13 tbl 2014

24
vf.is vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 3. APRÍL 2014 13. TÖLUBLAÐ 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslá af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyum utan  greiðsluþáöku Kynjakettir til sýnis! n Alþjóðleg kattasýning á Suðurnesjum í fyrsta sinn: „Við höfum verið í vanda undanfarin ár með að fá leigt húsnæði fyrir sýninguna á höfuðborgarsvæðinu, en þar hefur hún verið frá upphafi. Eſtir mikla leit og mörg símtöl brá ég á það ráð að athuga með húsnæði hér í Grindavík þar sem ég bý. Okkur bauðst þá þetta stórglæsilega hús- næði, Reiðhöllin,“ segir Guðbjörg Her- mannsdóttir, kattaræktandi, og einn af umsjónarmönnum sýningarinnar. „Þau hjá Kattaræktarfélagi Íslands slógu til og hópur af frábæru fólki sem stendur að sýningunni er búinn að vera á fullu við að leggja lokahönd á hana.“ Alþjóðlega sýningin er stærsti viðburður félagsins, sem stendur fyrir tveimur sýn- ingum á ári. Um 120 kettir verða til sýnis og dómarar koma erlendis frá til að dæma þá. Kattaræktarfélagið er félagi í FIFE sem er stórt samfélag erlendis og dómararnir eru á þeirra vegum. „Dómurinn og allt í kringum það er ekki það sem skiptir mestu heldur er félagsskapurinn stór hluti af þessu. Við erum einnig með sér hóp fyrir okkar fallega íslenska húskött og geta allir skráð sig í fé- lagið og sýnt húsköttinn sinn. Skilyrðin sem þarf að uppfylla er að kötturinn verður að vera skráður í félagið, örmerktur, bólusettur og geldur,“ segir Guðbjörg og hvetur alla til að koma á sýninguna, sem verður opin frá kl. 10 - 17 á laugardag og sunnudag. 120 kettir til Grindavíkur Fálki gæðir sér á svartþresti Ó lafur Eggertsson tók þessa mynd í hádeginu á sunnudag en á henni má sjá fálka gæða sér á (mjög lík- lega) svartþresti. Myndin var tekin út um eldhúsgluggann á húsi við Kirkjubraut í Innri- Njarðvík. Þegar Ólafur ætlaði sér nær til þess að ná af fuglinum betri mynd flaug hann á brott með bráðina í klónum. Við hvetjum lesendur til að senda okkur myndir úr mann- lífinu eða merkja myndir #vikurfrettir á Instagram. Bróðir rokkkóngs málar risagítar Hljómahöllin og Rokksafn Íslands opna form- lega um helgina eins og auglýst er í blaðinu í dag. Síðustu vikur hefur verið unnið að upp- setninu á yfirgripsmikilli sýningu. Þar verður þessi risagítar sem Ólafur Júlíusson, bróðir rokkkóngsins Rúnars Júlíussonar, var að mála þegar myndin var tekin. Flugstöðin í Sjón- varpi Víkurfrétta F lugstöð Leifs Eiríkssonar er stærsti vinnustaður á Suðurnesjum. Ört vax- andi ferðamannaiðnaður á Íslandi endur- speglast í flugstöðinni og þar er mikið ann- ríki alla daga frá því snemma á morgnanna og langt fram á kvöld. Sjónvarp Víkurfrétta tók púlsinn á lífinu í flugstöðinni nú í vikunni en þar standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir á næstu mán- uðum og misserum. Þátturinn er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Þá verður þátturinn einnig aðgengilegur á vf.is í háskerpu. Tekið var á móti fyrsta flugi easyJet milli Basel í Sviss og Keflavíkurflugvallar í gær með myndarlegum vatnsboga.

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 19-Mar-2016

270 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

13.tbl.35.árg.

TRANSCRIPT

Page 1: 13 tbl 2014

vf.isvf.is

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

auðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

FIMMTUDAGURINN 3. APRÍL 2014 • 13. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

Hringbraut 99 - 577 1150

Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐHjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku

Kynjakettir til sýnis!

n Alþjóðleg kattasýning á Suðurnesjum í fyrsta sinn:

„Við höfum verið í vanda undanfarin ár með að fá leigt húsnæði fyrir sýninguna á höfuðborgarsvæðinu, en þar hefur hún verið frá upphafi. Eftir mikla leit og mörg símtöl brá ég á það ráð að athuga með húsnæði hér í Grindavík þar sem ég bý. Okkur bauðst þá þetta stórglæsilega hús-næði, Reiðhöllin,“ segir Guðbjörg Her-mannsdóttir, kattaræktandi, og einn af umsjónarmönnum sýningarinnar. „Þau hjá Kattaræktarfélagi Íslands slógu til og hópur af frábæru fólki sem stendur að sýningunni er búinn að vera á fullu við að leggja lokahönd á hana.“

Alþjóðlega sýningin er stærsti viðburður félagsins, sem stendur fyrir tveimur sýn-ingum á ári. Um 120 kettir verða til sýnis og

dómarar koma erlendis frá til að dæma þá. Kattaræktarfélagið er félagi í FIFE sem er stórt samfélag erlendis og dómararnir eru á þeirra vegum. „Dómurinn og allt í kringum það er ekki það sem skiptir mestu heldur er félagsskapurinn stór hluti af þessu. Við erum einnig með sér hóp fyrir okkar fallega íslenska húskött og geta allir skráð sig í fé-lagið og sýnt húsköttinn sinn. Skilyrðin sem þarf að uppfylla er að kötturinn verður að vera skráður í félagið, örmerktur, bólusettur og geldur,“ segir Guðbjörg og hvetur alla til að koma á sýninguna, sem verður opin frá kl. 10 - 17 á laugardag og sunnudag.

120 kettir til Grindavíkur

Fálki gæðir sérá svartþresti

Ólafur Eggertsson tók þessa mynd í hádeginu

á sunnudag en á henni má sjá fálka gæða sér á (mjög lík-lega) svartþresti. Myndin var tekin út um eldhúsgluggann á húsi við Kirkjubraut í Innri-Njarðvík.Þegar Ólafur ætlaði sér nær til þess að ná af fuglinum betri mynd flaug hann á brott með bráðina í klónum.Við hvetjum lesendur til að senda okkur myndir úr mann-lífinu eða merkja myndir #vikurfrettir á Instagram.

Bróðir rokkkóngsmálar risagítar

Hljómahöllin og Rokksafn Íslands opna form-lega um helgina eins og auglýst er í blaðinu í dag. Síðustu vikur hefur verið unnið að upp-setninu á yfirgripsmikilli sýningu. Þar verður

þessi risagítar sem Ólafur Júlíusson, bróðir rokkkóngsins Rúnars Júlíussonar, var að mála

þegar myndin var tekin.

Flugstöðin í Sjón-varpi VíkurfréttaFlugstöð Leifs Eiríkssonar er stærsti

vinnustaður á Suðurnesjum. Ört vax-andi ferðamannaiðnaður á Íslandi endur-speglast í flugstöðinni og þar er mikið ann-ríki alla daga frá því snemma á morgnanna og langt fram á kvöld.Sjónvarp Víkurfrétta tók púlsinn á lífinu í flugstöðinni nú í vikunni en þar standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir á næstu mán-uðum og misserum. Þátturinn er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Þá verður þátturinn einnig aðgengilegur á vf.is í háskerpu.

Tekið var á móti fyrsta flugi easyJetmilli Basel í Sviss og Keflavíkurflugvallar

í gær með myndarlegum vatnsboga.

Page 2: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR2

Alþjóðasamtök flugvalla – Airports Council Internatio-

nal (ACI) – hafa valið Keflavíkur-flugvöll á heiðurslista yfir bestu flugvelli í heimi – ACI Director General’s Roll of Excellence.Útnefningin nær til flugvalla sem óslitið hafa sýnt frábæran árangur í þjónustukönnunum samtak-anna meðal flugfarþega frá árinu 2008. Alls hafa 21 flugvöllur hlotið þennan heiður frá árinu 2011 og í ár bætast eftirtaldir sex alþjóða-flugvellir í hópinn:KeflavíkurflugvöllurDubaiflugvöllur í Sameinuðu arab-ísku furstadæmunumKairóflugvöllur í EgyptalandiHyderabad Rajiv Gandhiflugvöllur á IndlandiTaoyuanflugvöllur á TaiwanSangsterflugvöllur á Jamaíku

Framkvæmdastjóri ACI segir áherslu á að uppfylla síauknar

væntingar farþega skipta sköpum í samkeppnishæfni alþjóðaflugvalla. Þessir sex flugvellir hafi ítrekað sýnt að þar ríkir mikill skilningur á áherslu farþega á góða þjónustu og einnig á nauðsyn þess að ganga skrefi framar í að uppfylla vænt-

ingar.„Þessi frábæri árangur er fyrst og fremst að þakka starfsfólki og sam-starfsaðilum okkar á Keflavíkur-flugvelli og áherslu á sífellt aukna þjónustu,“ segir Björn Óli Hauks-son forstjóri Isavia.

-fréttir pósturu [email protected]ÓLI

ATVINNA Viltu vinna á faglegum, kra�miklum og skemmtilegum vinnustað? Þá er Akurskóli staðurinn fyrir þig.

Kennarar óskast til starfa næsta skólaár.Umsóknarfrestur er til 29. apríl en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst. Hluti af stöðunum eru afleysingarstöður vegna barneignaleyfa.

Starfssvið:- Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi- Ensku- og stærðfræðikennsla á elsta stigi- Heimilisfræðikennsla- Íþró�akennsla- Sérkennsla

Menntunar- og hæfniskröfur:-Kennaramenntun og ré�indi til kennslu í grunnskóla- Góð íslenskukunná�a- Þekking á þeirri hugmyndafræði sem höfð er að leiðarljósi í skólastarfinu- Góð mannleg samskipti- Metnaður til að bæta námsárangur og vinna að framkvæmd framtíðarsýnar Reykjanesbæjar í skólamálum

Umsókn fylgi afrit af leyfisbréfi og ferilskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur.Laun og starfskjör fara e�ir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FG en Akurskóli hefur verið með samkomulag vegna greinar 2.1.6.3 (bókun 5) s.l. skólaár.

Starfsmenn skóla óskast til starfa næsta skólaár.Umsóknarfrestur er til 29. apríl en ráðið er í stöðurnar frá 15. ágúst.

Starfssvið:Starfsmaður skóla starfar með nemendum í leik og starfi utan og innan kennslustofu. Annast gangavörslu, frímínútnagæslu, vinnur í frístundaskóla, aðstoðar í matar- og nestistímum og sinnir öðrum störfum sem skólastjóri felur honum.

Vinnutími:Annars vegar 8:00 – 14:00 og hins vegar 13:00 – 16:00.

Menntunar- og hæfniskröfur:-Áhugi að vinna með börnum- Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi æskileg- Góð íslenskukunná�a- Hæfni í mannlegum samskiptum

Laun og starfskjör fara e�ir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.

Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.isSækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar h�p://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf

Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Róbertsdó�ir, skólastjóri, í síma 420-4550 eða 849-3822. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sigurbjorg.robertsdo�[email protected]

Innsiglingarbauja frá Sandgerði slitnaði upp eftir að siglt var á hana í síðustu viku. Baujuna tók þá

að reka, þar til hún strandaði á Garðskagaflös.Björgunarsveitin Ægir í Garði var kölluð til og fór hún á rússneskum ofurtrukki sveitarinnar í Garð-skagaflösina. Ljósabúnaður var skrúfaður af baujunni

og hún síðan dregin upp í fjöruna við gamla vitann á Garðskaga. Þangað kom svo bíll með krana og sótti baujuna og kom henni til Sandgerðis.Meðfylgjandi myndir tóku félagar í Björgunarsveitinni Ægi af björgunaraðgerðum.

Baujan frá Sandgerði strandaði á Garðskagaflös– sótt á rússneskum ofurtrukki Ægismanna

VF-myndir: Baldvin Þór Bergþórsson

Keflavík meðal bestu flugvalla í heimi

Framundan er stærsta ferðamannasumar sögunnar á Íslandi. Sífellt er unnið við þróun og breytingar sem og stækkun flugstöðvarinnar til að

mæta henni. VF-mynd/pket.

Hlaupið fram-hjá vatnsbunuVatnsbunan stóð út úr brunahana á Hringbraut í Keflavík í vikunni. Hópur hlaup-ara hljóp framhjá og lét veglega bununa ekki stoppa sig í vor-blíðunni. Linda Ólafs-dóttir er í stækkandi hópi hlaupara í bæjarfélaginu sem stundar hlaup reglu-lega um götur bæjar-ins og þarna má sjá hana skokka framhjá vatnsbununni.

Page 3: 13 tbl 2014

BETRA HÁROpið kl. 10-18. 20% afsláttur af vörum. Ókeypis hárþvottur

með herra- ogdömuklippingum.

Sími 426 9800

PALÓMA,FÖT OG SKART40% afsláttur af fatnaði í 40 mínútur frákl. 17:20-18:00

HÁRHORNIÐ

Fermingartilboð í fullum

gangi. Sléttujárn, krullu og

keilujárn frá HH Simonsen.

Kjörið að gera góð kaup.

Kaffi og konfekt í tilefni

afmælis Grindavíkurbæjar.

Verið velkomin á Hárhornið.

Sími 426-7120

ALLIRVELKOMNIR

ÓKEYPIS Á ALLA

VIÐBURÐI

40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjarfimmtudaginn 10. apríl

DAGSKRÁ

Kl. 06:00 - 21:00 Sundlaug Grindavíkur: Ókeypis aðgangur í sund 9. og 10. apríl í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis og 20 ára afmælis sundlaugar-innar. Hún var vígð 9. apríl 1994. Í anddyri verða teikningar af nýju íþróttamannvirki. Afmælisterta fyrir gesti í morgunsundi

Kl. 09:30 Afmæliskaffi í stofnunum Grindavíkurbæjar

Kl. 09:30 Leikskólinn Laut: Pollapönk kemur í heimsókn

Kl. 10:30 Leikskólinn Krókur: Pollapönk kemur í heimsókn

Kl. 11:00 - 13:00 Grunnskóli Grindavíkur: Í afmælisvikunni munu nemendur og starfsfólk grunnskólans vinna með þemað Grindavík 40 ára. Á afmælisdaginn 10. apríl verður uppskeru hátíð og opið hús milli kl. 11:00-13:00 bæði við Ásabraut og í Hópsskóla fyrir bæjarbúa. Allir velkomnir að kynna sér sögu Grindavíkur í 40 ár

Pollapönk heimsækir Hópsskóla kl. 11:30

Kl. 11:00 - 18:00 Afmælishátíð á Bókasafni Grindavíkur: 10. apríl verður aldeilis tilefni fyrir heimsókn á bókasafnið, boðið verður uppá afmælis-tertu, auk þess sem sektir falla niður þann dag! Um að gera að skila vanskilabókum þá! Grindavíkurbær ætlar til viðbótar að gefa bæjarbúum frítt bókasafnsskírteini allt afmælisárið og fá þeir sem þegar hafa greitt sín skírteini að njóta þessa við næstu endurnýjun

Kl. 14:30 Afmæliskaffi í Miðgarði: Sæbjörg M. Vilmundsdóttir les upp frásagnir frá gömlum kvenfélagskonum: Fiskur undir steini. Allir velkomnir

Kl. 17:00 Hátíðarfundur bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar í fundar-salnum á bæjarskrifstofunum, Víkurbraut 62

Kl. 17:00 - 19:00Íþróttaafmælisfjör í íþróttahúsinu fyrir 3-8 ára: Umsjón Jóhann Árni Ólafsson og Petrúnella Skúladóttir. Allir hressir krakkar sem vilja spreyta sig í þrautabrautum eða taka þátt í leikjum undir stjórn íþróttakennara eru hvattir til þess að mæta. Íþróttanammi á staðnum fyrir hressa orkubolta!

