39. tbl. 2010

6
Fimmtudagur 28. október 2010 www.eystrahorn.is Eystrahorn 39. tbl. 28. árgangur Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús www.eystrahorn.is Enn sannast hvað mikilvægt er að eiga góðar björgunarsveitir til taks þegar slys verða. Á laugardaginn barst beiðni frá manni sem hafði slasast á fjórhjóli í Hafradal. Friðrik Jónas Friðriksson formaður Björgunarfélags Hornafjarðar lýsti björgunaraðgerðum svona; „Þann 23.okt síðastliðinn barst Björgunarfélagi Hornafjarðar hjálparbeiðni frá fótbrotnum manni sem fallið hafði á fjórhjóli í Hafradal sem er inn af Laxárdal í Nesjum. Fljótlega eftir hjálparbeiðni barst var nokkuð tvísýnt að koma manninum niður í björtu þar sem birtu er verulega farið að bregða um kl. 18:00. Var strax ákveðið að óska eftir þyrla landhelgisgæslunnar kæmi til að aðstoða okkur og einnig var Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kölluð út. Fóru 10 manns frá Björgunarfélagi Hornafjarðar fótgangandi inn Hafradal og voru komnir að hinum slasaða einum og hálfum tíma eftir að útkallið barst. höfðu samráði við vakthafandi lækni á Höfn og skoðun sjúkraflutningsmanns á staðnum var ákveðið að hlúa að manninum á staðnum en flytja hann ekki. Hinn slasaði hafði fótbrotnað og var orðinn nokkuð hrakinn þar sem hann hafði fallið í ána sem er þarna í dalnum. Eftir um klukkustundar bið fórum við að heyra í þyrlu gæslunar TF-LÍF. En erfitt var að sjá hana þar sem hún flaug um ljóslaus vegna notkunnar nætursjónauka. Það verður viðurkennast öllum björgunarmönnum fannst nokkuð furðulegt heyra í þyrluni læðast inn dalinn en sjá hana ekki. Fundinn var lendingarstaður stutt frá hinum slasaða og lenti þyrlan þar og var hinn slasaði fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús.“ Jafnframt vildi Jónas koma á framfæri kveðju og þakklæti frá hinum slasaða til björgunarsveitarfólks og þyrluáhafnarinnar en maðurinn er ristarbrotinn, ökklabrotinn og báðar pípurnar í fótlegg brotnar. Fjórhjólaslys inná Hafradal Myndin er tekin á farsíma á slysstað Dansinn dunar Yfir 250 grunnskólanemar sóttu dansnámskeið Jóns Péturs sem endaði með fjörugri og skemmtilegri danssýningu í íþróttahúsinu. Ljósmynd: Þórgunnur Torfadóttir

Upload: heradsfrettabladid-eystrahorn

Post on 08-Mar-2016

249 views

Category:

Documents


9 download

DESCRIPTION

39. tbl. 2010

TRANSCRIPT

Page 1: 39. tbl. 2010

Fimmtudagur 28. október 2010 www.eystrahorn.is

Eystrahorn39. tbl. 28. árgangur

Blað sem eflir bæjarbrag og berst í sérhvert hús

www.eystrahorn.is

Enn sannast hvað mikilvægt er að eiga góðar björgunarsveitir til taks þegar slys verða. Á laugardaginn barst beiðni frá manni sem hafði slasast á fjórhjóli í Hafradal. Friðrik Jónas Friðriksson formaður Björgunarfélags Hornafjarðar lýsti björgunaraðgerðum svona;„Þann 23.okt síðastliðinn barst Björgunarfélagi Hornafjarðar hjálparbeiðni frá fótbrotnum manni sem fallið hafði á fjórhjóli í Hafradal sem er inn af Laxárdal í Nesjum. Fljótlega eftir að hjálparbeiðni barst var nokkuð tvísýnt að koma manninum niður í björtu þar sem birtu er verulega farið að bregða um kl. 18:00. Var strax ákveðið að óska eftir að þyrla landhelgisgæslunnar kæmi til að aðstoða okkur og einnig var Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi kölluð út. Fóru

