stykkishólms-pósturinn 17.janúar 2013

6
Stykkishólms - Póstinum er dreift ókeypis í Stykkishólmi og liggur frammi í Grundarfirði, Ólafsvík, Hellissandi og Búðardal. Uppl. 630 eint. og kemur út á fimmtudögum. Útgefandi: Anok margmiðlun ehf, Nesvegi 13, 340 Stykkishólmi. Sími: 534 2120. Prentun: Steinprent ehf Ólafsvík. Veffang: www.stykkisholmsposturinn.is Netfang: [email protected] SÉRRIT - 2. tbl. 20. árg. 17. janúar 2013 Í síðustu viku fór fram árleg talning vetrarfugla við norðanvert Snæfellsnes en talningin er hluti af landstalningu sem Náttúrufræðistofnun Íslands heldur utan um. Talningarmenn voru starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi, ásamt öðrum áhugamönnum um fugla. Talið var á nokkrum hefðbundnum talningarsvæðum með ströndinni (sjá kort). Á talningarsvæðunum við Snæfellsnes var fjöldinn hreint ótrúlegur eða 52.445 fuglar af 39 tegundum. Að frádregnu einu nýju talningarsvæði, töldust nú 64% fleiri fuglar en á síðasta ári, sem þó var metár. Svartbakur, sem fækkað hefur í flestum landshlutum á síðustu áratugum, var algengastur og virðist sem meirihluti landsstofnsins haldi sig nú við sunnanverðan Breiðafjörð. Hvítmáfur var næstalgengastur en hann verpur einkum í fjöllum við Breiðafjörð og á Vestfjörðum en æðarfugl, langalgengasta öndin hér við land, var þriðja algengasta fuglategundin í talningunni. Af sjaldgæfari fuglum má nefna haförn, fálka, gulönd, æðarkóng og silkitoppu. Tafla: Fjöldi einstaklinga af þeim tegundum sem sáust í talningunni við norðanvert Snæfellsnes. Misjafnt er hversu lengi hefur verið talið á hverju svæði. Athyglis- vert er að skoða seríu talninga úr Kolgrafafirði og Hraunsfirði síðastliðin 13 ár en svæðið nær með ströndinni frá Eiði í vestri að brúnni yfir Hraunsfjörð í austri. Fyrstu árin var algengast að heildarfjöldi fugla væri 1.000-2.000 á þessu svæði en nú voru á sama svæði um 25.000 fuglar! Af breytingum hjá einstökum tegundum má nefna svartbak en á árunum 2000-2005 var meðalfjöldi svart- baka t.d. 8. Nú voru svartbakar meira en þúsund sinnum fleiri eða 10 þúsund talsins á þessu talningarsvæði. Þessi fjölgun skýrist af tilflutningi en ekki því að stofninn hafi stækkað sem þessu nemur. Skýringin á þessu gríðarlega fuglalífi er mikið og að því er virðist nokkuð fjölbreytt æti. Í fyrsta lagi er um að ræða dauða síld, en eins og kunnugt er drápust um 30 þúsund tonn af síld í Kolgrafafirði Ótrúlegur fjöldi fugla við norðanvert Snæfellsnes um miðjan desember. Hún rotnar nú og myndar olíukennda brák á yfirborði sjávar. Þar finna fuglarnir bita úr síld og jafnvel eina og eina heila inni á milli. Á útfalli rennur hluti brákarinnar út undir brúna sem þverar