2 tbl 2014

24
vf.is vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is FÍTON / SÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: [email protected] Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 16. JANÚAR 2014 2. TÖLUBLAÐ 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslá af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Naglakkadagar þessa viku - 15% afsláur  TILBOÐ VIKUNNAR SUÐURNESJASKJÁLFTI Á SUNNUDAGINN STÓRLEIKUR Í BIKARNUM 19. JANÚAR KL. 19.15 GRINDAVÍK - NJARÐVÍK Á Salthúsinu bjóða félögin grillaða hamborgara á góðu verði frá kl 17.00. Þar er einnig hægt að kaupa miða á leikinn. af lyfjum utan greiðsluþátttöku af lausasölulyfjum og öðrum vörum Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ 16%afsláttur 12% afsláttur Lyfja Reykjanesbæ Krossmóa 4 Sími 421 6565 www.lyfja.is Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19 laugard. 10–16 sunnud. 12–16 Betri kjör fyrir heldri borgara Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ. Við stefnum að vellíðan. S uðurnesjafyrirtækið Bergraf var lægst í útboði á breytingum á raerfi á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn er við Landhelgisgæslu Ís- lands og hljóðar upp á 336 milljónir króna og er verktími út árið 2014. Um er að ræða umfangsmiklar og atvinnu- skapandi framkvæmdir á svæðinu en um 30 manns munu koma að verkefninu sem hefur umtalsverð margfeldisáhrif. Verk- efnið, sem felst í að breyta rafkerfum á öryggissvæðinu, hófst árið 2009 og er vinnu við fyrstu fimm áfangana lokið. Kostnaður við þau verkefni var um 200 milljónir. Ráðgert er að bjóða út sjöunda áfanga í mars. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með framkvæmd- unum. Bergraf ehf. bauð í þetta verk ásamt ÍAV hf., Ístaki hf. og RST. Net ehf., eſtir að þessi fyrirtæki voru valin í forvali til að bjóða í verkið. Tilboð Bergrafs var 101,6% af kostnaðaráætlun. Að Bergrafi standa, auk Ragnars, fyrirtækin Nesraf, Rafholt og SI Raflagnir. Að sögn Ragnars Þórs Ragnarssonar, fram- kvæmdastjóra Bergrafs, felst verkefnið í að breyta raflögnum og lagna- og loftræsti- kerfum í húsi Landhelgisgæslunnar, bygg- ingu 130, á Keflavíkurflugvelli. n Stórt verk í einu af gömlu flugskýlunum á Keflavíkurflugvelli: Bergraf breytir rafkerfum fyrir 330 milljónir Víkurfréttir hafa ákveðið að Klemenz hljóti útnefninguna Suðurnesjamaður ársins 2013. Klemenz tilheyrir stórum hópi fólks sem umhugað er um eigin heilsu og stundar reglulega hreyfingu sér til heilsubótar. Klemenz varð fimmtugur á árinu 2013 og ákvað í tilefni af þeim tímamótum að leggja land undir fót og láta gott af sér leiða. Hann hjólaði hringinn í kringum Ísland á rétt rúmri viku og kom til baka úr því ferðalagi á fimmtugsafmælisdaginn, 4. septem- ber. Þann dag hljóp hann einnig „Klemmann“, 22,7 km hringleið um Reykjanesbæ, Sandgerði og Garð. Með þrekraun sinni lét Klemenz gott af sér leiða og safnaði áheitum til styrktar Blóðlækningadeild LSH. Söfnunin skilaði rétt um einni milljón króna. Þar sýndi Klemenz hvernig einstaklingsframtak getur gert samfélagið okkar betra og er á sama tíma öðrum hvatning og fyrirmynd. Á myndinni afhendir Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, Klemenz viðurkenningarskjal til staðfestingar á nafnbótinni. - Sjá einnig viðtal í miðopnu blaðsins í dag. VF-mynd: Hilmar Bragi Klemenz maður ársins

Upload: vikurfrettir-ehf

Post on 06-Mar-2016

254 views

Category:

Documents


6 download

DESCRIPTION

2.tbl.35.árg.

TRANSCRIPT

Page 1: 2 tbl 2014

vf.isvf.is

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

auðveldar smásendingar

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

einföld reiknivélá ebox.is

FÍT

ON

/ S

ÍA

VíkurfréttirKrossmóa 4a, 4. hæð,

260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000

Póstur: [email protected]

Afgreiðslan er opinvirka daga kl. 09-17

Auglýsingasíminner 421 0001

FIMMTUDAGURINN 16. JANÚAR 2014 • 2 . TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

Hringbraut 99 - 577 1150

Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum

Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.

VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐNaglakkadagar þessa viku - 15% afsláttur  

TILBOÐ

VIKUNNAR

SUÐURNESJASKJÁLFTIÁ SUNNUDAGINNSTÓRLEIKUR Í BIKARNUM

19. JANÚAR KL. 19.15

GRINDAVÍK - NJARÐVÍK

Á Salthúsinu bjóða félögin grillaða hamborgara á góðu verði frá kl 17.00.Þar er einnig hægt að kaupa miða á leikinn.

af lyfjum utan greiðsluþátttöku

af lausasölulyfjum og öðrum vörum

Frábært vöruúrvalog þjónustaí Reykjanesbæ

16% afsláttur

12% afsláttur

Lyfja ReykjanesbæKrossmóa 4Sími 421 6565

www.lyfja.is

Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19laugard. 10–16sunnud. 12–16

Betri kjör fyrir heldri borgaraFélagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.

Við stefnum að vellíðan.

Suðurnesjafyrirtækið Bergraf var lægst í útboði á breytingum á rafkerfi

á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn er við Landhelgisgæslu Ís-lands og hljóðar upp á 336 milljónir króna og er verktími út árið 2014.Um er að ræða umfangsmiklar og atvinnu-skapandi framkvæmdir á svæðinu en um 30 manns munu koma að verkefninu sem hefur umtalsverð margfeldisáhrif. Verk-efnið, sem felst í að breyta rafkerfum á

öryggissvæðinu, hófst árið 2009 og er vinnu við fyrstu f imm áfangana lokið. Kostnaður við þau verkefni

var um 200 milljónir. Ráðgert er að bjóða út sjöunda áfanga í mars. Framkvæmdasýsla ríkisins hefur umsjón með framkvæmd-unum.Bergraf ehf. bauð í þetta verk ásamt ÍAV

hf., Ístaki hf. og RST. Net ehf., eftir að þessi fyrirtæki voru valin í forvali til að bjóða í verkið. Tilboð Bergrafs var 101,6% af kostnaðaráætlun. Að Bergrafi standa, auk Ragnars, fyrirtækin Nesraf, Rafholt og SI Raflagnir.Að sögn Ragnars Þórs Ragnarssonar, fram-kvæmdastjóra Bergrafs, felst verkefnið í að breyta raflögnum og lagna- og loftræsti-kerfum í húsi Landhelgisgæslunnar, bygg-ingu 130, á Keflavíkurflugvelli.

n Stórt verk í einu af gömlu flugskýlunum á Keflavíkurflugvelli:

Bergraf breytir rafkerfum fyrir 330 milljónir

Víkurfréttir hafa ákveðið að Klemenz hljóti útnefninguna Suðurnesjamaður ársins 2013. Klemenz tilheyrir stórum hópi fólks sem umhugað er um eigin heilsu og stundar reglulega hreyfingu sér til heilsubótar. Klemenz varð fimmtugur á árinu 2013 og ákvað í tilefni af þeim tímamótum að leggja land undir fót og láta gott af sér leiða. Hann hjólaði hringinn í kringum Ísland á rétt rúmri viku og kom til baka úr því ferðalagi á fimmtugsafmælisdaginn, 4. septem-ber. Þann dag hljóp hann einnig „Klemmann“, 22,7 km hringleið um Reykjanesbæ, Sandgerði og Garð. Með þrekraun sinni lét Klemenz gott af sér leiða og safnaði áheitum til styrktar Blóðlækningadeild LSH. Söfnunin skilaði rétt um einni milljón króna. Þar sýndi Klemenz hvernig einstaklingsframtak getur gert samfélagið okkar betra og er á sama tíma öðrum hvatning og fyrirmynd. Á myndinni afhendir Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, Klemenz viðurkenningarskjal til staðfestingar á nafnbótinni. - Sjá einnig viðtal í miðopnu blaðsins í dag. VF-mynd: Hilmar Bragi

Klemenzmaður ársins

Page 2: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR2

LISTASAFN REYKJANESBÆJAR - NÝ SÝNING

ENDURFUNDIR

Samsýning Þórðar Hall og Kristbergs Ó. Péturssonar.Verið velkomin á opnun sýningarinnar föstudaginn 1. nóvember kl. 18 í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum.Sýningin stendur til 15. desember og er opin virka daga frá kl. 12-17 og helgar 13-17. Aðgangur ókeypis.

FORELDRANÁMSKEIÐErt þú að verða foreldri eða á�u barn yngra en þriggja ára?Go�man námskeiðið Að verða foreldri, verður haldið 2.-3. nóvember nk. í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Námskeiðið stuðlar að því að undirbúa verðandi foreldra og foreldra barna upp að þriggja ára til að takast á við foreldrahlutverkið.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á - að styrkja parsambandið í gegnum þær breytingar sem verða með tilkomu barns- að kenna aðferðir sem nýtast til að stjórna ágreiningi- áhrif þess að vera samstillt í uppeldishlutverkinu- að þekkja og virða tilfinningar barna- að vita hvert er hægt að leita e¡ir stuðningi og ráðgjöf þegar þörf er á

Skráning og frekari upplýsingar eru á [email protected], s.5255200h�p://www.rbf.is/sites/www.rbf.is/files/go�-man_baeklingur_september.pdf

MÁLÞING UM BYGGINGAMÁL

Jarðskaut og rafsegulsvið, rakamyndun og mygla í mannvirkjum. Ástæður og áhrif á heilsufar íbúa.Byggingarreglugerðin í nútíð og framtíð.

Framsaga: Sérfræðingar frá Mannvirkjastofnun og Nýsköpunarmiðstöð.Föstudaginn 1. nóvember kl. 13.00 – 16.30Ráðstefnusal Íþró�aakademíunnar, Krossmóa 58.Fyrir fagaðila innan byggingargeirans, húseigendur og almenning.Þingstjóri er Sigmundur EyþórssonDagskrá á vefsíðu Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar

Skyttur!Fjölmennt var á Garðskaga um liðna helgi. Fólk sem naut útivistar taldi skyttur á rifi vera í vanda.13:07.

-fréttir pósturu [email protected]

Björgunarsveitin Ægir í Garði var kölluð út síðdegis á laugardag vegna manna sem taldir

voru í vanda á rifi úti fyrir Garðskaga. Tilkynnt var um fólk sem væri hugsanlega í vanda í Lambarifi á Garðskaga. Neyðarlínan kallaði til lögregluna á Suðurnesjum og Björgunarsveitina Ægi. Þar var strax mannaður björgunarbátur sem sendur var að Lambarifi.Þar tóku hins vegar vopnaðir menn á móti björgunar-

sveitarmönnum. Þeir voru að skjóta fugla í rifinu og amaði ekkert að þeim. Það var fólk sem var að njóta góða veðursins á Garðskaga sem hafði séð til fólks í rifinu og taldi það í vanda og hafði því samband við Neyðarlínuna.Björgunarsveitarmenn sneru því við frá rifinu og veiði-mennirnir komu sér sjálfir í land.

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

n Björgunarsveit kölluð út vegna manna í Lambarifi á Garðskaga:

Sjónarvottar töldu skarfa-skyttur vera í hættu

Hundruð starfa við nýja kísilmálmverk-

smiðju í HelguvíkuThorsil ehf. og Mannvit hf. skrif-uðu í sl. viku undir samning um hönnun kísilmálmverksmiðju Thor-sil sem rísa mun í Helguvík á næstu tveimur árum. Thorsil og Reykja-nesbær skrifuðu í október 2013 undir samning um skilmála vegna 16 hektara lóðar undir verksmiðjuna sem Thorsil hyggst reisa á iðnaðar- og hafnarsvæðinu í Helguvík. Vinna við umhverfismat stendur yfir og áætlað er að byggingar-framkvæmdir hefjist síðar á árinu. Rúmlega 300 manns munu starfa við byggingu verksmiðjunnar og er stefnt að því að framleiðsla hefjist á þriðja ársfjórðungi ársins 2016. Þá skapast um 160 ný störf vegna starf-seminnar auk afleiddra starfa, s.s. við flutninga, viðhald, verkfræðiþjón-ustu og fleira. Áætluð ársframleiðsla er um 54 þúsund tonn af kísilmálmi.Samkomulag um skilmála hefur verið gert við Landsvirkjun um kaup á 87 MW af raforku en gert er ráð fyrir að orkuþörf fyrirtækisins verði um 730 GWst á ári. Langtímasamn-ingar um sölu á rúmlega helmingi af framleiðslu verksmiðjunnar til rótgróinna alþjóðlegra framleiðslu-fyrirtækja eru á lokastigi.

Á undanförnum vikum hafa margir „veðurhvellir“

gengið yfir landið. Veðrið hefur farið illa með margt og fastir hlutir í tilveru kylfinga hafa færst úr stað. Gríðarlegt brimrót var við Hólmsvöll í Leiru á dögunum og gekk sjór yfir æfingavöllinn Jóel að hluta til.Meðfylgjandi myndir sýna vel hvernig geymsluskúr sem hefur verið eitt af helstu e inkennum æf inga-vallarins Jóels er að fikra sig út í fjöruna. Gunn-

ar Jóhannsson, framkvæmda-stjóri Golfklúbbs Suðurnesja sagði að sjórinn hefði tekið skúr-inn með sér einn óveðursdaginn eftir áramót. Ekki er ólíklegt að hann fara alla leið út í sjó í næsta óveðri nema eitthvað verði gert til að bjarga skúrnum.Eins og sjá má á myndunum er

mikið af drasli inni á vellinum eftir að

sjórinn gekk þar yfir.