10 manns frá Björgunarfélagi Hornafjarðar fótgangandi inn Hafradal og voru komnir að hinum slasaða einum og hálfum tíma eftir að útkallið barst. Að höfðu samráði við vakthafandi lækni á Höfn og skoðun sjúkraflutningsmanns á staðnum var ákveðið að hlúa að manninum á staðnum en flytja hann ekki. Hinn slasaði hafði fótbrotnað og var orðinn nokkuð hrakinn þar sem hann hafði fallið í ána sem er þarna í dalnum. Eftir um klukkustundar bið fórum við að heyra í þyrlu gæslunar TF-LÍF. En erfitt var að sjá hana þar sem hún flaug um ljóslaus vegna notkunnar nætursjónauka. Það verður að viðurkennast að öllum björgunarmönnum fannst nokkuð furðulegt að heyra í þyrluni læðast inn dalinn en sjá hana ekki. Fundinn var

lendingarstaður stutt frá hinum slasaða og lenti þyrlan þar og var hinn slasaði fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús.“Jafnframt vildi Jónas koma á framfæri kveðju og

þakklæti frá hinum slasaða til björgunarsveitarfólks og þyrluáhafnarinnar en maðurinn er ristarbrotinn, ökklabrotinn og báðar pípurnar í fótlegg brotnar.

Fjórhjólaslys inná Hafradal

Myndin er tekin á farsíma á slysstað

Dansinn dunarYfir 250 grunnskólanemar sóttu dansnámskeið Jóns Péturs sem endaði með fjörugri og skemmtilegri danssýningu í íþróttahúsinu.

Ljósmynd: Þórgunnur Torfadóttir

Page 2: 39. tbl. 2010

2 EystrahornFimmtudagur 28. október 2010

EystrahornSími: 862-0249 • Rnr. 0172 – 26 - 000811 • Kt. 240249-2949Útgefandi: ................................HornafjarðarMANNIRitstjóri og ábyrgðarmaður: ......................Albert EymundssonNetfang: [email protected]ófarkalestur: ........................Guðlaug HestnesLjósmyndir: .............................Maríus SævarssonUmbrot: ..................................Heiðar SigurðssonAðstoð: .....................................Ásta ÁsgeirsdóttirPrentun: ..................................LeturprentISSN 1670-4126

Húsgagnaval

Úrval af rúmum og dýnum

TILBOÐ • TILBOÐ • TILBOÐKaren Blixen frá ROSENDAHLGlös og skálar frá LEONARDO

Opið 13 - 18 virka daga

13 - 15 laugardaga

Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Íbúðalánasjóð hefur á síðustu vikum verið á ferð um landið með námskeiðið „Viðhald og verðmæti“. Námskeiðið er liður í því að vekja fólk til umhugsunar um það verðmæti sem falið er í fasteignum og nauðsyn þess að huga að viðhaldi áður en ástandið verður of slæmt og kostnaðarsamt. Reglubundið og f y r i r b y g g j a n d i viðhald og endur-nýjun tryggir á f r a m - h a l d a n d i verðmæti fasteigna. N á m s k e i ð i ð „Viðhald og verðmæti“ hefur verið haldið hvorutveggja á Akureyri og Ísafirði með mjög góðum árangri og hafa í kringum 200 einstaklingar þegar sótt námskeiðið. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum hins almenna húseiganda en tekin eru fyrir byggingarmál, lagnamál, orkusparnaður og lífsgæði. Námskeiðið verður haldið á Hótel Héraði, Egilsstöðum, miðvikudaginn 3. nóvember frá klukkan 15:00 – 18:30. Markmið með námskeiðinu er hvorutveggja að veita fræðslu og ráðgjöf en einnig að búa til vettvang til tengsla milli

húseiganda og fyrirtækja á svæðinu sem veitt geta sérhæfða aðstoð og ráðgjöf. Þátttakendum er því boðið á sérstakt tengslatorg meðan á námskeiði stendur þar sem fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og

