9.tbl

16
vf.is vf.is | www.ytjandi.is | sími mi 525 7 5 7700 | VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Víkurfréttir Grundarvegur 23, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 1. MARS 2012 9. TÖLUBLAÐ 33. ÁRGANGUR Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ s. 420 5000 - Fax: 421 5946 ›› Bandarískt fyrirtæki vill kaupa sorpeyðingarstöðina Kölku í Helguvík: HAFA OPNAÐ GLÆSILEGAN STAÐ AÐ HAFNARGÖTU 12 STÓR (12”) 1200 LÍTILL (6”) 790 HÁDEGISTILBOÐ (ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 14:00 www. hlollabatar.is - s. 421 8000 „Ég held að fulltrúar sveitarfélaganna sem eiga Kölku hljóti að þurfa að skoða þetta tilboð í sorpeyðingarstöðina vandlega. Stöðin er rétt rúmlega hálfnýtt en á henni hvíla miklar skuldir. Fari svo að við seljum stöðina munum við þó setja skilyrði fyrir því að gerður verði langtíma samningur um sorpbrennslu fyrir Suðurnesin á lægra verði en í dag. Sorpgjaldið okkar er með því hæsta sem gerist hér á landi,“ segir Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um málefni Kölku eftir að tilboð barst í stöðina frá bandarísku fyrirtæki. Tilboð Trimvirate um kaup á Kölku hljóðar upp á 10 millj. dollara eða um 1250 millj- ónir króna. Það er nálægt heildarskuldum Kölku í dag. Eſtir brotthvarf Varnarliðsins sem nýtti stöðina til brennslu á öllum úr- gangi og sorpi frá starfsemi sinni, er stöðin rétt rúmlega hálfnýtt. Nú eru brennd um 7 þús. tonn á ári en stöðin ræður við 12-13 þús. tonn. Stærsti kúnninn, Kaninn, fór árið 2006 og síðan hefur hagur Kölku legið niður á við því búið var að byggja fullkomn- ustu sorpbrennslustöð á Íslandi fyrir mikla peninga. Hún uppfyllir allar kröfur Evrópu- sambandsins um staðla sem fylgja svona starfsemi. Böðvar segir að ekki hafi verið í umræðunni að brenna hættulegra sorp en verið sé að gera nú þegar, m.a. sjúkrahússorp. Áhugi Bandaríkjamanna stafi af mjög stífum reglum í þeirra heimalandi en þeir kaupa nú m.a. brennslu í Danmörku og í fleiri löndum. Sorpbrennslustöðvar sem nú þegar eru með starfsemi í Bandaríkjunum selji þjónustu sína svo dýrt að fyrirtæki sjái fram á að ódýrara sé að flytja sorpið til landa sem geta brennt það á ódýrari hátt. Vandamál sem hefur sprottið upp í orðsins fyllstu merkingu auk skuldavandamála, er frágangur eða urðun á öskunni sem verður eſtir þegar sorpið er brennt í Kölku í Helguvík. Þegar Kalka hóf starfsemi stóð til að urða öskuna m.a. á Stafnesi en þegar kom að því kom babb í bátinn og enn stendur hnífurinn í kúnni varðandi þetta mál. Þannig hefur á sjö árum eða frá opnun Kölku, öskuall hlaðist upp. Askan úr Kölku er geymd í gámum á nokkrum stöðum á Suðurnesjum, í Sandgerði, Garði og m.a. í gömlu sorpeyðingarstöðinni við Hafnaveg. Ekki hefur fundist lausn á því hvernig Kalka getur losað sig við úrganginn, öskuna. Er m.a. verið að skoða það alvarlega að sigla henni til Danmerkur þar sem hægt er að urða hana. Einnig er verið að rannsaka það í gegnum nýstofnað atvinnuþróunarfélag á Suðurnesjum, Hekluna, hvort hægt sé að nýta öskuna í malbiksgerð á Íslandi. Binda menn vonir við að slík lausn gæti verið góð í alla staði. Þannig væri sorp úr Kölku endurnýtt í orðsins fyllstu merkingu á mjög umhverfisvænan hátt og endaði í gatnagerð á Íslandi. Gangi það eſtir að koma öskunni í malbik og Kalka seld sem gæti þýtt ódýrari sorp- brennslu fyrir Suðurnesjamenn og skulda- hreinsun væri verið að slá tvær flugur í einu höggi. Askan sem verður til eftir brennslu hrannast upp. Hefur ekki verið urðuð frá stofnun Kölku. Gæti þó endað í malbiksgerð á Íslandi sem væri frábær kostur. Skuldahreinsun og ódýrari sorp- brennsla fyrir Suðurnesjamenn

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 06-Mar-2016

239 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

9.tbl 33.arg

TRANSCRIPT

Page 1: 9.tbl

vf.isvf.is

Metan er innlendurog umhverfisvænnorkugjafi sem erhelmingi ódýrarien bensín.

Nýttu þér kostimetans meðVolkswagen.

K. Steinarsson – Njarðarbraut 13420 5000 - [email protected]

Das Auto. TM

Opið allansólarhringinn

Fitjum

NÝTTMorgunverðar-matseðill

Aðeins í boði áSubway Fitjum

14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011

Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is

989kr/stk.Tilboðsverð!

339kr/stk.Tilboðsverð!

EasyÞvoTTaEfni

aloE vEra 2.7 kg

EasyMýkingarEfni

2 l

| www.flytjandi.is | símimi 525 75 7700 |

VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND

Víkurfréttir ehf.Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær

Sími 421 0000 - Póstur: [email protected]ðslan er opin virka daga kl. 09-17

Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.

Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0

fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB

Æsispennandikörfuknattleikir

- sjá nánar á bls. 23

VíkurfréttirGrundarvegur 23,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

F i m m t u d A G u R i n n 1 . m A R S 2 0 1 2 • 9 . t ö l u b l A ð • 3 3 . á R G A n G u R

Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæs. 420 5000 - Fax: 421 5946

›› Bandarískt fyrirtæki vill kaupa sorpeyðingarstöðina Kölku í Helguvík:

HAFA OPNAÐ GLÆSILEGAN STAÐ AÐ HAFNARGÖTU 12

STÓR (12”) 1200

LÍTILL (6”) 790

HÁDEGISTILBOÐ(ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 14:00

www. hlollabatar.is - s. 421 8000

„Ég held að fulltrúar sveitarfélaganna sem eiga Kölku hljóti að þurfa að skoða þetta tilboð í sorpeyðingarstöðina vandlega. Stöðin er rétt rúmlega hálfnýtt en á henni hvíla miklar skuldir. Fari svo að við seljum stöðina munum við þó setja skilyrði fyrir því að gerður verði langtíma samningur um sorpbrennslu fyrir Suðurnesin á lægra verði en í dag. Sorpgjaldið okkar er með því hæsta sem gerist hér á landi,“ segir Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um málefni Kölku eftir að tilboð barst í stöðina frá bandarísku fyrirtæki.Tilboð Trimvirate um kaup á Kölku hljóðar upp á 10 millj. dollara eða um 1250 millj-ónir króna. Það er nálægt heildarskuldum Kölku í dag. Eftir brotthvarf Varnarliðsins sem nýtti stöðina til brennslu á öllum úr-gangi og sorpi frá starfsemi sinni, er stöðin rétt rúmlega hálfnýtt. Nú eru brennd um 7 þús. tonn á ári en stöðin ræður við 12-13 þús. tonn. Stærsti kúnninn, Kaninn, fór árið 2006 og síðan hefur hagur Kölku legið

niður á við því búið var að byggja fullkomn-ustu sorpbrennslustöð á Íslandi fyrir mikla peninga. Hún uppfyllir allar kröfur Evrópu-sambandsins um staðla sem fylgja svona starfsemi.Böðvar segir að ekki hafi verið í umræðunni að brenna hættulegra sorp en verið sé að gera nú þegar, m.a. sjúkrahússorp. Áhugi Bandaríkjamanna stafi af mjög stífum reglum í þeirra heimalandi en þeir kaupa nú m.a. brennslu í Danmörku og í fleiri löndum. Sorpbrennslustöðvar sem nú þegar eru með starfsemi í Bandaríkjunum selji þjónustu sína svo dýrt að fyrirtæki sjái fram á að ódýrara sé að flytja sorpið til landa sem geta brennt það á ódýrari hátt.Vandamál sem hefur sprottið upp í orðsins fyllstu merkingu auk skuldavandamála, er frágangur eða urðun á öskunni sem verður eftir þegar sorpið er brennt í Kölku í Helguvík. Þegar Kalka hóf starfsemi stóð til að urða öskuna m.a. á Stafnesi en þegar kom að því kom babb í bátinn og enn stendur hnífurinn í kúnni varðandi þetta

mál. Þannig hefur á sjö árum eða frá opnun Kölku, öskufjall hlaðist upp. Askan úr Kölku er geymd í gámum á nokkrum stöðum á Suðurnesjum, í Sandgerði, Garði og m.a. í gömlu sorpeyðingarstöðinni við Hafnaveg. Ekki hefur fundist lausn á því hvernig Kalka getur losað sig við úrganginn, öskuna. Er m.a. verið að skoða það alvarlega að sigla henni til Danmerkur þar sem hægt er að urða hana. Einnig er verið að rannsaka það í gegnum nýstofnað atvinnuþróunarfélag á Suðurnesjum, Hekluna, hvort hægt sé að nýta öskuna í malbiksgerð á Íslandi. Binda menn vonir við að slík lausn gæti verið góð í alla staði. Þannig væri sorp úr Kölku endurnýtt í orðsins fyllstu merkingu á mjög umhverfisvænan hátt og endaði í gatnagerð á Íslandi.Gangi það eftir að koma öskunni í malbik og Kalka seld sem gæti þýtt ódýrari sorp-brennslu fyrir Suðurnesjamenn og skulda-hreinsun væri verið að slá tvær flugur í einu höggi.

Askan sem verður til eftir brennslu hrannast upp. Hefur ekki verið urðuð frá stofnun Kölku.Gæti þó endað í malbiksgerð á Íslandi sem væri frábær kostur.

Skuldahreinsun og ódýrari sorp-brennsla fyrir Suðurnesjamenn

Page 2: 9.tbl

2 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

›› FRÉTTIR ‹‹

Yfir 1000 nemendur hafa verið útskrifaðir frá Keili á Ásbrú í

Reykjanesbæ frá stofnun skólans í maí 2007. Sl. föstudag voru út-skrifaðir 89 nemendur við hátíð-lega athöfn í Andrews leikhúsinu. Eftir athöfnina hafa samtals 1022 nemendur útskrifast frá Keili og þar af rúmlega helmingur eða 604 nemendur af Háskólabrú. Keilir hefur útskrifað 81 nemanda af flugþjónustubrautum en mikill vöxtur er í flugþjónustu ýmis-konar á Suðurnesjum.Við athöfnina fluttu Valdimar Guð-mundsson og Högni Þorsteinsson tónlistaratriði og Árni Sigfússon, stjórnarformaður Keilis ávarpaði samkomuna. Útskrifaðir voru

nemendur úr Háskólabrú, Flug-akademíunni og Íþróttaakademíu Keilis.Af Háskólabrú og fjarnámi út-skrifuðust 73 nemendur. Þar var dúx Halldór Sigurðsson með 9,06 í meðaleinkunn. Úr flugþjónustu út-skrifuðust 5 nemendur og þar var dúx Ingibjörg Agnes Júlíusdóttir með 9,61. Úr ATPL útskrifuðust 3 nemendur og þar var Arnór Gunn-arsson dúx með 8,74 í meðalein-kunn. Úr flugrekstrarfræði voru 5 nemendur útskrifaðir. Ásgeir H. Vilhjálmsson dúxaði og var með 8,78 í meðaleinkunn. Tveir nemendur útskrifuðust sem ÍAK-einkaþjálfarar og einn sem ÍAK-íþróttaþjálfari.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir hjá Keili fyrir haustönn 2012 og er hægt að nálgast allar upplýsingar um námsframboð á www.keilir.net

Réttindalausog barn laust í

framsæti

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni við leik-

skóla nýverið. Í framsæti bílsins var einn fullorðinn farþegi, með lítið barn laust í fanginu. Hefði bíllinn lent í árekstri eða öku-maður þurft að nauðhemla af einhverjum ástæðum hefðu af-leiðingar getað orðið mjög alvar-legar fyrir barnið. Eins og flestir vita eiga börn að sitja í viðeigandi öryggisbúnaði sem hæfir þyngd þeirra. Fyrir áhugasama er hægt að finna upplýsingar um það á heimasíðu Umferðarstofu: www.us.is.Ökumaðurinn reyndist ekki vera með ökuskírteini og við athugun kom í ljós að hann hafði misst öku-réttindi fyrir nokkrum árum, en látið hjá líða að taka próf að nýju til að endurheimta þau. Ökumaður-inn á von á kæru og lögregla sendir almennt skýrslu um slík mál til yfirvalda barnaverndarmála, sem síðan ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða sé rétt að grípa.Í niðurstöðum könnunar á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn, sem Umferðarstofa og fleiri hafa gert árum saman víða um land hafa átt sér stað miklar framfarir í notkun öryggisbúnaðar og til dæmis nutu tæplega 90% þeirra barna sem ástandið var kannað hjá á Suður-nesjum í könnun síðastliðið vor fullnægjandi öryggisbúnaðar.