Kl. 18:00 Afmælishátíð í Grindavíkurkirkju- Forseti Íslands verður á meðal gesta- Gestir frá Piteå, vinabæ Grindavíkur í Grindavík- Hátíðarræður og ávörp- Afhending heiðursviðurkenninga- Tónlistaratriði:

• Tónlistarskóli Grindavíkur• Kór Grindavíkurkirkju• Rósalind Gísladóttir og Renata Ivan

Veitingar í safnaðarheimili að lokinni afmælishátíð

Kl. 19:00 - 21:00 Afmælisdiskótek í Þrumunni fyrir 4.-6. bekk DJ Egill Birgis

Kl. 19:00 Uppistand í grunnskólanum fyrir 7.-10. bekk Fremsti uppistandari landsins, Ari Eldjárn skemmtir.

Kl. 20:00 Uppistand og rapp í Kvikunni fyrir 16 ára og eldri Fremsti uppistandari landsins, Ari Eldjárn skemmtir. Grindvíski rapparinn Ari Auðunn hitar upp

Kl. 21:00 Grindavíkurkrónika á kaffihúsinu Bryggjunni í tilefni kaupstaðarafmælisins

Flaggað um allan bæ í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar

Fyrirtæki og stofnanir í Grindavík eru hvött til þess að halda upp á daginn með starfsfólki sínuog taka vel á móti gestum. Verslanir og þjónustuaðilar verða með tilboð í tilefni afmælisins

Dín

amít

Gun

nar J

úl

DÍN

AMÍT

GU

NN

AR JÚ

L

DÍN

AMÍT

GU

NN

AR JÚ

L

DÍN

AM

ÍT

DÍN

AM

ÍT e

hf. -

Gra

físk

hönn

un -

Gun

nar J

úl

Dín

amít

ehf

. - g

rafís

k hö

nnun

DÍN

AM

ÍT e

hf. -

gra

físk

hönn

un

www.grindavik.is

Page 4: 13 tbl 2014

-50%

-32%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!KílóverðÁður 1.498

749,-

Tilboðin gilda 3 – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-40%

-42%

KjúKlinGapoppdanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

498,-

BayonnesKinKaKílóverðÁður 1.992

1.195,-

-33%-30%

GrísaBóGurhringskorinnKílóverðÁður 889

596,-

-50%

GrísaKóteletturFersktKílóverðÁður 1.949

975,-

ræKjur -500GsmÁar - ódýrt Fyrir heimiliðpaKKaverðÁður 598

550,-

cordon Bleudanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

598,-

KjúKlinGurBringur/lundir900/700 Gr poKiÁður 1.698

1.398,-

KjúKlinGanaGGardanpo-320 g/pkFrosiðverð per pK

598,-

arla BuKo3 tegundirverð per pKverð frá

382,- snofrisK125 gverð per pKÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlverð per stK

199,-

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

KjúKlinGaBorGarardanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

498,-

-40%

GrísahryGGurpurusteik-úrBeinuðKílóverðÁður 2.298

1.379,-

GrísasKanKarKílóverðÁður 698

489,-

svínasíða með puruKílóverðÁður 1.698

985,-

GrísamínútusteiKFersktKílóverðÁður 2.198

1.495,-

Þú færð AllAr vörurnAr okkAr Af dönskum dögumá sAmA verði í kAskó.

Page 5: 13 tbl 2014

-50%

-32%

GrísarifBBQ - alvöru gæði!KílóverðÁður 1.498

749,-

Tilboðin gilda 3 – 6. apríl 2014Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

-40%

-42%

KjúKlinGapoppdanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

498,-

BayonnesKinKaKílóverðÁður 1.992

1.195,-

-33%-30%

GrísaBóGurhringskorinnKílóverðÁður 889

596,-

-50%

GrísaKóteletturFersktKílóverðÁður 1.949

975,-

ræKjur -500GsmÁar - ódýrt Fyrir heimiliðpaKKaverðÁður 598

550,-

cordon Bleudanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

598,-

KjúKlinGurBringur/lundir900/700 Gr poKiÁður 1.698

1.398,-

KjúKlinGanaGGardanpo-320 g/pkFrosiðverð per pK

598,-

arla BuKo3 tegundirverð per pKverð frá

382,- snofrisK125 gverð per pKÁður 498

423,-

cociosúkkulaðimjólk 250 mlverð per stK

199,-

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

Danskir dagar!

finthakket skinkesalat175 g

389 krstk

kylling&bacon salat175 g

398 krstk

reje salat175 g

389 krstk

æggesalat175 g

298 krstk

KjúKlinGaBorGarardanpo-240 g/pkFrosiðverð per pK

498,-

-40%

GrísahryGGurpurusteik-úrBeinuðKílóverðÁður 2.298

1.379,-

GrísasKanKarKílóverðÁður 698

489,-

svínasíða með puruKílóverðÁður 1.698

985,-

GrísamínútusteiKFersktKílóverðÁður 2.198

1.495,-

Þú færð AllAr vörurnAr okkAr Af dönskum dögumá sAmA verði í kAskó.

Page 6: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR6

Um helgina opnar ný og stórglæsileg Hljómahöll í Reykjanesbæ. Höll hljóm-anna - en þar er vísað til fyrstu bítla-hljómsveitar Íslands sem kom úr Keflavík. Miklu hefur verið til kostað til að gera þessa „frægðarhöll“ tónlistarinnar sem glæsi-legasta og vel hefur til tekist. Kostnaður er um 2,3 millj-arðar króna og hafa framkvæmdir staðið yfir í fimm ár. Í þessu mikla húsnæði sem er „gamli“ Stapinn auk við-byggingar eru Tónlistarskóli Reykjanesbæjar með alla sína starfsemi og síðan Rokksafn Íslands. Í húsnæðinu eru nokkrir salir af ýmsum stærðum, hentugir til tón-leika eða ráðstefnuhalds og tæknilega mjög vel búnir.Það er nokkuð öruggt að Hljómahöllin mun draga að ferðamenn, bæði íslenska og erlenda. Hún mun líka efla tónlistarlíf bítlabæjarins sem og menningar-starf. Með Hljómahöllinni mun bítlabærinn standa enn frekar undir nafni og auka aðdráttarafl sitt til muna. Hér er ástæða til að fagna frábæru framtaki.

Unglingarnir og svefninnÞað er áhugavert málþing í Reykjanesbæ um svefn unglinga. Þar er í raun verið að fjalla um svefn-leysi unglinga sem er verulegt vandamál. Þeir þurfa meiri svefn. Kannast einhver við málið?Hjálmar Árnason segir af tilraun í Bandaríkjunum með að byrja skóladaginn 25 mínútum seinna á morgnana og ber upp tillögu um að unglingadeildir á Reykja-nesi og Fjölbrautaskóli Suðurnesja byrji skóladaginn kl. 9:00. Rannsóknir sýna að unglingar þurfa 8-9 tíma svefn og fæstir ná því. Þessi hugmynd er virkilega þess virði að skoða alvarlega. Þar sem þessu hefur verið breytt hefur það reynst vel. „Tillagan okkar sem stöndum að þessu málþingi að við eigum við að byrja unglinga-deildir grunnskóla og fjölbrautaskóla kl. 9 til þess að gera okkar til þess að unglingarnir nái þessum nauð-synlega svefni,“ segir Hjálmar Árnason í viðtali í VF.

Unglingarnir og höll hljómanna

-ritstjórnarbréf

vf.isvf.isÚtgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Þórgunnur Sigurjónsdóttir, [email protected]ðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: ÍslandspósturStafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.isTekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Páll Ketilsson skrifar

SÍMI 421 0000

-instagram #vikurfrettir

Mynd: SiggiJons

n Málþing um svefnvenjur íslenskra unglinga:

Eiga fjölbraut og unglinga-deildir grunnskóla að byrja seinna á morgnana?

Keilir, Fræðslu-s k r i f s t o f a

Reykjanesbæjar og Hið ísl. svefnrann-sóknafélag standa fyrir stuttu málþingi

fimmudaginn 3. apríl kl. 16:30-17:30. Málþingið fer fram í hús-næði Íþróttaakademíunnar (Fim-leikahöllinni) við Parísartorg í Reykjanesbæ og er öllum opið.Björg Þorleifsdóttir, lektor, fjallar um svefn unglinga. Hjálmar Árnason segir af tilraun í Banda-ríkjunum með að byrja skóla 25 mínútum seinna á morgnana og ber upp tillögu um að unglinga-deildir á Reykjanesi og Fjölbrauta-skóli Suðurnesja byrji skóladaginn kl. 09:00.Þá verða rædd viðbrögð við tillög-unni og til þess hafa verið fengin þau Kristján Pétur Ásmundsson skólameistari FS, Ingigerður Sæ-mundsdóttir frá FFGÍR, Elva Dögg Sigurðardóttir frá NFS, Magnea Ólafsdóttir kennari og Guðbjörg Sveinsdóttir aðstoðarskólastjóri.Fundarstjóri er Erna Sif Arnar-dóttir, formaður Hins íslenska svefnrannsóknafélags. Allir eru velkomnir og unglingar, foreldrar og skólafólk hvatt til að mæta en gert er ráð fyrir að málþingið standi ekki lengur en í eina klukkustund.Víkurfréttir ræddu við Hjálmar Árnason hjá Keili á Ásbrú sem hefur kynnt sér svefnvenjur ungl-

inga og spurðu hann hvort íslenskir unglingar ættu þá að sofa til há-degis.„Sérfræðingar mæla með því og þeir hreinlega hvetja til þess. Það er vísindalega sannað að unglingar þurfa átta til níu tíma svefn. Ef þeir ná honum ekki til lengri tíma þá getur það haft mjög alvarlega af-leiðingar, bæði líkamlega, tilfinn-ingalega og andlega, svo ég tali nú ekki um út frá sjónarhóli skólans. Illa sofinn unglingur er ekki mjög móttækilegur fyrir námi“.

- Eru íslenskir unglingar að ná 8-9 tíma svefni?„Nei. Það er almennt vitað. Af hverju ná þeir ekki þessum svefn-tíma?, Jú, þeir sofa ekki nóg. Það sem rekur unglinga á fætur á morgnana er skólinn og almennt byrjar skólinn uppúr kl. 08. Ef krakkar eiga að vera komnir í skólann kl. 08 hressir og kátir, þá þarf að byrja að vekja þá upp-úr kl. 07, svo þeir nái að klæða sig, borða morgunmat og bursta tennur og koma sér í skólann. Til þess að þetta gangi upp, þá þurfa unglingarnir að vera sofnaðir kl. 23 og komnir í rúmið hálftíma áður. Þá getum við spurt, eru íslenskir unglingar komnir í rúmið kl. 22:30. Svarið er nei“.

- Hvað er hægt að gera?„Það er fullreynt að unglingarnir

eru ekki að fara í rúmið kl. 22:30. Þrátt fyrir allt nöldur í áratugi, þá er það ekki að fara að gerast. Þá er það spurningin hvort hægt sé að byrja skólana seinna? Það hefur verið reynt, m.a. á Laugum í Þing-eyjasýslum. Fyrrverandi skóla-meistari þar segir að það hafi verið allt annað líf fyrir nemendur og kennara. Þetta hefur einnig verið prófað í bandarískum skóla. Þar var byrjað kl. 08 og 18% unglinga náðu þessum lágmarkssvefni. Þar færðu þau upphaf skóladags til kl. 08:25. Eftir eina önn náðu 44% unglinga þessum rétta svefni. Við þurfum ekki að segja margt um hvaða já-kvæðu afleiðingar það hefur.Ofan á þetta bætist að þegar við ætlum að reyna að vekja ungl-ingana okkar kl. 07 að morgni, þá er líkamsklukkan hér á norður-slóðum ekki nema 05:30 og skal þá engan undra að það sé með-vitundarleysi á meðal krakkanna. Út frá þessu stöndum við fyrir þessu málþingi með Reykjanesbæ og hinu Íslenska svefnrannsóknar-félagi. Tillagan er þar, að eigum við að byrja unglingadeildir grunn-skóla og fjölbrautaskóla kl. 09 til þess að gera okkar til þess að ungl-ingarnir nái þessum nauðsynlega svefni. Miðað við reynslu og það sem færustu sérfræðingar segja, þá er þetta eina vitið,“ segir Hjálmar Árnason hjá Keili.

þegar við ætlum að reyna að vekja

unglingana okkar kl. 07 að morgni, þá er lík-amsklukkan hér á norður-

slóðum ekki nema 05:30 og skal þá engan undra að

það sé meðvitundarleysi á meðal krakkanna

Page 7: 13 tbl 2014

Við bjóðumgóða þjónustu

islandsbanki.is | Sími 440 4000

*Eitt framlag fyrir hvert fermingarbarn

Með honum geta foreldrar, ömmur, afar, frændur og frænkur tryggt fermingarbarninu veglegan sjóð sem losnar við 18 ára aldur, um það bil þegar næstu stóru áfangar í lífinu blasa við. Framtíðarreikningur ber ávallt hæstu vexti almennra verðtryggðra innlánsreikninga bankans og er því góður valkostur fyrir langtímasparnað.

Þeir sem leggja fermingarpeningana sína, 30.000 kr. eða meira, inn á Framtíðarreikning Íslandsbanka geta fengið 5.000 kr. í mótframlag inn á Framtíðarreikninginn sinn.*Hægt er að stofna og leggja inn á Framtíðarreikning í útibúum Íslandsbanka.

Framtíðarreikningur Íslandsbanka er góð fermingargjöf Leggðu fermingarpeninganainn á Framtíðarreikning

EN

NE

MM

/ S

ÍA /

NM

62

04

9

Fermingargjöf fyrir framtíðarfólk

Page 8: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR8

-fréttir pósturu [email protected]ÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

ERTU SAFNARI?

Á�u gersemar í fórum þínum sem þig langar að sýna í læstum glerskápum á Bókasafninu?

Áhugasamir geta ha samband í netfangið [email protected] eða við forstöðumann í síma 421 6770.

BÆJARLÍFSMYNDIR FRÁ NJARÐVÍKGamlar bæjarlífsmyndir frá Njarðvík verða sýndar á breiðtjaldi um helgina í Bíósal Duushúsa. Viðar Oddgeirsson útbjó til sýningar.Duushús, Duusgötu 2-8, opið 13-17.

Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

ÚTSVAR

ÁFRAM REYKJANESBÆR!

Styðjum okkar fólk á föstudaginn.Baldur, Hulda og Grétar, gangi ykkur vel!

SUMAR Í REYKJANESBÆ 2014

Hvað verður í boði fyrir börn og ungmenni í Reykjanesbæ sumarið 2014?Íþró�a- og tómstundasvið mun setja á vef bæjarins vefritið SUMAR Í REYKJANESBÆ 2014.Ef þi� félag/klúbbur áformar að bjóða börnum og ungmennum í Reykjanesbæ upp á tómstunda- og /eða leikjanámskeið eða aðra afþreyingu fyrir ungmenni í sumar, biðjum við um að upplýsingar verði sendar til framkvæmdastjóra íþró�a- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar á netfangið[email protected] fyrir 24. apríl 2014.