VEIÐAFÆRASKÚR Í LEIRU Á LEIÐ ÚT Á HAF

Page 3: 2 tbl 2014

mar

khon

nun.i

s

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

heilsu & lífsstílsdagar tilboðin gilda 16. - 29.jan. 2014

Lífsstílsdagar í Nettó- FRÁBÆR HEILSURÁÐ, UPPSKRIFTIR OG SPENNANDI VÖRUR

nýtt

kortatímabil

REYKJANESBÆ

OPIÐ:Virka daga: 10:00 - 19:00

Laugardaga: 10:00 - 18:00

Sunnudaga: 12:00 - 18:00

Page 4: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR4

-fréttir pósturu [email protected]

Framkvæmdir við og í nýbygg-ingu á Nesvöllum standa nú

sem hæst og samkvæmt áætlun nálgast verklok í lok næsta mán-aðar. Víkurfréttir litu við og tóku púlsinn.

Veðrið hefur mikil áhrif„Þetta stendur ágætlega, svona veðurlega séð, ætli það sé ekki best að nefna það. Framhliðin er að verða búin og verið er að vinna að bakhliðinni. Ellert Skúlason er aðalverktaki en við sjáum um þessar framkvæmdir,“ segir Hjalti Már Brynjarsson, verkstjóri hjá Grjótgörðum ehf.Hjalti var ásamt sínum mönnum að helluleggja við innganginn og við húsið að utan þegar Víkurfréttir bar að garði. Hjalti segist vera með

sex menn í hellulögnum og fjóra til fimm í undirvinnu og lögnum. Svo séu aðrir með innréttingar. „Þetta er aðeins á eftir áætlun, en það er aðallega út af veðri,“ segir Hjalti Már.

Verklok áætluð febrúarlokInnanhúss hittum við fyrir Egg-ert Jónsson, framkvæmdastjóri Þarfaþings hf, sem er í forsvari fyrir framkvæmdir innanhúss. „Stefnan er tekin á að klára þetta í lok febrúar en framkvæmdir ganga oft hratt svona í lokin. Það er verið að taka svona síðustu törnina og svo verður þrifið. Við erum alveg í þokkalegum málum með þetta.“ Þarfaþing kom inn í verkið í júní og þá var húsið fokhelt. „Bara innan-hússfrágangur kostar 550 millj-

ónir. Það er utan annars kostnaðar þegar rúm, sjúkrabúnaður og slíkt kemur,“ segir Eggert.

Litir á veggjum greina hæðirnar að

Á þriðju hæð var mesta myndin komin á af hæðunum þremur. „Þetta er allt eins á hverri hæð, hver álma eins, bara sinn hvor liturinn á vegg í setustofu á hverri hæð til þess að íbúar og gestir átti sig á því á hvaða hæð þeir eru staddir,“ segir Eggert. Um er að ræða 60 herbergi, 20 á hverri hæð í tveimur álmum. Eggert segir að um sé að ræða sömu hugmyndafræðina í þessum íbúðum og í Sjálandshverfinu í Garðabæ; rúmgott baðherbergi, eldhúskrók og pláss fyrir rúm, borð og stóla.

n Nesvellir óðum að taka á sig mynd:

Framkvæmdir ganga hratt í lokin

SUMARSTARFSMENN Í ÁHAFNAVAKTIcelandair leitar að öflugum liðsmönnum sem hafa áhuga á krefjandi störfum

í hröðu og síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi á Keflavíkurflugvelli.

Umsóknir óskast fylltar út á heimsíðu Icelandair www.icelandair.is/umsokn

eigi síðar en 2. febrúar 2014.

Starfssvið:• Dagleg áhafnavakt• Helsti tengiliður milli áhafna og flugdeildar• Fylgjast með og uppfæra vinnuskrá áhafna• Samskipti við áhafnahótel• Halda utan um áætlunar- og leiguflugsskrá áhafna og áhafnir á erlendri grundu• Samskipti við viðskiptavini flugdeildar

Hæfniskröfur:• Stúdentspróf eða sambærileg menntun• Mjög góð enskukunnátta er nauðsynleg þar sem mikið af vinnunni fer fram á ensku• Góð tölvufærni• Jákvætt hugarfar, frumkvæði og rík þjónustulund• Færni í almennum samskiptum og samvinnu• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Hér er um vaktavinnu að ræða þar sem unnið er á 12 tíma vöktum. Annars vegar er unnið á dag- og næturvöktum og hins vegar á dag- og kvöldvöktum. Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Page 5: 2 tbl 2014

Nánari upplýsingar á rsk.is

442 1000Þjónustuver 9:30-15:[email protected]

Launamiðar og verktakamiðar

Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskatt skylda), greiðslur til verktaka fyrir þjón-ustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar.

BifreiðahlunnindamiðarSkilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólks-bifreiðar.

HlutafjármiðarSkilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshluta-félög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir.

Viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf

Skilaskyldir eru bankar, verð-bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu,

umboðsviðskipti og aðra um-sýslu með hlutabréf og önnur verðbréf.

BankainnstæðurSkilaskyldar eru allar fjármála-stofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar.

Lánaupp lýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyld-ar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunar-leigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga.

StofnsjóðsmiðarSkilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnu-félög, þ.m.t. kaupfélög.

Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit

Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi.

Greiðslumiðar – leiga eða afnot

Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum.

Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi

Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttar-samninga.

FjármagnstekjumiðiÞeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun á mót-takendum og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtu-aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt.

Vakin er athygli á launamiðareit nr. 405, þar sem færa skal íþrótta- og líkamsræktarstyrki.Einnig er vakin athygli á launamiðareit nr. 410, þar sem færa skal samgöngustyrki.Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt að 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2012, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða með óeðlilega lágu endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2013.

Athugið að sameignarfélög og samlagsfélög eiga að skila stofnsjóðsmiða með upplýsingum um eignarhluti eigenda og úttekt af höfuðstól.

2014Skil á upplýsingum

vegna skattframtals

Skilafrestur á eftirtöldum gögnum vegna framtalsgerðar 2014 er til 30. janúar en þeir sem skila á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2014

Page 6: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR6

Garðmærin Bergrún Ásbjörnsdóttir sópaði að sér verðlaunum við síðustu brautskráningu

Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem fór fram skömmu fyrir jól. Bergrún sem verður tvítug í febrúar var með 9.57 í meðaleinkunn en hún var einungis með níur (21 stk.) og tíur (36 stk.) á meðan skólaganga hennar í FS stóð yfir. Bergrún á ekki langt að sækja námshæfileikana en báðar eldri systur hennar dúx-uðu í FS þegar þær útskrifuðust.

Enginn metingur milli systraEldri systurnar Birna og Björg sneru sér báðar að læknisnámi, önnur er útskrifuð en hin á öðru ári. „Ég gæti alveg hugsað mér að verða læknir. Ég tel að það sé krefjandi og gefandi starf. Þegar við systur hittumst þá er ósjaldan talað á latínu um hina og þessa vöðva og sinar. Kannski verð ég að skella mér í læknisfræði til þess að geta tekið þátt í sam-ræðunum,“ segir Bergrún og hlær. Hún segir al ls enga pressu hafa verið á sér frá fjöl-skyldunni þrátt f y r i r á r a n g u r systra sinna. „Við erum allar mjög nánar og góðar systur og það hefur aldrei verið neinn metingur eða samkeppni okkar á mi l l i . Èg var samt oft spurð þegar líða fór að útskrift hvort ég myndi ekki dúxa eins og þær, þannig fólk var greinilega að pæla í þessu, en við heima pældum ekkert í þessu,“ segir hún.

FS er frábær skóliEldri systurnar létu vel af FS og því varð skólinn fyrir valinu hjá Bergrúnu. „Mér finnst FS vera frábær skóli. Ég viðurkenni að í grunnskóla langaði mig mest að fara í framhaldsskóla í Reykjavík, í MR, Verzló eða MH, sérstaklega til þess að komast í nýtt umhverfi og til þess að kynnast nýju fólki. Svo heyrði ég bara góða hluti um FS og báðar systur mínar voru mjög ánægðar með skólann. Ég er sátt með val mitt, í FS eru frábærir kennarar og ég kynntist fullt af nýju yndislegu fólki.“Bergrún sem er nýkomin til landsins úr útskriftaferð frá Mexíkó segist ekki hafa hugmynd um hvað taki við hjá henni á næstunni. Hún sé ekkert að stressa sig um of. „Ég ætla bara að hugsa mig vel um varðandi nám sem ég vil fara í. Mér finnst skemmtilegt í líf-fræði, efnafræði og lífeðlisfræði. Þannig að ég býst við að fara í eitthvað tengt því, t.d læknisfræði, líffræði eða lífefna - og sameindafræði.“ Bergrúnu langar að

finna sér starfsvettvang í framtíðinni þar sem hún getur látið gott af sér leiða. „Frá því að ég var lítil hefur draumurinn verið sá að finna vinnu þar sem ég get hjálpað öðrum. Ég held að það sé mjög gefandi að starfa sem læknir. Einnig tel ég að skemmtilegt sé að vinna í Íslenskri erfðagreiningu.“

Gunnlaugur stærðfræðikennari algjör fagmaður

Dúxinn segist hafa verið mjög virk í félagslífi FS. Hún byrjaði sem busi í markaðsnefnd og síðar íþróttanefnd NFS. „Ég var mjög dugleg að fara á böllin og aðra viðburði NFS og fannst það æðislegt, ég kynnist líka fullt af frábæru fólki.“ Bergrún var í FS í 3 og 1/2 ár. Henni þótti það hæfilega langur tími. „Ég tók 19 til 22 einingar á önn fyrstu þrjú árin þannig að síðasta önnin

var mjög róleg og skemmtileg,“ segir B ergrún sem þá var með unga stelpu í lið-veislu samhliða n ám i . Marg i r góðir kennarar eru í FS að sögn Bergrúnar. Þrátt fyr ir að erf itt sé að gera upp á mi l l i þeirra þá verður hún að viðurkenna að Gunnlaugur s t æ r ð f r æ ð i -k e n n a r i k o m mikið við sögu á hennar skólaferli. „Það eru margir

frábærir kennarar í FS en ég held að Gunnlaugur stærðfræðikennari sé í uppáhaldi, kannski af því hann kenndi mér flestu áfangana,“ segir Bergrún en stærð-fræði var í miklu uppáhaldi hjá henni í FS. „Gunn-laugur er líka algjör fagmaður, mikill snillingur sem gerir námið mjög skemmtilegt.“

„Frá því að ég var lítil hefur draumurinn verið sá að finna vinnu þar sem ég

get hjálpað öðrum“Bergrún uppgvötaði ung að hún vildi alltaf gera sitt besta í öllu því sem hún tæki sér fyrir hendur. „Það fannst mér gott mottó, ef maður gerir sitt besta þá uppsker maður vel,“ segir hún enda gekk henni strax vel í grunnskóla. Bergrún á sér ýmis áhugamál en hún hefur mjög gaman að íþróttum og stundaði hún m.a. fótbolta í mörg ár. Hún lærði á píanó um nokkurra ára skeið og hefur mikinn áhuga á tísku. „Ég eyði miklum tíma í að skoða tískublogg á netinu og tískublöð. Ég fór einmitt í fatahönnunaráfanga á seinustu önninni í FS og fannst það virkilega gaman.“

-ritstjórnarbréf

vf.isvf.is

Klemenz í hóp góðs fólksKlemenz Sæmundsson bætist í hóp margra góðra einstaklinga sem Víkur-fréttir hafa útnefnt sem „Mann ársins á Suðurnesjum“. Klemenz ákvað að fara ótroðnar slóðir í afmælishaldi ef svo má segja og slá tvær flugur í einu risa-stóru höggi þegar hann ákvað að hjóla hringinn í kringum Ísland og hlaupa svo „Klemmann“ í lokin, en kappinn varð fimmtugur á árinu. Nota svo verk-efnið til að safna peningum til styrktar blóðlækningadeild Landspítalans.Það var greinilegt að uppátækið vakti athygli því söfn-unin gekk vel og afhenti Klemenz og fjölskylda um milljón króna til blóðlækningadeildarinnar. Víkur-fréttir telja að með óvanalegu einstaklingsfram-taki hafi Klemenz gert samfélagið okkar betra og verið í leiðinni öðrum hvatning og fyrirmynd.Klemenz kemur víða við í viðtali við VF í tilefni af út-nefningunni. Hann hvetur fólk sem hefur áhuga á áskorun sem þessari á að láta drauminn rætast. Vissu-lega þurfi að reyna á sig en það gefi mikið til baka. „Það er um að gera að fara af stað, setja sér raunhæf markmið samt með áskorun. Í leiðinni er gott að styrkja gott mál-efni. Það er gott að gefa,“ segir Klemenz að lokum.Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem Víkurfréttir standa fyrir vali á „Manni ársins á Suðurnesjum“. Í fyrra var tón-listarfólkið okkar í „Of Monsters and Men“, þau Nanna Bryndís og Brynjar Leifsson, valin og árið þar á undan júdóþjálfarinn Guðmundur Gunnarsson úr Njarðvík. Við höfum kosið fólk sem hefur skarað fram úr í viðskipta-lífinu í allmörg skipti, m.a. Kaffitárs-konuna Aðalheiði Héðinsdóttur en einnig prestinn Hjört Magna Jóhanns-son og útgerðar- og fjárbóndann Dagbjart Einarsson, en hann var fyrsti Suðurnesjamaðurinn sem var kjörinn árið 1990. Fleiri dæmi mætti nefna og erfitt að gera upp á milli þeirra sem hafa hlotið útnefningu okkar á Víkurfréttum en þessi upptalning er ekki gerð með það í huga heldur einungis til að rifja nokkur nöfn upp úr fjölbreyttum hópi.Útnefning á manni ársins á Suðurnesjum er fyrst og fremst hugsuð sem hvatning til okkar allra en einnig viðurkenning fyrir frumkvæði og frábæra frammistöðu á ýmsum sviðum. Allir sem hafa hlotið þennan heiður eiga það sameiginlegt að hafa skarað framúr, sýnt frum-kvæði og eldmóð í hinum ýmsu þáttum samfélagsins.Nú sem aldrei fyrr þurfum við hér á Suður-nesjum svona fólk sem þorir og gerir á ýmsum sviðum. Stöndum saman um að styðja það til góðra verka, svæðinu til framfara og heilla.

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, [email protected]éttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, [email protected] P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, [email protected], Eyþór Sæmundsson, [email protected]ýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, [email protected] P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, [email protected], Þórgunnur Sigurjónsdóttir, [email protected]ðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, [email protected], Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, [email protected] P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: ÍslandspósturStafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.isTekið er á móti auglýsingum á póstfangið [email protected]. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einnsólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið [email protected]. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.

