veidislod 6. tbl 2011
DESCRIPTION
Tímaritið Veiðislóð kemur nú út í sjötta skiptið. Sjötta blað af sex sem tilraunin okkar samanstendur af. Flest bendir til þess að við höldum þessu stússi áfram á einn veg eða annan. Nú er kominn desember og stutt til jóla. Veturinn genginn í garð, en þó byrjar daginn að lengja aftur innan skamms og um áramótin eru aðeins þrír mánuðir þar til að stangaveiðin hefst á ný. Þó að tiltölulega fáir stundi hinar vosbúðarlegu vorveiðar í apríl, þá fylgjast eflaust flestir með gangi mála og bíða enn spenntari eftir „sínum tíma“.TRANSCRIPT
![Page 1: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/1.jpg)
tímarit um sportveiði og tengt efniVEIÐISLÓÐ
6. 2011
Gleðilega hátíð
![Page 2: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/2.jpg)
![Page 3: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/3.jpg)
frá ritstjórn
Tímaritið Veiðislóð kemur nú út í sjötta skiptið. Sjötta blað af sex sem tilraunin okkar samanstendur af. Flest bendir til þess að við höldum þessu stússi áfram á einn veg eða annan. Nú er kominn desember og örstutt til jóla. Veturinn genginn í garð, en þó byrjar daginn að lengja aftur innan skamms og um áramótin eru aðeins þrír mánuðir þar til að stangaveiðin hefst á ný. Þó að tiltölulega fáir stundi hinar vosbúðarlegu vorveiðar í apríl, þá fylgjast eflaust flestir með gangi mála og bíða enn spenntari eftir „sínum tíma“.
Nú spá menn í hvernig 2012 verði og það eina sem við myndum voga okkur að segja er: Það verða án vafa margar nýjar veiðisögur á kreiki. Margar frásagnir af ógleymanlegum dögum, og eflaust einnig margar af vatnsleysi, flóðum og fiskleysi. Eða með öðrum orðum: Allt við það sama! Hér breytist ekkert. Þetta er veiðiparadís af bestu gerð, en það er aldrei á vísan að róa. Ekkert gefið.
Við óskum lesendum okkar, og raunar landsmönnum öllum, gleðilegra hátíða og megi menn upp til hópa koma vel undan vetrinum. Við þökkum hér með fyrir okkur fyrir árið 2011.
Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrot
Jón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif.
6 Stiklað á stóru Hvað hefur helst verið að gerast í bransanum síðan að við komum síðast út?
8 Veiðisaga Sögur frá sumri eru sumar hverjar skrýtnar og skemmtilegar og hér er ein af veiðimanni sem lenti í nokkru mótlæti.
12 Bog-/Skotveiði Við förum vestur um haf með Dúa Landmark kvikmyndagerðarmanni sem fór hjartarveiðar með boga og myndavélar að vopni.
22 Veiðistaðurinn Mýrarkvísl er í Reykjahverfi í Suður Þingeyjarsýslu. Marg-slungin lax- og urriðaveiðiá sem tiltölulega fáir þekkja, en hefur samt ótrúlega marga kosti til brunns að bera.
32 Fluguboxið Það er mikilvægt að okkar dómi að hnykkja á nýj-ungum í fluguhnýtingum og birtum því uppskrift Nils Folmers Jorgensen að HKA/Bismó afbrigðinu af Sunrey Shadow.
34 Lífríkið Þjórsárvirkjanirnar væntan-legu eru vægast sagt umdeildar. Orri Vigfússon hefur „fyrir hönd laxfiska“ tekið þetta mál upp á arma sína og segir hér frá því sem gæti gerst með fiskistofna Þjórsár ef að virkjunar-frammkvæmdir verða að veruleika.
42 Ljósmyndun Að þessu sinni eru tveir ungir Danir höfundar að galleríinu. Þeir heita David Thormar og Peter Kirkeby.
64 Einu sinni var Árið 1929 kom út bókin Laxa- og silungaklak á Ís-landi eftir Þórð Flóventsson. Í stuttu máli þá er bókin alger perla sem veitir innsýn í þennan heim frá því fyrir tíma flestra sem lesa þessar línur. Við birtum kafla úr bókinni, kafla sem fjallar um gildi þess að merkja laxa og silunga...
68 Veiðihundar – Pointer Við ræðum við Ásgeir Heiðar alhliða veiði- hunda- og hestamann um hina óborganlegu Pointer veiðihunda sem hann flutti til landsins manna fyrstur. Hundar Ásgeirs hafa sópað að sér verðlaunum hér á landi síðustu árin.
72 Útgáfumál Jólin 2011 verða lengi í minnum höfð fyrir þann furðulega fjölda bóka sem koma út og höfða til veiði-manna og útivistarfólks almennt.
78 Villibráðareldhúsið Að þessu sinni fáum við vín-spekinginn til að mæla með vínum sem fara vel með villibráð
82 Græjur og fleira Hér er margt að finna sem gæti hentað í jólapakkann frá hinum ýmsu versl-unum sem auglýsa í blaði voru. Frásagnir af spenn-andi nýjungum og öðrum sniðugheitum.
efnið
![Page 4: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/4.jpg)
![Page 5: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/5.jpg)
Veiðiflugan er veiðibúðin þín í hjarta austurlandsKynntu þér úrvalið og verðin á www.veidiflugan.is
Sendum frítt um allt land.
Veidiflugan.is
Veiðiflugan er veiðibúðin þín í hjarta austurlandsKynntu þér úrvalið og verðin á www.veidiflugan.is
Sendum frítt um allt land.
Veidiflugan.is
Veiðiflugan er veiðibúðin þín í hjarta austurlandsKynntu þér úrvalið og verðin á www.veidiflugan.is
Sendum frítt um allt land.
Veidiflugan.is
![Page 6: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/6.jpg)
flokkurstiklað á stóru
6 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Síðan að við komum síðast út hefur eitt og annað gengið á. Ríflega 111 milljón króna tilboð, án kostn-aðar og vísitöluhækkana, barst hæst í Þverá/Kjarrá og óttast margir að það sé vísbending um það sem koma skal í nánustu framtíð í útleigu á þekktustu laxveiðiánum. Áður þótti mörgum nóg um það sem boðið var í Laxá á Ásum. En allt um það, markaður-inn ræður för í þessum efnum sem endranær og sem betur fer er Ísland auðugt af veiðimöguleikum ef einhverjum finnst sér hafa verið þrýst út af borðinu.
Nú, veiðar gengu sinn gang. Sjóbirt-
ingsvertíðinni lauk og má segja að oft
hefur hún gengið betur. Tungulækur
stóð fyrir sínu, en aðrar ár frekar ekki,
nema kannski að menn töldu sig sjá
mikil batamerki á Eldvatni í Meðal-
landi. Það vakti áhyggjur manna að sjá
óvenjulega mikið um steinsugubit á
sjóbirtingum þetta haustið. Það voru
ekki vísindalegar athuganir og mæl-
ingar heldur tilfinning manna, enda
kom fyrir að í heilu hollunum voru allir
fiskar bitnir og margir á fleiri stöðum en
einum.
Veiðimálastofnun birti bráðabirgðatölur
sem staðfestu að 2011 var eitt besta lax-
veiðisumarið frá upphafi talninga. Það
sjötta besta til að vera nákvæmari.
Skotveiðin gekk sinn gang. Menn sóttu
sín hreindýr og gæsaveiði gekk vel.
Mikil reiði var meðal rjúpnaskytta þegar
mönnum var úthluta níu dögum til
að ganga til rjúpna, fjórar helgar plús
einn föstudagur. Þetta „mikla svigrúm“
nýttist mönnum misjafnlega, því veður
voru misjöfn og sums staðar hlýindi og
snjóleysi. Víða var þó haft á orði að tals-
vert væri af fugli og yfir höfuð gengu
veiðar vel. Ekki hvað síst á austanverðu
landinu.
Menn fengu fjórar helgar til að ganga til rjúpna og veðurfar spillti hluta tímans eins og vænta mátti.
Stefán Magnússon veiddi þennan 16 punda risabirting í Tungufljóti. Mynd Guðmundur Bergkvist.
Kastað í kaðalstaðahyl í Þverá, en í ána bárust afar há tilboð.
![Page 7: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/7.jpg)
Guðmundur Bergkvist undir regnboga með tíu punda birting úr Tungufljóti.
![Page 8: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/8.jpg)
8 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Allt er þegar þrennt ersaga frá sumri
Ljósmynd: Ríkharður Hjálmarsson
![Page 9: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/9.jpg)
9
Allt er þegar þrennt ersaga frá sumri
Hér segir af veiðimanni sem verður að teljast hafa verið seinheppinn á nýliðinni vertíð. Við þekkjum þennan náunga. Hittum hann af og til og jafnan lumar hann á veiðisögu fyrir okkur. Oftast af sjálfum sér því hann fer oft og veiðir gjarnan vel. Hann er miklu meira fyrir silungsveiðarnar, segist fá miklu meira út úr frelsinu sem því fylgir og sér líði jafn framt betur hið innra hafandi eytt margfalt minni pening í stússið sitt. Hann er ekki fyrir sviðsljósið þessi, og baðst undan nafnbirtingu, ef við ætluðum á annað borð að segja af honum sögur. Við virðum það að sjálfsögðu, en hér kemur brot af
sumrinu hans 2011.
Þingvallavatn er einn af hans aðal
stöðum. Hann á sér ekkert sérstakt
eftirlætissvæði þar, reynir þar víða og
fer það gjarnan eftir því hvar mest er
um aðra veiðimenn, hvar hann endar
sjálfur. En snemma í júlí var hann
kominn eldsnemma morguns, um
fimmleytið, í Lambhagann og hugsaði
sér gott til glóðarinnar, enda veðrið með
eindæmum fallegt. Bjartur himinn og
kyrrðin alger. Vatnið einn samfelldur
spegill. Ekkert rauf kyrriðina nema eitt-
hvert fuglatíst. Óðinshani sem hann
truflaði. Fyrir utan hann sveimuðu
bleikjur. Sumar stórar og hann skipti
nokkrum sinnum um flugu. Hann var
einn og naut stundarinnar. Loks tók
fiskur og var það ein af þeim stóru sem
hann sá. Bleikjan lét strax ófriðlega,
strikaði af hörku og reif út línu aftur og
aftur. Okkar maður naut bara stundar-
innar, fylgdist með stöng sinni dúa upp
og niður og smátt og smátt tók hún
sinn toll af þreki bleikjunnar stóru. Þetta
var svaka fiskur, 5 til 6 punda og hún
var örstutt frá háfnum þegar veiði-
maður sá sér til hryllings vindhnútinn.
Sekúndubroti síðar skyldu leiðir fyrir
tilstilli þessa sama vindhnúts!
Þótt hér sé um mikinn reynslubolta
í veiðinni að ræða, þá sá hann meira
eftir þessum fiski en mörgum öðrum
sem hann hefur misst í gegnum tíðina.
Ekki hvað síst vegna þess að einhvern
veginn virtust töfrar morgunsins vera
rofnir. Það kulaði, hann hætti að sjá
bleikjurnar sveima stutt frá sér og það
var sama hvað hann bauð upp á, eng-
inn fiskur snerti fluguna hjá honum.
Þingvallavatn
![Page 10: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/10.jpg)
10 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Nokkru síðar var komið að því að hanka
upp og halda til vinnu. Okkar maður
rölti hugsi og er hann átti nokkra
tugi metra ófarna að bíl sínum hóf
geitungur allt í einu að áreita hann.
Smellti sér á plastið á polaroidgleraug-
unum. Síðan tveir og síðan þrír....og svo
heill sveimur, 30-40 flugur, suðandi í
kringum hausinn á honum og klárlega
reiðar. Hann kveikti á perunni, hann
hlaut að hafa stigið ofan á holugeitun-
gabú í kjarrinu sem hann hafði öslað í
gegnum!
Nú var málið að taka til fótanna og
hann hljóp sem mest hann mátti þessa
30-40 metra, baðandi út öllum öngum,
og þakkaði hátt og í hljóði öllum
vættum Þingvalla í bak og fyrir að svo
stutt var í bílinn því flugurnar linntu
ekki eftirförinni og ró komst ekki á fyrr
en veiðimaðurinn hafði varpað frá sér
stönginni og skutlast inn í bíl. Stuttu
seinna voru geitungarnir á bak og burt
og stöngin var þá sótt út í móa, tekin í
sundur og ekið til byggða. Eina stungu
hafði hann fengið og taldi sig hafa
sloppið vel. Óhugurinn sem fyllti hann
eftir þessa árás var eiginlega miklu verri
heldur en sviði undan einni stungu.
Allt er þegar þrennt er nefndum við
þessa sögu. Þannig er nefnilega mál
vexti að næsti veiðitúr þessa vinar okkar
var planaður í Veiðivötn. Það fylgdi nú
aldrei sögunni við hvaða vatn næsti at-
burður átti sér stað, en allt um það, þá var
okkar maður að vaða nærrri einhverjum
hólma þegar himbrimi gerði skyndilega
harðan aðsúg að honum. Flugdrekinn
kafaði ógnandi hvað eftir annað að fót-
um okkar manns, sem hafði heyrt sög-
urnar um viðskipti himbrima og annarra
fugla, að goggur himbrimans væri svo
hvass að hann gæti veitt svöðusár. Það
var því ekkert annað að gera en að ösla
til lands, lemjandi frá sér með bæði háf
og stöng. Á ríflega hnédjúpu vatni rann
okkar maður og fór á hnén. Bleytti sig
rækilega og hruflaði hnéð, en komst á
lappir aftur og haltraði upp á þurrt. Him-
briminn spangólaði sigri hróasandi á
vatninu skammt undan, en okkar maður
hætti alfarið við veiðar í þessu vatni og
fór annað, blessunarlega af nógu að taka
í Veiðivötnum. Og sem betur fer, fór nú
að ganga betur. Á endanum veiddi okkar
maður vel, tæpa tuttugu væna urriða
ef við munum rétt og hrakförum hans
þetta sumarið var lolkið.....í bili a.m.k.
Við Þingvallavatn. Mynd Heimir Óskarsson.
![Page 11: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/11.jpg)
11
Það er ekki tilviljun að Sage flugustangirnar eru þær vinsælustu í úrvalsflokki flugustanga. Að margra mati eru flugustangirnar frá Sage þær bestu á markaðnum. Því mótmælum við ekki. Allar Sage flugustangir eru hannaðar og þróaðar af flugveiðimönnum og framleiddar í Seattle í Bandaríkjunum. Að kasta fyrir fisk og veiða með Sage er einstök upplifun. Allir fluguveiðimenn verða að eiga að minnsta kosti eina Sage stöng.
Allar Sage stangir eru með lífstíðarábyrgð frá framleiðanda!
VINSÆLASTA FLUGUSTÖNGIN. ÞAÐ ER EKKI TILVILJUN
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
“ONEtm” SERIES - Verð 109.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
Z-AXIS ROD SERIES - Verð 99.990,-Hröð stöng. Kröftug hleðsla sem auðveldar lengdar og nákvæmnisköst.
99 ROD SERIES - Verð 99.990,-Mið-hröð stöng. Djúp hleðsla. Sérhönnuð til að bera þungar flugur og túpur.
VXP ROD SERIES - Verð 74.990,-Mið-hröð stöng. Kraftmikil og fínleg stöng fyrir allar aðstæður.
FLIGHT ROD SERIES - Verð 59.990,-Mið-hröð stöng. Góð alhliða flugustöng.
VANTAGE ROD SERIES - Verð 39.990,-Mið-hröð stöng. Góð byrjendastöng á góðu verði.
“The ONE” er komin!BEST FRESHWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST SALTWATER ROD- International Dealer Show í New Orleans 2011
BEST ROD- Efftex 2011
![Page 12: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/12.jpg)
12 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Hjartarveiðar í Colorado
Best að veiða þegar tarfarnir eru graðastir!Margar eru freistingar skotveiðimanna þegar þeim
finnst úrvalið á Íslandi eitthvað takmarkað. Eigi menn
smá aur, þá er hægt að komast í spennandi veiðiskap
út um allan heim. Sumt er dýrara en annað, fáir vita
það betur en Dúi Landmark, kvikmyndagerðarmaður
og veiðimaður fram í fingurgóma, en hann hefur farið
um heim allann með tökuvélar sínar, stangir og byssur
og staldrað við bæði nær og fjær, eða allt frá Grænlandi
og til Kazakstan og Mongólíu. Hér ætlar hann hins
vegar að segja okkur frá hjartarveiðum í Colorado og
þar nota menn ekki riffla heldur boga.
bog/skotveiði
![Page 13: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/13.jpg)
13
Hjartarveiðar í Colorado
Best að veiða þegar tarfarnir eru graðastir!