Atvinnulausum fækkað töluvert

Fjöldi atvinnu-lausra á Suður-

nesjum er nú 1373 og hefur lækkað töluvert frá því í desember. Helstu ástæður eru skipu-lagsbreytingar og árangur af átakinu Nám er vinnandi vegur. Runólfur Ágústsson formaður stjórnar VMST mætti á fund Heklunnar þann 10. febrúar sl. til þess að kynna úrræði í atvinnumálum ungs fólks. Í framhaldi var ákveð-ið að stofna vinnuhóp sem hefur það verkefni að endurskoða þær lausnir sem bjóðast atvinnu-lausum á svæðinu og leita sam-stöðu um úrræði.

My nd listarkonan Bagga opnar sýningu á veitinga-

staðnum Karma í Grófinni næst-

komandi föstudag. Þar sýnir hún m.a. nýjustu verk sín sem eru unnin með akrýl á striga.Bagga er orðin þekkt fyrir litríkar myndir sínar þar sem meðal annars má oft finna fólk í felum. Bagga hefur frá árinu 2000 haldið 22 einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum.Formleg opnun verður föstudag-inn 2. mars frá klukkan 16 til 18. Sýningin mun standa yfir til 4. apríl næstkomandi. Karma er opið alla virka daga kl. 11-19:30. Allir hjartanlega velkomnir.Hægt er skoða myndir Böggu á www.bagga.is

›› Myndlist:

Bagga sýnir á Karma

Yfir 1000 nemendur útskrifaðir frá Keili

Guðbjört Ingólfsdóttir,Ingólfur Níels, Hildur Hinriksdóttir,Magnús Helgi Kristjánsson, Berglind Bára Bjarnadóttir,Berglind Kristjánsdóttir, Jóhann Kristján Arnarson,Einara Lilja Kristjánsdóttir, Magnús Friðjón Ragnarsson,Bergþóra Halla Kristjánsdóttir, Younes Boumihdi,Soffía Kristjánsdóttir, Viðar Einarssonog barnabörn

Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,

Kristján Magnússon,vélvirkjameistari,

Hraunsvegi 14, Njarðvík, Reykjanesbæ,

lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að kveldi 28. febrúar í faðmi fjölskyldunnar.Útför fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, miðvikudaginn 7. mars 2012 kl. 14:00.

Page 3: 9.tbl

3VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

www.netto.ismikiið úrval af frábærum dönskum vörum!

1.990Verð nú

var 2.398 kr/kg

Heitreiktur makríllreyktur að dönskum sið

skelltu þér á dásamlegadanska síld og bjóddu múttu í smØrrebrØd

998Verð nú

rauðsprettuflökmeð roði

krkg

398Verð

rækjur - skipper90 g

698Verð

rækjur180 g

759Verð

krabbaHalar180 g

398Verð

sinnepsíld260 g

398Verð

tómatsíld260 g

449Verð

karrýsíld260 g

398Verð

dillsíld150 g

AðferðRoðflettið og beinhreinsið fiskinn. Leggið rauðsprettuna á bretti með roðflettu hliðina upp og sláið létt á flakið þannig að það fletjist aðeins út. Stráið salti og pipar yfir, setjið einn til tvo aspas ásamt einni sneið af camenbert ofaná flakið og rúllið upp í snyrtilega rúllu. Leggið rúllurnar í eldfast mót og kreistið sítrónusafa yfir. Saltið og piprið yfir rúllurnar og setjið álpappír yfir formið. Bakað við 200°C í ca. 20 mín, eða þangað til fiskurinn er orðinn eldaður.

rauðspretturúllur

800 g rauðspretta (flökuð, roðflett og beinhreinsuð) 1 dós aspas8 sneiðar Camenbert (Ca. 250 g)1 msk sítrónusafisalt og pipar

Nettó heilnæmt & hollt

Við hjá Nettó kappkostum við að velja

gæðavörur á góðu verði og því höfum við

mikið úrval af skráargatsmerktum

vörum í verslunum okkar.

Norrænar vörulínur eins og Coop og X-tra hafa

margar skráargatsmerktar

vörur í sinni fjölskyldu.

Leitaðu eftir

skráargatsmerktum

vörum hjá okkur í Nettó

Skráargatsmerktar vörur

standast kröfur um innihaldsmagn

af fitu, sykri, salti og trefjum, eða

allt sem þú þarf að hugsa um þegar

velja á holla og góða matvöru.

Framleiðendum Änglamark hefur tekist að framleiða hreinlætisvörur í

hæsta gæðaflokki sem hafa óveruleg áhrif á umhverfið og á það bæði við

um hráefni og vinnslu efnanna. Þetta hefur þeim tekist án þess að draga

úr bestu eiginleikum varanna.

Änglamark þvottaefni eru án ilm-, litar- og rotvarnarefna sem gera þau

að eftirsóknarverðum kosti fyrir alla fjölskylduna. Einnig eru þær sérlega

umhverfisvænar eins og Svansmerkið ber vott um.

Með Änglamark þvottefnum næst nú enn betri árangur. Sem dæmi þá

verður þvotturinn hreinn með Änglamark þvottadufti við aðeins 30°C.

ÞES

SI V

ARA ER SVANSMERKT

FYRIR UMHVERFIÐ OG HEI

LSU

NA

Änglamark

Vinalegar við þig

og umhverfið

Nettó heilnæmt & hollt

698

598

wc rúllur 8 stk

eldhúsrúllur 4 stk

kr pk

kr pk

kjöt danskir dagar í Nettó! www.netto.is

1.139Verð nú

áður 1.898

grísaHrYggUr1/2 MEÐ PURU 1.399

Verð nú

áður 1.998

grísamínútUsteikfERsk

kRkg

890Verð nú

áður 989

grísaHakkbaUtabúRiÐ

kRkg

kR kg899

1.799

Verð nú

Verð nú

áður 1.498

var 2.398

grísarifjabitargoÐi - bbq

OfnsteikMEÐ dönskUM blæ

kR kg

1.278Verð nú

var 1.598

grísasUltaný

kR kg

kR kg

kRkg

sviNekød på min tallerken!

kR kg

1.258Verð nú

áður 1.498

grísagúllasbaUtabúRiÐ

kR kg

kR kg

40% afsláttUr

35% afsláttUr

40% afsláttUr

1.049Verð nú

var 1.498

grísakótelettUrbaUtabúRiÐ

1.198Verð nú

var 1.498

grísasnitselbaUtabúRiÐ

kR kg

kRkg

972Verð nú

áður 1.495

baYOnneskinkaúR bóg

kRkg

kR kg

kR kg

kjötbollUMix 115gR.

198 kRstk

kjöt

694

GrísabóGurreyktur

áður 798

kr kg

1.290áður 1.698

baconkjarnafæði -2 pk.

kr kg

1.598áður 1.998

svínarúllupylsadönsk

kr kg

593áður 898

svínarif

kr kg

34% afsláttur

upplifðu danska stemningu í Nettó!

Kræsingar & KostaKjör

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir

Tilboðin gilda 1-4 mars 2012

Tilboðin gilda 1. - 4. mars

398Verð nú

áður 698

GrísabóGurhringskorinn með beini

danskir dagar!

kr Pk

43% afsláttur

Kræsingar

& KostaKjör

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir

Glænýr og spennandi bæklingur kominn út. Tryggðu þér eintak og kíktu á helstu tilboðin og gerðu góð kaup í þinni Nettóverslun!

Nýr Tilboðs-bækliNgur!

Page 4: 9.tbl

4 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Bæjarráð Grindavíkur sam-þykkti á fundi sínum í ný-

liðinni viku að ráða Halldóru K. Magnúsdóttur í starf skóla-stjóra Grunnskóla Grindavíkur og felur sviðsstjóra fræðslu- og félagsþjónustusviðs að ganga frá ráðningarsamningi. Staða skóla-stjóra Grunnskóla Grindavíkur var fyrst auglýst 14. janúar sl. með umsóknarfresti til 13. febrúar sl. Ellefu umsóknir bárust um stöð-una.Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs telur að þegar litið er til allra þátta auglýsingar um menntun og faglega hæfni sé Hall-dóra K. Magnúsdóttir hæfasti um-sækjandinn og leggur til að henni verði boðið starfið. Fræðslunefnd styður tillögu sviðsstjóra og leggur til við bæjarráð að hún verði sam-þykkt.Halldóra starfar nú sem aðstoðar-skólameistari í Akurskóla en tekur til starfa 1. maí nk. sem skólastjóri Grunnskóla Grindavíkur.

Grindavík.is greinir frá.

Sandgerðingar hafa leitað til eigenda Brunavarna Suður-

nesja um sameiningu slökkviliða. Á bæjarstjórnarfundi í Reykja-nesbæ í síðustu viku var því slegið fram hvort þetta gæti verið fyrsta skref í átt að sameiningu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Friðjón Einarsson, oddviti Sam-fylkingarinnar og minnihlutans í bæjarstjórn sagði að Sandgerð-ingar væru eingöngu að leita eftir sameiningu slökkviliða af fjár-hagslegum ástæðum. Þeir hefðu ekki efni á rekstri slökkviliðs.Árni Sigfússon, bæjarstjóri og Silja

Dögg Gunnarsdóttir, fulltrúi Fram-sóknarflokksins spurðu í ræðustóli hvort þetta gæti verið fyrsta skrefið í átt að sameiningu sveitarfélag-anna á Suðurnesjum. Nú væri rétti tíminn til að skoða þau mál í fram-haldi af ósk Sandgerðinga. Aðilar að Brunavörnum Suðurnesja eru Reykjanesbær, Garður og Vogar og ef Sandgerði dytti inn í BS væri hugsanlega tími til að skoða stöðuna í viðhorfi aðila til frekari sameiningar sveitarfélaga. Friðjón sagði umræðuna á villigötum og ljóst væri að Sandgerðingar væru í vandræðum fjárhagslega almennt

og gæti gert þeim erfitt fyrir að uppfylla nýgerðan samning um brunavarnir við Isavia/Flugstöð Leifs Eiríkssonar.„Samstarf slökkviliða þarf að vera hagkvæmt fyrir báða aðila og mér ber sem bæjarfulltrúa Reykjanes-bæjar að hugsa um hagsmuni míns bæjarfélags. Við eigum ekki að taka að okkur slökkvilið Sandgerðinga ef það kostar okkur meira,“ sagði Friðjón.Sandgerðingar hafa allt frá sam-einingu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994 verið á móti sam-einingu sveitarfélaganna á Suður-

nesjum og sama staða hefur verið hjá forráðamönnum Garðs. Bæði þessi sveitarfélög hafa þó verið virkir aðilar í samstarfi sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS, en að auki hafa Grindvíkingar og Vogamenn tekið þátt í því. Á aðalfundi sambands-ins (SSS) sl. haust var umræða um sameiningu rædd og þá var engin sameiningartónn í gangi.Sé tekið mið af staðsetningu Bruna-varna Suðurnesja benti Árni Sigfús-son á að hún sé miðsvæðis miðað við öll hverfi Reykjanesbæjar og síðan Garðs og Sandgerðis.

n

Sameining slökkviliða vísir að frekari sameiningu sveitarfélaga?

›› Sveitarstjórnarmál:

Halldóra K.Magnúsdóttir

ráðin skólastjórií Grindavík

Lögreglan hand-samaði bílaþjóf

Bílaþjófur í Reykjanesbæ

lagði á flótta þegar lögreglan varð hans vör sl. föstudag. Hafði maðurinn farið inn í nokkra bíla en lögreglunni barst tilkynning um tvöleytið um nóttina. Eftir nokkra eftir-för náðist þjófurinn en lög-reglan segir hann ekki hafa haft mikið upp úr krafsinu. Lög-reglan á Suðurnesjum brýnir fyrir fólki að skilja ekki bílana eftir ólæsta og ekki skilja eftir verðmæti í bílum sínum.