Páll Ketilsson skrifar

SÍMI 421 0000

Dúx! Bergrún var með 9,57 í meðaleinkunn en hún var bara með níur og tíur yfir ferilinn í FS, alls 36 tíur og 21 níur. Mynd: Páll Ketilsson // [email protected]

Þriðja systirin sem dúxar í FS-samræður á heimilinu á latínu

Íslandspóstur Keflavík óskar eftir gjaldkera.Starfið felst m.a. í afgreiðslu o.fl.

Vinnutími er frá kl. 8:45-17:00 alla virka daga.

Umsækjandi þarf að búa yfir ríkri þjónustulund, samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 23. janúar 2014

Starfsumsóknar eyðublað er á www.postur.is

ATVINNABergrún með systrum sínum Björgu og Birnu og foreldrunum,

Ásbirni og Auði á útskriftardaginn.

Page 7: 2 tbl 2014

14

-00

99

- H

VÍT

A H

ÚS

IÐ /

SÍA

/ / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / / /

Spennandi sumarstörf í Flugstöð Leifs EiríkssonarViltu þjóna flugi með okkur?

Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna

Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg- ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.

Við leitum að glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir og geta unnið undir álagi. Óskað er e�ir starfsfólki bæði í hluta- og heilsdags- störf en um er að ræða vaktavinnu.

Vegna kröfu um reglugerð um flugvernd þá þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu, nánari upplýsinga er að finna á heimasíðunni.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar. Umsóknum skal skila inn rafrænt á heimasíðu Isavia, www,isavia.is/atvinna.

FLUGVERNDHelstu verkefni:• Starfið felst m.a. í vopna- og öryggisleit og við eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á flughlöðum á Keflavíkurflugvelli

Hæfniskröfur:• Aldurstakmark 20 ár• Hreint sakavottorð• Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu bæði rituðu og mæltu máli• Hafa rétta litaskynjun• Tveggja ára framhaldsnám eða sambærilegt nám er kostur• Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fyrir 1. júní og nýir umsækjendur þurfa að geta sótt átta daga námskeið áður en þeir hefja störf

KEF – PARKINGHelstu verkefni:• Umsjón með farangurskerrum í og við Flugstöð Leifs Eiríkssonar• Almenn þjónusta og aðstoð við viðskipta- vini á bílastæðum flugstöðvarinnar

Hæfniskröfur:• Aldurstakmark 18 ár• Hreint sakavottorð• Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu bæði rituðu og mæltu máli

ÞJÓNUSTULIÐARHelstu verkefni: • Þjónusta við farþega í brottfarar- og komusal• Umsjón og eftirlit á þjónustuborði FLE

Hæfniskröfur:• Aldurstakmark 20 ár• Hreint sakavottorð• Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu bæði rituðu og mæltu máli

Page 8: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR8

-viðtal pósturu [email protected]

LAGNAÞJÓNUSTA SUÐURNESJA EHF

 Óskar eftir að ráða pípulagningarmeistara,

svein eða mann vanan pípulögnum sem fyrst.

Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið: [email protected]

VERKALÝÐSFÉLAG GRINDAVÍKUR

SEM ER AÐILI AÐ ÞEIM KJARASAMNINGUM SEM SKRIFAÐ VAR UNDIR 21. DESEMBER MUN HEFJA

ATKVÆÐAGREIÐSLU SÍNA UM SAMNINGANA.

FÖSTUDAGINN 17. JANÚAR KL. 13:00 Í HÚSI FÉLAGSINS OG MUN HENNI LJÚKA

FÖSTUDAGINN 21. JANÚAR.

„Kennsla hefst í tónlistarskól-anum 3. febrúar. Efri hæðin er komin mjög langt en skólinn verður einnig að hluta til niðri,“ segir Óli Þór Magnússon, verk-fræðingur sem fer með bygg-ingarstjórn og eftirlit í Hljóma-höllinni. Hann bætir við að ýmis-legt sé lagað, breytt og bætt á lokaspretti svona stórs verkefnis. Ólík sérþekking margra hafi þau áhrif að horft sé á verkið út frá ýmsum vinklum og mikill metn-aður í fólki. Víkurfréttir kíktu við í Hljómahöllinni fyrir helgi og hitti þar m.a. fyrir Óla Þór, ásamt Tómasi Young, framkvæmda-stjóra, og Árna Sigfússyni, bæjar-stjóra Reykjanesbæjar, sem báru saman bækur sínar.

Mjög góð samvinnaÓli Þór segist skynja þann mikla metnað sem Reykjanesbær setur í verkefnið og allir sem standi að þessu vilji vanda sig vel í verkefn-inu. „Það er búið að vera mjög gott að vinna með þeim öllum þátttak-endum í verkefninu, hvort sem það eru stjórnendur, hagsmunaaðilar eða verktakar og samvinnan ein-staklega góð í verkefninu.“ Margir iðnaðarmenn í mörgum

rýmumVarðandi fjölda þeirra sem koma að verkefninu segir Óli Þór að að meðaltali hafi verið um að ræða 40-50 iðnaðarmenn á verkstað á verktímanum og langflestir þeirra Suðurnesjamenn. „Við höfum brotið verkliði niður og unnið markvisst. Þetta eru mjög góðir verktakar og fyrirtæki með langa reynslu sem hafa starfað að

verkefninu.“ Vegna þess fjölda af rýmum sem eru í húsinu nefnir Óli Þór að gaman sé að segja frá því að oft hafi menn komið inn í hús-næðið og séð kannski 30 bíla fyrir framan húsið og ekki séð nema nokkra menn að störfum við fyrstu sýn og spurt hann hvar eiginlega mannskapurinn sé, því hópurinn hafi verið dreifður við vinnu í þeim u.þ.b. 70 rýmum sem unnið var í að staðaldri. „Þegar ég er að læsa á kvöldin verð ég oft að ganga um allt húsnæði til að tryggja að enginn væri enn að vinna í einhverju rým-inu svo ég læsa þá ekki inni,“ segir Óli Þór hlæjandi.

Allt úthugsaðHvert og eitt rými í tónlistarskól-anum er úthugsað og sérstaklega hljóðeinangrað. Í sumum her-bergjum eru t.a.m. veggir sem ekki eru hornréttir eins og upptökurými og í öðrum rýmum eru sérstaklega hljóðeinangraðir veggir. Þá er 140 fermetra æfingasalur í tónlistar-

skólanum og rými fyrir nemendur sem ekki hafa kost á að æfa sig heima.

Mikilvægur kammersalur Við hliðina á æfingasal tónlistar-skólans er síðan fjölnota kammer-salur sem mun rýma allt að 100 gesti. Þar verður hægt að halda ýmsa viðburði. „Það á eftir að klára þennan sal. Við höfum passað okkur á að fara ekki of langt með hann í framkvæmd, því menn vilja vanda sig vel með þennan sal og annað sem er óklárað á þessari stundu. Erfiðara er að vinna sig til baka, því fylgir aukakostnaður.Safnahlutinn hulinn leynd ennþáSjálft Poppminjasafnið verður síðan staðsett í aðalsal á neðri hæð og vill Óli Þór ekki gefa of mikið upp um það og brosir. Áætlað er að ljúka við safnahlutann í byrjun mars. Eflaust bíða margir Suður-nesjamenn og aðrir spenntir eftir því að sjá og upplifa þegar þar að kemur.

n Mótun og frágangur Hljómahallarinnar gengur vel:

Skemmtileg hug-myndavinna undir lokin

Skólamatur leitar að jákvæðum einstaklingi til starfa í mötuneyti Sandgerðisskóla. Vinnutíminn er frá kl.9-14.Skólamatur er fjölskylduvænn vinnustaður.

Umsóknir berist á [email protected] fyrir 24.janúar.

Mötuneyti!

Hollt, gott og heimilislegt

Sími 420 2500 I [email protected] skolamatur.is

-fréttir pósturu [email protected]

Nettó styrkir Hjálpræðis-herinn í Reykjanesbæ

Nettó gaf 100.000 krónur til Hjálpræðishersins í Reykja-

nesbæ nú á aðventunni. Fram-lagið var afhent í verslun Nettó í Reykjanesbæ á Þorláksmessu. Það voru þau Bjarki Þór Árnason verslunarstjóri og Erla Valgeirs-dóttir aðstoðarverslunarstjóri sem afhentu framlagið en Hjör-dís Kristinsdóttir, forstöðumaður hjá Hjálpræðishernum í Reykja-nesbæ, veitti framlaginu viðtöku. Myndin var tekin við þetta tæki-færi.

Tómas Young, Óli Þór og Árni

Sigfússon í Hljómahöllinni.

Framkvæmdir eru á lokastigi.

Page 9: 2 tbl 2014

+ Bókaðu núna á icelandair.is Vertu með okkur

* Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallarskattar.

ÍSL

EN

SK

A S

IA.I

S I

CE

659

53 0

1/14

Tjörnin er ekki nafli andaheimisinsSkoskar endur í Glasgow halda því fram að Green Park og Doulton gosbrunnurinn séu miklu betri staður. Þúsundir Íslendinga, sem heimsækja Glasgow á hverju ári, eru á sama máli. Þeim finnst þeir hvergi fá betra tækifæri til að fyllast af andagift og freyðandi fjöri en einmitt í borginni á bökkum Clyde. Og það verður að viðurkennast að skoskir sekkjapípuleikarar hafa það fram yfir kríur að þeir ganga í pilsum.

BÆTTU SMÁ GLASGOW Í LÍF ÞITTVerð frá 19.800* kr. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.

Page 10: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR10

Þurfa að einhver hlusti á þau„Ég fæst mikið við það sem tengist líðan nemenda; tilfnningaflækjur, kvíða og jafnvel þunglyndi. Ég finn fyrir auknum kvíða hjá börnum sem endurspegla heimili sín. Félags-legan vanda af einhverju tagi. Einnig koma til mín börn sem þurfa að spjalla um daginn og veginn og þurfa einhvern sem hlustar á þau,“ segir Guðjón.

Erum ávallt á tánumNemendur koma til Guðjóns alveg frá 1. og upp í 10. bekk til að spjalla. Sumir koma og banka upp á en einnig er um tilvísanir frá kennurum og það er algengasta leiðin. Oft kemur vandi fyrst í ljós í viðtali hjá honum. .„Kenn-arar eru ávallt á tánum við að greina vanda barna og leita eftir úrræðum. Oft er hægt að leysa vanda sem kennarar finna og þá tek ég við. Þess vegna er gríðar-lega mikilvægt að skóli geti haft starfsmann sem sinni þessu og taki við svona málum frá kennurum. Þeir eru oft með stóra bekki og álag á þeim er mikið,“ segir Guðjón og tekur sérstaklega fram að samvinna sé við heimili og foreldra um mál sem enda hjá sálfræðingi skólans eða barna-verndarnefnd.

Fær ábendingar frá gangaverðiGuðjón segir að ekki aðeins kennarar, heldur allir starfsmenn skólans, séu meðvitaðir um velferð nemanda. „Ég fæ stundum ábend-ingar frá gangaverði. Oft er ástæða fyrir til-vísun og ekki endilega eitthvað að barninu heldur baklandinu. Sem betur fer er oft hægt að gera ýmislegt til að hjálpa eða styðja við. Mikið er um sálgæslu og velferðargæslu í dag og það er af hinu góða. Við erum meira vak-andi yfir andlegri velferð nemenda en áður.“

Mörg á flakki á milli skólaÞá segir Guðjón áberandi hversu mörg börn eru búin að vera í mörgum skólum og nefnir dæmi um barn sem var að koma í fimmta

skólann sinn þegar það hóf nám í haust. Hann tali við alla nýja nemendur sem komi í skólann til þess að sjá og heyra hvernig þeir plumi sig. „Sumir taka með sér vanda á milli skóla og þá oft þessir sem eru á flakki. Einnig er stundum togstreita í kringum börn for-eldra sem hafa skilið og foreldrarnir búa á sínum hvorum staðnum,“ segir Guðjón.

Líðan birtist í hegðunErfiðustu málin segir Guðjón vera þegar vitað sé af því að ofbeldi þrífst á heimilum. „Slík mál tilheyra félagsmálayfirvöldum en við erum kannski þau fyrstu sem fáum vitneskju um málin. Bara að vita af því að

það viðgengst og geta ekki farið á heimilin og lagað er erfitt. Það er fátítt en það þrífst samt,“ segir Guð-jón. Það komi hugsanlega fram í hegðun barnanna og stundum leiti barnið til hans með stuðningi bekkjarfélaga sem hafi vit á því að hvetja til að segja frá eða koma sjálfir. „Oft er það besta upplýsingaveitan. Þau vita best um líðan og aðstæður félaga sína og eru

ekkert að liggja á því. Til þess að eitthvað gerist verða þau að treysta einhverjum í skól-anum.“

Langflest á góðu róliGuðjón tekur fram að hann sé bundinn þagnarskyldu en sum mál séu samkvæmt lögum nauðsynlegt að segja frá. „Barnið þarf þá að vita að það sé til bóta að segja frá og samfélagið er orðið opnara þegar kemur að þessu. Almenningur og skólar eru meira á tánum.“ Hann tekur þó fram að langflest börn séu á góðu róli og margir áhugaverðir hlutir að gerast. „Það lyftir skólastarfinu að sjá árangur þess góða sem hefur verið gert í formi fræðslu og forvarna. Við sem sinnum þessu á Suðurnesjum hittumst töluvert á samtakafundum og berum saman bækur okkar. Yfirleitt komum við svo með ábend-ingar til sveitarfélaganna um hluti sem betur mættu fara,“ segir Guðjón að lokum.