Dúi Landmark
![Page 14: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/14.jpg)
bog/skotveiði
Dúi hefur um all nokkurt skeið starfað
mikið fyrir franska sjóvarpsstöð sem
heitir Seasons. Stöðin sérhæfir sig
í veiðiefni og er enginn kotrass svo
ómerkilegur að ekki sé kíkt þar eftir
sniðugri veiði. Dúi er einn af all nokkr-
um sem sjá stöðinni fyrir efni og hann
hefur m.a. tekið upp þætti fyrir stöðina
hér á landi. Í fyrra gerði hann t.d. þátt
um silungsveiði á Íslandi og vann það í
samvinnu við G&P, hina frönsku ferða-
skrifstofu sem Pétur Pétursson er í
samvinnu við um leigu á Vatnsdalsá,
Reykjadalsá í Reykjadal og Eldvatn í
Meðallandi, enda eru það vatnsföllin
sem fram koma í umræddum þætti.
Þá hefur hann gert þátt hér á landi um
gæsaveiðar. Því miður næst Seasons
ekki hér á landi.
„Oftast er ég ekki beint að veiða sjálfur
þó ég grípi af og til í stöng eða byssu.
Oftast er ég í hlutverki tökumannsins
og leikstjórans. Þá er það stöðin sem
velur með mér sérfræðinga á vissum
sviðum veiðinnar. Kannski einn mann
eða fleiri, eftir atvikum. Að þessu sinni
var verkefnið að veiða hjartardýr sem
heitir á ensku Elk og með mér í það
fór Gilles Remond, reyndur skot- og
bogveiðimaður. Þetta var um haustið í
fyrra og ferðinni var heitið til Colorado,
á risajörð sem liggur utan í Klettafjöll-
unum. Þar, í þéttu skóglendi, lifa þessir
hirtir. Veitt er um fengitímann og þarna
er óhemjufallegt og gaman að koma.“
Lagt á ráðin í búðunum.
![Page 15: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/15.jpg)
15
Dúi Landmark
Hvað geturðu sagt okkur um þessar veiðar?„Jú, það er gaman að kynnast þessum
heimi. Maður fer þarna bara út í mörk-
ina og leitar að bráð. Leyfið er fyrir eitt
dýr og það þarf að finna rétt dýr. Velja
það sem maður vill og reyna að komast
í færi við það. Þetta er gríðarlega krefj-
andi og spennandi því maður þarf að
komast í miklu meira návígi heldur en
ef maður væri með skotvopn við hæfi.
Færið má ekki vera undir 30 metrum og
helst minna, 10 til 20 metra. Þetta þýðir
algerlega kamóaða búninga. Hanskar
líka og andlitið málað. Síðan er um að
gera að læðast, fela sig, alls ekki má vera
vindur í bakið og það má ekki einu stíga
ofan á sprek eða grein, þá er tækifærið
farið. Hjá okkur var þetta 5-6 daga ferð
og allan tímann vorum við úti í skógi að
laumast og leita að dýrum. Dýrið náðist
á fimmta degi, fallegur tarfur.“
10-30 metrar, eru þessi dýr þá ekkert stygg?„Jú, þau eru það svo sannarlega, að öllu
jöfnu, en Bandaríkjamenn skipta vertíð-
inni í þrjá hluta og fá bogveiðimenn-
irnir að byrja. Það stafar af því að þá er
fengitíminn og tarfarnir hvað graðastir
og uppteknir í meira lagi. Þó þeir séu
varir um sig, þá er þetta sá tími sem
menn komast helst svona nærri þeim.
Á eftir bogveiðimönnunum koma
„hefðbundnir“ skotveiðimenn og loks
sérrvitur hópur sem vill veiða á fram-
hlaðninga, hálfgerðar antíkbyssur. En
þessi tími er alveg magnaður, þegar við
héldum út í skóg á hverjum morgni,
ómaði skógurinn allur í gredduöskrum
tarfanna. Stanslaus söngur og þarna
um allt voru beljurnar inni í rjóðrum,
bíðandi með blikkandi augnhár eftir því
að hetjurnar þeirra kæmu æðandi inn í
kjarrið til þeirra. Þegar við loks náðum
dýrinu hafði gædinn notað í fyrsta skipti
svokallað „decoy“ eða blekkingarmynd
sem hann renndi út og sýndi beljurass!
Hann sagðist að fyrra bragði ekki vera
þess viss að það myndi virka, en það
virkaði svo sannarlega, tarfurinn kom
í dauðafæri og það varð hans síðasta.
Menn vona auðvitað að dýrið falli stra
við fyrsta skot, en drepist það ekki strax
og það rýkur af stað, þá mega menn alls
ekki taka til fótanna á eftir því. Það á
að rölta í rólegheitum og rekja slóðina.
Þetta er úthugsað því ef menn stilla upp
hröðum eltingarleik þá brjálast dýrið og
hleypur svo langt í burtu að hugsanlega
finnst það aldrei aftur. En taki menn það
rólega þá róast dýrið venjulega þegar
það dregur af því. Á endanum heldur
það kyrru fyrir og blæðir út.“
Paradís fyrir krakkana!
![Page 16: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/16.jpg)
16 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Hvernig er aðbúnaðurinn, er gist í flottum veiðihúsum og eru margir veiðimenn í einu?„Við vorum í tjöldum, svona stórum
haldgóðum með gólfum og svoleiðis.
Það sem menn kalla gjarnan basecamp.
Það eru hjón sem reka þetta, fimmti
ættliðurinn á jörðinni sem er gríðarlega
víðfeðm. Þau eru líklega Írar að upplagi
og reka þetta alfarið á eigin forsendum.
Öll veiðistjórnun og utanumhald er til
mikillar fyrirmyndar. Karlinn sér um allt
saman og frúin eldar. Við vorum einir
þarna, Gilles, gædinn og svo ég, auk
hjónanna.“
Er þetta á einhvern hátt umdeild veiði?„Alls ekki. Þetta er hluti af lífsstílnum.
Þetta er meira krefjandi heldur en
veiðar með riffli og ef menn vilja hafa
þetta svona þá mega þeir það svo lengi
sem þeir fara eftir og virða reglurnar.
Af reglum má t.d. nefna, að lásboga-
veiði er bönnuð. Veitt er eingöngu með
hefðbundnum veiðibogum með hjóli
uppi til að strengja betur og styrkja.
Það er mið og sigti á þessum vopnum
og þetta eru hin ágætustu vopn. Ég var
nú ekki að veiða í þessum túr, en fékk
að skjóta af boganum og mér blandast
ekki hugur um að ef maður er í veiði,
þá mun maður hafa gaman að þessum
veiðiskap. Það hjálpar auðvitað með
viðhorfið að veiðunum er stýrt af skyn-
semi. Það er líka gaman að því að sjá
skilti utan á krám og veitingastöðum:
Hunters Welcome! Þá finnur maður að
þetta er viðurkenndur hluti af ferða-
mannaiðnaðinum og veitingahúsa-
eigendur vilja gjarnan fá veiðimenn í
heimsókn, þess vegna í veiðigallanum
á heimleið! Síðan taka menn þetta heim
með sér. Þar sem vorum við veiðar er
starfrækt vinnsluhús sem verkar pylsur
og reykir kjöt úr hjörtunum og skinnið
og hornin eru gerð klár fyrir viðskipta-
vinina. Hins vegar hef ég ekki hug-
mynd um hvort að það megi koma inn
í landið með þetta kjöt, það verða menn
að finna út sjálfir ef út í það fer.“
bog/skotveiði Dúi Landmark
Tarfurinn er hinn glæsilegasti.
![Page 17: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/17.jpg)
![Page 18: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/18.jpg)
Proghorn antilópurnar voru um allt og auðveld bráð!
![Page 19: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/19.jpg)
![Page 20: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/20.jpg)
20 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Þú mælir þá með þessu?„Heldur betur. Hins vegar er þessi veiði-
skapur ábyggilega misspennandi eftir
bráðinni. Eftir að við felldum t.d. hjört-
inn þá keyrðum við klukkustundum
saman yfir endalausar slétturnar yfir til
Wisconsin þar sem ætlunin var að veiða
svokallaða Pronghorn antilópu. Karlinn
felldi þarna flott dýr, fékk fínasta trófí,
en það var allt fullt af þeim þarna, við
vorum 2-3 klukkustundir að velja dýr
og vorum búnir að fella það og ganga
frá því eftir 4 klukkustundir. Ég veit ekki
alveg hvort ég myndi mæla með eða
nenna svoleiðis veiði aftur.“
Bogveiðar eru bannaðar á Íslandi ekki satt?„Jú, þær eru það. Mér finnst ekki vera
tilefni til þess og vel mætti leyfa bog-
veiðar ef þeim væri stýrt af ákveðinni
skynsemi. Það eru einhverjir karlar
byrjaðir að hópa sig saman til að fá
þetta leyft, en það er hætt við að það fari
í sama farveg og tilraunir manna til að
koma hreindýrum á Vestfirði eða hvort
að leyfa eigi veiðar á hrossagauk. Það
er sorglegt hvað umræða um nýjungar
í veiði hér á landi fer fljótt og örugglega
upp á hæsta stig tilfinninganna.“
En er nokkuð annað hægt að veiða hérna með boga nema hreindýr og eru þau ekki allt of stygg í þessa 10-30 metra?„Eflaust væri mjög erfitt að komast í
gott bogafæri við hreindýr, en ef ein-
hverjir vilja veiða svoleiðis, hvers vegna
þá ekki að leyfa það, svo fremi sem að
menn uppfylli þau skilyrði sem teldust
sanngjörn og eðlileg? Hreindýrin eru
vissulega stygg, en það gildir þó það
sama um þau og hirtina um fengitím-
ann, að tarfarnir eru kannski ekki alveg
með varnargenin glaðvakandi um tíma
og tíu daga gluggi í ágúst, á meðan
þetta ástand varir, gæti verið sá tími
sem bogmenn gætu fengið að spreyta
sig. Það mætti jafnvel byrja þetta sem
tilraun á vissum svæðum.
Síðan er það ekki rétt að það sé einungis
hægt að veiða hreindýr á Íslandi með
boga. Það er alveg hægt að veiða fugla
með boga, t.d. endur og gæsir. Það
er áreiðanlega mjög skemmtilegt að
læðast um andaslóðirnar með bogann
tilbúinn. Á gæsinni fer maður í felu-
byrgið og kallar þær til sín. Þetta snýst
allt um að komast í færi. Það er á hreinu
að menn taka ekki eins marga fugla
með boga eða með byssu, en fyrir suma
skiptir áskorunin meira máli.
bog/skotveiði Dúi Landmark
![Page 21: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/21.jpg)
FermingarBrúðkaupAfmæli
Árshátíðir FundirMóttökur
veisluþjónusta
Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]
Lystaukandi veislur
![Page 22: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/22.jpg)
![Page 23: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/23.jpg)
23
Mýrarkvísl
Önnur eins fjölbreytni er vandfundinMýrarkvísl í Reykjahverfi hefur verið meira í umræðunni
síðustu misserin heldur en lengi vel, líklega vegna þess
að nýju strákarnir í hverfinu, Salmon tails, riðu á vaðið
með því að taka ána á leigu. Það er margt sagtum
Mýrarkvísl, að hún sé ekki allra, að hún sé á köflum
óveiðandi og hún sé á köflum bara ein alls herjar
maðkahola. En þeir sem kynnast ánni fá allt annað beint
í æð. Ritstjóri þessa blaðs fékk t.d. að reyna það sumarið
2010 og Arnar Jón Agnarsson, einn Laxasporðanna,
leiðsagði veiðimönnum við ána á nýliðnu sumri og
kynntist henni vel. Hann færðist ekki undan að skrifa fyrir
okkur lýsingu á ánni, kostum hennar og leyndardómum,
með lýsingu á helstu veiðistöðum í bland. Arnar skrifar:
„Mýrarkvísl á upptök sín í Langavatni í
Reykjahverfi í Suður Þingeyjarsýslu og
fellur í Laxá í Aðaldal um 25 kílómetrum
neðar, eða fyrir landi Laxamýrar. Í ánni
eru þrjár stangir leyfðar og er því mjög
rúmt um menn á hinum 54 merktu
veiðistöðum í ánni. Í ánni veiðist lax,
urriði og bleikja. Þar sem Mýrarkvísl er
hliðará Laxár í Aðaldal er laxastofninn í
ánni mjög svipaður stofninum í Aðal-
dalnum að stærð og gerð og hlutfall
stórlaxa því hátt. Þar með sleppir hins
vegar skyldleikanum því Mýrarkvísl er
frekar lítil og nett veiðiá, en kemur þó
mikið á óvart, ef miðað er við hvernig
hún lítur út frá brúnni við Laxá í Aðaldal.
veiðistaðurinn
![Page 24: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/24.jpg)
24 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 25: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/25.jpg)
25
![Page 26: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/26.jpg)
26 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Í gegnum tíðina hefur Mýrarkvísl að
mestu verið veidd af heimamönnum og
nágrönnum og hafa Dalvíkingar verið
mjög fyrirferðamiklir í ánni seinustu 40
árin. Þekkja hana fáir betur en þeir, þó
ekki sé hægt að horfa framhjá stórum
hópi Akureyringa sem hafa veitt þarna
mikið samhliða Dalvíkingum.
Áin er gríðarlega skemmtileg og fjöl-
breytt og má segja að allar mögulegar
og ómögulegar veiðiaðstæður megi
finni í ánni. Gilið svokallaða eða svæði
2 hefur oftast verið nefnt þegar talað
er um ómögulega veiðistaði, þar sem á
mörgum stöðum þarf að láta sig hálf síga
niður kletta til að komast að vænlegum
veiðistað. Oft þarf að halda sér í reipi á
meðan maðki er rennt meðfram klett-
snefum og þegar laxinn tekur í þannig
aðstæðum er eins gott að vera tilbúinn í
ævintýri og eiga góðan veiðifélaga.
Við ána kemur til með að rísa nýtt veiði-
hús á næsta ári og mun þá aðstaða fyrir
veiðimenn batna til muna þar sem ekki
hefur verið veiðihús við ána seinstu ár.
Það verður staðsett á bakkanum fyrir
landi Þverár sem er fyrir miðri á.
Ég ætla hér að stikla á stóru um ána og
byrja á veiðisvæði 1 sem nær frá ós Laxár
upp að veiðistað 22. Oft hefur verið á
töluverðu reiki hversu neðarlega menn
mega veiða í Mýrarkvísl eða réttara
sagt hversu nálægt Laxá menn mega
fara. Það er komið á hreint núna og er
ætlunin að merkja veiðimörk fyrir næsta
sumar. Hægt er að miða við að ekki megi
agn berast í Laxá, en þó má veiða að ystu
mörkum Mýrakvíslar. Þar er eftir miklu
að slæjast þar sem laxar synda iðulega
inn í Mýrarkvíslina fram og til baka frá
Laxá á meðan þeir eru að átta sig á því
hvert ferðinni er heitið. Flestir veiði-
staðir á svæði 1 eru klassískir göngu-
staðir þar sem laxar hvíla sig í stutta
stund og halda síðan ferð sinni áfram
upp ána. Helsti kosturinn við svæði 1 er
að mjög aðvelt er að skyggna flesta staði
og ef laxar sjást er ekkert annað en að
koma sér niður að hylnum og reyna við
þá. Flestir veiðimenn byrja þó í hinum
magnaða Borgarhúsapolli nr. 21 sem er
margslunginn veiðistaður sem þarf að
fara varlega að og nota reipi til að komast
niður snarbratta klettabrekkuna. Þegar
niður er komið er lent á hentugum stað
til að byrja að veiða en þar dýpkar mjög
fljótlega og er þarna hyldjúpur hylur sem
laxar geta legið víða í, þó aðallega upp
við stóra klettinn sem staðið er þétt upp
að, þarna er því gott að vera örvhentur.
Gott er að hafa í huga á leið að hylnum
að skyggna hylinn neðst, en þar liggja
oft laxar sem eru á leið upp ána og þarf
þá ansi löng köst frá staðnum sem lýst
var áður. Laxinn tekur oft vel þegar hann
stoppar þarna. Borgarhúsapollurinn
er veiddur Húsavíkurmegin. Um 300
metrum neðar eru Kisturnar og Skáfoss
sem eru góðir maðkastaðir, klassískir
smápyttir þar sem laxinn getur legið
víða, oftast við endan á hvítfrissinu. Þetta
eru staðir 20-19-18-17-16. Frá stað nr. 15
Táarhyl, sem er mjög fallegur hylur, er
gott að veiða eins marga hylji og maður
kemst yfir og gefa sérstakan gaum að
hyljum 15-11-7-4.