Eldur í húsi í Grindavík

Slökkvilið Grindavíkur

var kallað út á mánudag vegna elds í einbýlishúsi við Ásabraut í Grindavík. Tals-verðar skemmdir urðu á innrétt-ingum og innanstokksmunum þegar eldur kviknaði í potti, sem gleymst hafði á eldavélarhellu. Einn var í húsinu og komst hann ómeiddur út, að sögn lög-reglunnar á Suðurnesjum.

17. júní 1966 í KeflavíkGamlar myndir frá Suðurnesjum njóta mikilla vinsælda þessa dagana á samfélagsvefnum Facebook. Víkurfréttir birtu í síðustu viku mynd af Þórðar-sjoppu við Hafnargötu og vakti sú mynd mikla athygli. Hér er mynd sem Brynjar Jónsson setti inn á „Keflavík og Keflvíkingar“ á Facebook. Myndin

er tekin frá Hafnargötu 35 þann 17. júní 1966 og er horft niður eftir götunni. Á þessum tíma var vinstriumferð á Íslandi. Þeir sem eiga gamlar myndir frá Suðurnesjum eru hvattir til að senda þær til Víkurfrétta á póstfangið [email protected] og segja örstutta sögu með myndinni.

Til skjólstæðinga Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.Á þessum árstíma eru sjúkdómar og pestir alls konar í hámarki á landinu öllu. Mikið álag hefur verið á HSS að undanförnu bæði á heilsugæslunni og sjúkrahúsinu eins og reyndar víða annars staðar á landinu. Ekki má gleyma því að við höfum tekist á við 25% niðurskurð frá árinu 2008 sem auðvitað hefur haft sín áhrif.Starfsfólk er að gera sitt allra besta til að sinna sínu hlutverki við þessar aðstæður en álagið er mikið. Þetta álag veldur því að biðtími er lengri en við vildum, bæði á slysa- og bráðamóttökunni og eftir tímum hjá

heilsugæslulæknum og hjúkrunarfræðingum.Þann 1. mars opnum við aftur hraðmóttöku á heilsu-gæslunni á morgnana og væntum þess að við getum komið á móts við þarfir fleiri skjólstæðinga en við getum í dag.Álagið hefur einnig, af sömu ástæðu og að ofan greinir, verið mikið á sjúkrahúsinu og hafa deildir verið full-nýttar og gott betur.Við biðjum ykkur að sýna okkur skilning og vonumst til að brátt sjái fyrir endann á þessu erfiða tímabili.

Sigríður Snæbjörnsdóttir, forstjóri HSS

Mikið álag á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja- hraðmóttaka opnuð aftur 1. mars

Karlmaður um þrítugt sem handtekinn var á heimili

í Reykjanesbæ nú á mánudag-inn vegna þess að heimatilbúin sprengja og vopn, meðal annars hlaðin skammbyssa, fundust á heimili hans, hefur verið úrskurð-aður í viku gæsluvarðhald en unnið er að rannsókn málsins.Rannsóknin er að sögn lögreglu frekar umfangsmikil en maður-inn kærði gæsluvarðhaldskröfu til hæstaréttar. Sá úrskurður ætti að liggja fyrir núna en nokkuð óvana-legt er að svo langs varðhalds sé krafist vegna mála af þessu tagi. Maðurinn hefur verið yfirheyrður nokkrum sinnum en lögregla vildi ekki gefa upp hvernig þær yfir-heyrslur hefðu gengið. Maðurinn þótti sýna undarlega hegðun á sam-skiptavefnum Facebook og fékk lögreglan ábendingu um myndir sem sýndu m.a. að maðurinn mundaði skotvopn og hafði búið til rörasprengju og tekið upp á mynd-band þegar hann sprengdi fiskikar í loft upp.

Í viku gæsluvarð-hald eftir undarlega hegðun á Facebook

Page 5: 9.tbl

5VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

Fitjum 2 - Sími: 421 8800

20% afslátturAF INNIMÁLNINGU*

tilboðSáðbakki fyrir glugga

1.199kr

1.699kr

tilboð10 ltr. JONGKIND mold

399kr

499kr

fimmtudag til sunnudags

MÁLNINGAR DAGAR

10 Túlipanar

799 kr.

TILBOÐ

Primula 3 stk.

999kr

BÆTT OG BETRABLÓMAVALFITJUM REYKJANESBÆ

Page 6: 9.tbl

6 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.

Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000Páll Ketilsson, sími 421 0007, [email protected] Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected]þór Sæmundsson, [email protected] Einarsson, sími 421 0001, [email protected]íkurfréttir ehf.Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, [email protected]Þorsteinn Kristinsson, [email protected], sími 421 0011Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, [email protected] Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, [email protected] eintök.Íslandspósturwww.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is

Útgefandi:Afgreiðsla og ritstjórn:

Ritstjóri og ábm.:Fréttastjóri:

Blaðamaður:Auglýsingadeild:

Umbrot og hönnun:Auglýsingagerð:

Afgreiðsla:

Prentvinnsla:Upplag:

Dreifing:Dagleg stafræn útgáfa:

Leiðari VíkurfréttaPÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI

Málefni Kölku brenna á vörum Suðurnesjamanna í orðsins fyllstu merkingu. Nú vilja Kanar kaupa Kölku, sigla amerísku rusli til lands íss og elds til brennslu í Helguvík og borga svo mikið fyrir stöð-

ina að hún yrði skuldlaus á eftir. Heildarskuldir er rúmlega milljarður króna og er æxli sem hefur bara stækkað á undanförnum árum, eða frá því Kaninn á Keflavíkurflug-velli fór með sitt Varnarlið frá Íslandi. Það væri svolítið skondið að Kalka, sem var m.a. byggð vegna þess að gamla sorpeyðingarstöðin var orðin lúin og náði ekki lengur að sinna Varnarliðinu og okkur auðvitað, myndi enda í eigu Ameríkana. En ef það þýðir að sorpbrennslugjald bæjarbúa sem eiga núna Kölku lækkar og þýðir líka að þeir, þ.e. íbúar á Suðurnesjum, þurfa ekki að glíma við himinháar skuldir Kölku á næstu árum, er það vissulega athugandi. Skulda-staðan er vandamál sem fer ekki í burtu og lagast varla á meðan stöðin er bara rúmlega hálfnýtt.

Svo eru önnur mál sem tengjast Kölku sérstök. Brennsluúr-gangurinn er aska sem hefur hlaðist upp frá stofnun Kölku en upphaflegar áætlanir sem gerðu ráð fyrir því að urða öskuna á Stafnesi, fóru út um þúfur. Einn möguleikinn er að sigla öskunni til urðunar í Danmörku. Það er slæmur kostur og alls ekki umhverfivænn en gæti þurft að nýta því erfiðlega gengur að fá leyfi til að urða öskuna hér á landi, sem vekur á margan hátt furðu. Annar möguleiki, sem er

mun meira spennandi og betri á allan hátt er að nýta öskuna í malbikunargerð. Verið er að vinna rannsókn þessa efnis núna í gegnum nýstofnað atvinnuþróunarfélag, Hekluna. Það væri draumaniðurstaða. Þá væri verið að endurnýta sorpið okkar í gatnagerð hér á landi.

Í umfjöllun á samfélagsmiðlum á borð við Facebook að undanförnu hefur mátt sjá verulega marga ósátta og hrædda við sölu Kölku til Ameríkana. Það hljómar einhvern veginn ekki vel í eyrum að flytja sorp frá Bandaríkjunum til Íslands og brenna það hér.Á bæjarstjórnarfundi í sl. viku kom tillaga frá Silju D. Gunnarsdóttur hvort ekki sé ástæða til að ganga lengra í flokkun sorps á Suðurnesjum og vísaði til góðs árangurs á Snæfellsnesi. Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar sagði að brennsla sorps (eins og gert væri í Kölku) væri líklega um-hverfisvænni en umfangsmikil flokkun því einhvern veginn þyrfti að koma flokkuðu sorpi fyrir, keyra það jafnvel langa leið á áfangastað.

Það er því óhætt að segja að Suðurnesjamenn séu í rusli yfir málefnum Kölku. Skuldavandinn er mikill og lendir á okkur bæjarbúum eða eigum við að selja og þurrka upp skuldir því ekki eru margar leiðir til að koma stöðinni úr erfiðum skuldavanda.

vf.isvf.is

6 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 8. mars 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða [email protected]

Suðurnesjamenn í rusli

Heiðarskóli: Háttvísi - Hugvit - Heilbrigði

Gunnar Þór Jónsson skólastjóri, Sóley Halla Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri, Bryndís Guðmundsdóttir deildarstjóri, Sigurbjörg Róbertsdóttir deildarstjóri

Verða helgina 3. og 4. mars nk. í Samkomuhúsinu Garði frá

kl.13-17. Kökubasarinn verður á laugardeginum en flóamarkaður-inn verður báða dagana.Margt góðra muna verður til sölu t.d. fatnaður, dót, eitt og annað til heimilisins og margt margt fleira spennandi. Einnig verður hægt að setjast niður og gæða sér á kaffi og pönnukökum gegn vægu gjaldi. Þetta er á vegum 4. fl. karla og kvenna í Víði Garði. Þau eru með fjáröflun fyrir ferð til Oslóar á ung-lingamótið Norway Cup í fótbolta sem haldið er dagana 27. júlí til 5. ágúst.Komið og gerið góð kaup og styðjið um leið við bakið á okkur krökk-unum í 4. fl. Víði. Hlökkum til að sjá ykkur. n

›› FRÉTTIR ‹‹

FLÓAMARKAÐUROG KÖKUBASAR

Bæjarstjórar skrifa undir þjón-

ustusamning

Sandgerðisbær hefur um árabil fengið sérfræðiþjónustu fyrir

leik- og grunnskóla hjá fræðslu-skrifstofu Reykjanesbæjar.Nýi samningurinn nær líkt og áður til rekstrarráðgjafar til skóla og sér-fræðiþjónustu fyrir leik- og grunn-skóla í Sandgerði.Samningurinn felur einnig í sér að bæjarfélögin ásamt Garðinum hafa nú sameiginlega framtíðarsýn í menntamálum, þar sem ætlunin er að bæta námsárangur í skólum.Verkefnið felur meðal annars í sér aukna samvinnu milli leik- og grunnskóla og foreldra.Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi nú þegar.

Page 7: 9.tbl

7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir!n Auglýsingadeild í síma 421 0001n Fréttadeild í síma 421 0002n Afgreiðsla í síma 421 0000

Við erum ÞAKKLÁTfyrir að eiga ánægðustu viðskiptavini orkuveitna árið 2011

í 9. skipti á síðustu 10 árum

Hver er þinn raforkusali?

HS Orka hfhsorka.is [email protected] 2011

Rauði kross ÍslandsSuðurnesjadeild

AðalfundurAðalfundur Rauða kross Íslands Suðurnesjadeildar verður haldinn fimmtudaginn 8. mars 2012 kl. 20:00 að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ.

Dagskrá:Venjuleg aðalfundarstörfKaffiveitingarÖnnur mál

Hvetjum alla Rauða kross félaga til að mæta og taka þátt í starfi deildarinnar

Rauði kross ÍslandsSuðurnesjadeild

FlóamarkaðurFöstudaginn 2. mars nk., verður haldinn flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 – 16:30.