- fréttaskýring // Náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum Suðurnesjum

Þar sem hjörtu skólanna sláNáms- og starfsráðgjafar sinna afar mikilvægu starfi í samfélagi okkar, meðal annars innan skólakerfisins. Með því að ræða við þá gefast tækifæri til að skoða og meta eigin stöðu, til dæmis áhuga og hæfni, átta sig á hvaða möguleikar eru í boði og gera áætlun um hvert skal stefna. Að mati náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á Suðurnesjum hefur áhersla breyst á undanförnum áratug úr því að vera það sem lögverndað starfsheiti þeirra gefur til kynna yfir í viðtöl vegna líðan skólabarna. Í sumum tilfellum hafa of-beldismál á heimilum eða vitneskja um slæmt bakland komið fyrst í ljós í slíkum viðtölum. Olga Björt hitti þau sem sinna þessu starfi í grunnskólunum og ræddi við þau um afar fjölbreytt verkefni sem þau fást við og það sem skiptir þau mestu máli, velferð barnanna. Fjallað verður um þetta í þessu tölublaði og næstu blöðum.

n Félagar oft besta upplýsingaveitan:

Börnin endurspegla heimilin

Kennarar eru ávallt á tánum við að greina vanda barna og leita eftir úrræðum

Fólk almennt meira vakandi yfir líðan barna

Svava segir hlutverk námsráðgjafa hafa breyst þannig að áður sinntu þeir námsráðgjöf á eldri skólastigum en nú þyki þeir ómissandi í grunnskólanum. Það sé líklega vegna þess að fólk sé almennt orðið meira vakandi yfir líðan barna og nauðsyn ráðgjafar við nám, en áður. Stundum þurfi nemendur aðeins að fá smá spjall um námið eða einhver önnur mál. Metið sé hvort nemendum sé beint fyrst til námsráðgjafa áður en hann er látinn bíða kannski í marga mánuði eftir sálfræðingi. „Ef barn þarf aðstoð sálfræðings þarf að fylla út alls kyns beiðnir og lista ef um greiningu eða ráðgjöf er að ræða. Ef leita þarf til náms-ráðgjafa kemur beiðni frá foreldrum eða umsjónarkennara um að spjalla aðeins við nemandann og grennslast fyrir um hvort hægt sé að leysa málið eða því vísað áfram,“ segir Svava.

Of löng bið eftir úrræðumReiðistjórnunarmál eða mál af geðrænum toga eru erfiðust að mati Svövu. Þeim málum sé sinnt sérstaklega hjá þeim. „Skólastjórn-endur á Suðurnesjum skrifuðu bréf til ráð-herra mennta-, heilbrigðis- og félagsmála fyrir þremur árum til að mótmæla löngum biðlistum á BUGL. Í framhaldinu sátum við fjölmennan fund með fulltrúum ráðu-

neytanna þar sem þessi mál voru rædd. Við töldum aðbúnað og úrræði fyrir börn á grunnskólaaldri með geðraskanir ábótavant og höfðum þá í huga truflun eða veikindi sem skerða starfsgetu þeirra verulega.“ Hún segir afleitt að börn á Íslandi sem eru með geðræn vandamál þurfi að bíða eftir læknisaðstoð jafnvel í mánuði eða ár. „Eigum við starfsfólk skóla að sinna barni í slíkri stöðu og erum við í stakk búin til þess eða er það heilbrigðiskerfið sem á að gera það? Ennþá eru langir biðlistar!“ segir Svava með áherslu.

Dýrkeyptara að fresta meðhöndlunVið þetta bætir Svava að yfirleitt sjái fólk ekki muninn á því að láta t.d. fótbrotið barn bíða eða barn sem á við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Bæði geti skaddast um aldur og ævi. „Hver vika og hver mánuður skiptir máli í lífi þessara barna og við full-orðna fólkið, sem eigum að gæta hagsmuna þeirra, getum ekki og eigum ekki að sætta okkur við slíka meðferð. Því má svo við bæta að það er örugglega mun ódýrara fyrir sam-félagið að sinna börnunum ungum en að fresta meðhöndlun þar til seinna, því fyrr sem tekið er á málum því minni líkur eru á vandamálum hjá þessum einstaklingum seinna á ævinni. Stundum verður það hinn mesti harmleikur bæði fyrir þá sjálfa og sam-félagið, segir Svava.

n Aðbúnaði og úrræðum barna oft ábótavant:

Námsráðgjafar orðnir ómissandi

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR10

Guðjón Sigbjörnsson er í 50% starfi sem námsráðgjafi við Njarðvíkurskóla. Hann er ekki menntaður sem slíkur en á að baki 40 ára reynslu sem kennari og umsjónar-kennari. Hann segir starfið afskaplega fjölbreytt og viðfangsefni af öllum toga. Námsráðgjöf sé í raun ekki lengur rétta orðið yfir það sem fengist er við. Hún sé meira á vorin þegar elstu nemendur eru á leið í framhaldsskóla.

Svava Bogadóttir, skólastjóri Stóru-Vogaskóla, svaraði fyrir hönd skólans vegna þess að námsráðgjafi þeirra var nýbyrjaður. Hún segir að fráfarandi námsráðgjafi hafi verið með sjálfstyrkingarnámskeið fyrir nemendur og núverandi taki á móti þeim í sjálf-styrkingarviðtöl. Stundum sé um að ræða smávægileg mál þar sem börn til dæmis komi í byrjun dags og svo aftur í lok dags til að ræða hvernig gekk. „Þetta er svona lausna-miðað og námstengt. Börnin vilja fylgja hópnum en ráða stundum ekki við það.“

Page 11: 2 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 16. janúar 2014 11

Texti og mynd: [email protected]

Innritun og upplýsingar í síma:866 2640, 866 2494

Innritun 16. - 23. jan. milli kl. 19 - 21Erla Rut HaraldsdóttirHarpa Pálsdóttir

BarnadansarMjög skemmtilegt námskeið.Góð hrey�ng! Yngst 4 ára.

KonusalsaSjóðheitt námskeið fyrir allar konur.

KrakkarBlandað dansnámskeið fyrir ykkur.

FreestyleAldursskipt

Einstaklingar - FullorðnirDans fyrir alla - þarft ekki dansfélaga.

Lærið , salsa, línudans, freestyle, samkvæmisdansa og �eira

Nýir dansar!!

ReykjanesbærKennslustaður KK salurinn

Fleiri viðtöl vegna líðanNemendur koma til Ragnhildar með milli-göngu umsjónarkennara, skólastjórnenda og eða að beiðni forráðamanna eða nem-endanna sjálfra. Hún segir starfið hafa breyst mikið síðustu misseri og vera meira tengt líðan, hegðun og starfskynningum. „Ég er meira með viðtöl vegna líðan nemenda en vegna náms- og starfsráðgjafar. Þau sem leita til mín eru yngri börn en áður þegar þetta var einungis bundið við unglingastigið.“

Eru sýnilegri og samfélagið opnaraRagnhildur telur eina af ástæðum þess að þetta hefur breyst geta verið þá að náms-ráðgjafar séu orðnir sýnilegri. Þeir kynni hlutverk sitt í bekkjum. „Yngri börnin eru opnari og biðja kennarann eða ritara um að fá að koma í eitt skipti. Ef það þarf meira til þá þarf beiðni í samráði við forráðamenn. Unglingar eru þó einnig opnari en áður og fljótari að ræða hlutina ef þeim finnst þeir þurfa þess.“ Einnig segir Ragnhildur sam-félagið vera opnara, en slíkt sé samt vanda-mál varðandi samfélagsmiðla og síma. „Oft hugsa ég með mér hvort verið sé að taka upp kennslustundina mína. En ég sé samt fleiri kosti en galla við opnara samfélag,“ segir Ragnhildur.

Kvíði áberandi eftir hrunFrá hruni segir Ragnhildur að mikill tími hafi farið í viðtöl þar sem fram hefur komið kvíði

og þess háttar óöryggi. „Mjög slæmt ástand hefur verið á Suðurnesjum, fyrst vegna at-vinnuleysis en nú sé komið meira jafnvægi í þeim málum. Börn þeirra sem voru svona sæmilega settir fengu kannski fleiri gæða-stundir með foreldrum. Börn þeirra sem höfðu það svo slæmt fjárhagslega að þeir misstu húsnæði sitt voru óörugg. Húsaleigu-markaðurinn er hruninn og maður hleypur ekkert í húsnæði.“

Brotið á réttindum barnaHún segir að sum börn þurfi oft að skipta um skóla vegna þess að ekki fæst húsnæði fyrir þau í heimabyggð. „Þetta veldur miklu álagi á börn og þau eru með meiri kvíða en áður. Þau eru neydd til að skipta um skóla, vini og umhverfi vegna aðstæðna sem þau ráða ekki við. Geta ekki tekið þátt í íþróttastarfi eins og áður og hegðun þeirra og líðan endurspegla stundum líðan foreldra. Það er ábyrgðarhluti stjórnvalda í hverju sveitarfélagi, bankakerf-inu og ríkisstjórn á Íslandi að taka þessa þætti til greina. Þetta er brot á réttindum barna, hreint og beint,“ segir Ragnhildur.

Félagsleg staða kemur í ljósAð sögn Ragnhildar kemur líðan barna og félagsleg staða þeirra oft í ljós þegar þau dragast aftur úr í námi, eru ekki eins dugleg að vinna heimavinnu eða fá ekki stuðning eða hvatningu heiman frá. Einnig þegar rætt sé við þau geti þau ekki einbeitt sér. „Þegar

n Skýr uppeldisstefna Grunnskólans í Sandgerði:

Aðalþörf barnanna er öryggi

við skoðuðum skólapúlsinn í apríl og aftur í október var 0,5% aukning á kvíða, sem er ekki mikil en þó marktæk aukning og segir að þeim líður verr. Einnig sáum við að kvíði hefur aukist og þau eiga erfitt með einbeitingu, vinnubrögð og þrautseigju.“ Þá sé sjálfsmynd stúlkna líka umhugsunarefni.

Þarf allt samfélagið tilRagnhildur segir erfitt að meta hverjar séu orsakir. Líklega sé um að ræða blöndu af þáttum innan skólans og ytri þáttum. Verið sé að skoða það sem snúi að grunnskólunum. „Það þarf samt samfélagið allt til, ekki bara skólana. Nemendur hafa stundum átt erfitt með að fóta sig eftir að grunnskóla lýkur. Þau eru í raun komin út í djúpu laugina. Reynt er að finna hvaða tækifæri og bjargir fást á vegum sveitarfélaga á Suðurnesjum.“

Suðurnesin sterk heildErfiðustu málin sem Ragnhildur kemur að eru að hennar sögn þegar kvíði nemanda er orðinn meiri en það sem snýr að nám-inu. Einhvers konar öryggisleysi sem komi út í hegðun. Þá þurfi að koma til aðstoðar

utanaðkomandi, t.d. sálfræðings. „Það er gott að vinna með sálfræðingum. Einnig að fá leiðbeiningar og aðstoð. Suðurnesin eru svæði sem vinnur orðið mikið saman í svona málum. Við erum sterk heild svo að það sem gerist á einum stað gerist yfirleitt líka annars staðar.“ Ragnhildur hefur heyrt að ofbeldi og vanræksla hafi komið upp víða á Suður-nesjum. Þá byrji börn á því að sýna ákveðna hegðun og séu komin í strand í námi sínu. Þá ræði kennari við þau og oft komi í ljós það sem hamlar. Hún tekur fram að hún telji for-eldra samvinnuþýða og að þeir taki þátt í því þegar taka þurfi á málum.

Aðalþörfin er öryggiÍ uppeldisstefnu Grunnskólans í Sandgerði, Uppeldi til ábyrgðar, eru tilgreindir þættir í lífi barna sem byggjast á þörfum. „Það eru þörf fyrir ást og umhyggju, gleði, að hafa stjórn og frelsi. Aðalþörfin er þó fyrir öryggi. Ef hún er ekki til staðar er ekki hægt að upp-fylla hinar. Þess vegna skiptir máli að vel sé haldið utan um allt sem gert er fyrir börnin. Og alltaf í samráði fyrir forráðamenn,“ segir Ragnhildur að lokum.

11VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 16. janúar 2014

Ragnhildur L. Guðmundsdóttir lauk námi í náms- og starfsráðgjöf vorið 2010 en hafði unnið við ráðgjöf samhliða kennslu í nokkur ár á undan við Grunnskólann í Sandgerði. Hún starfar meira nú við námsráðgjöfina auk þess að kenna dönsku á unglingastigi.

Page 12: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12

Kom skemmtilega á óvart Viðurkenningin Maður ársins kom Klemenz skemmtilega á óvart. Hann átti ekki von á henni. „Hjóla-ferðin var eitthvað sem mig lang-aði að gera á fimmtugsafmælinu. Gamall draumur sem ég lét rætast.“ Hann segir fjölskyldan sína hafa verið afskaplega duglega að ferðast um landið, fyrst þegar stelpurnar hans voru pínulitlar. Þá kúldruð-ust þau í tjaldi en nokkrum árum seinna voru þau komin með felli-hýsi og hjólhýsi. „Alltaf þegar ég sá einhvern á hjóli þá hugsaði ég um hvað það hlyti að vera gaman. Einhvern veginn gafst þó aldr-ei tækifæri til þess. Þegar fimm-tugsafmælið var að nálgast sagði ég við sjálfan mig eð nú skyldi ég láta verða af því og skipulagði snemma á síðasta ári þessa ferð. Um svipað

leyti hugsaði ég með sér að það væri gaman að styrkja gott mál-efni og lá þá beinast við að styrkja blóðlækningadeildina vegna þess að konan mín hefur þurft að leita þangað. Svo fór boltinn að rúlla,“ segir Klemenz.

Eiginkonan og móðirin með í för

Margt fólk kom að þessu með Klemenz og hjálpaði honum að gera drauminn að veruleika. „Gríðarlegur, allskonar stuðningur. T.d. fóru eiginkonan og mamma með mér. Mamma á húsbíl en við gistum bara eina nótt í honum af níu. Við fengum alls staðar inni á hótelum vegna þess að Haraldur Hreggviðsson, félagi minn í 3N, var svo duglegur að redda okkur gist-ingu. Hann hjólaði sjálfur hringinn

fyrir nokkrum árum og hafði góðar tengingar víða.“ Þá fékk Klemenz styrk frá mörgum fyrirtækjum sem gerði þetta mögulegt.