Svæði 2 er gullið í Mýrarkvísl og er þarna
iðulega besta veiðin af svæðunum
þremur. Þarna eru margir mikilfenglegir
hylir og eru oftar en ekki stærstu laxarnir
í Kvíslinni sem liggja þarna. Byrjum á hyl
24 Ytri Ármótum, en þar er ekki gott fyrir
lofthrædda að veiða. Þarna liggur alltaf
lax. Hægt er að veiða staðinn frá báðum
bökkum en hafa má í huga að verið er að
veiða í 10 metra hæð upp á þverhnýpt-
veiðistaðurinn Mýrarkvísl
![Page 27: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/27.jpg)
![Page 28: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/28.jpg)
28 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
um kletti. Þetta er aðallega maðkastaður,
einnig er hægt að veiða á flugu þarna en
þá þarf helst að veiða hann á tvíhendu.
Nokkrir veiðimenn hafa náð tökum á að
veiða staðinn andstreymis með flugu
og túpum frá breiðunni sem er neðst í
hylnum. Laxinn liggur aðallega alveg
upp að klettinum Húsavíkurmegin en
getur þó legið fyrir miðjum hyl líka, þá
mjög ofarlega í honum. Munið bara að
athuga hvernig á að fara niður að ánni
frá klettinum áður en byrjað er að veiða
en það er gert með því að feta einstigi
neðst í hylnum.
Hylur 25 kallast Nafarhylur og er besti
fluguhylurinn á svæði 2 en þar liggur
tökulax jafnan neðarlega í hylnum fyrir
honum miðjum. Nánast besta rennslið
á fluguna er Húsavíkurmegin en einnig
er hægt að standa bak við stóran klett
Akureyrarmegin sem fer ekki framhjá
neinum og þarf þá nokkuð löng köst.
Laxinn sér veiðimenn aldrei frá þeim
stað. Flestir halda að laxinn liggi efst í
hylnum en ef varlega er farið og hylur-
inn skyggndur frá Akureyrarbakkanum
sést laxinn mjög greinilega ef hann er
neðarlega í hylnum. Frábær hylur í alla
staði og ekki skemmir fyrir að þarna er
fálkahreiðurstæði og jafnast fátt við það
að þreyta stórlax með fálka steypandi
sér yfir. Voðhylur er nr. 27 og þar eru oft
mjög stórir laxar á sveimi en þó reynist
iðulega erfitt að fá þá til að taka. Laxarnir
liggja ofast frekar neðarlega og sjást þeir
ef maður skyggnir hylin Húsavíkur-
megin og þarf þá að laumast niður að
grónum kletti sem hægt er að kasta
flugu á eða renna maðki, en rennslið
þarna er ekki gott og er gríðalegt magn
af afætu sem gerir manni lífið leitt.
Þarna var risalax allt sumarið 2011 sem
tók aldrei en fékkst örfáum sinnum til að
sýna viðbragð við agni og þá var gaman.
Frægasti staðurinn í Mýrarkvísl og
sennilega einn sá allra besti er Stokkhyl-
ur nr. 28., stórfenglegur hylur og þarna
liggja oft margir laxar og stærstu lax-
arnir í Mýrarkvíslinni fást iðulega þarna.
Þetta er einn af þessum hyljum sem þarf
að notast við reipi til að komast niður
að. Ef hann er veiddur Húsavíkurmegin
þarf að fara niður snarbratta brekku sem
lítur ekki vel út en er þó ekki erfið þegar
í hana er komið, hvorki að fara upp eða
niður. Þarna er hægt að nota flugu og
maðk, laxinn liggur oftast alveg við lapp-
irnar á mönnum fyrir neðan klettarönd
sem liggur meðfram öllum hylnum.
Hann getur tekið alveg efst og svo alla
leið niður að broti og þarf að veiða þetta
mjög vel, þarna er alltaf lax. Hafa ber í
hug að sterkir taumar og stórir háfar eru
nauðsynlegir þarna. Akureyramegin er
þetta allt auðveldara en þar þarf samt að
fara niður með reipi alveg út á sillu, þó
ekki gróna sillu sem flestir óvanir fara
strax á heldur aðra sem er nær brotinu
og passar akkúrat fyrir einn veiðimann.
Þarna er bara hægt að nota maðk og er
hægt að renna á laxa sem liggja beint
fyrir neðan lappirnar á mönnum og
að brotinu.Einnig er hægt að renna
á laxana sem liggja við klettaröndina
Húsavíkurmegin og þó að segja megi að
veiðimenn blasi við laxinum þá tekur
hann oft ótrúlega vel þarna. Ef það gerist
þarf að fara upp á klettinn aftur og niður
smá skriðu sem er þarna aðeins neðar
að brotinu og er þá auðvelt við laxinn að
eiga svo lengi sem þú missar hann ekki
niður úr hylnum en þá eru góð ráð dýr.
Þarna veiddist 103 cm lax og tveir 99 cm
laxar sumarið 2011.
Hylir 29-30 eru vel þess virði að stoppa í
og er hylur 30 sérstaklega fallegur flugu-
veiðistaður. Sigmarsdráttur er nefndur
veiðistaður sem er númer 33.5, smá
veiðistaðurinn Mýrarkvísl
![Page 29: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/29.jpg)
Join the CULT
Hrygnan ehf. | Síðumúla 37 | Sími: 581-2121 | www.hrygnan.is
![Page 30: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/30.jpg)
beygja þar sem áin hefur náð að grafa sig
niður. Þetta hefur verið spútnik staður
árinnar seinustu ár og má segja að þarna
stoppi allir laxar sem ætla upp á svæði 3
og er þarna oft mikið af laxi. Þetta er fal-
legur flugustaður en alveg magnað hvað
illa gengur að fá hann til að taka fluguna
þarna. Á móti kemur að fátt er einfaldara
en að renna maðki á þennan stað, hvort
sem staðið er fyrir ofan staðinn og rennt
eða legið á bakkanum og rennt og tekur
laxinn alla jafna vel þarna ef hann verður
ekki á annað borð var við veiðimanninn.
Efsti veiðistaðurinn á svæði 2 er Gljúfra-
pollur sem var forðum frábær veiðistaður
en er nú ekki sjón að sjá sem er mikill
synd. Stendur til að reyna að laga hann,
enda er þetta síðasti veiðistaðurinn áður
en laxinn fer upp tvo mikla laxastiga og
hefur hann því oft reynst vel sem sein-
asta stopp áður en í stigann er haldið.
Svæði 3 er mjög ólíkt svæðum 1 & 2 en
þetta er að mestu leiti flatlendi þar sem
áin hækkar sig mjög hægt á leið upp í
Langavatn. Hér má aðeins nota flugu
og er verið að reyna að bæta svæðið
sem hrygningarsvæði en aðstæður eru
frábærar. Því miður virðist ekki mikiði af
laxi hrygna hérna miðað við stærðina á
svæðinu. Þetta er gríðalega skemmtilegt
svæði þegar það dettur inn sem er alla
jafna í byrjun ágúst og er það virkt alveg
til enda veiðitímans. Hérna eru nokkrir
magnþrungnir veiðistaðir. Fyrst ber að
nefna Gæsahólma nr. 38 sem má segja
að skiptist í þrjá smápytti, örlítill foss sem
lax liggur iðulega undir eftir að hafa farið
upp stigann en þar sem bannað er að
nota maðk hér þá hefur veiðin ekki verið
mikil hér seinustu ár. Næsti hylur sem
nauðsynlegt er að stoppa við er Langa-
lygna nr. 41 en það er hylur sem ber svo
sannarlega nafn með rentu, mjög langur
og mjög lygn hylur.Menn geta verið
![Page 31: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/31.jpg)
vissir um að ef ekki er farið nógu varlega
sést á eftir löxunum bruna niður ána.
Laxinn liggur aðallega í vík Húsavíkur-
megin, frekar ofarlega í hylnum og svo
mjög neðarlega þar sem áin brýtur á
smásteini fyrir miðri á. Hérna verður að
vera vindur til að mögulegt sé að veiða.
Krókhylur nr. 42 er góður hylur sem er
rétt fyrir ofan Langalygnu. Þarna liggja
laxar aðallega við stóran stein sem er
nær Húsavík um 50 metrum fyrir ofan
skiltið. Beygjurnar nr. 46 hafa löngum
verið einn besti veiðistaðurinn á svæði
3 og halda þær laxi vel, lax getur legið
allan strenginn góður tökustaður er
mjög ofarlega og einnig um 20 metrum
neðar þar sem örlítið meira dýpi er að
finna, rétt áður en moldarbakkinn sem
er Húsavíkurmegin breytist í grasbakka.
Þar rétt fyrir neðan er lítil vík sem þótt
ótrúlegt megi virðast voru laxar í allt
sumarið 2011. Þetta er hvorki djúp né
straumþung vík en eitthvað er þarna
sem laxinum líkar.
Næst má nefna tvo fína staði sem kallast
Seláspollur og Víðihólmi. Í Seláspollum
liggur lax oft á milli steina á mjög
grunnu vatni en í Víðihólma getur lax
legið víða í smá pyttum og undir bökk-
um menn keyra oft framhjá þessum
stöðum en vert er að teygja úr sér og
kasta á þá.
Kötustrengur er ekki númeraður staður
en þó merktur rétt fyrir neðan Straum-
brot nr. 49. Þetta er staður sem lætur
ekki mikið yfir sér en þarna liggur þó
merkilega oft lax og tekur hann þá alla
jafna fyrir miðjum hyl. Þá er komið að
Straumbrotinu sem er magnaður hylur
og segja menn gjarnan að þetta sé einn
af þessum stöðum sem alltaf geymir
lax. Hvort sem það er rétt eða ekki er
mjög oft lax hérna. Staðurinn er hyl-
djúp beygja og liggja laxarnir oft á mjög
erfiðum stað nánast á hlið og stundum
öfugir sem gerir veiðina töluvert erfiða.
Með klókindum er hægt að ná góðum
árangri hérna, það verður bara að fara
mjög varlega að laxinum og á það við
um allt svæði 3 sem er mjög viðkvæmt
enda fátt sem byrgir laxinum sýn.
Síðasti laxastaðurinn sem vert er að
stopp á er staður nr. 51 Neðra Selvaðs-
brot en oftast hefur verið talið að laxinn
fari ekki ofar en þetta. Það er nú senni-
lega ekki rétt þar sem laxinn á greiða leið
upp að Langavatni héðan og það hafa nú
veiðst laxar fyrir ofan stað 51. Það hefur
verið nefnt sem kenning að töluvert af
laxi strauji beinustu leið upp í vatn og
sakki sér síðan niður þegar að hrygningu
kemur, en slíkt hefur ekki verið sannað.
En kenninginn er góð þar sem svæði 3
á það til að verða allt í einu steindautt en
svo fyllist það af laxi aftur.
Á svæði 3 er gríðarlega mikið af urriða
og má segja að það sé hægt að veiða
eins marga urriða og maður hefur
vilja og þrek í. Sérstaklega er svæðið
frá Langavatni að Selvaðsdrætti fullt af
urriða og ef labbað er þá leið með stöng
í hönd að vori er hægt að skemmta sér
konunglega að veiða urriða. Langavatn
er gríðarlega gott veiðivatn og veiðist
þar mikið af bleikju, ekki mjög stórri
en flottri á grillið, oftast í kringum 1-2
pund. Þá er leið okkar í gegnum Mýr-
arkvísl lokið og bjóðum við að lokum alla
veiðimenn velkomna í heimsókn á vit
ævintýranna.“
Mýrarkvísl
![Page 32: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/32.jpg)
fluguboxið
Sunray HKA í Pro Tube kerfinu
Sunray HKA í Pro Tube kerfinuMargir eru þeirrar skoðunar að fluguhnýtingar á Íslandi séu fremur staðnaðar og ekki veitti af því að koma með innspýtingu af nýjum hugmyndum og straumum og stefnum. Það er sama í hvaða veiðibók er rýnt á laxveiðislóðum, ef það er ekki Frances, þá er það Sunray og það er hvorug þeirra þá er það þýsk Snælda eða hitstúpa. Alls konar skemmtilegar flugur sjást ekki lengur, eða varla, og nýjungar samanstanda að mestu af nýjum afbrigðum af því sem tröllríður öllu þessi misserin.
Og ef staldrað er við hjá silungsveiði-
mönnum þá er það bara Vinil rib út í
eitt, aðeins leikið sér með liti og afbrigði.
Vissulega hefur þurrfluguveiði aðeins rutt
sér betur til rúms, en ekki að neinu ráði.
Þetta er frekar staðnað. Það er í sjálfu sér
ekkert athugunarvert við það að hnýta og
veiða með þeim flugum sem mest gefa,
en kannski gefa þær mest vegna þess að
aðrar flugur fá lítinn tíma í ánum?
Hvað sem þessu öllu líður, þá sögðum við
frá því á vordögum á vefnum okkar www.
votnogveidi.is að ný týpa af túpuflugum
væri að ryðja sér til rúms og hnýtingar-
maðurinn Nils Folmer Jorgensen hefði
innleitt kerfið hingað til lands, en hann
býr hér á landi, veiðir og leiðsegir veiði-
mönnum. Kerfið heitir Pro Tube og er
Nils óþreytandi að segja mönnum frá
kostum þess, en hann segir auðvelt að
tileinka sér hnýtinguna og að túpuflugur
hnýttar með þessum hætti hafi vissa
eiginleika umfram aðrar túpuflugur og
gefi oft fiska sem hinar hefðbundnari
skili ekki á land. Það eigi ekki hvað síst við
um stórlaxa, en Nils hefur verið ótrúlega
slyngur að setja í og landa löxum í yfir-
stærð. Landaði a.m.k. fjórum slíkum á
nýliðnu sumri og öðru eins 2010. Meðal
laxa í sumar sem leið var 108-110 cm
hængur, bjartur og sílspikaður, veiddur í
Hólakvörn í Vatnsdalsá. Laxinn var ekki
veginn og mældur spriklandi við stöng.
En þetta gæti vel hafa verið stærsti lax
sumarsins, en til þessa höfum við talið
þann lax vera 106 cm 27 punda(veginn)
hæng sem Björn K. Rúnarsson landaði í
Laxá í Aðaldal.
Nils ætlar hér að segja okkur
frá Sunray HKA/Bismo:
„Samkvæmt minni reynslu þá er þetta
sú flugan sem gefur lang bestu raunina
í stærrí ánum á Íslandi. Vinur minn
Henrik Kassow Anderson og ég höfum
notað þessa flugu mikið síðan sumarið
2004 og afraksturinn er ótrúlegur. Hún
gaf svo vel að einbeittur leiðsögumaður
nokkur hnýtti nærri því eins flugu og
skýrði hana Bismo. Flugan er frekar
einföld í smíðum, en ef menn vilja
einfaldlega kaupa hana þá fæst hún í
Veiðihorninu. Hér mun ég setja hana
saman með Pro Tube kerfinu sem þýðir
að ekkert lím er notað. Upprunalega
flugan var óþyngd, en ég ætla í þessu
tilviki að bæta smá þyngd við hana.
32 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 33: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/33.jpg)
2. Bæta við Flexi, þyngd 10 mm
4. Bæta við silver fox undirvæng
6. Bæta við 3XL long Artic Fox
8. Bæta við 3D augum and ganga frá epoxy haus.
9. Skera til túpuna og síðan út að veiða!
1. Pro Tube Flexi tube
3. Pearl Mylar í stærð M. Hnýta til beggja enda.
5. Bæta við 4 pearl Krystal Flash
7. Bæta við 4 peacock hearls
Svo mörg voru þau orð Nils Folmars. Eftir hátíðirnar setjast margir niður og hnýta fyrir sumarið. Ekki væri úr vegi að kynna sér bæði þessa nýjung og fleiri sem kann að vera boðið upp á í verslunum hér á landi.
![Page 34: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/34.jpg)
34 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Urriðafoss í öllu sínu veldi.
