ingvar sigurgeirsson

27
Ingvar Sigurgeirsson Spjall við kennara Fjölbrautaskóla Snæfellinga Námsmat í deiglu

Upload: irma

Post on 19-Jan-2016

38 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

Ingvar Sigurgeirsson. Spjall við kennara Fjölbrautaskóla Snæfellinga Námsmat í deiglu. Dagskrá. Inngangur: Á litamál og hugtök Námsmat í framhaldsskólum hér á landi – ákvæði námskrár Efst á baugi: Þýðing og þáttur prófa Efst á baugi: Leiðsagnarmat - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Ingvar Sigurgeirsson

Ingvar Sigurgeirsson

Spjall við kennara Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Námsmat í deiglu

Page 2: Ingvar Sigurgeirsson

Dagskrá Inngangur:

Álitamál og hugtök Námsmat í framhaldsskólum hér á landi –

ákvæði námskrár Efst á baugi:

Þýðing og þáttur prófa Efst á baugi:

Leiðsagnarmat Óhefðbundið námsmat, stöðugt mat,

einstaklingsmiðað námsmat

Page 3: Ingvar Sigurgeirsson

Vandi• Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum

• Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhalds-skólum hér á landi!

• Raunar er sáralítið vitað um framhaldsskólann yfirleitt!!!

• Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG)

Page 4: Ingvar Sigurgeirsson

Bakgrunnur• Gróska í kennslu- og námsmatsfræðum – einnig

hér á landi• Gerjun og deilur: Bandaríkin (prófin /

óhefðbundið námsmat, England (prófin / leiðsagnarmat)

• Margir grunnskólar hér á landi vinna nú skipulega að þróun námsmats: Laugalækjarskóli, Ingunnarskóli, Norðlingaskóli, Salaskóli og margir fleiri

• Áhugaverðar rannsóknir á námsmatsaðferðum í grunnskólum: Erna Ingibjörg Pálsdóttir, Rúnar Sigþórsson

Page 5: Ingvar Sigurgeirsson

Námsmatshugtakið

Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti.

Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s.s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður.

Óformlegt námsmat – formlegt námsmat

Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til

annarra

Page 6: Ingvar Sigurgeirsson

Hver eru helstu námsmatsverkin?

Hversu stór hluti af starfi framhaldsskólakennara er

námsmat?

Page 7: Ingvar Sigurgeirsson

Mikilvægar spurningar?• Hvernig er námsmati í framhaldsskólum yfirleitt

háttað?• Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum

árangri?• Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á?• Er vel staðið að námsmati? Hvað þarf helst að

bæta eða þróa? Hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat?

• Hvernig ber að skilja ákvæði aðalnámskrár? Á hvaða námsmatsaðferðir ber að leggja áherslu samkvæmt námskránni?

• Á hverju á að byggja þróun námsmats?

Page 8: Ingvar Sigurgeirsson

Ákvæði Aðalnámskrár 1999Tilgangur námsmats er að kanna að hve

miklu leyti nemandi hefur tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.  

Page 9: Ingvar Sigurgeirsson

Ákvæði Aðalnámskrár 1999: Náttúrufræði

Námsmat skal byggjast á lokamarkmiðum með náttúrufræðinámi er varða greinar

námssviðsins, vinnubrögð og færni, svo og skilning á hlutverki og eðli náttúruvísinda

kröfum sem gerðar eru í markmiðum einstakra áfanga Þess skal gætt að námsmat taki til allra þátta námsins. Með því er átt við að auk þekkingarmarkmiða beri að meta færni-, skilnings- og viðhorfamarkmið á margvíslegan hátt auk framfara, vinnulags og hugkvæmni nemandans.

Mikilvægt er að matið sé upplýsandi fyrir nemendur og foreldra og um leið hvetjandi. Auk mats á stöðu nemenda er æskilegt, þar sem það á við, að matið feli í sér upplýsingar um leiðir sem nemandinn getur farið til að bæta stöðu sína. Sú vitneskja, sem námsmatið veitir, hjálpar einnig skólastjórnendum við námsskipan og kennurum til nýrrar markmiðssetningar og getur oft gefið tilefni til breytinga á námsefni, niðurröðun þess á skólaárið og kennsluaðferðum.