100 manns fóru Klemmann Klemenz hafði ákveðið að taka þennan hring um landið á sem skemmstum tíma, vildi að þetta yrði áskorun og svo var betra að vera ekki lengi frá vinnu. Í lok hjólaferðarinnar ætlaði hann að stíga af hjólinu og hlaupa „Klem-mann“ svokallaða en það er 23.5 km hringur sem Klemenz hleypur með góðum hópi fólks á gamlársdags-morgun, Reykjanesbær-Sandgerði-Garður-Reykjanesbær. Upphaflega hugsunin með Klemmann var að hlaupa einn, en það endaði með að í 18. skiptið, á fimmtugsafmælis-degi Klemenzar, hlupu, gengu eða

hjóluðu 100 manns með honum og styrktu gott málefni í leiðinni. „Ég vildi ekki hefðbundið afmæli og að þetta yrði afmælið mitt; að fólk myndi hlaupa með mér. Þetta varð líklega besti dagur ársins veðurlega séð. Var mjög heppinn með veður. Var búinn að berjast við 20 metra á sekúndu dagana á undan,“ segir Klemenz, sem bætti svo við 19. „Klemmanum“ einnig í blíðviðri á gamlársdag.

Fáir íslenskir ferðamennMinnistæðast í hringferðinni segir Klemenz hafa verið hversu mikið á óvart það kemur alltaf hversu landið er fallegt, sérstak-lega þegar farið er um það hjólandi. „Svo var gaman að tala við fólkið sem maður hitti á leiðinni, bæði Íslendinga og útlendinga. Einnig margt blómlegt í gangi úti á landi, sérstaklega í kringum ferðamanna-iðnaðinn. Annars var nánast eng-inn Íslendingur að ferðast á þessum árstíma. Allir veitingastaðir fullir af erlendum ferðamönnum,“ segir Klemenz og hlær.

Fauk næstum af hjólinu„Ég var alltaf að flýta mér fyrstu dagana. Veðrið hafði áhrif á það. Ég var t.a.m. kominn 900 km fyrstu 4 dagana og töluvert á undan áætlun. En það kom sér vel þegar verðrið versnaði.“ Hann fór á t.d. 35 km meðalhraða til Víkur í Mýrdal frá Reykjanesbæ og var kominn í heita pottinn á Vík fyrir klukkan fimm síðdegis. „Þegar veðrið fór að versna fór maður hægar yfir. Ég var búinn að ákveða fyrirfram hversu marga kíló-metra ég ætlaði á dag og átti því inni einn dag og það nýttist vel þegar ég var kominn að Jökulsá á Fjöllum. Þar var snarvit-laust veður og ég var þrjá tíma að fara 40 km að Mý-vatni. Maður var alltaf að reyna að vinna sér inn tíma og vegalengdir og ég fylgdist vel með veðurspánni. Stundum þegar veðrið var sem verst þá tók konan mín mig og hjólið inn í bíl

og skutlaði mér svo morguninn eftir á sama stað. Stundum mátti ég þakka fyrir að fjúka ekki af hjól-inu,“ segir Klemenz og brosir.

Mogginn hringdi á Holta-vörðuheiðinni

Þá segist Klemenz stundum hafa gefið sér tíma til að tala við fólk á leiðinni. „Síðustu dagana var orðið kjörið að fá eitt og eitt símtal þegar ég var orðinn þreyttur. T.a.m. var hringt var frá Morgunblaðinu þar sem ég var valinn afmælisbarn dagsins. Þá var ég á leiðinni upp Holtavörðuheiðina og ég spurður í símtalinu hvort hann hitti illa á mig. Ég sagði bara: „Nei nei, ég er að hjóla upp Holtavörðuheiðina. Allt í góðu lagi.“

Vel hugsað um hannStofnuð var Facebook síða í byrjun verkefnisins og inni á henni lofaði Klemenz að stoppa á klukkutíma fresti og taka eina mynd. Töluvert af myndum komu beint frá honum í gegnum síma en móðir hans og eiginkona voru líka duglegar að taka af honum myndir og setja á síðuna. „Allir fengu að vita hvar ég var á hverjum tíma. Það var mjög gaman að hafa mömmu og Katrínu með mér hringinn. Þær stóðu sig mjög vel og hugsuðu vel um mig. Vorkenndu mér stundum þegar mér var kalt og orðinn þreyttur. Vindurinn tók vel í húsbílinn og mamma fór stundum á undan og kom bílnum í var. Katrín keyrði þá á eftir mér á okkar bíl, þannig að það var gott að vera með tvo bíla.

Þetta var meiri-háttar samvinna.“

Borðaði hálfa vínarbrauðs-

lengjuKlemenz er nær-ingarfræðingur að mennt og þekkir mikilvægi þess að borða og næra sig rétt, sérstaklega þegar svona ferð er annars vegar. „Það

skiptir miklu máli að borða reglu-lega yfir daginn og kolvetnaríkan mat og það dugði mér. Svo gat verið gott að fá hrein kolvetni beint í kroppinn þegar orkubirgðirnar

-viðtal pósturu [email protected]

n Klemenz Sæmundsson er Suðurnesjamaður ársins:

Lét gamlan draum rætastKlemenz Sæmundsson tilheyrir stórum hópi fólks sem umhugað er um eigin heilsu og stundar reglulega hreyfingu sér til heilsubótar. Klemenz er mikill áhugamaður um hlaup og er vinsæl hlaupa- og hjólaleið á Suðurnesjum nefnd „Klemminn“ til heiðurs honum. Klemenz varð fimmtugur á árinu 2013 og ákvað í tilefni af þeim tímamótum að leggja land undir fót og láta gott af sér leiða. Hann hjólaði hringinn í kringum Ísland á rétt rúmri viku og kom til baka úr því ferðalagi á fimmtugsafmælisdaginn, 4. september. Þann dag hljóp hann einnig „Klemmann“, 22,7 km hringleið um Reykjanesbæ, Sandgerði og Garð. Með þrekraun sinni lét Klemenz gott af sér leiða og safnaði áheitum til styrktar Blóðlækningadeild LSH. Söfnunin skilaði rétt um einni milljón króna. Þar sýndi Klemenz hvernig ein-staklingsframtak getur gert samfélagið okkar betra og er á sama tíma öðrum hvatning og fyrirmynd. Víkurfréttir hafa ákveðið að Klemenz hljóti útnefninguna Suðurnesjamaður ársins 2013.

Alltaf þegar ég sá einhvern á hjóli þá hugs-aði ég um hvað það hlyti að vera gaman

Page 13: 2 tbl 2014

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 16. janúar 2014 13

voru á þrotum. Ég mæli ekkert sér-staklega með vínarbrauði en konan keypti handa mér vínarbrauð þegar ég var kominn í Varmahlíð eftir 200 km törn. Þá kláraði ég hálfa vínarbrauðslengju ásamt banönum og fleiru; sársvangur og með lágar orkubirgðir.“ Hann bætir við að ekki sé rétti tíminn til að fara spara við sig hitaeiningar í svona ferð. Morgunmaturinn hafi t.d. saman staðið af kornflögum, múslí og stundum eggi og beikoni. „Það voru um 700-800 hitaeiningar og veitti ekki af. Mjög mikilvægt að borða þannig að maturinn var næstum kominn upp í kok. Ekkert eins slæmt og að vera orkulaus í svona ferð,“ segir Klemenz.

Með mikla hreyfiþörfVarðandi lífsstíl segist Klemenz alltaf hafa verið í íþróttum. „Ég var sem gutti í fótbolta, körfu og júdó og spilaði með meistaraflokki Víðis í Garði. Þegar ég hætti í bolt-anum hafði ég áfram hreyfiþörf og fór að hlaupa og hjóla. Hef í raun aldrei stoppað. Dætur mínar þrjár mínar hafa einnig verið í íþróttum. Við höfum gaman af að ganga og höfum gengið töluvert um landið. Þá hjóla ég mjög mikið og áður en ég fór í ferðina tók ég 9-10 daga þar sem ég hjólaði 4-5 tíma á dag á Suðurnesjum; yfir 100 km á dag, alls um 1200 km. Eftir það vissi ég að þetta yrði ekkert mál.“

Frábærar viðtökurKlemenz segir það hafa verið virki-lega gaman að finna stuðninginn við verkefnið og hversu margir fylgdust með. „Það kom skemmti-lega á óvart að það komu nokkrir starfsmenn frá blóðlækninga-deildinni og löbbuðu „Klemmann“ með mér í lokin eftir að hafa fylgst með á Facebook.“ Hann segir söfnunina hafa gengið ótrúlega vel. „Ég hélt að fjárhæðin yrði 200-400 þúsund en varð tæp milljón. Margir lögðu málefninu lið, bæði einstaklingar og fyrirtæki og kann ég þeim miklar þakkir fyrir. Á síð-asta deginum, þegar við gengum Klemmann, komu inn vel yfir 200 þúsund.“ Svo hafi bætst enn við á meðan þau hafi haldið þessu opnu. „Við fengum svo frábærar viðtökur á blóðlækningadeildinni þegar þau komum með styrkinn. Hann fer í að bæta aðstöðu sjúklinga og að-standenda þeirra á sjúkrahúsinu,“ segir Klemenz.Hann hvetur fólk sem hefur áhuga á áskorun sem þessari á að láta drauminn rætast. Vissulega þurfi að reyna á sig en það gefi mikið til baka. „Það er um að gera að fara af stað, setja sér raunhæf mark-mið samt með áskorun. Í leiðinni er gott að styrkja gott málefni. Það er gott að gefa,“ segir Klemenz að lokum.

1990 - Dagbjartur Einarsson1991 - Hjörtur Magni Jóhannsson1992 - Guðmundur Rúnar Hallgrímsson1993 - Guðjón Stefánsson1994 - Júlíus Jónsson1995 - Þorsteinn Erlingsson1996 - Logi Þormóðsson1997 - Steinþór Jónsson1998 - Aðalheiður Héðinsdóttir1999 - Sigfús Ingvason2000 - Bláa lónið / Rúnar Júlíusson / Íþróttafélagið Nes2001 - Freyja Siguðardóttir / Norðuróp / Fræðasetrið í Sandgerði2002 - Guðmundur Jens Knútsson

2003 - Áhöfnin á Happasæl KE fyrir björgunarafrek2004 - Tómas J. Knútsson2005 - Guðmundur Kristinn Jónsson / Krístin Kristjánsdóttir2006 - Hjörleifur Már Jóhannsson / Bergþóra Ólöf Björnsdóttir2007 - Erlingur Jónsson2008 - Sigður Wíum Árnason2009 - Jóhann Rúnar Kristjánsson2010 - Axel Jónsson2011 - Guðmundur Stefán Gunnarsson2012 - Nanna Bryndís Hilmarsdóttir / Brynjar Leifsson2013 - Klemenz Sæmundsson

Suðurnesjafólk ársins 1990 til 2013

Klemenz fékk flotta afmæl-istertu í Íslandshringnum.

Á síðustu kílómetrunum í Klemmanum í nágrenni veið golfskálann í Leiru.

Fjölskyldan afhenti blóðlækningadeild LSH milljón kr. sem söfnuðust

Katrín aðstoðar eiginmanninn í hjólahringnum.

Á lokakaflanum á Reykjanesbrautinni við Voga með nokkrum hjólafélögum.

Klemenz með Katrínu eiginkonu og Soffíu móður sinni á góðri stundu í hringferðinni góðu.

Hringvegurinn og „Klemminn“ að baki.

Page 14: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14

SUMARSTÖRF Í EINU AF UNDRUM VERALDARBláa Lónið leitar að orkumiklum og jákvæðum einstaklingum í fjölbreytt sumarstörf.

Kynntu þér störfin sem í boði eru ásamt hæfniskröfum og sendu okkur umsókn fyrir 10. febrúar á heimasíðu okkar bluelagoon.is/atvinna.

Bláa Lónið er tóbakslaus vinnustaður og þar starfa að jafnaði 250 starfsmenn.

Nánari upplýsingar veita Rakel Heiðmarsdóttir, mannauðsstjóri og Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir sérfræðingur á mannauðssviði í síma 420 8800.

Bláa Lónið hefur margsinnis verið valinn einn besti spa staðurinn á heimsvísu og fékk nafnbótina sem eitt af 25 undrum veraldar að mati National Geographic.

Nær 100 nemendur úr Reykjanesbæ eru á meðal þeirra 10% nemenda á öllu landinu sem hlutu

hæstu einkunnir á samræmdum prófum á haustönn 2013. Þetta gerist um leið og grunnskólanemar Reykja-nesbæjar náðu almennt mjög stórstígum framförum á samræmdum prófum í haust.Í tilefni af þessum árangri bauð bæjarstjórinn í Reykja-nesbæ, Árni Sigfússon, til móttöku í Víkingaheimum þar sem nemendum voru veitt viðurkenningarskjöl.„Þegar nemandi brýtur af sér í skólastarfinu er gjarnan kallað á foreldra og þeim gerð grein fyrir vandanum og óskað samstarfs um að leysa vandann. En þegar nemandi skilar frábærum árangri – þá, því miður, köllum við ekki alltaf foreldra til sérstaklega eða nefnum það við nem-

endur hvort þau geri sér grein fyrir hvað þau eru að afreka. Það viljum við gera hér“, sagði Árni m.a. í ávarpi sínu til gesta.„Þið eruð að sýna frábæran mælanlegan árangur – á landsmælikvarða – og þið eruð skóla ykkar, umhverfinu og samfélaginu til sóma og mikil hvatning fyrir aðra nem-endur. Í þessum hópi eru jafnan sterkir forystumenn til framtíðar jafnt á sviði lista, íþrótta, vísinda og félagslegrar þátttöku.“Síðastliðið haust tóku nemendur í 4., 7. og 10. bekk grunn-skólanna í Reykjanesbæ samræmd próf. Prófin eru gerð með sama hætti um allt land og fara fram í íslensku, stærð-fræði og ensku.

Um 100 nemendur fengu viðurkenningu fyrir námsárangur

-fréttir pósturu [email protected]

Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð um allt að 7% á nýjum bílum vegna styrkingar krónunnar.