fjörðinn en meginhluti rotnandi síldarinnar er þó inni í firðinum og litar hann sums staðar gráhvítan. Í öðru lagi er mikið af lifandi síld á svæðinu frá Grundarfirði austur í Stykkishólm, langmest þó á utanverðum Kolgrafafirði (Urthvalafirði) og í nágrenni við Jónsnes í Helgafellssveit. Síldinni fylgja tugir háhyrninga og oft súlur en flestir fuglar eiga erfitt með að sporðrenna heilli síld af þeirri stærð sem algengust er á svæðinu. Þeir njóta þó góðs af bitum sem fljóta upp á yfirborðið eftir atgang sjávarspendýra og súlna. Í þriðja lagi virðist sem talsvert sé af seiðum þorskfiska á svæðinu en þau eru vinsæl fæða margra tegunda. Í ljósi þess gríðarlega fjölda fugla sem heldur sig í nágrenni við rotnandi síldina eru raunveruleg hætta á að þúsundir fugla fái grút í fiðrið, geti lent í alvarlegum vanda og í versta falli drepist á næstu vikum og mánuðum. Af þeim sökum ætlar Náttúrustofa Vesturlands að kalla saman sérfræðinga til að ræða skref til að undirbúa mögulegar aðgerðir. Náttúrustofan beinir því einnig til vegfarenda um þessi svæði að hafa augun opin fyrir fuglum í vanda og tilkynna um slíkt. Þá vill Náttúrustofan beina því til skotveiðimanna að skjóta ekki á fugla í Kolgrafafirði. Fuglarnir í firðinum gegna mikilvægu hreinsunarstarfi og best er að þeir fái frið til þess. Því fleiri fuglar, því meira af síldinni er étið og því minni verður umhverfismengunin. Samantekt Róbert A. Stefánsson TEGUND Fjöldi TEGUND Fjöldi Svartbakur 17.316 Lómur 36 Hvítmáfur 12.498 Urtönd 31 Æðarfugl 8.827 Teista 30 Fýll 4.545 Haförn 25 Ógr. máfur 1.562 Ógr. skarfur 24 Bjartmáfur 1.483 Tildra 24 Stokkönd 1.126 Gulönd 17 Toppskarfur 1.084 Auðnutittlingur 9 Dílaskarfur 695 Silfurmáfur 8 Súla 500 Stormmáfur 5 Tjaldur 476 Silkitoppa 5 Hettumáfur 368 Skúfönd 4 Hrafn 302 Himbrimi 3 Stari 283 Stelkur 3 Álft 209 Skógarþröstur 2 Rauðhöfðaönd 188 Æðarkóngur 2 Toppönd 188 Fálki 1 Sendlingur 164 Rjúpa 1 Snjótittlingur 162 Rita 1 Hávella 128 Músarrindill 1 Straumönd 109 Samtals 52.445 Úthlutun úr lista- og menningarsjóði 7. janúar s.l. var haldinn 37. fundur lista- og menningarsjóðs Stykkishólmsbæjar. Eftirfarandi úthlutanir voru samþykktar af stjórn, sem skipuð er Lárusi Á. Hannessyni, Gretari D.Pálssyni og Hólmfríði Friðjónsdóttur: 1. Lúðrasveit Stykkishólms kr. 100.000,-. 2. Kór Stykkishólmskirkju kr. 150.000,-. 3. Sumartónleikaröð kirkjunnar kr. 150.000,-. 4. Vorvaka Emblu kr. 100.000,- 5. Aftanskin kr. 100.000,- 6. Karlakórinn Kári kr. 100.000,- 7. Hebbarnir kr. 100.000,- 8. Árnamessa kr. 50.000,-. 9. Gamla kirkjan kr. 100.000,-. 10. Leikfélagið Grímnir kr. 250.000,- 11. Vélsleðasafnið kr. 100.000,- Samtals kr. 1.300.000,-.