Page 10: Ingvar Sigurgeirsson

Ákvæði Aðalnámskrár 1999: Samf.grNámsmatið skal vera í samræmi við markmið náms eins og þau eru sett fram í aðalnámskrá og skólanámskrám …Aðferðir til námsmats eru margvíslegar og varða bæði tímasetningu þess, viðfang og vinnulag. Sem dæmi má nefna

– símat á öllum námstímanum – lokapróf að námsáfanga loknum, annaðhvort munnleg eða skrifleg – mat á verkefnum af ýmsu tagi – mat á vinnuferli við verkefnin

Í samfélagsgreinum geta allar þessar leiðir átt við - og fleiri til - allt eftir markmiðum náms hverju sinni. Ef t.d. er ætlast til þess að nemendur tileinki sér ákveðinn þekkingarforða getur einfalt skriflegt próf verið viðeigandi. Ef unnið er að stórri ritgerð í námsáfanga hlýtur mat á henni að vega þungt. Ef lögð er áhersla á vinnubrögð við gerð slíkrar ritgerðar þarf að meta vinnu nemenda sérstaklega en ekki lokaafurðina eingöngu. Þetta má gera með því að fylgjast með vinnunni milliliðalaust eða með því að nemendur haldi dagbók (leiðarbók). Ef markmiðið er að nemendur þjálfist í að tjá sig eða rökræða mál þarf að meta tjáninguna sjálfa og rökræðuna. Í öllum tilvikum er nauðsynlegt að nemendum sé ljóst fyrir fram hvað og hvernig eigi að meta og að niðurstöðurnar séu sundurliðaðar og skýrar. Á fyrri stigum náms í samfélagsgreinum eru skrifleg próf oft uppistaðan. Rétt er að gæta þess engu að síður að öll markmið séu metin svo að t.d. sköpun, sjálfstæði, rökræða og önnur tjáning fái einnig rými. Til þessa getur verið gagn að því að meta munnlega frammistöðu, framsetningu efnis eða lítil sjálfstæð verkefni. Að jafnaði eykst hlutfall verkefna eftir því sem lengra dregur í náminu.

Page 11: Ingvar Sigurgeirsson

Tilgangur námsmats!?

Námshvatning – aðhald

Upplýsingar til nemenda, foreldra, annarra

Vísbendingar til kennara

Greina og meta nám eða kennslu

Gæðaeftirlit

Gera tilgang námsins ljósari

Val og flokkun á fólki

Page 12: Ingvar Sigurgeirsson

Önnur sjónarmið um tilgang námsmats

(hin dulda námskrá)

Búa nemendur undir lífsbaráttuna

Halda aga

Umbuna eða refsa?

Styrkja vald kennarans?

Ógnun

Eyða tíma!?

Page 13: Ingvar Sigurgeirsson

Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ?

... er flókið það er afdrifaríkt

fyrir þróun sjálfsmyndar fyrir starfsval og starfsframa

... reynir mjög á sanngirni og réttlætiskennd ... tengist ólíkum viðhorfum ... tengist fordómum okkar ... manneskjan er ótraust mælitæki!

Þegar grannt er skoðað: Hvers vegna vefst námsmat svo mikið fyrir okkur ?

Page 14: Ingvar Sigurgeirsson

Rannsókn Lucas (1971)

• Ein úrlausn fékk sömu einkunn allra prófdómaranna.

• 19 úrlausnir fengu tvær einkunnir

• 12 fengu þrjár einkunnir

• 12 úrlausnir fengu ýmist 0 eða 3

• Ein fékk bæði 0 og 4

Lucas (1971) lét 6 prófdómara meta 44 úrlausnir á stúdentsprófi í líffræði. Gefnar voru einkunnir á bilinu 0-6:

Page 15: Ingvar Sigurgeirsson

Nokkur mikilvæg námsmatshugtökGreinandi mat:

Til að greina námserfiðleika (Diagnostic Assessment) Stöðumat:

Hvar stendur nemandinn?

(Placement Assessment)Leiðsagnarmat: Til að bæta námið

(Formative Assessment)Heildarmat (yfirlitsmat): Til að meta námsárangur þegar

kennslu er lokið (Summative Evaluation)

Símat: Stöðugt námsmat á námstíma

(Continuous Assessment / Ongoing Assessment)

Page 16: Ingvar Sigurgeirsson

Leiðsagnarmat (lykilhugtak í einstaklingsmiðuðu námi)

• Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn)

• Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni fram á þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur

• Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati

• Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilja markmiðin)

(Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Page 17: Ingvar Sigurgeirsson

Endurgjöf

„Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar um frammistöðu nemanda; hrósar því sem vel er gert eða athyglisvert, bendir á bresti og sem flestar færar leiðir til úrbóta.“ (Rowntree, 1983, 29).

Page 18: Ingvar Sigurgeirsson

Álitamál álitamálanna!