![Page 35: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/35.jpg)
35
lífríkið Þjórsárvirkjanir
Eins og að kaupa kjallaraíbúð og rústa síðan allri blokkinniÓhætt er að segja að málefni virkjana í neðanverðri Þjórsá hafi verið mjög til umræðu hin seinni miss-eri. Þar sækir Landsvirkjun hart fram að setja af stað vinnu við þrjár virkjanir til að keyra stóriðju. Stjórnvöld eru á öndverðum meiði, annar flokkurinn vill halda strikinu en öfl innan hins hika. Landeigendur skiptast í fylkingar og skyldi engan undra, þeir eru fjölmargir og hagsmunir manna ekki allir hinir sömu! Þá ótt-ast umhverfissinar og veiðimenn um afdrif laxa- og sjóbirtingsstofna Þjórsársvæðisins ef til virkjanagerðar kemur, því þeir eru einhverjir hinir stærstu í landinu og hafa verið færð rök fyrir því að þeir væru í hættu staddir ef af öllu saman verður. Orri Vigfússon/NASF og fleiri hafa tekið málið í sínar hendur að undanförnu og við ræddum við Orra.
en fáeinir netabændur neðan við. Hvað
með arðskrármálin? Mannvirkin munu svo
gerbreyta öllu lífríki og eðli árinnar að það
er algerlega ótrúlegt hversu lítinn hljóm-
grunn þær raddir hafa fengið sem að hafa
bent á þetta,” sagði Orri Vigfússon, en hann
bauð á dögunum Margréti J. Filardo til
ráðstefnu hér á landi, en Margrét þessi er
forstöðumaður Fiskvegamiðstöðvarinnar
(Fish Passage Center) í Oregon, en sú
stofnun hefur staðið fyrir margvíslegum
rannsóknum á afdrifum gönguseiða sem
„Við höfum farið í þetta verkefni, því eng-
inn sem hlustað er á hefur tekið það upp,
en það er hlustað þegar NASF kemur að
málum. Það hefur enginn verið að vinna í
þessu fyrir laxinn, þangað til núna. En allt
er þetta mál með miklum ólíkindum. Og
skyldi engan undra þó að menn séu ekki
samstiga heima í héraði því lögbýli á þessu
svæði eru 161 með um 500 skráðum eig-
endum og hér er verið að tala um mann-
virkjagerð neðarlega í vatnakerfi þar sem
90 prósent búsvæða laxfiska eru ofan við,
![Page 36: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/36.jpg)
36 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
lífríkið
leita niður virkjaðar ár og freista þess að
sleppa lifandi og ósködduð niður fyrir
stíflurnar um þar til gerðar „leiðir”.
Orri segir að hann hafi verið beðinn um að
koma til skrafs og ráðagerða af nokkrum
landeigendum og þá fundið út að nokkuð
vantaði upp á skipulag veiðifélags Þjórsár
og hafi hann hjálpað til við að endurstofna
félagið. Þá hefði komið fram að ekkert
erindi hefði borist frá Landsvirkjun til
Veiðifélagsins varðandi virkjanagerð. „Það
var eins og LV ætlaði bara að vaða þarna
inn á skítugum skóm án þess að hirða um
það hvort þeir væru velkomnir eða ekki.
Ég hitti ráðamenn hjá LV og þar var m.a.
gefið til kynna að LV myndi m.a. kaupa upp
netaveiðiréttindi þessara örfáu netabænda
neðan við virkjanirnar. Lagastoðin fyrir því
er hins vegar ekki til staðar því það má ein-
faldlega ekki gera slíkt, að kaupa hlunnindi
frá jörðum. Það má leigja þau, en ekki selja
þannig að ég átta mig ekki á því hvað LV er
að hugsa þarna. Þetta er eins og að kaupa
kjallaraíbúð í blokk og hefjast síðan handa
við að gerbreyta allri blokkinni og haga sér
eins og þeir sem byggju ofar í húsinu hefðu
ekkert með það að segja. Síðan er líka alltaf
þessi grundvallarspurning sem kemur að
félagslega þættinum: Þarna er blómlegt
landbúnaðar- og ferðaþjónustuhérað og
hvaða glóra er í því að rústa lífríki þess til
þess að leiða orku á Suðvesturhornið?”
Margret Filardo kom síðan hingað til lands
í nóvember og hélt sitt erindi eftir að hafa
sent NASF svör við áleitnum spurningum.
Fyrirlestur frú Filardo um stíflur í ám og
áhrif þeirra á lífríki vakti mikla athygli.
Þetta kom helst fram:
Virkjanir og stíflur eru afdrifaríkar fyrir
fiskgengd í veiðiám. Ekki hvað síst í ám
með sjógöngustofna. Virkjanir hafa áhrif
á vatnafar, búsvæði og göngur laxfiska og
því hafa menn áhyggjur af fyrirhuguðum
virkjunum í Þjórsá sem hefðu í för með sér
grundvallarbreytingar á lífskerfi fiskanna.
Í erindi dr.Filardo kom fram að stíflur og
virkjanir í ám valda mikilli röskun á vatna-
fari sem skaðar lífríkið með afdrifaríkum
afleiðingum. Sumstaðar hafa allt að því 85-
90% fiskstofna dáið út. Árfarvegurinn fer á
köflum undir uppistöðulón, annars staðar
stórminnkar vatnsrennslið, kvíslar eru stífl-
aðar og aðrar breytingar gerðar á farveg-
inum. Nær öll bestu búsvæðin í Þjórsá
eru fyrir ofan Urriðafoss og á stöðum sem
ráðgert er að virkja.
Breytingar á hitastigi, súrefnimagni,
dreifingu botnsfalls og fánu vatnaskordýra
eru gífurlegar og koma í veg fyrir að þau
seiði sem kynnu að lifa af röskunina búi
við nægilega góð skilyrði til að þroskast og
ganga til sjávar.
Seiðaveitur og aðgerðir til að reyna að
minnka umhverfisáhrif virkjana á laxfiska í
Columbíaánni í Bandaríkjunum hafa kost-
að yfir 10 milljarða Bandaríkjadala á síðustu
35 árum, án þess að aðgerðirnar hafi komið
í veg fyrir frekara hrun fiskistofna.
Laxaseiði ganga til hafs frá mars og fram
í ágúst, þannig að það mun skerða gríðar-
lega hagkvæmni virkjunarinnar sé ætlunin
að taka tillit til þessa líffræðilega þáttar og
minnka orkuframleiðslu meðan á niður-
göngunni stendur.
Fyrir virkjanir var árleg laxveiði í Columbí-
aánni 10-16 milljón laxar. Nú er veiðin ein-
ungis 1,5 til 2 milljón laxar, en 75% þeirra
koma úr seiðasleppingum. Veiðin hefur
minnkað um 90% en af núverandi laxa-
fjölda í ánni eru 75% eldislax úr seiðaeldis-
stöðvum, ekki upprunarlegur villtur lax,
lax sem er erfðafræðilega mjög einsleitur
og ekki líklegur til að viðhalda stofninum í
ánni til langframa.
Í framhaldi af heimsókn frú Filardo og
þeim upplýsingum sem hún kom hingað
með færandi hendi, sendi NASF bréf til
bæði Iðnaðar- og Umhverfisráðuneytisins
þar sem gerðar voru alvarlegar athuga-
semdir við virkjanagerðina. Við grípum hér
niður í bréfið:
NASF, Verndarsjóður villtra laxastofna
(North Atlantic Salmon Fund), gerir með
![Page 37: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/37.jpg)
37
þessu bréfi alvarlegar athugasemdir við
tillögu til þingsályktunar um áætlun um
vernd og orkunýtingu landsvæða, sem
gerir ráð fyrir að virkjanir í neðri hluta
Þjórsár, Urriðafossvirkjun, Hvamms-
virkjun og Holtavirkjun, verði settar í virkj-
unarflokk. NASF telur að þær skuli settar í
verndarflokk, til að vernda laxa- og sjóbirt-
ingsstofna í ánni, en til vara að virkjanirnar
verði settar í biðflokk á meðan rannsóknir
hæfra og óvilhallra vísindamanna fari fram
til að meta áhrif framkvæmdanna á ein-
stakan laxastofn árinnar. Ennfremur telur
NASF að greina þurfi afdrif sjóbirtings-
stofns árinnar áður en tekin er ákvörðun
um virkjanaframkvæmdir.
Iðnaðar- og umhverfisráðuneyti hafa lagt
fram drög að þingsályktunartillögu um
vernd og orkunýtingu náttúrusvæða. Við
flokkun virkjunarkosta í orkunýtingar-
flokk, biðflokk og verndarflokk samkvæmt
þingsályktunartillögu þessari var stuðst
m.a. við eftirfarandi forsendur:
1) Gæði þeirra gagna sem unnið var með.
2) Í biðflokk verndar- og orkunýtingaráætl-
unar falla virkjunarkostir sem talið er að
afla þurfi frekari upplýsinga um.
3) Hvort búið sé að gefa út byggingar-
og/eða framkvæmdarleyfi fyrir mann-
virkjum.
Ennfremur kemur fram í nefndaráliti
iðnaðarnefndar um verndar- og nýt-
ingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og
háhitasvæða að líta skuli til almannahags-
muna um það hvort virkjanahugmyndir
fari í biðflokk eða ekki. Til almannahags-
muna teljast meðal annars félagslegir
þættir. NASF vill benda á að mikil and-
staða er meðal íbúa við ána og andstaða
veiðifélags árinnar er einnig skýr. Þrátt
fyrir ofangreint eru Hvammsvirkjun,
Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun settar í
virkjunarflokk. NASF telur að gæði gagna
séu alls ekki nægjanleg til þess að taka slíka
ákvörðun og bendir á að byggingar- og
framkvæmdarleyfi liggja ekki fyrir, auk
þess sem virkjanarnir eru umdeildar og því
almannahagsmunir fyrir því að taka þær úr
orkunýtingarflokki. Mikilvægi árinnar fyrir
laxfiska er svo mikið að réttara væri að setja
allar þrjár virkjanirnar í verndarflokk.
Merktur sjóbirtingur úr Þjórsá. Mynd Magnús Jóhannsson.
![Page 38: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/38.jpg)
38 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
lífríkið
Stærsti sjálfbæri laxastofninn
Í Þjórsá er stærsti villti sjálfbæri laxastofn á
Íslandi. Samkvæmt áliti NASF þá er veruleg
hætta á því að stofninn verði fyrir umtals-
verðum áhrifum vegna virkjananna og
gæti jafnvel dáið út á nokkrum árum. Í
það minnsta hefur sú rannsóknarvinna
ekki farið fram sem sýnir að svo verði ekki.
Ennfremur er ljóst að stofn sjóbirtings í
ánni hverfur með öllu, þar sem fullorðnir
fiskar munu ekki með nokkru móti ná að
komast klakklaust niður seiðaveitur.
Virkjanir í neðri hluta Þjórsár setja náttúru-
lega stofna laxfiska í hættu og eru virkjan-
irnar því klárlega brot á samningnum um
líffræðilega fjölbreytni. Þær ganga einnig
gegn Bernarsamningnum um villtar
plöntur og dýr og búsvæði þeirra í Evrópu,
en Atlantshafslaxinn (Salmo salar) er á lista
Bernarsamningsins sem dýrategund sem
nýtur verndar þeirra aðila sem undirritað
hafa samninginn. Að auki eru virkjanarnir
mjög sennilega brot á Vatnatilskipun ESB,
en meginmarkmið vatnatilskipunarinnar
er að vernda vatn og vatnasvæði sem og
vistkerfi í vötnum og vistkerfi sem tengjast
vötnum. NASF mun leggja fram kæru til
viðeigandi stofnana sem sjá um að samn-
ingurinn um líffræðilega fjölbreytni og að
Bernarsamningurinn sé uppfylltur af að-
ildarlöndum ef viðkomandi virkjanir verða
ekki settar í verndarflokk, í það minnsta
biðflokk á meðan óháðir aðilar meta áhrif
virkjananna á laxastofninn í ánni.
Umhverfismat Urriðafossvirkjunar
annars vegar og Núpsvirkjunar (Holta-
og Hvammsvirkjunar) hins vegar, var lagt
inn á borð Skipulagsstofnunar fyrir meira
en 8 árum.
Umhverfismatið er því orðið gamalt, auk
þess sem nauðsynlegt hefði verið að gera
sameiginlegt mat fyrir þessar þrjár virkj-
anir, þar sem þær eru nær samliggjandi.
Mest af þeim rannsóknum sem gerðar hafa
verið á lífríki árinnar voru framkvæmdar
mun seinna og eru í raun enn í gangi.
Miklar breytingar virðast hafa orðið á
virkjunaráformum og hönnun virkjananna
frá því matsskýrslurnar voru gerðar án
þess að breytingarnar hafi verið kynntar
á fullnægjandi hátt. Að auki lágu mjög
ófullnægjandi upplýsingar fyrir um líf-
ríki og umhverfi árinnar þegar matið fór
fram. Það var því ekki að ástæðulausu sem
virkjanirnar voru samþykktar af Skipulags-
stofnun með skilyrðum sem miðuðu að
því m.a. að laxa- og sjóbirtingsstofnarnir
yrðu ekki fyrir umtalsverðum umhverfisá-
hrifum, auk þess sem sett voru skilyrði um
viðbótarrannsóknir.
Samkvæmt úrskurði Skipulagsstofnunar
þarf að meta skilvirkni seiðaveitna og
væntanlegan árangur af slíkum mann-
virkjum. Úrskurðurinn setur þau skilyrði,
út frá tillögum Veiðimálastofnunar um
frekari rannsóknir að skilgreina þurfi verk-
fræðilegar útfærslur á þeim aðgerðum sem
líklegast er að komi að gagni, og meta þær
út frá straumfræði og fiskatferli.
•Kannaþurfigönguhegðunogfinna
göngutíma laxaseiða til sjávar í Þjórsá
svo unnt sé að tímastilla og hagræða
aðferðum til að veita seiðum niður
framhjá virkjunum.
•Kannaþurfimunbeturgöngursjóbirt-
ingsseiða og stálpaðs sjóbirtings á leið
til sjávar.
Einnig séu takmarkaðar upplýsingar
um stærð og útbreiðslu sjóbirtings á
vatnakerfinu sem bæta þyrfti.
•Kannaþurfigönguhegðunlaxfiskaáleið
upp Þjórsá með rafeindamerkingum.
![Page 39: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/39.jpg)
39
Þjórsárvirkjanir
Rannsóknir og málflutningur VMSt
Að auki kemur fram í úrskurðinum að
nauðsynlegt sé að hefja vöktunarrann-
sóknir á áhrifum á lífríki árinnar. Þessar
rannsóknir skuli einkum miða að því að
nema breytingar vegna myndunar lóna
og breyttra rennslishátta og meta árangur
mótvægisaðgerða. NASF telur að mat á
árangri mótvægisaðgerða hafi aldrei farið
fram og bendir á málflutning Veiðimála-
stofnunar sjálfrar í því efni. Auk þess telur
NASF að Veiðimálastofnun hafi ekki í
tillögum sínum á rannsóknum og í starfi
sínu síðustu árin komist að raun um hver
verði umhverfisáhrif virkjananna á stofna
laxfiska í ánni. Engar rannsóknir hafa farið
fram á því hvaða áhrif virkjanirnar hafa á
sjóbirting í ánni. Hrygningasvæðin hafa
heldur ekki verið rannsökuð, en langmest-
ur hluti farvegarins verður fyrir áhrifum
af framkvæmdunum. Sums staðar verður
grafið og dýpkað, vatnsflæði mun minnka
eða aukast eftir aðstæðum, rennslissveiflur
verða miklar auk þess sem hluti árfar-
vegarins og stór hluti búsvæða fiskanna
fer undir lón. Allt eru þetta aðgerðir sem
hafa mikil og neikvæð áhrif á hrygningu,
viðkomu og uppeldisskilyrði laxfiska. Fæða
laxfiska er mestmegnis botndýr. Fyrrgreind-
ar breytingar á farvegi geta haft mjög mikil
áhrif á lífsferla botndýra og þar af leiðandi
fæðuskilyrði fiskanna. Þess má geta að
bitmýslirfur eru mikilvæg fæða laxfiska í ám,
en bitmý er háð rennsli og þrífst ekki í lónum
né þar sem miklar sveiflur eru í rennsli.
Framkvæmdaraðili hefur gefið sér að
árangur seiðaveitna sé nálægt 100% og
bendir máli sínu til stuðnings á árangur
seiðaveitna við Bonneville og Lower
Granite stíflurnar í Columbiaá í Banda-
ríkjunum. Þar hefur mikið verið reynt til
að viðhalda laxastofnum í ánni en eins
og sjá má á svörum frá The Fish Passage
Center í Oregon þá sýna rannsóknir að
fyrri mælingar á lifun seiða sem fara um
seiðaveitur í Columbiaá gáfu ekki rétta
mynd af áhrifum veitanna. Seiði verða fyrir
miklu hnjaski og áreiti við að fara í gegn-
um seiðaveitur. Þau koma því lemstruð út
úr veitunum, en það hefur mikil áhrif á lífs-
líkur seiðanna og endurheimtur eftir dvöl
í sjó. Það hefur því lítið að segja þótt seiðin
séu að nafninu til lifandi þegar þau koma
niður úr veitunum.