Neitaði sýnatöku og sviptur

- annars heldur tíðindalítil og góð helgi hjá lögreglunni á Suðurnesjum.

uNýliðin helgi var tíðindalítil og góð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þó var einn öku-maður sviptur ökuréttindum tímabundið, því hann var grun-aður um akstur undir áhrifum fíkniefna, en neitaði að gefa þvagsýni á lögreglustöð.Annar ökumaður var kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi og skráningarnúmer voru fjarlægð af óskoðaðri bifreið.Loks var reynt að brjótast inn í fyrirtæki í umdæminu, þar sem þurrkaður er þari, og komast þar að tölvubúnaði. Ekki tókst þeim sem þar var, eða voru, á ferðinni ætlunarverk sitt, en húsnæðið bar ummerki um óæskilega „heim-sókn“.

Erlendum gestum fjölgar um 40%- Þó fækkun á gestum Duushúsa

uStarfsemi í Duushúsum árið 2013 var með nokkuð hefð-bundnum hætti á þessu 11. starfsári þeirra, með fjölbreyttu sýningarhaldi, móttöku gesta og hópa, tónleikum, fundahöldum og ýmsum menningaruppá-komum. Alls heimsóttu tæplega 35 þúsund manns safnið sem þó var örlítil fækkun frá fyrra ári. Almennum innlendum gestum fækkaði lítillega á meðan er-lendum gestum fjölgaði um tæp 40%, en alls heimsóttu 2.672 er-lendir gestir Duushús árið 2013.

Komum hópa fækkaði hátt í þriðj-ung. Töluvert fleiri nemendur komu í heimsókn heldur en árið 2012 og svipaður fjöldi sótti opn-anir Listasafnsins. Svipaður fjöldi sótti ýmsa sérstaka viðburði og skipar Ljósanótt þar langstærstan sess með um 18.000 gesti og þar á eftir Listahátíð barna með um 2.500 gesti. Gestum Ljósanætur fækkaði um 2.000 og er þar lík-legast slæmu veðri um að kenna.

Listasafn og Byggða-safn Reykjanesbæjar hljóta viðurkenninguuByggðasafn Reykjanesbæjar og Listasafn Reykjanesbæjar eru í hópi 39 safna á landinu sem hafa hlotið opinbera viðurkenn-ingu safns skv. safnalögum frá mennta- og menningarmála-ráðuneytinu.Í viðurkenningunni felst að söfnin uppfylla þau skilyrði sem safnaráð setur til að söfnin eigi möguleika á að sækja um rekstrarstyrki úr safnasjóði sem er alger forsenda fyrir tryggum rekstri þeirra.Til að hljóta slíka viðurkenningu þurfa söfnin að uppfylla margvís-lega skilmála varðandi húsnæði, öryggismál, aðgengi, skráningar-kerfi og faglegt starf. Markmiðið með viðurkenningunni er að efla starfsemi safna við varðveislu menningar- og náttúruarfs Ís-lands, tryggja að honum verði skilað óspilltum til komandi kynslóða, að veita fólki aðgang að honum og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn.Þetta er því afar ánægjuleg niðurstaða og um leið viður-kenning á því að söfnin eru að starfa á faglegan hátt. Þess má í framhjáhlaupi geta að Byggða-safn Reykjanesbæjar og Listasafn Reykjanesbæjar eru einu söfnin á Suðurnesjum sem hlotið hafa þessa viðurkenningu.

Nú í vikunni fór fram sjó-borun við hliðina á veitinga-

húsinu Vitanum í Sandgerði. Þar verður dæla tengd við holuna sem kemur til með að streyma hreinum sjó í kerin með krabb-anum og öðru sjávarfangi sem boðið er upp á hjá Vitanum.Borað var 50 metra niður, en það

var Árni Kóps hjá Vatnsborun sem sá um verkið.Með þessum aðgerðum er verið að flytja allt lifandi sjávarfang sem staðsett hefur verið við Þekkinga-setrið yfir í bakgarð Vitans, þar sem matargestir geta skoðað her-legheitin.

Borað eftir sjó við Vitann

Frá borun við Vitann í Sandgerði.

Talning atkvæða um verk-fallsaðgerðir starfsmanna

hjá Isavia hefur farið fram. Niðurstöður úr atkvæðagreiðsl-unni eru á þann veg að 88% sögðu já, nei sögðu 9%. Auðir og ógildir voru 3%. Á kjörskrá voru 424 og af þeim kusu 365, eða 86%. Af þessu er ljóst að gripið verður til verkfallsaðgerða þann 8. apríl næstkomandi, hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma.Verkfallsaðgerðirnar sem sam-þykktar voru;

Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, þriðjudaginn 8. apríl 2014, munu allir félagsmenn FFR, SFR og LSS hjá Isavia ohf, leggja niður störf.Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, miðvikudaginn 23. apríl 2014, munu allir félagsmenn FFR, SFR og LSS hjá Isavia ohf, leggja niður störf.Á tímabilinu frá kl. 04:00 til kl. 09:00, föstudaginn 25. apríl 2014, munu allir félagsmenn FFR, SFR og LSS hjá Isavia ohf, leggja niður störf.

Verkfallsaðgerðir hjá Isavia samþykktar

Reykjanesbær mætir Akranesi í annað sinn í Útsvari á föstudaginnHið harðsnúna lið Reykja-

nesbæjar, sem skipað er þeim Baldri Þóri Guðmundssyni, Huldu G. Geirsdóttur og Grétari Þór Sigurðssyni, mætir liði Akra-ness á föstudaginn í þriðju um-ferð spurningakeppninnar Út-svars á RÚV. Liðið tapaði einmitt fyrir Akranesi í síðustu umferð

en komst áfram sem stigahæsta tapliðið. Í lok umferðarinnar var dregið úr hattinum góða og dróst Reykjanesbær aftur á móti Skaga-mönnum og á nú harma að hefna.„Við óskum þeim Baldri, Huldu og Grétari góðs gengis og segjum Áfram Reykjanesbær,“ segir í til-kynningu frá Reykjanesbæ.

Page 9: 13 tbl 2014

Gleðilega páska!Gleðilega páska!

Tilboðin gilda 3.-9. apríl 2014|Tilboðin gilda í Nettó Akureyri · Höfn · Reykjanesbæ · Borgarnesi· Egilsstöðum · Selfossi | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. |

Kræsingar & kostakjör

Mar

khön

nun

ehf

PhiliPs sjónvarP 32”smart ledverð áður 89.995,-

62.997,-

PhiliPs sjónvarP 50”smart ledverð áður 299.995,-

209.997,-

toshiPa sjónvarP 40”ledverð áður 124.995,-

87.497,-

tony&guyHárblásari 2000wverð áður 4.995,-

3.497,-

PhiliPs rakvélPower toucH Hleðsluvélverð áður 22.995,-

16.097,-

FÉLAGSMANNATILBOÐ

30% afsláttur af raftækjum gegn framvísun Páska félagsmannakortsins

Kortið gildir 3-9. apríl 2014 | Notið sama kortið út gildistímann | Ekki er gefinn félagsmannaafsláttur af tóbaki.

FÉLAGSMANNATILBOÐ

AF FATNAÐI,

rAFTækjuM

& SÉrvöru

AF MATvöru

í SAMkAup ÚrvAL

& STrAx

AF MATvöru

í kASkó & NeTTó

30%

12%10%

Vinsamlegast framvísið kortinukask ∙ ká ∙ kB ∙ kffB ∙ kh ∙ khB ∙ ksk ∙ kÞ

frissler london Pottasettt5 stk m/gleriverð áður 124.995,-

87.497,-

PhiliPs heimaBíókerfi40wverð áður 39.995,-

27.997,-

PhiliPs Powerliferyksuga 1800wverð áður 16.995,-

11.897,-

PhiliPs Brauðvélverð áður 26.995,-

18.897,-

Panasonic heimaBíókerfi3d blu-rayverð áður 69.995,-

48.997,-

tony&guysléttujárn eða bylgjujárnverð áður 6.995,-

4.897,-

elna saumavéleinföld og góðverð áður 37.995,-

26.597,-

villtu gerast

félagsmaður?

skráðu Þig á

www.ksk.is

Page 10: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR10

-viðtal pósturu [email protected]

Dæmir ekki fólkMargrét tekur glaðlega á móti blaðamanni á einni af fimm hæðum Deloitte í Turninum við Smáratorg. Litríkar blöðrur eru víða í rýminu vegna þess að halda á upp á 20 ára afmæli fyrirtækisins þennan föstu-dag. Sjálf hefur hún unnið þar sem framkvæmdastjóri í 15 ár. „Þetta var 30-40 manna fyrirtæki en eru núna um 200 manns víða um land. Við erum til að mynda með öflugt útibú í Reykjanesbæ sem Anna Birgitta stýrir og þar eru fimm löggiltir endurskoðendur en 10 manns alls,“ segir Margrét. Hún ólst upp við Hraunsveg í Njarðvík í hópi 5 systk-ina. „Það sem mótaði mig í æsku var að það þarf mikið til þess að ég dæmi fólk. Ef einhver frétt birtist um fólk í fjölmiðlum þá hugsa ég: Er þetta nú örugglega rétt?“ Hún segir vissan hóp vera áberandi dóm-harðan og ef fólk myndi læra að-eins að anda þá væri þjóðfélagið mun betra. „Það er eitt að vera ekki sammála fólki í skoðunum eða mál-efnum en að vaða alltaf í manninn finnst mér slæmt.“

Dóttir bæjarstjóraFaðir Margrétar var Albert Karl Sanders, fyrrum bæjarstjóri í Njarð-vík. Fyrst í fjögur ár þegar sjálf-stæðismenn voru með hreinan meirihluta. Svo réði næsti meiri-hluti hann áfram. „Mér þótti vænt um það og vona að ég hafi tamið mér frá pabba þessa víðsýni. Í vinnunni minni er hvergi að finna pólitík og núna þegar ég er að taka við hjá Samtökum verslunar og þjónustu á það algjörlega að vera

laust við pólitík og byggist í raun á málefnum. Það skiptir gríðarlega miklu máli,“ segir Margrét. Móðir Margrétar var Sigríður Friðberts-dóttir. Hún segir foreldra sína hafa verið alveg einstaka. „Þegar ég fékk vinnuna hjá Deloitte sagði pabbi ekki: Til hamingju með vinnuna! Hann sagði: Rosalega eru þeir heppnir að fá þig!“

Gaman að kenna en stéttin var of svekkt

Margréti finnst þó gríðarlega gaman að eiga í pólitískum samræðum og hefur miklar skoðanir á þjóðmálum en er ekkert endilega sammála sama flokknum. Hún var í fyrsta árgangi nemenda við Fjölbrauta-skóla Suðurnesja. „Þetta er gríðar-lega sterkur pólitískur og vinstri sinnaður hópur sem að hluta til er enn viðloðinn pólitík á Suður-nesjum. Þetta voru jafnvel mínir bestu vinir.“ Eftir að Margrét lauk stúdentsprófi fór hún til Frakklands í undirbúningsnám fyrir háskóla og heillaðist alveg af landi og þjóð. Á þessum tíma æfði hún einn-ig handbolta af kappi. „Íþróttirnar toguðu í mig og þess vegna fór ég í Íþróttaskólann að Laugarvatni og útskrifaðist þaðan með íþróttakenn-aramenntun. Síðar lauk hún námi við Kennaraháskólann. „Mér fannst gaman að kenna en langaði ekki t.d. að verða skólastjóri eða vinna mig upp innan skólakerfisins. Ég kenndi í Njarðvík og um það leyti skall á verkfall. Ég fann fyrir mikilli óá-nægju í stéttinni. Þegar stétt verður mjög svekkt, og ég þar á meðal, eins og í kjarabaráttu og neikvæðu umtali og slíku, sest maður niður og hugsar hvort það sé rétti vett-vangurinn fyrir mann.“

Vön miklu álagiMargrét bætir við þetta að hún hafi mikið álit á kennurum almennt. „Það er mikil áskorun og erfitt að vera með hóp af einstaklingum, undir miklu álagi, sífellt að taka ákvarðanir. Þessi þjálfun er svaka-lega góður bakgrunnur. Ef maður er með rétt hugarfar, þá held ég að maður nái þangað sem maður vill.“ Þegar hún kenndi var hún með ung börn heima og segir sveigjan-

leikann í starfinu hafa verið mjög mikinn og hentað mjög vel. „Maður fór snemma heim og gat verið með þeim eftir skóla og unnið svo á kvöldin og fram á nótt. Ég er því vön miklu álagi sem nýttist vel þegar ég fór í aðra krefjandi vinnu,“ segir Margrét.

Flutti til BandaríkjannaÁ þessum tímapunkti, árið 1997, tók fjölskylda Margrétar þá ákvörð-un að flytja til Bandaríkjanna þar sem hún tók viðskiptafræðina og MBA nám. Þá var MBA ekki kennt á Íslandi. Eiginmaður hennar er Sigurður Guðnason og börn þeirra Albert Karl og Sigríður, auk Sylvíu, dóttir Sigurðar frá fyrra sambandi. „Ég á dásamlegan eiginmann og börn sem voru spennt að fara með mér. Siggi lagði allt sitt til hliðar til að geta stutt konuna sína. Hann hefur alltaf gert það. Annars væri ég ekki það sem ég er í dag.“ Fjöl-skyldan var tæplega 3 ár úti og Margrét segist í raun hafa verið að flýta sér dálítið í náminu. „Ef maður tekur ákvörðun um svona er gott að geta klárað það en það er gott líka að kunna að slaka á. Ég veit það í dag.“

Stolt starfsfólk er gæðastimp-ill fyrirtækis

Þegar fjölskyldan flutti heim árið 1999 var mikil uppsveifla í þjóð-félaginu og Margréti fannst hún geta valið úr störfum. „Mér fannst svo spennandi sem var að gerast hjá Deloitte og framtíðarsýnin þar. Við erum að þjónusta fyrirtækin í landinu og þau eru búin að ströggla og við endurspeglum þau á hverjum tíma. Þrátt fyrir glæsileg húsakynni og aðstöðu fyrir starfsfólk hefur fyrirtækið aldrei verið með mikið af 2007 fitu. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að vera samfélagslega ábyrg og komum okkur í gegnum erfiða tíma eftir hrun á jákvæðan hátt.“ Hún bætir við að einnig sé mikilvægt að starfsfólkið sé stolt af fyrirtækinu, sem það er. Það sé grunnurinn að trausti fyrirtækisins út á við.