Upload: stykkisholms-posturinn-baejarblad-stykkisholms

Post on 03-Mar-2016

245 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

Bæjarblað Hólmara nær og fjær síðan 1994. 20. árgangur 2. tbl.

TRANSCRIPT

Page 1: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms - Póstinum er dreift ókeypis í Stykkishólmi og liggur frammi í Grundarfirði, Ólafsvík, Hellissandi og Búðardal. Uppl. 630 eint. og kemur út á fimmtudögum. Útgefandi: Anok margmiðlun ehf, Nesvegi 13, 340 Stykkishólmi. Sími: 534 2120. Prentun: Steinprent ehf Ólafsvík.

Veffang: www.stykkisholmsposturinn.is

Netfang: [email protected]

SÉRRIT - 2. tbl. 20. árg. 17. janúar 2013

Í síðustu viku fór fram árleg talning vetrarfugla við norðanvert Snæfellsnes en talningin er hluti af landstalningu sem Náttúrufræðistofnun Íslands heldur utan um. Talningarmenn voru starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi, ásamt öðrum áhugamönnum um fugla. Talið var á nokkrum hefðbundnum talningarsvæðum með ströndinni (sjá kort).Á talningarsvæðunum við Snæfellsnes var fjöldinn hreint ótrúlegur eða 52.445 fuglar af 39 tegundum. Að frádregnu einu nýju talningarsvæði, töldust nú 64% fleiri fuglar en á síðasta ári, sem þó var metár. Svartbakur, sem fækkað hefur í flestum landshlutum á síðustu áratugum, var algengastur og virðist sem meirihluti landsstofnsins haldi sig nú við sunnanverðan Breiðafjörð. Hvítmáfur var næstalgengastur en hann verpur einkum í fjöllum við Breiðafjörð og á Vestfjörðum en æðarfugl, langalgengasta öndin hér við land, var þriðja algengasta fuglategundin í talningunni. Af sjaldgæfari fuglum má nefna haförn, fálka, gulönd, æðarkóng og silkitoppu.

Tafla: Fjöldi einstaklinga af þeim tegundum sem sáust í talningunni við norðanvert Snæfellsnes.

Misjafnt er hversu lengi hefur verið talið á hverju svæði. Athyglis-vert er að skoða seríu talninga úr Kolgrafafirði og Hraunsfirði síðastliðin 13 ár en svæðið nær með ströndinni frá Eiði í vestri að brúnni yfir Hraunsfjörð í austri. Fyrstu árin var algengast að heildarfjöldi fugla væri 1.000-2.000 á þessu svæði en nú voru á sama

svæði um 25.000 fuglar! Af breytingum hjá einstökum tegundum má nefna svartbak en á árunum 2000-2005 var meðalfjöldi svart-baka t.d. 8. Nú voru svartbakar meira en þúsund sinnum fleiri eða 10 þúsund talsins á þessu talningarsvæði. Þessi fjölgun skýrist af tilflutningi en ekki því að stofninn hafi stækkað sem þessu nemur.Skýringin á þessu gríðarlega fuglalífi er mikið og að því er virðist nokkuð fjölbreytt æti. Í fyrsta lagi er um að ræða dauða síld, en eins og kunnugt er drápust um 30 þúsund tonn af síld í Kolgrafafirði

Ótrúlegur fjöldi fugla við norðanvert Snæfellsnes

um miðjan desember. Hún rotnar nú og myndar olíukennda brák á yfirborði sjávar. Þar finna fuglarnir bita úr síld og jafnvel eina og eina heila inni á milli. Á útfalli rennur hluti brákarinnar út undir brúna sem þverar fjörðinn en meginhluti rotnandi síldarinnar er þó inni í firðinum og litar hann sums staðar gráhvítan. Í öðru lagi er mikið af lifandi síld á svæðinu frá Grundarfirði austur í Stykkishólm, langmest þó á utanverðum Kolgrafafirði (Urthvalafirði) og í nágrenni við Jónsnes í Helgafellssveit. Síldinni fylgja tugir háhyrninga og oft súlur en flestir fuglar eiga erfitt með að sporðrenna heilli síld af þeirri stærð sem algengust er á svæðinu. Þeir njóta þó góðs af bitum sem fljóta upp á yfirborðið eftir atgang sjávarspendýra og súlna. Í þriðja lagi virðist sem talsvert sé af seiðum þorskfiska á svæðinu en þau eru vinsæl fæða margra tegunda. Í ljósi þess gríðarlega fjölda fugla sem heldur sig í nágrenni við rotnandi síldina eru raunveruleg hætta á að þúsundir fugla fái grút í fiðrið, geti lent í alvarlegum vanda og í versta falli drepist á næstu vikum og mánuðum. Af þeim sökum ætlar Náttúrustofa Vesturlands að kalla saman sérfræðinga til að ræða skref til að undirbúa mögulegar aðgerðir. Náttúrustofan beinir því einnig til vegfarenda um þessi svæði að hafa augun opin fyrir fuglum í vanda og tilkynna um slíkt.Þá vill Náttúrustofan beina því til skotveiðimanna að skjóta ekki á fugla í Kolgrafafirði. Fuglarnir í firðinum gegna mikilvægu hreinsunarstarfi og best er að þeir fái frið til þess. Því fleiri fuglar, því meira af síldinni er étið og því minni verður umhverfismengunin.