Áður en áin var stífluð gengu 10–16 millj-
ónir laxa upp í Columbiaá. Nú eru árlegar
laxagöngur aðeins 1,5-2 milljón fiskar, þar
af um 75% af sleppiuppruna, auk þess lax-
veiðin hefur minnkað um 90%. Seiðaveitur
hafa verið starfræktar í meira en 35 ár en
þær hafa ekki komið í veg fyrir frekari
hnignun laxastofnsins í ánni og því vafa-
samt að ganga út frá því að seiðaveitur í
neðrihluta Þjórsár muni skila betri árangri.
Ennfremur má benda á að hlutfallslega
stærri hluti fiskgengs hluta Þjórsár (í raun
nær allur farvegurinn) verður fyrir röskun,
á meðan svæði á milli virkjana er mun
meira í Columbíaánni. Í áliti The Fish Pas-
sage Center kemur fram að allar þessar
breytingar í Þjórsá komi til með að hafa
áhrif á laxinn og þurfi að meta þær sérstak-
lega.The Fish Passage Center telur einnig
upp fjölda rannsókna og upplýsinga sem
vantar um vatnasvið Þjórsár, en telur þær
nauðsynlegar til að meta megi áhrif virkj-
ana á stofna laxfiska. Brýna nauðsyn ber
til að afla mun nákvæmari upplýsinga um
áætlaða virkni seiðaveitna áður en virkjan-
irnar verða settar í orkunýtingarflokk, enda
er það eitt af skilyrðum Skipulagsstofnunar
fyrir framkvæmdunum.
Alls hafa 12 stofnar laxfiska í Columbíaánni
verið settir á lista yfir dýrategundir í útrým-
ingarhættu. Stjórnvöld í Bandaríkjunum
eru skv. lögum skuldbundin til að bregðast
við og taka 11 ríkisstofnanir þátt í þeirri
vinnu. Alls eyddu þessar stofnanir um 3,3
milljörðum Bandaríkjadala í þessar aðgerðir
á árunum 1982-2001, en heildarkostnaður
síðustu 35 ára hefur verið áætlaður um
10 milljarðar Bandaríkjadala. Á árunum
1997-2001 fóru 590 milljón Bandaríkjadala
í það eitt að byggja seiðaveitur við nokkrar
![Page 40: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/40.jpg)
40 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
lífríkið
virkjanir í ánni. NASF telur kostnað við
framkvæmdir við seiðaveitur og aðgerðir til
bjargar laxastofninum vera mjög vanáætl-
aðar af hálfu Landsvirkjunar og bendir á að
auk mats á skilvirkni þeirra þarf að liggja
fyrir hversu mikla fjármuni íslenska ríkið
sé tilbúið til að leggja í björgunaraðgerðir
fyrir stofna laxfiska í Þjórsá.
Þær fiskirannsóknir sem unnar hafa verið
fyrir Landsvirkjun á síðustu árum hafa ekki
beinst að hvaða áhrif framkvæmdirnar
hafa á stofna laxfiska, þrátt fyrir að þær
rannsóknir væru skilyrði fyrir samþykkt
umhverfismatsins á sínum tíma. Óskiljan-
legt er einnig af hverju ekki hafa verið
gerðar rannsóknir á hrygningastöðvum í
ánni, hrygningaraðstæðum, og áhrifum
virkjananna á þær, auk þess sem frekari
rannsókna er þörf á ýmsum neikvæðum
áhrifum sem skapast vegna breytts rennsl-
is, mannvirkja, og minni möguleikum
seiða til fæðuöflunar.
Óhjákvæmilegt er að fram fari nýtt heildar-
mat á umhverfisáhrifum vegna virkjunar-
framkvæmda þar sem ofangreindir þættir
verði rannsakaðir og niðurstaða fengin
sem sýni hver áhrif framkvæmdanna verði
á laxfiska í ánni.“
Svo mörg voru þau orð. Orri bætir við
þetta: Veiðimálastofnun lítur ekki vel út
þegar farið er svona í saumana á þessu
máli. Á þeim bæ hefur verið gefið grænt
ljós án þess að fyrir liggi faglegar forsendur
fyrir því. Helst að þar sé vonast til þess að
hægt verði að þróa einhverja tækni til að
redda málunum áður en í óefni er komið.
Menn gætu allt eins hoppað út úr flugvél
í tíu þúsund feta hæð og vonast til þess að
fá lánaða fallhlíf einhvers staðar á leiðinni
niður. Það sem við höfum lesið útúr þeim
upplýsingum sem Margret Filardo og
stofnun hennar hafa látið okkur í té er, að
ef við gefum okkur 100 gönguseiði sem
hefja hættulega för sína til sjávar, þá eru
kannski fjörtíu þeirra dauð þegar kemur að
seiðaveitunum. Það er margt við þetta rask
sem eykur á hættu þeirra og skert búsvæði
ofan virkjana eykur á dauðsföllin. Það eru
kannski 5 til 10 seiði af þessum uppruna-
legu 100 sem deyja í veitunum og túrbín-
unum, en lykilatriðið í þessu máli er, hvað
gerist eftir það. Það eru kannski 5 seiði sem
drepast, en þær rannsóknir sem gerðar
hafa verið fyrir vestan haf gefa til kynna
að seiðin koma meira og minna lemstruð
frá virkjuninni og eru að tína tölunni
vegna þessa . Á endanum verði 5 seiði öllu
heldur 85 seiði og þá eru bara 15 eftir. Og
þeirra bíða nýjar hættur í hafinu. Og ekki
má gleyma því að niðurganga seiðanna
kviknar á mjög afmörkuðum tíma og finni
seiðin ekki leið niður, fram hjá virkjun-
unum, þá missa þau af strætó og bíða í eitt
ár í viðbót. Og eru þá stödd í miðlunarlóni
með tilheyrandi lakari lífskjörum. Það
hljóta allir sem sjá vilja að þetta gengur
ekki upp svona og fagleg umræða verður
að komast fram fyrir pólitíkina áður en það
er um seinan,“ sagði Orri.
![Page 41: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/41.jpg)
Lax-, silungs- og skotveiði
Hrútafjarðará, Breiðdalsá, Jökla,
Tungulækur, Minnivallalækur
og Fögruhlíðará
www.strengir.is
![Page 42: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/42.jpg)
42 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 43: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/43.jpg)
Ljósmyndagalleríið að þessu sinni er í höndum Davids Thormar, sem er danskur
þegn með fjölskyldutengsl til Íslands (Þormar). David er ungur að árum, en mikið
náttúrubarn og fluguveiðimaður fram í fingurgóma. Lesendur sjá hér, að hann er
einnig ljósmyndari góður og það sama má segja um félaga hans Peter Kirkeby sem
tók einnig nokkrar þessara mynda.
David hefur komist í veiðifréttirnar hér á landi síðustu sumur. Vorið 2009 var hann á
urriðaveiðum í Aðaldalnum, í Laxá á svæðum Laxárfélagsins, og setti þá í og landaði
ríflega 20 punda laxi á silungagræjur, grannan taum og litla Black Ghost. Gott ef
laxinn mölvaði ekki stöngina áður en honum var landað. Næsta vor var hann mætt
ur aftur og setti þá í og landaði öðrum eins dreka, svo stórum og flottum að menn
fóru strax að fletta upp myndum af þeim fyrri til að spá í hvort þetta væri mögulega
sá sami, árinu eldri, því svoleiðis tilviljun væri gulls ígildi. Töluverð skoðun í þeim
efnum leiddi í ljós hverfandi líkur á slíkum ótrúleika, maðurinn hafði einfaldlega
dottið aftur í lokkupottinn og þetta segir okkur dálítið um göngumynstur þeirra
allra stærstu í Laxá, var ekki David að setja í þessa sem eru að koma snemma og
hreiðra um sig á Nessvæðunum, eru orðnir fáránlega legnir furðu snemma sumars
og byrjaðir að leggja af?
Allt um það, David kom síðan aftur nú í vor og ætlaði auðvitað að setja í og landa
þeim þriðja. En það gekk ekki eftir, hvernig sem á því stóð (!), hins vegar fór hann
beint úr Laxá yfir í Mýrarkvísl til að veiða urriða og landaði þá ríflega 90 cm laxi
sem var sá fyrsti úr ánni s.l. sumar.
En David Thormar veiðir víða en á Íslandi, hann veiðir heima fyrir í Danmörku
og svo fer hann líka til Grænlands, meðal annars á fáfarnar slóðir á vestur
ströndinni og þangað fer hann með hópa ásamt félaga sínu Peter Kirkeby.
Um galleríið segir David: „Myndirnar eru teknar með bæði Canon EOS 60D og
Olympus PEN EPL1. Þær eru bæði úr minni smiðju og Peters Kirkeby hjá
http://www.kineticfishing.com/. Ég hef ekkert unnið með þessar myndir, þær eru
bara eins og beint af kúnni. Eflaust mætti eiga eitthvað við þær en okkur finnst
þær bara bestar eins og þær eru. Myndirnar eru teknar í veiðitúr sem við fórum
með Getaway Tours til Grænlands í júlí á þessu ári. Það er mikil fjölbreytni þarna,
en stóru bleikjurnar veiddum við í lítilli á fyrir norðan Sisimiut.“
43
David Thormar
Á ótrúlegum sjóbleikjuslóðum!
ljósmyndun
![Page 44: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/44.jpg)
44 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 45: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/45.jpg)
45
![Page 46: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/46.jpg)
46 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 47: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/47.jpg)
47
![Page 48: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/48.jpg)
48 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 49: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/49.jpg)
49
Gore-tex gerir gæfumuninn.
Gore-tex öndunarfilman
ber höfuð og herðar yfir
aðrar öndunarfilmur bæði
hvað varðar vatnsheldni og
útöndun.
Simms notar Gore-tex Per-
formance-Shell og Gore-tex
Pro-Shell í vöðlur og jakka.
Engar málamiðlanir. Simms
er málið
ÞÚ FÆRÐ SIMMS EINNIGHJÁ VEIÐIMANNINUM
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
ALLIR VEIÐIMENN ÞEKKJA SIMMS GÆÐI!
Veiðibúð allra landsmanna á netinu. veidimadurinn.is
![Page 50: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/50.jpg)
50 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 51: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/51.jpg)
51
![Page 52: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/52.jpg)
52 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 53: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/53.jpg)
53
![Page 54: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/54.jpg)
54 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 55: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/55.jpg)
55
![Page 56: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/56.jpg)
56 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 57: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/57.jpg)
57
![Page 58: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/58.jpg)
58 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 59: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/59.jpg)
59
![Page 60: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/60.jpg)
60 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 61: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/61.jpg)
61
![Page 62: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/62.jpg)
62 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 63: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/63.jpg)
63
![Page 64: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/64.jpg)
Þórður Flóventsson
einu sinni var
Um gildi merkinga á laxi og silungi
Óhætt er að segja að bók þessi sé
stórmerkileg heimild um fyrstu ár
fiskræktar á Íslandi auk þess að gefa
dálitla innsýn í nýtingu Íslendinga á
veiðivötnum sínum og ástand þeirra
á öndverðri tuttugustu öld, en 82 ár
eru síðan að bók þessi kom út. Það má
því kannski kalla bókina aldarspegil á
sinn hátt.
Hún telur alls 192 blaðsíður og okkur
langar til að birta hér kafla úr henni.
En það var úr vöndu að ráða. Margt
fróðlegt og sumt óborganlegt þar á
síðum hennar. En á endanum ákváðum
við að birta ykkur kafla sem heitir: „Um
að merkja bleikjusilunga og laxa“, en í
þeim kafla reifar Þórður mikilvægi þess
að Íslendingar taki upp merkingar á
laxfiskum. Það var óþekkt á þeim tíma,
en aðrar þjóðir höfðu þá fyrir nokkuð
löngu komið sér upp hefðum í þeim
efnum. Þórður skrifaði:
– Því miður er engin hugsjón komin
til okkar Íslendinga, og erum við langt
á eftir öðrum þjóðum í því sem öðru
fleira. T.d. hafa Skotlendingar merkt
laxa og kannske fleiri fiskategundir nú
til margra ára, og er það fjelag eitt, sem
hefir þann starfa, að sjá um, að nóg sje
til af merkjum fyrir hendi.
Merkin eru ýmist plötur með tölu á,
bæði daga- og ártal, og hvar sílinu var
sleppt, og svo hvar það veiddist aftur.
Merki þessi eru látin annaðhvort í kinn-
fiskinn eða þá í ugga, eða með hring í
sporðinn, eða veiðiugga.
64 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • maí 2011
Árið 1929 var gefin út í Reykjavík bókin Laxa- og silungaklak á Íslandi eftir Þórð Flóventsson. Í bókinni eru skýrslur um ferðir höfundar um land allt, og framkvæmdir, en verkefni Þórðar var að gera úttekt á veiði-vötnum, kanna ástand þeirra og möguleika til fiskeldis, ásamt því að veita heimamönnum ráð til að betrumbæta veiðivötn og ár til að fá betri veiði úr þeim. Ferðir þessar fór hann á árunum 1920 til 1927, en jafn-framt er að finna í bókinni „fræðslu um lifnaðarháttu laxfiska hjer og erlendis“ eins og það er orðað.
![Page 65: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/65.jpg)
65
Fiskrækt á Íslandi
Þetta er afar nauðsynlegt fyrir fiskrækt-
ina, ef hún á að hafa nokkuð verulegt
gildi, og byggjast á hreinni reynslu, sem
endilega þarf eins og hvað annað, sem
ríður mikið á, að rjett sé farið með.
Jeg þekki tvö dæmi, sem jeg hugsa, að
fáir eða enginn geti svarað með vissum
rökum svo ábyggilegt sje, og er fyrra
dæmið þannig:
Á Grásíðu í Kelduhverfi í Norður
Þingeyjarsýslu, er stutt ofan við bæinn
kringlótt vatnsker, mikið djúpt, en renn-
ur sama sem ekkert úr því. Þetta ker var
hjer áður kallað Kvígildisauga, því hjer
áður, um 1800 og þar áður, var prest-
inum í Garði í Kelduhverfi goldið eftir
þetta ker sem eitt ásauðar kúgildi, því
ekki þurfti Grásíðubóndinn annað en að
fara upp í kerið og sækja sjer silunginn
í soðið. Alt var þetta bleikjusilungur
mjög vænn, nálægt 5 til 6 pundum, sem
þarna veiddist. Hann var kræktur með
öngli, því alla jafnan, á hverju hausti,
kom þessi stóri silungur upp úr holunni,
undan hellisskútanum, og þó hann væri
veiddur kvöld eftir kvöld, þá kom altaf
áframhaldandi uppganga þarna.
Þetta Kvígildisauga er ofurlítið frá hraun-
jaðri, sem er ofan við bæinn á Grásíðu,
en hvergi eru veiðivötn eða ár, sem gætu
gefið líkur til, að þessi væni silungur
geti runnið þaðan, því frá Mývatni eru 5
til 6 mílur vega, en hraun og gjár á allri
leiðinn, en engin vötn, og er því spurs-
mál mitt til fiskifræðinga vorra: Hvað
getur silungur lifað lengi niður í jörðinni,
án þess að komast upp úr henni?
En ef nú hefði verið búið að merkja
hann til fleiri ára á vissum stöðum, til
dæmis úr Mývatni og víðar, og merktur
silungur hefði komið upp þarna úr
Kvígildisauga þessu, þá hefði verið til-
ganginum náð.
Hitt dæmið er það, að á Haursstöðum í
Axarfirði í Norður Þingeyjarsýslu, stutt
neðan við bæinn, rennur lækur sem
kallaður er Kíll, og kemur upp úr jörð-
inni á að giska þúsund faðma sunnan
við bæinn, og kemur vatnið þar alt upp
Þórður Flóventsson.