„Ákvörðun er manns sjálfs“

Bakgrunn sinn segir Margrét vera

héðan og þaðan en hún búi yfir reynslu sem nýtist vel. „Ég hef alla tíð verið virk í félagsstarfi. Þegar ég var í Kennarafélagi Reykjaness unnum við að flutningi grunn-skólanna til sveitarfélaganna 1996. Alls kyns svona vinna sem maður hefur verið virkur í sem er svakalega góður bakgrunnur. Ég er alin upp í því að maður geti allt, bara að gera hlutina; ákvörðun manns sjálfs.“ Þá finnst Margréti allt of mikið um að menn séu flokkaðir í hólf og að annað hvort séu þeir á móti ein-hverjum eða með honum. „Ótrú-legt hvað fólk stundum vogar sér að segja við hvert annað t.d. á Fa-cebook. Bak við hvern einasta ein-stakling sem er tilbúinn að fórna sér fyrir okkur, þá á ég við fólk í öllum flokkum, er fjölskylda. Ég vil meina að þetta sé einhver málefnaþurrð og fólk hafi ekki rökin og treysti sér því ekki í rökumræðuna.“

Góðar minningar hjálpuðu mest

Í maí árið 2011 reið stórt áfall yfir fjölskyldu Margrétar þegar sonur hennar, Albert Karl, lést aðeins 23 ára. Margrét segir að þótt farið sé í gegnum slíkt sorgarferli sé alltaf til staðar val um viðhorf. Orðin í æðruleysisbæninni eigi alltaf við. „Það sem hjálpar okkur mest eru góðar minningar. Við vorum ekki að

hugsa aftur og aftur að við hefðum átt að gera eitthvað, eiga meiri sam-skipti eða nánari samskipti. Vorum ekkert að velta okkur upp úr því. Þetta voru svo dásamlegar minn-ingar sem við áttum. Alli Kalli varð veikur þarna í restina en við eigum svo mikið af góðum minningum. Og síðan er það þetta að ég hef alltaf verið jákvæð manneskja. Ef ég hefði

ekki verið þannig þá hefði þetta ef-laust verið mun erfiðara fyrir mig. Fólk vinnur á sorginni á misjafnan hátt,“ segir Margrét og bætir við að henni finnist að hægt sé að sjá á fólki sem hefur lent í svipuðum áföllum hvort það hefur valið svart-nættið eða ekki. „Það er til fólk sem missir börnin sín og deyr með þeim en einnig fólk sem lifir áfram. Þá er það ekki af því einhver er að syrgja meira eða minna, þetta er mikið meira spurning um val. Ég tel að það sé ekki hægt að ganga í gegnum svona nema lifa. Þetta er ákvörðun.“

Samstaða og stuðningur skilar miklu

Lífsviðhorf Margrétar endur-speglast meðal annars í grein sem hún skrifaði í Viðskiptablaðið fyrir um einu og hálfu ári. Þar talar hún um hrunið og reiðina og tengir við sorgina sem þjóðin gekk í gegnum. „Það er hægt að gera svo mikið meira ef staðið er saman og hvað við eigum sameiginlegt. Taka inn birtuna og jákvæðnina. Feta veginn og reyna ekki að búa til ágreining að óþörfu. Þetta legg ég mikla áherslu á í mínu lífi og starfi.“ Hún hefur einnig alltaf haft mikið að gera en segir fjölskylduna þó aldrei hafa kvartað undan því. „Þegar Alli Kalli var lítill hafði hann eitt sinn ekki glósað heima í einhverjum tungu-málaáfanga. Kennarinn spurði hann hvort mamma hans væri svona upp-tekin. Hvort hún gæti ekki hjálpað honum. Og hann svaraði: „Mamma? Pabbi er heimavinnandi!“ Þegar fjölskyldan flutti frá Bandaríkjunum var Sigurður heimavinnandi en það var ekkert gert ráð fyrir slíku þá. Þau voru því dálítið á undan sinni samtíð. Margrét segist vera afskap-lega þakklát fyrir Sigurð og börnin, þau Alla Kalla, Siggu og Sylvíu og hvað þau hafa alltaf stutt hana vel og haft trú á henni. Svo ekki sé minnst á systur Margrétar, Jónínu, en þær eru mjög nánar. „Það er ótrúlega mikils virði og skiptir gríðarlega miklu máli varðandi sjálfstraust og þora að taka ákvarðanir að fólkið í kringum mann hafi trú á manni og tali mann svolítið upp,“ segir hún að endingu.

n Margrét Sanders er alin upp við að geta allt sem hún ætlar sér:

Margrét Sanders er Njarðvíkingur, framkvæmdastjóri hjá Deloitte og tók nýverið við formennsku í Samtökum verslunar og þjónustu. Olga Björt hitti Margréti sem ræddi við hana um áföll og sigra og mikilvægi þess að velja sér viðhorf á öllum stundum í lífinu.

„ROSALEGA ERU ÞEIR HEPPNIR AÐ FÁ ÞIG“

Það sem hjálpar okkur mest eru góðar minningar

Magga með Alla Kalla á góðri stundu.

Sigríður og Sylvia með son sinn Sigurð Karl.

Page 11: 13 tbl 2014

Vorkvöld í LYFJUReykjanesbæ, föstudaginn 4. apríl

L´Oréal Manga Black maskarinn

50% afslátturOroblu Chantal sokkabuxur 120 den

50% afsláttur

20% AFSLÁTTUR

LANCOME - BIOTHERM - LOREAL - MAYBELLINE - CLINIQUE – SOTHYS NOVEXPERT – CEE – OPI –TRIND - ALESSANDRO EGF

REAL TECHNIQUES (FÖRÐUNARBURSTAR)WELEDA – SÓLEY – MY SIGNATURE – OROBLU – BOSS – ARMANI

DIESEL OG AÐRIR ILMIR OG GJAFAKASSAR.

ALLT MEÐ

20% AFSLÆTTI

FLOTTAR FERMINGARGJAFIR FYRIR STELPUR OG STRÁKA

iWhite Instant gerir tennurnar fljótt hvítari með nýrri, einstakri tækni. Hvítir kalsíumkristallar geta gert tennurnar allt að 8 tónum hvítari. iWhite Instant fjarlægir einnig bletti af völdum matar og drykkjar. Varan er mild á bæði tennur og góma og inniheldur ekki vetnisperoxíð.

20% kynningarafsláttur

Page 12: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR12

www.vf.is LESTURVINSÆLASTI FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM

+ 83%

-fréttir pósturu [email protected]

ATVINNASumarafleysingar

Starfsmaður óskast í útkeyrslu og afgreiðslu á Fitjabakka 2 - 4.

Umsóknareyðublöð eru á staðnum einnig er hægt að sækja um á steinar@olis.

Starfsmaður óskast í 30% og 100% starf á Básnum.

Umsóknareyðublöð eru á staðnum einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Ásgeiri á staðnum.

Æskilegt að umsækjandi sé ekki yngri en 20 ára.

ATVINNA

SUMARSTÖRF Í VOGUM 2014Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2014

Stöður �okkstjóra í vinnuskólaFlokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhver�s og eigna. Hann stjórnar star� vinnuskólahóps, kennir nemendum rétt vinnubrögð, vinnur með liðsheild, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri verður að hafa bílpróf og geta ha�ð störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu. Flokkstjóri skal vera á 19. aldursári eða eldri.

Umsjónarmaður leikjanámskeiðsLeitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri.

Sumara�eysingar í íþróttamiðstöðUm er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé 20 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta ha�ð störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum.

Vinnuskóli, félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir.

Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 22. apríl 2014.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur, eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Nánari upplýsingar um stör�n veita frístunda- og menningarfulltrúi í síma 440-6225 og forstöðumaður umhver�s og eigna gsm 893 6983.

Umsókn sendist rafrænt á [email protected] eða skilist á pappír á skrifstofu Sveitarfélagsins.Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsmiðstöðvar, í afgreiðslu íþróttamiðstöðvar eða á skrifstofu Sveitarfélagsins.

EFTIRLAUNASJÓðUR REYKJANESBÆJAR

AÐALFUNDUR 2014Aðalfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 8. apríl nk. kl. 16.15.

Fundurinn verður haldinn í bæjarráðssal, Tjarnargötu 12.

Dagskrá:Venjuleg aðalfundarstörf skv. 5.grein samþykkta sjóðsins.Allir sjóðfélagar eru hva�ir til að mæta vel og stundvíslega.

Stjórn E�irlaunasjóðs Reykjanesbæjar

Flutningaskipið Fernanda virðist ekki hafa brunnið í síðasta sinn, ef litið er til þess að nýverið var slökktur talsverður eldur sem kom

upp í flaki skipsins þar sem það er í Helguvík.Unnið er að því að rífa skipið niður í brotajárn og var verið að logskera í skipinu þegar eldurinn kom upp. Talsverðan reyk lagði frá Helguvík.„Það sem tók Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins marga daga, afgreiddi ein vakt hjá Brunavörnum Suðurnesja á nokkrum mínútum,“ sagði slökkvi-liðsmaður á vettvangi í samtali við Víkurfréttir og brosti.

Enn brann Fernanda

Meðfylgjandi myndir voru teknar á vettvangi. VF-myndir: Hilmar Bragi

Orlofshús VSFKSumar 2014

Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar:

2 hús í Svignaskarði3 hús í Húsafelli

2 hús í Ölfusborgum2 hús í Hraunborgum

1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri

Útleigutímabilið er frá föstudeginum 30. maí og fram til föstudagsins 22. ágúst.

Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og er umsóknarfrestur til kl. 16:00

þriðjudaginn 15. apríl 2014. Úthlutað verður samkvæmt punktaker�.

Orlofsnefnd VSFK

Page 13: 13 tbl 2014

VorkVöldkrossmóa 4. apríl kl 19:00-22:00

Skemmtiatriði:Valdimar Dirty Dancing

kynnir:Sigfús aðalsteinsson

Happdrætti: Veglegirvinningarí boði

Léttar veitingar!

Cabo og Gull&hönnun

verða á ganginum

Fjöldi frábærra tilboða

CarinoH Á R S N Y R T I S T O F A

Page 14: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR14

LESTURVINSÆLASTI FRÉTTAMIÐILL

Á SUÐURNESJUM

www.vf.is+

83%

www.fiskeldi.isS:612-5552

ATVINNAÓskum eftir að ráða rafvirkja

og/eða mann vönum PLC forritun.

Upplýsingar í símum 612 5552 og 895 3556 eða á netfangið [email protected].

Nú er rétti tíminn til að panta tíma svo að bíllinn komist í gott bað fyrir páskana.

Vönduð vinna og sanngjarnt verð.

FJÖLSMIÐJAN Á SUÐURNESJUMSmiðjuvellir 5 – Gamla Húsasmiðjuhúsið - Reykjanesbær - s. 421-1551

KEYRÐU UM Á HREINUM OG GLANSANDI BÍL UM PÁSKANA

-fréttir pósturu [email protected]

Nýtt og glæsilegt framreiðslu-eldhús hefur nú verið tekið í

gagnið á Nesvöllum en hingað til hefur maturinn í þjónustumið-stöðinni verið aðsendur þangað. Fyrsta máltíðin var framreidd 1. apríl og var boðið upp á kóte-lettur í raspi með öllu tilheyrandi. Í eldhúsinu verða útbúnir um 200 matarskammtar í hádeginu alla daga ársins en þeir sem njóta góðs af því eru íbúar og starfsmenn á Nesvöllum og Hlévangi auk gesta

í þjónustumiðstöðinni.Þjónustumiðjan á Nesvöllum býður nú upp á hádegisverð alla virka daga og til skoðunar er að bjóða hið sama um helgar. Um 120 manns starfa á hjúkrunarheimil-unum á Nesvöllum og Hlévangi að meðtöldum starfsmönnum í eld-húsi. Fyrsti íbúinn á Nesvöllum er Margrét Stefánsdóttir en hún flutti frá Garðvangi 16. mars sl. og voru henni færð blóm og konfekt af til-efninu.

n Um 200 matarskammtar útbúnir öll hádegi á Nesvöllum:

Nýtt og glæsilegt framreiðslueldhús

Bein leið, nýtt framboð í sveitarstjórnarkosning-

unum í Reykjanesbæ hefur sam-þykkt framboðs-lista skv. tillögu frá uppstillingarnefnd. Listann skipa 12 konur og 10 karlar þar af eru 4 konur í 6 efstu sætum. Bein leið hefur óskað eftir

listabókstafnum Y.1. Guðbrandur Einarsson, 55 ára, formaður VS og Lands-sambands ísl. verzlunarmanna2. Anna Lóa Ólafsdóttir,49 ára, náms- og starfsráðgjafi hjá MSS, Skólavegi 10 , 230 Reykja-nesbæ3. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, 46 ára, laganemi, Greniteigi 35, 230 Reykjanesbæ4. Kristján Jóhannsson, 46 ára, formaður og fram-kvæmdastjóri FFR, Brekkustíg 23, 260 Reykjanesbæ5. Helga María Finnbjörnsdóttir,33 ára, viðskiptafræðingur og kennari, Efstaleiti 75, 230 Reykja-nesbæ6. Lovísa N. Hafsteinsdóttir,47 ára, tómstunda- og félags-málafræðingur og meistaranemi í opinberri stjórnsýslu, Svölutjörn 75, 260 Reykjanesbæ7. Sólmundur Friðriksson,46 ára, grunnskólakennari, Há-teigi 3, 230 Reykjanesbæ8. Dominika Wróblewska,18 ára, fjölbrautaskólanemi, Hringbraut 93, 230 Reykjanesbæ9. Davíð Örn Óskarsson,27 ára, frístundaleiðbeinandi,

Tjarnabraut 8b, 260 Reykjanesbæ10. Una María Unnarsdóttir,21 árs, háskólanemi, Ægisvöllum 27, 230 Reykjanesbæ11. Birgir Már Bragason,41 árs, umsjónarmaður fast-eigna Keilis, Heiðargarði 27, 230 Reykjanesbæ12. Arnar Ingi Tryggvason,27 ára, stöðvarstjóri og formaður LK , Heiðarvegi 25, 230 Reykja-nesbæ13. Baldvin Lárus Sigurbjartsson,18 ára , menntaskólanemi, Brekkustíg 19, 260 Reykjanesbæ14. Guðný Backmann Jóelsdóttir,49 ára, viðskiptafræðingur, Hrauntúni 14, 230 Reykjanesbæ15. Hafdís Lind Magnúsdóttir,18 ára, framhaldsskólanemi, Vallargötu 15, 230 Reykjanesbæ16. Tóbías Brynleifsson, 53 ára, fyrrv. sölumaður, Akur-braut 38, 260 Reykjanesbæ17. Hrafn Ásgeirsson,58 ára, lögregluþjónn, Faxabraut 75, 230 Reykjanesbæ18. Kristín Gyða Njálsdóttir,47 ára, þjónustufulltrúi, Norður-völlum 10, 230 Reykjanesbæ19. Freydís Kneif Kolbeinsdóttir,40 ára, grunnskólakennari, Fíf-umóa 9, 260 Reykjanesbæ20. Einar Magnússon,70 ára, tannlæknir, Háholti 8, 230 Reykjanesbæ21. Sossa Björnsdóttir,60 ára, listmálari, Mánagötu 1, 230 Reykjanesbæ22. Hulda Björk Þorkelsdóttir,65 ára, verkefnastjóri, Sunnu-braut 11, 230 Reykjanesbæ

Bein leið samþykkir framboðslista X-Y

Prófkjör hjá S-list-anum í Sandgerði

á laugardagu Prófkjör S-lista Samfylk-ingarinnar og óháðra borgara í Sandgerði vegna sveitarstjórna-kosninga 2014 fer fram laugar-daginn 5. apríl. Kosið verður í Miðhúsum við Suðurgötu í Sandgerði og verður kjörstaður opinn frá kl. 12:00 til kl. 18:00. Sjö einstaklingar gefa kost á sér í prófkjörinu og eru þeir eftir-taldir:Andri Þór Ólafsson gefur kost á sér í 2.-3. sæti.Fríða Stefánsdóttir gefur kost á sér í 2.-4. sæti.Helgi Haraldsson gefur kost á sér í 2.-3. sæti.Kristinn Halldórsson gefur kost á sér í 2.-4. sæti.Lúðvík Júlíusson gefur kost á sér í 1.-6. sæti.Ólafur Þór Ólafsson gefur kost á sér í 1. sæti.Sigurveinn Bjarni Jónsson gefur kost á sér í 2. sæti.

Þrjú efstu sætin eru bindandi.

Framboðslisti Sjálfstæðisflokks-

ins í Grindavík samþykktur

u Framboðslisti Sjálfstæðis-félags Grindavíkur vegna sveita-stjórnarkosninganna 31. maí næstkomandi var samþykktur á fundi fulltrúaráðs félagsins í vik-unni. Oddviti listans er Hjálmar Hallgrímsson lögreglumaður.