þjónustuaðilar í byggingariðnaði veita upplýsingar og ráðgjöf um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnu-stað. Slík tenging og greitt aðgengi að upplýsingum er líkleg til að hvetja

fólk til framkvæmda. Hátt í 25 fyrirtæki að norðan og vestan tóku þátt í tengslatorginu á Akureyri og Ísafirði og mátti þar finna sérfræðinga í raflögnum, pípulögnum og myglusvepp svo fátt eitt sé nefnt. Gert er ráð fyrir að mæting hvorutveggja fyrirtækja og almennra húseigenda á suðaustur og austurlandi verði mjög góð. Aðgangur er ókeypis og fer skráning fram inn á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands: www.nmi.is. Þar er einnig að finna dagskrá fyrir námskeið og allar frekari upplýsingar.

Stöndum vörð um verðmæti fasteigna með viðhaldi

Verðum á heimamarkaðnum í Pakkhúsinu á laugardaginn

Svína- og lambakjöt, kartöflur.

Miðskersbúið

Tilkynning til skotveiðimannaRjúpnaveiði er bönnuð í landi Stafafells og Brekku án samþykkis landeigenda.Að gefnu tilefni skal bent á að Kjarrdalsheiði er þar meðtalin.Upplýsingar og leyfi í síma 849 3589.

Landeigendur

Jóhanna Dagmar Magnúsdóttir lést á heimili sínu Víkurbraut 32D, laugardaginn 23. október. Jóhanna fæddist á Borðeyri við Hrútafjörð 21. mars 1936. Hún var fjórða barn Magnúsar Richardssonar símstöðvarstjóra og konu hans Sigríðar Mattiasdóttur. Jóhann var þrígift og átti

4 börn; Magnús, Stefán, Fríðu og Sigríði. Hún eignaðist 11 barnabörn og 12 barnabarnabörn. Hún fluttist til Hornafjarðar 1982 og átti lengst af heima í Hlíðartúninu með Kolbeini Þorgeirssyni en þau giftu sig árið 2005. Kolbeinn lést árið 2007. Jóhanna starfaði lengst af í vöruafgreiðslu Kaupfélagsins en vann auk þess mikið að félagsmálum, meðal annars við Slysavarnafélag Íslands og Félag eldri borgara á Hornafirði og þótti liðtæk í boccia og fleiru. Minningar athöfn fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 29. október og hefst athöfnin kl. 14. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. nóvember kl. 15.

Andlát

Uppskeruhátíð yngriflokka Sindra verður sunnudaginn 31. október kl. 11:00. Hátíðin verður á íþróttasvæðinu eða inni í íþróttahúsi ef veðrið verður slæmt.Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í hátíðinni með krökkunum.

Knattspyrnudeild Sindra

Page 3: 39. tbl. 2010

3Eystrahorn Fimmtudagur 28. október 2010

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

Ríki Vatnajökuls ehf. er klasasamstarf aðila í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og menningarmála á Suðausturlandi. Klasinn hefur starfað frá árinu 2007 og hefur það markmið að á svæðinu sé rekin ö�ug og arðbær ferðaþjónusta allt árið sem byggir á aðdráttara�i stórbrotinnar náttúru, matvælum og menningu svæðisins.Umsóknarfrestur er til og með 10. nóvember 2010, fyrirspurnir og umsóknir berist Sigurlaugu Gissurardóttur, [email protected]

Stefnt er að því að ganga frá ráðningu fyrir lok nóvember og æskilegt er að umsækjendur geti ha�ð störf sem fyrst.

Nauðsynlegt er að framkvæmdarstjóri verði búsettur á Suðausturlandi

Óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til að annast markaðssetningu og daglegan rekstur

Stórdansleikir á Hótel Höfn

föstudagskvöldið 29. október

og laugardagskvöldið

30. október

Hljómsveitin Almannaskarð

hefur aldrei verið þéttari en samt kostar

bara 2000 kall inn.ATH - það geta ekki allir

verið gordjöss!