![Page 66: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/66.jpg)
66 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
úr nokkuð stórri gjá, á dýpt á að giska
5 til 6 álnir, og á hverju hausti kemur
þarna upp bleikjusilungur, oft fyrst einir
4 til 5 og smáfjölgar þeim, þangað til
að þeir eru orðnir um 20, og er þá oft
farið að veiða þá, þannig að lagt er net
þvert yfir lækinn, og svo eru þeir reknir
í það og fengum við oft þettað 40 til 50
á hverju hausti, og þó við vissum af, að
einhver yrði eftir, þá hvarf hann ofan í
gjána, gat ekki farið annað.
Þarna er ekkert hraun nálægt og engin
veiðivötn nokkursstaðar nær en Mý-
vatn. En þessi kíll er austan við Jökulsá,
sem er á milli Svínadals og Hafursstaða,
svo hjer ræðir ekki um neina hugsan-
lega leið, nema langt niður í jörðinni.
En spursmálið er hið sama til fiskifræð-
inganna hjer: Hvað getur silungurinn
lifað lengi niður í jörðinni, eða getur
hann tímgast þar og vaxið og orðið
svona stór?
Sá sem veiddist á Hafursstöðum var
mjög misjafnlega stór. Sumir 3 til 4
pund, og aftur miklu fleiri 2 til 3 pund,
og taldi jeg það ungan silung, of ungan
til að gefa hrogn af sjer. En sá stóri var
fullur af hrognum og svilamjólk.
Það er enginn vafi á því, að þessir stóru
silungar komu til þess að riða eða leggja
hrognin á mölina í læknum, því sunnan
við gjá þessa er lækjarseyra, og horfði
jeg oft á, þegar silungurinn var að
hringsnúast á mölinni, og lang fjörug-
astur var hann á þeim bletti, sem ekki
var dýpra á en það, að bakugginn var
upp úr allur. Þarna lagði hann hrogn á
hverju hausti, og var það einkennilegt,
að lækjarbotninn varð ljósblár, og alls-
staðar, þar sem silungurinn hafði riðað
eða lagt hrognum sínum, mátti sjá
þessa ljósbláu bletti í lækjarbotninum,
og var það annað hvort á grjóthellu eða
þá á stórgjörðri grjótmöl, og af þessu
lærði jeg að láta helst grjótmöl í botninn
á klakkössum mínum.
einu sinni var Fiskrækt á Íslandi
![Page 67: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/67.jpg)
FermingarBrúðkaupAfmæli
Árshátíðir FundirMóttökur
veisluþjónusta
Búðakór 1 • 203 Kópavogi • Sími 820 7085 • [email protected]
Lystaukandi veislur
![Page 68: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/68.jpg)
veiðihundar
Ásgeir Heiðar
Eiginlega ekkert annað en súrefnisbox, lappir og nefÍ síðasta blaði sögðum við frá hinum óborganlega Labrador Camo og
sérstöku uppeldi hans og þjálfun sem leiddi af sér verðlaunahund og
yfirburða veiðigarp. Nú hittum við Ásgeir Heiðar sem má eiginlega segja
að sé ættfaðir Pointer á Íslandi, en hann flutti þann fyrsta til landsins
árið 1995 og nokkrir af Pointerum hans hafa glatt þann gamla með því
að vinna ítrekað til æðstu metorða veiðihunda á Íslandi, en hann hefur
hlotið á milli 60-70 verðlaun fyrir besta hund veiðiprófs.
Smávegis fyrst um Pointer. Þeir hafa
verið ræktaðir í nokkur árhundruð og
hafa djúpstætt og magnað veiðieðli. Í
fyrstu voru þeir helst í Suður Evrópu,
en sem veiðihundar þróuðust þeir út
í að vera fuglahundar og vegur þeirra
óx mjög þegar Bretar fóru að blanda þá
með hraðari hundum á borð við refa-
hunda og Greyhound.
„Þeir eru eins og flestir venjulegir
hundar að greind og almennum
gæðum, en veiðieðlið þeirra stendur
upp úr. Byggingarlega eru þeir magn-
aðir og þeir eru hraðir og skipulagðir í
veiði. Þá er skapferlið gott, og almennt
geðslag, þannig að þeir eru líka góðir
heimilishundar. En fyrst og fremst eru
þeir veiðihundar með hænsnfugla að
sérgrein og það má segja að þeir séu
byggðir til að hlaupa. Þeir eru eiginlega
ekkert annað en súrefnisbox, lappir og
nef.“ segir Ásgeir.
Sem fyrr segir flutti hann fyrsta Poin-
terinn til landsins árið 1995 og kom
sá frá Svíþjóð og hét því skrautlega
nafni Jo-Kjells Mysa, en Ásgeir stytti
það í Nella. Hún var tveggja ára hingað
komin. „Með henni komu ný viðmið í
fuglahundaflóruna hér á landi. Menn
sáu hraðari hund í veiði og hund með
leitarmynstur sem ekki hafði sést hér
áður. Enda varð Nella þrefaldur meistari,
sem sagt veiðimeistari, íslenskur og al-
þjóðlegur sýningarmeistari. Hún varð
tólf ára og má segja að hún sé ættmóðir
Pointerhunda á Íslandi. Þeir eru þó ekki
nema milli 20 og 30 í það heila hér á
landi. Fimm frá okkur eru komnir til
68 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
![Page 69: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/69.jpg)
Pointer
Bandaríkjanna, og einn þeirra hefur
afrekað að verða í öðru sæti á banda-
rísku þjóðarleikunum,The American
Nationals,“ segir Ásgeir og enginn vafi
að það er stolt í rómnum!
Ásgeir flutti síðan inn norskan Pointer
með það fyrir augum að koma á goti,
en sá reyndist ófrjór. Var þá reynt aftur
og kom þá Jet-Set til landsins og úr
goti hans og Nellu kom m.a. Vatns-
enda –Laxi sem var gríðarlega góður
veiðihundur. Annar hvolpur, tík af
góðum norskum ættum, bættist í
hópinn, „feiknalegur veiðihundur“ sem
fékk nafnið Donna, en Donna gladdi
líka gamla með því að vinna fyrrnefnda
þrennu. Undan Donnu og Laxa hafa
komið mjög góðir hvolpar og fimm
þeirra hafa endað í Bandaríkjunum,
eins og að ofan var getið.
Einn af hvolpum Donnu og Laxa er
Nóra, nafna guls Labradors sem var
BendirVERSLUN MEÐ HUNDAVÖRUR
511-4444 www.bendir.is
69
![Page 70: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/70.jpg)
veiðihundar Pointer
einkum fræg fyrir flugu sem Ásgeir
hnýtti úr feldi hennar og reyndist
afburða vel, einkum í Laxá í Kjós. Nóra
varð þriðji Pointer Ásgeirs til að taka
þrennuna og árin 2008 og 2009 var hún
valin besti fuglahundur landsins.
Nóra er sem sagt afburðahundur og
þegar að undaneldi kom var sóttur suð-
rænn foli nokkur, ítalsk/franskur Poin-
ter sem fékk hið magnaða nafn Hardy
d‘Costalot. „Það er nú létt skýring á því
nafni. Við vorum búin að panta hund-
inn rétt áður en kreppan skall á og með
henni hækkaði allt upp úr öllu valdi er
að þessum hundi kom. Það tvöfaldaðist
allt sem hét kostnaður, en þegar til kom
þá var það allt hverrar krónu og fyrir-
hafnarinnar virði. Við höfðum aldrei
séð eins hraðan hund í veiði og óhætt
að segja að með d‘Costalot hafi nýtt blóð
komið í íslenska Pointerstofninn. Þessi
hundur heillaði okkur upp úr skónum
og úr goti hans og Nóru kom síðan
m.a. nýjasta stjarnan okkar, Kara. Hún
er Unghundur ársins 2011 og verður
gaman að sjá hvaða árangri hún nær í
framtíðinni,“ bætir Ásgeir við.
En hvað innifela þessi próf. Hvað er
dæmt? Ásgeir nefnir eftirfarandi:
„Veiðiáhugi, hraði, stíll, sjálfstæði, leitar-
breidd, leitarmynstur og samvinna við
leiðanda. Stig fást fyrir alla flokkana. Þá
þurfa þeir að finna sjálfstætt a.m.k. einn
fugl og taka stand, reisa hann gegn
skipun og halda ró sinni við uppflug og
skot. Síðan skulu fuglar sóttir, en ung-
hundar mega þó sleppa við það.“
Það var og, og þá er að sjá hvað Kara
gerir á næsta ári.
70 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Matseðilldagsins
NJ@
RANGA.DK
Hardy, Nóra, Kara, Jón Ásgeir og Ásgeir Heiðar á góðri stundu.
![Page 71: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/71.jpg)
Matseðilldagsins
NJ@
RANGA.DK
![Page 72: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/72.jpg)
72 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Leitin að stórlaxinum – Ásmundur og Gunnar Helgasynir
Ásmundur og Gunnar Helgasynir, tvíburarnir. Annar í stjórn SVFR,
hinn orðinn frægur meðal þjóðarinnar fyrir leikstjórn, barna-
bókaskrif, álitsgjöf og dómgæslu í hinum ýmsu hæfileikasjónvarps-
þáttum. Þeir bræður eru miklir og ástríðufullir fluguveiðimenn sem
hafa nokkrar fjörurnar sopið síðustu sumur. Þeir bitu í sig þetta
árið að halda í leit að stórlaxinum og hafa nú gefið út bók og disk
sem heitir einfaldlega Leitin að stórlaxinum. Þeir þræða þar nokkur
veiðisvæði sem eru þekkt fyrir stóra laxa og stefnan sett að rjúfa
tuttugu punda múrinn. Gluggum aðeins í fréttatilkynningu frá
þeim kumpánum: „Út er kominn pakki um stórlaxaveiðar á Íslandi
sem inniheldur bæði bók og kvikmynd! Betra verður það einfald-
lega ekki! Þessi magnaði veiðipakki er eftir bræðurnar Gunnar og
Ásmund Helgasyni og ber heitið Leitin að stórlaxinum.
Bókin – Leitin að stórlaxinum og flugurnar sem virkaÍ bókinni velja 10 valinkunnir stórlaxaveiðimenn 10 uppáhalds
flugurnar sínar. Útkoman er ótrúlega fjölbreytt og fróðlegt úrval af
stórlaxaflugum. Einn þessara manna er Þórður Pétursson, höfundur
Laxá blá, sem sýnir hér bestu flugurnar sínar. Einnig er í bókinni
bráðskemmtileg frásögn bræðranna Ásmundar og Gunnars af
veiði sumrinu og þá aðallega hvernig veiðin hjá þeim gekk. Auk þess
segja þeir líka frá því hvernig tókst til við að taka upp og framleiða
myndina Leitin að stórlaxinum. Myndirnar af flugunum í bókinni
tók Jón Víðir Hauksson. Bókin er 80 bls.
Myndin – Leitin að stórlaxinumVið gerð myndarinnar settu bræðurnir Gunnar og Ásmundur Helga-
synir sér það markmið að komast í 20 punda klúbbinn. Þeir fara víða
í leit sinni að stórlaxinum, þangað sem helst er von til að markmiðið
náist; í Laxá í Aðaldal, Jöklu, Breiðdalsá og Hofsá. Þeir skoða einnig
hvernig Jökulsá á Dal hefur breyst úr jökulfljóti í laxveiðiá við þá
miklu framkvæmd sem Kárahnjúkavirkjunin var. En fyrst og fremst
er þetta skemmtileg, fróðleg og falleg mynd um leitina að íslenska
stórlaxinum. Mennirnir á bak við myndavélarnar voru Jón Þór Víg-
lundsson og Jón Víðir Hauksson. Myndin er 80 mínútur.
Smelltu hér til að skoða stiklu úr myndinni.
Aldrei hafa veiðimenn og útivistarfólk haft úr fleiri bókum að velja!
Það stefnir í valkvíða hjá
veiðimönnum þegar kemur
að jólabókinni. Ætli þeir vilji
ekki margir hverjir hafa orðið í
fleirtölu, því okkur hjá Veiðislóð
er til efs að nokkru sinni hafi
verið jafn mikið úrval nýrra
veiðibóka á boðstólum.
Við röðuðum þessu öllu
saman á borð og litum síðan
yfir plötuna. Hvar að byrja,
hvar að byrja? Byrjum þá bara
í stafrófsröð og þá kemur upp
nafnið Ásmundur Helgason,
tökum svo hinar fyrir í einhverri
skrýtinni röð....
![Page 73: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/73.jpg)
73
Veiðisögur – Bubbi Morthens
Bubbi Morthens sendi frá sér sína þriðju veiðibók
og þessi nýjasta heitir: Veiðisögur.
„Þetta eru bara sögur. Sögur af veiðimönnum, veiðistöðum og
upplifun í veiði. Síðan er það langt, langt frá því að vera þannig að
þetta sé alfarið um mig og eftir mig. Það er einnig útlitshönnuður-
inn Jón Ásgeir Hreinsson sem er hreinn listamaður og það sama
má segja um Einar Fal ljósmyndara. Þá eru það konurnar sem
koma að bókinni, Hildur Hermóðsdóttir útgefandi og Hrafnhildur
eiginkona mín. Án þessa fólks hefði þessi bók ekki orðið til,“ sagði
Bubbi á kynningu sem haldin var í tilefni af útgáfu bókarinnar. Síðan
tók hann lagið, sýndi skyggnur og bauð gestum upp á margvíslega
laxarétti í Rafstöðvarheimilinu við Elliðaárnar.
Í bókinni staldrar Bubbi m.a. við í Kjósinni, Rangánum, Norðlinga-
fljóti, Grímsá, Kjarrá, Miðfjarðará, Hítará, Norðurá, Langá, Vatns-
dalsá, Stóru Laxá í Hreppum, Hofsá og Laxá í Aðaldal. Einnig gefur
hann gagnleg ráð um græjur og ýmislegt er varðar réttu handtökin.
Það er skemmtilegur vinkill á þessari útgáfu, að bókin kemur einnig
út rafræn og voru gestir að fletta henni á Ipad-skjám þegar bókin
var kynnt. Það er Salka forlag sem gefur bókina út.
Íslenskar Veiðiár – R.N.Stewart, þýðing Einar Falur Ingólfsson
Þessi bók Roberts Neils Stewart hershöfðingja kom fyrst út árið
1950 undir heitinu Rivers of Iceland. Bókin var skrifuð fyrir erlenda
stangveiðimenn og var markmiðið að kynna fyrir þeim helstu
veiðiár landsins, aðstæður við ár og vötn, fiskistofnana og aðbún-
aðinn á bæjum þar sem dvalið væri.
Íslenskar veiðiár var fyrsta bók sinnar tegundar, þar sem fjallað er
á markvissan hátt um stangveiðiíþróttina á Íslandi, og hefur lengi
verið talin til klassískra veiðibókmennta. Stewart var gjörkunnugur
öllum aðstæðum hér, veiddi fyrst hér á landi árið 1912 og leigði um
langt árabil veiðiréttinn í Hrútafjarðará og Síká. Stewart sendi alls
frá sér ellefu bækur, um stangveiði og náttúru, og aðbúnaðinn á
bæjum þar sem dvalið var.
Íslenskar veiðiár er annað og meira en lýsingar á ám og fiskum.
Þetta er merkileg frásögn um reynslu skosks ferðalangs sem dvaldi
margoft hér á landi og kynntist þeim gríðarlegu breytingum sem
urðu á högum landsmanna á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Lýsingar Stewarts á samgöngum hér á landi, á sveitabæjunum
þar sem hann dvaldi og fólkinu sem hann kynntist, eru ekki síður
merkilegar en næmar lýsingar hans á veiðiánum, fiskum og fuglalífi,
veiðiskap og íslenskum fylgdarmönnum erlendra veiðimanna.
Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari og rithöfundur þýddi bókna.
Hana prýða um fimmtíu ljósmyndir sem Stewart tók hér á landi.
Margar þeirra hafa verið í vörslu afkomenda Stewarts og hafa ekki
áður birst opinberlega. Það er Hið Íslenska Bókmenntafélag sem
gefur bókina út.