Framboðslistinn í heild:1. Hjálmar Hallgrímsson2. Guðmundur Pálsson3. Jóna Rut Jónsdóttir4. Þórunn Svava Róbertsdóttir5. Sigurður Guðjón Gíslason6. Klara Halldórdóttir7. Ómar Davíð Ólafsson8. Jón Emil Halldórsson9. Gunnar Harðarson10. Birgitta Káradóttir11. Magnús Bjarni Pétursson12. Berta Grétarsdóttir13. Kristín Gísladóttir14. Vilhjálmur Árnason

Umhverfisátak í Vogum

- Bæjarbúar fá áskorun í pósti.

uÁ næstu dögum verða send út fjölmörg bréf til eigenda fast-eigna og lóða í Vogum þar sem umgengni er ábótavant. Eigend-urnir eru hvattir til að taka til hjá sér, losa sig við rusl af lóðum, þ.m.t. bílhræ, sækja um stöðu-leyfi þar sem það á við, ganga þannig frá húsum og munum að ekki stafi hætta af o.s.frv.Með þessum vinsamlegu til-mælum vonast sveitarfélagið til að vel verði við brugðist, þannig að ásýnd sveitarfélagsins batni til muna frá því sem nú er.Umhverfisdagar sveitarfélagsins verða í lok apríl, þá verða gjald-frjálsir dagar fyrir íbúa sveitar-félagsins á móttökustöð Kölku.Sveitarfélagið hvetur alla til að sameinast í átakinu um að ganga vel um.Tökum höndum saman og göngum vel um. „Umgengni lýsir innri manni.“

Page 15: 13 tbl 2014

HÖFUM OPNAÐ FASTEIGNASÖLU AÐ HAFNARGÖTU 51-55

Í REYKJANESBÆ ÓSKUM EFTIR ÖLLUM

TEGUNDUM FASTEIGNA Á SKRÁ

Lilja Valþórsdóttir

Sölumaður fasteigna

Unnar Steinn Bjarndal

hdl.Löggiltur

fasteignasali

facebook.com/prodomofasteignasala // S. 420 4030 // [email protected]

Page 16: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR16

Daglegar fréttir

á vf.is

ATVINNAHJÁ SANDGERÐISBÆ SUMARIÐ 2014

Umsjón með skólagörðum og leikjanámskeiðiSandgerðisbær auglýsir eftir aðila til að hafa umsjón með Skólagörðum bæjarins og leikjanámskeiði fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í sumar.Við leitum að ferskum og áhugasömum einstaklingi sem er 20 ára eða eldri og hefur reynslu af störfum með börnum. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum.

Flokkstjórar í vinnuskólaStarf flokkstjóra Sandgerðisbæjar er laust til umsóknar. Um er að ræða verkstjórn og leiðbeiningu yngri ungmenna sem eru í Vinnuskóla Sandgerðisbæjar. Við leitum að duglegum einstaklingi 20 ára eða eldri sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður og ákveðinn.

Yfirflokkstjóri í vinnuskólaStarf yfirflokkstjóra í vinnuskóla Sandgerðisbæjar er laust til umsóknar. Um er að ræða verkstjórn annarra flokkstjóra sem og yngri ungmenna sem eru í Vinnuskóla Sandgerðisbæjar. Við leitum að duglegum einstaklingi 20 ára eða eldri sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður og ákveðinn.

Verkstjóri sumarvinnuStarf verkstjóra við sumarvinnu Sandgerðisbæjar er laust til umsóknar. Um er að ræða verkstjórn eldri ungmenna sem ekki eru í Vinnuskóla Sandgerðis-bæjar. Við leitum að duglegum einstaklingi 20 ára eða eldri sem er lipur í mannlegum samskiptum, skipulagður og ákveðinn.

Umsækendur þurfa að geta hafið störf 26. maí 2014 og þurfa að heimila skoðun sakavottorðs.

Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 25. apríl 2014.

Nálgast má umsóknareyðublöð á heimasíðu bæjarins, www.sandgerdi.is / http://sandgerdi.is/skjalasafn/pdf/atvinnuumsokn_almenn.pdf og á bæjarskrifstofu Sandgerðisbæjar.

Nánari upplýsingar veita Rut Sigurðardóttir og Jón Ben Einarsson í síma 420 7555.

-aðsent pósturu [email protected]

Já, ég er búin að taka ákvörðun um

að fara í pólitík. Ólíkt „alvöru“ stjórnmála-mönnum þá komu ekki menn að máli við mig og báðu mig að vera með heldur

þurfti ég að leita eftir fólki sem var að hugsa það sama og ég og banka á nokkrar dyr. Mig langar að taka þátt í bæjarmálunum hér á annan hátt en ég hef gert áður og þyrstir í nýjan tón í bæjarmálin. Þar sem ég er ekki tilbúin til að staðsetja mig á þessu hefðbundna pólitíska lit-rófi og ekki upptekin af muninum á hægri og vinstri hentar hópur óflokksbundinna einstaklinga mér. Bein leið hentar mér. Mér finnst ég búa á einum fallegasta stað á landinu þótt ég fái mjög reglu-lega athugasemdir þegar ég held því fram í öðrum sveitarfélögum. Ég er Suðurnesjakona, Keflvíkingur í húð og hár og langt aftur í ættir og þykir óendanlega vænt um bæinn minn. Hér finnst mér vera allt til alls og í bænum býr yndislegt fólk. Ég viður-kenni samt að ég á ennþá frekar erfitt með að líta á mig sem Reykjanesbæ-ing, en það kemur vonandi þegar ég verð stór. Eftir að ég tók ákvörðun um að vinna með því fólki hér í bæjar-

félaginu sem langar að fara í hlutina á svipuðum nótum og ég, fólki sem ég treysti fullkomlega, hef ég fengið ýmis skemmtileg viðbrögð. Sumir hafa hvatt mig mikið og aðrir hvatt mig aðeins minna. Flestir hafa nefni-lega skoðun á því hvernig hinn eini sanni stjórnmálamaður á að vera svo að hann fái nú atkvæði. Ég hef ekki endilega fengið að heyra hvað fólk vill að ég geri en aftur á móti geri ég mér alltaf betur grein fyrir því að ég þarf helst að vera voða sæt, sem ég klárlega er, en ég þarf líka að vera skemmtileg, brosandi, sjarmerandi og helst að geta sagt góða brand-ara. Svo þarf ég að koma með eitt-hvað nýtt í bæjarmálin. Ég ætla að gera þetta allt með bros á vör og er löngu byrjuð að æfa mig. Það sem mig langar hins vegar að gera öðru fremur er að vera heiðarleg, vinna vel, sýna auðmýkt og geta viðurkennt að ég kann ekki allt og á örugglega eftir að gera mistök. En það hljómar bara svo leiðinlega.Ég ætla að sjá til þess að byggð verði risarennibraut yfir Faxaflóann, út-vega hræódýra orku í allar fyrir-hugaðar verksmiðjur á svæðinu og nægt fjármagn í háhraðalest til Reykjavíkur. Að sjálfsögðu mun ég strax flytja flugvöllinn frá Reykja-vík til Reykjanesbæjar og að endingu mun ég breyta klukkunni líka. Þegar

ég er búin að þessu öllu langar mig að innleiða ný vinnubrögð í bæjar-málin. Gera stjórnsýsluna gegnsæja og opna og reka bæjarsjóð í samráði við bæjarbúa. Þar sem ásýnd bæjar-ins okkar er bara orðin mjög flott finnst mér kominn tími til að hvíla verklegar framkvæmdir nema þær allra nauðsynlegustu og hlúa betur að fólkinu okkar. Hugmyndin um verk-smiðjuhverfi í Helguvík hugnast mér alls ekki en tel aftur á móti mikilvægt að fara nýjar leiðir í að koma höfn-inni á kortið til að geta farið að borga gamlar skuldir upp á mjög margar krónur.Ég sé fyrir mér að hér í bæ geti komið saman hópur fólks sem vinnur sam-eiginlega að því að gera bæinn enn betri, já að samfélagi þar sem okkur líður vel. Pólitík er nefnilega ekk-ert annað en samskipti og virðing milli fólks og þess umhverfis sem það býr við hverju sinni. Við getum svo vel unnið þetta á nýjum nótum. Ég tel mikilvægt að fleiri raddir komi að ákvarðanatöku varðandi bæjar-málin og við kveðjum í bili núverandi stöðu þar sem einn flokkur fer með óskorðað vald í nánast allri ákvarð-anatöku. Breytum þessu saman!

Kolbrún Jóna Pétursdóttir

Ég heyrði í RÚV í gær (30. apríl)

kynningu á rokk-minjasafni sem verið er að koma fyrir í Stapa í Njarðvík. Stjórnandi þáttar-ins og væntanlega

kynningarstjóri safnsins fóru þar yfir allt sem á að vera í hinu nýja safni og kennir þar margra grasa. Þarna á sem sagt að vera sögu-sýning um dægurtónlist á Íslandi og hljómaði það allt ágætlega og virtust þeir þekkja vel til þess hvaða hljómsveitir og söngvarar hafa gert garðinn frægan á Íslandi síðustu 70 árin. Það sem vantaði inn í sögu-skýringu þeirra félaga var að þekkja bakgrunninn fyrir þeirri byggingu, Stapa, sem hýsir þessa sýningu og sögu hennar. Stapi er sögufrægasta hús íslenskrar poppsögu og hefur hýst allar helstu rokkstjörnur landsins. Þá sögu ætti ekki síður að varðveita en nöfn þeirra fjölmörgu hljómsveita sem þar hafa komið fram og sungu „ég fór á ball í Stapa á því var engu að tapa“.

Byggingarsaga Stapa er mjög merkileg en húsið var reist í Njarð-vík af félagasamtökunum þar og var Ólafur Sigurjónsson formaður UMFN potturinn og pannan í því að reisa þetta musteri rokksins og framkvæmdastjóri hússins til dauða-dags. Þetta hús var stærsta hús sinnar tegundar á landinu þegar það var reist. Þessari sögu klæmdust stjórn-andi þáttarins og kynningarstjórinn á í gær enda ekki sérlega annt um að muna hvar þeir voru né hverjir áttu frumkvæðið að þessari byggingu. Nafnið Stapi er ekki heldur mjög heilagt í huga stjórnenda Reykjanes-bæjar þó það væri valið eftir viða-mikla nafnasamkeppni. Nú skal það víkja og nefnast Hljómahöll. Ég hef áður lýst yfir undrun minni á þeirri ákvörðun stjórnenda Reykja-nesbæjar að breyta nafninu á Stapa í Hljómahöll. Forsvarsmenn bæjarins hafa sagt að ekkert væri að breytast því nafnið á Stapa yrði áfram. Það stenst auðvitað ekki skoðun.

Kristján Pálsson fv. form. UMFN

n Kolbrún Jóna Pétursdóttir skrifar:

Ætlar ÞÚ í pólitík?

n Kristján Pálsson skrifar:

Stapi musteri rokksins

Sími 412 2500 - [email protected] - www.murbudin.is

LAMPAÚRVAL

Kletthálsi Reykjavík

Reykjanesbæ

Ryco LDL-MD418A lampi m. grind 4x18W T8 62x60x8 cm með perum

T38 vinnuljós með 38W CLF peru

5.290

Ryco lampi með perum hvítur spegill 2x36W

4.690

Ryco LCL-M2 T8 lampi 2x36W 113 cm IP30 með perum

5.990 3.695

5.990

3.515

RÝMINGARSALA

TIL SÖLU 

Veitingarekstur með nætursölu og bílalúgu á besta stað í Keflavík.

Upplýsingar á skrifstofu.

Hafnargötu 20 // 230 Reykjanesbæ // Sími: 420 4000 // www.studlaberg.is

Guðlaugur H. GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali

Page 17: 13 tbl 2014

Hljómahöll er ný tónlistar- og menningarmiðstöð í Reykjanesbæ. Hlutverk hennar er að vera mikilvægur ve�vangur �öl�rúðugs mannlífs, ráðstefnuhalds, funda og menningarviðburða í Reykja- nesbæ. Hið sögufræga félag­eimili Stapi er hlu� af Hljómahöll og þjónar áfram sínu hlutverki eins og áður. Auk þess er ný� Rokksafn Íslands hlu� af Hljómahöll en því er ætlað að verða aðdrá�arafl �rir innlenda og erlenda ferðamenn sem vilja kynnast og upplifa popp- og rokksögu Íslands.  Í húsi Hljóma-hallar hefur Tónlistar�óli Reykjanesbæjar einnig fengið ný� og glæsilegt kennsluhúsnæði. Með �lkomu Hljómahallar er lagður grunn- ur að auknum atvinnutækifærum í �apandi greinum á Reykja-nesi.

Page 18: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR18

-uppboð pósturu [email protected]

ATVINNABlaðberi óskast til að bera út

Morgunblaðið í Innri-Njarðvík.

Upplýsingar gefur Kristrún í síma 862 0382.

Fimmtudaginn 3. apríl 2014 kl. 19:30 á Flughóteli Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ

Dagskrá:1. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár.2. Endurskoðaðir reikningar fyrir síðastliðið reikningsár. lagðir fram til samþykktar.3. Kosningar (stjórn og skoðunarmenn reikninga).4. Kosnir fulltrúar á aðalfund Krabbameinsfélags íslands.5. Önnur mál. Fræðsluerindi.

Krabbamein í ristli og endaþarmi.Steingerður Anna Gunnarsdóttir ly�æknir og sérfræðingur í meltingafærasjúkdómum.

Félagar og velunnarar Krabbameinsfélags Suðurnesja eru hvattir til að mæta.

Stjórnin

AÐALFUNDUR

Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOРEinnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Beykidalur 2, fnr. 229-8425, Innri Njarðvík, þingl. eig. Jóhann Ás-mundur Lúðvíksson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 10:40. Beykidalur 2, fnr. 229-8426, Njarð-vík, þingl. eig. Björgvin Árnason og Helga Gunnólfsdóttir, gerðarbeið-endur HS veitur hf og Íbúðalána-sjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 10:35. Hafdalur 5, fnr. 231-4345, Njarð-vík, þingl. eig. María Svavarsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 10:25. Hjallavegur 7, fnr. 209-3455, Njarð-vík, þingl. eig. Þorlákur Anton Holm, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 08:30. Holtsgata 1, fnr. 209-3605, Njarð-vík, þingl. eig. Jóhannes Helgi Ein-arsson, gerðarbeiðendur Íbúðalána-sjóður og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 08:40. Klettás 2, fnr. 226-1820, Njarðvík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:10. Klettás 4, fnr. 226-1823, Njarðvík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:15. Klettás 6, fnr 226-1825, Njarðvík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:20. Klettás 8, fnr. 226-1828, Njarðvík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:25. Klettás 10, fnr. 226-1832, Njarð-vík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:30. Klettás 14, fnr. 226-0211, Njarð-vík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:35. Klettás 16, fnr. 226-0213, Njarð-vík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:40. Klettás 18, fnr. 226-0215, Njarð-vík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:45.Klettás 20, fnr. 226-0217, Njarð-

vík, þingl. eig. Leigufélagið Skjól ehf, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 09:50. Sjávargata 32, fnr. 221-6499, Njarð-vík, þingl. eig. Jón Vigfússon, gerðar-beiðendur Reykjanesbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudag-inn 8. apríl 2014 kl. 09:00. Tjarnabakki 6, fnr. 229-8553, Njarðvík, þingl. eig. Guðrún Geirs Árnadóttir, gerðarbeiðandi Íslands-banki hf, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 10:15. Túngata 19, fnr. 209-2436, Grinda-vík, þingl. eig. Garðar Páll Vignis-son, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 11:30. Vogagerði 3, fnr. 209-6557, Vogum, þingl. eig. Sigríður Baldursdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 11:00. Þórustígur 4, fnr. 209-4188, Njarð-vík, þingl. eig. Elizabeth Ama Ghun-ney, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 8. apríl 2014 kl. 08:50. 

