segir í samtali við Víkur-fréttir að deildin standi nokkuð vel fjárhagslega en skortur á inni-æfingaaðstöðu hamlar starf fé-lagsins.„Við keyptum nýverið tvær nýjar leirdúfukastvélar sem verða settar upp í vor. Úitsvæðið okkar er mjög flott og er búið að eyða mjög miklu í endurbætur á riffilvellinum. Eina sem okkur vantar er að fá inniað-stöðu fyrir „smærri caliber“ til að standa jafnfætis öðrum skot-félögum á landinu. Það er nokkuð undarleg staða og til skammar – þar sem við erum næst stærsta skot-íþróttafélag á landinu,“ segir Bjarni en vonir stóðu til að fá inniaðstöðu á Patterson flugvellinum sem her-inn skildi eftir og er hannað fyrir inniskotfimi.„Við erum með hripleka loftbyssu aðstöðu á Sunnubrautinni sem við fengum á sínum tíma en er að sjálf-

sögðu betri en engin. Við stönd-um klárlega ekki jafnfætis öðrum íþróttagreinum í Reykjanesbæ þar sem við stöndum sjálfir undir rekstri á öllum okkar húsum.“Keppnisliðið úr Keflavík endaði í fjórða sæti í liðakeppni á síðasta móti sem fram fór í Egilshöll en þar

tók fimm lið þátt. „Við getum verið sátt að ná slíkum árangri miðið við að inniaðstaðan til æfinga er enginn.“Eitt mót á vegum STÍ mun fara fram á keppnissvæðinu hjá skot-deild Keflavíku í maí – þar sem nýju vélarnar verða notaðar.

Stöndum ekki jafnfætis öðrumSkortur á inniaðstöðu hjá næst fjölmennasta skotfélagi landsins

Fjórmenningarnir frá Suðurnesjum í fjöri með fleirum.

Hafsteinn, Gísli og Einar Sigurpálsson sleikja sólina.

Page 23: 06 tbl 2015

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. febrúar 2015 23

Kvennalið Kef lav íkur í körfuknattleik varð fyrir

miklu áfalli í sigurleiknum gegn Val um helgina í Dominos deild-inni. Bandaríski leikmaðurinn Carmen Tyson Thomas rif-beinsbrotnaði í leiknum og eru litlar líkur á því að hún taki þátt í bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík þann 20. febrúar.„Hún er rifbeinsbrotin og verður frá í einhvern tíma. Hún er hörkutól en er kvalin þessa dag-

ana. Við verðum að sjá hvernig staðan á henni verður eftir 2 vikur þegar kemur að stóra deginum. Læknirinn sagði að hún mætti ekki vera í neinum „contact“ í fjórar vikur. Þannig að við vonum að tíminn verði góður við okkur,“ sagði Falur Harðarson formaður kkd. Keflavíkur um ástandið á Thomas sem er besti leikmaður liðsins. Hún hefur skorað um 27 stig að meðaltali í leik og tekið um 13 fráköst.

Áfall fyrir Keflavík- Thomas rifbeinsbrotinn og óvíst

með bikarúrslitaleikinn

Það er áhugaverður leikur í Dominosdeild karla í kvöld í körfunni. Þar tekur Njarðvík á móti

Grindavík í Ljónagryfjunni og hefst rimman kl. 19.15. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir bæði lið enda fer að styttast í úrslitakeppnina. Njarðvík er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig en Grindavík er í því 9. með 14 stig. Átta efstu liðin komast í úrslita-keppnina og það er lítill munur á liðunum í sætum 3.-9. þegar fimm umferðir eru eftir að deildarkeppn-inni. „Leikurinn leggst bara prýðilega í mig, þetta verður án efa hörkuleikur eins og gjarnan þegar þessi lið mætast. Ekta „Suðurnesjaslagur,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson

þjálfari Njarðvíkur og ítrekaði að mikilvægi leiksins væri mikið fyrir bæði liðin. „Það eru mörg lið á svip-uðum stað í deildinni og baráttan um sæti í úrslita-keppninni því hörð.“Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindavíkur er með góða tilfinningu fyrir leiknum sem leggst vel í hann.Leikurinn leggst vel í mig. Það er stutt eftir af mótinu og við erum eins og staðan er ekki á meðal átta efstu. Hver einasti leikur er gríðarlega mikilvægur í bar-áttunni um sæti í úrslitakeppninni. Njarðvík hafa verið á góðu róli eftir áramót og við þurfum að sýna okkar besta til að leggja þá að velli,“ sagði Sverrir Þór.