![Page 74: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/74.jpg)
74 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Stórlaxar – Gunnar Bender og Þór Jónsson
Stórlaxar er viðtalsbók þar sem sjö landsþekktir einstaklingar segja
veiðisögur og ræða um lífið á árbakkanum. Umsjónarmenn eru
Gunnar Bender og Þór Jónsson. Þeir sendu okkur fréttatilkynningu
um afurðina
Í fréttinni stendur: „Margir viðmælenda eru þekktir fyrir allt annað
en laxveiði og kemur það mörgum vafalaust á óvart að stangveiði
sé þeirra aðaláhugamál utan vinnu. Aðrir lifa og hrærast í stang-
veiði. Stórlaxarnir eru: Kristinn Sigmundsson, óperusöngvari,
Ragnheiður Thorsteinsson, dagskrárgerðarmaður RÚV, Björn Krist-
inn Rúnarsson, verslunar- og leiðsögumaður, Njörður P. Njarðvík,
prófessor og rithöfundur, Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri,
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari, og Árni Baldurs-
son, framkvæmdastjóri. Inngang skrifar Bjarni Júlíusson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Í bókinni eru 48 litsíður þar sem gefur að líta myndir af öllum stór-
löxunum í sínu náttúrulega umhverfi, ef svo má að orði komast. Þar
má einnig sjá ýmsa aðra góða menn og konur við veiðar. Kunnastir
eru vafalaust Haraldur Noregskonungur og Eric Clapton tónlistar-
maður. Höfundar bókarinnar eru þekktir blaðamenn og forfallnir
veiðiáhugamenn, Gunnar Bender og Þór Jónsson, sem hafa báðir
skrifað veiðibækur áður en leiða nú í fyrsta sinn saman hesta sína.
Afraksturinn er forvitnileg, stórskemmtileg og vel stíluð bók fyrir
alla veiðimenn – og hina líka. Til dæmis hafa sumir viðmælenda
í bókinni ekki fyrr veitt viðtöl um veiðiáhuga sinn. Hér er sagt frá
veiði og veiðiskap sem vera ber en einnig hvað tafði Ólaf frá því að
fara á fæðingardeildina, hugljómun Ragnheiðar í drullupytti, heim-
sókn Guðmundar á slysadeild, áliti Kristins á því hvort fiskar hafi
fögur hljóð, siðaboðskap Njarðar, leiðsögn Björns með auðkýfingi
sem vildi veiða þar sem ekki var fisk að fá, hvers vegna Árni fleygði
sér yfir peningahrúgu á gólfinu o.fl. o.fl. Magnaðar litmyndir, sumar
úr einkasöfnum, aðrar teknar sérstaklega fyrir bókina, gera hann
enn glæsilegri og eigulegri en ella. Hér ber vel í veiði.
Tindur bókaútgáfa gefur bókina út. Hún er 139 blaðsíður að
lengd. Þrándur í Götu annaðist kápuhönnun og umbrot og
Prentmiðlun prentun.“
Vötn og Veiði Stangaveiði á Íslandi 2011 – Guðmundur Guðjónsson
Gamla góða árbókin enn og aftur komin út, en bók þessi hefur
komið út í einni mynd eða annarri allar götur síðan 1988, eða
23 ár. Eins og fyrri daginn er stiklað á stóru með það helsta sem
gerðist fréttnæmt veiðiárið 2011. Lokatölur birtar úr fjölmörgum
ám, helstu fréttir raktar, veiðisögur sagðar og eins og lenska hefur
verið síðustu árin, hafa umsjónarmenn tekið fyrir nokkur veiðisvæði
og greint frá persónulegri reynslu sinni af þeim á liðinni vertíð. Að
þessi sinni er tekin fyrir vor- og haustveiði í Eldvatni í Meðallandi,
veiði á silungasvæði Breiðdalsár, sem hefur verið stækkað og hefur
nú umtalsverða laxavon, Kráká, Setbergsá og Straumfjarðará. Fjöldi
mynda prýða og bókina og gefa henni enn meira gildi.
Það er Litróf Hagprent sem gefur bókina út.
![Page 75: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/75.jpg)
75
Grímsá og Tunguá – Guðmundur Guðjónsson og Einar Falur Ingólfsson
Þetta er þriðja bókin í ritröð Litrófs um íslenskar laxveiðiár, en
áður hafa komið út bækur um Laxá í Kjós og Langá á Mýrum. Að
þessu sinni er viðfangsefnið Grímsá í Borgarfirði ásamt hliðaránni
Tunguá. Guðmundur Guðjónsson er ritstjóri textaefnis og bókin er
glæsilega skreytt ljósmyndum Einars Fals Ingólfssonar, sem kom
með einum eða öðrum hætti að þremur veiðibókum þetta árið.
Bókin skiptist í eina sex hluta, fyrst er að nefna gamlar ljósmyndir
frá fyrstu árum stangaveiða í Grímsá, þá er veiðistaðalýsing af
Grímsá, sams konar kafli fyrir Tunguá, þá langur kafli af viðtölum
og veiðisögum. Margt af því efni hefur fengið endurnýjaða lífdaga
eftir að hafa birst í bók um Grímsá árið 1987. Má nefna viðtöl við
nú látna höfðingja, Kristján Fjeldsted í Ferjukoti og Steingrím Her-
mannsson fyrrum forsætisráðherra, en báðir voru hafsjór af fróðleik
og veiðisögum frá Grímsá frá fyrri árum. Fimmti hlutinn er kafli
ritaður af Þorsteini Þorsteinssyni á Skálpastöðum, formanni veiði-
félags Grímsár til margra ára, í tilefni af 40 ára afmæli veiðifélagsins.
Óhætt er að segja að þar kenni margra grasa og Þorsteinn sviptir
hulunni af stormasömum árum í tengslum við útleigu á ánni til
SVFR, byggingu hins umdeilda veiðihúss við ána, sem setti SVFR
nærri því á hausinn, samskiptum bænda innbyrðis og útá við og
síðast enn síst netauppkaupamálinu í Borgarfirði. Loks er mynda-
kafli þar sem getur að líta taumlausa gleði veiðimanna á bökkum
Grímsár.
Það er Litróf Hagprent sem gefur bókina út og innnan skamms
mun hún einnig líta dagsins ljós á ensku.
25 gönguleiðir á Hvalfjarðarvæðinu – Reynir Ingibjartsson
Undirtitill þessarar bókar er Náttúran við bæjarvegginn og er óhætt
að segja að hér sé kominn kjörgripur fyrir útivistarfólk, því margir í
þeim hópi halda sér við með hæfilegum göngutúrum yfir svörtustu
vetrarmánuðina og síðan þarf ekki að taka fram að bókin missir síð-
ur en svo gildi sitt þegar dag tekur að lengja á ný. Í Bókatíðindum er
bókinni svo lýst: -Hér er lýst 25 gönguleiðum á svæðinu kringum
Esju, Akrafjall og Skarðsheiði, auk undirlendisins við Hvalfjörð. Kort
og leiðbeiningar fylgja hverjum gönguhring. 161 blaðsíða.
Það er Salka forlag sem gefur bókina út.
![Page 76: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/76.jpg)
76 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Stóra bókin um villibráð – Úlfar Finnbjörnsson
Frá þessari bók greindum við í síðasta tölublaði Veiðislóðar.
Fengum þá góðfúslegt leyfi til að birta dálítið efni úr bókinni, en
óhætt er að segja að komin sé biblía fyrir þá sem skjóta og vilja
verka og elda sjálfir. Fjölda verkunarferla og uppskrifta Úlfars er að
finna í bókinni sem auk þess er ríkulega myndskreytt ljósmyndum
Karls Peterssons og teikningum Jóns Baldurs Hlíðberg. Áhersla er
lögð á nýtingu alls hráefnis sem til fellur af villibráð og segir það
nokkra sögu um sviðið sem bókin nær yfir. Algjör galdragripur.
Úlfar dregur línuna hér við spendýr og fugla, lax og silungur kemur
kannski seinna, en fjölbreytnin er aðall þessarar bókar samt sem
áður, þannig eru all nokkrar uppskriftir að selkjöti og hval, auk þess
sem all nokkrar uppskriftir eru að fýl (múkka) sem mörgum myndi
líklega ofbjóða að leggja sér til munns, en lítur og hljómar furðu
girnilega út í meðförum Úlfars. Það sem síðan gefur þessari bók
enn meiri vigt er sú staðreynd að sjálfur er Úlfar veiðimaður af lífi
og sál....og sú sál flæðir yfir blaðsíðurnar.
Það er Salka forlag sem gefur bókina út.
Bara vatn og fiskur – Pálmi Einarsson
Síðast en ekki síst birtist þessi sérstaka bók í þessu jólabókaflóði,
sem stendur nú heldur betur undir nafni hvað veiðimenn varðar.
Það er Pálmi Einarsson hjá Designhouseone sem hefur sent frá
sér bókina Bara vatn og fiskur.
Lesendur VoV og Veiðislóðar eiga orðið að þekkja vel til Pálma
sem nokkrum sinnum hefur leyft okkur að birta stórfallegar
ljósmyndir sínar af bökkum vatnanna. Hér kveður við líkan tón
og viðfangsefnin eru nokkrar af sömu ám og við höfum fengið
að njóta, t.d. Stóra Laxá, Hafralónsá, Svalbarðsá og Laxá í Kjós.
Í fréttatilkynningu sem Pálmi sendi okkur segir eftirfarandi: Hinn
reyndi laxveiði- og veiðileiðsögumaður Pálmi Einarsson sem rekur
sitt eigið hönnunarfyrirtæki designhouseone, er að gefa út sína
fyrstu bók fyrir þessi jól. Bókin heitir Bara vatn og fiskur og telur
64 síður, fallega innbundin og saumuð og sómir sér því vel á stofu-
borði, í veiðihúsum og frammi í fyrirtækjum.
Í bókinni eru einstakar ljósmyndir af sex íslenskum laxveiðiám,
ásamt áhugaverðum og nytsamlegum ráðum með skýringa-
rmyndum. Myndirnar tók Pálmi í veiðiferðum sínum s.l. tvö sumur
og byggjast ráðin á áralangri reynslu hans af laxveiði. Allar skýr-
ingarmyndirnar teiknaði hann sjálfur og sá einnig um uppsetningu
og umbrot. Bókin mun m.a. fást í öllum helstu veiðibúðum lands-
ins. Nánari upplýsingar um sölustaði má finna á heimasíðunni,
www.designhouseone.com. Þar er einnig hægt að skoða nokkrar
opnur úr bókinni sem verður gefin út á ensku, þýsku og frönsku í vor.“
![Page 77: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/77.jpg)
Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal
BESTA URRIÐAVEIÐISVÆÐI Í HEIMI! Veiðileyfin færðu á SVFR.IS
77
![Page 78: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/78.jpg)
villibráð
Vín
Ávöxturinn þarf að skila sér með villibráðinni....Vín og villibráð fara afar vel saman. En það er þó í sjálfu sér mikil einföldun að segja svoleiðis og hér er ekki verið að ræða um víndrykkju víndrykkjunnar vegna. Heldur, að villibráð er einstakt hráefni og oft og iðulega bragðmikil að ekki sé minnst á meðlætið sem samanstendur af ýmsu og kallar á, að ef drekka á vín með matnum á annað borð, þá er mikilvægt að það vín sé valið af kostgæfni til að hámarka ánægjuna við að snæða villibráðina. Sem í mörgum tilvikum var veidd af fjölskyldumeðlimi eða vini, sem eykur á gildi máltíðarinnar.
78 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Það er dálítið af snjöllum vínsmökkurum
hér á landi og sumir þeirra eru býsna þró-
aðir og nánast fjölkunnugir í greininni. Einn
þeirra er Hafliði Loftsson verkfræðingur sem
hefur haft áhuga á vínum frá því að hann
var ungur maður, en hann rekur fyrirtækið
Ber ehf, sem flytur inn nokkur af þekktustu
og bestu vínum Spánar. Hafliði er einn tólf
félaga í Ítalska vínklúbbnum, stendur þar
vaktina ásamt nokkrum af þekktustu vín-
smökkurum landsins. Má þar nefna kempur
á borð við Einar Thoroddsen, Börk Aðal-
steinsson, Hörð Arnarson og Sigurð Sigfús-
son. Maður skyldi því ætla að Hafliði viti
hvað hann syngur.
Nú fara í hönd jól og áramót og vitað mál
að á fjölmörgum heimilum er villibráð á
borðum. Mjög víða á báðum stóru hátíðun-
um. Þá erum við að tala um allt frá graflaxi
og reyktum laxi upp í rjúpu, gæs eða hrein-
dýrasteik. Síðustu árin hefur verið hægt að
nálgast erlenda villibráð í stórmörkuðum,
en við báðum Hafliða að segja okkur hvaða
vín færu best með hreinræktaðri íslenskri
veiðibráð, laxi, silungi, gæs, önd, rjúpu og
hreindýri.
En fyrst aðeins nánar um nefndan Hafliða.
„Ég er eiginlega alæta á vín, en hrifnastur er
ég af spænskum vínum. Upphaflega heillað-
ist ég af vínum frá Rioja héraði. Vínáhuginn
á sennilegast rætur að rekja til þess að ungur
fékk ég mikinn áhuga á eldamennsku og
við hjónin deilum þeim áhuga. Tengslin
milli vína og matar eru afar sterk. Ég er
örugglega talinn með meiri sérvitringum í
þessari grein, t.d. þyki ég frekar hallur undir
ung vín, gagnstætt mörgum félaga minna
í Ítalska vínklúbbnum. Þá er ég hlynntur
því að fara ekki endilega troðnar slóðir og
segi t.d. að þó að meginreglan sé talin vera
![Page 79: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/79.jpg)
79
hvítvín með fiski, rauðvín með kjöti, þá má
alveg blanda þessu saman og hún er ágæt
reglan sem segir, að ef þér finnst vínið gott,
þá passar það með matnum sem þú ert að
borða. Ég var einu sinni á veitingahúsi á
Spáni og pantaði hvítvín með ákveðnum
forrétti. Hann átti ekki þetta tiltekna vín en
svaraði því að bestu hvítvínin væru alltaf
rauð, en það er gaman að því að með aldr-
inum nálgast þessi vín talsvert í lit, hvítvínin
dökkna og rauðvínin fölna. Þeir á Spáni
drekka t.d. nær eingöngu rauðvín með
saltfiskinum. Málið með að velja vín, er að
velja það sem gefur skörp skil. Hátíðarmatur
eins og villibráð er oft með bragðmiklum
hliðarmat, eins og sultu og sósum og það er
ekki góður praxís að vera með mat uppi í sér
þegar maður sýpur á víninu.“
Og meðmælin ...
Hreindýr
Hreindýr er víða á hátíðarmatseðli veiðimanna og menn elda
það á mismunandi vegu. Hreindýrakjöt er öflugt villibráðarkjöt
og Hafliði segir: „Það eru margir þeirrar skoðunar að hrein-
dýravín eigi að vera dökk og kraft- og bragðmikil rauðvín. Það
er álitamál, sumir vilja ung vín, aðrir vel þroskuð. Ávöxturinn
þarf að skila sér með villibráðinni. Ég myndi segja að góð rauð-
vín með hreindýri séu til dæmis Valbuena og Alion frá Vega
Sicilia í Ribera del Duero. Vínin frá Vega Sicilia eru mjög dýr
vín og voru meira að segja lengi þau dýrustu þarna suður frá.
Síðan eru önnur vín komin yfir þá og þeir eru frekar svekktir að
vera ekki lengur dýrastir. Ribera del Duero er hérað á hásléttu
norðan við Madrid og af flestum talið merkasta rauðvínshérað
Spánar. Þar er vínið unnið í 8-900 metra hæð og þar er frost
og kuldi þegar svo ber undir. Það drepur alls kyns óværu og
gefur víninu þaðan ákveðinn ferskleika. Gran Cruor frá N-A
horni Spánar er einnig tilvalið, en það hefur verið valið bezta
Syrah vín Spánar 3 ár í röð. Þá má nefna að Castillo Perelada
5 Fincas er prýðisgott alhliða villibráðarvín. 5 Fincas er frá 5
mismunandi víngörðum, m.a. Finca Malaveinas, sem útleggst
búgarður vonda nágrannans. Þetta er dökkt og mikið vín sem
nær allri villibráð.“
Hafliði Loftsson
![Page 80: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/80.jpg)
Gæs
Grágæs og heiðagæs er víða á hátíðarborðum og
hvort heldur er að menn eru að éta bráð sína yfir
hátíðirnar eða á öðrum tímum, þá er gott vín mikil-
vægt. „Gæsin liggur aðeins á milli í vínum. Ég mæli
hér með Pesquera frá Ribera del Duero og enn
fremur Guelbenzu Evo Cabernet Sauvignon frá
Navarra. Segja má að þessi vín séu nokkuð frönsk
í stíl, þau eru ekki eins kraftmikil og þau sem ég
hef áður nefnt, en samt dökk og berjamikil. Kraft-
urinn liggur gjarnan í þrúgunni og þau sem virka
best með villibráð eru að minnsta kosti sæmilega
kröftug. Allt fer þetta þó eftir smekk hvers og eins.“
80 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Rjúpa – ein er upp til fjalla
„Rjúpa kallar á ívið mildari vín heldur en hreindýr-
ið. Vínið má ekki rúlla yfir rjúpuna og sömuleiðis
öfugt. Við þurfum að finna þroskaðra og mýkra vín,
sem þýðir eldra. Það besta sem mér dettur í hug er
Vina Pedrosa og Valduero Reserva frá Ribera del
Duero.