Sýslumaðurinn í Keflavík,2. apríl 2014.

Ásgeir Eiríksson,staðgengill sýslumanns. 

Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOРEinnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á skipinu Magnús GK-064 sknr. 7432 verður háð mið-vikudaginn 9. apríl 2014 kl. 08:30 á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Keflavík. Þinglýstur eigandi er   Útgerðar-félagið Grímur ehf, gerðarbeiðandi er Íslandsbanki hf. 

Sýslumaðurinn í Keflavík,2. apríl 2014.

Ásgeir Eiríksson,staðgengill sýslumanns.

 Sýslumaðurinn í KeflavíkVatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOРEinnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Austurgata 11, fnr. 209-4649, Sand-gerði, þingl. eig. Ármey Guðný Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbú-ðalánasjóður, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 11:00. Básvegur 8, fnr. 208-7005, Kefla-vík, þingl. eig. Albak ehf, gerðarbeið-endur Landsbankinn hf. og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 9.

apríl 2014 kl. 09:10. Hafnargata 79, fnr. 208-8152, Keflavík, þingl. eig. Gunnar Ólafs-son, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 09:00. Heiðarendi 6, fnr. 225-1206, Kefla-vík, þingl. eig. Arnar Már Jónsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 10:20. Heiðarholt 32, fnr. 208-8852, Kefla-vík, þingl. eig. Sigurður Óskar Sig-urðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalána-sjóður, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 10:10. Hólabrekka, landnr. 130008, Sand-gerði, þingl. eig. Axel Már Walters-son, gerðarbeiðendur Innheimtu-stofnun sveitarfélaga og Sandgerðis-bær, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 11:20. Hrannargata 6, fnr. 208-9184, Keflavík, þingl. eig. Albak ehf, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Vörður tryggingar hf., miðviku-daginn 9. apríl 2014 kl. 09:20. Hringbraut 106, fnr. 208-9403, Keflavík, þingl. eig. Runólfur Sig-tryggsson, gerðarbeiðendur MP banki hf., N1 hf., Sjóvá-Almennar tryggingar hf og Vátryggingafélag Ís-lands hf, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 08:50. Iðavellir 10a, fnr. 228-6906, Kefla-vík, þingl. eig. Ice Bike ehf, gerðar-beiðandi Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 10:00. Mávabraut 6, fnr. 208-9923, Kefla-vík, þingl. eig. Ævar Pétursson, Linda Björk Pálmadóttir og Sigrún Erla Gunnlaugsdóttir, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, mið-vikudaginn 9. apríl 2014 kl. 09:30. Mávabraut 7, fnr. 208-9936, Kefla-vík, þingl. eig. Wojciech Kalinowski, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Mávabraut 7-11,húsfélag og Reykja-nesbær, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 09:10. Túngata 1, fnr. 209-5150, Sand-gerði, þingl. eig. Helgi Karl Hafdal, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 10:50. Vallargata 31, fnr. 209-5264, Sand-gerði, þingl. eig. Jóhann G Óskars-son og Katrín Merlie Óskarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 9. apríl 2014 kl. 10:40. 

Sýslumaðurinn í Keflavík,2. apríl 2014.

Ásgeir Eiríksson,staðgengill sýslumanns.

-aðsent pósturu [email protected]

Síðan ég byrjaði að þjálfa júdó í

Reykjanesbæ hef ég tekið eftir hlutum sem mér voru huldir og/eða þóttu bara vera eðlilegir hér áður fyrr. Í þessum

pistli ætla ég að ræða fjáraflanir.

Er siðlegt að nota umframfé sem gjaldeyri?

Mörgum þykir mikið sanngirnis-mál að þeir sem afli fjárins fái sann-gjarnan hlut, þ.e. að allur ágóði fari til þeirra sem hafa fyrir því að selja og að „letingjarnir fá ekki neitt“. Oft er það nú þannig að afgangur verður af söfnunum. Til dæmis kostar ferð minna en áætlað var eða börnin hafa safnað hærri fjárhæðum en þörf er á. Hvað á að gera við umframfé? Ef til vill þykir mörgum rétt að söfnunar-féð eigi a renna í gjaldeyrissjóð þeirra sem safnað hafa peningunum. Þarna

þykir mér grundvallarmisskilningur hafa orðið á hugtökunum félagsandi og sanngirni.

Ólíkur félagslegur bakgrunnur barna

Í félagi hjálpast allir að að ná mark-miðum sínum með samstilltu átaki. Í minni orðabók er ekki til neitt sem heitir löt börn. Yfirleitt liggur einhver ástæða að baki þess að þau taki ekki þátt í fjáröflunum. Innflytjendur eða börn innflytjenda og/eða aðflutt fólk eiga til dæmis ekki auðvelt með að selja stórfjölskyldu sinni eða vinum vörur til fjáröflunar. Félagslegur bak-grunnur barna er mjög ólíkur og við þurfum að taka tillit til þess. Börn með félagsfælni (sem eiga líklega foreldra með félagsfælni) geta ekki hugsað sér að fara og ganga í hús hvað þá að standa í verslunarmið-stöðvum og selja vörur til fjáröflunar. Margt annað getur hamlað, til dæmis veikindi á heimili; líkamleg eða and-

leg, svo eitthvað sé nefnt. Er það ekki hluti af félagsandanum að styðja og hjálpa þessum einstaklingum? Er sanngjarnt að börn þurfi að sitja heima og missa af mótum og ferða-lögum, vegna sjúkdóma, heimilisað-stæðna eða breytinga á búsetu?

Endurvekjum félagsandannÞegar við styðjum og styrkjum félags-starfsemi gætum þess þá vel upp á í hvað styrkirnir fara. Eru þeir notaðir til uppbyggingu félagsstarfsins eða í gjaldeyri fyrir þá sem eiga sterkt bakland og hafa tækifæri á að safna háum fjárhæðum. Endurvekjum fé-lagsandann og vinnum saman og styðjum við bakið á félögum okkar þegar þörf er á!

Guðmundur Stefán Gunn-arsson, þjálfari júdódeildar

UMFN og í 5. sæti lista Fram-sóknar í Reykjanesbæ.

n Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar:

Letingjarnir fá ekki neitt

Bílageirinn ehf óskar eftir lærðum og vönum bifvélavirk-ja á þjónustuverkstæði okkar til starfa sem fyrst.

Íslensku kunnátta skilyrði.

Umsóknir óskast sendar á [email protected]

Frekari upplýsingar um starfið eru í síma 421-6901 / 8939531 Björn

 

ATVINNA

Valgerður Sigfúsdóttir, Guðmundur Karlsson,Sigurbjörg Ingunn Sigfúsdóttir, Birgir Pálmason,Björg Elsa Sigfúsdóttir,Jóhannes Sigfússon, Lára Ágústa Ólafsdóttir,barnabörn og barnabarnabörn.

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,

Erla Hulda Árnadóttir,Pósthússtræti 3 í Keflavík,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 26. mars. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju

þriðjudaginn 8. arpíl kl. 13:00.

Page 19: 13 tbl 2014

Njarðarbraut 13 Reykjanesbæ Sími 420 3040www.heklarnb.is

Við höldum upp á ŠKODA daginn á Suðurnesjum 5. apríl kl. 12-16

Við hvetjum ŠKODA eigendur og unnendur til að fjölmenna á stóra ŠKODA daginn laugardaginn 5. apríl kl. 12-16.

• Reynsluakstur á liprum ŠKODA

• Allir ŠKODAR fá ókeypis þvott

• Gos og pylsur fyrir alla

• Glæsilegt úrval ŠKODA bifreiða

• Blöðrur og glaðningur fyrir börnin

Komdu og eigðu góðan ŠKODA dag með okkur!

ŠKODA bifreiðar eru þekktar fyrir sparneytni og lága bilanatíðni. Það þekkja hinir fjölmörgu ŠKODA eigendur á Íslandi best.

VELKOMIN ÁSKODA DAGINNVELKOMIN ÁSKODA DAGINN

Kynntu þér ŠKODA Octavia sem var mest

seldi bíll á Íslandi árið 2013

Eitthvað fyrir alla í HEKLU

Reykjanesbæ

SIMPLY CLEVER

Page 20: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR20

Daglegar

fréttir á vf.is

-mannlíf pósturu [email protected]

TIL LEIGU

Fiskvinnsluhúsnæði til leigu!Til leigu 350 m2 vottað fiskvinnslu-húsnæði við Hrannargötu.Uppl. í síma 860 8909 og 895 8230.

Einstaklingsíbúð til leigu.Studeoíbúð í Njarðvík, ca. 50fm. til leigu, laus strax. Óskað er eftir leigjanda 55ára eða eldri.Upplýsingar í síma 867-3909.

- smáauglýsingar

BílaviðgerðirPartasala

Kaupum bilaðaog tjónaða bíla

Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979www.bilarogpartar.is

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 3. - 9. apríl nk. • Bingó • Listasmiðja • Handverk

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Félagsvist • Bridge

• Hádegismatur • Síðdegiskaffi

Föstudaginn 4. apríl nk.Léttur föstudagur.

Spilabingó og kaffisala.

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.rnb.is

Smiðjuvegur 1 | Reykjavík | [email protected] | www.atak.is Tel. 554 6040

Óskum eftir að ráða starfsfólk í starfstöð okkar við Leifsstöð.

Um er að ræða afgreiðslu á bílaleigubílum, star�ð felst aðstærstum hluta í að þjónusta erlenda ferðamenn.

Viðkomandi skal vera a.m.k. 23 ára, hörkuduglegur meðríka þjónustulund eiga gott með mannleg samskipti,

stundvís, samviskusamur og reglusamur.

Átak bílaleiga fagnar 35 ára afmæli um þessar mundirog hefur alltaf lagt mikinn metnað í þjónustu sína við

ferðamenn Íslenska jafnt sem erlenda.

Viljum ráða í framtíðar- og sumarstörf.Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Umsóknir sendist á [email protected] fyrir 10. apríl.

Hefur þú ríka þjónustulund?

EX

CELLENT SER

VIC

E1979 – 2 0 1 4

35YEARS

HÓLAGÖTU 15 // REYKJANESBÆ // 421-6070 // [email protected] MEÐ OKKUR Á FACEBOOK (SHIP O HOJ REYKJANESBÆR)

SK

ISS

A

GRINDVÍKINGAR FÁ FRÍA HEIMSENDINGUÁ SAMA VERÐI OG ÚT ÚR VERZLUN!

TILBOÐSDAGAR Á GRILLKJÖTI!FRÁBÆR GRILL- OG VEISLUMATUR FYRIR ÖLL TILEFNI

SÉRVALIÐ NAUTAKJÖTLAMBA- OG SVÍNAKJÖT Í GÓMSÆTUM KRYDDLEGI

FISKURINN – SÁ FERSKASTI Í BÆNUMALVÖRU PLOKKFISKUR OG FISKIBOLLUR (TILBÚIÐ TIL HITUNAR )

GEGGJUÐ HUMARSÚPA (TILBÚIN TIL HITUNAR)ÝMSAR SÓSUR OG SÉRVÖRUR

BJÓÐUM Í VEISLUR AF ÖLLU TAGI

-ung pósturu [email protected]

Hvað gerirðu eftir skóla? Yfirleitt fer ég bara að horfa á þætti og chilla.

Hver eru áhugamál þín? Fimleikar og hárgreiðsla.

Uppáhalds fag í skólanum? Ekkert en það er skárst í íþróttum og vali.

En leiðinlegasta? Stærðfræði og íslenska.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það? Harry Styles, klárlega.

Ef þú gætir fengið einn ofur-kraft hver væri hann? Að geta flogið!

Hvað er draumastarfið í framtíðinni? Að verða hárgreiðslukona.

Hver er frægastur í símanum þínum? Örugglega Elma Rósný.

Selma Sól Hjaltadóttir er í UNG vikunnar. Hún er í 9. bekk í Heiðar-skóla. Henni finnst gaman í fimleikum og langar að verða hárgreiðslu-kona í framtíðinni.

Skrýtinn stelpa sem finnst allt fyndið!

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt? Hef ekki hitt neinn það merkilegan.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnilegur í einn dag? Ha ha ha... er ekki allveg viss.

Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum? Mjög venjulegum bara.

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu? Skrýtinn stelpa sem finnst allt fyndið!

Hvað er skemmtilegast við Heiðarskóla? Við erum með iPada og kennararnir eru víst fínir.

Hvaða lag myndi lýsa þér best? Er ekki alveg viss.

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best? Einginn spes held ég.

BESTA:Bíómynd? Pétur Pan.

Sjónvarpsþáttur? Pretty Little Liars eru

bestu þættirnir.

Tónlistarmaður/Hljómsveit? One Direction.

Matur? Pizza.

Drykkur? Vatn líklegast.

Leikari/Leikkona? Austin Butler.

Fatabúð? Forever 21.

Vefsíða? Facebook.

Bók? 13 ástæður.

Hljómahöllin í Reykjanesbæ formlega opnuð á laugardag.

Á sunnudag verður opið hús fyrir bæjarbúa í tilefni opnunarinnar frá kl. 14:00 - 19:00 og verða fjölmargir tónlistarviðburðir í höllinni. Há-tíðin hefst með því að Forskóli Tón-listarskóla Reykjanesbæjar, ásamt

lúðrasveit skólans, spila kl. 14:00. Einnig koma fram hljómsveitin Eldar, Kvennakór Suðurnesja, Karlakór Keflavíkur, Eldey - kór eldri borgara og Harmonikkufélag Suðurnesja. Auk þess verður röð kennaratónleika á vegum Tónlistar-skóla Reykjanesbæjar.