Hvaða hlutkverki gegna próf í námsmati?

Hvaða hlutverki eiga þau að gegna?

Page 19: Ingvar Sigurgeirsson

Dæmi um mikilvæga þætti sem erfitt er að

meta með skriflegum kunnáttuprófum

Vinnuvenjur

Umræður, upplestur, tilraunir, tjáning, vinnubrögð, leikni í samskiptum

Leikni

Umgengni, ástundun, iðni, frumkvæði, áræðni, úthald

Félagslegviðhorf

Tillitssemi, umhyggja, löngun til að stuðla að góðum samskiptum

Viðhorf til þekkingar

Áhugi

Starfsgleði

Sjálfsmynd

Forvitni, opinn og spurull hugur

Áhugi

Ánægja – gleði

Virðing, geta tekið gagnrýni

Page 20: Ingvar Sigurgeirsson

Meginsjónarmið prófandstæðinga Próf mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða

Próf er einangrað skólafyrirbæri sem á sér fáar hliðstæður annars staðar í samfélaginu

Ef meginhlutverk skólans er að undirbúa nemendur undir líf og starf í lýðræðis-þjóðfélagi ætti námsmat að líkjast þeim matsaðferðum sem almennt eru notaðar í lífi og starfi

Námsmat á að vera samofið öðru skólastarfi falla að því með eðlilegum hætti

Page 21: Ingvar Sigurgeirsson

Hvað er próf?

1. Verkefni sem ætlað er að kanna þekkingu nemenda eða leikni

2. Lagt fyrir á tilteknum tíma, leyst innan tímamarka eftir ákveðnum reglum

3. Nemendur fá sömu (sambærileg) verkefni4. Nemendur búa sig undir prófið án þess að vita

nákvæmlega um hvað verður spurt5. Verkefnið er leyst í viðurvist eftirlitsmanns sem aðeins

má veita takmarkaða eða jafnvel enga aðstoð 6. Nemendur mega ekki hjálpast að7. Yfirleitt má ekki styðjast við heimildir eða gögn

Page 22: Ingvar Sigurgeirsson

Aðrar gerðir prófa (Alternative Tests)

☺„Allir hjálpast að “- prófið☺ Tíu-prófið

☺ Nemendum leyft að hafa með sér gögn / heimildir (dæmi „svindlpróf“)

☺ Prófverkefni / spurningar gefið upp með fyrirvara

☺ Nemendur fá nokkra daga til að skila úrlausn (heimapróf)

☺ Samvinnupróf

Page 23: Ingvar Sigurgeirsson

Efst á baugi í námsmati Leiðsagnarmat (Formative Assessment)

„Rauntengt“ námsmat (Authentic Assessment) námsmat Óhefðbundið námsmat (Alternative Assessment) Frammistöðumat (Performance-based Assessment eða Performance

Assessment) Portfolio Assessment: Námsmöppur, verkmöppur, sýnismöppur Önnur hugtök sem oft eru notuð: Differentiated Asssessment

(einstaklingsmiðað námsmat), Multidimensional eða Multiple Assessment (margþætt námsmat), Holistic Assessment (heildstætt námsmat)

Page 24: Ingvar Sigurgeirsson

Hvaða orð á að nota á íslensku?• Stöðugt, alhliða ...?

• Heildstætt ...?

• Fjölþætt ... margþætt ...?

• Símat?

• Einstaklingsmiðað ...?

Page 25: Ingvar Sigurgeirsson

Einstaklingsmiðað námsmat

• Gengið er út frá getu og hæfni hvers nemanda• Matið nær til allra flokka markmiða• Matið er stöðugt allan námstímann og reynt er að

flétta með eðlilegum hætti inn í námið• Námsmatsverkefnin sjálf eiga að hafa

kennslufræðilegt gildi• Áhersla á uppbyggjandi endurgjöf (leiðsögn)• Matið nær jafnt til aðferða og afurða (úrlausna)• Byggt er á margvíslegum gögnum og sjónarhornum• Áhersla á virka þátttöku nemenda, sjálfsmat,

jafningjamat

Page 26: Ingvar Sigurgeirsson

Helstu námsmatsaðferðir Skipulegar athuganir

Mat á frammistöðu

Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“)

Greining og mat á verkefnum / úrlausnum

Dagbækur, leiðarbækur

Sjálfstæð verkefni

Sjálfsmat nemenda

Jafningjamat

Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir

Námshátíðir, upp-skeruhátíðir (Celebration of Learning, Learning Celebrations)