Sem dæmi má nefna að Chevrolet Cruze station lækkar um 200 þús. kr., fer úr 3.190 þús. kr. í 2.990 þús. kr. og Chevrolet Captiva sportjeppinn lækkar um 500 þús. kr., fer úr 6.490 þús. kr. í 5.990 þús. kr. segir í fréttatilkynn-ingu frá Bílabúð Benna.„Við höfum alltaf kappkostað að láta viðskiptavini njóta hagstæðara gengis. Síðastliðið vor lækkuðum við verð

verulega vegna styrkingar krónunnar og núna gerum við það sama. Um leið leggjum við okkar af mörkum til að stuðla að stöðugleika og tryggja kaupmáttinn,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna en fyrir-tækið er með bílasölu á Fitjum í Njarðvík.Chevrolet Spark, ódýrasti nýi smábíllinn á markaðnum, lækkar um 54 þús. kr. og kostar frá 1.736 þús. kr. Þess má einnig geta að nú býðst viðskiptavinum Bílabúðar Benna bílalán án lántökugjalda og stimpilgjalda með allt að 75% fjármögnun í allt að 84 mánuði, í samstarfi við Lykil. S : 421-2045. Verslunarmiðstöðin Krossmói

MIKIÐ ÚRVAL AF MANNBRODDUM

GOTTVERÐ!

NÝTT! BRÝNUM HNÍFA

Á dögunum undirrituðu Ró-bert Ragnarsson bæjarstjóri

Grindavíkurbæjar og Eggert Herbertsson framkvæmdastjóri Omnis ehf. samning um að starfs-menn Omnis taki að sér umsjón með miðlægum tölvukerfum Grindavíkurbæjar.Eggert Herbertsson segist að v o n u m m j ö g á n æ g ð u r m e ð að Grindavíkur-bær bætist í hóp v i ð s k i p t a v i n a f y r i r t æ k i s i n s . „Sveitarfélögum s e m ný t a s é r þjónustu okkar hefur fjölgað og nú sinnum við m i s m u n a n d i þörfum tíu þeirra á Vesturlandi , höfuðborgarsvæðinu og á Reykja-nesi. Starfsmenn sveitarfélaga eru mjög kröfuharðir viðskiptavinir og því mjög ánægjulegt að okkar

starfsmenn standist þær kröfur sem gerðar eru, bæði fjárhagslegar og tæknilegar.“Róbert Ragnarsson segir að þessi útvistun umsjónar með tölvu-kerfum bæjarfélagsins hafi verið tekin að vandlega athuguðu máli og að lokum hafi verið ákveðið að ganga til samninga við Omnis.

„O m n is he f u r sinnt þjónustu við sveitarfélög hér á svæðinu og reynsla starfs-m an n a þ e i r r a varð til þess að við ákváðum að ganga til þessara samninga.“U p p l ý s i n g a -tæknifyrirtækið Omnis ehf. er með rekstur á

Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi og eru starfsmenn þess í dag um 40 talsins.

n Viðskipti og atvinnulíf:

Omnis semur við Grindavíkurbæ

Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og Eggert Her-

bertsson framkvæmdastjóri Omnis ehf.

Bílabúð Benna lækkar verð

Page 15: 2 tbl 2014

Bílabúð BennaNjarðarbraut 9 • ReykjanesbæSími: 420 3330 • www.benni.is

LÆKKUM VERÐVIÐ STÖNDUM VAKTINA OG

Chevrolet Spark• Samlæsing• 6 loftpúðar• Útvarp og CD

• USB tengi • Aksturstölva• ABS hemlalæsivörn

• ISOFIX öryggisfestingar• Hæðastillanlegt bílstjórasæti • Útihitamælir

Hluti af staðalbúnaði - sjá meira á benni.is

Chevrolet Cruze Station• ESC stöðugleikakerfi• Bluetooth• Hiti í framsætum

• Aksturstölva• ABS hemlalæsivörn• ISOFIX öryggisfestingar

• Álfelgur• Loftkæling• ESP skriðvörn

Hluti af staðalbúnaði - sjá meira á benni.is

LÆKKAÐ VERÐ

2.990.000.-

LT SW BENSÍN 1.6L

BSK. 5 DYRA

LÆKKAÐ VERÐ

1.736.000.-

LS BENSÍN 1.0L

BSK. 5 DYRA

200.000 KR. LÆKKUN

54.000 KR. LÆKKUN

500.000 KR. LÆKKUN

ENGIN LÁNTÖKUGJÖLDBílabúð Benna í samstarfi við Lykil bjóða fjármögnun sem hentar hverjum og einum. Eftirfarandi tilboð gildir í janúar.

• Engin lántökugjöld• Engin verðtrygging

• Ekkert stimpilgjald• Ekkert uppgreiðslugjald

Allt að 75% fjármögnun í allt að 84 mánuði. www.lykill.is

LÆKKAÐ VERÐ

5.990.000.-

LT DÍSEL 2.2L

SSK. 184 HÖ

Chevrolet Captiva• Dísel Turbo• 184 hestafla vél • 7 sæta • 17” álfelgur• 6 þrepa sjálfskipting

• Bluetooth samskiptakerfi • Brekkubremsa• Stefnuljós í hliðarspeglum• Fjarstýrðar samlæsingar• Aðgerðarstýri

• Skynvætt fjórhjóladrif• Rafmagn í hliðarspeglum • Hljómflutningstæki / USB tengi • Fjaropnun á afturhlera• Hiti í sætum

Hluti af staðalbúnaði - sjá meira á benni.is

*Bíla

búð

Benn

a ás

kilu

r sér

rét

t til

brey

ting

a á

verð

i og

búna

ði á

n fy

rirv

ara.

Útb

únað

ur b

íla g

etur

ver

ið fr

ábru

gðin

n m

yndu

m í

augl

ýsin

gu. G

ert m

eð fy

rirv

ara

um p

rent

villu

r.

Nú lækkar verð á nýjum bílum hjá okkur. Vegna styrkingar krónunnar getum við lækkað verð á glænýjum Chevrolet. Gerðu samanburð og fáðu meira fyrir peninginn.

Opið alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 14. Verið velkomin í reynsluakstur.

Page 16: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR16

Daglegar fréttir á vf.is

KJARASAMINGAR 2014Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasaming verslunar- og skrifstofufólks

er hafin og henni lýkur kl. 12:00 á hádegi þann 20. janúar 2014.

Kjörgögn með nánari upplýsingum hafa verið send félagsmönnum ásamt lykilorði inn á rafrænan atkvæðaseðil.

Þeir sem ekki hafa fengið kjörgögn en telja sig eiga rétt á að greiða atkvæði eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins. Sími 421-2570/netfang [email protected].

Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.

Stjórn VS

-fréttir pósturu [email protected]

STRANDVEIÐAR

SMÁSKIPANÁMSKEIÐ staðarnám 12 m og styttri fyrir- atvinnuréttindi. Byrjar 23.jan kl 17:00.VÉLAVÖRÐUR á skipi með 750 kw vél - 12 m og styttri að skráningarlengd. Byrjar 20. jan kl 09:00.

Víkurbraut 56 240 Grindavík, [email protected]

Áttu þér draum um að fara á STRANDVEIÐAR - þá höfum við námið fyrir þig.

AFLAMEÐFERÐ markmiðið með námskeiðinu er að viðkomandi tileinki sér góð vinnubrögð er varðar aflameðferð. Áætlað er að byrja í mars eða þegar næg þátttak næst.Námskeiðin fara fram í aðstöðu Fisktækniskólans að Víkurbraut 56 Grindavík

Fisktækniskóli Íslands býður upp á þessi námskeið hægt er að sjá nánari upplýsingar á heimasíðu okkar eða hjá starfsmönnum í síma 412-5966 eða á www.fiskt.is

til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunnier síðasti dagurinn22. jan.

FLÓABANDALAGIÐ

sem þú hefur

um kjarasamningana. Sýnum ábyrgð og greiðum atkvæði

ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. janúar

Guðrún ánægð með 100 þús. kr. Nettó vinning úr Jólalukku VFGuðrún Guðmundsdóttir,

Heiðarbraut 1 í Keflavík fékk stærsta vinninginn í Jóla-lukku Víkurfrétta 2013 þegar Jólalukkumiðinn hennar sem hún skilaði í verslun Nettó fyrir jólin var dreginn úr kassanum

sem hafði að geyma um 15 þús-und miða. Vinningurinn var 100 þús. kr. gjafabréf í Nettó. Guðrún var afar ánægð með vinninginn og tók við honum hjá Erlu Valgeirsdóttur, að-stoðarverslunarstjóra Nettó.

n Brunavarnir Suðurnesja:

Barnabílstóll í sjúkrabílanaBrunavarnir Suðurnesja eru

komnar með barnabílstól í sjúkrabíla sína. Stóllinn verður notaður þegar flytja þarf ung börn á sjúkrahús. Mun öruggara er að flytja börn í barnabílstól en á sjúkrabörum, eins og gert hefur verið hingað til. Þá hafa komið upp tilvik þar sem mæður og feður hafa haldið á börnum í for-gangsakstri.

Það er umboð TM (Trygginga-miðstöðvarinnar) í Reykjanesbæ sem gefur Brunavörnum Suður-nesja barnabílstólinn. Það kom í hlut Önnu Maríu Sveinsdóttur, útibússtjóra TM í Reykjanesbæ, að afhenda stólinn og Ingvi Þór Hákonarson tók við gjöfinni f.h. Brunavarna Suðurnesja.

Ingvi Þór Hákonarson tekur við barna-bílstólnum af Önnu Maríu Sveins-

dóttur. VF-mynd: Hilmar Bragi

Page 17: 2 tbl 2014

Fríhöfnin ehf. óskar eftir að ráða starfsfólk í sumarafleysingarUm er að ræða störf á lager, skrifstofu, í verslanir Fríhafnarinnar og Dutyfree Fashion á Keflavíkurflugvelli. Leitað er að þjónustulunduðum, glaðlyndum, snyrtilegum og reyklausum einstaklingum sem hafa góða samskiptahæfileika, eiga auðvelt með að nálgast fólk, hafa lipra og þægilega framkomu, eru sveigjanlegir, geta unnið undir álagi og sýnt frumkvæði í starfi.

Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan maí. Umsóknafrestur er til og með 7. febrúar. Umsóknum skal skila inn rafrænt á www.dutyfree.is/atvinna. Helstu upplýsingar um starfið veitir Sóley Ragnarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].

Fríhöfnin er fyrirmyndarfyrirtæki, fjölskylduvænt og hefur hlotið viðurkenningu fyrir menntastefnu sína. Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum. Í jafnréttisáætlun félags- ins er unnið að því markmiði með margvíslegum hætti og leggur Fríhöfnin áherslu á að jafna hlutfall kynjanna í sambærilegum stöðum.

SUMARSTÖRF Í FRÍHÖFNINNI

LANGAR ÞIG AÐ VINNAÍ BESTU FRÍHÖFN EVRÓPU?

Verslun Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskipta-vini fyrirtækisins og áfyllingum í verslun. Unnið er í vaktavinnu.

Hæfniskröfur:

• Góður sölumaður með ríka þjónustulund• Reynsla af verslunarstörfum• Hæfni í mannlegum samskiptum• Gott vald á íslenskri og enskri tungu

SkrifstofaUm er að ræða starf í móttöku félagsins sem felst í símsvörun, umsjón með fundaaðstöðu félagsins og almennum skrifstofustörfum. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8 til 16.

Hæfniskröfur:

• Stúdentspróf er skilyrði• Reynsla af skrifstofustörfum er skilyrði• Hæfni í mannlegum samskiptum• Reynsla af Navision Financial er æskileg• Góð tölvu- og enskukunnátta

VöruhúsStarfið felst í almennum lagerstörfum. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 7 til 16og annan hvern laugardag frá kl. 7 til 11.

Hæfniskröfur:

• Meirapróf er skilyrði• Góð tölvukunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum

www.dutyfree.isHV

ÍTA

SIÐ

/SÍA

– 1

4-0

13

0

Page 18: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR18

Á u n d a n f ö r n u m þrettán árum hefur stór hluti af tíma mínum farið í akstur um götur Reykja-n e s b æ j a r o g n á -grennis með ungum og óreyndum öku-

nemum. Á þessum árum hefur verið afar ánægjulegt að sjá hvað umferðarmannvirki bæjarins hafa tekið miklum breytingum. Já-kvæðum breytingum sem án efa hafa aukið umferðaröryggi vegfar-enda enda hefur umferðarslysum í Reykjanesbæ fækkað verulega á þeim árum sem ég hef starfað sem ökukennari. Sjálfsagt eru einnig ein-hverjar aðrar ástæður fyrir þessari ánægjulegu fækkun en betri götur, betri gangstígar og öruggari gatna-

mót eins og t.d. hringtorgin með skemmtilegu skúlptúrunum. En það er ekki hægt að neita því að það hefur mikið að segja. Það er nú því miður svo að í lang flestum tilvika eru það mistök ökumanna sem eru orsök slysa og óhappa. Þess vegna er ein-mitt svo mikilvægt að umhverfið sé á þann hátt að draga úr slíkum mis-tökum.Hönnunin er ekki aðeins mikilvæg heldur viðhald gatna og þá sérstak-lega yfirborðsmerkinga og umferðar-merkja en ekki síður að umferðar-merkingar séu skýrar og réttar en einmitt þar má bæta verulega í í okkar annars ágæta bæjarfélagi. En að sjálfsögðu hvílir ábyrgðin á okkur vegfarendum, að við virðum þær reglur sem eru svo nauðsynlegar til að allt gangi nú upp í samskiptum

okkar og sjá einnig til þess að við komumst þangað sem ferðinni var heitið í upphafi.Þrátt fyrir allt tal um að umferðar-mannvirki hafi mikið að segja þegar horft er til öryggis vegfarenda og að allir fari eftir settum reglum, þá er það nú þannig að eitt af því mikil-vægasta sem við tökum með okkur út í umferðina hvort sem við erum akandi, hjólandi eða gangandi er kurteisi og tillitssemi. Sýnum ungum ökumönnum og öðrum vegfar-endum gott fordæmi. Það er löngu vitað að allt gengur svo miklu betur þarna úti ef við sýnum hvort öðru tillitssemi og virðingu.