›› Reykjanesbær:

Lögreglan á Suðurnesjum stað-festi í samtali við Víkurfréttir

að þessa dagana væri töluvert um innbrot í Reykjanesbæ. Bæði væri verið að brjótast inn í heimahús víða í bænum og eins er talsvert um það að farið sé inn í bíla. Vildi lögreglan af því tilefni brýna fyrir fólki að huga vel að heimilum sínum og tryggja það að skilja ekki eftir opna glugga og læsa hurðum.Svo virðist sem að þjófarnir, en ekki liggur fyrir hve margir þjófar eru á ferð, eða hverjir séu að verki, brjót-ist inn á öllum tímum sólarhrings-ins og eru dæmi um að þeir komi inn um hábjartan daginn jafnt sem á nóttunni.Guðmundur Sigurðsson hjá rann-sóknarlögreglunni segir að ekki séu bein tengsl milli innbrota í bíla og inn á heimili fólks. Hann sagði að það væri meira um inn-brot í heimahús og augljóslega eitt-hvað sem er að freista innbrots-þjófa þessa stundina. Hann hvetur fólk því til að huga vel að öllum forvörnum og í hvert skipti sem heimilið sé yfirgefið þá eigi helst að læsa öllum gluggum og hurðum. Verðmæti í bílum skal helst geyma í farangursgeymslu eða færa hluti úr augsýn.Fyrir skömmu var m.a. brotist inn á heimili í Reykjanesbæ þar sem stolið var fartölvu, Playstation-tölvu, karlmannsarmbandsúri og farsíma. Það mál er enn óupplýst. Þann sama dag var brotist inn á bílaleigu hér á svæðinu en sá þjófur náðist í Reykjavík skömmu síðar. Svo í síðustu viku voru þrír aðilar

Mikið um innbrot

handteknir í Innri-Njarðvík eftir að þeir höfðu látið greipar sópa í heimahúsi. Höfðu þjófarnir á brott með sér hvorki meira né minna en þvottavél og þurrkara sem þeir báru einfaldlega á milli húsa. Til þeirra sást í flutningunum og í framhaldi voru þeir handteknir. Einnig var brotist inn í einbýlishús bæði í Njarðvík og Keflavík sama daginn og m.a. stolið þaðan fartölvum.Lögreglumaður á frívakt kom að tveimur innbrotsþjófum í síðustu viku sem voru að skríða inn um glugga í Innri-Njarðvíkurhverfi og honum tókst að hafa hendur í hári þeirra. Þjófarnir höfðu þar m.a. far-tölvu og úr upp úr krafsinu en þeir munir hafa verið endurheimtir. Einn af þeim þjófum var viðloðinn annað innbrot sem taldist upplýst. En þó eru ekki öll málin sem hafa verið að koma upp að undanförnu

upplýst og lögregla vinnur hörðum höndum að því að leysa málin.Lögreglan hafði fyrir skömmu af-skipti af ökumanni seint að kvöldi til en háttalag mannsins þótti lög-reglunni grunsamlegt. Fékkst leyfi til leitar í bíl mannsins og þar fannst verkfæri sem notað hafði verið við innbrot í FS fyrir einhverju síðan. Það leiddi lögregluna á slóð sem varð til þess að við húsleit hjá við-komandi aðila fundust munir úr fleiri innbrotum. Það mál er enn í rannsókn.Auk þess ber að taka það fram að tölva, sem stolið var í innbroti í Fjölskylduhjálp Suðurnesja um síðastliðin jól, er nú komin í leit-irnar en lögregla fékk ábendingu um mann sem hafði tölvuna í sinni vörslu. Maðurinn sagðist ekki vita hver hefði látið honum hana í té en sagðist hafa keypt hana.

Page 8: 9.tbl

8 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

›› Hljóðneminn 2012:

FUNDARBOÐAðildarsamtök Festu lífeyrissjóðs boða til opins fundar �mmtudaginn

1. mars nk. að Krossmóa 4a, Reykjanesbæ, 5. hæð. Hefst fundurinn kl. 20:00.

Fundarefni: Y�rferð og kynning á skýrslu Úttektarnefndar Landssamtaka lífeyrissjóða

um úttekt á �árfestingarstefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhver� lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Verkalýðs- og sjómannafélag Ke�avíkur og nágrennisVerkalýðsfélag Grindavíkur

Verkalýðs- og sjómannafélag SandgerðisVerslunarmannafélag Suðurnesja

Félag iðn- og tæknigreina

Sigurborg segist hafa byrjað að fikta við sönginn af einhverri alvöru fyrir rúmu ári síðan, eða þegar hún var í 10. bekk og því má segja að hún sé tiltölulega nýbyrjuð að syngja en hún er á 2. ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég vissi alltaf að ég gæti sungið en var ekki byrjuð að syngja fyrir framan fólk fyrr en frekar nýlega,“ segir Sigurborg en hún var þó að læra söng um tíma en hætti vegna þess að klassískur söngur var ekki á hennar áhuga-sviði. Sem barn var hún eitthvað að syngja en þorði ekki að syngja fyrir aðra, ekki einu sinni fjölskylduna. „Þetta var voðalegt leyndarmál. Svo einhvern tímann þá var ég að ræða við vinkonur mínar um að ég væri að syngja og þær báðu mig um að syngja fyrir sig. Ég gerði það og þær sögðu öllum frá því,“ segir Sigurborg.Í fyrra lenti Sigurborg í 2. sæti í Hljóðnemanum en henni fannst frekar erfitt að fara upp á sviðið

þá. „Þetta var töluvert auðveldara núna. Í fyrra var töluvert stress en í ár var ég eiginlega ekkert stressuð.“ Eftir keppnina í fyrra hefur Sigur-borg sungið töluvert opinberlega og er því væntanlega orðin reynsl-unni ríkari. Hún æfir sig töluvert heima fyrir og hún segir það hafa hjálpað sér mikið og hún hefur bætt sig töluvert að eigin sögn á undanförnu ári.„Ég sé alveg fyrir mér að starfa í tónlistinni í framtíðinni. Mig langar það mikið og þá sérstaklega eitthvað tengt söngnum.“ Hún segir að hún sé einnig áhugasöm um leiklist og því er aldrei að vita nema hún sameini söng og leiklist í framtíðinni. Hún ætlaði sér m.a. að taka þátt í nýjasta leikriti Fjöl-brautaskóla Suðurnesja en undir-búningurinn fyrir Hljóðnemann átti hug hennar allan.Ástæðan fyrir því að hún valdi lagið Come together sem Bítlarnir gerðu frægt fyrir u.þ.b. 40 árum síðan var einfaldlega sú að hún heyrði fallega útgáfu af laginu og svo hefur hún lengi verið aðdáandi Bítlanna. „Ég heyrði stelpu syngja þetta lag í Idol-inu og mig langaði að gera mína eigin útgáfu af því þar sem ég hef alltaf elskað Bítlana.“Önnur áhugamál fyrir utan söng-inn eru ekki mörg hjá Sigurborgu en hún tekur virkan þátt í félags-lífinu að eigin sögn. Nokkrir tón-listarmenn hafa áhrif á Sigurborgu og hún nefnir Amy Whinehouse sem dæmi. „Ég elska hana og

einnig Christina Aguilera. Svo eru Shakira og Michael Buble í miklu uppáhaldi.“Mikill íburður var lagður í Hljóð-nemann að þessu sinni og keppnin einkar glæsileg. „Ég kunni vel við mig á sviðinu og fannst voðalega gaman.“ Keppnin á stóra sviðinu er svo framundan en Sigurborg mun að sjálfsögðu vera fulltrúi Suður-nesjanna í söngvakeppni fram-haldsskólanna. „Ég verð nú að viðurkenna að ég er dálítið stressuð fyrir þá keppni. En ég ætla að reyna að standa mig eins vel og ég get.“ Sigurborg þarf að þýða lagið á ís-lensku og svo segist hún þurfa að vinna aðeins í sviðsframkomunni. Systir hennar ætlar að hjálpa henni að þýða lagið fræga yfir á íslensku.Þessa stundina er Sigurborg í hljómsveit ásamt nokkrum strákum úr Njarðvík en þegar hún var í 10. bekk stofnaði hún ásamt fleiri krökkum, hljómsveit sem kom fram á árshátíðum og þannig upp-ákomum. „Mér finnst mjög gaman á hljómsveitaræfingum og þar er alltaf fín stemning,“ segir hún.Sigurborg er á málabraut í Fjöl-brautaskóla Suðurnesja en hún vonast til þess að geta starfað í tónlistarbransanum í framtíðinni. „Þetta er það sem ég elska að gera og ég veit að mínir hæfileikar liggja þarna. Ég á bara eftir að finna út hvað ég vil gera sem tengist þessu,“ segir þessi efnilega söngkona að lokum.

n

Bjarni Stefánsson hafði verið að vinna hjá vélaverktökum

á gröfum og vörubílum áður en hann missti vinnuna um miðjan janúar í fyrra. Hann kynnt-ist Virkjun á Ásbrú þegar hann kom þangað á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun. Honum fannst Virkjun strax áhugaverð en sagðist fyrst bara hafa ætlað að fá sér kaffibolla og hitta fólk.Bjarni segist fljótt hafa kynnst Gunnari Halldóri, forstöðumanni Virkjunar, sem hafi spurt hvort hann gæti ekki lagt eitthvað af mörkum því hann sé alltaf að leita að sjálfboðaliðum. Ég sagði strax að ef ég gæti lagt eitthvað að mörkum þá myndi ég gera það. Ég sagði Gunnari það að ég kynni að glamra eitthvað á gítar og sagðist treysta mér til að leiðbeina á gítarinn.Bjarni hefur leiðbeint nokkrum hópum í gítargripum og þá hefur hann einnig tekið þátt í starfi sem kallast Vinir í velgengni. Settir hafa verið upp tónleikar á sal Virkjunar, Virkjunardagurinn haldinn hátíð-legur og margt annað áhugavert verið gert.Þó svo Bjarni hafi fengið vinnu í mars á sl. ári hjá hlaðdeild IGS þá kom það ekki í veg fyrir að hann héldi áfram að starfa með Virkjun. „Ég var hérna eins og grár köttur á milli vakta og alltaf verið hérna með annan fótinn,“ segir Bjarni í samtali við blaðið.Hann missti aftur vinnuna í sept-ember á sl. ári og fór þá á fullt í starfið með Virkjun. M.a. hefur hann haldið gítarnámskeið en segir

Virkjun er hugsuð sem „virknimiðstöð“ með hag þeirra sem ekki eru á vinnumarkaði að leiðarljósi og áherslu á atvinnuleitendur. Allir eru hins vegar velkomnir í Virkjun alla virka daga milli klukkan 08:00 til 16:00 hvort sem þeir eru atvinnuleitendur, atvinnulausir, bótaþegar og heldra fólk. Aðsókn að Virkjun hefur farið stig vaxandi og lítur út fyrir að heimsóknir í Virkjun verði tæplega 15.000 í ár. Þróunin í Virkjun er sú að starfsemin er að stórum hluta drifin áfram af sjálfboðaliðum sem leiðbeina á nám-skeiðum og halda utan um hópastarfsemi. Það eru að jafnaði 30 sjálf-boðaliðar að störfum á viku og 6 hópar og námskeið að jafnaði á dag. Hér kynnumst við Bjarna Stefánssyni sem er einn af fjömörgum sjálfboðaliðum í Virkjun. Fleiri viðtöl við fólkið í Virkjun í næstu blöðum Víkurfrétta.

að fólk sem sé án atvinnu megi vera virkara í starfinu í Virkjun.Bjarni segir að Virkjun hafi gert mikið fyrir sig og þá sérstaklega félagslega og hann segir stærsta plúsinn við Virkjun vera allt það góða fólk sem hann hafi kynnst þar. Hann hafi kynnst álíka mörgum í Virkjun á síðasta ári eins og á síð-ustu tíu árum í lífi sínu.Bjarni hvetur fólk til að taka þátt í starfinu í Virkjun og a.m.k. láta sjá sig og kíkja í kaffibolla. Mikil jákvæðni sé í gangi í Virkjun og þar verði fólk lítið vart við neikvæða strauma.

Eins og grár köttur í Virkjun á milli vakta- og kennir atvinnuleitendum gítargrip

Þetta er það sem ég elska að geraSigurborg Lúthers-

dóttir fór með sigur af hólmi í Hljóðnem-anum 2012, söngkeppni Nemendafélags Fjöl-brautaskóla Suður-nesja, sem fram fór í Andrews á Ásbrú á dögunum. Hún flutti Bítlalagið Come Together í sinni eigin útgáfu.

Page 9: 9.tbl

9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

Til HAMINGJU með áfangannYfir 1000 nemendur hafa verið útskrifaðir frá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ frá stofnun skólans í maí 2007. Sl. föstudag voru útskrifaðir 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Andrews leikhúsinu. Eftir athöfnina

hafa samtals 1022 nemendur útskrifast frá Keili og þar af rúmlega helmingur eða 604 nemendur af Háskólabrú.

Útskrifaðir voru nemendur úr Háskólabrú, Flugakademíunni og Íþróttaakademíu Keilis. Af Háskólabrú og fjarnámi útskrifuðust 73 nemendur. Úr flugþjónustu útskrifuðust 5 nemendur. Úr ATPL útskrifuðust 3 nemendur. Úr flugrekstrarfræði voru 5 nemendur útskrifaðir. Tveir nemendur útskrifuðust sem ÍAK-

einkaþjálfarar og einn sem ÍAK-íþróttaþjálfari.