Hljómahöllin opnar um helgina

Fíkniefnaviðskipti í kirkjugarðiTveir karlmenn voru staðnir að fíkniefnavið-

skiptum í kirkjugarði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undir miðnætti kvöld eitt á dög-unum. Lögreglumenn, sem voru við hefðbundin eftirlitsstörf, sáu til mannanna þar sem þeir áttu stuttan fund og kvöddust svo. Allt atferli þeirra, svo og fundarstaður, vöktu grunsemdir og þegar lögreglumenn höfðu tal af mönnunum var af þeim megn kannabislykt. Annar þeirra kvaðst hafa fengið kannabis hjá hinum og framvísaði hann poka með kannabisefni.Lögreglumenn fóru við svo búið í húsleit hjá meintum

seljanda, sem hann hafði heimilað. Þar framvísaði hann poka með kannabisefnum, auk tveggja umslaga sem höfðu að geyma kannabisefni, sem búið var að skera niður í neysluskammta.Þá haldlagði lögregla lítilræði af kannabis í öðru hús-næði í umdæminu .Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upp-lýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er sam-vinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Page 21: 13 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 3. apríl 2014 21

Sérkenni fámennra sveitarfélaga felast oft í því að tiltölulega hátt

hlutfall íbúanna starfar hjá sveitar-félaginu. Það er því nokkuð sterkt samhengi á milli ánægju starfsfólks og íbúanna almennt. Starfsfólkið getur haft mikil áhrif á þróun sam-félagsins og árangur.Á dögunum fengum við í Sveitar-félaginu Vogum niðurstöður starfs-ánægjukönnunar sem gerð var á meðal starfsfólks í upphafi árs. Er þetta í annað sinn sem við látum framkvæma slíka könnun þar sem öllum er boðin þátttaka og niður-stöður nýttar til að bæta um betur og gera góðan vinnustað enn betri. Könnunin gefur kost á samanburði við fyrri mælingu og auk þess fáum við samanburð við vísitölu sem þró-ast hefur frá árinu 2004 og byggir á niðurstöðu fjölmargra fyrirtækja og stofnana frá þeim tíma.Niðurstöðurnar í ár voru sérstak-lega ánægjulegar. Þær sýna glöggt að starsfólk Voga leggur sig fram við að veita bæjarbúum góða þjónustu og er ánægt og metnaðarfullt í störfum sínum.Á meðal þeirra þátta sem mældir eru eru og búa að baki starfsánægjunni eru ímynd, stjórnun, næsti yfir-maður, samstarf, starfið sjálft og starfsskilyrði.Stjórnendur í Vogunum fá fyrstu ein-kunn frá samstarfsfólki sínu sem er mjög ánægjulegt. Það sem skoðað er sérstaklega varðandi stjórnendur er sýn starfsfólks á faglega hæfni og stjórnunarlega hæfni næsta yfir-manns. Það eflir mann í þeim verk-efnum sem framundan eru að vita að hverri einingu sé stýrt af færu fólki sem nær að virkja þann auð sem í starfsfólkinu býr. Starfsfólkið er einn-ig mjög ánægt með samstarfið sín á milli, bæði faglegt samstarf, starfs-andann og félagsleg samskipti á vinnustaðnum. Starfið sjálft og inni-hald þess mælist mjög hátt og starfs-skilyrðin mælast töluvert umfram það sem gerist á hinum almenna markaði.Í fyrra mældust þessir þættir einnig vel og er ánægjulegt að sjá að þeir stefna enn upp á við. Þær aðgerðir sem ráðist var í í kjölfar könnunar-innar í fyrra var að skoða álag á starfsfólk og hvaða leiðir mætti nýta til að draga úr því. Einn liður í því var að bjóða starfsfólki upp á fyrirlestur um orkustjórnun á sameiginlegum

starfsdegi starfsfólks. Upplifun starfs-fólks á álagi mælist nú töluvert minni en í fyrra, sem við fögnum mjög.Upplýsingastreymi er mikilvægur þáttur í upplifun fólks á vinnu-staðnum og því leggjum við áherslu á að það sé gott. Mælingarnar hafa sýnt að við erum þar enginn eftirbátur annarra en við viljum gera enn betur. Við skoðuðum með hvaða hætti mætti auka upplýsingastreymi og höfum þegar komið á starfsdegi alls starfsfólks einu sinni á ári auk þess sem undirritaður sendir út vikulega/

hálfsmánaðarlega pistla með um-fjöllun um það sem helst er á döfinni hverju sinni.Það er mat mitt að með áframhald-andi uppbyggingu og þróun mann-auðsmála hjá sveitarfélaginu sköpum við ekki eingöngu eftirsóttan vinnu-stað heldur öflugra samfélag, búun-um til heilla.

Ásgeir Eiríksson,bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga

Hugmyndafræði og markmið hjúkrunar á Hrafnistu er að viðhalda færni hvers og eins, bæta líðan, efla sjálfsbjargar getu og sjá til þess að hinn aldraði geti haldið reisn sinni. Við leggjum ríka áherslu á styrkleika hvers og eins og að veita aðstoð sem getur skapað gleði og ánægju í daglegu lífi. Markmið Hrafnistu er að fylgjast með því besta sem er að gerast í hjúkrun aldraðra.

Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemarLangar þig til að vinna gefandi starf í sumar í heimilislegu umhverfi og góðum félagsskap!

Óskum eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum til starfa í sumar á

Hrafnistuheimilin í Reykjanesbæ. Hrafnistuheimilin eru þroskandi vinnustaður

þar sem starfsfólki gefst tækifæri til að afla sér reynslu og þekkingar.

Gott vinnuumhverfi stuðlar að því að hæfileikar hvers og eins njóti sín.

HRAFNISTA Reykjanesbæ

Sumarvinna

HRAFNISTAReykjavík I

Kópavogur I Reykjanesbær

nánari upplýsingar veitir Hrönn Ljótsdóttir forstöðumaður Hrafnistu Reykjanesbæjar [email protected] - sími 664 9550

Óvenjulega góð og hreinsandi vorsúpa

Vorið er handan við hornið og líkaminn farin að kalla á meira grænt þannig að það er vel við hæfi að deila upp-skrift að afar fljótlegri súpu sem er allt í senn hreins-andi, nærandi og létt í maga. Vorið er svo yndislegur

árstími að mínu mati og og alltaf svo notaleg tilfinning þegar maður finnur hvað daginn er að lengja, heyrir fuglana syngja og sér litlu vor-blómin gægjast í garðinum. Mér er mikið í mun að hvetja fólk til þess að auka inntöku sína á grænmeti og ávöxtum og eru súpur sem þessar algjör snilld til þess að húrra vel upp daglega skammtinum okkar. Súpa sem þessi flokkast sem hráfæðissúpa og eru alltaf kaldar til að viðhalda lifandi ensímum og næringarefnum sem gera kroppnum svo gott (megið samt alveg líka nota heitt vatn ef viljið hafa hana aðeins volga). Það besta við svona súpu er að maður snarar þessu fram á 5 mín í blandara eða mat-vinnsluvél. Endilega prófið þessa, hún er æði

og kemur á óvart!

Avókadó, aspas og spínatsúpa:2 avókadó2 bollar vatn2 bollar ferskur aspas(í bitum, skera enda frá)2 msk sellerí saxað4 tsk tamari sojasósa2 msk sítrónusafi1 tsk vorlaukur1 hvítlauksrif kramið¼ tsk þurrkað timjan½ tsk tarragon krydd1 ½ bolli ferskt spínat½ tsk sjávarsaltsmá malaður piparögn af cayenne pipar

Öllu skellt í blandara og njóta...

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.www.facebook.com/grasalaeknir.is

www.pinterest.com/grasalaeknir

HEILSUHORNIÐ

ÁSDÍSGRASALÆKNIRSKRIFAR

-aðsent pósturu [email protected]

Að vera leikinn í eigin lífi er ekki sjálfgefið. Allir rekast

einhvers staðar á. Og við lærum af þeirri reynslu. En öll viljum við vera hamingjusöm, heilbrigð og glöð. Í nútímasamfélagi Íslands er hraði hversdagsins mikill. Allt gerist hratt og áreitin sem dynja á okkur hverja stund eru óteljandi. Börnin okkar alast upp í þessum hraða og stressinu sem því fylgir. Þau hafa sjálf mýmargt að gera á hverjum degi. Skólaárið hefur lengst með árunum og framboð á íþróttum og tómstundum aukist. Svo ekki sé talað um tölvur og síma sem taka mikinn tíma frá börnunum og gefa lítið í staðinn nema áreiti.Lífsleikni er námsgrein sem kennir leikni í hamingju og velferð. Góð lífsleiknikennsla kennir krökkum að slaka á og upplifa stundina sem að þau eru stödd í hér og nú. Að æða ekki í gegnum lífið án þess að taka eftir og njóta alls þess góða sem það hefur upp á að bjóða. Þessi hugsun kallast núvitund og er tímabært að krakkarnir fari að tileinka sér hana.

Að hugsa inn á við og ígrunda hvernig ma ð u r hu g s ar o g hagar sér. Hvernig maður kemur fram við aðra og hvort maður hugsi áður en maður talar. Lífsleikninám býður einnig upp á ýmsar aðferðir til þess að æfa góð samskipti og þjálfar krakka í því hvernig á að takast á við erfiðar að-stæður sem kunna að koma upp.Bókin „Að sitja fíl, nám í skóla um velferð og hamingju“ eftir Ian Morris leggur grunninn að kennslu í þessum efnum, og legg ég til að skólar nýti sér hana. Með aukinni lífsleiknikennslu má ganga að því vísu að ef nem-endur vinna vel í tímum og stunda þá íhugun sem lögð er til grundvallar í námsefninu þá munu þeir standa sig betur í hinum námsgreinunum.Þeir sem að læra lífsleikni læra að verða sérfræðingar í sinni eigin vel-ferð og lífshamingju. Þegar velferð er sett í öndvegi eru sex meginreglur samkvæmt Ian sem geta leiðbeint um hvernig gera má öllum kleift að blómstra.

• Kyrrð • Vitund • Styrkleikar • Hyggindi • Gildi • Tengsl/samskipti

Í hraða nútímasamfélags fer enginn varhluta af stressinu í kringum okkur. Krakkarnir finna jafnt fyrir þessu og fullorðna fólkið. Með því að fá krakk-ana til þess að staldra við, slaka á og upplifa stund og stað má fá þau til þess að vega og meta eigið framferði og gildi. Ég hvet grunnskóla Reykja-ness til þess að taka upp vandaða lífs-leiknikennslu ef að hún er ekki til staðar nú þegar, það mun skila sér í ánægðari, afslappaðri og sjálsörugg-ari þjóðfélagsþegnum.

Eva Björg Sigurðardóttir,Nemi í Tómstunda- og fé-

lagsmálafræði í HÍ.

n Eva Björg Sigurðardóttir skrifar:

Lífsleikni-Nám í velferð og hamingju í grunnskólum-

n Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga skrifar:

Mikil og aukin starfsánægja í Sveitarfélaginu Vogum

Page 22: 13 tbl 2014

fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR22

-íþróttir pósturu [email protected]

Fyrsta viðureign Grindvíkinga og Njarðvíkinga í undanúr-

slitum Domino’s deildar karla í körfubolta hefst á morgun, föstu-daginn klukkan 19:15 í Grinda-vík. Grindvíkingar höfnuðu í þriðja sæti deildarinnar en Njarð-víkingar því fjórða. Grindavík fagnaði sigri í tveimur viður-eignum liðanna í deildinni í vetur. Einnig áttust liðin við í 8-liða úr-slitum bikarsins þar sem Grind-víkingar höfðu eins stigs sigur í spennandi leik. Af þessu að dæma verða Grindvíkingar að teljast sigurstranglegri. Njarðvíkingar eru hins vegar ekki á þeim bux-unum að lúta í lægra haldi. Þeir sendu Hauka í sumarfrí eftir 3-0 viðureign en allir leikirnir voru jafnir og spennandi. Þar sýndu Njarðvíkingar mikinn styrk og koma því fullir sjálfstrausts til móts við meistara síðustu tveggja ára úr Röstinni.

Allt sem mælir með því að þeir klári þessa seríu

Njarðvíkingar hafa ekki unnið leik gegn Grindavík í deildar-keppni síðan í október árið 2009 og því má tala um nokkurs konar Grindavíkurgrýlu hjá þeim grænu.

Einar Jóhannsson þjálfari Njarð-víkinga segir að hann sé ekki að spá mikið í fortíðinni en vissulega sé þetta langur tími. „Það er mikil tilhlökkun og spenna í okkar her-búðum. Við erum búnir að vera að berjast fyrir því undanfarin ár að komast í undanúrslit með þetta unga lið,“ segir Einar en liðið hefur fallið úr keppni undanfarin ár í 8-liða úrslitum. Liðið féll úr leik eftir rimmu gegn Grindvíkingum árið 2012 en þar voru flestir leik-menn liðsins að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og í efstu deild.„Það var tvennt ólíkt að falla úr leik gegn Grindavík árið 2012 og svo gegn Snæfell í fyrra. Gegn Grindavík var maður mjög stoltur af ungu strákunum en gegn Snæfell var þetta virkilega svekkjandi. Við fengum öflugan stuðning og von-brigðin voru mikil,“ segir þjálfar-inn sem telur að liðið sé reynslunni ríkara í ár. „Löngunin virðist vera til staðar núna og við sýndum viss þroskamerki gegn Haukum. Menn hafa þroskast mikið enda fengið að njóta góðs af því að fá mikinn tíma til þess að spila í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur.“Einar snýr sér að þjálfun yngri flokka eftir tímabilið og hann fer ekki í neinar grafgötur með að það hefur áhrif á nálgun hans á síðustu leiki þessa tímabils. „Ég trúi því að það geti hjálpað okkur öllum að staðan sé svona. Við erum búnir að puða mikið saman undanfarin ár flestir og lagt mikið á okkur. Ef þetta er ekki augnablik til þess að kreista út allt það besta á loka-sprettinum þá veit ég ekki hvað.“ Einar er 37 ára gamall en hann telur að hann eigi eftir að koma að þjálfun meistaraflokks aftur, enda bara unglamb í þjálfarastéttinni. „Maður veit aldrei hvað verður. Keppnismaðurinn í mér mun væntanlega grípa völdin á ein-

hverjum tímapunkti og útiloka ég því ekkert.“Njarðvíkingar eru að mæta meist-urum síðustu tveggja ára og nýk-rýndum bikarmeisturum. Að auki hefur liðinu gengið illa gegn þeim gulklæddu undanfarin ár.„Ég á eftir að sjá þetta Njarðvík-urlið sem ég er með í höndunum núna mæta Grindavík. Áður var Nigel með okkur og svo Tracy í töluvert verra formi en hann er í núna þegar við mættum þeim síðast. Þeir eru með gríðarlega sterkt fimm manna lið og mikla reynslu og þekkingu. Við pössum nokkuð vel á móti þeim og tel ég að þarna verði mörg áhugaverð ein-vígi meðal leikmanna sem gaman verður að sjá kljást.“Einar telur að hópar liðanna séu ekkert svo ólíkir en það sé stað-reynd að þekkingin og reynslan á þessu stigi sé meiri Grinda-víkurmegin. „Við berum mikla virðingu fyrir andstæðingunum sem eru meistarar síðustu tveggja ára. Ef eitthvað er þá er þetta bara áskorun. Það er allt sem mælir með því að þeir klári þessa seríu. Það er þó mikill hugur í okkur og stuðn-ingsmönnunum. Ég er bjartsýnn á góðan stuðning frá okkar fólki. Ég hef fulla trú á því að við getum sótt sigur gegn Grindavík sem er fyrsta skref. Við förum í leikinn á föstudaginn til þess að vinna, það er ekki flókið.“

Sverrir treystir á sterka liðsheild

Sverrir Þór segist kunna vel við sig í Grindavík en hann gekk frá nýjum tveggja ára samningi við félagið á dögunum. Þar samdi hann einnig um að taka að sér þjálfun kvenna-liðs félagsins. Eins og áður hefur komið fram eru Grindvíkingar sjóðheitir eftir áramót og stefna þeir hraðbyr að þriðja Íslands-meistaratitlinum í röð.