Þuríður B. ÆgisdóttirLögregluvarðstjóri og öku-

kennari í Reykjanesbæ

-póstkassinn pósturu [email protected]

„Það vex aldrei neitt á Suðurnesjum“. Ef-laust hafa margir heyrt þetta í gegnum árin og jafnvel eru sumir s em ha l d a þessu ennþá fram. Vonandi hefur það

ekki farið framhjá neinum að það vaxa bæði tré og runnar á Suður-nesjum og dafna svo vel að þau skapa ákveðið lúxusvandamál. Áður fyrr plantaði fólk trjám og runnum alveg upp við húsin sín og þá helst beint fyrir neðan stofu-gluggann, svo að það sæist örugg-lega í plöntuna. Í dag eru sumir, ef ekki allir, búnir að fjarlægja þessar plöntur, því það sást ekki lengur út um gluggann. Með aukinni þekkingu í ræktun og góðu framboði á plöntum sem þola aðstæður eins og okkar hér á Suður-nesjum hafa íbúar nú aðgengi að öfl-ugum plöntum. Trjám og runnum er nú plantað hringinn í kringum lóðirnar og njóta margir skjólsældar í görðum sínum allan ársins hring. Garðeigendur hafa sem sagt hætt að planta alveg upp við húsvegg og fært plöntur alveg út við lóðarmörk í því markmiði að búa til skjól í garðinum. Þar komum við að lúxusvandamál-inu. Á meðan garðeigendur njóta útiveru og hlúa að görðum sínum í logni frá gróðrinum eiga gangandi vegfarendur í vandræðum með að komast leiðar sinnar. Hverjum hefði dottið í hug fyrir 30-40 árum síðan að

þetta yrði eitthvað vandamál? En það er engu að síður staðreynd og þetta þurfum við að laga. Gróður er víða að teygja sig allt að 50-100 cm út á gangstétt en þá er ekki mikið pláss eftir fyrir gangandi veg-farendur, þar sem hefðbundin breidd á gangstétt er 180 cm. Umhverfis- og skipulagssviði Reykja-nesbæjar berast árlega margar kvart-anir og ábendingar um gróður sem vex út fyrir lóðarmörk og verðum við nú í samstarfi við íbúa að taka á þessu máli.Nú í janúar og fram í apríl er rétti tíminn til að sinna trjáklippingum. Því viljum við hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjanesbæjar hvetja íbúa til að kíkja á gróður sem vex við lóðarmörk og huga að klipp-ingu, oftast er þetta ekki mikið mál og tekur ekki langan tíma. Sumum vex þetta kannski í augum og aðrir treysta sér kannski ekki í þetta verk-efni og minnum við þá á að hér í bæ er að finna fagmenn sem taka að sér svona verkefni. Umhverfis- og skiplagssvið mun á næstu dögum og vikum fara í átak í þessum málum og senda póst á þá lóðarhafa sem þurfa að sinna klipp-ingu.Hægt er að leita sér frekari upplýs-inga í síma Þjónustumiðstöðvar s: 420-3200Með von um jákvæð viðbrögð,

Bjarni Þór KarlssonGarðyrkjustjóri Reykjanesbæjar

Fyrirhuguð sala á hlut Reykjanesbæjar og Reykjavíkur í HS Veitum hefur vakið m i k l a at hyg l i a ð undanförnu. Þetta er stór ákvörðun þar sem í fyrsta sinn er

verið að einkavæða veitufyrirtæki á Íslandi. Einkavæðing orku- og veitufyrirtækja hefur víða verið í um-ræðunni og ekki er langt síðan að hluti Hitaveitunnar gömlu var einka-væddur (HS Orka). Þá átti einkavæð-ingin að vera bjargvættur álversins í Helguvík því virkjunaráform fyrir-tækisins væru of dýr og áhættusöm fyrir sveitarfélögin. Ekki er hægt að segja að þessi sala hafi verið álverinu til góðs. Flestir kannast við einka-fyrirtækin sem nú eru horfin t.d. Geysir Green, Magma, Reykjavik In-vest o.fl. Einkavæðing veitufyrirtækja hafa því miður reynst dýrkeypt fyrir almenning víða í Evrópu og sorglegt að við skulum ekki læra af mistökum annarra.

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ hafa verið á móti þess-ari einkavæðingu í mörg ár og ítrekað mótmælt þessum hugmyndum. Það kemur því á óvart að fyrrum oddviti A-listans í Reykjanesbæ skuli í blaða-grein hrósa sjálfstæðismönnum fyrir söluna.Í sömu grein er sjálfstæðismönnum einnig hrósað fyrir að hækka ekki þjónustugjöld hjá Reykjanesbæ. Gaman hefði verið í þessu sam-bandi að fyrrum oddviti hefði látið þess getið að það voru bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem hófu fyrst þessa umræðu um þjónustugjöld í lok september með bókun í bæjarráði. Það tók nokkuð langan tíma að fá sjálfstæðismenn í bæjarstjórn að hætta við 5% hækkun gjalda. En það tókst og fyrir það ber að þakka.

Friðjón EinarssonOddviti Samfylkingar-

innar í Reykjanesbæ

n Bjarni Þór Karlsson skrifar:

Það vex aldrei neitt á Suðurnesjum

n Þuríður B. Ægisdóttir skrifar:

Kurteisi, tillitssemi og akstur fara vel saman

n Friðjón Einarsson skrifar:

Einkavæðing HS Veitna, ekki gott

Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu �skeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða sandhverfu, �úru og styrju. Stolt Sea Farm rekur �skeldií 6 löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi. Stolt Sea Farm á Íslandi hefur þegar ha�ð uppbyggingu á 2000 tonna eldi á senegal�úru á Reykjanesi og er uppbygging þess vel á veg komin. Áætlað er að fyrsti �skurinn verði seldur í ár og að uppbyggingu verði endanlega lokið 2017.

Starfsmaður í eldiStolt Sea Farm, alþjóðlegt, leiðandi �skeldisfyrirtæki óskar að ráða starfsmann í eldisstöð fyrirtækisins á Reykjanesi. Fiskeldið verður stærst sinnar tegundar í heimi og er því um kre�andi og �ölbreytt framtíðarstarf að ræða. Starfsmaður þarf að hafa bifreið til umráða.Starfssvið og ábyrgð:- Almenn �skeldisstörf.- Bakvaktavinna.Hæfniskröfur:- Reynsla úr �skeldi, �skvinnslu eða sambærilegu.- Skipulögð og öguð vinnubrögð.- Góð íslensku- og enskukunnátta. Kunnátta í spænsku er kostur.- Reykleysi og reglusemi.- Hreint sakavottorð.- Lágmarksaldur 25 ár.Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar 2014.Umsókn og ferilsskrá sendist á íslensku á netfangið ss�[email protected] merkt “Starfsmaður í eldi”.

Sumarvinna Ef þú ert jákvæð/ur, dugleg/ur og getur unnið sjálfstætt,

þá erum við að leita að þér.

Við erum að leita að starfsmönnum í eftirfarandi: • Herbergjaþrif • Þvottahús

• Morgunmat • Veitingastað

Sendu okkur starfsumsókn með ferilskrá í

tölvupósti merkt starfinu sem þú óskar eftir.

www.hotelsmari.is [email protected]

595-1900

Airport Hotel Smári Blikavöllur 2 235 Keflavík

... next to the terminal

Page 19: 2 tbl 2014

Ávextir og grænmeti 1 bls

ávextir

veldu einhvern fallegan og framandi ávöxt eða grænmeti næst þegar þú átt leið um kælana hjá okkur

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi |

Kræsingar & kostakjör

25%afslætti

allirávextir á

aðeins í dag fimmtudag

nýtt

kortatímabil

Page 20: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR20

Þórdís Anja er grunnskóla-nemi í 10. bekk í Akurskóla. Henni þykir gaman að syngja og dansa. Hún væri til í að hitta Justin Bieber og segir að stærð-fræði sé skemmtilegasta fagið í skólanum.Hvað gerirðu eftir skóla?Ég hitti vinkonur mínar og fer á æfingar og læri ef þess þarf með.

Hver eru áhugamál þín?Syngja og dansa.

Uppáhalds fag í skólanum?Stærðfræði er skemmtilegust.

En leiðinlegasta?Íslenska.

Ef þú gætir hitt einhvern frægan, hver væri það?Klárlega Justin Bieber, ekki erfitt val.

Ef þú gætir fengið einn ofurkraft hver væri hann?Ég væri til í að vera ósýnileg.

Hvað er draumastarfið í framtíðinni?Mig langar til þess að verða leik-kona.

Hver er frægastur í símanum þínum?Skotta Beip.

Hver er merkilegastur sem þú hefur hitt?Ég bara hef ekki hitt

neinn merkilegan.

Hvað myndirðu gera ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag?Allt sem hægt er að gera.

Hvernig myndirðu lýsa fatastílnum þínum?Frekar venjulegur bara.

Hvernig myndirðu lýsa þér í einni setningu?Ég er mjög sérstök.

Hvað er skemmtilegast við Akurskóla?Krakkanir og kennararnir.

Hvaða lag myndi lýsa þér best?Það er ekkert lag sem mér dettur í hug.

Hvaða sjónvarpsþáttur myndi lýsa þér best?Pass myndi lýsa mér best.

Besta:Bíómynd? Þær eru svo margar.

Sjónvarpsþáttur? The Vampire Diaries er besti þátturinn.

Tónlistarmaður/Hljómsveit? Justin Bieber.

Matur? Subway erí miklu uppáhaldi.

Drykkur? Vatn og rautt Fanta (Exotic).

Leikari/Leikkona? Channing Tatum og Jennifer Aniston hljóta þann heiður.

Fatabúð? Ég versla mest í Forever 21 og H&M.

Vefsíða? Facebook.

Bók? Farðu aldrei frá mér.

Daglegar fréttir á vf.is

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja

Þórhallur Guðmundsson verður með einkafundi hjá félaginu þann 21. janúar.

Upplýsingar um tímapantanir í síma 421 3348.

- fs-ingur vikunnar pósturu [email protected]

Helsti kostur FS? Eins og Ari sagði í seinustu viku eru það dyrnar sem opnast sjálfkrafa í anddyrinu.

Hjúskaparstaða? Einhleypur.

Hvað hræðistu mest? Að standast ekki væntingar.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Myndi segja að það verði Ari í fót-boltanum.

Hver er fyndnastur í skólanum? Viggi allan tímann, enginn sem nær honum.

Hvað sástu síðast í bíó og hvernig var sú mynd? Seinast fór ég á The Wolf of Wall Street og mér fannst hún mjög góð.

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Tel mötuneytið bara nokkuð gott eins og það er.

Hver er þinn helsti galli? Get ekki hlustað á tónlist án þess að syngja með.

Birkir Örn Skúlason 17 ára Keflvíkingur sem stundar nám á viðskipta- og hagfræðibraut í FS. Hann æfir körfubolta með Kefla-vík og í framtíðinni langar hann að starfa sem lögfræðingur. Birkir er FS-ingur vikunnar að þessu sinni.

Verður að syngja meðHvað er heitasta parið í skólanum? Frikki og Eygló, Elmar og Agnes eru mjög góð pör.

Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Betra Wifi held ég.

Áttu þér viðurnefni? Hef aldrei átt mér eitthvað viður-nefni sem hefur verið lengi, einn kallar mig Bippa og annar kallar mig Börk en ekkert alvöru.

Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Er búinn að vera nota „Sællettu“ síðustu daga.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Það er að batna helling, er virkilega að meta það sem Elva er að gera. Nemendur þurfa bara að taka meiri þátt í því.

Áhugamál? Æfi körfubolta með Keflavík.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Lögfræði eða viðskiptalögfræði.

Ertu að vinna með skóla?Nei. Nóg að gera í körfu.

Hver er best klædd/ur í FS? Frikki Bjarna fær það, algjört augnakonfekt sá strákur.

Hver myndi leika þig ef gerð yrði kvikmynd um líf þitt? Adam Hicks held ég.

Eftirlætis:Kennari: Simon Cramer Larsen.

Fag í skólanum: Sund, lögfræði og bókfærsla sérstaklega útaf Hlyni.

Sjónvarpsþættir: Friends, Break-ing Bad og Blue Mountain state.

Kvikmynd: Lord Of The Rings og Hunger games.

Hljómsveit/tónlistarmaður : Coldplay!

Leikari: Jennifer Lawrence.

Vefsíður: Karfan.is og Twitter.

Flíkin: Á enga eftirlætisflík.

Skyndibiti: Hlölli.

Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)? Eins slæmt og það hljómar er það One Direction.

TIL LEIGU

40m2 bílskúrar til leiguTveir ný uppgerðir 40 fm bílskúrar með góðri aðkomu til leigu á Þórustíg í Njarðvík. Verð er 45.000 kr á mánuði innifalið hiti og rafmagn. Laus strax. Krafist er 90.000 kr tryggingar. Uppl í s:822 3858 eða 820 0099

4.herb. íbúðTil langtímaleigu, íbúð í Heiðarhverfi, 3 svefnherbergi, Bankaábyrgð og skilvís leigjandi skilyrði, leiga 130.000 á mán., frekari uppl. [email protected]

Einbýlishús Innri-NjarðvíkVandað og nýlegt einbýlishús með fal-legum garði, 4-5 svefnherbergi. Leigu-verð 230.000 kr. á mánuði. Upplýsingar í s: 848 7177.

Vatnsnesvegur 5Ca. 70 fm atvinnuhúsnæði með inn-keyrsludyrum og góðri loftæð á besta stað í Keflavík. Mjög auðvelt aðkoma. Frekari upplýsingar í síma 661 7000.

86fm Verslunarhúsnæði á Hafnargötu 32 til leigu og sölu. Uppl í 868 0490 Heiðar

Þjónustumiðstöðin Nesvöllum

Vikan 16. - 22. jan. nk. • Bingó • Listasmiðja • Handverk

• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.• Félagsvist • Bridge

• Hádegismatur • Síðdegiskaffi

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is

- smáauglýsingar

Ódýr húsgagna og teppahreinsunvið djúphreinsum: sófasett, stóla, teppi, rúmdýnur, mottur. komum heim til fólks, ekkert vesen. s. 780 8319; [email protected]

ÞJÓNUSTA

ÓSKAST

Íbúð óskast.Lítil íbúð óskast til leigu fyrir unga stúlku sem er í húsnæðisvandræðum. Hún er reglusöm, þrifin og gengur vel um. Vinsamlega hringið í síma 863 4762 eða 699 7284.

Willerby 98 stöðuhýsi 28x12 til sölu með eða án lóða á Laugarvatni.Verð 2,7M Visa/Euro Raðgr. Uppl í 868 0490

RANNSÓKNARBORANIR VIÐ ELDVÖRP, GRINDAVÍKURBÆKynningarfundur frummatsskýrslu

HS Orka hf. boðar til kynningarfundar vegna frummatsskýrslu rannsóknarborana í Eldvörpum. Um er að ræða borun allt að fimm jarðhitaholna í þeim tilgangi að afla upplýsinga um umfang auðlindarinnar. Fundurinn verður haldinn fimmtu-daginn 16. janúar 2014, frá kl. 17:30-18:45 í Kvikunni, Hafnargötu 12a í Grindavík.