Page 10: 9.tbl

10 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

AuglýsingasímiVíkurfrétta er 421 0001

Tjáskipti manna á milli geta verið flókið fyrirbæri, sérstaklega ef við höfum það í huga að orðin ein og sér hafa lítið vægi, já sérfræðingar segja innan

við 10%. Annað sem vegur þarna upp á móti eru svipbrigði, líkamsstaða, beiting vöðva, andardráttur, beiting raddar, látbragð og augnsamband.Ég man ekki hvað ég var gömul þegar ég var nokkuð viss um að ég hefði þann einstaka hæfileika að geta lesið hugsanir, í líkamstjáningu, svipbrigði og þagnir. Ég ,,vissi“ t.d. hvað fólk var að hugsa um mig og vinkonu mína þar sem við sátum í strætó á leið á dansæfingu og horfðu á nýju, allt of háu dansskóna mína með korkfylltu hælunum. Þá átti ég til að segja eitthvað að fyrra bragði eins og ,,þið getið bara sjálf verið í hallærislegum skóm“

því ekki ætlaði ég að láta fólk komast upp með svona lagað. Þegar vinkona mín hafði verið hárgreiðslumódel í eitt skiptið og sat uppi með tyggjóbleikt hárið, las ég umsvifalaust í tjáningu fólks hvar sem við vorum. Þannig gátum við verið að labba niður Laugaveginn þegar við mættum fólki sem missti andlitið yfir þessum óvenjulega háralit og þá las ég strax hvað var í gangi, vatt mér jafnvel að manneskjunni og sagði ,,ég held að þú ættir bara að fara heim til þín og gera eitthvað smekklegt við eigið hár“. Elsku vinkona mín mátti þola mikið á þessum árum - sorry elskan!!Misskilningur í samskiptum er algengari í dag en áður því meirihluti þeirra á sér stað í gegnum síma, sms, tölvupóst, msn og Facebook. Það ættu allir að vera meðvitaðir um að einföld sms eins og: ertu upptekin? kallar á mismunandi svör. Þannig þýðir: já (ég er upptekin - hringi á eftir) en svarið: JÁ!! (stórir stafir og upphrópunarmerki) þýðir: JÁ aUÐVITaÐ Er Ég UPPTEKIn Og HÆTTU aÐ TrUFLa MIg! Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyrir hvernig það talar í símann en það sem skiptir mestu máli er hvernig maður svarar þegar það er hringt í mann. sá sem svarar: jaaaá með semingi, á bara alls ekki að vera að svara yfir höfuð því svona svar þýðir bara eitt: hringir hún, ég nenni ekki að tala við hana svo ég svara bara eins og ég sé með rýting í bakinu að taka síðasta andardráttinn í þessu lífi.Eigum við eitthvað að ræða þá sem kveðja ekki, þú heyrir ekki ,,blessið“ því viðkomandi er búinn að skella á í miðju bless-inu og maður situr eftir gjörsam-lega frosin með eitthvað bleeeee í eyrunum sem má túlka: loksins er ég laus við hana úr símanum!!Facebook býður upp á allskonar misskilning og túlkanir. Breytilegir og opnir sta-tusar sem gera manni mjög erfitt fyrir og í sömu vikunni getur staðið hjá sama einstaklingnum: einhleypur, í sambandi, í opnu sambandi eða, þetta er flókið. Maður er rétt búin að sjá fyrir sér ástfangna parið í opnu og yndislegu sam-bandi, þegar fyrir hugskotssjónum manns blasa flækjur, gildrur og öngstræti. svo er ,,potið“ alveg kafli út af fyrir sig og má túlka: hei þú ert áhugaverð kona og mig langa til að kynnast þér....yfir í: sit hér einn heima og hafði ekkert betra að gera en að ,,pota“ hingað og þangað til að athuga viðbrögðin!! Og þegar maður ,,potar“ fimm sinnum í einhvern er maður þá ekki að búa til gatasigti!samskipti kynjanna geta verið flókin og í raun ótrúlegt að karlmenn átti sig ekki á því augljósa eins og þegar þeir segja: heyrðu elskan, ég var að hugsa um að skreppa út í nokkra bjóra með strákunum í kvöld, er þér ekki sama? (þýðing: ég þarf að komast einn út núna, hrynja í það með strákunum, ímynda mér að ég sé aftur orðinn átján ára og einhleypur). Þegar hún svarar: jú, jú, drífðu þig, þú hefur gott af því (þýðing: auðvitað er mér ekki sama, á eftir að sitja hér heima og ímynda mér að þú sért farinn að skoða tattúið á bringunni á gömlu kærustunni úr menntó, og þess vegna get ég lofað þér að ég mun búa um þig í sófanum þar sem þú getur ,,drepist“ þegar þú kemur sauðdrukkinn heim í morgunsárið. Búðu þig undir næstu daga í frosti vinur). Það sama á við þegar karlmenn finna á sér að eitthvað er ekki eins og það á að vera og spyrja: er ekki allt í lagi elskan? Ef svarið er: aUÐVITaÐ er allt í lagi, HVaÐ ætti svo sem að vera að!! þýðir það að sjálfsögðu: það er ekkert í lagi því þú gleymdir a) afmælinu mínu b) trúlofunardeginum okkar c)brúðkaupsdeginum okkar d) Valentínusardeginum og konudeginum e) sérð ekki að ég var að klippa mig, o.s.frv.Tjáskipti geta svo sannarlega verið flókin en galdurinn er líklega sá að spyrja ef maður er ekki viss um hvað er í gangi. Hugurinn getur farið með mann á ótrú-legt ferðalag og misskilningur á oftar en ekki rætur í óskýrum skilaboðum eða hugsanavillum þar sem við erum að lesa kolrangt í hlutina. skilaboðin mín eru skýr - við getum ekki lesið hugsanir og því er farsælast að ræða málin þegar við erum í vafa. Ef það gengur ekki upp er bara eitt til ráða - fjárfesta í textavél!

Þangað til næst - gangi þér velAnna Lóa

Er ekki allt í lagi elskan!!

BREYTING Á AÐALSKIPULAGIAUGLÝSINGum óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024, vegna Brekkustígs 11

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, hefur bæjarstjórn Reykjanesbæjar þann 21. febrúar 2012 samþykkt óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024.Breytingin er sett fram á uppdrætti, dags í janúar 2012, í mkv.1:17.500.Greinagerð, þar sem rökstuðningur kemur fram,er á uppdrætti.Breytingin felst í því að hluti svæðis til sérstakra nota fellur út fyrir stækkun stofnanareits vegna sérdeildar fyrir börn með hreyfihömlun. Svæðið afmarkast af Grundarvegi, Brekkustíg og Njarðarbraut.

Málsmeðferð var í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.

Reykjanesbæ, 22. febrúar 2012.Sveinn Númi VilhjálmssonSkipulagsfulltrúi

Mánagata 11, KeflavíkOPIÐ HÚS milli klukkan 17:00 og 18:00mánudaginn 5. mars 2012 Fallegt og vel staðsett 287,8m2 einbýlishús ásamt 24,5m2 bílskúr, samtals 312,3m2. Húsið er á þremur hæðum og sér íbúð í kjallara með sér inngangi sem hægt er að leigja út. Hús sem vert er að skoða, sjón er sögu ríkari.Umsjón: Elsa Björg, sími: 664-6013

Linda B Stefánsdóttir,Löggiltur fasteignasali

kr. 33.000.000,-

FRAMREIÐSLUSTÖRFOkkur vantar fleiri þjóna í aukavinnu í Stapann Reykjanesbæ.

Reykleysi skilyrði, góð þjónustulund og góð framkoma.

Vinsamlega sendið inn umsókn á [email protected]

Ekki yngri en 20 ára

HÚSMÆÐRAORLOFGULLBRINGU- OG KJÓSARSÝSLU

Álftanes, Garðabær, Garður, Grindavík, Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Sandgerði, Seltjarnarnes og Vogar.

Rétt til þess að sækja um eftirfarandi ferðir, hefur sérhver kona sem veitir, eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf.

Franska Rivieran, Cannes og Mónakó, 2. til 9. júní.Aðventuferð til München, 8. til 11. desember.

Eftirtaldar konur veita nánari upplýsingar og taka á móti pöntunum í síma á milli kl. 17:00 og 19:00 á virkum dögum frá 27. febrúar til 7. mars.

Svanhvít Jónsdóttir, s. 565 3708Ína Jónsdóttir, s. 421 2876Guðrún Eyvindsdóttir, s. 422 7174Valdís Ólafsdóttir, s. 566 6635Sigrún Jörundsdóttir, s. 565 6551

Orlofsnefndin

Opinn dagur hjá lögregl-

unni á Suður-nesjum í til-efni opnunar

hverfisstöðvar á Ásbrú

Á undanförnum árum hefur lögreglustjórinn á Suður-

nesjum aukið áherslu á hverfa-löggæslu í umdæminu. Frá árinu 2009 hafa verið opnaðar hverfi-stöðvar í fjórum sveitarfélögum í umdæminu þ.e. í Sveitarfélaginu Garði, Grindavíkurbæ, Sandgerð-isbæ og Sveitarfélaginu Vogum og nú í byrjun mars opnar sú fimmta á Ásbrú í Reykjanesbæ. Mark-miðið með hverfalöggæslu er að auka og efla tengsl lögreglu við íbúa, félagasamtök og stofnanir ásamt því að auka þjónustu lög-reglu við íbúa. Ljóst er að viðvera lögreglu í minni sveitarfélögum í umdæminu hefur mælst vel fyrir og vill lögreglan auka þjónustu sína við íbúa svæðisins og efla tengsl við samfélagið með því að opna hverfastöð á Ásbrú.Í tilefni opnunar hverfisstöðvar-innar á Ásbrú verður lögreglan með opinn dag við Skógarbraut 945 á Ásbrú laugardaginn 3. mars n.k. frá klukkan 13:00 til 16:00. Til sýnis verða ökutæki lögreglu ásamt tækjum og ýmsum búnaði sem lögreglan notar við störf sín. Lúlli löggubangsi verður á svæðinu og mun taka lagið ásamt Krissa löggu klukkan 14:00. Boðið verður upp á veitingar.

Viðvera lögreglu í hverfa-stöðvum á Suðurnesjum er:

Ásbrú: 09:00 – 13:00Garður: 13:30 – 15:30

Grindavík: 09:00 – 17:00Sandgerði: 08:00 – 16:00

Vogar: 13:30 – 15:30

Page 11: 9.tbl

11VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000

Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222

STÖRF HJÁ IGS 2012Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins.

IGS leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytileg og skemmtileg störf í hlaðdeild IGS.

Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi, sveigjanleika og árvekni. Unnið er á vöktum.

Umsækjendur þurfa að geta unnið út september og/eða nóvember 2012 og vera tilbúnir að sækja undirbúningsnámskeið.

Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur

Hlaðdeild:Lágmarksaldur 19 ár, almenn ökuréttindi, vinnuvélaréttindi æskileg, enskukunnátta

Dagleg vellíðan, orka og úthald byggir að miklu leyti á því hvaða

fæðu við setjum ofan í okkur. Mataræðið hefur mun meiri áhrif en okkur grunar o g e r m j ö g s tór þ át tu r í heilsufari okkar.

Næringarrík fæða getur m.a. stuðlað að bættum svefni, skýrari hugsun, betra skapi og aukinni afkastagetu yfir daginn. Að snarla á hollum millibitum heldur blóð-sykrinum í jafnvægi og gefur okkur jafna orku til að takast á við verkefni dagsins. Einnig erum við að koma í veg fyrir slæmar ákvarðanir í fæðuvali ef við pössum okkur að borða reglulega yfir daginn. Hér eru

nokkrar hugmyndir að hollum millibitum sem hægt er að grípa í með lítilli fyrirhöfn heima fyrir eða í vinnunni.

Epli með lífrænu hnetusmjöri.Grísk jógúrt með bláberjum.Þurrkaðir ávextir og hnetur.Sellerístöngar með líf-rænu möndlusmjöri.Ferskar grænar sykurbaunir. Hrökkbrauð með kota-sælu og papriku.Gulrætur og hnúðkál í strimlum dýft í hummus.Kókósflögur, goji ber og kasjúhnetur.Kirsuberjatómatar, soðið eggMöndlur, rúsínur, söl.

Heilsukveðja,Ásdís grasalæknir.

Page 12: 9.tbl

12 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR12 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

Forvarnar- og meðferðar-teymi barna

Sálfélagsleg þjónusta hefur verið starfrækt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðan 2005. Á heilsu-gæslu HSS er starfandi forvarnar- og meðferðarteymi barna, sem er teymi sérfræðinga sem veitir börnum og fjölskyldum þeirra ráð-gjöf og meðferð. Teymið vinnur í nánu samstarfi við annað fagfólk innan og utan stofnunarinnar. Markmiðið er að veita börnum og foreldrum ráðgjöf og meðferð og grípa inn í á fyrstu stigum vandans. Þjónustan miðast við aldurinn 0-18 ára. Þjónustan hefur smátt og smátt verið aukin. Þess má geta að tilvís-anir í teymið voru ríflega 100 fleiri árið 2011, en árið á undan. Í for-varnar- og meðferðarteymi barna hafa því myndast biðlistar og er bið nú um 6-8 vikur. Þar er verið að fjölga starfsfólki, enda þörfin brýn.