Jólakort MS-félagsins í ár skartar listaverki eftir Karolínu Lárusdóttur og ber myndin nafnið „Þreyttir englar“. Sala jólakortanna er mikilvæg tekjulind fyrir félagið og kosta 8 kort saman í pakka kr. 1.000,- Kortin eru nú til sölu hjá Valgeiri Hjartarsyni Hlíðartúni 5. Í byrjun nóvember verður gengið í hús og kortin boðin til sölu. MS-félagið vonar að fólk sjái sér fært að styrkja gott málefni um leið og þú sendir fallega jólakveðju.

Jólakort MS félagsins

Síðustu sýningar á „Söngur um lífið“, sýningu Hornfirska skemmtifélagsins á Hótel Höfn, eru núna um helgina. Sýnt verður bæði á föstudags- og laugardagskvöld og er uppselt bæði kvöldin. Metaðsókn hefur verið á „Söngur um lífið“ en almennar sýningar verða sex talsins auk einnar skólasýningar. Troðfullt hefur verið á öllum þessum sýningum og má því áætla að um 700 manns hafi séð sýninguna. Fjöldi fólks

hefur komið til Hornafjarðar gagngert til að sjá sýninguna og í ár kom í fyrsta skipti stór hópur með flugi frá Reykjavík. Auk þess hafa komið fjölmargir starfsmannahópar frá Austurlandi og víðar. Almenn ánægja hefur verið með sýninguna og segja margir að þetta sé besta sýningin til þessa. Hornfirska skemmtifélagið hefur nú sett upp níu sýningar á Hótel Höfn.

Síðustu sýningar um helgina

Ljósmyndir: Óðinn Eymundsson

Page 4: 39. tbl. 2010

4 EystrahornFimmtudagur 28. október 2010

Fundarritun og FundarstjórnFarið er í gegnum helstu atriði góðra fundargerða og hvert verksvið fundarritara er, hvað eru aðalatriði og aukaatriði og hvað þarf að koma fram í fundargerðum. Skoðað er hvernig hægt er að staðla fundarritun og auðvelda þannig fundarritun. Einnig hvað þarf að hafa í huga þegar minnisblöð eru skrifuð og til hvers þau eru. Farið verður í virka fundarstjórnun og muninn á fundum eftir því hvort um er að ræða félagsfundi, aðalfundi eða vinnufundi. Hvert er hlutverk fundarstjóra og hvernig hann tekur á erfiðum aðstæðum. Hvað eru tillögur og munurinn á þeim. Markmiðið er að geta stýrt fundum á uppbyggilegan hátt.

tími: 9. nóv. kl. 19:30-21:30 staðsetning: AFL v/Víkurbraut Verð: Ókeypis fyrir alla.

LaunaViðtaLiðFarið er yfir að hverju þarf að huga þegar kemur að launaviðtali. Skoðað er hvaða spurninga þarf spyrja, farið yfir framkomu og hvernig launamaður rökstyður mál sitt.

tími: 8. Nóv. kl. 19:30-21:30 staðsetning: AFL v/Víkurbraut Verð: Ókeypis fyrir félagsmenn, 3000.- fyrir aðra.

skráning: www.tna.is, [email protected] ,s:470-3841

Námskeiðin eru í boði AFLs sem eflir félagsmenn í námi og starfi.

„Það er ekkert töff viðþað að leggja í einelti!“

Sverrir Þór Sverrisson,skemmtikraftur.

Þér er boðið að sækja borgarafund í átakinu Stöðvum einelti!

Fundurinn verður haldinn 28. október í Nýheimum á Höfn í Hornafirði og hefst hann kl. 20:00. Jafningjafræðslufundur verður haldinn á sama stað kl. 18 fyrir nemendur í 7.-10. bekk.

Hafnarkirkja Sunnudaginn 31. október

Sunnudagskóli og messa kl. 11:00

Kyrrðarstund kl. 20:00.

Í tilefni af allra heilagra messu. Látinna minnst í tali og tónum.Sóknarprestur

Bændahátíð 2010Uppskeruhátíð bænda í austur-Skaftafellssýslu árið 2010 verður haldin að Smyrlabjörgum laugardagskvöldið 6. nóvember n.k.

húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00.