Samantekt Róbert A. Stefánsson

TEGUND Fjöldi TEGUND FjöldiSvartbakur 17.316 Lómur 36

Hvítmáfur 12.498 Urtönd 31

Æðarfugl 8.827 Teista 30

Fýll 4.545 Haförn 25

Ógr. máfur 1.562 Ógr. skarfur 24

Bjartmáfur 1.483 Tildra 24

Stokkönd 1.126 Gulönd 17

Toppskarfur 1.084 Auðnutittlingur 9

Dílaskarfur 695 Silfurmáfur 8

Súla 500 Stormmáfur 5

Tjaldur 476 Silkitoppa 5

Hettumáfur 368 Skúfönd 4

Hrafn 302 Himbrimi 3

Stari 283 Stelkur 3

Álft 209 Skógarþröstur 2

Rauðhöfðaönd 188 Æðarkóngur 2

Toppönd 188 Fálki 1

Sendlingur 164 Rjúpa 1

Snjótittlingur 162 Rita 1

Hávella 128 Músarrindill 1

Straumönd 109

Samtals 52.445

Úthlutun úr lista- og menningarsjóði7. janúar s.l. var haldinn 37. fundur lista- og menningarsjóðs Stykkishólmsbæjar. Eftirfarandi úthlutanir voru samþykktar af stjórn, sem skipuð er Lárusi Á. Hannessyni, Gretari D.Pálssyni og Hólmfríði Friðjónsdóttur:

1. Lúðrasveit Stykkishólms kr. 100.000,-.2. Kór Stykkishólmskirkju kr. 150.000,-.3. Sumartónleikaröð kirkjunnar kr. 150.000,-.4. Vorvaka Emblu kr. 100.000,-5. Aftanskin kr. 100.000,-6. Karlakórinn Kári kr. 100.000,-7. Hebbarnir kr. 100.000,-8. Árnamessa kr. 50.000,-.9. Gamla kirkjan kr. 100.000,-.10. Leikfélagið Grímnir kr. 250.000,-11. Vélsleðasafnið kr. 100.000,-Samtals kr. 1.300.000,-.

Page 2: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms-Pósturinn, 2. tbl. 20. árgangur 17. janúar 2013

www.stykkisholmsposturinn.is 2 [email protected]

Heimaleikir framundan í körfunni! Í kvöld taka strákarnir á móti Grindavík og hefst leikurinn að venju kl. 19.15 Í vikunni var dregið í undanúrslitum Poweradebikarsins og fengu bæði karla- og kvennalið Snæfells heimaleiki að þessu sinni.

4-liða úrslit · Konur, leikið 25.-27. janHamar - Valur Snæfell - Keflavík

4-liða úrslit · Karlar, leikið 25.-28. janKeflavík - Grindavík Snæfell - Stjarnan

Hildur Björg Kjartansdóttir valin leikmaður umferða 13 -15 af lesendum Karfan.is Hún hlýtur titilinn Domino´s leikmann umferða 13-15. Hildur er þar með fyrsti leikmaður Snæfells þetta tímabilið til að vera valin Domino´s leikmaðurinn en þegar hafa Keflavík, Njarðvík og Haukar átt Domino´s leikmenn.Ljósmyndarar og fréttaritarar Karfan.is kjósa um þau nöfn sem sett eru síðan í könnun á Karfan.is þar sem Domino´s leikmaðurinn er svo valinn af lesendum.Að þessu sinni hlaut Hildur nokkuð sterka kosningu eða 42,23% allra atkvæða. (Frétt af karfan.is)Áfram Snæfell!