Þorleifur Ólafsson fyrirliði er úr leik þetta tímabilið eftir að hafa meiðst illa á hné. Sverrir segir það mikið áfall að missa Þorleif út en hann sé þó til taks á bekknum með andlegan stuðning. „Hann er frá-bær leikmaður og mikill leiðtogi í þessu liði. Nú er tækifæri fyrir aðra til að stíga rækilega upp og taka ábyrgð.“ Liðsheildin er sterk hjá Grindvíkingum. Sverrir er á því að mönnum sé umhugað um liðsheildina en ekki tölur og ein-staklingsafrek. „Það er styrkur okkar að leikmenn hugsa fyrst og fremst um gengi liðsins. Við erum svo með marga leikmenn sem geta tekið að sér að bera sóknarleikinn uppi þegar þess þarf.“Varðandi andstæðingana þá segir Sverrir að þar beri margt að varast. „Þeir eru með 7-8 menn sem geta valdið usla og með þekktar stærðir eins og Elvar, Loga og Tracy sem

er óðum að komast í form. Það er engin tilviljun að þetta lið er komið í undanúrslit. Við erum að fara í hörku einvígi við Njarðvík um að komast í úrslit. Við erum að fá mjög erfiðan andstæðing og við verðum að vera klárir ef við ætlum að slá þá út.“Sverrir þekkir Suðurnesjarimmur sem þessar ansi vel enda tekið þátt í þeim nokkrum sem leikmaður og þjálfari. „Það er alltaf meiri spenna í kringum körfuboltann þegar Suðurnesjalið eru að mætast. Það virðist vera einhver extra stemning í Suðurnesjaslag sem þessum og fleiri mæta á leikina. Ég býst við miklum látum og kjaftfullu húsi á föstudag,“ segir þjálfarinn sigur-sæli. „Við tæklum bara einn leik í einu og komum grimmir til leiks. Við ætlum okkur að ná í sigurinn á heimavelli í fyrsta leiknum,“ segir Sverrir að lokum.

n Kveða Njarðvíkingar niður Grindavíkur-grýluna?

GULIR EÐA GRÆNIR Í ÚRSLIT DOMINO’S DEILDARINNAR

Keflvíkinga eru úr leik þriðja árið í röð í 8-liða úrslitum

karla í Domino’s deildinni. Enn og aftur gegn Stjörnumönnum Teits Örlygssonar sem unnu ein-vígið 3-0 þvert á alla spádóma. Þriðji leikurinn var vægast sagt spennandi en hann fór fram í TM-höllinni við Sunnubraut. Lokatölur urðu 93-94 og skoraði Marvin Valdimarsson þriggja stiga körfu þegar ein sekúnda var til leiksloka. Litlu munaði að Þresti Jóhannssyni tækist að lauma boltanum í körfuna á síð-ustu sekúndu en boltinn rúllaði á körfuhringnum.Magnús Gunnarsson fyrirliði Keflvíkinga segist hafa verið fram á mánudagsmorgun að jafna sig á tapinu gegn Stjörnunni og þeirri staðreynd að liðið væri komið í sumarfrí.

„Ég er rétt að jafna mig núna en þetta er búið að vera ömurlegt. Maður trúði hreinlega ekki að maður væri dottinn út. Ef menn mæta ekki tilbúnir þá gerist ekk-ert í þessu,“ segir Magnús en hann telur að rimman hafi tapast í tveimur fyrstu leikjunum þar sem andleysi gerði vart við sig hjá Kefl-víkingum.„Teitur nær að að kreista allt það besta úr þessu liði gegn Keflavík. Þeir eru þó alltaf með gott lið en Teitur er „winner“ og elskar greinilega að vinna Keflavík. Hann á lykilþátt í þessu,“ segir skyttan en Njarðvíkingurinn Teitur Ör-lygsson er þjálfari Stjörnunnar.Magnús segist ekki vita hvað hafi verið í gangi í kollinum á mönnum en þó virðist sem að eftir tap gegn KR í deildinni hafi hallað undan fæti. „Við gætum hugsanlega talið

upp einhverjar afsakanir en eina afsökunin er sú að við mættum alls ekki tilbúnir í leik 1 og 2, því fór sem fór.“Hvað varðar þátt þjálfarans Andy Johnston þá segir Magnús að ekki sé honum um að kenna, leikmenn hafi einfaldlega ekki gert það sem fyrir þá var lagt. Fyrirliðinn segir að hann myndi gjarnan vilja starfa með Andy áfram en óvíst er hvað stjórnin geri þar sem ekki vannst leikur hjá Bandaríkjamanninum í úrslitakeppni, hvorki karla- né kvennamegin.„Við vorum með ákveðin plön en svo lokast á eitthvað hjá okkur. Þetta fór alls ekki eins og við ætl-uðum okkur.“

Teitur með tak á Keflvíkingum

Stjörnumenn fögnuðu gríðarlega. Þröstur og Keflvíkingar niðurbrotnir. VF-mynd/Páll Orri.

Þröstur Jóhannsson sést hér á þessari skemmtilegu mynd með boltann alveg við körfuna á síðustu sekúndu leiksins. Hann lagði boltann á körfuna en hann rúllaði eftir hringnum og út.

Elvar á fleygiferð með Njarðvíkingum. Hann er einn af

lykilmönnum UMFN. VF-mynd/karfan.is

Ólafur Ólafsson hafði ástæðu til að fagna eftir sigurinn á Þór.

VF-mynd/karfan.is

Page 23: 13 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 3. apríl 2014 23

PRÓFKJÖR S-LISTA

SAMFYLKINGARINNAR OG ÓHÁÐRA BORGARA

Í SANDGERÐIFer fram laugardaginn 5. apríl 2014 kl. 12:00 - 18:00.

Kosið er í Miðhúsum við Suðurgötu í Sandgerði

Kjörstjórn S-listans í prófkjöri vegna sveitarstjórnarkosninga í Sandgerði 2014

ATVINNAHS Orka hf óskar eftir að ráða húsasmið til starfa

í viðhaldsdeild fyrirtækisins í Reykjanesbæ

Sótt er um á heimasíðu HS Orku www.hsorka.is. Einnig fást umsóknareyðublöð á skrifstofu. Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl nk.

Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri.

Húsasmiður

Fundarboð 

AÐALFUNDUR  

Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Ke�avíkur og nágrennis verður haldinn í Krossmóa 4, 5. hæð,

mánudaginn 14. apríl nk. kl. 20:00. Dagskrá.

• Venjuleg aðalfundarstörf.• Breyting á reglugerð sjúkrasjóðs.

• Önnur mál.

Ka�veitingar verða á fundinum.   Félagar �ölmennum! 

Stjórnin

Marta Sigurðadótir

Fyrirlestur á Berry.En heilsuvörum8. april, kl. 20 í sal Álfagerðis, Akurgerði 25, Vogum.Berry. En næringargelið hefur nú þegarstóraukið lífsgæði fjölmargra Íslendinga.Heyrið vísindin að baki varanna, reynslusögur og bragðið á gelinu.

Upplýsingar í s. 660 7793 [email protected]

Sjötti Íslands-meistaratitillinn

í röðuTækwondo deild Keflvíkinga nældi sér í enn eina rósina í hnappagatið um síðastliðna helgi þegar liðið fagnaði sjötta Íslandsmeistaratitli í liðakeppni í röð í greininni.Rúmlega 100 keppendur kepptu á mótinu sem haldið var á Sel-fossi. Keflavík var með stórt lið, en þó vantaði marga burðarstólpa liðsins þar sem m.a. fimm svart-beltingar og Íslandsmeistarar voru á HM unglinga í Taiwan. Nánar má lesa um þá för á vf.is. Mótið var mjög spennandi en svo fór að Keflavík sigraði mótið í liða-keppninni og sannaði enn einu sinni yfirburði sína í sportinu.

Lilja Björk Íslands-meistari á jafn-

vægissláuKeflvíkingurinn Lilja Björk Ólafsdóttir varð um sl. helgi Íslandsmeistari á jafnvægisslá í unglingaflokki í frjálsum æf-ingum á áhöldum. Einnig hafn-aði Lilja í öðru sæti í fjölþraut á mótinu sem fram fór í húsnæði Ármenninga í Laugardalnum. Lilja hafnaði í öðru sæti á tvíslá og því þriðja í gólfæfingum, en þær æfingar eru hluti af fjöl-þrautinni. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þessari efnilegu fim-leikakonu.

Heiðarskóli í úrslit í Skólahreysti

- Holtaskóli í 2. sæti og Akurskóli þriðji í undanúrslitum

u Skólar úr Re ykjanesbæ röðuðu sér í þrjú efstu sætin í sjötta undanriðli Skólahreystis í íþróttahúsinu í Smáranum. Heiðarskóli endaði í efsta sæti en átta skólar af Suðurnesjum tóku þátt og jafn margir úr Hafnarfirði.Keppnin var hörð og jöfn fram á síðustu mínútu en lið Heiðarskóla hafði sigur að lokum með 91 stig, eftir harða baráttu við Holtaskóla, og vann sér þátttökurétt í úrslitum 16. maí sem verður í beinni út-sendingu úr Laugardalshöll. Lið Heiðarskóla skipa þau Andri Már Ingvarsson, Arnór Elí Guðjóns-son, Elma Rósný Arnarsdóttir og Katla Rún Garðarsdóttir.Holtaskóli varð í öðru sæti með 82,5 stig en í þriðja sæti var lið Akurskóla með 76,5 stig. Holta-skóli á ennþá möguleika á að komast í úrsit en þeir tveir skólar sem ná besta árangri í öðru sæti úr öllum undanriðlum komast í úrslitakepppnina.

n Njarðvíkingar sigursælir á vormóti JSI:

Gunnar heiðraður á aðalfundiGunnar Örn Guðmundsson,

fyrrverandi Íslandsmeistari í júdó og einn af stofnendum og styrktaraðili júdódeildarinnar, var heiðraður fyrir störf sín á aðalfundi Júdódeildar UMFN/Sleipnis, sem var haldinn 26. mars. Auk þess var minnisvarði um afrek hans hengdur upp á heiðursvegg deildarinnar.Mikið annríki hefur verið hjá júdó-deildinni að undanförnu. Um helg-ina var vormót JSI haldið og sigr-

uðu Njarðvíkingar þrjá flokka og urðu í öðru sæti í stigakeppni liða. Og nú hafa þrír iðkendur deildar-innar verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamót-inu í júdó. Það eru þau Bjarni Darri Sigfússon, Sóley Þrastardóttir og Birkir Freyr Guðbjartsson.Björn Lúkas Haraldsson keppti á Mjölni Open og lenti í þriðja sæti í gífurlega sterkum flokki þar sem 28 keppendur tóku þátt.

ÍG leikur í fyrstu deildÍG frá Grindavík varð um helgina Íslandsmeistari í 2. deild karla eftir

sigur á Álftanesi, 92-89. Liðið mun því spila í 1. deild á næsta tímabili. Með ÍG leika margir góðir Grindvíkingar á besta aldri en einnig má sjá þarna þá Pál Kristinsson frá Njarðvík og Keflvíkinginn Almar Guðbrands-son fyrir miðja mynd í aftari röð. Á leið sinni í úrslitin unnu ÍG menn m.a. sigur á Reyni Sandgerði.

Daglegar fréttir á vf.is

Page 24: 13 tbl 2014

vf.isvf.is

FIMMTUDAGURINN 3. APRÍL 2014 • 13. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

-mundiEkki amalegt að vera köttur í

Grindavík - Vísir að flytja allan fiskinn til bæjarins...

Árni SigfússonÞessi Fender gítar - berið stærðina saman við góðan iðnaðarmann fyrir neðan- var smíðaður af útskurðar-félaginu Einstökum, en hinn vatns-

þolni Jón Ólafsson, tónlistarunnandi, gaf hann poppminjasafninu árið 2006- Kominn í Hljóma-höll yfir sal sem heitir Merkines- þar sem Ellý Vil-hjálms bjó í æsku! - opið hús á sunnudaginn!

Einar Árni Jóhannsson"Kleppur er víða" - Englar alheimsins er algjört meistaraverk, hvort sem þú lest bókina, horfir á kvikmyndina eða sérð leikritið. Ég gerði allt þetta með

nemendum 10.bekkja Njarðvíkurskóla í vetur, við fórum á leikritið í mars í Þjóðleikhúsinu og fannst mér mikið til koma - horfði aftur á RÚV í kvöld og á ekki lýsingarorð yfir frammistöðu Atla Rafns Sigurðarsonar leikara í hlutverki Páls Ólafssonar. Leiksigur ! - svo mikið er víst.

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson‎Sorgleg staðreynd að það er búið að loka frægustu lúgusjoppu landsins..Aðalstöðinni..ættum eiginlega að mótmæla þessu.

Sigurður G Þorsteinsson@ElvarFridriks viltu skipta? #bíllinn

Elvar Friðriksson@SiggiGunnar Stutt í að tímabilið verði búið hjá þér þannig heldurðu að það taki því að skipta?

Björn Geir "Flott nágrannarimma á kantinum ef Grindavík klárar Þór" - Hvaða sjomla fyrirsögn er þetta hjá Víkurfréttum?

Stefán ThordersenEkki slæmur dagur, Íg komnir í fyrstu deild, Njarðvík sópaði Haukum og síðast en ekki síst Stjarnan sópaði Keflavík

Kristín Helga Magnúsdóttir 13 ára fermingarafmæli í dag... Það bara getur ekki verið!!

Andrea ÖspVeit ekki hvort var fagnað meira í stúk-unni þegar Njarðvík komst áfram eða þegar Keflavík datt út! #neighbourlovin

VIKAN Á VEFNUM

14

-08

71

- H

VÍT

A H

ÚS

IÐ /

SÍA

/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

Viltu þjóna flugi með okkur?

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna

Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg- ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

Spennandi störf á Keflavíkurflugvelli

VERKEFNASTJÓRI EIGNAUMSÝSLULeitað er að öflugum tæknimenntuðum verkefnastjóra eignaumsýslu. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í verk- eða tæknifræði, hafa þekkingu á samningagerð og kostnaðareftirliti, reynslu í stjórnun verklegra framkvæmda auk þess sem sveinsbréf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur.

Helstu verkefni: Greiningar og áætlanagerð í rekstri á mannvirkjum, rafkerfum og eignum Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á Keflavíkurflugvelli ásamt eftirliti og umsjón með rafkerfum, viðhalds- og rekstrarferlum. Heildarflatarmál fasteigna í eigu og umsjá eignaumsýslu er um 56 þúsund fermetrar.

UMSJÓNARMAÐUR RÆSTINGAIsavia leitar að umsjónarmanni ræstinga í Flugstöð LeifsEiríkssonar. Umsækjendur þurfa að vera skipulagðir og úrræðagóðir með lipra og þægilega framkomu og geta unnið undir álagi.

Helstu verkefni: Eftirlit og skipulagning ræstinga í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gegnum gæða- og eftirlitskerfi ásamt umsjón með lóðum og nærliggjandi svæðum. Heildarflatarmál fasteigna í eigu og umsjá eignaumsýslu er um um 56 þúsund fermetrar.

Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi á www.isavia/atvinna, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl.

n Öflug konur hjá Rauða krossinum í Grindavík:

Pakka meiru en deildin á Akureyri„Við erum svona tólf til fjórtán þegar best lætur og erum að þessu fram í maí. Þær eru svo duglegar að þessu að það er búið jöfnum höndum. Það kemur jafn mikið af pokum frá okkur og frá Akureyri, samt er íbúafjöldinn hér bara 10% af þeim,“ segir Birna Óladóttir, ein hressra og vaskra kvenna sem hitt-ast á mánudögum til að flokka og pakka fatnaði og efni sem Rauði krossinn í Grindavík hefur fengið fá íbúum bæjarins. Birna bætir við að gömul sængurver og lök séu afskaplega vel þegin því úr slíku

séu saumaðar bleyjur. Einnig garn því úr því séu prjónaðir sokkar og vettlingar. Allt sem konurnar hafa pakkað í vetur og fyrravetur fer til Hvíta Rússlands. „Það á aldrei að henda neinu, þótt það sé götótt eða rifið. Þá getum við notað það í tæting sem seldur er út í efni.“ Kon-urnar hlakka í hvert sinn til að hitt-ast því félagsskapurinn sé frábær. „Svo er ósköp góð tilfinning að láta gott af sér leiða. Allt sem maður gerir á maður að gera af gleði,“ segir önnur Birna, Bjarnadóttir.