Í matinn er: • Villibráðaforréttur • Nauta – eða lambakjöt eftir ósk hvers og eins í aðalrétt • Sunnudagskaka Suðursveitar í eftirrétt.

Veislustjóri er Valur Freyr Pálsson.

Birgir Jóhann Birgisson og Már Elísson fyrrverandi trommari og söngvari í Upplyftingu leika fyrir dansi.

Miðaverð það sama og í fyrra eða 5.800 kr.

Miðapantanir í síma 478-1074/892-2574 fyrir hádegi föstudaginn 5. nóvember.

Allir velkomnir til sjávar og sveita

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Austur-SkaftafellssýsluFundurinn verður haldinn föstudaginn 5. nóvember kl. 18:00 í Sjálfstæðishúsinu.

Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf

Stjórnin

Page 5: 39. tbl. 2010

5Eystrahorn Fimmtudagur 28. október 2010

Þau óvæntu tíðindi urðu síðast að Inni rúllaði yfir Hopp 10 -8 og kom það skemmtilega á óvart. Inni skorar

á Jaspis sem er nú hálfgerð hjónabylta og sjáum hvað kemur út úr því!

INNI Jaspis1. Arsenal - West Ham 1 12. Blackburn - Chelsea 2 2 3. Everton - Stoke 1 1 4. Fulham -Wigan 1x 15. Wolves -Man.City 2 26. Cardiff -Norwich 1x2 1x7. Derby -Watford 1x2 1x2 8. Leicester-Preston 1 1 9. Crystal Palace -Swansea 1 1x2 10. Ipswich -Millwall 1x2 1x11. Portsmoth –Nott. Forest 1x 1 2 12. QPR-Burnley 1 113. Scunthorp-Leeds x2 1x2

Tipphornið

Það var þétt skor hjá þeim fyrirtækjum sem tippuðu síðast níur og tíur en við bíðum bara eftir þeim stóra!

Vika 1 2 3 4 5 SamtalsHvanney SF 8 10 9 8 10 45H. Christensen 7 7 9 8 9 40Hopp.is 8 10 8 9 35Nettó 7 10 5 22Víkin 10 7 17Ásgrímur Halldórsson 9 8 10 17INNi 10 10Flutningadeild KASK 7 7Lyftaraverkstæði S-Þ 7 9 7Bakaríið 5 5

Laugardaginn 16. október tók Karlakórinn Jökull þátt í Kötlumóti á Flúðum. Katla er samband sunnlenskra karlakóra stofnað árið 1975 og eru 17 kórar í sambandinu núna. Starfsvæði Kötlu nær frá Snæfellsnesi og Dölum í vestri og að Höfn í austri. Það voru félagar í Karlakór Hreppamanna sem höfðu veg og vanda af mótinu að þessu sinni. Kötlumót eru haldin á fimm ára fresti. Alls hafa verið haldin sjö mót í gegnum tíðina og hafa þar komið nokkrir kórar við sögu og haldið mótin í sinni heimabyggð. Karlakórinn Jökull hélt mót árið 1995 sem er enn í minnum haft.Þeir Hreppamenn eiga hrós skilið fyrir gott mót og góða skipulagningu, þarna komu saman um 600 söngmenn og hófu upp raust sína í sameiginlegum kór og einnig söng hver kór sín lög. Það er skemmst frá að segja að söngur í svo stórum hópi sem 600 karlar eru er alveg ólýsanlegur og mikil upplifun fyrir hvern og einn sem tekur þátt. Á mótinu voru tveir gestakórar, Karlakór Akureyrar/Geysir og finnskur kór, sem nefnist Manifestum.Það er mikil gróska í starfi Karlakórsins Jökuls eins og undanfarin ár, auk þess að fara á Kötlumót mun kórinn standa fyrir dansleik í nóvember, svokölluðu gömludansaballi þar sem kórmenn sjá bæði um söng og undirleik ásamt þeim Guðlaugu Hestnes undirleikara og Jóhanni Morávek stjórnanda. Síðast liðið vor hélt kórinn samskonar