Á fundinum verður farið yfir helstu þætti framkvæmdarinnar ásamt niðurstöðum mats á umhverfisáhrifum og mun gestum gefast tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir.

Formlegur kynningartími frummatsskýrslu stendur yfir til 24. febrúar 2014 en fram að þeim tíma gefst almenningi kostur á að koma á framfæri skriflegum athugasemdum til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef HS Orku www.hsorka.is og á vef VSÓ Ráðgjafar www.vso.is.

- ung // Þordís Anja pósturu [email protected]

Ég er mjög sérstök

Page 21: 2 tbl 2014

Sumarstörf 2014 Farþega- og farangursþjónustaÍ starfinu felst m.a. innritun, byrðing og ýmis þjónusta við farþega. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg, tölvukunnátta og góð tungumálakunnátta. Lágmarksaldur 20 ár.

FlugvélaræstingÖkuréttindi, enskukunnátta. Lágmarksaldur 18 ár.

FraktþjónustaÖkuréttindi, tölvukunnátta,enskukunnátta, vinnuvéla-réttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár.

FrílagerTölvukunnátta, enskukunnátta. Lágmarksaldur 20 ár.

HlaðdeildÖkuréttindi, enskukunnátta, vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 19 ár.

HleðslueftirlitÍ starfinu felst m.a. gerð hleðsluskráa, þjónusta við áhafnir og samræming gagna frá öðrum deildum. Stúdentspróf æskilegt, tölvukunnátta og góð enskukunnátta. Lágmarksaldur 20 ár.

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum í fjölbreytt og skemmtileg störf í alþjóðlegu starfsumhverfi á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða hluta- og heilsdagsstörf þar sem unnið er á vöktum. Umsækjendur þurfa í sumum tilfellum að sækja undirbúningsnámskeið áður en til starfa kemur.

Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum

samskiptum, hafi ríka þjónustulund, séu stundvísir og agaðir

í starfi en jafnframt sveigjanlegir. Reynsla á sviði flugafgreiðslu

er kostur. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.

Sótt er um störfin rafrænt á airportassociates.com

Umsóknarfrestur er til 30. janúar 2014.

Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu.

Meðal viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon, MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.

Eftirtalin störf eru í boði:

Page 22: 2 tbl 2014

fimmtudagurinn 16. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR22

-íþróttir pósturu [email protected]

LEIKFÉLAG KEFLAVÍKUR KYNNIR

ALMENNUR FÉLAGSFUNDIR ÞAR SEM VORVERKEFNI LK, ÁVAXTAKARFAN,

VERÐUR KYNNT.

FIMMTUDAGINN 16.JAN KL.20:00ALLIR 16 ÁRA OG ELDRI SEM HAFA ÁHUGA ALLIR 16 ÁRA OG ELDRI SEM HAFA ÁHUGA

Á AÐ TAKA ÞÁTT Í EINHVERJU TENGDU UPPSETNINGUNNI VELKOMNIR.

FEIKNAFJÖR OG GLEÐI FRAMUNDAN Í FRUMLEIKHÚSINU.

NÁNARI UPPLÝSINGAR Í SÍMA 421-2540

Nú styttist óðum í að Kefl-víkingar sjái stórskyttuna

Magnús Gunnarsson aftur á fjölum TM-Hallarinnar en kapp-inn er óðum að ná sér af meiðslum sem hafa hrjáð hann frá því um miðjan október. Magnús hyggur á endurkomu í leiknum sem allir bíða eftir, gegn erkifjendunum í Njarðvík í lok mánaðar.Magnús varð fyrir því óhappi að handarbrotna og hefur hann fylgst með góðu gengi Keflvíkinga af bekknum. Þrátt fyrir að Kefl-víkingar hafi aðeins tapað einum leik í deildinni til þessa þá sér Magnús alltaf pláss fyrir bætingu. „Þetta hefur gengið fínt bara. Við töpuðum stórum leik gegn Grinda-vík í bikarnum og svo á móti KR í deildinni. Ég mun svo væntanlega koma með aukna breidd inn í liðið. Ég þarf ekki að skora mikið, heldur bara opna fyrir hina og hitta úr fríu skotunum, ef ég fæ þau,“ segir Magnús en hann vonast til þess að endurkoma hans hjálpi þeim að komast á toppinn. „Við viljum vera númer eitt og erum enn á þeirri braut,“ segir fyrirliðinn.Njarðvíkingar koma í heimsókn í TM-Höllina þann 27. janúar og Magnús stefnir á að ná þeim leik. Hann hefur haldið sér við í meiðsl-unum með því að gera þolæfingar og skokka á hlaupabretti en þrátt fyrir það er hann ekki í leikformi. „Ég er í sæmilegu standi. Það er auðvitað allt öðruvísi að hlaupa á

bretti en á vellinum. Ég hef þyngdst um 1.4 kíló síðan ég meiddist, það tel ég bara vera lítið miðað við mig og þá staðreynd að hafa verið frá í þrjá mánuði.“Nú um helgina fær Magnús loksins að handleika bolta en hann fór í að-gerð fyrir skömmu þar sem pinnar voru fjarlægðir úr hönd hans. Hann hefur litlar sem engar áhyggjur af því að miðið verði í lagi þegar hann snýr aftur. „Það er ekki eitt-hvað sem ég hef áhyggjur af, enda frábær skytta. Það er aðallega spilaformið, það gæti tekið nokkra leiki,“ en Magnús útilokar ekki að spila með liði Keflavík-B í bikarnum gegn ÍR, en sá leikur f e r f r a m á milli 18.-20. janúar.

Styðja hvort annað í erfiðum meiðslum

- búið að vera ömulegtFyrir íþróttamenn getur það tekið vel á andlegu hliðina að vera lengi frá vegna meiðsla. Magnús stendur ekki einn í meiðslum sínum en kærastan, Grindvíkingurinn Pá-lína María Gunnlaugsdóttir, hefur einnig verið að glíma við meiðsli á hné í nokkurn tíma. „Þetta er búið að vera ömulegt. Hún er á fullu í endurhæfingu og við verðum bar að bíða og sjá hvort hún spili meira á þessu tímabili.“ Magnús segir

Styttist í endur-komu MG10- Magnús Gunnarsson um meiðslin hjá honum og Pálínu

að það sé nokkuð skrýtið að þau sé bæði meidd núna á sama tíma. „Hún var og er enn mjög dugleg að styðja mig og hjálpa mér and-lega. Ef ég hefði hana ekki þá veit ég ekki hvernig þetta væri. Núna undanfarið hefur það svo verið mitt hlutverk að hjálpa henni. Hún hefur stutt mig svakalega mikið og vonandi næ ég að gera það sama fyrir hana.“

Um fátt er meira rætt þessa dagana en handbolta.

Þegar íslenska landsliðið keppir á stórmóti breytast Íslendingar í bandbrjálaðar handbolta-bullur sem sitja með hjartað í buxunum fyrir framan sjón-varpið á meðan liðið leikur. Þrátt fyrir að Suðurnesin verði seint talin vagga handboltans þá er hér blómlegt starf sem fram fer í Reykjanesbæ. Þrátt fyrir að meistaraflokkur HKR sé ekki lengur starfandi þá leika um 80 ungmenni með yngri flokkum liðsins.Guðfinnur Örn Magnússon er þjálfari hjá félaginu en hann segir að liðið sé með lið í öllum flokkum og vel gangi hjá krökk-unum. Þrátt fyrir að leggja hafi þurft meistaraflokk niður sl. haust þá sé stefnt á að endurvekja hann árið 2016. „Þá höfum við hugsað okkur að vera með lið í 1. deild sem yrði skipað uppöldum heimamönnum.“Um sl. helgi fór fram minningar-mót Guðmundar Steinssonar.

Guðfinnur segir að vel hafi til tekist. Keppendur voru á bilinu 80-90 talsins og á öllum aldri. Gamlar kempur mættu til leiks og spreyttu sig m.a. gegn ungum iðkendum. 13 strákar úr 4. flokki HKR og þrír fullorðnir þreyttu svo dómarapróf samhliða mót-inu. Tekið var bóklegt próf hjá þekktu dómurunum og Suður-nesjamönnunum, Hafsteini Ingi-bergssyni og Gísla Jóhannssyni. Allir stóðust prófið en verklega prófið var svo framkvæmt með því að dæma leiki mótsins. Þegar stórmót eru í gangi þá kviknar ávallt meiri áhugi á íþróttinni að sögn Guðfinns. „Eftir því sem gengur betur hjá landsliðinu verður áhuginn meiri og fleiri koma að prófa. Við erum með fríar æfingar fyrir 1.- 6. bekk allan veturinn og hjá eldri krökk-unum er frítt í janúar á meðan EM er í gangi. Allir eru vel-komnir og það er aldrei of seint að byrja að æfa,“ segir þjálfarinn að lokum.

Minningarmót Guðmundar Steinssonar tókst vel til- Stefnt á 1. deildarlið í handboltanum árið 2016

„Núna undanfarið hefur það svo verið mitt hlutverk að hjálpa henni. Hún hefur stutt mig svakalega mikið“MEIÐSLAPAR!

www.vf.isLESTUR

VINSÆLASTI FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM

+ 83%

Page 23: 2 tbl 2014

– Er hraðlest á milli Keflavíkur og Reykjavíkur aðeins spurning um tíma?

– Hverju myndi hún breyta fyrir samfélagið á Suðvesturlandi?

– Hvaða þýðingu hefði hún fyrir þróun innanlandsflugs á Íslandi?

– Hvað kostar framkvæmdin og hvernig yrði hún fjármögnuð?

– Hverjir væru tilbúnir að leggja fjármagn í verkið?

– Gæti það borgað sig upp á nokkrum árum?

Runólfur Ágústsson ráðgjafi fjallar um möguleika háhraðalestar á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur á hádegisfyrirlestri í boði Kadeco, þriðjudaginn 21. janúar kl. 12.00–12.45 í Offiseraklúbbnum, Grænásbraut 619.

Keflavíkurhraðlestin: Fjarlægur draumur eða forgangsverkefni?

Hádegisfyrirlestur í Offiseraklúbbnum þriðjudaginn 21. janúar kl. 12.00

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.asbru.is

15 mínútna hraðferð milli KEF og REY?

PIPA

R\TB

WA

· S

ÍA ·

14

01

56

Fundurinn um Keflavíkurhraðlestina er hluti af þriðjudags­fyrirlestraröð Kadeco, Geopark, Heklunnar, Keilis og Markaðsstofu Reykjaness.

Komdu með í háhraðaferð inn í framtíðina!

Page 24: 2 tbl 2014

vf.isvf.is

FIMMTUDAGURINN 16. JANÚAR 2014 • 2. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

VIKAN Á VEFNUM

Suðurnejamenn láta ekki sitt eftir liggja á samfélags-

miðlunum. Við á Víkur-féttum munum framvegis birta það helsta sem ber á

góma á Facebook og Twitter hjá Suðurnesjamönnum. Hægt er að merkja þína

stöðuuppfærslu með #vikurfrettir á facebook, Twitter eða Instagram ef þér liggur eitthvað á

hjarta, og Víkurfréttir sjá um að koma því til skila.

Valdimar GudmundssonÉg var ekkert brjál-æðislega spenntur fyrir handboltanum,

missti af síðasta leik og fattaði ekki fyrr en bara rétt áðan að Ísland væri að spila núna og var að kveikja á Rúv. Ég breyttist í slefandi brjálaða handbolta-bullu á ca 30 sekúndum.

Björgvin Ívar BaldurssonJess, listamanna-launin tilkynnt. Nú er bara að halla sér

aftur og sjá þjóðina skiptast í tvo flokka. Þá sem tjá sig með endaþarminum og hina.

Óli GeirÉg er staddur í Tæ-landi eins og er því ég er að fara DJ'ast Bangkok og í Filips-

eyjum. Ég mun koma fram hér á 4 giggum, smá Asíu túr í gangi. Ég er í smá menningarsjokki hérna, mitt fyrsta skipti. Mun pósta myndum á næstunni til að leyfa ykkur að fylgjast með.

Ernalind Teitsdóttirpabbi: "nei, Bono bara ennþá með flugeldagleraugun!"

#haaahaha #gottdjók #gol-denglobes

Sara Björnsdottirég er bara nokk sátt með kanann i kvennaliðinu hjá umfn:)

Eva Rún HelgadóttirGefum henni bara 10 þús því þetta gæti endað illa....

Samt halda allir að hún sé með 100þús í umslaginu #stupid

Helgi Már VilbergssonÞað er eins og tón-listarsmekkur hand-boltamanna sé 10

árum eftir á! #EM #Emruv

www.vf.is

LESTURVINSÆLASTI

FRÉTTAMIÐILL Á SUÐURNESJUM

+

83%

HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ ÞAÐ HEITASTA Á

SUÐURNESJUM Í DAG?HOT YOGA Í SPORTHÚSINU.

Flugvallarbraut 701 | 235 Reykjanesbæ | 421-8070 | www.sporthusid.is

Ath. Skráning í Hot Yoga veitir þér fullan aðgang að aðstöðu og opnum hóptímum hjá Sporthúsinu.

Þú getur byrjað þegar þér hentarTaktu 4 vikna áskorun í Hot Yoga 14.900 kr.

eða komdu í áskrift (6 mán. 10.900 kr. eða 12 mán. 7.490 kr.).

Ertu stíf/-ur?, eru eymsli í hnjám eða baki? Þá er Hot Yoga málið fyrir þig.

HotYoga eykur liðleika, styrk og vellíðan.

Komdu í Sporthúsið í eina alvöru HotYoga salinn á Suðurnesjum

Nú geta Hot Yoga iðkendur loksins stundað alvöru Hot Yoga í sal sem útbúinn er sérstöku hitakerfi sem hitar salinn upp í 37-40°C á auðveldan hátt. Með þessu

móti komast iðkendur Hot Yoga dýpra og auðveldar í yoga stöðurnar.