Suðurnesjarimma í Ljónagryfjunni

- fimm leikir eftir í Dominosdeild karla og styttist í úrslitakeppnina

HV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 1

5-01

01

AF ÞVÍ AÐ LÍFIÐ ER SKEMMTILEGT

Nú er gaman að vera hjá Sjóvá, því þessa dagana fá 22.060 tjónlausar og skilvísar fjölskyldur í Stofni endurgreiddan hluta af iðgjöldum síðasta árs. Við erum stolt af því að vera eina tryggingafélagið sem umbunar viðskiptavinum sínum á þennan hátt.

Þú sækir endurgreiðsluna á Mínar síður á sjova.is

ENDUR-GREIÐSLA

STOFN

ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ

djasskvöld á stefnumótum

seiðandi djass á föstudagskvöld k l . 21 .00

sögustund í barnakróknum:á laugardögum klukkan þr jú

les munda úr bókum fyr i r börnin

stefnumót // hafnargötu 28 // s ími 421-1999 // kaffistefnumot. isopnunart ímar: 9.00-22.00 þr i-fim // 9.00-2.00 fös

10.00-2.00 lau // 11 .00-17.00 sun // lokað á mánudögum

tómas jónsson - píanóbirgir steinn theódórsson - bassikr istófer rodr iguez svönuson - trommur

fram koma

aðgangur ókeypis

Page 24: 06 tbl 2015

vf.isvf.is

-mundiÞað er ljós að Vogamenn

eru ekki af baki dottnir.FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR • 6. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

VIKAN Á VEFNUM

Sara GuðmundsdóttirHún dóttir mín Andrea Rán Davíðs-dóttir er algjör snill-

ingur með blýantinn.

Víðir GuðmundssonEftir Sunnudaga-skólann var farið í kapelluna þar sem

Séra Erla Guðmundsdóttir gaf barninu hennar Lilju nafn. Við eigum svo frábært fólk í kirkjunni okkar.

Gylfi Jón GylfasonDatt í það að hjálpa sambýliskonunni og litlu manneskjunni við heimanámið.

Því var ekki vel tekið þegar ég stoppaði sambýliskonuna þegar hún ætlaði að leiðrétta "útilegumen". Ég útskýrði með minni mest sannfærandi kenn-ararödd að þetta væri orð sem notað væri um hálsfesti sem notuð væri í útilegu... Uppskar að launum fyrir aðstoðina þreytulegan mæðusvip um leið og litla manneskjan bætti án samráðs við mig "n" við háls-festina…

Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!

Sími 421 1090 - [email protected] - www.murbudin.isFuglavík 18. Reykjanesbæ Opið 8-18 virka daga

Þýsk gæði

Á MÚRBÚÐARVERÐI

CERAVID SETT WC - kassi, hnappur og hæglokandi seta.

Þýsk gæðavara 39.990

Hæglokandi seta

Skál: „Scandinavia design“

3-6 lítra hnappur

LÁTUM FAGMENN VINNA VERKIN

Allt fyrir baðherbergið

Guoren hitastýrð blöndunartæki

Málm handföng. Rósettur og hjámiðjur fylgja.

Guoren 1L Hitastýrt baðtæki standard

kr.16.990

Guoren TLY Sturtusett

kr. 39.990

Guoren-BO Hitastýrt tæki með niðurstút

kr.13.990

Guoren-AL Hitastýrt tæki með uppstút

kr.13.990

Guoren 4F Hitastýrt baðtæki Exclusive

kr.18.990

EN 1111:1997

BOZZ sturtuklefi 80x80cm

41.990

11.990AGI-167 hitastýrð blöndunar tæki fyrir sturtufáanleg með upp stút.

Rósetturog hjámiðjur fylgja.

Fást einnig í 90x90cm á kr. 43.490. Einnig eru til rúnnaðir 90x90 klefar á kr. 43.990

Sturtustöng og -brúsa fylgja.

Vatnslás og botnventill frá McAlpine seldur sér á kr. 1.290

+ VERÐLÆKKUN VEGNA AFNÁMS VÖRUGJALDA