dansleik sem mældist vel fyrir og er meiningin að endurtaka núna eins og fyrr sagði og síðan aftur í vor ef við verðum í stuði. Einnig mun Karlakórinn Jökull halda sína árlegu jólatónleika í Hafnarkirkju þar sem kórar og tónlistarfólk á Höfn taka þátt, árshátíð kórsins verður svo í lok febrúar eins og undanfarin ár.Næsta sumar eða þann 12. júní heldur Karlakórinn Jökull út fyrir landsteinana og hefur stefnan verið sett á Kanada. Kórinn tekur þátt í 200 ára afmælis hátíð Jóns Sigurðssonar og heldur tónleika í 700 manna tónlistarsal í Foam Lake á þjóðhátíðardaginn 17. Júní og mun dagskrá hátíðarinnar byggja að mestu leyti á konsert kórsins. Það er öruggt að þetta verður áhugaverð og skemmtileg ferð og margir merkilegir staðir heimsóttir.Á öllu þessu má sjá að það er ekki leiðinlegt að vera í karlakór, ég geri orð kollega míns Magnúsar H. Sigurðssonar formanns undirbúningsnefndar Kötlumótsins að mínum, „Við karlarnir njótum þess að syngja saman, menn leggja sig fram fyrir sjálfa sig, félagana og stjórnandann með það að markmiði að syngja betur í dag en í gær“.

Söngkveðjur, Heimir Örn Heiðarsson,

formaður Karlakórsins Jökuls.

Karlakórinn á ferð og flugi

FOSSHÓTEL / SIGTÚN 38 / 105 REYKJAVÍK / SÍMI: 562 4000 FAX: 562 4001 / E-MAIL: [email protected]

V I N A L E G R I U M A L LT L A N D

ALLT KLÁRTFYRIR ÞÍNA HEIMSÓKN

Verið velkomin á villibráðahlaðborð á Fosshótel Vatnajökli laugardaginn 6. nóvember.

Hlaðborð 6.900 kr.Hlaðborð og gisting 9.900 kr í tveggja manna herbergi.

Borðapantanir í síma 858 1755.

Nánar á www.fosshotel.is

Njóttu villibráðarinnar

Verð

Villibráð úr ríki Vatnajökuls

Page 6: 39. tbl. 2010

46%AFSLÁ

TTUR

40%AFSLÁ

TTUR

MJÓDD SALAVEGUR HVERAFOLD REYKJANESBÆR

GRINDAVÍK AKUREYRI HÖFN

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTANN Á WWW.NETTO.IS!

GILDIR 28. - 31. OKTÓBER

SÍGILT

31%AFSLÁ

TTUR

30%AFSLÁ

TTUR

50%AFSLÁ

TTUR

GOTT

VERÐ

Gildir meðan birgðir endast. Birt með fyrirvara um prentvillur.

mar

khön

nun.

is

NAUTA- MÍNÚTUSTEIK FERSK

1.989kr KR/KG

GRÍSA- KÓTELETTUR FERSKAR

899kr KR/KG

BAYONNESKINKA

1.298krKR/KG

LAMBASVIÐÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

259krKR/KG

KREBENETTURÍ RASPI – FROSNAR

899krKR/KG

GRÍSASNITSELÍ RASPI – FROSIÐ

1.199krKR/KG

LONDONLAMB

1.399krKR/KG

KALKÚNA-GRILLSNEIÐAR

1.599krKR/KG

PEPSI/PEPSI MAX2L

198krKR/STK.

JARÐARBER200 G ASKJA

699 KR/PK.

599 KR/PK.

SALTKJÖTÓDÝRT FYRIR HEIMILIÐ

355krKR/KG

LAXAFLÖKMEXICO/TOSCANA325 G

599 KR/PK.

KJÚKLINGA-VÆNGIR - 500 GHOT EÐA BBQ

LAXABITAR 250 G

198 KR/PK.

KLAKALENGJURSCOOBY DOO325 G