Karfan

Íslandsmótið í Pítró var haldið milli jóla og nýárs á Skildi að venju. Að sögn mótshaldara verður mótið alltaf skemmtilegra með hverju árinu og voru 32 spilarar sem leiddu saman ása sína í þetta sinn en það er svipað og hefur verið undanfarin ár. Sérstaka athygli vakti Viktori Brimi Ásmundarsyni sem er einungis 12 ára og var að keppa á sínu fjórða móti. Viktor og Björgvini Ragnars afi hans urðu í öðru sæti. Íslandsmeistarar í Pítró 2012 eru Gummi sem var á Bensó og Sigga í Bjarnarhöfn.

am/Ljósmynd Gunna Áka

Íslandsmótið í PítróBetur fór en á horfðist þegar skipstjórinn á Ronju SH-53, Símon Sturluson var við síldveiðar s.l. laugardag við annan mann á Urthvalafirði. Þetta var síðasti síldartúrinn sem hafði byrjað á því að einungis komu fimm fiskar í fyrsta net. Hafði þá hásetinn Sigurjón Grétar það á orði að þetta yrði happadagur. En þeir voru búnir að fylla sig en vantaði herslumuninn og ákváðu að leggja einu sinni enn

og leggja síðasta síldarnetið á vertíðinni. Þegar netið rennur út og endabelgurinn er á leið út í sjó þá vildi ekki betur til en að skipstjórinn stígur í lykkju og færið herðist að fætinum og var því ekkert annað en að láta sig vaða í sjóinn en báturinn var á ferð. Hásetinn, sem var í sinni annarri ferð, greip fljótlega til þess ráðs að drepa á vélinni. Á meðan fór Símon í kaf en náði að húkka löppina úr lykkjunni og hékk síðan í belgnum. 20 metra frá honum var hópur af háhyrningum og segir Símon að það hafi verið ógnvekjandi og reyndi hann að vera kyrr þessar mínútur sem hann var í sjónum til að vekja ekki athygli þeirra á sér. Logn var og dagsbirta þegar óhappið átti sér stað. Hásetinn náði að hringja í næsta bát sem var Álfur SH sem skar sína trossu frá og kom á björgunarsveitarhraða með Kristján Auðunsson undir stýri og náði skipstjóranum upp úr sjónum. Það má því segja að þetta hafi verið happadagur fyrir Símon eins og háseti hans hafði á orði fyrr um daginn. Það er ekki sjálfgefið að menn heyri í símum sínum úti á sjó, ekki vegna þess að sambandið sé endilega slæmt, heldur eru menn ekki alltaf með símann á sér, og heyra því ekki hringinguna fyrir vélarhljóðum . Kristján hefur þá góðu venju að setja símann sinn í hulstur utan á stýrishúsi bátsins svo hann heyri í honum. Eftir volkið vatt Símon föt sín og hélt áfram veiðum frameftir degi. am/Ljósm.Bátsverjar á Ronju

Happadagur í Urthvalafirði

Við í 8.bekk erum að fara á laugar eftir nokkrar vikur og spurðum við Gunnar skólastjóra nokkra spurninga um Laugar sem við vildum vita.Hvað gerum við á Laugum? Við vinnum með 4 aðalþætti þessa viku, menningu, útivist, hreyfingu, og félagsfærni.Hverjir stjórna þessu? Starfsfólk á vegum UMFÍ, forstöðukonan heitir Anna Margrét.Hvað borðar maður þarna? Það er boðið upp á hollan og góðan mat.Hvar eru Laugar? Rétt hjá Búðardal.Frá hvaða bæjum koma krakkarnir sem verða með okkur? Sennilega frá Húskavík, Hofsósi, Snæfellsbæ og Grundarfirði og svo kallast einn skólinn Litlu Laugar.Hvaða bekkir fara? Frá okkur fer 8.bekkur annars eru það 8. og 9. bekkingar sem fara.Hverju mundir þú vilja breyta við Laugar? Dagskráin hingað til hefur verið mjög góð. Það þýðir að ég mundi ekkert vilja breyta neinu.Hvað marga daga erum við á Laugum? Samtals eru það 5 dagar.

Laugar

Fylgstu með! Við erum hér!

Page 3: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms-Pósturinn, 2. tbl. 20. árgangur 17. janúar 2013

www.stykkisholmsposturinn.is [email protected]

Frúarstíg 1 - Sími 4361600

Laugardagskvöld á Narfeyrarstofu:Hátíðlegur heilsubætandi kvöldverður,

að hætti Hólmfríðar Gísladóttur heilsumarkþjálfa.Fordrykkur kl. 19- Lárperu og límónusúpa.- Graskers gnocchi með pesto.- Gulrótarflan í rauðbeðulegi.- Rósa kefir sorbet.- Zwiebel baka með kasjúhnetu osti og ferskum kryddjurtum.- Desert að hætti Hólmfríðar.- Kaffi og sætt.Verð 6900 á manninn. Borðapantanir nauðsynlegar, takmarkaður sætafjöldi.