Önd
Líklega er önd ekki eins tíð á veisluborðum há-
tíðanna og það sem á undan er nefnt, en margir
veiðimenn hafa þær á boðstólum til hátíðarbrigða.
Hafliði segir: „Valduero Reserva, Condado de
Haza og Dehesa la Granja smellpassa með önd.
Þau eru mild en samt þroskuð. Þetta eru vín sem
ég myndi enn fremur mæla með til að hafa með
lambakjöti, en sumum finnst íslenska lambið vera
hálfgildings villibráð þannig að það er allt í lagi að
nefna það hér í leiðinni.“
villibráð
![Page 81: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/81.jpg)
81
Lax og silungur
Lax og silungur eru ekki mikið notaðir sem aðalréttir yfir há-
tíðirnar, en grafnir og reyktir eru þeir geysilega algengir í for-
réttum og á hlaðborðum. Graflaxinn er margvíslegur og krydd-
blöndurnar eru líklega jafn margar og „grafarnir“ eru. Reyktur
laxfiskur er lang bestur taðreyktur, þá fæst einstakt bragð sem
gerir kröfur til vínsins. Margur myndi væntanlega álíta að hér
myndi Hafliði tína til einhver hvítvín, en svo er ekki. Hér mælir
sérfræðingurinn með freyðivíni og getur þess að það passi
einnig með t.d. skelfiski, sushi og öflugum fiskisúpum. „Kol-
sýran í víninu hreinsar bragðið í munninum, frískar það upp,
en í þessum laxfiskum er gjarnan mikið krydd og salt og veitir
ekki af svona hressingu í kjölfarið. Ég myndi mæla með Cava
freyðivínunum, en þau eru framleidd með sömu aðferðum
og kampavínin og hafa sams konar vottun. Þau eru flest frá
norðausturhorni Spánar og þau eru flokkuð í fimm flokka sam-
svarandi Kampavínum, Brut Nature sem er alþurrt, síðan Brut,
Seco og Semi Seco sem eru sætari og loks Dulce sem telst
sætt. Allt fer þetta eftir viðbætta sykrinum og velur hver fyrir
sig. Þó eru þurrari vínin venjulega drukkin með mat eða ein
og sér sem fordrykkir en þau sætu frekar með eftirréttum, jafn-
vel tertum. Nefna má Castillo Perelada í þessum sambandi en
vín úr þremur þurrustu flokkunum eru nú fáanleg í Vínbúðum
Lýðveldisins.
Ekkert hvítvín?
Það hefur komið okkur dálítið í opna skjöldu
hvað Hafliði er lítið að ræða hvítvínin. Hann
hefur meira að segja talað um rauðvín með
smjörsteiktum silungi og laxi, en það er
önnur saga sem við tökum kannski upp
með vorinu. En engin hvítvín? „Jú, hvít-
vín passa oft og þá helst með fiski. En með
hvítvín þá dettur mér helst í hug, að á stöku
sérvitru heimili er hafður reyktur áll í for-
rétt og þeim rétti passar vel sérviskulegt og
bragðmikið hvítvín sem heitir Palacio de
Bornos Verdejo. Það er sýruríkt og kraft-
mikið, frísklegt og hentar reyndar vel með
skelfiski og flestum sjávarréttum.“
Svo mörg voru þau orð Hafliða og af-
skaplega líklegt að við leitum oftar í smiðju
til hans. Hann nefndi t.d. rauðvín með
steiktum laxfiski eins og áður var getið, við
ræddum einnig um góð svartfuglavín og
fleira og fleira. Það bíður betri tíma.
Hafliði Loftsson
![Page 82: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/82.jpg)
græjur ofl.
Heat Factory er bandarískur framleiðandi að varmapúðum. Varmapúðarnir hitna þegar innihaldið kemst í samband við súrefni. Pokarnir hitna í upp-undir 40 gráður og haldast heitir í allt að 10 klukkustundir. Heat Factory pokarnir eru fáanlegir í húfur, sokka og vettlinga svo eitthvað sé nefnt. Heat Factory framleiðir einnig ullarvettlinga, sokka og annan fatnað sem er búinn vösum fyrir pokana.
Heat Factory varmapúðarnir eru mun ódýrari hér á landi en t.d. á skíðasvæðum Evrópu en par af varmapúðum kostar ekki nema um 200 krónur. Heat Factory vörurnar eru tilvaldar í vor- og haustveiðina, skotveiðina og alla almenna útivist á veturnar. Heat Factory er einhver heitasta jóla-gjöfin í Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5 – www.Veidimadurinn.is
82 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Heat Factory – heitasta jólagjöfin?
Klárlega vinsælasta öngulheldan á markaðnum. Þessi danska hönnun og framleiðsla sló strax í gegn fyrir 15 árum þegar fyrstu eintökin voru flutt inn. Danvise er svokallaður „True Rotary“ væs en hann er byggður þannig upp að leggur öngulsins er í sama plani og öxull verkfærisins. Þetta gerir það að verkum að hægt er að snúa flugunni rétt um sjálfa sig, án hjámiðju og nota
þannig snúning öxulsins í stað þess að vefja búkklæðningu eða vöfum utan um flugulegg. Helsti kostur Danvise er þó sá að hann heldur öngli betur en flestir aðrir „væsar“ (öngulheldur), jafnvel mikið dýrari verkfæri. Danvise fæst í Veiðihorninu Síðumúla 8 og í Sportbúðinni Krókhálsi 5 og kostar aðeins 9.995.
Fyrir hnýtarann - Danvise
![Page 83: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/83.jpg)
Vibe flugulínurnar standa fyrir sínu
Magnaður vöðlujakki frá G.Loomis
Hrygnan í Síðumúla er með nýjung í flugulínum. Vibe 85 og Vibe 125 eru nýjar flugu-línur frá Vision sem komið hafa skemmtilega á óvart og reynst einstaklega vel hér á landi sem annars staðar. Vibe línan er með teflonblandaða húð sem gerir hana þjála og meðfærilega, meira svo en gengur og gerist, og aukinheldur eru þessar línur fyrir vikið lausar við hið hvimleiða „minni“ sem leggst á sumar línur í köldu veðri. Kjarninn er auk þess ekki mjög sveigjanlegur og veldur því að veiðimenn finna betur fyrir tökunni en ella, auk þess sem línan vinnur betur.
Veiðiflugan, www.veidiflugan.is er með þessa vöru á boðstólum: G.Loomis vöðlujakkinn er einn sá allra öflugasti og er hann framleiddur úr bestu mögulegu hráefnum. G.Loomis hefur boðið upp á þenna glæsilega MAX vöðlujakka sem hefur þá kosti að vera fisléttur og hafa 20,000 mm vatnsheldni ásamt Sympatex öndun.
Vibe 85 er með 8,5 metra „haus“. Þyngd haussins er vandlega merkt og tilmæli um réttar stangir liggja fyrir. Vibe 85 er þyngri heldur en sem svarar til AFTM viðmiðsins. Það þýðir að lína sem merkt er fyrir stangir 5-6 virka best á stífari fimmur og mýkri sexur, svo dæmi sé tekið. Vibe 85 er í essinu sínu í þrengslum. Aftur á móti er Vibe 125 með 12,5 metra haus sem gerir hana að betri alhliðalínu. Þar sem hausinn er lengri, virkar línan léttari en Vibe 85 og hún er auk þess nær AFTM viðmiðinu og ber að taka mið af því þegar línuþyngdin er valin samkvæmt viðmiði stangarinnar.
Allir rennilásar eru soðnir sem gerir hann mun öflugri en ella, enda ætti þessi jakki að halda mönnum þurrum í alvöru rign-ingum. Jakkinn hefur stillanlega hettu, franska lása á úlnliðum, ásamt hlífum til að verjast því að vatn komist inn í ermar. Frábær Jakki sem er framleiddur í Evrópu . Verð aðeins kr. 69.900.-
83
![Page 84: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/84.jpg)
græjur ofl.
Veiðiflugan, www.veidiflugan.is er með þessa vöru á boðstólum: Primus hitabrúsar og könnur eru bráðnauðsynlegur hluti af búnaði veiðimannsins hvort sem er til að halda kaffinu eða kakóinu heitu, eða einhverjum öðrum drykk köldum. Hitabrúsarnir eru úr burstuðu stáli og koma með aukatappa fyrir auka einangrun ef geyma þarf vökvan heitan eða kaldan lengi.
Það færist í vöxt að veiðimenn séu með hnýtingartólin með sér í veiði, enda vita menn á stundum ekki hvaða aðstæður geta dúkkað upp og þá er gott að vera við öllu búinn. Í Vesturröst er skemmtileg hnýtingataska sem vert er að kíkja á.
Verð kr. 6,500,- Kannan hefur siliconþéttingu í loki ásamt þrýstitappa til opnunar eða lok-unar, passar í flestar könnuhöld-ur í bifreiðum. Verð kr. 5.500-
„Þessi er frá Airflo og er flott gjöf fyrir fluguhnýtarann. Fáir eiga svona. Þetta er fluguhnýtingar-taska , stærð 30cm x 45cm x 5cm. Stór vönduð taska fyrir efnið, fullt af hólfum fyrir efnið. Aðeins 12.900 kr. Sjón er sögu ríkari,“ segir Ingólfur í Vesturröst.
84 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Fyrir pásurnar!
Hnýtingartaska sem fáir eiga
![Page 85: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/85.jpg)
Nýir tímar í vöðlum, þessar leka ekki!
Reykofn – afar vinsæl jólagjöf
Hrygnan í Síðumúla er með nýj-ung í vöðlum. Vision er að koma á markað með nýjar vöðlur og er óhætt að segja að slagorðið veki vonir um þurrari og hlýrri tíma. „Ekki fleiri göt“ hljómar það og ætli það eigi ekki að þýða að senn heyri lekar vöðlur fortíðinni til? Það væri óskandi. En þeir hjá Vision eru ekki að grínast og segjast vera komnir með nýja tækni sem taki fyrir að vöðlur gangi sér til húðar eða skaddist og fari að leka. Visionvörurnar fást í Hrygnunni.
Þetta eru hinar nýju Ultra vöðlur og má segja að grundvallaratriði í lekaleysi þeirra sé að hér er um að ræða saumalausar vöðlur sem byggja á nýrri tækni í sam-setningu trefjanna. Útkoman er afar léttar vöðlur án sauma og án íþyngjandi teipunar á innra byrði. Þær eru reyndar teipaðar
Ron Thompson reykofn er alltaf vinsæll og ekki síst í jólagjafir. Á því er engin undantekning fyrir þessi jólin, nú þegar hefur þurft að taka aukasendingar með hraði. Heitreyking með Ron Thompson reykofni er bæði einföld og fljótleg en ekki tekur nema um 20 til 30 mínútur að heitreykja flök eða bringur. Þú færð allar upplýsingar um heitreykingu með Ron Thomp-son reykofni í Veiðihorninu Síðumúla 8. Beykisag sem margir veitingastaðir á höfuð-
innra, með léttu efni, bara til frekara öryggis!
Ultra vöðlurnar eru smíð-aðar með það fyrir augum að veiðimenn geti vaðið djúpt út í ána eða vatnið. Þrír vasar eru framan á vöðlunum, sá stærsti þeirra hátt uppi á bringu með vatnsheldum rennilási, hinir tveir smærri beint þar niður af. Sá stóri er svo hátt að vatn á ekki að renna ofan í hann frekar en ofan í vöðlurnar til veiðimanna. Þá eru festingar fyrir tangir og mál-bönd og vöðlur þessar eru ofan á annað með allt það helsta sem prýðir „venjulegar“ vel sniðnar og samansettar vöðlur. Ekki spillir smekkleg litasamsetning þeirra. SJón er sögu ríkari.
borgarsvæðinu nota fæst einnig í Veiðihorninu. Ron Thompson reykofn kostar aðeins 8.995 kr. í Veiðihorninu Síðumúla 8 og í Sportbúðinni Krókhálsi 5. – www.Veidimadurinn.is
85
![Page 86: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/86.jpg)
græjur ofl.
Allt í fluguhnýtingarnar eftir áramótin. Í byrjun nýs árs hefst fluguhnýtingavertíðin. Veiði-hornið mun hér eftir sem hingað til bjóða eitthvert mesta úrval af hnýtingaefni hér á landi. Meðal þess helsta sem Veiðihornið mun bjóða í fluguhnýtingaefni eru tvö vinsælustu skandinavísku túpukerfin. Annars vegar er það finnska kerfið frá Eumer en það kerfi byggir mest á þungum túpum. Í því kerfi eru fáanlegar
Veiðiflugan, www.veidiflugan.is er með þessa vöru á boðstólum: Fluggæsirnar frá Sillosocks hafa sannað sig hér á landi undanfarin ár og eru að verða vinælli og vin-sælli með hverri vertíðinni. Þessi viðbót við gervigæsaflóruna er í einu orði sagt alveg frábær og er það ekki nokkrum blöðum
gulrótarlaga eirtúpur og passandi keilur sem tilvalið er að nota fyrir Frances og Snældu. Hins vegar er það hið frábæra kerfi frá Pro-Tube en það kerfi sló í gegn hjá okkur í fyrra. Fjöldi stórlaxa lét glepjast af ProTube flugum liðið sumar þegar ýmsar nýjungar voru prófaðar af veiðimönnum um allt land. ProTube og Eumer túpukerfin verða fáanleg í góðu úrvali í Veiðihorninu Síðumúla 8 í janúar.
um það að fletta að sú hreyfing sem er á þessum gerfifuglum er að nær athygli og áhuga inn-komandi gæsa. Þær koma með stöng til að fljúga á og eru mun sterkari en ætla mætti við fyrstu sýn. Frábær viðbót í gervigæ-saflóruna hjá öllum gæsaveiði-mönnum. Gæsirnar eru seldar stakar og kosta aðeins 6.990 kr.
86 VEIÐISLÓÐ • tímarit um sportveiði og tengt efni • 6. tbl. 2011
Eumer og Pro tube – nýjungar í hnýtingum
Jafnvel gáfuðustu gæsir falla fyrir þessu!
![Page 87: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/87.jpg)
Hrygnan með allt til hnýtinga
Vönduð taska fyrir veiðihjólin
Nú fer í hönd sá tími ársins að fluguveiðimenn eru hvað ákafastir að berja saman nýjar flugur fyrir komandi vertíð. Alltaf vantar eitthvað uppá og í Hrygnunni finnst flest ef ekki allt sem máli skiptir.
Kristín í Hrygnunni hefur viðað að sér öllu mögulegu og ómögulegu til hnýtinga, meðal annars væsa sem hlaupa á bilinu 1.690 krónur og upp í 14.900 krónur. „Ég er með hnýtingar-vörur frá Veniard, Hareline, Eumer, Kamasan króka og svo alls konar áhöld. Verðum líka með hnýtingarnámskeið í janúar og febrúar, segir Kristín.
Það er ótækt að troða, t.d. veiðihjólunum beint ofan í veiðitösku án þess að hirða um að skýla þeim. Þau geta virkað sterkleg, en hjól eru líka viðkvæm og góð með-ferð og umhirða skilar sér ævinlega á endanum. Það á við um allan búnaðinn. Í Vestur-röst fást mjög fallegar alhliða veiðitöskur.
Ingólfur í Vesturröst segir: „Stór vönduð taska fyrir veiði-hjól, box, fatnað og fleira. Stórt hólf í miðju þar sem hægt er að setja saman, jakkann, vöðlurnar og skóna. 10 hjóla taska í loki, tveir stórir vasar á hliðum og tveir stórir vasar að framan. Fóðruð axlaról. Glæsileg fjölnota taska og maður þarf ekki mikið meira til að koma öllu fyrir.“
87
![Page 88: Veidislod 6. tbl 2011](https://reader035.vdocuments.pub/reader035/viewer/2022081418/568bd7551a28ab20349f5579/html5/thumbnails/88.jpg)
VEIÐISLÓÐtímarit um sportveiði og tengt efni
Útgefandi:GHJ útgáfa ehf.
Ritstjórn:Guðmundur Guðjónsson, ritstjóriHeimir Óskarsson, útlit og umbrotJón Eyfjörð Friðriksson, greinaskrif
Netfang: [email protected]