Geðteymi fyrir fullorðnaÞað sem er nýtt hjá HSS er að á síðasta ári byrjaði stofnunin með þjónustu fyrir fullorðið fólk með geðraskanir og sett var upp göngu-deildarþjónusta fyrir fullorðna.Í febrúar á síðasta ári var fyrsta skrefið tekið í átt að aukinni þjón-ustu við einstaklinga með geðræna erfiðleika, 18 ára og eldri, með stofnun Geðteymis og Samráð-steymis milli Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, félagsþjónustu sveitar-félaganna og geðsviðs Landspítala Háskólasjúkrahúss.- Hvernig eruð þið að ná til þessa fólks?„Það var farið af stað með grunn-vinnu að tala við alla aðila sem eru að vinna með þessu fólki, s.s. félagsþjónustuna, Björgina og heimahjúkrun. Hjá þessum aðilum fengust upplýsingar um þá aðila

sem taldir voru í þörf fyrir þjónustu geðteymis. Við höfum haft frum-kvæði að setja okkur í samband við þetta fólk, kannað ástand þess og boðið því þjónustu okkar.Það hefur verið mikil ásókn í þjón-ustu okkar og margar tilvísanir borist til okkar, t.d. frá læknum á heilsugæslunni, heimahjúkrun, félagsþjónustu, endurhæfingarúr-ræðum, öðrum heilbrigðisstofn-unum, en einnig leita einstaklingar sjálfir til okkar“.Hrönn segir að geðteymið starfi eftir hugmyndafræði valdeflingar, þar sem meðferðarvinna er unnin í samvinnu við skjólstæðinga og stuðlar að aukinni þekkingu á sjúk-dómseinkennum. Þannig er reynt að efla bjargráð skjólstæðinga og hjálpa þeim að ná tökum á eigin lífi. Markmiðið er að færa geð-heilbrigðisþjónustu í heimabyggð og auka aðgengi og samstarf milli

þjónustuaðila, en ekki síst að auka lífsgæði neytandans.Geðteymið starfar í náinni sam-vinnu við geðsvið Landspítala Háskólasjúkrahúss, Björgina; geðræktarmiðstöð Suðurnesja og félagsþjónustuna á svæðinu.

Göngudeildarþjónusta„Með stofnun geðteymis er hægt að bjóða upp á göngudeildarþjónustu, sem nær til einstaklinga með alvar-legar geðraskanir, en sinnir einnig bráðatilfellum og áfallahjálp.Teymið sinnir fólki sem þarf lang-tíma stuðning,“ segir Hrönn. Hún segir að teyminu á HSS sé ætlað að styðja við bakið á fólki á sínu heimasvæði, þannig að það þurfi ekki að sækja alla þjónustu til Reykjavíkur. Margir skjólstæðinga deildarinnar hafi sinn geðlækni í Reykjavík en geti sótt aukinn

stuðning á HSS.„Pétur Hauksson geðlæknir kemur í Björgina einu sinni í viku og fólk hefur leitað til hans í viðtöl, einnig hefur geðteymið getað vísað fólki til hans. Við erum að auka þjón-ustu við þann hóp og einnig aðra á svæðinu sem ekki hafa verið að fá eins mikla hjálp og hafa leitað þegar allt er komið í óefni til Reykjavíkur. Einnig er náin samvinna við lækna heilsugæslu HSS“.Hrönn segir teymið fyrst og fremst einblína á veikasta hópinn á svæð-inu en einnig komi upp bráðamál sem þurfi að sinna. Hún segir að teymið fundi vikulega þar sem ný mál séu tekin til skoðunar. Helst séu það vægari mál sem þurfi að vísa frá. Það séu þá mál sem fólk geti fengið úrlausn á með því að fá tíma hjá sálfræðingi á stofu utan sjúkrahússins. Einnig hefur verið boðið upp á HAM námskeið (hug-ræna atferlismeðferð) sem tveir sálfræðingar HSS hafa haldið og er það samskonar námskeið og haldin hafa verið um árabil á Landspítala við mikla aðsókn. Þangað er hægt að vísa þátttakendum til að læra og þjálfast í að nota aðferðir hug-rænnar atferlismeðferðar til að efla geðheilsu sína.

Fordómar gagnvart geð-sjúkdómum

Fordómar gagnvart geðsjúkdómum eru ennþá til staðar og dæmi eru um að fólk kjósi frekar að fara til Reykjavíkur eftir þjónustu og falla þar í fjöldann.Hrönn segir að það sé líka vaxandi hópur sem finnst það styrkur að sækja þessa þjónustu og vinna í sínum málum. „Fólk horfir á þetta sem sjálfsrækt og það verða vonandi fleiri sem horfa þannig á málið. Öll þurfum við á stuðningi að halda einhvern tímann á lífsleið-inni og það er ekkert öðruvísi með geðsjúkdóma en aðra sjúkdóma“.

Suðurnes í fararbroddi í geð-heilbrigðisþjónustu

Suðurnes eru í fararbroddi á lands-byggðinni þegar kemur að þessari geðheilbrigðisþjónustu. Módelið sem unnið er eftir á Heilbrigðis-stofnun Suðurnesja er þekkt erlendis og hefur víða á Norður-löndunum verið unnið eftir því þar í tvo til þrjá áratugi. Miklar áherslubreytingar eiga sér stað í geðheilbrigðismálum í dag og nú er verið að afstofnanavæða mála-flokkinn, ef svo má að orði komast. Með því eru áherslurnar færðar frá stofnununum og út í samfélagið. Það eru meiri lífsgæði fyrir ein-staklinga sem glíma við geðvanda-mál að vera studdir heima við sé þess kostur. Markmiðið sé að efla bjargráð fólks heima við í stað þess að kippa fólki út úr sínu eðlilega umhverfi með innlögn. Þegar það kemur svo aftur heim eru vanda-málin enn til staðar.- Er vandinn hér meiri en annars staðar á landinu?Hrönn segir að hópurinn sem glímir við geðræn vandamál sé að stækka, enda helst það í hendur við ástandið í þjóðfélaginu. Fólk sé t.a.m. með fjárhagsáhyggjur vegna atvinnuleysis og því fylgi oft kvíði og þunglyndi. Hrönn segir að það sé töluvert stór hópur af fólki á Suðurnesjum sem þarf á þessari þjónustu að halda.„Hér búa 22.000 manns og hér er hátt hlutfall atvinnuleysis. Hér er einnig hátt hlutfall öryrkja. Það er framsýni hjá HSS að vilja bæta þessa þjónustu. Aukin þekking á andlegri líðan og áhrif hennar á líkamlega líðan kemur þarna inn og það er mikið forvarnarstarf að hlúa að andlegu hliðinni.Það er mjög einstaklingsbundið hversu oft fólk fær þjónustu geð-teymis HSS. Teymið er með ein-staklinga sem það hittir vikulega og svo aðra sem koma sjaldnar. Sumir séu í langtímaeftirfylgd meðan aðrir koma í krýsuástandi og eru í eftirfylgd í nokkrar vikur.

Hjá geðteyminu er sálgæsluhjúkr-unarfræðingur sem hefur sinnt áfallahjálp og sorgarvinnu. „Góð samvinna er við prestana á svæðinu sem vísa til okkar málum, þar sem þörf er á sértækri eftirfylgd“.

Geðrækt er eins og hver önnur líkamsrækt

Mjög góð leið er að leita til heilsu-gæslulæknis ef fólki líður illa og finnst ástandið vera viðvarandi. Þeir vísa þá fólki á geðteymið. Einnig getur fólk haft samband beint við geðteymið á HSS og fengið leið-sögn þar, hvert eigi að leita ef málið er ekki þess eðlis, að teymið taki það að sér til úrlausnar. Eins og sagt er, betra er heilt en vel gróið, það er betra að leita sér aðstoðar áður en allt er komið í óefni og oft þarf ekki að breyta miklu til að fá betri líðan. Geðrækt er eins og hver önnur líkamsrækt, það þarf hver að finna sitt jafnvægi og ekki horfa á geðraskanir sem feimnismál. Það er engin heilsa án geðheilsu.“Í geðteymi fullorðinna eru 2,2 stöðugildi hjúkrunarfræðinga og sálfræðings. Teymið vinnur í nánu samstarfi við annað fagfólk innan og utan stofnunarinnar. Verk-efnin eru hins vegar mörg og eftir-spurn eftir þjónustunni hefur verið vaxandi. Hrönn vonast því til að hægt verði að fjölga í teyminu svo það geti sinnt öllum þeim málum sem því berast, en einnig sé brýn þörf á samvinnu við aðstandendur, fræðslu og forvarnarvinnu.

Stuttar boðleiðirFrá því geðteymið tók til starfa í júlí hefur það leyst úr á annað hundrað málum. Hrönn er ánægð með hvernig til hefur tekist með málaflokkinn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún segir gott starfs-fólk við stofnunina og þá séu kost-irnir við vinnuna á HSS vera stuttar boðleiðir og að allir séu tilbúnir til að hjálpa.

Texti og mynd: Hilmar Bragi

Engin heilsa án geðheilsuBreyttar áherslur eru í geð-

heilbrigðisþjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Suður-

nesja (HSS). Þar hefur geðheilbrigðisþjónusta

við íbúa Suðurnesja verið stóraukin með því að

komið var upp þverfaglegu teymi við heilsugæsluna,

sem fékk það verk-efni að auka þjónustu í

heimabyggð, styðja fólk heima og ýta undir bjarg-

ráð í nærumhverfinu.Hrönn Harðardóttir er yfir-

hjúkrunarfræðingur geð-sviðs HSS. Hún er með

meistaragráðu í heilbrigðis-vísindum með áherslu á geðheilbrigðisþjónustu. Víkurfréttir tóku Hrönn tali og fengu hana til að

útskýra þá þjónustu sem nú er í boði og hafa sett

Suðurnes í fararbrodd í þessum málaflokki á

landsbyggðinni. Starfið sem unnið er á HSS hefur vakið athygli annarra heilbrigðis-stofnana sem hafa sýnt því

módeli sem unnið er eftir á Suðurnesjum áhuga.

- segir Hrönn Harðardóttir yfirhjúkrunarfræðingur geðsviðs HSS í viðtali við VF um breyttar áherslur.

›› Geðheilbrigðisþjónusta við íbúa Suðurnesja hefur verið stóraukin:

F.h.: Hrönn Harðardóttir yfirhjúkrunarfræðingur, Hulda G. Sigurðardóttir sálgæsluhjúkrunarfræðingur,Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur, Ásdís Claessen sálfræðingur og Hrund Teitsdóttir sálfræðingur.

„Öll þurfum við á stuðningi að halda einhvern-tímann á lífsleiðinni og það er ekkert öðruvísi með geðsjúkdóma en aðra sjúkdóma“.

Page 13: 9.tbl

13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

Dustin Lee Post,Stefán Jón Friðriksson,Kristín Hrönn Ragnarsdóttir, John R. Brantley,Benóný Haraldsson, Vilborg Jóhannesdóttir,Friðrik Friðriksson, systkini hinnar látnu og aðrir aðstandendur.

Ástkær móðir okkar, dóttir, barnsmóðir og systir,

Ragnheiður Kristín Benónýsdóttir,(Heiða)

Heiðarhvammi 4f, 230 Keflavík,

varð bráðkvödd að heimili sínu þann 10. febrúar síðastliðinn.Útförin fór fram í kyrrþey.

Ættfræði á bókasafninuFélagar af Suðurnesjum í Ættfræðifélaginu ætla að hittast á

bókasafninu og ræða saman um ættfræði þriðjudaginn 6. mars 2012 kl. 17:00-19:00.

Allir áhugasamir eru velkomnir.

Reykjanesbær bauð fulltrúum félaga, klúbba og samtaka

til kaffisamsætis sl. fimmtudag í listasafni Duus, í tilefni góð-gerðardaga skátanna. Í ræðu sem Árni Sigfússon, bæjarstjóri hélt sagði hann starf „þriðja geirans“ en svo er félagsstarf jafnan kallað, væri gríðarlega mikilvægt í hverju bæjarfélagi. „Hér í Reykjanesbæ er öflugt starf unnið í fjölbreyttu félagsstarfi en einnig meðal ein-

staklinga. Fyrir það ber að þakka enda er það ómetanlegt,“ sagði Árni.Fjölmargir mættu í samsætið og nutu veitinga og tónlistaratriða frá Tónlistarskólanum í Reykjanesbæ. Björk Gunnarsdóttir, þverflaut-unemandi og Ísak Daði Ingvason, klarinettnemandi léku fyrir gesti og Geirþrúður F. Bogadóttir lék með Ísak á hljómborð.