Lifandi tónlist í framhaldinu.

NarfeyrarstofaFylgist með á Facebook

Hótel Stykkishólmur óskar eftir íbúð til leigu fyrir starfsfólk.

Reglusemi og góðri umgengni heitið.

Upplýsingar í síma 430 2100

Ferjan BaldurFrá Stykkishólmi sun-fös 15:00

Frá Brjánslæk sun-fös 18:00

Vinsamlegast athugið, sækja þarf farmiða á skrifstofu Sæferða 30 mínútum fyrir brottför.

Fasteigna- og skipasala SnæfellsnessPétur Kristinsson, hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali.Sími 438-1199Netfang: [email protected] Heimasíða: fasteignsnae.is

www.saeferdir.is

VViillttuu hhæættttaa aaðð rreeyykkjjaa ?? Ég verð með námskeið á Grundarfirði

25. janúar kl. 17.00 – 18.30 27. janúar kl. 17.00 – 18.00

Fræðsla, undirbúningur um að hætta að reykja og nálastungur

Verð fyrir 2 kvöld 8.500 kr Verð fyrir 1 kvöld, án nálastunga 5.500 kr

Ath. Flest stéttarfélög styrkja reykleysis námskeið.

Jean Cambray, Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir

Nánari upplýsingar: sími: 895-3885 www.isisheilsuhof.net

Í dag fimmtudaginn 17. febrúar 2013 verða allar Kevin.Murphy vörurnar á sérstöku tilboði Kevin.Murphy vörurnar eru paraben og súlfat fríar Sérfræðingur verður á staðnum frá kl. 13-17 Hægt er að panta tíma í K.M Djúpnæringarmeðferð á dúndurverði í dag, fimmtudag!

Hringdu strax og láttu okkur dekra við hár þitt:) s. 438-1587

HEIMAHORNIÐ

Minnum á ómótsstæðileg tilboð á fatnaði fyrir heilsuræktina!

Verið velkomin

Sími 4381119

Page 4: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms-Pósturinn, 2. tbl. 20. árgangur 17. janúar 2013

www.stykkisholmsposturinn.is 4 [email protected]

Við í 8. bekk skrifum hér litla grein um hvernig á að lifa heilbrigðu lífi í tilefni Heilsuvikunnar.Er hollara að borða lífrænt ræktað? Okkur í 8. bekk finnst það vera hollara. Í venjulegum matvælum gæti verið skordýraeitur sem er mjög óhollt mönnum. Rannsóknir sýna að fólk sem borðar mikið af mat með skordýraeitri fái frekar sjúkdóma. Lífrænt ræktað inniheldur ekkert skordýraeitur og er því hollara. Sumum finnst lífrænt ræktað jafnvel vera betra á bragðið en venjulegur matur.Hreyfing er mjög mikilvæg! Ef maður hreyfir sig ekki þá verður maður feitur. Hver hreyfing skiptir máli. Það sparar peninga að ganga eða hjóla í vinnuna í staðinn fyrir að fara á bíl og þú græðir það að fá hreyfingu. Ekki venja krakkana á það að fá far í skólann. Látið þau ganga eða hjóla! Þá fá þau hreyfingu og ferskt loft. Það fer líka betur með umhverfið.Nammi er gott og sumu fólki finnst erfitt að hætta að borða það. Ef maður vill lifa heilbrigðu lífi er gott að sleppa namminu. Nammi með litarefnum eru eitruð! Það eru efni í litarefnum sem er mjög óhollt fyrir fólk. Getur þú ekki hætt að borða nammi? Þá getur þú borðað t.d. dökkt súkkulaði í staðinn fyrir ljóst eða hvítt. Það er til lífrænt nammi sem er ekki mjög óhollt. Það eru til t.d. til sesamstangir sem eru mun hollari en venjulegt nammi.Borða hollan mat. Hvað er hollur matur? Hollur matur er t.d. grænmeti, ávextir, kjöt og fiskur. En mestu máli skiptir að borða fjölbreytt! Ekki borða mikið af smjöri eða rjóma, því það er fitandi og óhollt. Sykur er líka óhollur en það má borða sykur í hófi. Lýsi er mjög hollt, sérstaklega fyrir Íslendinga. Íslendingar þurfa D-vítamín sem maður fær úr fiski og sólskini. Á veturna er lítið um sólskin svo það er gott að taka lýsi sem inniheldur mikið af D-vítamínum.Við í 8. bekk óskum ykkur góðs gengis með Heilsuvikunna. Við vonum innilega að þið munuð lifa heilbrigðara lífi eftir hana!