Laugardaginn 25. febrúar sl. var í 8. sinn haldinn Dagur

um málefni fjölskyldunnar í Reykjanesbæ. Boðið var uppá ávörp og áhugaverð erindi. M.a. flutti Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur erindi um mál- og talörvun barna, en hún hefur gefið út námsefnið „lærum og leikum með hljóðin“. Auk þess að nýtast vel í skólum, þá er námsefnið tilvalið tæki til að hjálpa foreldrum að örva mál- og tal ungra barna sinna í leik og at-höfnum daglegs lífs. Einn er sá liður sem skipar orðið

fastann sess á þessum degi, en það eru viðurkenningar til fyrirtækja og stofnanna sem þykja af starf-mönnum þeirra skara fram úr varðandi jákvætt viðmót í garð fjöl-skyldunnar og samræmingu fjöl-skyldulífs og atvinnuþátttöku. Eftirtaldir vinnustaðir hlutu að þessu sinni viðurkenningar:KeflavíkurkirkjaVerkfræðistofa SuðurnesjaLeikskólinn HeiðarselAlls hafa nú 25 vinnustaðir hlotið viðurkenningu sem fjölskylduvænt fyrirtæki og/eða stofnun.Á þessum degi er einnig boðið

uppá barnapössun og fengu börnin óvænta heimsókn þegar Íþrótta-álfurinn kom í heimsókn.Ég vil nota þetta tækifæri og þakka öllum þeim sem lögðu okkur lið og um leið óska þeim vinnustöðum sem hlutu viðurkenningar til ham-ingju.

Sjáumst að ári.Hjördís Árnadóttir,

félagsmálastjóri

›› Dagur um málefni fjölskyldunnar í Reykjanesbæ:

›› Reykjanesbær:

Tuttugu og fimm vinnustaðir hlotiðviðurkenningu sem fjölskylduvænir

Ómetanlegt sjálboðaliða- og félagsstarf í Reykjanesbæ

Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir!n Auglýsingadeild í síma 421 0001n Fréttadeild í síma 421 0002n Afgreiðsla í síma 421 0000

Page 14: 9.tbl

14 FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR

ÝMISLEGT

Búslóðaflutningar og allur al-mennur flutningur. Er með 20 rúmmetra sendibíl/kassabíl með lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.

Tek að mér allskonar viðgerð-ir á bílum, sláttuvélum. Er með greiningartölvu til að bilanagreina margar tegundir bíla. Vanur mað­ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð! Uppl. S: 864 3567.

2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR

SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS

TIL LEIGU

70 m2 íbúð í KeflavíkLeiga 75 þús. m. rafmagni og hita. Svefnherbergi með stórum fata­skáp, stórt eldhús og stofa. Laus strax. Uppl. í síma 847 7364 eftir kl. 16.

HeiðarhvammurÞriggja herbergja íbúð í Keflavík til leigu 85 þús. á mánuði f. utan hita og rafmagn. Laus strax. S.892 9163

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja

Skyggnilýsingarfundur

Þórhallur Guðmundsson verður með skyggnilýsingar­

fund í húsi félagsins að Víkurbraut 13 í Keflavík,

sunndaginn 4. mars kl. 20.30

Aðgangseyrir 1500 kr.

Allir velkomnirStjórnin.

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 1. ­ 7. mars nk.

• Bingó • Gler-, keramik- og leir­námskeið • Handavinna

• Leikfimi • Dansleikfimi • Jóga á boltum • Hádegismatur •

Síðdegis kaffi • Tölvuklúbbur FEBS Léttur föstudagur

Föstudaginn 2. mars nk. Léttur föstudagur kl. 14:00

Kaffihúsið opið.

Nánari upplýsingar í síma 420 3400

www.vf.IS

Kirkjur og samkomur:Hvítasunnukirkjan í KeflavíkSúpa og brauð í hádeginu alla föstudaga.Föstudagur kl. 20.00 Opið hús.Gestur okkar verður Freddie Filmore frá Florida.Sunnudagur kl. 11.00 Fjölskyldu­samkoma.Þriðjudagur kl. 20.00 Bæna­samkoma.Þriðjudaga og fimmtudaga bæna­stundir í hádeginu.

ÓSKAST5 manna fjölskylda óskar eftir húsnæði til leigu. Óskum eftir ein­býli, par­ eða raðhúsi til leigu í Innri Njarðvík. Uppl. í síma 663 9964.

Óska eftir leiguhúsnæði!Ég er snyrtilegur, reglusamur og reyklaus verkamaður sem er að leita mér að heimili til lengri tíma. Ég er ekki á vanskilaskrá og ég get borgað leigu fyrirfram. 692­ 8012, (Dagur) [email protected]

Óskast til leiguBílskúr eða lítið pláss óskast. Upplýsingar í síma 868 1418, Egill.

ÞJÓNUSTASkattframtöl 2012.Vantar þig aðstoð við skattframtalið þitt? Ódýr og góð þjónusta í boði fyrir þig. http//bokhald.net eða 846 4441

SPÁKONASpámiðillLes í bolla, spil, Tarot og Sígauna.Á lausa tíma. Tímapantanir í síma 421 1152 og 691 6407.Kveðja Rósa

OK GÆLUDÝRAFÓÐURGæðavara á góðu verði.

Opið fram á kvöld alla daga.STAPAFELL - Hafnargötu 50.

NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM

SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM www.vf.IS

HEILSA

Viltu léttast án þess að svelta þig?Íslensku Vigtarráðgjafarnir kenna þér að temja þér heilbrigðan lífsstíl þannig að þú léttist og öðlast bætta líðan. Síðustu forvöð að skrá sig á námskeið í Reykjanesbæ að sinni. Nýliðar velkomnir alla mánudaga í mars, ekki tekið við nýliðum eft­ir það.Ís lensku Vigtarráðgjafarnir, Grófinni 8, 230 Reykjanesbæ.Sóley Birgisdóttir, lýðheilsufræð­ingur.S: 869­9698.

Leiðsögn um þorrablótið sem slegið hefur í gegn

Nú líður óðum að því að vetur konungur fari að kveðja og vorið að birtast okkur í allri sinni yndis-legustu mynd. Að sama skapi tekur líkamsstarfsemin okkar mannanna breytingum við árstíðarskiptin þegar líkaminn byrjar að hreinsa sig af vetrarhýðinu með tilheyrandi og eðlilegum niðurgangi.Niðurgangur getur bæði haft skaðlausar en einnig mjög hættulegar afleiðingar. Þær geta komið fram í að eiturefni fari í mat, upp komi sýkingar, bakteríur þróist, sjúkdómar eða sveppasýkingar. Sálrænar afleiðingar, til dæmis álag og streita fyrir próf og verkefni eða kvef- og flensubylgja á leikskólanum, geta haft sams konar áhrif á líkamann.Við hnerra dreifast sýkingar og bakteríur lengra en fjóra metra sem þýðir að sérhvert barn í grenndinni getur smitast mjög auðveldlega. Smit í gegnum hráa eða skemmda fæðu eða milli barna sem eru sýkt af bakteríum getur leitt til niðurgangs. Vökvamissir vegna niðurgangs hefur þau áhrif á líkamann að hann þornar að innan og missir mikilvæg steinefni og næringarefni, til dæmis magnesíum, natríum (sem einkum fæst úr matreiðslusalti) og kalíum sem er mikilvægasta næringarefnið og hefur einnig áhrif á vöðvastarfsemi.Standi niðurgangur lengur en tólf klukkustundir er ráðlegt að leita læknis. Ef um ákafan niðurgang er að ræða er gott að fá sér haframjöl með mjólk

eða vatni í morgunmat daginn eftir. Einnig ætti að gæta þess að borða í litlum skömmtum yfir daginn. Oftast hjálpar þessi aðferð betur en „kók og salt-stengur“. Ef tekin eru lyf sem virka gegn niðurgangi getur það leitt til hægðartregðu dag-ana á eftir sem hefur slæm áhrif á virkni í þörmum. Til að færa líkamanum að nýju þau steinefni sem hann hefur misst er hægt að fylgja gömlu húsráði. Blandið saman einni teskeið af borðsalti, fimm te-skeiðum af sykri, hálfri teskeið af lyftidufti og setjið síðan út í einn lítra af sjóðandi vatni með örlitlum appelsínusafa. Drekkið í litlum skömmtum nokkrum sinnum yfir daginn. Bætið bananabitum út í til að bragðbæta blönduna.Mörg börn og unglingar taka sér ekki nægan tíma í að tæma þarma almennilega, stundum vegna tíma-leysis eða af skömm ef þau eru til dæmis stödd í skóla eða leikskóla. Oft gleyma þau að tæma sig áður en þau fá sér að borða og það leiðir til þess að maturinn bragðast ekki jafn vel og ella. Öll þessi smáatriði skipta miklu máli fyrir líkamsþroska barna og ungmenna.

Birgitta Jónsdóttir Klasen

Líkamsstarfsemin tekur breytingumBirgitta Jónsdóttir Klasen skrifar

Sunnudaginn 4. mars kl. 15:00 verður myndlistarkonan

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með leiðsögn um sýningu sína „Á Bóndadag“ sem nú stendur yfir í sýningarsal Listasafns Reykjanes-bæjar í Duushúsum. Þar hefur Aðalheiður, ásamt gestalista-mönnunum Guðbrandi Siglaugs-syni, Gunnhildi Helgadóttur, lista-tvíeykinu Ar-Se; Sean Millington og Arnari Ómarssyni, Nikolaj Lo-rentz Mentze og Jóni Laxdal Hall-dórssyni, umbreytt Listasalnum í félagsheimili þar sem þorrablót stendur yfir með tilheyrandi áti og skemmtanahaldi. Það er óhætt að segja að sýningin hafi slegið í gegn en hundruð gesta hafa lagt leið sína í safnið og tekið þátt í þorrablótinu.

Sýningin er 34. sýningin í röð 50 sýninga sem bera yfirskriftina Réttardagur og fjalla allar á einn eða annan hátt um sauðkindina og þau mótunaráhrif sem bændamenn-ingin hefur haft á okkur Íslendinga sem þjóð. Markmið verkefnisins er að sýna breiða mynd af samfélagi sem lætur lítið yfir sér en er engu að síður undirstaða vænlegs lífs. Hinar ýmsu hliðar menningar sem við tökum sem sjálfsögðum hlut og hugum því ekki að dags daglega, eins og mikilvægi hversdagsleik-ans.Sýningin stendur til 18. mars og er opin frá kl. 12.00 – 17.00 virka daga og 13.00 – 17.00 um helgar og aðgangur er ókeypis.

n

Valur Margeirsson hefur opnað verslun með bílavara-

hluti, bílavörur og vinnufatnað á Fitjatorgi á Fitjum í Njarðvík. Verslunin er opin virka daga frá kl. 07 að morgni til kl. 20 að kvöldi. Einnig er opið um helgar en þá í styttri tíma.Í samtali við Víkurfréttir sagði Valur það vera gamlan draum að stússast í svona verslunarrekstri en í kjölfar þess að hann missti vinnuna hjá Varnarliðinu á Kefla-víkurflugvelli árið 2004 fór hann í verslunarrekstur og keypti rekstur á lítilli þjónustuverslun við bensín-stöð Orkunnar á Fitjum. Honum og öðrum rekstraraðilum í húsinu hafði verið sagt upp húsaleigu þar sem til stóð að fara í breytingar á húsinu. Þau áform breyttust um áramót og Valur fékk boð um að leigja allt húsið. Hann lét slag standa og hefur nú opnað verslunina.Mikið af þeim vörum sem Valur selur koma frá Poulsen og smátt og smátt bætist í vöruúrvalið. Þeir sem leita að viftureimum, bremsum,

ljósum og ýmsu öðru fyrir bílinn ættu að kíkja við í verslunina til Vals. Þar eru einnig verkfæri, hreinsivörur og olíur.Auk verslunarinnar á Fitjum þá eru Valur og samstarfsaðili hans, Jón Þór Önundarson, með bílaþjónustu. Hún hefur til þessa verið í Grófinni en er að flytja í nýtt húsnæði þar sem Vatnsafl var á Njarðarbraut í Njarðvík. Þar verður í boði að fá olíu- og dekkjaskipti, auk smávið-gerða. M.a. hafa þeir félagar sér-hæft sig í bílum frá Volkswagen og Audi en þjónusta í raun alla bíla. Til þess að vekja athygli á nýju bíla-búðinni setti Valur blikkandi ljós í glugga verslunarinnar í rauðum og bláum litum. Í gærmorgun mætti hins vegar lögreglan og bannaði honum að hafa ljósin í glugganum. Valur segist hafa verið undrandi á þessu enda hafi það tíðkast í fjölda-mörg ár að verslun með bílahluti í Reykjavík, Bílasmiðurinn, hefur verið með blikkandi forgangsljós í gluggum sinnar verslunar.

n

›› Verslun og þjónusta:

Ný verslun með bíla-vörur á Fitjatorgi

Kaupmaðurinn Valur Margeirsson í verslun sinni á Fitjum.