Tekur þú þátt í heilsuvikunni, ef svo er, hvað ætlarðu að gera öruvísi?Nafn: Alda Leif JónsdóttirAldur: 33 áraKennari í grunnskólanum„Já, ég ætla að labba í vinnuna!“Nafn: Elín KristinsdóttirAldur: 40 áraDeildarstjóri sérkennslu í skólanum„Já auðvitað, ég ætla að taka þátt í eins miklu og ég get, það er t.d. mjög spennandi dagskrá. Margt sem ég mundi vilja kíkja á og svo ætla ég labbandi í vinnuna.“Nafn: Björg Brimrún SigurðardóttirAldur: 13 áraNemandi í grunnskólanum„Já, ég ætla að labba í skólann og hætta að borða nammi.“Nafn: Klara Sól SigurðardóttirAldur: 14 áraNemandi í grunnskólanum„Já, já! Ég ætla að borða hollt.“

8.bekkur GSS

?Heilbrigt líf að mati 8. bekkjar

Til leigu /sölu húseignin að Silfurgötu 40 hér í bæ. Upplýsingar í síma 436-6925.

Til sðlu Honda CRV árg. 05 ekinn 135þús. fæst á mjög góðu verði fallegur og vel með farin bíll Uppl í síma 8937050

Smáauglýsingar

Þetta farartæki brennir fitu og sparar þér peninga

S.l. laugardag var bryddað upp á nýrri uppákomu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Einar Kárason rithöfundur sem löngu hefur sýnt og sannað að hann er sagnamaður af hjarta og sál leiðir áheyrendur inn í töfraheima sögunnar á Söguloftinu. Að þessu sinni segir Einar Kárason frá Sturlu Þórðarsyni, einu af höfuðskáldum miðalda í Norðurálfu. Allt frá uppvexti hans í Reykholti í akademíu Snorra Sturlusonar föðurbróður hans, og svo í gegnum langa og viðburðaríka ævi Sturlu sem blandaðist inní eða var beinn þátttakandi í öllum helstu stórviðburðum Sturlungaaldar. En náði jafnframt að skrifa um það sem hann lifði og hugsaði í bækur sem munu lifa á meðan læsir menn fyrirfinnast í veröldinni.Einar kann sagnalistina og á tæplega tveggja tíma dagskrá þar sem hann rekur sögu Sturlu Þórðarsonar sem bjó lengst af hér við Breiðafjörðinn s.l. laugardag gerði hann sögunni góð skil við góðar undirtektir áhorfenda sem fylltu Söguloftið. Söguna byggir Einar á þríleik sínum Óvinafagnaður, Ofsi og Skáld en síðastnefnda skáldsagan kom út fyrir síðustu jól. Það ætti ekki að fæla neinn frá þessari dagskrá að hafa ekki lesið bækur Einars eða Sturlungu því saga Einars stendur alveg ein og sér, ef eitthvað er vekur dagskráin áhuga áheyrenda til lesturs á bókum Einars og öðru tengdu efni. am

Af Sturlungum og fleira fólki

Þetta farartæki brennir peningum og

gerir þig feitan

Elskulegur eiginmaður minn, faðir og afi,

Guðmundur ÁGústssonskólastíg 26 stykkishólmi,

sem lést á Sjúkrahúsi Stykkishólms þriðjudaginn 8. janúar, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. janúar kl. 14.

Vigdís ÞórðardóttirHafþór smári GuðmundssonVigdís Karen HafþórsdóttirGuðmundur Óli Hafþórsson

Page 5: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms-Pósturinn, 2. tbl. 20. árgangur 17. janúar 2013

www.stykkisholmsposturinn.is 5 [email protected]

Jöfnunarstyrkur til náms

- Umsóknarfrestur á vorönn 2013 er til 15. febrúar n.k. -

Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að stunda nám fjarri heimili sínu.

• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldusinni vegna náms).

• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla).

Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).

Lánasjóður íslenskra námsmannaNámsstyrkjanefnd

Fyrirlestur á vegum SAFT í Fjölbrautaskóla Snæfellinga fimmtudaginn 24. janúar, klukkan 20:00.

Allir velkomnir Sérstaklega foreldrar/forráðamenn nemenda á grunn- og framhaldsskólaaldri

Internetið: Jákvæð og örugg notkun barna og unglinga

Fyrirlesari: Hafþór Barði Birgisson, tómstunda- og félagsmálafræðingur.

Efnistök:

Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir foreldra að þek-kja og gera sér grein fyrir. Til að foreldrar geti talað við börnin sín og leiðbeint þeim um öryggi og góða hegðun þurfa þeir að þekkja það umhverfi sem börnin eru í dags daglega. Leiðbeiningar um „umferðarreglur“ á netinu eru því orðinn einskonar hluti af up-peldishlutverkinu.

Fjallað verður um netið og nýmiðla og mikilvægi þeirra í lífi barna og unglinga. Meðal annars verður rætt um:

A. Helstu notkunarleiðir og venjur barna og unglinga

B. Hvað nauðsynlegt er að hafa í huga til að netnotkun verði örugg og ánægjuleg

C. Hvernig foreldrar og kennarar geta rætt um jákvæða og örugga netnotkun við börn og unglinga

D. Sýnikennsla á nokkrum af þeim „verkfæra“ sem ungt fólk notar

Á fyrirlestrinum er einnig farið yfir siðferði á netinu, rafrænt einelti, netboðorðin, félagsnetsíður, friðhelgi einkalífsins, netvini, nettælingu og stiklað á stóru um kynslóðabilið.

Hefur þú kynnt þér hvað fæst í heimabyggð?

• Hönnun vefsíðna, auglýsinga,

bæklinga, margmiðlunarefnis og

vörumerkja í 12 ár!

• Hjá okkur færðu prentað

ýmislegt á okkar prentvélar eða

við leitum hagstæðustu tilboða í

stærri verk.

• Við plöstum upp í stærð A3

• Bindum inn í gorma, harðspjöld

eða heftum í ýmsar stærðir.

• Ljósritun & skönnun

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð

Kem reglulega í Stykkishólm og mun bjóða upp á meðhöndlun í Höfuðbeina og

spjaldhryggjarmeðferð. Hægt er að velja um meðhöndlun annaðhvort á bekk eða í vatni. Sjá

nánar um meðferðirnar á www.cranio.is

Hver tími er 40 mínútur. Nauðsynlegt er að panta tíma fyrirfram.

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma 8970823 eða [email protected]

Krakkar – foreldrar! Munið kirkjuskólann kl. 11.00 á sunnudögum.

Page 6: Stykkishólms-Pósturinn 17.janúar 2013

Stykkishólms-Pósturinn, 2. tbl. 20. árgangur 17. janúar 2013

www.stykkisholmsposturinn.is 6 [email protected]

Félagsfundurverður haldinn fimmtudaginn 17. janúar 2013

Fundarefni: Uppsögn kjarasamninga. Önnur mál.

Ólafsvík kl. 16.00 að Ólafsbraut 19.Grundarfirði kl. 18.00 Borgarbraut 2.

Stykkishólmi kl. 20.00 Þvervegi 2.

Stjórnin

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir eftir

leikskólakennara til starfa.

Um er að ræða 100% afleysinga stöðu frá og með 1. febrúar 2013.

Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa, munu aðrar umsóknir koma til greina. Við minnum á að starfið hentar bæði körlum og konum.

Nánari upplýsingar gefur Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri í síma 4338128.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar og á vef bæjarins www.stykkisholmur.is

Umsóknarfrestur er til 24. janúar 2013.

Stykkishólmsbær

#stykkisholmsposturinn #hressheilsuvikaHressasta Instagram heilsumyndin!Nánar á www.stykk sholmspostur nn. s