Page 15: 9.tbl

15VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 1. Mars 2012

ORLOFSHÚS VS PÁSKAR 2012

Valkostir:Akureyri

Hraunborgir (2 hús)Flúðir

Svignaskarð (nýtt hús)Ölfusborgir

Leigutími: 4.- 13. apríl

Leigugjald: kr. 20.000.-

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heima-síðu vs.is. Umsóknarfrestur er til hádegis 16. mars nk. Dregið verður úr

innsendum umsóknum. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins, að Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ eða í síma 421-2570.

Orlofsnefnd útspark Ómar JÓhannsson

Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn.

Um síðustu helgi fór fram fótboltamót til minningar um flottan fótboltamann og enn betri persónu, hann Ragnar Margeirsson. Þá var tækifærið einnig notað og fé safnað til styrktar fjölskyldu annars mikils meistara sem fallinn er frá, Sigursteins Gíslasonar. Þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Virkilega flott framtak og skemmtilegt mót sem er komið til að vera. Þarna voru saman komnir menn á besta aldri sem voru hvað ánægðastir með að komast í búningana. Það var greinilegt að þarna voru einnig komnir menn sem vissu svo sannarlega hvað gera átti við fótbolta þó að líkaminn væri stundum seinn að svara kallinu. Ég hitti svo marga þeirra seinna um kvöldið á öðrum árlegum viðburði sem herrakvöld Keflavíkur er. Þar sleiktu menn sárin í góðum félagsskap og studdu við bakið á sínu uppáhaldsfélagi í leiðinni. Þarna voru margir af helstu stuðningsmönnum Keflavíkurliðsins sem nauðsynlegir eru hverju íþróttafélagi sem vill ná árangri.

Á bak við hvert farsælt íþróttafélag stendur hópur af fólki sem sinnir hinum ýmsu verkum og fær oftast nær lítið lof fyrir. Flestir inna sína vinnu af hendi án nokkurar greiðslu og í sínum eigin dýrmæta frítíma. Einhverjir fá greiðslu fyrir sem er ekkert endilega í samræmi við þá miklu vinnu sem menn leggja fram. Þetta geta verið stjórnarmenn, sjúkraþjálf-arar, búningaverðir, vallarstarfsmenn, liðstjórar, sjúkraflutn-ingamenn, vatnsberar, miðasölufólk eða hvað sem er nánast. Allir hafa þessir einstaklingar það að markmiði að hjálpa þeim sem inni á vellinum eru, að gera það eins vel og kostur er. Þannig hjálpa menn sínu liði. Leikmenn geta, með svona fólk á bak við sig, einbeitt sér að því að spila fótbolta. Þeir mæta í notalegan búningsklefann og finna þar búninginn sinn hreinan og tilbúinn fyrir leik. Fá þá aðhlynningu sem þarf til að vera leikfær og hlaupa út á nýslegið grasið. Sum hlutverk eru stærri en önnur en öll eru þau mikilvæg.

Einn maður gengur lengra en flestir í framlagi sínu á bak við tjöldin. Ég held ég móðgi engan þegar ég nefni Þórólf Þor-steinsson, betur þekktan sem Dóa, í því samhengi. Hann er að mínu mati hið fullkomna dæmi um mann sem vinnur fyrir félagið sitt á bak við tjöldin. Fyrir þá sem ekki vita sér hann til þess að æfingafötin hangi hrein á snaga þess leikmanns sem á þau fyrir hverja einustu æfingu. Einnig passar hann upp á keppnisfötin, að þau séu tilbúin fyrir hvern leik. Þetta gerir hann með dyggri aðstoð Rikku konu sinnar. Að baki sérhvers góðs manns er enn betri kona. Meiri Keflvíkingur er vandfundinn og gerir hann svo miklu meira en að passa upp á búningana. Þegar morgunæfingar voru haldnar fyrir yngri leikmenn Keflavíkur sá hann til þess að leikmenn fengju hafragraut og lýsi áður en haldið var í skólann. Hann styður liðið í blíðu og stríðu og stendur ávallt okkar megin í baráttunni. Hann er alltaf tilbúinn að hjálpa til.

Það er fólk eins og Dói sem eru uppistaðan í alvöru liði. Það er fólkið á bak við tjöldin sem er sálin í íþróttafélögum. Án þeirra er engin sál og án þeirra vinnast engir titlar. Góð umgjörð er nauðsynleg liðum sem ætla sér árangur. Þegar leikmönnum líður vel spila þeir vel og þess vegna eru „Dóarnir“ nauðsyn-legir hverju liði.

hvert lið þarfað eiga sinn DÓa

Knattspyrnudeild Grindavíkur skilaði um 9 milljóna króna hagnaði árið 2011. Þessi

niðurstaða kom fram á aukaaðalfundi sem fór fram í deildinni á dögunum.Þessi niðurstaða er allt önnur en haldið var fram í haust þegar því var haldið fram að knattspyrnu-deildin hafi tapað 21 milljón á rekstrarárinu. Hagn-aður deildarinnar liggur í útistandandi skuld sem UMFG er að innheimta í Búlgaríu vegna sölunnar á Jósef Kristni Jósefssyni.

Hagnaður upp á 9 milljónir hjá knattspyrnudeild Grindavíkur- áður haldið fram að deildin hafi tapað 21 milljón

Minningarmót um Ragnar Margeirsson var haldið

í Reykjaneshöll s.l. laugardag. Mótið er orðið að árlegum við-burði og er haldið fyrir knatt-spyrnumenn eldri en 35 ára. Mótið tókst í alla staði mjög vel og voru allir sem að mótinu komu sérlega ánægðir í lok dags. Það voru 16 lið sem tóku þátt, sem er jafnframt metþátttaka. Allur ágóði af mótinu hefur undan-gengin ár runnið til góðgerða-samtaka og í ár var það fjölskylda Sigursteins Gíslasonar sem naut góðs af.Mótið var leikið í fjórum riðlum og komust tvö efstu lið riðlanna í A-úrslit og liðin í tveimur neðri

sætunum spiluðu í B-úrslitum. KR, sem stjórnað var af Rúnari Kristins-syni, gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið 3ja árið í röð en í þeirra her-búðum voru margir gamalkunnir landsliðs- og atvinnumenn. Í úr-slitaleiknum sigraði KR lið Þróttar Vogum eftir framlengingu og

Metþátttaka í minningarmóti Ragnars Margeirsvítaspyrnukeppni. Þróttarar höfðu farið í gegnum tvær vítaspyrnu-keppnir áður en kom að úrslita-leiknum en þar komu þeir að læstu búrinu hjá Kristjáni Finnbogasyni sem gerði sér lítið fyrir og varði tvær fyrstu spyrnur Þróttara með miklum tilþrifum og þar við sat. Í B-úrslitum voru það Grindvíkingar sem sigruðu Þróttara frá Reykjavík í úrslitaleik, 3-1.

Meira sportalla daga á vf.is

Page 16: 9.tbl

Með hjartað í buxunumLífið er hverfult og oftar en ekki erum við áminnt á hverfulleik

þess þegar síst skyldi. Áminningin vekur flesta til þess að huga betur að eigin heilsu en þegar allt er um liðið og daglegt amstur kemst í eðlilegt horf, gleymist loforðið og það fjarar út. Af og til man maður þó eftir því, að eitthvað hafi staðið til að gera í eigin málum en sjálfið segir á morgun. Ég hafði lofað mér því fyrir stuttu að láta kíkja á dæluna, sem öllu heldur gangandi og lét loks verða af því. Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengir í ættinni, kransæðasjúkdómar í báða leggi og því betra að láta líta á sig. Best að panta tíma hjá Hjartavernd.

Ég hugsaði á leiðinni að fólkið hlyti að halda að ég væri manískur, svo stutt fannst mér frá síðustu skoðun. Þau höfðu reyndar flutt sig um set í millitíðinni

og ég spurði hvenær það hefði gerst. Snaggaraleg hjúkka, sem komin var fram yfir miðjan aldur, kvik í hreyfingum og hýr á brá, tjáði mér að þau hefðu flutt fyrir tíu árum! Hjartað sló örar við þessar nýju upplýsingar. Mér fannst ég hafa skrópað í tíma og kennarinn beið með prikið handan við hornið. „Góði besti, árin líða svo hratt þessa dagana að maður tekur varla eftir því“ sagði hún hæglát um leið og hún klessti mælahnöppum á mig um alla bringu. Hjartalínuritið fékk ég ekki að sjá en púkinn í mér gægðist í umslagið á meðan sú stutta leit undan. Það virtist eðlilegt en hvað vissi ég.

Mér leið einkennilega í bláum sloppi frammi á biðstofu, innan um aðra greifa í alveg eins sloppum. Ég fletti í eldgömlu Nýju lífi og var vart búinn að lesa

kaflann um tíu ráð til að fatta feikaðar fullnægingar kvenna, þegar önnur dúkka, fyrirgefið hjúkka, kallaði mig inn til sín. Sú mældi, pældi og spurði mig spjörunum úr í orðsins fyllstu merkingu. Gott að ég var ekki látinn berrassaður þylja átta sinnum margföldunartöfluna fyrir skrópið. Hún var heldur ekki jafn klár í blóð-prufunni og Gunna á Heilsó heima.

Niðurstöður munu liggja fyrir eftir þrjár vikur. Blóðfita, blóðþrýstingur, blóðsykur, líkamsþyngd og hreyfing verða á matseðli matsmannsins í hvíta

sloppnum. Þangað til verður allt kapp lagt á að huga betur að sjálfinu enda genatíkin væntanlega í eftirrétt.

vf.isvf.is

Fimmtudagurinn 1. mars 2012 • 9. tölublað • 33. árgangur

auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001

FIMMTUDAGSVALSVAlUr KeTIlSSon SKrIFAr

Kynntu þér betur þjónustu okkar á www.toyota.is

ÍSLE

NSK

A/SI

A.IS

/TO

Y 58

465

02/1

2

Pantaðu tíma í d

ag.

Það er einfalt o

g fljótlegt.

Í mars er ástandsskoðun á bremsum í boði þjónustuaðila Toyota. Engin vandamál - bara lausnirStoppaðu (ef þú getur) hjá Toyota Reykjanesbæ viðurkenndum þjónustuaðila Toyota og láttu fara yfir bremsurnar í bílnum. Það eykur umferðaröryggi og sparar þér peninga.

20% afslátturÍ mars er 20% afsláttur af öllum bremsudiskum, bremsuklossum og bremsuborðum hjá viðurkenndum þjónustuaðilum Toyota.

ALWAYS ABETTER WAYHafðu hemil á þér í mars

Toyota Reykjanesbæ

Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 17 Reykjanesbæ Sími: 420-6610

Toyota Reykjanesbæ

Mun meiri veiði nú en fyrir nokkrum árum„Litlu bátarnir eru búnir að vera með upp í 17,5 tonn í róðri en það gæti verið að minnka núna þegar að loðnan fer að ganga yfir,“ segir Guðjón Bragason hafnarvörður við Sand-gerðishöfn í samtali við blaðið og segir að loðnan hafi yfirleitt áhrif á veiðina á meðan hún gangi yfir. Nú sé ekki búið að reyna mikið á það þar sem það hefur verið bræla síðan. Aðeins var einn bátur á sjó í gær en það var Örn KE.Guðjón sagði að það væri mikið líf yfir þessu þegar vel viðraði en undanfarna daga væri veðrið ekki búið að vera sem best. „Það er mikið landað og mikið fiskerí hjá línubátunum. Undanfarin

4-5 ár hefur þetta verið mikil veiði hjá línu-bátunum, já, og bara á öll veiðarfæri. Það er mun meiri veiði í gangi en fyrir nokkrum árum síðan.“ Hann sagði bátana frá Nesfiski alla vera stopp um þessar mundir en þeir róa eftir frysti-húsinu eins og sagt er, það sé bara það mikið fiskerí. Annar togarinn frá Nesfiski er í landi núna en hinn fór út á mánudaginn en þeir eru yfirleitt með fullfermi eftir vikuna, bæði Berglín GK og Sóley Sigurjóns GK.Á vef Víkurfrétta er skemmtilegt myndband sem tekið var á línuveiðum við Sandgerði um sl. helgi um borð í Muggi KE.

n

Strákarnir á Muggi KE hafa verið að mokveiða vænan

þorsk skammt frá Sandgerði síðustu daga. Myndband úr

veiðferð er komið á vf.is